Upload
lamkhanh
View
229
Download
6
Embed Size (px)
Citation preview
VETRARDAGSKRÁ RÁSAR 26.45 Morgunútvarp Rásar 2
Hrafnhildur Halldórsdóttir og Gestur Einar Jónasson sjá um Morgunútvarp Rásar 2
alla virka daga frá klukkan 6.45 til 9.00. Þau fara yfir fréttir dagsins, fá heimsóknir,
hringja í alls konar fólk út um allan heim og spila góða tónlist. Bítlalag dagsins er þar
að sjálfsögðu fastur liður. Í þættinum verða einnig vikulegir fastagestir, s.s. Stefán Jón
Hafstein í Namibíu, Hafliði Kristinsson hjóna- og fjölskylduráðgjafi, Gunnar Bender
veiðimaður, Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og Arnar Tómasson tískuráðgjafi.
Netfang þáttarins er [email protected] og heimasíðan er www.ruv.is/morgunutvarp.
9.05 Brot úr degiTónlistarþátturinn Brot úr degi hefur verið á dagskrá Rásar 2 í meira en áratug. Í þættinum er fyrst og
fremst leikin tónlist sem hæfir tíma dagsins, þ.e.a.s. frá 9 til 12 á hverjum morgni. Fréttum og fróðleik
er blandað inn í, saga dagsins rekin, fréttir af Elvis eru sagðar um leið og þær berast,
sömuleiðis er fylgst með öllum fréttnæmum fyrirbærum utan úr geimnum. Fréttir af veðri
og samgöngum er hluti af þættinum, en áherslan er á tónlistina sem er sótt vítt og breitt í
tíma og rúmi. Magnús R. Einarsson stendur vaktina í Broti úr degi alla virka daga á Rás 2.
12.45 PopplandÁgúst Bogason, Guðni Már Henningsson og Ólafur Páll Gunnarsson ráða ríkjum í Pop-
plandi á Rás 2, alla virka daga frá klukkan 12.45 til 16.00. Popplandstríóið spilar lögin
við vinnuna í bland við spjall um daginn og veginn og það er leitun að þætti í íslensku útvarpi sem hefur
fjölbreyttara lagaval en Popplandið. Fastir dagskrárliðir eru m.a. plötur vikunnar,
Boltaland, kvikmyndahorn og hljómsveitir koma iðulega í heimsókn til að kynna
það sem er efst á baugi, nýjar plötur, tónleika o.fl. Síðast en ekki síst ber að nefna
vikulegar heimsóknir hljómsveita og tónlistarmanna í Popplandið eftir þrjúfréttir á
föstudögum í þeim tilgangi að halda litla tónleika fyrir hlustendur Rásar 2. Þá er rétt
að benda tónlistaráhugamönnum á heimasíðu Popplendinga, www.ruv.is/poppland,
en þar er að finna óteljandi fróðleiksmola úr tónlistarheiminum.
16.00 SíðdegisútvarpiðSíðdegisútvarpið er fréttaþáttur sem fjallar um það sem skiptir fólk máli og er virkur
þáttakandi í þjóðlífinu. Þjónustuútvarp sem bregst við kröfum og óskum hlustenda. Svarar spurningum,
segir frá, veitir fræðslu og er til
skemmtunar. Gagnvikur útvarpsþáttur, opið útvarp; þar sem fólk getur
komið á framfæri eigin skoðunum, fyrirspurnum og sögum bæði á heima-
síðu þáttarins www.ruv.is/sdu og í útvarpinu.
Í þættinum má heyra skemmtileg viðtöl, áhugaverða tónlist, fræðandi
pistla, virðuleg ávörp, krefjandi spurningar, góð svör, mismunandi álit,
harða dóma, bætandi hollráð og allt sem þú vildir vita en bæði þorðir
ekki né hafðir vit á að spyrja um. Umsjónarmenn Síðdegisútvarpsins, sem
er á dagskrá Rásar 2 alla virka daga milli klukkan 4 og 6 síðdegis, eru Freyr Eyjólfsson, Einar Þorsteinsson,
Guðmundur Pálsson og Linda Blöndal.
19.30 Lög unga fólksins Mánudags-fimmtudagskvöld
Lög unga fólksins eru á dagskrá Rásar 2 á mánudags-, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum
klukkan 19.30 og leysa þau Ungmennafélagið af í vetur. Í þættinum verður farið yfir mál sem brenna á
ungu fólki og þau rædd frá öllum hliðum. Tekinn verður púls á þeim sem
skara fram úr og eru að gera spennandi hluti. Fjallað verður um íslenska
grasrótartónlist af öllu tagi og verða ungar hljómsveitir og tónlist þeirra í
brennidepli. Framhaldsskólar og háskólar landsins fá gott pláss í þættinum í
viku hverri, en ýmsir listaviðburðir og hátíðir fá líka sinn skerf. Umsjónarmenn
eru Alexander Briem, Ásgeir Erlendsson, Guðfinnur Sveinsson, Hildur Maral
Hamíðsdóttir, Karl Sigurðsson og Marteinn Sindri Jónsson.
19.30 Frá A til J Föstudagskvöld
Útvarpsmenninnirnir með sjónvarpsandlitin, Jói G og Atli, verða með stuð og skemmtiþátt á föstudag-
skvöldum á Rás 2. Þeir félagar munu taka sæmilega grunnt á málum vikunnar og kryfja mál sem engu máli
skipta. Frá A til J er leifturléttur og skemmtilegur þáttur með gríni, glensi, viðtölum, leiknum sketsum og
heilum hellingi af góðri tónlist. -Betri bílar, yngri konur, eldra viskí, meiri pening!!
20.30 Konsert Mánudags-fimmtudagskvöld
Andrea Jónsdóttir fer með hlustendur á tónleika víðs vegar um heiminn á mánudags-,
þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum klukkan 20.30. Í september hitar Andrea
m.a. upp fyrir Iceland Airwaves tónlistarhátíðina með því að spila upptökur frá tónleikum
hátíðarinnar í fyrra.
22.10 Metall! Fimmtudagskvöld
Í þættinum METALL!, sem er á dagskrá Rásar 2 á fimmtudagskvöldum klukkan 22.10, þeysir Arnar Eggert
Thoroddsen á harða spretti um fjölærar og grösugar sléttur
þungarokksins og slær hvergi af í boðun hins níðþunga fagnaðarerindis. Fróðleiksmolar
verða dregnir fram, góðir gestir munu kíkja inn með reglubundnum hætti, ákveðnar
undirstefnur og hljómsveitir verða teknar fyrir, að ógleymdu nýju og spennandi efni
úr rokkgeiranum. Umfram allt mun þó hinn óútreikanlegi frum- og sprengikraftur
rokksins verða að leiðarljósi. Græjurnar í botn á fimmtudagskvöldum!
