32
64. árgangur / 1. tbl. / Júní 2014 Síminn hringir stöðugt Það er nóg að gera hjá þeim stöllum Helgu Jakobs og Jóhönnu Margréti Guðjóns- dóttur sem starfa á skrifstofu Verkstjórasambandsins. Bls. 12 Vaskir menn á Vesturlandi Þrír stjórnarmanna Verkstjóra- félags Borgaraness starfa hjá Límtré Vírneti þar í bæ. Við tókum hús á formanninum, Einari Óskarssyni. Bls. 20 Skúli Sigurðsson, fyrrverandi formaður Brúar – félags stjórnenda, hefur verið ráðinn kynningarfulltrúi Verkstjórasambands Íslands. Meginhlutverk hans verður að hjálpa aðildarfélögunum að afla nýrra félaga. „Úti á vinnumarkaðnum eru um 30.000 stjórnendur. Okkar félagsmenn eru um 2.200 talsins þannig að við eigum eftir stóran, óplægðan akur. Við gerum okkur grein fyrir því að við náum ekki öllum stjórnendum til okkar en með öflugu og breyttu stjórnskipulagi sambandsins getum við gert okkur góðar vonir um talsverða fjölgun innan okkar raða. Við vonumst til þess að geta lagt af stað í þessa vegferð af fullum krafti nú á haustmánuðum,“ segir Skúli. Bls. 18 Þurfum að ná til fleiri stjórnenda Ég fer í fríið! Skrifstofa Verkstjórasambands Íslands sendir öllum félagsmönnum sumarkveðjur með óskum um að þeir hafi það sem allra best í sumarleyfinu.

VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

  • Upload
    athygli

  • View
    226

  • Download
    4

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

64. árgangur / 1. tbl. / Júní 2014

Síminn hringir stöðugtÞað er nóg að gera hjá þeim stöllum Helgu Jakobs og Jóhönnu Margréti Guðjóns­dóttur sem starfa á skrifstofu Verkstjórasambandsins.

Bls. 12

Vaskir menn á VesturlandiÞrír stjórnarmanna Verkstjóra­félags Borgaraness starfa hjá Límtré Vírneti þar í bæ. Við tókum hús á formanninum, Einari Óskarssyni.

Bls. 20

Skúli Sigurðsson, fyrrverandi formaður Brúar – félags stjórnenda, hefur verið ráðinn kynningarfulltrúi Verkstjórasambands Íslands. Meginhlutverk hans verður að hjálpa aðildarfélögunum að afla nýrra félaga.

„Úti á vinnumarkaðnum eru um 30.000 stjórnendur. Okkar félagsmenn eru um 2.200 talsins þannig að við eigum eftir stóran, óplægðan akur. Við gerum okkur grein fyrir því að við náum ekki öllum stjórnendum til okkar en með öflugu og breyttu stjórnskipulagi sambandsins getum við gert okkur góðar vonir um talsverða fjölgun innan okkar raða. Við vonumst til þess að geta lagt af stað í þessa vegferð af fullum krafti nú á haustmánuðum,“ segir Skúli.

Bls. 18

Þurfum að ná til fleiri

stjórnenda

Ég fer í fríið!Skrifstofa Verkstjórasambands Íslands sendir öllum

félagsmönnum sumarkveðjur með óskum um að þeir hafi það sem allra best í sumarleyfinu.

Page 2: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

2

Verkstjórinn - 64. árgangur, 1. tbl. Júní 2014

ISSN 2298-3201

Útgefandi: Verkstjórasamband Íslands

Ritstjóri: Kristján Örn Jónsson (ábm).

Umsjón og umbrot: Athygli ehf.

Textagerð: Guðjón Guðmundsson, Gunnlaugur Árnason, Valþór Hlöðversson o.fl.

Auglýsingar: Ingibjörg Ágústsdóttir, [email protected]

Prentun: Litróf

Dreift til félagsmanna í Verkstjórasambandi Íslands og á fjölda vinnustaða um land allt.

UMHVERFISMERKI

Prentsmiðja

141 912

Skúli Sigurðsson, kynningarfulltrúi VSSÍ:

Verkstjórnarfræðsla í fjarnámiVerkstjórn krefst þekkingar á starfsemi og skipu-

lagi fyrirtækja, skilnings á þörfum rekstrarins fyrir þjálfað og agað starfsfólk og framúrskar-

andi hæfni í mannlegum samskiptum. Verkstjórinn er fagmaður í stjórnun og hann þarf að viðhalda og þroska fagmennsku sína.

NámiðSímenntun verkstjóra er eitt af meginstefnumálum Verk-stjórasambandsins. Verkstjórnarfræðslan hefur um árabil verið uppistaðan í því starfi. Undanferin misseri hefur námsframboð Verkstjórnarfræðslunnar verið endurskoðað. Námið mun skiptast í fimm lotur: (1) Við-horf verkstjórans til eigin starfs og stöðu, (2) Afstaða verkstjórans og verklag gagnvart undirmönnum, (3) Skipulag fyrirtækisins og innviðir þess, (4) Rekstur fyrir-tækisins í ljósi markmiða þess, ferla og afkomu og (5) Umhverfið sem fyrirtækið starfar í. Hver lota skiptist í áfanga sem innihalda fyrirlestra á vef, ritað ágrip meginatriða, verkefni og ítarefni.

Fjarnám og fjarkennslaVerkstjórasambandið hefur frá upphafi verkefnisins lagt áherslu á fjarkennslu og fjarnám. Slíkt kennslufyrir-komulag hefur verulega kosti, ekki síst fyrir starfandi fólk. Í fjarnámi hefur nemandinn nokkurn sveigjanleika um námstíma sinn en er ekki bundinn af mætingum á tilteknum stað og tíma. Fyrirlestrar, verkefni og ítarefni er sett á aðgangsstýrðan vef. Nemandi hefur tengsl við kennara í gegnum vefinn og vinnur verkefni með öðrum nemendum á sama hátt.

SamstarfsverkefniVerkefni um endurskoðun verkstjóranámsins er sam-starf Verkstjórasambandsins, Samtaka atvinnulífsins og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (áður Iðntæknistofnun). Samstarfsaðilarnir skipa verkefnisstjórn sem ræður verkefnisstjóra og sérfræðinga til að hanna námsefni, skipuleggja og undirbúa miðlun þess.

Kennsla fyrstu lotunnar mun hefjast árið 2015 og munu tvær lotur verða kenndar á hverri önn. Samstarfsaðil-arnir munu kynna inntak námsins og skipulag þess ítarlega síðla árs 2014.

Lögð er áhersla á að námið verði metið til eininga í opnbera skólakefinu.

GREINARKORNIÐ

Horfðu björtum augum fram á veginnSameinaði lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á gagnsæi og öfluga upplýsingagjöf sem tryggir þér auðvelda og skýra yfirsýn yfir öll þín lífeyrismál.

Kynntu þér málin á lifeyrir.is eða fáðu upplýsingar hjá starfsfólki í síma 510 5000.

Á lifeyrir.is• sérðu stöðu lífeyrisréttinda og séreignar • finnur þú ítarlegar upplýsingar um rekstur sjóðsins• geturðu kynnt þér fjárfestingarstefnu og eignir sjóðsins• geta launagreiðendur skilað iðgjaldaskilagreinum á einfaldan

og öruggan hátt og myndað kröfu í netbanka sínum

Vefurinn okkar, lifeyrir.is, er aðgengilegur og notendavænn bæði fyrir sjóðfélaga og launagreiðendur.

Sundagörðum 2 / 104 Reykjavík / 510 5000 / lifeyrir.is

EN

NE

MM

/ S

IA •

NM

63

36

6

64. árgangur / 1. tbl. / Júní 2014

Síminn hringir stöðugtÞað er nóg að gera hjá þeim stöllum Helgu Jakobs og Jóhönnu Margréti Guðjóns­dóttur sem starfa á skrifstofu Verkstjórasambandsins.

Bls. 12

Vaskir menn á VesturlandiÞrír stjórnarmanna Verkstjóra­félags Borgaraness starfa hjá Límtré Vírneti þar í bæ. Við tókum hús á formanninum, Einari Óskarssyni.

Bls. 20

Skúli Sigurðsson, fyrrverandi formaður Brúar – félags stjórnenda, hefur verið ráðinn kynningarfulltrúi Verkstjórasambands Íslands. Meginhlutverk hans verður að hjálpa aðildarfélögunum að afla nýrra félaga.

„Úti á vinnumarkaðnum eru um 30.000 stjórnendur. Okkar félagsmenn eru um 2.200 talsins þannig að við eigum eftir stóran, óplægðan akur. Við gerum okkur grein fyrir því að við náum ekki öllum stjórnendum til okkar en með öflugu og breyttu stjórnskipulagi sambandsins getum við gert okkur góðar vonir um talsverða fjölgun innan okkar raða. Við vonumst til þess að geta lagt af stað í þessa vegferð af fullum krafti nú á haustmánuðum,“ segir Skúli.

Bls. 18

Þurfum að ná til fleiri

stjórnenda

Ég fer í fríið!Skrifstofa Verkstjórasambands Íslands sendir öllum

félagsmönnum sumarkveðjur með óskum um að þeir hafi það sem allra best í sumarleyfinu.

Page 3: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

Horfðu björtum augum fram á veginnSameinaði lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á gagnsæi og öfluga upplýsingagjöf sem tryggir þér auðvelda og skýra yfirsýn yfir öll þín lífeyrismál.

Kynntu þér málin á lifeyrir.is eða fáðu upplýsingar hjá starfsfólki í síma 510 5000.

Á lifeyrir.is• sérðu stöðu lífeyrisréttinda og séreignar • finnur þú ítarlegar upplýsingar um rekstur sjóðsins• geturðu kynnt þér fjárfestingarstefnu og eignir sjóðsins• geta launagreiðendur skilað iðgjaldaskilagreinum á einfaldan

og öruggan hátt og myndað kröfu í netbanka sínum

Vefurinn okkar, lifeyrir.is, er aðgengilegur og notendavænn bæði fyrir sjóðfélaga og launagreiðendur.

