99
4.1 Hvað er að vera Íslendingur 4. hluti – Samastaður í heiminum

4.1 Hvað er að vera Íslendingur

  • Upload
    kenda

  • View
    60

  • Download
    1

Embed Size (px)

DESCRIPTION

4.1 Hvað er að vera Íslendingur. 4. hluti – Samastaður í heiminum. Hvað er að vera Íslendingur ? ( bls . 142). Hver eru helstu einkenni lands og þjóðar? Náttúra landsins hefur haft sitt að segja við mótun þjóðarsálarinnar. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

4.1 Hvað er að vera Íslendingur

4. hluti – Samastaður í heiminum

Page 2: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er að vera Íslendingur?(bls. 142)• Hver eru helstu einkenni lands og þjóðar?• Náttúra landsins hefur haft sitt að segja við mótun þjóðarsálarinnar. Golfstraumurinn gerir landið byggilegt – hægt að stunda hér landbúnað.

Page 3: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er að vera Íslendingur?(bls. 143)• Veðurfar hefur mikið að segja fyrir búsetu manna og lífsstíl, það mótar sjálfsmynd og þjóðareinkenni. Í norrænni goðafræði var Valhöll (himnaríki) lýst sem hlýjum og notalegum stað þar sem eldar brunnu stöðugt, en Hel (helvíti) var ískalt. Í heitari löndum var þessu öfugt farið.

Page 4: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er að vera Íslendingur?(bls. 144)• Ísland er í braut lægða á mörkum vestan-vindabeltis og kaldara lofts frá heimskauta-slóðum. Loftslag er því afar breytilegt og hefur mikil áhrif á allt samfélagið og líf fólks. Á suðrænum slóðum eru veturnir oft hlýrri og þar getur fólk eytt frítíma sínum mestmegnis utandyra ólíkt því sem gerist hér á landi.

Page 5: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Skýrsla nefndar um ímynd Íslands (bls. 144)

• Könnunin gerð árið 2007.• Ímynd Íslands er almennt jákvæð meðal þeirra sem hafa heyrt um landið og byggist fyrst og fremst á upplifun á náttúru en ekki þjóð, menningu og atvinnustarfsemi.

Page 6: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Skýrsla nefndar um ímynd Íslands (bls. 144)

• Skoðun Íslendinga: Fólk af báðum kynjum, á öllum aldri og úr ólíkum starfsstéttum var almennt sammála um að kraftur og frelsi einkenndu jafnt fólk, atvinnulíf, menningu sem og náttúru landsins. Friður og öryggi eru einnig verðmæt einkenni á íslensku samfélagi.

Page 7: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Náttúra landsins (bls. 145)

• Veðrátta hefur áhrif á atvinnuvegi hér. Erfiðara að stunda landbúnað hér en á Ítalíu, samt hefur landbúnaður verið helsta atvinnugreinin mestalla sögu landsins. Landið er eitt það strjálbýlasta í heimi og stórir hlutar þess óbyggilegir. Hér eru um 3 íbúar á hvern ferkílómetra en í Mónakó búa um 17.000 íbúar að meðaltali á hverjum ferkílómetra.

Page 8: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Skýrsla nefndar um ímynd Íslands (bls. 145)

• Náttúruöflin eru annað sérkenni landsins. Eldfjöll og jöklar einkenna Ísland. Straumharðar jökulár voru mikill farartálmi á öldum áður, um 1870 voru enn allar ár óbrúaðar, hér voru engir bílvegir og engar strandsiglingar.

Page 9: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Lífsskilyrði (bls. 145)

• Íslendingar telja sig mikla bókaþjóð – samt var fátt um íslenskar þjóðhetjur í skáldskap og stjórnmálum fyrr en á 19. öld ef undan-skildar eru fornbókmenntirnar á 12. öld.• Myndlist og tónlist voru varla til hér á landi í evrópskum skilningi fyrr en á 19. öld.

Page 10: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Lífsskilyrði (bls. 145)

• Fram undir tuttugustu öldina var Ísland eitt vanþróaðasta, fátækasta og afskekktasta landið í Evrópu.• Í lok 19. aldar flutti fjöldi manns til Vestur-heims í leit að betri lífskjörum, fyrst og fremst til Kanada.

Page 11: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Lífsskilyrði (bls. 146)

• Um aldamótin 1900 voru Vesturfararnir um 25.000 talsins en heima á Íslandi voru íbúarnir um 85.000. Þeir sem fluttu voru aðallega ungt fólk undir fertugu.

• Landþrengsli og erfið lífsskilyrði áttu mikinn þátt í fólksflutningunum.

• Mest var flutt frá erfiðustu búskaparsvæðum landsins, svo sem Þingeyjar- og Múlasýslum.

Page 12: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Lífsskilyrði (bls. 146)

• Á tuttugustu öldinni breyttust aðstæður – nú á dögum er Ísland meðal ríkustu landa heims og lífsskilyrði almennt góð.

