10
Fimmtudagur 19. mars 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 11. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is Sólmyrkvi verður sjáanlegur frá Íslandi, að morgni þann 20. mars 2015. Á þeim tíma á sér stað almyrkvi í hafinu austan Íslands, og sem verður sjáanlegur m.a. frá Færeyjum og Svalbarða. Eins og heitið gefur til kynna hylur tunglið sólina alla í almyrkva. Skugginn er hins vegar afmarkaður og utan hans sjá athugendur svonefndan deildarmyrkva. Þá hylst sólin ekki öll að baki tunglinu. Litlu munar þó og frá Hornafirði séð mun 99,4% sólar verða hulinn þegar myrkvinn nær hámarki. Greinargóðar skýringar á þessum atburði og sólmyrkvum almennt finnast í Almanaki Háskóla Íslands og vefsíðu þess, http://almanak.hi.is/myrk2015. html, og Stjörnufræðivefnum, http://www. stjornufraedi.is. Atburðarásin er sú, séð frá Höfn í Hornafirði, að kl. 8:39 fer tunglið að ganga inn á skífu sólar hægra megin. Myrkvinn er mestur um klukkustund síðar, kl. 09:40 og síðan lýkur myrkvanum um kl. 10:43. Við hvetjum fólk til að fylgjast með. Búast má við nokkru rökkri um tíma, jafnvel þó myrkvinn sjáist ekki vegna skýja. Fólk er þó varað við að horfa beint á sólina án sérstakra gleraugna, vegna mikillar hættu á alvarlegum augnskaða. Í tilefni þessa atburðar ákvað Náttúrustofa Suðausturlands í samstarfi við Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnaness að gefa nemendum og öllu starfsfólki í Grunnskóla Hornafjarðar og Kirkjubæjarskóla svokölluð sólmyrkvagleraugu. Rafsuðugler er einnig nýtilegt eða filma en vissa þarf að vera fyrir að það hleypi ekki hættulegum geislum í gegn. Fyrir utan gleraugun sem allir í grunnskólunum fá er Náttúrustofa Suðausturlands með 50 gleraugu til sölu á 500 kr. stykkið. Áhugasamir geta komið og keypt gleraugu á Náttúrustofu Suðausturlands í Nýheimum 18. og 19. mars. Fyrstur kemur fyrstu fær. Svo vonum við öll að það verði léttskýjað þegar sólmyrkvinn á sér stað. Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin 11. mars sl. í Hafnarkirkju. Þetta er fimmtánda árið sem Stóra upplestrarkeppnin er haldin hér en keppnin hefst á degi íslenskra tungu, 16. nóvember ár hvert. Kynnir á hátíðinni var Fanný Dröfn Emilsdóttir, sigurvegari árið 2014. Keppendur í ár voru þrettán talsins og komu frá Grunnskóla Djúpavogs, Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólanum Hofgarði. Dómarar höfðu það vandasama verk að velja þrjá nemendur í fyrstu þrjú sætin en þeir voru Baldur Sigurðsson, formaður dómnefndar, Agnes Þorsteinsdóttir, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, María Gísladóttir og Zophonías Torfason. Kunnum við þeim bestu þakkir. Á meðan þeir réðu ráðum sínum fluttu nemendur úr 6. bekk Grunnskóla Hornafjarðar söngatriði og Oddleifur Eiríksson frá Tónskóla Austur- Skaftafellssýslu lék tvö lög á harmonikku. Að lokum voru úrslit tilkynnt en sigurvegarar þetta árið voru Ingunn Ósk Grétarsdóttir úr Grunnskóla Hornafjarðar í fyrsta sæti, Styrmir Einarsson úr Grunnskólanum í Hofgarði í öðru sæti og Alexandra Jónsdóttir úr Grunnskóla Djúpavogs í þriðja sæti. Keppendur stóðu sig öll með prýði og við óskum sigurvegurum hjartanlega til hamingju með sigurinn. Sólmyrkvinn 20. mars 2015 Myndin er samsett til að sýna atburðarás sólmyrkva sem sást m.a. frá Tyrklandi 29. mars 2006. Tunglið fór að hylja sólina hægra megin frá svo horfa ætti á myndina frá hægri til vinstri. Meðan tunglið hylur einungis hluta af sólinni er myrkvinn svonefndur deildarmyrkvi. Í almyrkvanum sjálfum birtist sólkórónan og ýmis önnur fyrirbrigði. Séð frá Höfn í Hornafirði hylst 99,4% sólar svo það munar einungis hársbreidd að um almyrkva sé að ræða. Ljósmyndir Snævarr Guðmundsson. Almyrkvi 29. mars 2006. Sólkórónan og sólstrókar frá yfirborði sólar sjáanlegir. Ljósmynd Snævarr Guðmundsson. Stóra upplestrarkeppnin