Sundagörðum 2 / 104 Reykjavík / 510 5000 / lifeyrir.is

EN

NE

MM

/ S

IA •

NM

63

36

6

Page 4: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

Það var föngulegur hópur manna úr aðildarfélögum Verkstjórasambands Íslands sem var samankom-inn á Grand hótel í Reykjavík 10. maí sl. á lands-

fundi sambandsins. Sumir höfðu ferðast um langan veg en aðrir þurftu styttri leið að fara. Þeirra á meðal var Viðar Þór Ástvaldsson.

Viðar Þór tók við sem formaður Varðar– félags stjórnenda á Suðurlandi á aðalfundi 26. mars síðastliðinn. Hann tók við af Jóni Ólafi Vilhjálmssyni sem hafði verið formaður félagsins í 32 ár. „Við erum með aðsetur á Selfossi og erum með einn starfsmann í hlutastarfi sem þjónustar okkar félagsmenn. Félagsmenn eru 242, þar af 211 skatt-skyldir þannig að þetta fremur stórt félag,“ segir Viðar Þór.

Hann segir starfið felast í kynningu á réttindum félaga hvað varðar menntunarsjóð og sjúkrasjóð, svo dæmi séu tekin. Starfsmaðurinn sinnir almennri þjónustu við félagsmenn, eins og úthlutun á sumarhúsum og öðrum tilfallandi verkefnum.

Vörður á sumarhús í Brekkuskógi í Biskupstungum og íbúð á Akureyri. „Íbúðin á Akureyri hefur verið í fastri útleigu yfir vetrartímann. Það hefur ekki reynst grundvöllur fyrir því að setja hana í úthlutun yfir veturinn. Á móti kemur að við greiðum niður hótel-gistingu fyrir okkar félagsmenn með leigutekjunum,“ segir Viðar Þór.

Viðar Þór Ástvaldsson, nýr formaður Varðar – félags stjórnenda á Suðurlandi:

Kostirnir fleiri en ókostirnir við sameiginlegt úthlutun­arkerfi á sumarhúsum

4

Viðar Þór Ástvaldsson var kjörinn nýr formaður Varðar – félags stjórnenda á Suðurlandi á aðalfundi 26. mars sl.

Page 5: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

5

Hann sagði að stór mál hefðu verið á dagskrá landsfund-sins. Rætt hefði verið um að auka samstarf milli aðildar-félaganna, taka upp eitt, sameiginlegt úthlutunarkerfi fyrir sumarbústaði og nútímavæða sambandið.

Mjög hlynntur nýju úthlutunarkerfi„Ég er mjög hlynntur sameiginlegu úthlutunarkerfi og lít á það sem hagsmunamál fyrir alla. Það eru tilfinningar sem tengjast sumarbústöðunum – menn hafa unnið við uppbyggingu þeirra í sjálboðaliðavinnu. Þess vegna er eðlilegt að menn séu hikandi þegar kemur að umgegni og umhirðu. En kostirnir eru miklu fleiri en ókostirnir. Breytingin myndi leiða til þess að aðgangur yrði að bústöðum annarra félaga en hvert félag fyrir sig ræður úthlutuninni. Við gætum t.d. haft opið fyrir úthlutun í eina eða tvær vikur. Ef eitthvað er laust að þeim tíma

liðnum getum við sett það inn í kerfið. Þá gæti, svo dæmi sé tekið, Austfirðingur gist í okkar bústað og félagsmaður frá okkur gist á Austfjörðum. Við höfum áfram fullt for-ræði yfir okkar húsi og höldum því við sjálfir. Við erum sjálfir með um 100% nýtingu á okkar sumarbústað þannig að við þurfum í raun ekki á öðrum að halda til að halda uppi nýtingunni. En við verðum að líta á þetta jákvæðum augum og þá möguleika til að geta gist annars staðar,“ segir Viðar Þór.

Hann segir að einnig komi til greina að breyta fyrir-komulagi varðandi íbúðina á Akureyri og láta hana inn í sameiginlega kerfið. „Austfirðingar sækja t.d. læknis-þjónustu í talsverðum mæli til Akureyrar. Oft vantar þá gistingu þar í einhverja daga og þetta myndum við skoða með opnum huga.“

Hjallahraun 2 - 220 Hfj. - s. 562 3833 - www.asafl.is - [email protected]áðgjöf - Sala - Þjónusta

SanddælurBrunndælurDælur með snigilhjóli

Austurdælur 12 - 24v Austurdælur 12 - 24vBorholudælurMIKIÐ ÚRVAL AF DÆLUM

Page 6: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

6

Markaðurinner allur að lifna við

Óli Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri Loftorku í Borgarnesi, segir bjart framundan í starfseminni.

Page 7: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

7

Loftorka Borgarnesi er alhliða framleiðslu- og verk-takafyrirtæki á sviði mannvirkjagerðar og sérhæfir sig í framleiðslu á forsteyptum hlutum úr stein-

steypu í mannvirki og steinrör í holræsi. Loftorka er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði framleiðslu húsein-inga úr steinsteypu, stofnað árið 1962 í Borgarnesi. Kjarnastarfsemin var í upphafi jarðvinna en síðar færðist hún út í röraframleiðslu og framleiðslu á steyptum ein-ingum.

Lifnar yfir markaðnumÓli Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri heldur um stjórnartauma fyrirtækisins, en hann var meðal annars bæjarstjóri í Borgarnesi á árunum 1987 til 1999. Óli Jón segir mikið hafa lifnað yfir markaðnum undanfarnar vikur. „Það er orðið mun auðveldara með alla skipulagningu þegar verkefnin eru orðin þetta mörg. Reksturinn verður allur auðveldari þegar hægt er að skipuleggja hann fram í tímann,“ segir Óli Jón.

Meiri kröfur eru gerðar til einingarhúsa en almenns byggingaiðnaðar. Óli Jón segir skýringuna sennilega þá að unnt sé að viðhafa eftirlit með einingarverksmiðjum en óhægt sé um vik að fylgjast með verkferlum og gæðum í hefðbundnum byggingariðnaði út um allt land. Hann segir að eftirlitið hamli ekki starfseminni en geri fram-leiðsluna vissulega kostnaðarsamari. Hins vegar mætti vera virkt eftirlit víðar þannig að verið sé að bera saman sömu hlutina hvað gæði varðar.

Loftorka framleiðir steypu, rör, brunna, sökkla, veggeiningar, filegran loftaplötur, holplötur, kúluplötur, bita, súlur, svalagólf, stiga, sorptunnuskýli og margt fleira. Á geymslulóð fyrirtækisins í Borgarnesi má sjá stórar for-steyptar einingar í mannvirki og heilu stæðurnar af stein-rörum af ýmsum stærðum. Rörin eru pantanir frá því fyrir hrun og þögul vitni um það þegar hægðist á öllum verkframkvæmdum út um allt land í kjölfar hrunsins.

Þegar gengið er um gríðarstóran framleiðsluskála Loftorku má sjá fjölda manns vera að undirbúa mót og leggja járn í þau. Þarna eru múrarar að störfum að fínpússa veggi eininganna. Forsteyptar einingar eru víða en þar má einnig sjá aðrar framleiðsluvörur, eins og tröppur í hús, stórar undirstöður fyrir stög og margt fleira. Snyrtilegt er um að litast og á húsaeiningum má sjá miða

með CE-merkingum, pöntunarnúmerum og nafni við-skiptavinar. Starfsemin er gríðarlega skipulögð og fag-mennskan blasir við hvarvetna.

Markaðssvæðið er allt landiðMarkaðssvæði Loftorku er allt landið en Óli Jón segir að vegna þyngdar vörunnar séu vissir fjarlægðarþröskuldar sem ekki verði farið yfir. Langstærsti hluti fram-leiðslunnar fer inn á höfuðborgarsvæðið. Í því samhengi er mikilvægi Borgarfjarðarbrúarinnar gífurlegt og segir Óli Jón að Loftorka væri allt annað fyrirtæki ef brúarinnar nyti ekki við. „En þrátt fyrir fjarlægðarþröskulda erum við þó engu að síður að ljúka við þjónustuhluta hótel-byggingar í Mývatnssveit, svo dæmi sé tekið.“

Framleiðsla á steypurörum er hins vegar ekki nema um fjórðungur af því sem hún var fyrir hrun. Óli Jón segir að hægst hafi verulega á opinberum framkvæmdum og þær hafi enn ekki náð sama flugi og var.

Loftorka er um þessar mundir að framleiða forsteyptar einingar fyrir nýtt fangelsi sem rís á Hólmsheiði en stór hluti fangelsins er gerður úr slíkum einingum. Einnig framleiðir það einingar fyrir nýtt hótel sem er verið að byggja á Hverfisgötu 103 í Reykjavík. Þegar blaðamann bar að garði var nýlega lagður af stað flutningabíll af stærstu gerð með 25 metra langa flotbryggju sem Loftorka framleiddi fyrir Dalvíkurbæ. Þannig mætti áfram telja.

Mest heimamenn75 manns starfa hjá Loftorku, mestmegnis heimamenn, en talsverður hópur erlendra manna hefur starfað hjá fyrirtækinu til fjölda ára. Fyrirtækið flytur mestan hlut aðfanganna inn, svo sem sement og stál. Óli Jón segir að hráefnishlutinn sé stór liður í rekstrarkostnaðinum en stærsti liðurinn sé hins vegar laun. Gríðarleg hækkun hafi orðið á öllum aðföngum í kjölfar hruns en að auki séu talsverðar sveiflur á stálverði á heimsmarkaði.

Óli Jón segir bjart framundan og mikill viðsnúningur hafi orðið á starfseminni. Einnig hafi bæst við allnokkur út-flutningur til Færeyja og jafnvel útlit fyrir útflutning til Noregs. Þar er um að ræða húseiningar, kúluplötur og holplötur. Útflutningnum fylgi gríðarlega hár flutnings-kostnaður sem gerir útflutning á þessari vöru óarðbærari en ella.