• Lífsskilyrði eru meðal annars mæld með því að skoða meðalævilengd, atvinnuþátttöku, lestrarkunnáttu og landsframleiðslu.

• Þrátt fyrir almennt góð lífsskilyrði flytja enn margir til útlanda í atvinnuleit eða til að stunda nám.

Page 13: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Lífsskilyrði (bls. 146-147)

• Í gegnum tíðina hafa erlendir ríkisborgarar verið fáir hér á landi vegna þess að landið hefur öldum saman verið mjög einangrað.

• Breyting hefur orðið á – sífellt fleiri hafa heyrt um land og þjóð og vilja búa hér.

• Erfitt fyrir aðra en þá sem búa á Evrópska efnahagssvæðinu að fá landvistarleyfi hér.

Page 14: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Lífsskilyrði (bls. 146-147)

• Talið er að um 60.000 Íslendingar séu búsettir erlendis, líklegast eru þeir þó töluvert fleiri.

• Af Norðurlandabúum eru Danir fjölmennastir hér á landi.

• Af Evrópska efnahagssvæðinu (utan Norður-landanna) eru Pólverjar og Litháar fjölmennastir hér.

Page 15: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er flóttamaður? (bls. 147)

• Af þeim sem flytjast hingað hefur orðið mikil fjölgun af hælisleitendum og flóttafólki.

• Flóttamaður: Sá sem hefur yfirgefið heimaland sitt og á ekki afturkvæmt af ótta við ofsóknir vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, stjórnmálaskoðana eða annars.

Page 16: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er flóttamaður? (bls. 147)

• Þrjár lausnir á vanda og aðstæðum flóttafólks: 1. Flóttafólki er snúið til baka til heimalandsins

þegar aðstæður þar hafa batnað.

2. Flóttafólkið nái að aðlagast í dvalar-/hælislandi.

3. Flóttafólkið flyst til svokallaðs þriðja lands þegar hvorki eru möguleikar á að flytja til upprunalandsins né möguleikar á að setjast að í dvalarlandi að mati Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Page 17: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er flóttamaður? (bls. 147)

• Flestir flóttamenn sem hingað koma falla undir lið þrjú (glæran hér á undan).• Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur leitað til Íslands og beðið um að hér sé tekið á móti flóttafólki í þessum aðstæðum (lið þrjú).

Page 18: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er flóttamaður? (bls. 147)

• Þegar flóttamaður sækir um hæli í einhverju landi er hann skilgreindur sem hælisleitandi á meðan stjórnvöld athuga hvort hann telst flóttamaður.

• Ef hælisleitandi telst ekki flóttamaður geta yfirvöld annaðhvort sent hann úr landi eða veitt honum dvalarleyfi af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum.

• Flóttafólk hefur ýmis réttindi umfram þá sem fá dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi.

Page 19: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Flóttafólk á Íslandi (bls. 148)

• Stjórnvöld hér hafa veitt flóttafólki móttöku í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sveitarfélög í landinu og Rauða krossinn frá árinu 1956.

• Rauði krossinn heldur utan um og undirbýr stuðningsfjölskyldur. Hann aðstoðar stjórnvöld við val á flóttafólkinu og veitir því margs konar stuðning, þar á meðal sálrænan.

Page 20: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hælisleitendur (bls. 149)

• Hælisumsókn einstaklinga er oftast lögð fram hjá lögregluembætti. Umsækjandi þarf að gera grein fyrir ferðalagi sínu til landsins og ástæðu þess að hann leitar hælis.

• Stjórnvöldum hér er bannað að hafa samband við yfirvöld í heimalandi hælisleitanda til að ganga úr skugga um að vitnisburður hans eigi við rök að styðjast því það getur stefnt fjölskyldu hans í voða.

Page 21: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hælisleitendur (bls. 149)

• Dyflinar-reglugerðin (2003) Á að koma í veg fyrir að flóttafólk sæki um hæli í mörgum löndum. Fyrsta umsókn um hæli gildir. Ef hælisleitandi hefur ekki sótt um hæli í öðru aðildarríki Dyflinar-reglugerðarinnar og Útlendingastofnun telur umsóknina vel rökstudda er hún tekin til meðferðar.

Page 22: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hælisleitendur (bls. 150)

• Dyflinar-reglugerðin (2003) Reglugerðin gefur stjórnvöldum hér kost á að senda hælisleitendur aftur til landa þar sem þeir höfðu áður lagt fram umsókn án þess að taka mál þeirra hér á landi til meðferðar. Reglugerðin dregur talsvert úr straumi flóttamanna hingað. Um 30-40% hælisleitenda eru því sendir burt á grundvelli reglugerðarinnar.

Page 23: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Ung eða gömul þjóð? (bls. 150)

• Íslendingar eru ung þjóð með mikið þjóðar-stolt – baráttan fyrir sjálfstæði landsins var löng og ströng og þjóðin lifði af mörg harðæri og náttúruhamfarir.• Íslendingar eru gömul þjóð – saga hennar er yfir 1100 ára gömul og þjóðin sem stofnaði íslenska lýðveldið árið 1944 er sú sama og hóf landnám hér um 930.