22.10 Næturvakt Rásar 2 Föstudagskvöld
Guðni Már Henningsson stjórnar næturvakt Rásar 2 frá klukkan 22.10 á föstudag-
skvöldum til klukkan 2.00 aðfaranætur laugardaga. Hann tekur á móti
óskalögum í síma 5687123 og á netfangið [email protected] og fylgir hlustendum inn í nóttina.
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga á sama tíma eru hins vegar endurteknir þættir frá
helginni á undan, s.s. Rokkland, Geymt en ekki gleymt o.fl.
Laugardagar9.00 Helgarútgáfan með Erlu Ragnarsdóttur
Helgarútgáfan á laugardagsmorgnum
verður með hefðbundnum hætti í
vetur. Erla Ragnarsdóttir tekur púlsinn á
mannlífinu vítt og breitt um landið og
býður góðum gestum í laugardagskaffi,
þar sem rætt verður um tónlistina, lífið
og tilveruna. Fastir liðir eins og helgar-
uppskriftin og bók vikunnar verða áfram á dagskrá og hinir
launfyndnu Baggalútar munu halda áfram að hrista upp í
landanum. Ekki má gleyma tippinu, en á hverjum laugar-
degi í vetur munu Bjarni Fel og Erla spá í leiki helgarinnar á
getraunaseðlinum ásamt góðum gestum.
12.45 Helgarútgáfan með Guðrúnu og Felix
Guðrún Gunnarsdóttir og Felix Bergs-
son taka á móti skemmtilegum og
áhugaverðum gestum í hljóðstofu
eftir hádegi á laugardögum í vetur
og fylgjast vel með þeim viðburðum
sem eru í gangi hverju sinni. Þau
gefa hlustendum góð ráð varðandi helgarferðir innanlands
sem utan, sniðugar uppástungur að helgarafþreyingu fyrir
fjölskylduna og skoða hvað er í boði á landsbyggðinni um
helgar í vetur, auk þess sem þátturinn verður af og til í
beinni frá helstu þéttbýliskjörnum landsins. Tónlistin verður
að sjálfsögðu í stíl við ys og þys laugardaganna, auk þess
sem þekktir tónlistarmenn taka lagið í beinni.
16.10 Geymt en ekki gleymtÍ hverjum er þætti Geymt en ekki gleymt er ein íslensk
hljómplata til umfjöllunar. Íslenskir tónlistarmenn segja
hlustendum sögurnar á bakvið lögin, frá sjálfum sér og alls
kyns sögur sem gaman er að heyra á laugardögum milli
kl. 16 og 18. Geymt en ekki gleymt er íslenskur þáttur um
íslenska tónlist! Umsjónarmaður er Freyr Eyjólfsson.
19.30 Party ZoneParty Zone er útvarpsþáttur
sem tekur púlsinn á danslífi
landsmanna. Heitustu
straumar danstónlistarinnar
fluttir af bestu plötusnúðum
þjóðarinnar. Allt sem skiptir
máli varðandi tónlistina, skemmtanalífið, uppákomur og
plötusnúða. Þátturinn hefur verið í loftinu í rúman áratug,
er frumkvöðull á mörgum sviðum og hefur auk þess staðið
á bak við margar stórar uppákomur í danslífi Reykjavíkur.
Helgi Már og Kristján Helgi eru umsjónarmenn „Dans-
þáttar þjóðarinnar” á laugardagskvöldum. Heimasíða
þáttarins er www.pz.is
22.00 Eigi skal slökkva Næturútvarp Rásar 2Snorri Sturluson spilar tónlist úr öllum
áttum frá klukkan 22.10 á laugardag-
skvöldum til klukkan 2 aðfaranætur
sunnudaga á Rás 2. Óskalög hlustenda
eru ofarlega á efnisskránni en valdar
breiðskífur úr plötuskápunum heima eru ávallt með í för.
Sunnudagar9.00 Helgarútgáfan með Margréti BlöndalÞað er Margrét Blöndal sem býður
hlustendum góðan dag í Helgarút-
gáfunni alla sunnudagsmorgna á Rás
2. Þar er blandað saman ljúfri tónlist
og skemmtilegum viðmælendum alls
staðar að af landinu. Helgarútgáfan á sunnudagsmorgnum
hefst að
loknum fréttum klukkan 9 og er fram
að hádegisfréttum
12.45 EndurvinnslanÆvar Örn Jósepsson tekur fram
málefni líðandi stundar og fer yfir
viðburði vikunnar með málsmetandi
fólki.
14.00 Tónlistarþættir úr ýmsum áttumÁ sunnudögum klukkan 15.00 mun Rás 2 bjóða upp á
vettvang fyrir nýtt dagskrárgerðarfólk í útvarpi. Björn
Stefánsson (Bjössi í Mínus) ríður á vaðið með umfjöllun um
íslenskar goðsagnir. Meðal þeirra sem hann tekur fyrir í
fyrstu þáttunum eru Rúnar Gunnarsson, Haukur Morthens,
Gunnar Jökull, Karl Sighvats-
son o.fl.
15.00 TvíhöfðiHinn goðsagnakenndi útvarps-
þáttur, Tvíhöfði, verður á
dagskrá Rásar 2 í vetur. Saga
þáttarins spannar rúman áratug
en stjórnendurnir, þeir Jón
Gnarr og Sigurjón Kjartansson, hófu útvarpsferil sinn á Rás
2 árið 1994. Óhætt er að segja að Tvíhöfði hafi verið einn
vinsælasti og umtalaðasti þátturinn í íslenskri útvarpssögu
og ósjaldan vakið sterk viðbrögð hjá hlustendum, allt frá
hneykslan til kæfihláturs. Tvíhöfði verður á dagskrá Rásar
2 alla sunnudaga í vetur og hver
þáttur er klukkutíma langur.
16.10 RokklandÚtvarpsþátturinn Rokkland hefur
verið á dagskrá Rásar 2 óslitið allar
götur síðan 1995. Í þættinum er
Ólafur Páll Gunnarsson í hlutverki
sögumanns og leiðir hlustendur í
gegnum undraveröld tónlistar-
heimsins. Það er víða komið við, nýir spennandi listamenn
kynntir til sögunnar og eldri hetjur hylltar. Tónlistin er
alltaf númer eitt, tvö og þrjú og eina skilyrðið er að hún sé
áhugaverð. Rokkland er eini þátturinn í íslensku útvarpi
þar sem tónlistarmenn víðs vegar að úr heiminum tjá sig
reglulega um tónlist sína og hugðarefni og betri heimild
um dægur-lagatónlist samtímans er erfitt að finna hér á
landi.