Meiri kröfur gerðar til framleiðslu einingahúsa en í hefðbundnum byggingariðnaði, segir Óli Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri Loftorku í Borgarnesi

HEIMSÓKNIN

Page 8: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

8

Sigurbjörg Hjaltadóttir sat í stjórn Stjórnendafélags Austurlands til ársins 2011. Hún hefur verið í fé-laginu í aldarfjórðung. Byrjaði fyrst í bókhaldi og

var fljótlega valin í stjórn. Hún situr nú í stjórn Verk-stjórasambandsins.

„Félagsmenn í Stjórnendafélagi Austurlands eru tæplega 400 talsins. Við erum því annað stærsta félagið á landinu. Svæði okkar nær frá Bakkafirði til Hornafjarðar og félagsmenn koma úr hinum ýmsu greinum, eins og t.d. fiskvinnslu, ýmis konar þjónustufyrirtækjum, álverinu á Reyðarfirði og svo mætti lengi telja. Einnig eru margir sjálfstætt starfandi í félaginu,“ segir Sigurbjörg.

Stjórnendafélagið heldur úti skrifstofu og þjónustar sína félagsmenn eftir bestu getu. Sigurbjörg segir að stærstum hluta snúist þjónustan um orlofsíbúðirnar og sjúkra-sjóðinn. Komi upp mál sem hún geti ekki leyst úr á skrif-stofunni fyrir austan vísar hún félagsmönnum til sam-bandsins í Reykjavík.

Eitt af stóru málunum á landsfundinum á Grand hótel í byrjun maímánaðar voru einmitt orlofshúsamálin og hugmyndir um sameiginlegt úthlutunarkerfi. Sigurbjörg segir að hún vilji skoða þessi mál mun betur og sjá þá kosti sem í boði eru. Stjórnendafélag Austurlands á tvær orlofsíbúðir í Reykjavík og eina á Akureyri.

„Vissulega spyrja félagsmenn hvort ekki sé hægt að fara inn á netið og bóka orlofshús þar. Þeir vilja nýta sér kosti netsins til slíkra hluta. En svo virðist það ekki fara hátt í

umræðunni að það er munur á orlofsíbúðum eða sumar-húsum. Þetta eru tveir ólíkir heimar, allavega fyrir okkur sem komum utan af landi og þurfum að sækja læknis-þjónustu suður og norður. Það koma upp neyðartilvik sem við þurfum að geta brugðist strax við. Bókunarkerfi fyrir orlofshús er af hinu góða þar sem menn bóka gjarna helgi eða viku í einu. Leigan hjá okkur er mjög misnunandi allt frá einum degi upp í 10 daga. Við þjónum okkar félagsmönnum gagnvart Reykjavík og Akureyri og þetta tengist oft veikindum og kallar á persónulega af-greiðslu.“

Hún segir þetta tvo ólíka markhópa. „Félagsmenn okkar eru, held ég, oft á ferðinni í tengslum við læknisferðir til Reykjavíkur og tengja það gjarnan við helgi til að ná stoppi. Til Akureyrar fara menn í helgarferðir og einnig í lækniserindum í miðri viku. Sumarhúsin, sem Aust firð-ingum stæðu til boða með sameiginlegu úthlutunarkerfi, eru flest á Suðvesturlandi, þ.e. í Borgarfirði og Grímsnesi. „Það láta fáir austur á fjörðum sér detta í hug að skreppa suður í orlofshús yfir helgina. Þetta er átta klukkustunda akstur og ekki eins einfalt í framkvæmd og ætla mætti. Við búum við allt annan veruleika og erum of langt í burtu frá þessum orlofshúsum,“ segir Sigurbjörg.

Tæplega 80% nýting hefur verið á íbúðum félagsins og Sigurbjörg segir að í sjálfu sér þurfi félagið ekki á bókunarvél að halda til að bæta nýtinguna.

Fólk hér eystra skreppur ekki í sumarhús í Grímsnesið yfir helgi

Sigurbjörg Hjaltadóttir á sæti í stjórn Verkstjórasambands Íslands.

Minnum á öfluga þjónustu Ísfells og gott úrval af vottuðum hífi- og festingabúnaði. Hér fyrir ofan má sjá lítið brot af þeim vörum sem Ísfell býður s.s. höfuðhlekki, keðjur, króka, stroffur, talíur, púllara, sjófestingabúnað, strekkiborða og lása. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allan hífi- og festingabúnað ásamt leiðbeiningum um notkun og töflur sem sýna ýmsar samsetningar hífibúnaðar og leyfilegt vinnuálag búnaðar (LVÁ). Ísfell annast skoðun og eftirlit með hífi- og festingabúnaði.

Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!

Hífi- og festingabúnaður

Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • [email protected]

www.isfell.is

Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19• Ísnet Húsavík - Barðahúsi• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður

Page 9: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

9

Minnum á öfluga þjónustu Ísfells og gott úrval af vottuðum hífi- og festingabúnaði. Hér fyrir ofan má sjá lítið brot af þeim vörum sem Ísfell býður s.s. höfuðhlekki, keðjur, króka, stroffur, talíur, púllara, sjófestingabúnað, strekkiborða og lása. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allan hífi- og festingabúnað ásamt leiðbeiningum um notkun og töflur sem sýna ýmsar samsetningar hífibúnaðar og leyfilegt vinnuálag búnaðar (LVÁ). Ísfell annast skoðun og eftirlit með hífi- og festingabúnaði.

Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!

Hífi- og festingabúnaður

Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • [email protected]

www.isfell.is

Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19• Ísnet Húsavík - Barðahúsi• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður

Page 10: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

10

Við verðum ekki með í þessu. Við sjáum enga ástæðu til þess að greiða öðrum peninga fyrir það sem við gerum sjálfir. Orlofshúsið okkar

skapar samheldni hjá stórum hópi félagsmanna okkar. Við teljum að fari aðrir að skipta sér af okkar húsi þá geti áhugi félagsmanna minnkað,“ segir Borgþór E. Pálsson, formaður Verkstjórafélags Vestmannaeyja, um orlofs-húsamálin sem rædd voru á landsfundi Verkstjórasam-bands Íslands á Grand hótel 10. maí sl.

112 félagar eru í Verkstjórafélagi Vestmannaeyja. Borgþór segir fjölda félaga óvenju háan miðað við

íbúafjölda. 38 íbúar eru á bak við hvern félaga í Verk-stjórafélagi Vestmannaeyja. Ekkert annað félag á landinu geti státað af slíku. Það þyrftu t.a.m. að vera um eitt þúsund félagar í Reykjavíkurfélaginu til að jafna þetta. Félagið á eitt sumarhús á Flúðum og segir Borgþór nýtinguna mjög góða.

„Við höfum alltaf notið góðs af velvild atvinnurekenda í okkar garð. Atvinnurekendur beina mönnum gjarnan í Verkstjórafélagið þegar þeir ráða nýja menn. Þeir vilja hafa menn í þessu félagi og eitt sem styður þessa afstöðu þeirra er það að við höfum aldrei farið í verkfall. Þetta þýðir að komi til vinnustöðvunar geta félagar í Verk-stjórafélaginu gætt hagsmuna atvinnurekenda meðan á henni stendur, t.d. hvað varðar gæslu á tækjum eða öðrum búnaði.“

Borgþór segir að atvinnurekendur sjái sér einnig hag í því að geta menntað og þjálfað sína starfsmenn með styrk frá menntunarsjóði Verkstjórasambandsins. „Ég held að þetta sé stærsta atriðið hvað varðar velvild atvinnurekenda í garð Verkstjórafélagsins.“

Borgþór bendir á að það sé hagsmunamál launþegans að atvinnurekandi sæki um styrk frá menntunarsjóði til sí-menntunar fyrir starfsmanninn. Munurinn felist í því að sæki atvinnurekandinn um styrkinn þarf starfsmaðurinn ekki að greiða skatt af styrknum. Þarna liggi líka miklir hagsmunir. Borgþór segir að stórkostleg tækifæri séu framundan hvað varðar nýtingu á menntunarsjóðnum. Félagsmönnum standi til boða að fara á námskeið og auka við þekkingu sína á margvíslegum sviðum.

Höfum alltaf notiðvelvildar atvinnurekenda

Borgþór E. Pálsson, formaður Verkstjórafélags Vestmannaeyja.

Gámurinner þarfaþing!Gistigámar Geymslugámar Salernishús

» Til sölu og/eða leigu» Margir möguleikar í stærðum og útfærslum» Hagkvæm og ódýr lausn » Stuttur afhendingartími

ATH

YGLI

EH

F.

Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100

www.stolpigamar.is Hafðu samband!Starfsmenn sambandsins vilja benda á að

Sjúkrasjóður VSSÍ er farinn að greiða fyrir umfangsmikla heilsufarsskoðun í forvarnar-skyni sem fer fram hjá Heilsuvernd.

Raunhæfur viðmiðunaraldur á þörf slíkrar skoðunar er 45-50 ára og svo með reglulegu millibili eftir það. Lítur sjóðurinn á heilsufars-skoðunina sem mikla og góða forvörn og fyrirbyggjandi fyrir hina ýmsu sjúkdóma.

MuniðSjúkrasjóðinn

Page 11: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

11

Gámurinner þarfaþing!Gistigámar Geymslugámar Salernishús

» Til sölu og/eða leigu» Margir möguleikar í stærðum og útfærslum» Hagkvæm og ódýr lausn » Stuttur afhendingartími

ATH

YGLI

EH

F.

Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100

www.stolpigamar.is Hafðu samband!

Page 12: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

12

Það er í nógu að snúast hjá Helgu Jakobs og Jóhönnu Margréti Guðjónsdóttur hjá Verkstjórasambandi Íslands í Hlíðarsmára 8 í Kópavogi. Síminn stoppar

ekki allan daginn. Það eru félagar sem spyrja út í sín or-lofsréttindi, launaréttindi, réttindi í uppsögnum, fæðing-arorlof og menntunarréttindi svo fátt eitt sé nefnt. Helga er skrifstofustjóri sambandsins og hóf þar störf árið 2000 en Jóhanna bættist í hópinn 2003. Saman eru þær því með um 25 ára starfsreynslu og öllum hnútum kunnugar í rekstri og starfsemi sambandsins.