Page 24: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru allir Íslendingar eins?(bls. 151)• Er eitthvað til sem er dæmigert fyrir Íslend-inga og íslenskt samfélag? Fólk hefur margar sameiginlegar hugmyndir um land og þjóð og sömu skoðanir eru almennt útbreiddar meðal landsmanna. Skoðaðu aftur upptalninguna á bls. 142 og 143. Ertu sammála því sem þar kemur fram?

Page 25: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru allir Íslendingar eins?(bls. 151)• Hvaðan koma hugmyndirnar um hvernig Íslendingar eru? Stjórnvöld eiga sinn þátt í að dreifa mörgum þeirra hugmynda sem þjóðin hefur um sjálfa sig, ekki hvað minnst í skólakerfinu. Hugmyndirnar, hvort sem þær eru sannar eða ekki, ýta undir samkennd meðal landsmanna.

Page 26: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru allir Íslendingar eins?(bls. 151)• Eru Íslendingar einsleit þjóð? Einsleit þýðir að íbúarnir eru allir meira eða minna eins. Við erum ef til vill ekki eins einsleit og við höldum, meðal annars vegna þess að innflytjendur setja svip sinn á mannlífið.

Page 27: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru allir Íslendingar eins?(bls. 152)• Rök fyrir að Íslendingar séu einsleit þjóð: Flestir Íslendingar hafa sameiginlega trú og svipaðar trúarskoðanir. Íslendingar tala sama tungumálið og hér eru ekki mállýskur sem torvelda skilning. Íslendingar hafa allir ákveðin réttindi og skyldur gagnvart ríkinu.

Page 28: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru allir Íslendingar eins?(bls. 152)• Rök fyrir að Íslendingar séu einsleit þjóð: Í skólanum lærum við nánast það sama, óháð búsetu, svo sem um sjálfstæðisbaráttuna. Íslendingar hafa sameiginlegt stjórnarfar og fjölmiðlar eru líka sameiginlegir.

Page 29: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru allir Íslendingar eins?(bls. 152)• Rök gegn því að við séum einsleit þjóð: Í mörgum hitamálum hafa Íslendingar verið mjög ósammála og skipst í tvær fylkingar, svo sem út af virkjunarmálum. Eftir að einokun Ríkisútvarpsins var rofin árið 1986 hafa verið starfræktar fjölmargar útvarps- og sjónvarpsstöðvar hér á landi.

Page 30: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru allir Íslendingar eins?(bls. 152)• Rök gegn því að við séum einsleit þjóð: Lífshættir fara eftir því hvar fólk býr – í stórum þéttbýliskjörnum hafa íbúarnir svipaðan lífsstíl og þekkist í öðrum evrópskum þéttbýliskjörnum. Mikill munur er á afbrotatíðni, eiturlyfjanotkun og öðrum félagslegum vandamálum í þéttbýli og dreifbýli.

Page 31: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimurinn minnkar (bls. 153)

• Um leið og við byrjum að alhæfa um hvernig Íslendingar eru þá erum við að búa til staðalmyndir af þeim.• Staðalmyndir: einhæfar og oft fordómafullar lýsingar á hópum eða þjóðum.

Page 32: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimurinn minnkar (bls. 153)

• Þrjár ástæður fyrir því að allir Íslendingar eru ekki eins:1. Nær útilokað að afmarka íslenska menningu

og lífshætti. Við höfum svipaðan lífsstíl og aðrir Evrópubúar.

2. Töluverður munur er á lífsstíl fólks eftir aldri, kyni og búsetu svo dæmi séu nefnd.

Page 33: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimurinn minnkar (bls. 153)

• Þrjár ástæður fyrir því að allir Íslendingar eru ekki eins:3. Menning er síbreytileg. Það sem þér fannst

flott í fyrra er hallærislegt nú.

Breytingar sem hafa átt sér stað í íslenskri menningu síðustu áratugina tengjast ekki síst aukinni alþjóðavæðingu.

Page 34: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimurinn minnkar (bls. 153)

• Alþjóðavæðingin gerir heiminn minni og hann minnkar stöðugt. Philias Fogg ferðaðist umhverfis jörðina á 80 dögum sem þótti mikið afrek. Þú getur komist til fjarlægustu heimsálfa á innan við sólarhring.

Page 35: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimurinn minnkar (bls. 154)

• Alþjóðleg fyrirtæki hafa sett upp útibú á Íslandi – í framtíðinni veistu ekki hvort vinnustaðurinn þinn verður innanlands eða í útlöndum.• Alþjóðleg samskipti hafa leitt til þess að það er sama hvert þú ferð, alls staðar getur þú keypt þér kók og hamborgara.

Page 36: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kostir og gallar… (bls. 154)

• Aukin alþjóðavæðing getur ógnað menningu landsins og sérkennum Íslendinga. Við komumst ekki hjá því að verða fyrir áhrifum, t.d. vegna aukinna ferðalaga, kvikmynda og auglýsinga.• Alþjóðavæðing er af hinu góða því hún auðgar íslenska menningu og gerir okkur mögulegt að velja um mun fjölbreyttari lífsstíl.