20.30 FurðufuglarÍ Furðufuglum skyggnist Frank Hall
inn í líf og störf nokkurra þeirra
manna í tónlistarsögunni sem ekki hafa
bundið bagga sína sömu hnútum og
samferðamenn. Furðufuglarnir eiga það
sameiginlegt að hafa farið ótroðnar slóðir í lagasmíðum,
útsetningum eða upptökustjórn, verið sérlundaðir og
með einhverjum hætti haft áhrif á tónlistar-söguna. Sumir
þeirra öðluðust frægð og frama í lifanda lífi, aðrir voru
skrifaðir í öskuna og eru minna þekktir.
22.00 Uppruni tegundannaÍ tónlistarþáttunum Uppruna tegundanna,
sem eru á dagskrá á
sunnudagskvöldum á
Rás 2, fjallar Kristinn
Pálsson um afmarkaðar
stefnur, afbrigði, senur
eða stíla sem hafa skotið
upp kollinum í rokk- og
dægurtónlistarsögunni í meira en 100 ár. Megináherslan er
lögð á einkenni, bak-svið, uppruna, þróun og áhrif hverrar
tónlistarstefnu um sig. Á komandi vetri verður haldið
áfram að rekja garnirnar úr gjöfulli dægurtónlistarsenunni
á sjöunda áratugnum með yfirferðum um ballöðusöngvara,
alþýðutónlistarvakninguna, folk-rokkið, bresku blús
vakninguna, bílskúrsrokkið, blómabyltinguna og hippa-
sýruna, svo eitthvað sé nefnt.
Allir hafa sögu að segja!
Manstu Melavöllinn og Tívolí? Ógleymanleg lífsreynsla?
Hnyttilegt atvik?Draumur sem rættist?
Svona var amma?Eða eitthvað annað sem gaman er að segja frá?
Láttu það ekki týnast. Varðveitum sögurnar okkar.
Við söfnum sögum fólks, hvort sem það eru örsögur eða lengri sögur. Komdu til okkar á Landsbókasafnið – Háskólabókasafn
Laugardaginn 15. September eða laugardaginn 22. September, kl. 10 – 12 f.h. báða daga og við hlustum.
Miðstöð munnlegrar sögu í samvinnu við þátt Viðars Eggertssonar á Rás 1
Útúr nóttunni... og inní daginnAlla laugardaga á Rás 1 kl. 8 – 9 árdegis
Góðir hlustendur !Sumri hallar og vetrardagskrá Rásar 1 og Rásar 2 er að fara af stað. Takmark starfsfólks beggja rása er að bjóða upp á vandaða dagskrá fyrir alla aldurshópa. Við höldum í hefðir en erum í stöðugri þróun með það að leiðarljósi að verða betri en í gær.
Rás 2 mun áfram leggja aðaláherslu á tónlist, ekki síst nýja, íslenska tónlist. Léttleiki, beinar útsendingar frá tón-leikum og hressileiki eru og verða áfram vörumerki Rásar 2.
Vetrardagskrá Rásar 1 tekur talsverðum breytingum. Neytenda-þáttur verður á dagskrá alla virka daga og börnunum verður boðin þátttaka í Leynifélaginu áður en þau sofna á kvöldin. Bókmenntir og listir verða í hávegum hafðar. Útvarpssagan verður fastur liður og tónlistarfólk bregður á leik með spurningakeppni. Erlendir úrvalsþættir verða á síðkvöldi einu sinni í viku með íslensku ívafi og þannig mætti lengi telja.
Tónlist fær aukinn hlut og í vetur er á döfinni að aðskilja útsendingar rásanna að næturlagi, þannig að þeir sem stilla á Rás 1 geti notið sígildrar tónlistar frá Evrópu, en Rás 2 býður áfram upp á endurflutning á úrvali þátta beggja rása frá deginum áður.
Ríkisútvarpið gegnir stóru hlutverk í lífi þjóðarinnar og starfsfólk beggja rása hlakkar til að takast á við verkefnin sem eru fram-undan. Mætur rithöfundur sagði í viðtali á dögunum að stóri áhrifavaldurinn í líf hans hefði verið útvarpið og hann líkti gömlu Gufunni við nokkurs konar alþýðuháskóla. Rás 1 og Rás 2 vilja halda í þetta hlutverk og leggja út í skammdegið með von um góða hlustun um land allt.
Sigrún Stefánsdóttir,Dagskrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2
RÁS 2 STEFNIR Á AÐ ROKKA, PLOKKA EÐA POPPA HRINGINN Á NÆSTA ÁRIEins og lesa má annars staðar á síðunni er Rás 2 búin að vera að rokka og plokka hringinn undanfarin 2 ár og stefnan er að taka á rás á ný næsta vor. Við viljum því biðja þær hljómsveitir sem hafa áhuga á því að ferðast með okkur og boða fagnaðarerindið vorið 2008 að senda okkur línu á netfangið [email protected]. Einnig viljum við hvetja forráðamenn sveitafélaga eða forvígis-menn samkomuhúsa víðs vegar um land, sem hafa hug á að fá okkur í heimsókn, til að gera slíkt hið sama. Við munum svo vinna úr umsóknunum og smíða tónleikaferð með hjálp hlustenda Rásar 2.
Fréttir er sagðar á samtengdum rásum 1 og 2 klukkan 7, 8, 9, 10, 11, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 22 og 24
Rás 2 mun halda áfram að hljóðrita tónleika úr ýmsum tónlistaráttum í vetur. Að vanda verður Rásin áberandi á Airwaves tónlistarhátíðinni í október og til stendur að hljóðrita á milli 20 og 30 hljómsveitir þar, en allar götur frá árinu 2000 hefur Rás 2 hljóðritað á Airwaves og útvarpað síðar. Rás 2 hefur þar að auki sent brot af því besta til aðildarstöðva EBU(European Broadcasting Union) sem hafa síðan útvarpað því fyrir milljónir hlustenda um allan heim.Rás 2 hefur verið dugleg að útvarpa tónleikum undanfarið. Við vorum í beinni frá Bræðslunni á Borgarfirði eystra þar sem Megas og Senuþjófarnir gerðu allt vitlaust eins og Magni, Lay Low og Jónas Sigurðsson. Miklatún á Menningarnótt var einn allra stærsti viðburður ársins hjá Rás 2, en þeir tónleikar voru haldnir í samstarfi við Reykjavíkurborg og Landsbankann. Þar léku og sungu einar 10 hljómsveitir, Mannakorn, Sprengjuhöllin, Eivör, Megas, Á móti sól, Ampop, Ljótu hálfvitarnir, Mínus, Vonbrigði og Pétur Ben.