Eins og í öllum stéttarfélögum berast ágreiningsmál af ýmsum toga inn á borð Verkstjórasambandsins. Fyrir kemur að brotið er á réttindum félagsmanna og hefur þá stundum komið til kasta lögfræðinga sambandsins, Láru V. Júlíusdóttur, sem er sérfræðingur í vinnurétti svo og Loga Egilssonar.

Þær stöllur segja að álagið sé tiltölulega jafnt allt árið. Skilagreinar frá aðildarfélögunum berast jafnt og þétt. Þó koma álagstoppar á haustin og svo aftur í þegar félags-menn sækja um styrki í menntasjóðinn til þess að komast á námskeið eða í endurmenntun. Einnig er öllu jafna meiri aðsókn í sjúkrasjóðinn og sjúkraíbúð sambandsins yfir vetrartímann en sumarið.

Á annað hundrað umsóknir „Umsóknum í sjúkrasjóð fjölgar stöðugt. Það berast á annað hundrað umsóknir í hverjum mánuði og þær þarf

allar að afgreiða. Umsóknirnar fara fyrir stjórn sjúkrasjóðsins sem hittist alltaf á síðasta degi hvers mán-aðar,“ segir Helga. Umsóknirnar eru frá aðildarfélögum hvaðanæva á landinu. Greitt er út úr sjóðnum einu sinni í mánuði.

„Síðan er all nokkur hópur út um allt land á sjúkra-dagpeningum og hefur fjölgað í þeim hópi. Núna eru nálægt 20 manns á sjúkradagpeningum og þeir geta átt rétt á þeim greiðslum í allt að eitt ár. Fyrir tveimur til þremur árum voru það ekki nema um sjö manns sem voru á sjúkradagpeningum,“ segir Jóhanna.

Helga segir að sjúkrasjóður VSSÍ sé líklega einn besti sjóður sinnar tegundar á landinu. Í öðrum stéttarfélögum gefst félagsmönnum yfirleitt ekki kostur á sjúkra-dagpeningum til lengri tíma en sex mánaða. Þannig geta félagsmenn sem eru frá vinnu vegna veikinda eða slysa verið á launum hjá vinnuveitanda í allt að fjóra mánuði og í framhaldi af því í eitt ár á sjúkradagpeningum frá stéttarfélaginu. Fyrir fullgilda félagsmenn er miðað við 80% af meðaltalslaunum síðustu tólf mánaða ef greitt er af ákveðnu lágmarki. Margir eru þó einungis á sjúkra-dagpeningum hluta úr árinu.

Góð þjónusta hjá VIRKAllir launþegar greiða 0,13% af launum í starfsendur-hæfingarsjóð. Þeir sem hafa verið á sjúkradagpeningum í eitt ár hjá VSSÍ geta í framhaldinu sótt um endur-

Helga Jakobs og Jóhanna Margrét Guðjónsdóttir hafa í mörgu að snúast á skrifstofu Verkstjórasambands Íslands.

Page 13: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

13

Þjónustuskrifstofa Stjórnendafélags Austurlands

er á Austurvegi 20, 730 Reyðarfirði

Opið virka daga kl. 9-12 í sumar.Sími 864-4921Netfang [email protected] - Heimasíða www.sta.is

Nýir félagar velkomnir

hæfingarlífeyri hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Hlutverk VIRK er að draga markvisst úr líkum á að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna langvarandi veikinda eða slysa. Hjá sjóðnum starfar fjöldi sál-fræðinga, sjúkraþjálfara og ráðgjafa á ýmsum sviðum. Allt er gert til að leiða fólk áfram til betri heilsu og virkari þáttöku í þjóðfélaginu. Helga og Jóhanna benda félags-mönnum á þessar leiðir og eru flestir mjög ánægðir með þjónustu VIRK.

Rafrænar skilagreinarÁrin 2011 og 2012 hófust rafræn skil á skilagreinum sem hafa einfaldað starf Helgu og Jóhönnu og dregið úr tvíverknaði. Núna eru um 70% allra skilagreina skráðar rafrænt en steft er að því að hlutfallið verði yfir 90%. Vinnudagur Helgu og Jóhönnu hefst jafnan á því að lesa

inn rafrænar skilagreinar fyrir daginn og stemma þær af miðað við greiðslur. Einnig þarf að fylgjast með því að skilagreinar samsvarandi greiðslunni berist og þær þurfa líka að ýta á eftir launagreiðendum, verði misbrestur á þessu.

Á skrifstofu VSSÍ er einnig haldið utan um skráningu á iðgjöldum fyrir tíu af þrettán aðildarfélögum sam-bandsins. Þar er einnig haldið utan um félagatalið. „Það þarf að telja á hverju einasta ári hve margir eru í hverju félagi, hve margir hafi bæst í félagatalið og hverjir hætta. Við höldum lista yfir fækkun eða fjölgun í hverju félagi fyrir sig. Í nóvember og desember er í nógu að snúast hjá mér í kringum félagatalið. Rétt félagatal skiptir einnig máli þegar kemur að atkvæðavæði á þingum sam-bandsins,“ segir Jóhanna.

Alltaf vakandi yfir hagsmunum félagsmannaRabbað við Helgu Jakobs og Jóhönnu Margréti Guðjónsdóttur sem starfa hjá Verkstjórasambandi Íslands

Page 14: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

Brú, félag stjórnendaSkipholti 50d, 105 ReykjavíkSími 562-7070 - Fax 562-7050Netfang: [email protected] Veffang: www.bfs.isFormaður: Jóhann Baldursson,Frostafold 28, 112 ReykjavíkSímar 587-7704 / 842-4605 Netfang: [email protected]

Þór félag stjórnendaPósthólf 290, 222 HafnarfirðiNetfang: [email protected] Formaður: Ægir Björgvinsson, Sléttuhrauni 34, 220 HafnarfirðiSímar 565-1185 / 840-0949Netfang: [email protected]

Verkstjóra- og stjórnendafélag HafnarfjarðarHellisgötu 16, 220 HafnarfirðiSími 555-4237 Pósthólf 185Formaður: Steindór Gunnarsson, Spóaási 3, 221 HafnarfirðiSímar 555-4237 / 898-9760Netfang: [email protected]

Jaðar félag stjórnendaPósthólf 50, 300 AkranesiSími 660-3286Formaður: Kristján Sveinsson, Vallarbraut 4, 300 AkranesiSími 660-3286Netfang: [email protected]

Verkstjórafélag BorgarnessTungulæk, 311 BorgarnesiSími 617-5351Formaður: Einar Óskarsson, Tungulæk, 311 BorgarnesiSímar 437-1191 / 617-5351 Netfang: [email protected]

Félag stjórnenda við BreiðarfjörðSilfurgötu 36, 340 StykkishólmiSími 438-1328Formaður: Þorbergur Bæringsson, Silfurgötu 36,340 Stykkishólmur Símar 438-1400 / 894-1951Netfang: [email protected]

Verkstjórafélag VestfjarðaHeiðarbraut 7, 410 HnífsdalSími 863-3871Formaður: Sveinn K. Guðjónsson, Heiðarbraut 7, 410 HnífsdalSímar 456-3831 / 863-3871 / 450-4616Netfang: [email protected]

Verkstjórafélag Norðurlands vestraSkúlabraut 1, 540 BlönduósiSímar 452-4220 / 896-2280Formaður: Gísli Garðarsson,Skúlabraut 1, 540 BlönduósiSímar 452-4220 / 896-2280Netfang: [email protected]

Berg félag stjórnendaSkipagötu 9, 600 AkureyriSími 462-5446 Fax:462-5403Netfang: [email protected]ður: Gunnar Backmann Gestsson, Aðalstræti 2b, 600 Akureyri Símar 462-5562 / 899-1012Netfang: [email protected]

Stjórnendafélag AusturlandsAusturvegur 20, 730 ReyðarfirðiSímar 474-1123 / 864-4921Netfang: [email protected]ður félagsins: Benedikt Jóhannsson, Ystadal 3, 735 EskifirðiSímar 476-1463 / 864-4963 / 470-6000Netfang: [email protected]

Vörður félag stjórnenda á SuðurlandiAusturvegur 56, 800 SelfossiSími 480-5000 Fax: 480-5001Netfang: [email protected]ður: Viðar Þór Ástvaldsson, Áströð 1,851 HelluSími 848-2409Netfang: [email protected]

Verkstjórafélag VestmannaeyjaBröttugötu 8, 900 VestmannaeyjumSími 481-1248Formaður: Borgþór E. Pálsson, Bröttugötu 8,900 VestmannaeyjumSímar 481-1248 / 823-6333 Netfang: [email protected]

Verkstjórafélag Suðurnesja félag stjórnendaHafnargötu 15, 230 Reykjanesbæ Sími 421-2877 - Fax 421-1810Netfang: [email protected]ður: Einar Már Jóhannesson, Stekkjagötu 85, 260 ReykjanesbæSími 845-1838Netfang: [email protected]

Verkstjórasamband ÍslandsHlíðasmára 8, 201 KópavogiSímar 553-5040 / 553-0220 - Fax 568-2140Veffang: www.vssi.isNetfang: [email protected] og framkvæmdarstjóri: Kristján Örn Jónsson

Stjórnendafélögin og formenn þeirra

14

Page 15: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

15

Page 16: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

16

Atvinna er undirstaða byggðar. Því er ánægjulegt þegar ný fyrirtæki eru stofnuð og ná að byggja upp traustar undirstöður. Eitt þeirra fyrirtækja

er Þórishólmi ehf. í Stykkishólmi þar sem starfsemin hefur vaxið hægt og sígandi. Þórishólmi hefur nýtt sér fjölbreytta auðlind Breiðafjarðar og stundar veiðar á m.a. grásleppu, ígulkerum, beitukóngi, sæbjúgum og síld.