Page 37: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kostir og gallar… (bls. 154)

• Alls staðar hafa menn þessar sömu áhyggjur, það er hvort sérkenni menningar verði fyrir skaðlegum áhrifum utan frá.• Hvað er íslenskt og hvað ekki? Er íslenskara að hlusta á rímur en rokk, djass eða teknó?

Page 38: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kostir og gallar… (bls. 155)

• Ef áhrif að utan virka hamlandi þá eru þau óheppileg.• Ef áhrif að utan virka örvandi á landsmenn, þannig að þeir hafi úr meiru að velja, þá eru þau til góðs.

Page 39: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Eru Íslendingar… (bls. 155)

• Eru Íslendingar sjálfum sér nógir? Lítið til af hagnýtum jarðefnum (málmum). Notkun jarðvarma og rafmagnsframleiðsla er með því mesta sem þekkist. Ein auðugustu fiskimið í heimi umhverfis landið.

Page 40: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Evrópusambandið (bls. 155)

• Evrópusambandið er samvinnustofnun Evrópuþjóða stofnað árið 1957. Markmið sambandsins er að bæta lífskjör og skapa náin tengsl milli aðildarríkjanna með því að mynda sameiginlegan markað og samræma stefnu í efnahagsmálum.

Page 41: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Evrópusambandið – rök með (bls. 155)

• Með því að ganga ekki í Evrópusambandið hefur Ísland valið að einangra sig frá Evrópusamstarfi.

• Við getum ekki tekið fullan þátt í lausn á sameiginlegum vandamálum með öðrum Evrópuþjóðum öðruvísi en að ganga í sambandið.

• Flestar þjóðir í Evrópu meðlimir í sambandinu.

Page 42: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Evrópusambandið – rök með (bls. 155)

• Við getum haft áhrif á það sem sem við viljum innan sambandsins vegna þess að við erum meðlimir í Evrópska efnahagssvæðinu.• Til Evrópska efnahagssvæðisins teljast öll lönd Evrópusambandsins ásamt Íslandi, Noregi og Lichtenstein.

Page 43: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Í fréttum var þetta helst(bls. 157)

• Efnahagskreppa skall á Íslandi í október 2008 vegna hruns á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Kom eins og þruma úr heiðskíru lofti – en átti sér þó langan aðdraganda. Margir telja að kreppan hafi verið óumflýjanleg hvort sem heimskreppa hefði skollið á eða ekki.

Page 44: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Í fréttum var þetta helst(bls. 157)

• Í byrjun 20. aldar var landið meðal fátækustu þjóða í Evrópu.

• Við upphaf 21. aldar var landið meðal ríkustu þjóða heims.

• Flestir eru á því að Ísland sé enn og muni verða áfram í hópi ríkustu þjóða heims – hvað sem kreppunni líður.

Page 45: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Í fréttum var þetta helst(bls. 157)

• Margir hafa notað hugtakið hamfarir til að lýsa efnahagshruninu hér árið 2008.• Fjölmiðlar töluðu um þjóðargjaldþrot – en með því var átt við að ríkið gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar.

Page 46: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Í fréttum var þetta helst(bls. 157)

• Þeir fjármunir sem íslenska ríkið verður að greiða vegna bankahrunsins lenda á skattborgurum þessa lands. Þessar greiðslur koma til með að rýra lífsgæði á Íslandi um einhvern tíma.

• Margir setja spurningarmerki við hvort þjóðin eigi að greiða skuldir sem stofnað var til af íslenskum einkafyrirtækjum erlendis.

Page 47: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Í fréttum var þetta helst(bls. 157-158)

• Til eru ríki sem hafa neitað að borga skuldir sem stofnað var til. Dæmi: Rússland eftir byltinguna árið 1917. Rússland 1998. Argentína 2001. Ekvador 2008.

Page 48: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Vanskil og virðing (bls. 158)

• Ríkissjóður getur ekki orðið gjaldþrota á sama hátt og einstaklingar og fyrirtæki, þar eð hann heldur áfram að fá tekjur hvernig sem allt veltur.• Hvorki landslög eða alþjóðalög leyfa ríkissjóði að lýsa sig gjaldþrota.

Page 49: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Vanskil og virðing (bls. 158)

• Vanskilalönd missa lánstraust og virðingu umheimsins og þurfa langan tíma til að endurheimta orðstír sinn. Ísland beið langvinnan álitshnekki eftir að Íslandsbanki féll árið 1929, og kreppuárin urðu erfiðari fyrir vikið.

Page 50: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er efnahagskreppa?(bls. 158)

• Efnahagskreppa þýðir að eitthvert ríki eigi í miklum fjárhagslegum erfiðleikum.• Kreppan kemur einna helst fram í miklum skuldum ríkis og sveitarfélaga, miklum skorti á erlendum gjaldeyri, gengisfalli gjaldmiðils, mikilli verðbólgu og miklu atvinnuleysi.

