Fondue með appelsínusúkkulaði
Gott fondue hefur þann eiginleika að skapa sérlega skemmtilegastemningu í kringum borðið. Eftirréttur sem er líklegur til að vekja fjörugar
umræður.
Innihald• Uppskriftin er handa 3-4
• 1 dl rjómi• 3 ræmur af appelsínuberki (gula lagið)• 100 g Síríus rjómasúkkulaði, saxað• 100 g Síríus Konsum Orange súkkulaði, saxað• 1 msk. Grand Marnier líkjör (má sleppa)
Til að dýfa ofan í:• Appelsínubitar, ferskur ananas, jarðarber, perur, kíví, mandarínur,
fíkjur,• kirsuber o.fl.
Aðferð• Hellið rjómanum í pott, bætið appelsínuberkinum út í og hitið
að suðu.• Takið pottinn strax af hellunni og leyfið rjómanum að bíða í 30
mínútur svo að hann drekki í sig bragðið af appelsínuberkinum.
• Takið appelsínubörkinn upp úr. Hitið rjómann aftur að suðu. • Setjið saxað súkkulaðið í skál og hellið rjómanum yfir. Látið
líða 30 sekúndur og hrærið svo í þar til súkkulaðið hefur bráðnað og blandan er slétt og samfelld.
Aðferð• Hrærið Grand Marnier saman við, hellið í fondue-pott og berið
fram strax.• Setjið saxað súkkulaðið í skál og hellið rjómanum yfir. Látið
líða 30 sekúndur og hrærið svo í þar til súkkulaðið hefur bráðnað og blandan er slétt og samfelld.
• Hrærið Grand Marnier saman við, hellið í fondue-pott og berið fram strax.
Verði ykkur að góðu!