Á sjó frá unga aldriÞórishólmi gerir út bátana Önnu SH og Fjólu SH og rekur vinnslu í 600 fermetra húsi. Eigandi og framkvæmdar-stjóri félagsins er Gunnar Jensen en hann hefur stundað sjóinn frá Hólminum á stærri bátnum nánast frá 16 ára aldri fyrir utan smá tíma er fjöldskyldan flutti norður í Víðdal að kynna sér búskap. Hann hefur lengst af verið skipstjóri og stundað veiðar og notaði til þess ýmis veiðar færi. Síðast var Gunnar stýrimaður á Gullhólma SH. Árið 1996 stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki og keypti sér bát til veiða á beitukóng í gildrur fyrir íshákarl í Stykkishólmi. Ekki gekk sá veiðiskapur vel og varð hann að hætta með skuldahalann á eftir sér og seldi bátinn. Næsta tilraun var gerð nokkrum árum síðar og þá fór hann að veiða sæ-bjúgu og þar á eftir ígulker. Það fór á sama veg. Ígulkeravinnslan hætti rekstri og veiðar lögðust af.

Lifandi ígulker til EvrópuÞrátt fyrir þessar mótbærur hélt Gunnar áfram. Hann vissi að mikil auðlind var í sjónum í kringum Stykkishólm sem hægt væri að skapa úr verðmæti, spurningin var aðeins hvaða leiðir væru til þess. Hann fór því að leita fyrir sér. Haustið 2006 nær hann samningi við Iceland Seafood um að veiða og selja heil ígulker á Evrópumarkað. Þessi viðskipti, sem fóru hægt af stað, hafa gengið vel allt til þessa. Ígulkerunum er pakkað lifandi í kassa og send með flugi til kaupenda. Hann veiðir og vinnur eftir pöntun fyrir hvern dag. Báturinn fer til veiða að morgni, pökkun tekur við þegar í land er komið og afurðin komin í flug nokkrum klukkutímum síðar. Aðstæður til ígulkeraveiða geta verið erfiðar og það má ekkert út af bera vegna strauma. Um borð í ígulkerabátnum eru þrír sjómenn og gengur það miklu betur en þegar Gunnar var einn á sjó.

Grásleppa, makríll og síldÍgulker veiðast frá september til apríl. Veiðar ganga vel meðan þær eru takmarkaðar og hægt að fara varlega með veiðisvæðin. Fyrir nokkrum árum fór Gunnar að taka grásleppu til vinnslu og hefur hann bæði saltað hrogn fyrir sjálfan sig og í verktöku fyrir aðra. Fyrir

Ígulker, grásleppa, makríll og síldÞórishólmi ehf. í Stykkishólmi sér tækifærin og nýtir sér þau

Texti og myndir: Gunnlaugur Árnason

Stafsmenn Þórishólma pakka lifandi ígulkerum til útflutnings. Talið frá vinstri: Nikolaj Motyka, Ólafur Örn Ásmundsson, Hafsteinn Kristinsson, Michal Kowalski og Gunnar Jensen.

Page 17: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

17

tveimur árum hóf vinnslan frystingu á búk gráslepp-unnar og hefur skapast verðmætur markaður fyrir þá afurð. Í fyrra bættist makríllinn við vinnslu hjá Þóris-hólma. Hann smíðaði útbúnað í annan bát sinn og frysti aflann og seldi. Í sumar bættist hinn báturinn við til makrílveiða og gengu veiðarnar vel og sama má segja um frystinguna. Þórishólmi tók á móti 150 tonnum af makríl sl. sumar og seldust allar afurðirnar.

Með tilkomu veiða smábáta á síld, sem gengur inn í Breiðafjörðinn, skapast ný tækifæri fyrir starfsemi Þóris-hólma ehf. Báðir bátar fyrirtækisins hafa stundað síldveiðar í haust og vinnslan tekur við afla frá þeim og öðrum báti til viðbótar. Síldin er bæði flökuð og heilfryst .

Bjartsýni og dugnaðurÞórishólmi hóf vinnslu í leiguhúsnæði. Áhugi var fyrir því að stækka húsnæðið til að geta aukið vinnsluna. Árið 2012 keypti fyrirtækið 600 fermetra húsnæði og var því í samræmi við þann rekstur sem Þórishólmi er með. Hjá Þórsishólma ehf. vinna að jafnaði 6-8 manns og á annasömum tímum í allt að 15 manns.

Gunnar Jensen er ánægður með hvernig rekstur félagins hefur þróast. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt síðustu ár og fyrir það má þakka. Hann veit það af eigin reynslu að í sjávarútvegi er ekki hægt að sjá langt fram í tímann. Þar er ekki á vísan að róa og svo hefur það lengi verið. Bjartsýni og dugnaður er það afl sem þarf til að láta hjólin snúast og það veit Gunnar.

Ígulker, grásleppa, makríll og síldÞórishólmi ehf. í Stykkishólmi sér tækifærin og nýtir sér þau

Fjóla SH 7 stundar ígulkeraveiðar með plógi.

Ígulker. Vinsæll réttur á borðum sælkera í Frakklandi.

HEIMSÓKNIN

Page 18: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

18

Skúli Sigurðsson, fyrrverandi formaður Brúar – fé-lags stjórnenda, hefur verið ráðinn kynningar-fulltrúi Verkstjórasambands Íslands. Meginhlut-

verk kynningarfulltrúans er að hjálpa aðildarfélögunum að afla nýrra félaga.

„Ég hef líka að stórum hluta unnið að innsetningu nýrrar stefnumótunar sem felst í því að breyta stjórnarupp-byggingu Verkstjórasambandsins. Þessi vinna byggir að langmestu leyti á greiningarvinnu Capacent. Það er heil-mikið starf framundan og mikið er lagt upp úr því að aðildarfélögin verði með tengiliði við kynningar-fulltrúann. Hann aðstoðar tengiliðina á hinum ýmsu stöðum og fer með þeim í fyrirtæki til að kynna fyrir starfsmönnum og atvinnurekendum félögin. Allt miðar þetta að því að afla nýrra félaga,“ segir Skúli.

Margir fundirÁ þessu ári hefur Skúli farið á aðalfundi ellefu félaga í

Verkstjórasambandinu ásamt Kristjáni Erni Jónssyni, framkvæmdastjóra sambandsins. „Þar höfum við kynnt ákveðnar tillögur að breyttu stjórnskipulagi sem síðan voru teknar upp á landsfundi sambandsins. Nú er unnið að því að móta þessar tillögur sem að ýmsu leyti eru mjög framsæknar og miða að því að setja sambandið á nýjan stall og nútímavæða það. Markmiðið er að form sam-bandsins verði ekki ósvipað og annarra stórra sambanda, eins og Kennarasambands Íslands, Rafiðnasambands Ís-lands og Eflingar svo dæmi séu tekin. Tilgangurinn er sá að lítil félög innan sambandsins verði öflugri með aðstoð stærri eininga um allt land. Það verður meginhlutverk kynningarfulltrúans að vinna að þessu ferli,“ segir Skúli.

30.000 stjórnendurSkúli var formaður Brúar félags stjórnenda í 13 ár og sat á sama tíma í stjórn VSSÍ. Hann þekkir því starfsemi sam-bandsins gjörla. „Úti á vinnumarkaðnum eru um 30.000 stjórnendur. Okkar félagsmenn eru um 2.200 talsins

Meginmarkmiðið er að fjölga félögumRætt við Skúla Sigurðsson, nýráðinn kynningarfulltrúa VSSÍ

Skúli Sigurðsson, kynningarfulltrúi Verkstjórasambands Íslands.

Page 19: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

19

þannig að við eigum eftir stóran, óplægðan akur. Við gerum okkur grein fyrir því að við náum ekki öllum stjórnendum til okkar en með öflugu og breyttu stjórn-skipulagi sambandsins getum við gert okkur góðar vonir um talsverða fjölgun innan okkar raða. Við vonumst til þess að geta lagt af stað í þessa vegferð af fullum krafti nú á haustmánuðum,“ segir Skúli.

Mikilvægt að upplýsaHann segir að lykilþættirnir í því að ná til nýrra félaga sé að kynna þeim það grundvallaratriði að stjórnandi með mannaforráð eigi ekki að vera í sama stéttarfélagi og undirmenn. Einnig skipti miklu máli að upplýsa væntanlega félaga um menntunar- og sjúkrasjóð sam-bandsins sem sé einn öflugasti sjúkrasjóður landsins. „Við bendum einnig á það að félagsmenn, sem eru að ljúka sinni starfsævi, halda öllum sínum réttindum að undanskildum sjúkradagpeningum. Einnig erum við stoltir af menntunarsjóðskerfinu okkar og bendum gjarnan á það sem einn af þeim kostum sem fyrirtækjum sem og félagsmömmum sem hjá þeim starfa stendur til boða. Einnig teljum við okkur veita félagsmönnum mjög góða þjónustu hér á skrifstofu sambandsins.“

Af læknisskoðun í boði VSSÍ Þessar vísur voru ortar í tilefni þess að Bjargey var að fara í heilsufarsskoðun og hafði heyrt að læknirinn héldi því að mönnum að þeir ættu að hætta að fá sér kollu og kollu. Hafði hugsað sér að skjóta þessari vísu að honum ef hann nefndi það við sig:

Læknirinn er alveg lost og lætur okkur finna. Engan hér við eigum kost en að drekka minna.

Verkstjórarnir – vinur minnvið höldum okkur rökum.Hefur þú ekki herra minnheyrt um bjór og slökun?

Bjargey Pétursdóttir

Sími 555 3100www.donna.is

Ný grjónadýna frá GERMANý hönnun, ný lögun, nýir litir

Samkvæmt stöðlum EN 1865 og EN 1789 um sjúkraflutningaLéttari 7,9 kg og 25% fyrirferðaminni.

Lengd 208 sm, breidd 130 – 72 smÚr eldtefjandi efnum

Hólfuð að innan til að halda grjónum á réttum staðX-laga ólar halda betur um sjúkling

Stíf styrking fyrir hálsliði og efra bakÁratuga reynsla á Germa ventlum

Taska, dæla og viðgerðarsett fylgir með

Þú færð það allt hjá DONNUNýtt PAD500 hjarta­stuðtæki sem leiðbeinir bæði um hjartahnoð og stuð, engir aukahlutir aðeins notast við venju-leg rafskaut. Verð frá kr. 199.600 m. vsk.