Rás 2 – fyrst og fremst í lifandi tónlist
Músíktilraunir eru fastur liður í tilveru Rásar 2, en þær voru að vanda sendar út beint s.l. vor. Rás 2 hefur verið samstarfsaðili Músíktilrauna meira og minna frá árinu 1984. Rás 2 plokkaði hringinn út um allt land með Ólöfu Arnalds, Pétri Ben og Lay Low og endaði svo með tónleikum á Nasa í beinni útsendingu í útvarpi allra landsmanna. Í fyrra rokkaði Rásin hringinn með Ampop, Diktu og Hermigervli og stefnir á að gera slíkt hið sama árlega í framtíðinni.Meðal erlendra listamanna sem Rás 2 hefur hljóðritað tónleika með undanfarin ár eru t.d: Coldplay, The Strokes, Nick Cave,The Flaming Lips, Kaiser Chiefs, Eivör, Placebo, Violent Femmes, Foo Fighters, Iron Maiden, Patti Smith, The Stranglers, Keane, Starsailor, The Hives, Suede, Belle & Sebastian o.fl.
ruv.isÁ vef Ríkisútvarpsins má nálgast ítarlegar upplýsingar um alla þætti sem eru á dagskrá Rásar 1 og 2. Margir þáttanna eru einnig með eigin vefsíðu, þar sem finna má fjölbreyttar upplýsingar um innihald þeirra og tengt efni. Útsendingar Rásar 1 og 2 eru aðgengilegar beint á vefnum. Einnig er að hægt að hlusta á velflesta þætti sem sendir eru út, í tvær vikur eftir útsendingu, með því að smella á gjallarhornið sem birtist við hvern þátt í dagskrárkynningunni. Hlustendur geta einnig
sent þáttastjórnendum bréf ef þeim liggur eitthvað á hjarta.www.ruv.is
Forysta í fréttum Fréttastofa Útvarpsins hefur sterka stöðu í íslenska fjölmiðla-heiminum vegna þeirrar miklu reynslu sem þar er að finna. Hún hefur á löngum starfstíma sínum áunnið sér traust almennings fyrir sjálfstæð vinnubrögð og áreiðanlegan fréttaflutning. Hvergi í heiminum hafa útvarpsfréttir notið jafn mikilla vin-sælda og hér á landi. Síðustu misserin hefur Fréttastofan aukið þjónustu sína í fréttaþáttum og nú síðast á vef Ríkisútvarpsins – ruv.is – sem er ein mikilvægasta fréttaveita landsins.
Fréttastofa Útvarpsins flytur fréttir á báðum hljóðvarpsrásum RÚV allan sólarhringinn, alla daga ársins. Helstu fréttatímarnir eru morgunfréttir kl.8.00, hádegisfréttir kl.12.20, síðdegisfréttir kl.16.00, kvöldfréttir kl.18.00 og miðnæturfréttir kl.24.00.Þá heyra undir ritstjórn Fréttastofu Útvarpsins fréttatengdir þættir á báðum rásum: Morgunvaktin kl.7.00 til 9.00 alla virka daga á Rás 1, Spegillinn á báðum rásum kl.18.25 eftir kvöld-fréttir og Síðdegisútvarpið á Rás 2 kl.16.00 til 18.00.Fréttastofa Útvarpsins hefur umsjón með vefmálum RÚV og annast fréttamiðlun á vefsíðunni ruv.is og í textavarpi. Þá heyra svæðisstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði undir Frétta-stofu Útvarpsins, en þær vinna fréttir og dagskrárefni fyrir báðar hljóðvarpsrásir og Sjónvarpið. Fjölmargir fréttaritarar starfa einnig fyrir Fréttastofuna hér heima og víða um heim.
Fréttastjóri Útvarpsins er Óðinn Jónsson. Varafréttastjórar eru Broddi Broddason, Bergljót Baldursdóttir og Arnar Páll Hauks-son. Sími: 515-3050, netfang: [email protected]
Mánudagar07:05 Morgunvaktin 09:05 Okkar á milli 09:45 Morgunleikfimi
Halldóra Björnsdóttir býður
hlustendum Rásar 1 upp á að
liðka sig og styrkja í tíu
mínútur hvern virkan morgun
kl. 9.45. Lögð er áhersla á
gagnlegar æfingar, án of
mikillar áreynslu. Daglegar
æfingar fyrir háls og herðar,
fætur, kvið og bakvöðva
ásamt góðum teygjuæfingum
á eftir, eru öllum góð undirstaða fyrir verkefni
dagsins.
10:10 Stefnumót 11:00 Samfélagið í nærmynd Samfélagið í nærmynd í umsjá Leifs Haukssonar
og Margrétar Blöndal er vettvangur fyrir flest þau
málefni sem snerta líf okkar í samfélagi
mannana. Menntamál,
heilbrigðismál, atvinnu-
mál, tækni og vísindi eru
meðal þess sem fjallað er
um í þættinum, alla virka
daga kl. 11. Vikulega er
sent út utan úr bæ, þar
sem ýmist er farið í heim-
sóknir til stofnana eða
félagasamtaka og fræðst
um starfsemina.
13:00 Vítt og breitt14:00 Bak við stjörnurnar
Í þættinum Bak við stjörnur-
nar, sem er á dagskrá á
mánudögum kl. 14, kynnir
Arndís Björk Ásgeirsdóttir
tónlist fyrir hlustendum,
klassíska í bland við nýrri tón-
list, í flutningi ýmissa stjarna
úr tónlistarheiminum. Þar
verða gamlar hljóðritanir
spilaðar en einnig nýjar og
rykið reglulega dustað af tónleikahljóðritunum úr
safni Ríkisútvarpsins, sem sjaldan heyrast
15:00 Útvarpssagan15:30 Dr. RÚV16:10 Hlaupanótan17:00 Víðsjá19:00 Endurómur úr Evrópu20:00 Leynifélagið22:15 Afsprengi Afsprengi er þáttur um íslenska tónlist sem verður á
dagskrá öll mánudagskvöld kl. 22:15. Þar verður flutt
og fjallað um nýja íslenska tónlist, auk þess sem rætt
verður við tónskáld og
aðra tónlistarmenn.
Áhrifavaldar þeirra fá
einnig sitt rými. Tónlistin
verður auk þess tengd
við arfinn og skoðuð í
samhengi við hann.
Umsjónarmaður þáttarins
er Ingibjörg Eyþórsdóttir.