Page 51: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er efnahagskreppa?(bls. 158)

• Í upphafi kreppunnar haustið 2008 reyndi Seðlabanki Íslands að fá lán hjá erlendum seðlabönkum. Leitað var til fjölmargra ríkja án árangurs. Fáir vildu lána Seðlabankanum nema Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (ASG) væri með í ráðum.

Page 52: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er efnahagskreppa?(bls. 158)

• Eitt af hlutverkum ASG er að koma ríkjum sem eiga í miklum efnahagserfiðleikum til aðstoðar. Sjóðurinn sendir sérfræðinga til viðkomandi ríkis og gerð er aðgerðaráætlun sem á að bæta stöðuna.• Sjóðurinn veitir einnig lán til að bregðast við brýnum skammtímavanda.

Page 53: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er efnahagskreppa?(bls. 158-159)

• Gengisfelling: Ef krónan veikist þá þarf fleiri krónur til að kaupa aðra gjaldmiðla en áður. Máttur gjaldmiðilsins (krónunnar) hefur minnkað.• Verðbólga: Ástand í þjóðfélaginu sem einkennist af síhækkandi verðlagi á vörum og þjónustu yfir langt tímabil.

Page 54: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Hvað er efnahagskreppa?(bls. 158-159)

• Margir líta jákvætt á kreppu og telja hana marka nýtt upphaf og ný tækifæri.• Miklu fleiri upplifa kreppu neikvætt vegna þess að hún rýrir lífsgæði og skapar ómælda erfiðleika í lífi fólks.

Page 55: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kreppa í þróunarlöndum(bls. 159)

• Hversu þungt kreppa leggst á fólk fer eftir ástandinu í landinu áður en hún skellur á. Ef ríki skuldar lítið, mennta- og heilbrigðiskerfið er sterkt og lítið atvinnuleysi er í landinu má búast við að kreppan verði ekki eins djúp og annars gæti orðið. Innviðir íslenska ríkisins voru sterkir þegar kreppan reið yfir hér á landi.

Page 56: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kreppa í þróunarlöndum(bls. 159)

• Heimskreppan leggst þungt á fátæk lönd og eykur mjög á fátækt þar. Alþjóðabankinn telur að allt að 400.000 börn muni láta lífið árlega sem beinlínis megi rekja til heimskreppu og aukinnar fátæktar. Meginhlutverk Alþjóðabankans er að styðja við þróun og útrýma fátækt í heiminum.

Page 57: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kreppa í þróunarlöndum(bls. 159)

• Margir munu bætast við hóp þeirra sem lifa við sára fátækt.• Sár fátækt: Þegar einstaklingur þarf að draga fram lífið á minna en því sem samsvarar verðgildi tveggja Bandaríkjadala á dag.

Page 58: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Góðæri og ójöfn tekjuskipting(bls. 159)• Á árinu 2007 ríkti hér góðæri líkt árin á undan. Almenningur fylgdist agndofa með snilligáfu fjár-festa í verslun og viðskiptum, sem stóðu í forsvari fyrir íslensku útrásinni. Þessir einstaklingar voru kallaðir útrásarvíkingar.

Page 59: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Íslenska útrásin (bls. 159)

• Ákveðið tímabil í íslenskri fjármálasögu. Íslenska útrásin hófst um aldamótin 2000 en verulega dró úr henni við upphaf kreppu í lok árs 2008. Upphaf útrásarinnar má rekja til eftirtalinna þátta:

Page 60: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Íslenska útrásin (bls. 159)

• Upphaf útrásarinnar: Einkavæðing banka. Lagasetning sem var hagstæð fyrir fjárfesta. Mikið framboð af ódýru lánsfjármagni erlendis frá. Ákvæði í samningum um Evrópska efnahagssvæðið sem kveður á um frjálst flæði fjármagns. Efnahagsþensla vegna stóriðjuuppbyggingar, ekki síst á Kárahnjúkum.

Page 61: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Íslenska útrásin (bls. 160)

• Upphaf útrásarinnar: Á þessu tímaskeiði (2000-2008) keyptu íslenskir fjárfestar mörg fyrirtæki erlendis, þeir efnuðust hratt og lifðu margir hverjir mjög hátt.

Efasemdir voru um stöðugleika íslenska hagkerfisins, bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Ástæðan var sú að hagkerfið þótti allt of smátt í samanburði við umsvif íslenskra banka.

Page 62: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Íslenska útrásin (bls. 160)

• Seðlabanki Íslands. Seðlabanki er sjálfstæð stofnun, sem er eign íslenska ríkisins en lýtur sérstakri stjórn. Seðlabankinn fer með stjórnun peningamála hér á landi svo hægt sé að skapa stöðugleika í verðlagsmálum.

Page 63: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Íslenska útrásin (bls. 160)

• Seðlabanki Íslands. Seðlabankinn á að stuðla að framgangi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hann á að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi í landinu.