WHELEN LED ljós og ljósabogar

Stadpacks töskur

Spelkur og hálskragar í úrvali

Ferno sjúkrabörur – þegar á reynir

Móhellu 2, 221 Hafnarfjörður

KVÆÐAHORNIÐ

Page 20: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

Einar Óskarsson, sölustjóri hjá Límtré Vírnet í Borg-arnesi, er formaður Verkstjórafélags Borgarness. Þetta er fremur fámennt félag innan vébanda

Verkstjórasambands Íslands, en það hefur farið sínar leiðir að mörgu leyti undir stjórn Einars. Við settumst niður að spjalli með Einari og þá kom í ljós að hann er þeirrar skoðunar að affarasælast væri að sameina minnstu félögin innan samtakanna til að ná fram stærri félagseiningum.

Einar gekk í félagið 1984 en hefur verið formaður þess síðastliðin tólf ár. Hann segir að gott væri að endurnýja í forystu félagsins en lítill áhugi hefur verið meðal félags-manna að taka að sér hlutverk í framvarðarsveitinni. Í félaginu eru 71 manns. „Formennskan snýst ekki um einstaklinga heldur það að fá víðari sýn á málin. Þegar það eru alltaf sömu mennirnir við stjórnvölinn breytist kannski fátt. Það þarf stundum nýja vendi,“ segir Einar.

Þrír aðalstjórnarmenn í Verkstjórafélagi Borgarness starfa hjá Límtré Vírnet og gantast Einar með það að auðvelt sé því að setja á stjórnarfundi með litlum fyrir-vara. Gjaldkeri félagsins, Jón Heiðarsson, er verkstjóri í járnsmiðju fyrirtækisins og Jakob Guðmundsson fram-leiðslustjóri er ritari félagsins. Varaformaður félagsins, Valdimar Guðmundsson, starfar hins vegar hjá Borgar-verki í Borgarnesi.

Seldu allar eignir og veita styrki „Hjá okkur er í sjálfu sér ekki mikil starfsemi. Við eigum engar eignir lengur. Orlofssjóðurinn okkar átti og rak tjaldvagna- og fellihýsileigu til félagsmanna. En í ljós kom að þeir sem nýttu sér þessa þjónustu voru ávallt sömu aðilarnir. Við sáum því að einungis sáralítill hluti félagsmanna naut góðs af orlofssjóðnum. Stjórnin fékk því heimild til þess að selja allan búnaðinn og tækin og stækka orlofssjóðinn með andvirði sölunnar. Nú geta

Skrafað um landsins gagn og nauðsynjar. F.v. Jón Heiðarsson, gjaldkeri Verkstjórafélags Borgarness, Skúli Sigurðsson, varaforseti Verkstjórasambands Íslands, Einar Óskarsson, formaður Verkstjórafélags Borgarness og Jakob Guðmundsson, ritari félagsins.

Rætt við Einar Óskarsson, sölustjóra hjá Límtré Vírnet í Borgarnesi og formann Verkstjórafélags Borgarnes

Vill eitt sam-eiginlegt félagum allt land

20

Page 21: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

21

félagsmenn fengið endurgreiðslu að hluta á flugfar-gjöldum, hótelgistingu eða nánast hverju sem hægt er að tengja orlofstökunni. Endurgreiðslan núna er um 40.000 kr. að hámarki. Nú nýta mun fleiri sér orlofssjóðinn, eða allt að 60% félagsmanna, en áður höfðu um 15% félags-manna nýtt sér leigu á tjaldvögnum og fellihýsum. Þetta fyrirkomulag er því að nýtast félagsmönnum mun betur en fyrra fyrirkomulagið,“ segir Einar.

Einar hefur borið það undir aðra á þingum Verkstjóra-sambandsins hvort þeir viti hve margir félagsmenn séu að nýta sér sumarhúsaútleigu hinna ýmsu félaga. Ennþá hefur hann engin svör fengið við því. „Ég held að allir viti það en menn vilja ekki horfast í augu við þetta. Kostn-aður við sumarhúsin er óhemju mikill því það er liðin tíð að menn sinni viðhaldi á þessum húsum í sjálfboða-vinnu. Öll vinna er aðkeypt og félögin eru leggja út háar upphæðir í rekstur húsa sem nýtast ótrúlega fáum. Margir benda á að nýting á sumarhúsunum sé alveg frábær en þá eru einungis um að ræða 20 vikur á álags-tíma, að vor- og sumarlagi. Hinar 32 vikurnar er nýtingin afar slök,“ segir Einar.

Einar kveðst hiklaust mæla með því stjórnir annarra

félaga, sem eiga sumarhús, skoði þessi mál með hags-muni allra félagsmanna að leiðarljósi.

„Margir eiga orðið sumarhús eða hafa aðgang að sumar-húsum fjölskyldu sinnar og þar fyrir utan hafa fjölmargir lítinn sem engan áhuga á því að vera í sama sumarhús-inu sumar eftir sumar. Þess vegna er sú vinna sem nú er unnið að í tengslum við sameiginlega úthlutun á sumar-húsum af hin góða. Ég er alveg viss um að það komi til með að auka nýtinguna en eftir sem áður verður rekstrarkostnaðurinn á ábyrgð hvers félags fyrir sig,“ segir Einar.

Hugsanlegt er að þau félög sem ekki eiga sumarhús geti engu að síður verið þátttakendur í hinni sameiginlegu úthlutun á sumarhúsum, komist hún á. Það yrði þá hugsanlega gert með þeim hætti að þau greiddu tiltekið gjald svo félagar innan þeirra raða hefðu aðgang að sumarhúsum annarra félaga.

Hagsmunir atvinnurekenda og félagsmanna Einar segir að Verkstjórafélag Borgarnes hefði mátt vera duglegra við að benda félagsmönnum á kosti menntunar-sjóðs Verkstjórafélags Íslands. Hann fór þess sérstaklega á leit við Kristján Örn Jónsson, forseta VSSÍ og Skúla Sigurðsson varaforseta, að fara yfir þau mál með yfir-mönnum fyrirtækja í Borgarnesi. Þessi vinna hefði leitt í ljós að stjórnendur voru alls ekki nægilega vel upplýstir um þá möguleika sem væru í boði. Yfirmönnum stendur til boða að bæta mjög þekkingu sinna starfsmanna með því að nýta sér menntunarsjóðinn. Þetta sé tvöfaldur hagnaður því atvinnurekandinn fái betri starfsmenn og starfsmenn njóti betri þekkingar og kunnáttu og geti átt von á auknum framgangi innan síns fyrirtækis.

Einar er þeirrar skoðunar að mynda ætti eitt sameinað félag stjórnenda um allt land í stað þess að halda úti 13 misjafnlega stórum félögum. „Það væri skilvirkast. Og við stefnum að einhverju leyti í þessa átt með þeirri stefnumótunarvinnu sem nú er í gangi.“

Verkstjóri hefur rétt á 25 dögum í orlofi við ráðningu nema að samið sé um annað. Eftir 5 ára verkstjórastörf hjá sama vinnuveitanda er orlofsréttur 28 dagar á ári og 30 dagar eftir 10 ára starf.

Starfsmaður sem öðlast hefur slíkan rétt hjá fyrri vinnuveitanda fær hann að nýju eftir 3 ára starf hjá nýjum vinnuveitanda. Verkstjóri sem áður hefur starfað í sama

fyrirtæki heldur óskertum rétti til við-bótarorlofs sem hann hafði þegar hann tók við verkstjórastarfinu.

Verkstjórar fá greidd orlofslaun af yfir-vinnu sem hér segir: 10,64% af öllum útborguðum launum njóti þeir 25 daga orlofsréttar, 12,07% njóti þeir 28 daga orlofsréttar og 13,04% njóti þeir 30 daga orlofsréttar.

Hvað er sumarfríið langt?

Einar Óskarsson, sölustjóri hjá Límtré Vírnet.

Page 22: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

22

Erfitt að fá iðnmenntaðfólk til starfa- segir Stefán Logi Haraldsson, framkvæmdastjóri Límtré Vírnet í Borgarnesi

Page 23: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

23

Alls starfa um 80 manns hjá Límtré Vírnet, þar af um 50 manns í Borgarnesi. Fyrirtækið er því einn af helstu burðarásum atvinnulífsins í Borg-

arnesi. Við tókum hús á Stefáni Loga Haraldssyni fram-kvæmdastjóra í miðjum önnum á skrifstofu hans á Borg-arbraut 74 þar sem aðalskrifstofa fyrirtækisins er. Síminn hringdi nánast látlaust meðan við stöldruðum þar við og segir Stefán að svo virðist sem það sé að lifna yfir fram-kvæmdum í landinu um þessar mundir.

„Við Íslendingar erum alltaf samir við okkur og förum úr nánast fullkomnu verkefnaleysi yfir í gríðarlega tímapressu. Menn vilja helst byggja heilu húsin á tíu dögum, ef það væri hægt,“ segir Stefán Logi.

Fyrirtækið hefur ekki verið beinn þátttakandi í þeirri miklu uppbyggingu hótelrýmis um allt land sem nú gengur yfir. En hluti af framleiðsluvörum fyrirtækisins eru polyurethane- og steinullareiningar. Til skoðunar hefur verið undanfarið að fjárfesta í nýrri steinullarlínu sem kæmi í stað þeirra yleininga sem nú eru framleiddar í Reykholti, en þessi vara myndi henta vel, m.a. sem lausn fyrir frístundahús, einbýlishús og gistihús.

Mjög fjölbreytileg starfsemiStefán Logi segir að starfsemi Límtré Vírnets sé æði fjöl-breytileg og þess vegna sækist fyrirtækið eftir því að hafa iðnmenntaða starfsmenn til að sinna margvíslegri

iðnsmíði og þjónustustarfsemi. Mikill skortur sé á iðn-menntuðu starfsfólki á svæðinu og reyndar á landinu öllu.