Þriðjudagar07:05 Morgunvaktin09:05 Okkar á milli09:45 Morgunleikfimi10:10 Heima er best
Víða er leitað fanga í tón-
listarþættinum Heima er best,
í umsjá Ólafs Þórðarsonar,
sem er á dagskrá Rásar 1 á
þriðjudagsmorgnum. Tón-
listin er blanda af léttum
djassi, heimstónlist og
þjóð-lagamúsík. Heimshorna-
tónlistin spannar vítt svið
og leitað er fanga í öllum
heimsálfum, en eins og nafnið bendir til fær íslensk
tónlist sinn stað í þættinum.
11:00 Samfélagið í nærmynd13:00 Vítt og breittÍ þættinum Vítt og breitt sem er á dagskrá Rásar 1
alla virka daga kl. 13 er leitast við að bjóða upp á
fræðandi afþreyingu með vangaveltum, spjalli og
tónlist. Meðal efnis er
umfjöllun um daglegt
mál, söfnun orðskýringa,
vísindaspjall, umhverfis-
mál og útivist, að
ógleymdum furðum og
fantasíum hjá pistla-
höfundum þáttarins. Umsjónarmenn eru Hanna G.
Sigurðardóttir og Pétur Halldórsson.
14:00 Stef15:00 ÚtvarpssaganÚtvarpssagan er nú á dagskrá alla virka daga klukkan
15 á Rás 1. Í útvarpssögutímanum verður hér eftir
sem hingað til fjölbreytt framboð skáld-
sagna og ævisagna, innlendar sögur og
erlendar, nýjar og gamlar, dramatískar
og gamansamar. Fyrsta sagan á hinum
nýja tíma er Vansæmd eftir J. M.
Coetzee sem Rúnar Helgi Vignisson
hefur þýtt, Hjalti Rögnvaldsson les.
15:30 Dr. RÚV16:10 Hlaupanótan17:00 Víðsjá19:00 Endurómur úr Evrópu20:00 Leynifélagið22:15 Fimm fjórðuDjassþátturinn Fimm fjórðu er á dagskrá Rásar 1 á
þriðjudagskvöldum frá 22:15 til miðnættis. Þetta er
fimmtánda árið sem Lana Kolbrún Eddudóttir leikur
djass fyrir hlustendur og kynnir hún spunalistina frá
ýmsum sjónarhornum. Klassískur djass á sinn sess í
þáttunum, en nýjar plötur og tónleikahljóðritanir fá
einnig gott pláss.
Miðvikudagar07:05 MorgunvaktinFréttaþátturinn Morgunvaktin hefst að loknum
sjöfréttum alla virka morgna og stendur til klukkan
níu. Morgunvaktin hefur
skapað sér sterka stöðu meðal
þeirra sem vilja hlusta á frétta-
tengt efni og fylgjast með um-
fjöllun um menningu, mannlíf
og fleira. Umsjón hafa Sveinn
Helgason, Kristján Sigurjóns-
son og Ása Briem
09:05 Okkar á milli09:45 Morgunleikfimi10:10 Brot af eilífðinniJónatan Garðarsson staldrar við hér og þar í
tónlistarsögunni á miðvikudögum eftir tíufréttir og
skoðar brot af eilífðinni
í tónum og spjalli. Hann
fjallar um tónlistarfólk af
ólíkum toga sem átti þátt í
að hræra saman tónlistar-
hefðum víðsvegar að og
leggja grunninn að þróun
þeirrar dægurtónlistar
sem var mest áberandi í
heiminum á 20. öld.
11:00 Samfélagið í nærmynd13:00 Vítt og breitt14:00 Tónar að nóni15:00 Útvarpssagan15:30 Dr. RÚVLýðheilsa og heilbrigðismál, neytendamál, umhverfi
og samgöngur, trygginga- og innflytjendamál,
húsnæðis- og heimilismál.
Dr. RÚV býður hlustendum
sínum upp á fjölbreyttan
þátt um efni sem skiptir
fólk máli, alla virka daga kl.
15.30. Umsjónarmenn eru
Brynhildur Péturs-
dóttir, Auður Loftsdóttir,
Ragnheiður Davíðsdóttir,
Guðmundur Gunnarsson og
Sigurlaug M Jónasdóttir.
16:10 Hlaupanótan17:00 Víðsjá19:00 Endurómur úr Evrópu20:00 Leynifélagið Leynifélagið heldur fundi sína á sunnudags-,
mánudags-, þriðjudags- og miðvikudagskvöldum í
allan vetur og hefjast fundirnir stundvíslega
klukkan átta. Þátturinn er ætlaður krökkum á
aldrinum 6-10 ára og þar verður fjallað um krakka
fyrir krakka og allt sem krökkum finnst skemmti-
legt. Umsjónarmenn eru Brynhildur Björnsdóttir og
Kristín Eva Þórhallsdóttir.
FimmtudagAr:
07:05 Morgunvaktin09:05 Okkar á milli09:45 Morgunleikfimi10:10 Litla fluganTónlistarþátturinn Litla flugan
er á dagskrá á fimmtudags-
morgnum kl. 10.10. Þar er leikin
gamaldags tónlist frá öldinni
sem leið: dægurlög, harmóníku-
tónlist, djass og danslög. Gömlu
góðu hljómplöturnar eru í heiðri
hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum
segulböndum úr safni Ríkisútvarpsins.
Umsjónamaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.
11:00 Samfélagið í nærmynd13:00 Vítt og breitt14:00 Á tónsviðinu
Í þáttunum Á tónsviðinu, sem eru
á dagskrá á fimmtudögum kl. 14,
er leikin sígild tónlist úr ýmsum
áttum. Una Margrét Jónsdóttir
tínir saman fróðleiksmola um tón-
listina og höfunda hennar og
skyggnist í söguna á bak við
verkin.
15:00 Útvarpssagan15:30 Dr. RÚV16:10 Hlaupanótan17:00 VíðsjáÍ Víðsjá er fylgst með viðburðum á listasviðinu,
leikhúsi, bókmenntum, tónlist og myndlist, auk
þess sem fjallað er um hugmyndastrauma og fleira
sem lýtur að menningarástandi samtímans. Guðni
Tómasson, Haukur Ingvarsson og Eiríkur Guðmunds-
son fara á vettvang
atburða og bregða
upp hljóðmyndum,
taka hús á lista-
mönnum og fylgjast
með fyrirlestrahaldi
og skoðanaskiptum
í menningarmálum.,
alla virka daga kl. 17.
19:27 Sinfóníuhljómsveit ÍslandsÚtvarpið verður áfram með beinar útsendingar frá
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á
fimmtudagskvöldum kl. 19:27 til 22.00 í vetur.