Page 64: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Íslenska útrásin (bls. 160)

• Ójöfn tekjudreifing á Íslandi. Margir gagnrýndu tekjudreifinguna hér á landi og töldu hana töluvert ójafnari hér en á öðrum Norðurlöndum.

Með ójafnri tekjudreifingu er átt við hvernig tekjur skiptast á milli fólks.

Tekjudreifing er mæld með svokölluðum Gini-stuðli en hann er notaður til að mæla ójöfnuð í tekjum eftir löndum.

Page 65: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Íslenska útrásin (bls. 160-161)

• Ójöfn tekjudreifing á Íslandi. Gera má ráð fyrir að ofurlaun þröngs hóps, sem starfaði til dæmis í bönkum og lyfjafyrirtækjum, hafi haft mikil áhrif á hversu ójöfn tekjudreifingin var orðin hér á landi.

Gini-stuðull: Einn algengasti mælikvarði tölfræðinnar á tekjudreifingu. Gini-stuðull er tala sem er á milli 0 og 1. Þegar stuðullinn er 0 eru allir með jöfn laun. Þegar stuðullinn er 1 er einn einstaklingur með allar tekjurnar.

Page 66: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Af hverju? (bls. 161)

• Af hverju varð Ísland fyrsta ríkið í heiminum til að verða kreppunni að bráð?

• Hvað gerir Ísland ólíkt öðrum ríkjum? Ýmsar skýringar hafa verið settar fram um af hverju Ísland varð kreppu að bráð. Fyrir utan heimskreppu hafa þessi atriði verið nefnd:

Page 67: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Af hverju? (bls. 161)

Aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Kvótakerfið. Sala ríkisbanka 1998-2003. Eignatengsl bankanna í atvinnufyrirtækjum. Slakt fjármálaeftirlit. Stóriðjuframkvæmdir 2003. Erlent lánsfé. Jöklabréf/krónubréf. Breyttur lífsstíll.

Page 68: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimskreppa og undir-málslán (bls. 161)

• Heimskreppan 2008 er kennd við lausafjár-kreppu vegna þess að bankar í Evrópu og Bandaríkjunum lentu í erfiðleikum með að útvega sér lausafé. Meginástæðuna má rekja til undirmálslána í Bandaríkjunum.

Page 69: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimskreppa og undir-málslán (bls. 161)

• Undirmálslán þýðir að bankarnir lánuðu fólki peninga til húsnæðiskaupa án þess að kanna hvort það gæti greitt af lánunum.• Þegar fólk hættir að borga af lánum leiðir það til lausafjárkreppu, tapreksturs, greiðslustöðvunar og gjaldþrota hjá stórum bönkum.

Page 70: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Heimskreppa og undir-málslán (bls. 161)

• Gjaldþrot þýðir að banki, fyrirtæki eða einstaklingur sér ekki fram á að geta borgað skuldir sínar. Lánardrottnar geta þá farið fram á að dómari taki yfir fyrirtækið og að eigur þess verði seldar upp í skuldir.

Page 71: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kvótakerfið 1984 (bls. 161)

• Kvótakerfið var upphaflega sett til að vernda fiskistofnana umhverfis landið. En á kvótakerfið sök á kreppunni hér á landi? Mörgum finnst kvótakerfið óréttlátt. Þeir telja að þegar farið var að líta á kvótaúthlutun sem eign, sem hægt var að selja eða leigja, hafi myndast hér stétt auðmanna sem hafi fengið afhentan gjafakvóta til frjálsrar ráðstöfunar og hafi hann að öllu óbreyttu ennþá.

Page 72: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kvótakerfið 1984 (bls. 162)

• Kvótakerfi: Fiskveiðikerfi. Því er ætlað að stýra því hve mikið magn er veitt með því að tiltaka hve mikið magn er veitt. Margir telja að án kvótakerfisins hefði verið búið að eyðileggja auðlindina. Kvótaþak á að koma í veg fyrir að örfáir einstaklingar eignist allar fiskveiðiheimildirnar.

Page 73: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Innganga Íslands í EES(bls. 162)

• Ísland gekk í Evrópska efnahagssvæðið árið 1995 en við inngönguna fékk landið aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og tók upp evrópskar reglugerðir.

Page 74: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Innganga Íslands í EES(bls. 162)

• Við inngönguna fylgdi svokallað fjórfrelsi: Frjálst framboð af vöru. Frjálst framboð af þjónustu. Frjálst framboð af peningum. Frjálst framboð vinnuafls.

• Efnahagskreppan tengist einkum lið 3, sem er frjálst framboð peninga innan EES.

Page 75: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Innganga Íslands í EES(bls. 162)

• Samkvæmt EES mega Íslendingar kaupa og selja eignir erlendis og það sama gildir um útlendinga, þeir mega kaupa og selja eignir hér á landi. Tvær undantekningar eru á reglunni, útlendingar mega ekki eiga íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og bygging orkuvera og nýting orkuauðlinda á að vera í höndum íslenska ríkisins.