„Síðastliðin ár hefur nýliðun í iðngreinum verið sorglega lítil. Það er til dæmis mjög erfitt að fá blikksmiði til starfa og lítið um að menn séu að mennta sig í þeirri grein. Á síðastliðnum tíu árum skilst mér að einungis hafi um 80 manns útskrifast sem blikksmiðir í landinu, sem er allt of lág tala fyrir þessa iðngrein. Við getum því ekki í öllum tilvikum haft faglærða menn í öllum störfum sem til þyrfti og höfum því í sumum tilfellum leyst það með handlögnu fólki sem þjálfað er upp í störfin,“ segir Stefán Logi.

Hann segir að á sama tíma sem von sé á að uppgangur verði í framkvæmdum hér innanlands, sé íslenskt atvinnulíf búið að missa frá sér iðnmenntað fólk í „vertíðarvinnu“ til Noregs.

„Það virðist fullkomið gullgrafaraæði í gangi í Noregi. Tveir fyrrverandi rafvirkjar Límtré Vírnet og einn fyrr-verandi vélvirki vinna nú í Noregi og þeir hafa greint okkur frá því að þarna er að finna mikið af fyrirtækjum með hátt hlutfall af Íslendingum í vinnu. Þarna taka menn vertíðir. Ég myndi gjarnan vilja mæta þessu með því að greiða mínu starfsfólki eitthvað hærri laun, til að mæta þessari samkeppni. En hvernig fer ég að því? Þá

Límtré Vírnet er stærsta fyrirtækið á Íslandi á

sviði völsunar á klæðningarefnum og eini

framleiðandi límtrés, yleininga og nagla ásamt

því að flytja inn úrval af byggingarvörum,

tengdum þeim verkefnum sem eru í gangi hverju

sinni. Fyrirtækið er með gott dreifingarkerfi

innan byggingariðnaðarins og selur vörur jafnt til

endursöluaðila sem verktaka og einstaklinga.

Höfuðstöðvarnar eru í Borgarnesi, þar sem

framleitt er valsað stál og ál til klæðninga

utanhúss og innanhúss, ásamt framleiðslu á

milliveggjastoðum úr stáli. Þar eru einnig

framleiddir Vírnets naglar sem og ýmsar aðrar

vörur úr stáli og áli. Í Borgarnesi er einnig rekin

blikksmiðja, járnsmiðja og rafmagnsverkstæði.

Aðalsöludeild fyrirtækisins er í Borgarnesi, en

söludeild fyrir loftræstivörur í Vesturvör 29 í

Kópavogi, innkaupadeild, fjármálastjóri og

byggingadeild. Byggingadeildin í Kópavogi er

hönnunar- og söludeild sem veitir faglega ráðgjöf

og selur lausnir fyrir byggjendur límtrés- og

stálgrindahúsa. Í raun er byggingadeildin

verkfræðistofa, en þar fer fram útreikningur fyrir

burðarþol límtréshúsa ásamt flestri annarri

hönnun húsa sem fyrirtækið framleiðir.

Á Flúðum er starfrækt eina íslenska límtrésverk-

smiðjan. Í Reykholti í Bláskógabyggð eru

framleiddar Yleiningar, sem eru samlokueiningar

með polyurethan eða steinull sem einangrun.

HEIMSÓKNIN

Page 24: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

þyrfti að stórauka tekjur fyrirtækisins og hækka verðlag til samræmis. Og hver er tilbúinn að greiða mun hærra verð fyrir byggingavörur en nú er hér á Íslandi?“

Menntunarsjóðurinn jákvætt innleggStefán Logi segir að hvað þetta varðar geti menntunar-sjóður Verkstjórasambands Íslands komið að góðum notum til þjálfunar og menntunar starfsfólks.

„Það má kannski segja að við höfum verið óduglegir við að nýta okkur sjóði stéttarfélaganna á þessu sviði. Nýlega heimsóttu okkur hingað Kristján Örn Jónsson og Skúli Sigurðsson frá Verkstjórasambandi Íslands og kynntu okkur þá möguleika sem við höfum í þessum efnum. Það er mjög jákvæð þróun að stéttarfélögin séu farin að kynna sig betur og fyrir hvað þau standa í þessum efnum. Áður fjármagnaði fyrirtækið sig að öllu leyti sjálft hvað varðar endurmenntun starfsmanna. Við höfum gert átak á þessu sviði á undanförnum misserum. Við höfum alltaf haft áhuga á því að sinna okkar starfsfólki vel og nú erum við að gefa út nýja starfsmannahandbók sem birtist mönnum innan tíðar. Í framhaldinu ætlum við að gefa út fræðslu- og endurmenntunaráætlanir og greiningar á þörfinni á þessum sviðum. Við höfum einnig litið til þess sem kallast raunfærnimat. Með matinu gefst þeim starfs-mönnum, sem hafa kannski langa reynslu að baki en hafa ekki lokið námi, tækifæri til að rétta sinn hag,“ segir Stefán Logi.

Stuðningur stéttarfélaganna getur skipt sköpumAllnokkur hópur starfsmanna Límtré Vírnets er í Verk-

stjórafélagi Borgarness. Nokkrir þeirra hafa jafnvel sótt sér nám erlendis og aðrir náð sér í ýmis réttindi. Símennt-unarmiðstöðvar hafa boðið upp á ákveðin tækifæri en oft þurfa starfsmenn að beita sig átaki til að rífa sig upp og nýta sér þessa möguleika.

„En þá getur einmitt skipt sköpum sá stuðningur sem við sjáum að er til staðar af hálfu stéttarfélaganna. Núna sækir einn okkar verkstjóra námskeið hjá Dale Carnegie, sem er einn vinkillinn í viðbót og þar kemur menntunar-sjóður VSSÍ til stuðnings. Það getur verið mikill styrkur fyrir stjórnanda að sækja sér öðruvísi menntun en bara þá er lítur að hans fagi. Þetta er um leið hvatning fyrir aðra í svipaðri stöðu. Þetta getur verið talsverð vinna en margir eru tilbúnir að leggja hana á sig, sjái þeir fram á að atvinnurekendur og stéttarfélög geri þeim það kleift,“ segir Stefán Logi.

Hann segir að allt frá árinu 2010 hafi verið unnið markvisst að framgangi ýmissa mála sem snúa að starfs-mönnum fyrirtækisins, eins og t.d. öryggismálum. Árið 2011 var gerð öryggishandbók fyrir starfsmenn og í framhaldi hafa verið gerðar úttektir á vinnustaðnum og unnið í ákveðnum ferlum sem koma inn á öryggismál. Haldin hafa verið skyndihjálparnámskeið, forvarnar-námskeið í samvinnu við tryggingafélag fyrirtækisins og vinnueftirlitið svo og brunavarnanámskeið. Einnig keypti Límtré Vírnet fjögur hjartastuðtæki, eitt fyrir hvern vinnustað.

„Velferð starfsmanna er eitthvað sem skiptir miklu máli og við höfum viljað vekja menn til vitundar um það að

24

» Launavernd í allt að 12 mánuði í veikindum

» Styrk vegna veikinda maka eða barna

» Greiðslu kostnaðar vegna sjúkranudds og sjúkraþjálfunar

» Starfstengdum menntunarstyrk allt að 130.000 kr.

» Styrk til tómstundanáms, allt að 45.000 kr.

» Hámarksstyrk í einstöku námi allt að 390.000 kr.

» Styrk til kaupa á gleraugum og vegna laseraðgerða

» Styrk til kaupa á heyrnartækjum

» Styrk vegna fæðingar barns, 80.000 kr.

» Þriggja mánaða launum við andlát félaga sem greiðist til fjölskyldu

» Útfararstyrk sem greiðist til erfingja við andlát félaga

» Lögfræðiaðstoð vegna kjaratengdra mála

Gildir um fullgilda og starfandi félaga í aðildarfélögum VSSÍ.

Þú átt rétt á ...

Page 25: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

Fyrirtækið flytur inn mikið magn af áli og stáli til völsunar í húsaklæðningar.

25

velferð starfsmanna er samstarfsverkefni vinnuveitanda og starfsmanna en snýr fyrst og fremst að starfsmann-inum.“

Einnig hefur verið unnið að gæðahandbók fyrir Límtré Vírnet og stefnt er að því að fyrirtækið fái ISO-vottun

fyrir alla verkferla og CE-vottun fyrir framleiðsluvörur fyrirtækisins á næstu misserum. „Lykilatriði er að starfs-menn séu tilbúnir að stíga það skref sem þarf til að inn-leiða svona kerfi og þá kemur þessi endurmenntun og aukna vitund starfsmanna til skjalanna,“ segir Stefán Logi.

Page 26: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

26

Fiskeldi Austfjarða keypti árið 2012 fiskeldi HB Granda í Berufirði. Þar var nokkuð þorskeldi sem lagt var af eftir söluna. Brynjólfur Einarsson er fisk-

eldismaður og kafari hjá fyrirtækinu sem hefur vaxið og dafnað á undanförnum tveimur árum og er aðallega í eldi regnbogasilungs í kvíum. Allt stefnir í að þar verði innan tíðar orðið risaeldi, gangi öll áform eftir. Þrír af fimm starfsmönnum Fiskeldis Austfjarða eru í Stjórnun-arfélagi Austurlands.

Á hælum NorðmannaBrynjólfur er 39 ára gamall og sex barna faðir. Hann býr nú á Djúpavogi en er fæddur og uppalinn í Reykjavík og starfaði þar við pípulagnir. Undanfarin tíu ár hefur hann verið viðriðinn fiskeldið. Hann kveðst sjálflærður í greininni en sótti nám í köfun í Skotlandi árið 2005 og nám í fiskeldi í Noregi árið 2009. „Ég hef eingöngu unnið við fiskeldi hér fyrir austan að undanskildu einu ári sem ég starfaði við eldi á Bergensvæðinu,“ segir Brynjólfur. Hann segir Norðmenn mjög framarlega í fiskeldi en Ís-lendingar séu alveg á hælunum á þeim.