22:15 ÚtvarpsleikhúsiðÚtvarpsleikhúsið býður að vanda upp á metnaðar-
fulla og fjölbreytta dagskrá á fimmtudagskvöldum
í vetur. Mikil áhersla verður lögð á ný íslensk
verk. Meðal höfunda frumfluttra verka eru Ásdís
Thoroddsen, Bjarni Jónsson, Brian FitzGibbon, Jónas
Jónasson, Jón Atli Jónasson, Kristín Ómarsdóttir,
Matthías Johannessen, Ólafur Haukur Símonarson
og Sveinn Einarsson.
FöstudagAr07:05 Morgunvaktin09:05 Óskastundin
Gerður G. Bjarklind leikur óskalög hlustenda
og les kveðjur alla föstudagsmorgna milli
klukkan 9.05 og 9.45 í Óskastundinni.
Hlustendur geta beðið um óskalög og/eða
sent kveðjur með því að hringja að þætti
loknum í síma 515 3545, senda þættinum bréf
í Efstaleiti 1 eða senda tölvupóst á netfangið
09:45 Morgunleikfimi10:10 Sagnaslóð11:00 Samfélagið í nærmynd13:00 Vítt og breitt14:00 Stjörnukíkir Stjörnukíkir verður vikulega á dagskrá á
föstudögum klukkan 14. Í þáttunum er
fjallað um listgreinakennslu og skapandi
starf með íslenskum börnum og ung-
mennum. Elísabet Indra Ragnarsdóttir beinir
stjörnukíkinum í allar áttir, inn í ólgandi
listasmiðjur og virðulegar menntastofnanir,
inn í háværa bílskúra og hljóðlátar
vinnustofur.
15:00 Útvarpssagan15:30 Dr. RÚV16:10 Hlaupanótan
Hlaupanótan er vettvangur fyrir
alls konar tónlist, nú og þá, hér
og þar, alla virka daga kl. 16.10.
Brugðið er upp nærmyndum af
tónlistarfólki og tónlistarlífinu.
Hlustendur deila tónlistarsmekk
sínum með þjóðinni og efnt er
til umræðu um ýmis hitamál sem
snerta tónlist. Umsjónarmenn
eru Berglind María Tómasdóttir,
Halla Steinunn Stefánsdóttir,
Ólafur Björn Ólafsson og Páll Ivan Pálsson.
17:00 Víðsjá19:00 Endurómur úr Evrópu20:00 Pollapönk Það er alltaf brjálað fjör á Rás 1 á föstudagskvöldum þegar
tónlistar-
þátturinn Pollapönk í umsjá leik-
skólakennaranna og polla-
pönkaranna Haraldar Freys Gíslaso-
nar og Heiðars Arnar Kristjánssonar
er á dagskrá. Þátturinn er sniðinn
að börnum á öllum aldri og meðal
dagskrárliða eru tvennan,
brandarahornið, ljóðahornið og óskalög pollanna.
23:00 KvöldgestirJónas Jónasson hefur tekið á móti kvöld-
gestum í tuttugu og sex ár. Í þáttinn hefur
komið fólk úr ólíkum áttum, á öllum aldri
og víða að af landinu. M.a. forsetar, lista-
menn, sjómenn, alþingismenn, húsmæður,
leikarar, kennarar og ungt fólk á uppleið.
Með sinni alkunnu snilld tekst Jónasi að
fá gesti sína til að tjá sig á einlægan og
skemmtilegan hátt um lífið og tilveruna á
föstudagskvöldum klukkan 23.
Sunnudagar08:05 Morgunandakt08:15 Ársól Þátturinn Ársól í umsjá Njarðar P. Njarðvík
verður helgaður ljóðlist og tónlist, snemma á
sunnudagsmorgnum. Lesin verða ljóð, fjallað
um þau lítillega og leikin tónlist af frekar
alvarlegu tagi, en með blöndu af yfirveguðum
djassi og öðru léttara, t.d. vísnasöng, sem oft
tengist ljóðlist. Einnig verða tengsl ljóða og
laga könnuð, hvernig lag verður til við ljóð eða
hvernig lagið fellur að ljóðinu.
9:00 Upp og ofan10:15 Bókmenntir 11:00 Messa13:00 Gárur
Í Gárum á sunnudögum kl. 13 verður rýnt í ýmsa
þætti í heimsmálum dagsins í dag. Silja Bára Ómars-
dóttir fer yfir bakgrunn ýmissa málefna sem oft
koma upp í erlendum fréttum. Uppruni núverandi
heimsmyndar verður skoðaður og reynt að útskýra
hegðun ríkja og annarra gerenda í alþjóða-
kerfinu. Áhersla er m.a. lögð á að gera bakgrunn
yfirstandandi deilna aðgengilegan fyrir almenning.
14:00 Hvað er að heyraHvað er að heyra? er spurningaleikur
um tónlist þar sem þátttakendur spreyta
sig á að þekkja tónverk frá ýmsum
tímaskeiðum tónlistarsögunnar.
Liðstjórar eru þau Pétur Grétarsson
og Steinunn Birna Ragnarsdóttir sem
bæði eru vel þekkt úr íslensku tónlistarlífi og mæta þau til leiks
ásamt góðum gestum. Umsjónarmaður þáttarins er Arndís Björk
Ásgeirsdóttir.15:00 SunnudagsleikhúsiðSunnudagsleikritið flyst í vetur frá
hefðbundnum útsendingartíma klukkan
eitt og verður nú vegna fjölda áskorana
á dagskrá klukkan þrjú. Meðal nýrra
fjölskylduvænna leikrita sem frumflutt
verða á sunnudögum má nefna nýja
leikgerð Benónýs Ægis-sonar eftir hinni vinsælu skáldsögu Forrests
Carters, Uppvöxtur Litla trés.
16:10 Úr tónlistarlífinu17:30 Úr gullkistunni Gunnar Stefánsson dregur ýmiss konar talað mál
úr segulbandasafni Útvarpsins upp úr gullkistunni
kl. 17.30 á sunnudögum, s.s. erindi, viðtöl og up-
plestra sem varðveist hafa frá fyrri tíð.
18:30 Seiður og hélogSeiður og hélog er þáttur um bókmenntir hér
og nú, frá útlöndum og áður fyrr á sunnudags-
kvöldum kl. 18:30 í umsjá Jórunnar Sigurðar-
dóttur og Mörtu Guðrúnu Jóhannesdóttur. Fylgst
er með því nýjasta og því sem ekki ratar á met-
sölulistana. Íslenskar bókmenntir í samræðu við
bókmenntir í öðrum löndum. Umfjöllun um bækur sem tilnefndar
eru til bókmenntaverðlauna og margt fleira.
19:40 Allir krakkar20:00 Leynifélagið23:00 Andrarímur Á sunnudagskvöldum milli klukkan ellefu og
tólf spjallar Guðmundur Andri Thorsson við
hlustendur í þættinum Andrarímur og leikur
gamlan djass og blús, kammermúsík, vísna-
söng o.fl. Gamlar raddir lifna úr þjóðardjúpi
segulbandasafnsins í erindum og viðtölum og
umsjónarmaður les frásagnir og fróðleik úr
gömlum og nýjum bókum fyrir svefninn.