Page 76: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Sala ríkisbankanna (bls. 162)

• Allt til loka 20. aldar samanstóð bankakerfið af frekar stórum bönkum í eigu ríkisins, ásamt nokkrum smærri einkareknum bönkum.• Hagkerfið býður skipbrot – skýrsla um aðstæður hér á landi árið 2008 eftir prófessorana Jón Daníelsson og Gylfa Zoëga.

Page 77: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Sala ríkisbankanna (bls. 163)

• Hagkerfið býður skipbrot: Bankakerfið einkenndist af miklum afskiptum stjórnmálaaflanna. Ákvarðanir um lán voru því oft teknar út frá pólitískum tengslum og samböndum. Stóru ríkisbankarnir tilheyrðu hver fyrir sig sérstökum stjórnmálaflokki.

Page 78: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Sala ríkisbankanna (bls. 163)

• Hagkerfið býður skipbrot: Undir lok 20. aldar hófst einkavæðing ríkisbank-anna. Með einkavæðingu er átt við að bankar, sem voru í eigu ríkisins, voru seldir í hendur einkaaðila. Skiptar skoðanir voru um ágæti einkavæðingarinnar.

Page 79: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Sala ríkisbankanna (bls. 163)

• Rök gegn einkavæðingu bankanna voru að þeir hafi lent í höndum of fárra einstaklinga. Ef sett hefðu verið lög um dreifða eignaraðild hefði getað farið betur.

• Dreift eignarhald: Ríkiseign seld með þeim skilyrðum að eignarhaldi sé dreift á marga aðila. Þannig er komið í veg fyrir að einn eða örfáir aðilar eigi meirihluta í fyrirtækinu.

Page 80: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Sala ríkisbankanna (bls. 163)

• Hagkerfið býður skipbrot: Voru bankarnir seldir einstaklingum sem höfðu of litla reynslu til að stjórna nútíma bankastarfsemi? Bankarnir tóku há erlend lán á lágum vöxtum, sem þeir ætluðu svo að endurlána með háum vöxtum hér heima. Markmiðið var að græða sem mest.

Page 81: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Sala ríkisbankanna (bls. 163)

• Hagkerfið býður skipbrot: Afleiðingar bankahrunsins leiddu til milliríkja-deilna Íslands við Bretland og Holland um hvernig ætti að gera upp innistæður sem einstaklingar, félög og stofnanir áttu á þarlendum bankareikningum.

Page 82: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Sala ríkisbankanna (bls. 163)

• Hagkerfið býður skipbrot: Breska ríkisstjórnin gekk svo langt að beita lögum um hryðjuverkavarnir gegn Landsbankanum, Seðlabanka Íslands og ríkisstjórn Íslands. Vegna ofangreindra aðgerða var til að mynda Landsbankinn settur á lista yfir ofríkisstjórnir sem sæta efnahagslegum þvingunum.

Page 83: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Við erum ekki hryðju-verkamenn (bls. 163)

• Beiting hryðjuverkalaganna, sem Bretar beittu okkur Íslendinga, átti stóran þátt í að íslenska efnahagskerfið hrundi.• Indefence eru samtök stofnuð til að mótmæla beitingu hryðjuverkalaga á Íslandi.

Page 84: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Icesave-reikningar (bls. 164)

• Um 400.000 einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir áttu innistæður á svokölluðum Icesave-reikningum hjá Landsbankanum í Bretlandi og Hollandi. Við hrun Landsbankans lokuðust þessir reikningar.

• Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að ábyrgjast greiðslur á hluta af Icesave-reikningunum en Hollendingar og Bretar lána fyrir skuldunum. Óvíst er hversu há upphæð kemur til með að falla á ríkissjóð.

Page 85: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Icesave-reikningar (bls. 165)

• Margir eru þeirrar skoðunar að Íslendingar ættu ekki að ábyrgjast greiðslur vegna Icesave.

• Aðrir telja að ef ekki verði samið við Breta og Hollendinga um Icesave muni Ísland að öllum líkindum einangrast frá alþjóðasamfélaginu.

• Slík einangrun þýðir að fáir, ef nokkrir, vilja eiga viðskipti við Íslendinga.

Page 86: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Stóriðjuframkvæmdir(bls. 165)

• Kárahnjúkavirkjun, sem er vatnsaflsvirkjun norðan Vatnajökuls, hefur verið nefnd stærsta framkvæmd Íslandssögunnar. Virkjunin var og er umdeild.

• Margir töldu að virkjunin gæti aldrei orðið þjóðhagslega hagkvæm.

• Virkjunin og bygging álvers á Reyðarfirði hafði jákvæðar breytingar í för með sér á Austfjörðum.

Page 87: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Stóriðjuframkvæmdir(bls. 165)

• Framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun hófust af fullum krafti 2003 og sköpuðu mikla þenslu í hagkerfinu.

• Þensla þýðir að hagkerfi bólgni út og að mikil eftirspurn sé eftir vinnukrafti, vörum og þjónustu. Ef eftirspurn verður meiri en framboð leiðir það til verðhækkunar á öllum þessum þáttum. Og það var einmitt það sem gerðist hér á landi.