„Við erum aðallega með regnbogasilung en einnig eina kví með laxi. Hér erum við með regnbogasilung í einum fimmtán kvíum. Laxinn er núna kominn í sláturstærð og regnbogasilungur í einni kví einnig. Laxinn hefur verið í kví síðan haustið 2012. Við erum að reyna að ná regnbogasilungnum í sláturstærð á um 18 mánuðum. Þá er hann um tvö og hálft til þrjú kíló. Hann er því töluvert

minni þegar honum er slátrað en laxinn,“ segir Brynj-ólfur.

Norðmenn eru fyrr að ná regnbogasilungnum í slátur-stærð og segir Brynjólfur það einkum helgast af hlýrri sjó. „Allt miðast þetta við daggráður. Vöxturinn marg-faldast eftir því sem sjórinn er heitari, allt þar til hann nær 12 gráðum. En síðan getur dregið úr vextinum, fari sjávarhitinn yfir 20 gráður og Norðmenn hafa verið að lenda í því.“

Aðstæður góðar í BerufirðiBrynjólfur segir að aðstæður til fiskeldis í Berufirði séu góðar og minna um sýkingar í eldisfiskinum. Á þessari sláturtíð verður slátrað um 700 tonnum af regnbogasilungi. Það magn dugar fram yfir áramót og inn á næsta ár en Fiskeldi Austfjarða selur allar sínar afurðir á erlenda markaði. Norskt sölufyrirtæki annast söluna á afurðunum. Regnbogasilungurinn er hausaður og heilfrystur. Brynjólfur segir að einungis verði slátrað um 80 tonnum af laxi enda er kjarnastarfsemin eldi á regnbogasilungi. Laxinn verður seldur ferskur á innan-landsmarkað.

Fimm manns vinna hjá Fiskeldi Austfjarða en þeir voru tveir í upphafi. Til stendur að ráða fleiri til fyrirtækisins í framtíðinni. Brynjólfur segir að fyrirtækið stefni á að verða með 8.000 tonna framleiðslu á ári. Vonir standa til að það markmið náist árið 2017.

Brynjólfur Einarsson, fiskeldismaður og kafari.

Page 27: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

27

Um 700 tonnum af regnbogasilungi slátrað í BerufirðiRætt við Brynjólf Einarsson, fiskeldismann og kafara hjá Fiskeldi Austfjarða

Kílóverð á regnbogasilungi er um 800 kr. Að baki liggja miklar fjárfestingar og fóðurkostnaður er hár. Fyrirtækið flytur inn fóður frá færeysku fyrirtæki.

Brynjólfur er annar tveggja starfsmanna fyrirtækisins sem hefur lært köfun. Hlutverk þeirra er m.a. að kafa niður að kvíunum og hafa eftirlit með nótinni. Fyrirtækið þarf reglulega að skila skýrslum um ástand kvíanna til Fiskistofu.

Eru í StjórnendafélaginuÞrír af fimm starfsmönnum Fiskeldis Austfjarða eru í Stjórnunarfélagi Austurlands. „Það sem heillaði mig aðallega við félagið er lítil yfirbygging. Hjá mörgum verkalýðsfélögum eru margir á launum við að gera ekki neitt og yfirstjórnendurnir, sem eiga að vera að berjast fyrir bættum kjörum félagsmanna, sýna margir ekki gott fordæmi og eru mjög yfirborgaðir miðað við vinnufram-lag, svo dæmi séu tekin. Ég er sáttur við umgjörðina í kringum Verkstjórasambandið og svo er ég ekki síður ánægður með sterka stöðu sjúkra- og menntasjóðsins. Þetta er mjög gott félag í alla staði,“ segir Brynjólfur.

Aðstæður til fiskeldis í Berufirði eru góðar og minna um sýkingar í eldis-fiskinum en víða annars staðar.

HEIMSÓKNIN

Page 28: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

28

Verkstjórafélag Vestfjarða

Heiðarbraut 7, 410 HnífsdalFormaður Sveinn K. Guðjónsson

GSM 863 3871

VerkstjórafélagSuðurnesja

félag stjórnenda á Suðurnesjum

Hafnargötu 15, 230 KeflavíkSími 421 2877 - Fax 421 1810

Formaður Einar Már JóhannessonGSM 845 1838 - Netfang: [email protected]

Austurvegi 56, 800 SelfossSími 480 5000 - Fax 480 5001

Netfang: [email protected]

Þór, félag stjórnenda

Pósthólf 290 - 222 Hafnarfirði [email protected]

Formaður Ægir BjörgvinssonGSM 840 0949 - [email protected]

Berg,félag stjórnenda

Skipagata 9, 600 AkureyriSími 462 5446

Netfang: [email protected]

Verkstjóra- og stjórnendafélag Hafnarfjarðar

Hellisgötu 16, 220 HafnarfirðiFormaður Steindór Gunnarsson

GSM 898 9760

FÉLAG STJÓRNENDA

Page 29: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

29

Verkstjórafélag Vestmannaeyja

Bröttugötu 8, 900 VestmannaeyjumFormaður: Borgþór E. Pálsson

GSM 823 [email protected]

Verkstjórafélag Borgarness

og nágrennis Tungulæk, 311 BorgarnesiFormaður: Einar Óskarsson

Sími 437 1191 - GSM 617 [email protected]

Verkstjórasamband Íslands

Hlíðasmára 8, 201 KópavogiSímar 553-5040 / 553-0220

Fax 568-2140Netfang: [email protected] Veffang: www.vssi.is

Verkstjórafélag Norðurlands vestra

Skúlabraut 1, 540 Blönduósi Formaður: Gísli Garðarsson

GSM 896 [email protected]

Silfurgötu 36, 340 StykkishólmiSími 438 1328

Formaður: Þorbergur Bæringsson GSM 894 1951

[email protected]

Vallarbraut 4 - Pósthólf 50300 Akranes

Formaður: Kristján SveinssonGSM 660 [email protected]

Page 30: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

30

KROSSGÁTAN

SUDOKU

Í Sudoku er þrautin fólgin í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3 reit birtist tölurnar 1-9.

Í hverri níu reita línu (láréttri og lóðréttri) eiga allar tölurnar einnig að birtast og má aldrei tvítaka neina þeirra.

MAKING MODERN LIVING

Lykillinn að þægindum -

Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is

CF2+ þráðlausar gólfhitastýringar frá DanfossDanfoss er ekki bara orðið alþekkt samheiti yfir hitastjórnbúnað. Í meira en 75 ár höfum við framleitt allt frá smæstu íhlutum upp í heil hitaveitukerfi. Öll þessi ár höfum við haft það að leiðarljósi að viðskipti þín við okkur séu hagkvæm. Það er leiðarljós okkar núna, og mun verða í framtíðinni.

Áratuga reynsla okkar hefur skipað okkur í fremstu röð þegar litið er til nýsköpunar. Vöruþróun okkar stjórnast af þörfum viðskiptavinanna. Þess vegna erum við í fararbroddi þegar litið er til íhluta, sérfræðiþekkingar og heildarlausna fyrir hitastjórnbúnað og kerfi.

Við stefnum stöðugt að því að bjóða vörur og lausnir sem færa notendum háþróaða notenda og umhverfisvæna tækni, lágmarks viðhald, hámarks þjónustu og hámarks hagkvæmni.

CF2+ þráðlausa gólfhitastýringin er gott dæmi um það, smekkleg hönnun, áreiðanleg tækni, ein-föld í uppsetningu og notkun. Færir þér nákvæma hitastýringu í hvert herbergi og hámarkar þar með þægindin.

Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins

Page 31: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

MAKING MODERN LIVING

Lykillinn að þægindum -

Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is

CF2+ þráðlausar gólfhitastýringar frá DanfossDanfoss er ekki bara orðið alþekkt samheiti yfir hitastjórnbúnað. Í meira en 75 ár höfum við framleitt allt frá smæstu íhlutum upp í heil hitaveitukerfi. Öll þessi ár höfum við haft það að leiðarljósi að viðskipti þín við okkur séu hagkvæm. Það er leiðarljós okkar núna, og mun verða í framtíðinni.

Áratuga reynsla okkar hefur skipað okkur í fremstu röð þegar litið er til nýsköpunar. Vöruþróun okkar stjórnast af þörfum viðskiptavinanna. Þess vegna erum við í fararbroddi þegar litið er til íhluta, sérfræðiþekkingar og heildarlausna fyrir hitastjórnbúnað og kerfi.

Við stefnum stöðugt að því að bjóða vörur og lausnir sem færa notendum háþróaða notenda og umhverfisvæna tækni, lágmarks viðhald, hámarks þjónustu og hámarks hagkvæmni.

CF2+ þráðlausa gólfhitastýringin er gott dæmi um það, smekkleg hönnun, áreiðanleg tækni, ein-föld í uppsetningu og notkun. Færir þér nákvæma hitastýringu í hvert herbergi og hámarkar þar með þægindin.

Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins

Page 32: VERKSTJÓRINN JÚNÍ 2014

Wise lausnir ehf.Borgartún 26, 105 ReykjavíkHafnarstræti 93-95, 600 Akureyrisími: 545 3200 » [email protected]

- snjallar lausnir

545 3200 navaskrift.is [email protected]

Fullbúin viðskiptalausn í áskrift- Microsoft Dynamics NAVMánaðarlegt gjald veitir aðgang að einu mest selda bókhaldskerfi landsins ásamt kostnaði við uppfærslu- og þjónustugjöld, hýsingu, afritun á gögnum, öryggisvarnir og SQL gagnagrunn.

Breytilegur �öldi notenda eftir mánuðum sem lágmarkar kostnað.

Kerfinu fylgir rafræn sending reikninga, samskipti við RSK og margt fleira.

Fjöldi sérlausna í boði fyrir þá sem þurfa aukna virkni.

Gold Enterprise Resource PlanningSilver Independent Software Vendor (ISV)

TM

NAV í áskrift

Verð frá kr.

pr. mán. án vsk11.900-