Laugardagar08:05 Út úr nóttinni … og inn í daginn Viðar Eggertsson fer í ferðalag með hlustendum í morgunsárið og stingur
niður fæti hér og þar á mannlegri vegferð – þar sem allt getur gerst.
Spjallar um lífið og tilveruna; leikur lög og áhugavert fólk segir af sjálfu
sér og öðrum.
09:00 Út um græna grundu10:15 Kvika
Fáir fara oftar í bíó en Íslendingar. Íslensk kvikmyndagerð
er í uppsveiflu og kvikmyndamenning hefur tekið örum
breytingum undanfarin ár. Í Kviku á laugardagsmorgnum
kl. 10.15 fjallar Sigríður Pétursdóttir um kvikmyndir frá
öllum heimshornum, ýmsum tímabilum og af öllum
gerðum. Rætt verður við fagfólk og áhugamenn, leikin
tónlist og sagðar sögur af þeim margháttuðu upplifunum
sem verða í myrkum bíósölum.
11:00 Vikulokin13:00 KrossgöturHerinn er farinn og jöklarnir hopa. Við virðumst vera
á leiðinni úr köldu tímabili yfir í heitt. Undan jöklum
hálendis og íshellu kaldastríðs kemur í ljós landslag
sem fólk hefur ekki séð áður. Hvað er það nákvæm-
lega sem blasir við okkur? Við stöndum á vistfræði-
legum, pólitískum og fagurfræðilegum tímamótum,
Hjálmar Sveinsson fjallar um möguleikana í stöðunni
í Krossgötum á laugardögum kl. 13.
14:00 Til allra áttaÍ þættinum Til allra átta, sem er á dagskrá Rásar 1
á laugardögum kl.14, má heyra heimshornatónlist
af ýmsu tagi. Þjóðlega, alþjóðlega og fjölþjóðlega
tónlist, tónlist úr horfnum heimi, tónlist sem virðir
hefðir og tónlist sem er ekkert heilagt.
Umsjón hefur Sigríður Stephensen.
14:40 Tímakornið16:10 Orð skulu standaÞátttakendur í hljóðstofu spreyta sig á orðum, orðnotkun, orðasambön-
dum og krossgátum í þættinum Orð skulu standa á laugardögum kl.
16.10. Karl Th. Birgisson, stjórnandi þáttarins, varpar fram fyrriparti sem
þátttakendur botna í lok þáttar og liðsstjórar eru Davíð Þór Jónsson og
Hlín Agnarsdóttir. Hlustendum gefst einnig kostur á að senda inn eigin
seinniparta á netfangið [email protected]:05 Flakk
Lísa Pálsdóttir flakkar um hugmynd, stað eða hvaðeina
sem henni dettur í hug hverju sinni á laugardögum kl.
17.05. Þátturinn er byggður upp á viðtölum við fólk sem
tengist efninu og segja má að flakkið sé eins og heimil-
darmynd án mynda, þar sem notast er við hljóðupptökur
af stöðunum, sem fjallað er um hverju sinni.
18:30 Hundur í útvarpssalÞátturinn Hundur í útvarpssal er á dagskrá alla laugardaga klukkan 18:30
í umsjá Hjörleifs Hjartarsonar og Eiríks Stephensen, en saman skipa þeir
félagarnir hljómsveitina Hundur í óskilum. Þeir félagar kryfja til mergjar
íslenska tónlist í nútíð og fortíð: þjóðlög, sönglög og dægurlög og
einnig ljóð og dægurlagatexta og skoða þá samfélagslegu sýn sem þeir
endurspegla.
19:00 Heimur óperunnarMagnús Lyngdal Magnússon mun í vetur fjalla um
óperuna frá ýmsum hliðum. Hann leikur meðal annars
gamlar og nýjar hljóðritanir og víkur að stefnum og
straumum í túlkun. Þá fjallar Magnús um einstaka lista-
menn, ræðir við óperuunnendur og segir frá því helsta
sem er á dagskrá stóru óperuhúsanna.
22:15 Á hljóðbergiÁ Hljóðbergi er suðupottur erlendra strauma listar, fágunar og dirfsku
í útvarpsþáttum. Á laugardagskvöldum kl. 22.15 í
vetur gefst hlustendum tækifæri til að hlýða á erlenda
útvarpsþætti, sem hafa hlotið mikið lof fyrir einstök
efnistök. Jafnt fléttuþætti, heimildaþætti og leikið
efni, sem kemur víðsvegar að og fylgt er úr hlaði með
inngangi og ýmsum nytsamlegum upplýsingum úr smiðju
Viðars Eggertssonar.
23:10 Villtir strengir og vangadans Danslagaþátturinn Villtir strengir og vangadans í
umsjá Svanhildar Jakobsdóttur verður í loftinu á
laugardagskvöldum milli kl. ellefu og tólf í vetur.
Í þættinum verður leitað dyrum og dyngjum að
danslögum af sem allra flestum gerðum. Lands-
menn ættu því, allir sem einn, að geta dregið
fram rykfallna dansskóna og rifjað upp gömlu
danssporin við rokk og ræla, sömbu og salsa og
allt þar á milli.