Page 88: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Erlent lánsfé… (bls. 165)

• Íslensku bankarnir tóku mikið fé að láni erlendis, til dæmis í tengslum við jöklabréf sem þeir endurlánuðu hér, annaðhvort í íslenskri eða erlendri mynt.

• Með auknu aðgengi að fjármagni skuldsettu fyrirtæki og einstaklingar sig hröðum skrefum.

• Segja má að íslenska þjóðin hafi farið á fjárfest-ingarfyllerí og að kreppan sé timburmennirnir.

Page 89: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Erlent lánsfé… (bls. 166)

• Að vísu tóku ekki allir þátt í þessu lífsgæðakapp-hlaupi. Margir telja að kreppan bitni mun harðar á höfuðborgarsvæðinu, að góðærið hafi síður náð út á landsbyggðina.

• Afleiðing aukinnar einkaneyslu var að allt hækkaði í verði, þar með talið húsnæðisverð. Nú er svo komið að tekjur margra duga vart fyrir útgjöldum og skuldirnar bara hækka.

Page 90: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Jöklabréf (bls. 166)

• Jöklabréf/krónubréf eru flókið fyrirbæri, en nafnið er notað yfir skuldabréf sem erlendir aðilar hafa gefið út í íslenskum krónum.

• Skuldabréf táknar viðurkenningu á að peninga-upphæð hafi verið tekin að láni. Lántakinn lofar að borga skuldina aftur á tilteknum degi og jafnframt vexti af henni.

Page 91: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Jöklabréf (bls. 166)

• Vextir af jöklabréfum eru mjög háir. Þegar krónan tók að falla fóru endurgreiðslur af jöklabréfum að skapa vandamál hér á landi.• Við gengisfellinguna urðu afborganir af bréfunum mun hærri en fyrir fall krónunnar.

Page 92: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Búsáhaldabylting(bls. 166-167)

• Við upphaf kreppunnar árið 2008 fóru þúsundir manna að mótmæla efnahagshruninu til að knýja þá sem áttu þátt í því til að axla ábyrgð.

• Opnir borgarafundir haldnir, meðal annars í Háskólabíói.

• Raddir fólksins – fundir á Austurvelli á hverjum laugardegi og stundum oftar.

Page 93: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Búsáhaldabylting (bls. 167)

• Í janúar 2009 tóku þúsundir manna að mæta á fundi á Austurvelli og láta í sér heyra meðal annars með að berja potta og pönnur.• Búsáhaldabyltingin var hafin en mótmælin leiddu til þess að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar féll þennan afdrifaríka janúarmánuð.

Page 94: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Rof milli þings og þjóðar(bls. 168)

• Helgi Gunnlaugsson félagsfræðingur segir mótmælin mikil tíðindi enda nánast engin hefð fyrir mótmælum af þessu tagi hér á landi.

• Mótmæli og átök vegna inngöngu Íslands í Nató árið 1949 voru öðruvísi því þau stóðu aðeins yfir í einn dag.

• Fyrsti vísirinn að fjöldamótmælum í marga daga var líklega mótmælin gegn Kárahnjúkavirkjun.

Page 95: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Rof milli þings og þjóðar(bls. 168)

• Stór hluti þjóðarinnar sættir sig ekki við að enginn axli pólitíska ábyrgð vegna bankahrunsins.

• Hið pólitíska uppgjör hefur ekki enn farið fram og margir geta hvorki beðið eftir eins konar hvítbók né eru tilbúnir til að hlusta á þau rök að ekki megi persónugera vandann og að ástandið sé einfaldlega afleiðing heimskreppu.

Page 96: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Berast með straumnum(bls. 168)

• Hvítbók; skýrsla ríkisstjórnarinnar þar sem hún útskýrir afstöðu sína til einhvers tiltekins máls.

• Í langvinnum mótmælum magnast smám saman upp spenna. Ofbeldið sem fylgdi mótmælunum er talið vera afleiðing þess að mönnum finnst að ekki sé verið að hlusta á þá. Til lengri tíma sé hætta á að ástandið leiði til minni virðingar fyrir stofnunum samfélagsins, lögum og rétti.

Page 97: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Búsáhaldabyltingin (bls. 168)

• Skiptar skoðanir eru um út á hvað búsáhaldabyltingin gekk í raun og veru. • Mögulegar skýringar: Að koma stjórnvöldum frá. Ósk um nýja stjórnarskrá þar sem skorið yrði á milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds.

Page 98: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Búsáhaldabyltingin (bls. 168)

• Mögulegar skýringar: Að þeir sem tóku þátt í búsáhaldabyltingunni hafi verið reiðir einstaklingar sem vildu mótmæla efnahagsþrengingum og skerðingu lífsgæða sem fylgja kreppum.

Page 99: 4.1  Hvað er að vera Íslendingur

Kafla 4.1 er lokið

• Hér lýkur glósum úr kafla 4.1• Nú áttu bara eftir að svara spurningunum á bls. 170.