Fréttir eru sagðar á samtengdum rásum 1 og 2 klukkan 7, 8, 9, 10, 11, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 22 og 24
Hlutur klassískrar tónlistar verður aukinn í vetrardagskrá Rásar 1 og má þar helst telja nýja þáttalínu kl. 14 á virkum dögum, mánudaga til fimmtudaga, í umsjá Arndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur (Bak við stjörnurnar), Bergþóru Jónsdót-tur (Stef), Einars Jóhannessonar (Tónar að nóni) og Unu Margrétar Jónsdóttur (Á tónsviðinu). Tónleikahljóðritunum EBU, frá öllum hornum Evrópu, verður gert hátt undir höfði með nýjum tónleikatímum kl. 19 alla virka daga nema fimmtudaga og óperuunnendur fá nýjan þátt á laugardagskvöldum kl. 19 í umsjá Magnúsar Lyngdal Magnússonar. Mánaðarlega á fimmtudagskvöldum skyggnist Árni Heimir Ingólfsson svo inn í undraheim klassískrar tónlistar í þættinum Með á nótunum þar sem hann kynnir og kryfur nokkur af meistara-verkum tónlistarsögunnar.Nýjung í dagskrá Rásar 1 er þátturinn Hvað er að heyra?, spurningaleikur um tónlist sem Arndís Björk Ásgeirsdóttir stjórnar á sunnudögum kl. 14 en henni til halds og trausts eru liðsstjórarnir Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Pétur Grétarsson, sem fá til sín nýja gesti í hverri viku. Nýr þáttur um listnám og barnamenningu á Íslandi, Stjörnukíkir, verður á dagskrá kl. 14 á föstudögum í umsjón Elísabetar Indru Ragnarsdóttur. Af eldra og rótgrónara efni má nefna morgunþætti, sem eru með sama sniði og áður, en þar er leikin létt tónlist af ýmsu tagi í Stefnumóti Svanhildar Jakobsdóttur, Heima er best með Ólafi Þórðarsyni, Broti af eilífðinni í umsjá Jónatans Garðarssonar og Litlu flugunni í umsjá Lönu Kolbrúnar Eddudóttur
Tónlist í vetrardagskrá Rásar 1, 2007-2008Hlaupanótan verður á sínum stað eftir fjögurfréttir alla virka daga í umsjá Berglindar Maríu Tómasdóttur, Höllu Steinunnar Stefánsdóttur, Páls Ivans Pálssonar og Ólafs Björns Ólafssonar en þar er að venju fylgst með íslensku og erlendu tónlistarlífi, brugðið upp nærmyndum af tónlistarfólki og efnt til umræðna um ýmis hitamál sem snerta tónlist. Óskastundin, óskalagaþáttur hlustenda, heldur áfram göngu sinni á föstudagsmor-gnum í umsjá Gerðar G. Bjarklind, heimstónlistarþáttur Sigríðar Stephensen, Til allra átta, er á sínum stað á laugardögum kl. 14 og Svanhildur Jakobsdót-tir hefur umsjón með nýjum danslagaþætti á laugardagskvöldum. Djassþáttur Lönu Kolbrúnar Eddudóttur, Fimm fjórðu, hefur verið lengdur um klukkustund og er nú á dagskrá á þriðjudagskvöldum kl. 22:15 – 00:00. Beinar útsendingar frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru eins og venjulega á fimmtudagskvöldum kl. 19:27 og aðrar tónleika-hljóðritanir af innlendum vettvangi eiga sinn fasta sess í þættinum Úr tónlistarlífinu, síðdegis á sunnudögum. Ekki má gleyma Afsprengi, þætti um íslenska tónlist, sem verður í umsjá Ingibjargar Eyþórsdót-tur og hefur fengið nýjan útsendingartíma, kl. 22:15 á mánudags-kvöldum.
Bergljót HaraldsdóttirTónlistarstjóri Rásar 1
Rondó er klassísk tónlistarrás Ríkisútvarp-sins. Hún sendir út klassíska tónlist og djass allan sólarhringinn. Rásin er liður í tilraunum útvarpsins með stafræna útvarps-sendingu – DAB – Digital audio broadcast-ing, tækni sem hefur verið að ryðja sér rúms í nágrannalöndum okkar. Sem stendur er aðal áherslan lögð á tæknilega hlið málsins, frekar en dýra dagskrárgerð.Vefsíðunni www.ruv.is/rondo er ætlað að veita hlustendum grunnupplýsingar um þá tónlist sem leikin er á rásinni. Þá eru birtir listar yfir þau verk sem leikin eru á heilum sólarhring í senn. FM sendingar nást enn sem komið er aðeins á Faxaflóasvæðinu á FM 87.7. Þá má heyra útsendinguna á kapalkerfum Símans, Digital Ísland og á vefnum. Von er á stafrænum útsendingum innan tíðar, en til að ná þeim þarf sérstök móttökutæki sem ná bæði FM og DAB útsendingum.
RONDÓfm 87,7
Sunnudagar eru bókmenntadagar á Rás 1
Ársól í umsjá Njarðar P. Njarðvík rithöfundar og bókmennta-
fræðings er á dagskrá á sunnudagsmorgnum kl. 8.15 og er
þátturinn helgaður ljóðum og tónlist. Nýmæli er að slíkir þættir
séu fluttir á þessum tíma og er vonast til að árrisulir hlustendur
kunni vel að meta það. Á sunnudagsmorgnum klukkan 10.15
verða sem fyrr þættir og þáttaraðir um menningarsöguleg efni,
sem ýmsir umsjónarmenn standa að. Í haust fara t.a.m. þættir
Sigríðar Albertsdóttur um franska súrrealismann í loftið, síðan
taka við fjórir þættir Hauks Ingvarssonar um Jónas Hallgríms-
son á tvö hundruð ára afmæli hans og þar á eftir þættir Arthúrs
Björgvins Bollasonar um slóðir Grimmsævintýra
Útvarpssagan á nýjum tíma
Útvarpssagan á Rás 1 er flutt frá mánudegi til föstudags eins og
áður, en nú á nýjum tíma, réttri klukkustund síðar en verið hefur
um langt skeið, það er klukkan 15. Eins og tryggir hlustendur vita
er jafnan vandað til vals á útvarpssögum. Reynt að er að gæta
fjölbreytni, íslenskar sögur og erlendar frá ýmsum löndum, nýjar
og gamlar, og einnig úrvals ævisögur. Lagt er kapp á að flutning-
urinn sé góður. Byrjað verður 10. september á Vansæmd eftir
suður-afríska Nóbelsskáldið J. M. Coetzee, sem hingað kemur á
bókmenntahátíð í september, Hjalti Rögnvaldsson les. Sagan segir
frá háskólakennara sem tekur um kynferðissamband við nemanda
sinn og þeim afleiðingum sem það hefur á líf hans.
.
Bókmenntahátíð í Reykjavík 2007Vikuna 9. – 15. september koma yfir þrjátíu rithöfundar og skáld, innlend og útlend saman í Reykjavík til þess að lesa upp og segja frá bókum sínum og skáldalífi. Rás 1 fylgist grannt með og segir daglega frá öllu sem gerist í þættinum Vítt og breitt klukkan eitt og í þættinum Víðsjá klukkan 17.
Meðal erlendra gesta eru nóbelsverðlaunahafi ársins 2003 frá Suður-Afríku J.M. Coetzee, hollenska stjórn-málakonan Ayaan Hirsi Ali frá Sómalíu og Sasa Stanisic undrabarnið frá Bosníu sem varð þýskur rithöfundur. Meðal íslensku gestanna eru Guðbergur Bergsson og Steinunn Sigurðardóttir, Andri Snær Magnason og Þórdís Björnsdóttir.
Bókmenntir og bókmenntaumfjöllun á Rás 1 í vetur
Morgunbæn er á dagskrá daga nema sunnudaga kl. 6.50 í morgunsárið en Morgunandakt er send út eftir fréttir kl. 8 á sunnudagsmorgnum.