Eystrahorn 11. tbl. 2015

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: Eystrahorn 11. tbl. 2015

Fimmtudagur 19. mars 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn11. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is

Sólmyrkvi verður sjáanlegur frá Íslandi, að morgni þann 20. mars 2015. Á þeim tíma á sér stað almyrkvi í hafinu austan Íslands, og sem verður sjáanlegur m.a. frá Færeyjum og Svalbarða. Eins og heitið gefur til kynna hylur tunglið sólina alla í almyrkva. Skugginn er hins vegar afmarkaður og utan hans sjá athugendur svonefndan deildarmyrkva. Þá hylst sólin ekki öll að baki tunglinu. Litlu munar þó og frá Hornafirði séð mun 99,4% sólar verða hulinn þegar myrkvinn nær hámarki. Greinargóðar skýringar á þessum atburði og sólmyrkvum almennt finnast í Almanaki Háskóla Íslands og vefsíðu þess, http://almanak.hi.is/myrk2015.html, og Stjörnufræðivefnum, http://www.stjornufraedi.is. Atburðarásin er sú, séð frá Höfn í Hornafirði, að kl. 8:39 fer tunglið að ganga inn á skífu sólar hægra megin. Myrkvinn er mestur um klukkustund síðar,

kl. 09:40 og síðan lýkur myrkvanum um kl. 10:43. Við hvetjum fólk til að fylgjast með. Búast má við nokkru rökkri um tíma, jafnvel þó myrkvinn sjáist ekki vegna skýja. Fólk er þó

varað við að horfa beint á sólina án sérstakra gleraugna, vegna mikillar hættu á alvarlegum augnskaða. Í tilefni þessa atburðar ákvað Náttúrustofa Suðausturlands í samstarfi við Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnaness að gefa nemendum og öllu starfsfólki í Grunnskóla Hornafjarðar og Kirkjubæjarskóla svokölluð sólmyrkvagleraugu. Rafsuðugler er einnig nýtilegt eða filma en vissa þarf að vera fyrir að það hleypi ekki hættulegum geislum í gegn. Fyrir utan gleraugun sem allir í grunnskólunum fá er Náttúrustofa Suðausturlands með 50 gleraugu til sölu á 500 kr. stykkið. Áhugasamir geta komið og keypt gleraugu á Náttúrustofu Suðausturlands í Nýheimum 18. og 19. mars. Fyrstur kemur fyrstu fær. Svo vonum við öll að það verði léttskýjað þegar sólmyrkvinn á sér stað.

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin 11. mars sl. í Hafnarkirkju. Þetta er fimmtánda árið sem Stóra upplestrarkeppnin er haldin hér en keppnin hefst á degi íslenskra tungu, 16. nóvember ár hvert. Kynnir á hátíðinni var Fanný Dröfn Emilsdóttir, sigurvegari árið 2014. Keppendur í ár voru þrettán talsins og komu frá Grunnskóla Djúpavogs, Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólanum Hofgarði. Dómarar höfðu það vandasama verk að velja þrjá nemendur í fyrstu þrjú sætin en þeir voru Baldur Sigurðsson, formaður dómnefndar, Agnes Þorsteinsdóttir, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, María Gísladóttir og Zophonías Torfason. Kunnum við þeim bestu þakkir. Á meðan þeir réðu ráðum sínum fluttu nemendur úr 6. bekk Grunnskóla Hornafjarðar söngatriði og Oddleifur Eiríksson frá Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu lék tvö lög á harmonikku. Að lokum voru úrslit tilkynnt en sigurvegarar þetta árið voru Ingunn Ósk Grétarsdóttir úr Grunnskóla Hornafjarðar í fyrsta sæti, Styrmir Einarsson úr Grunnskólanum í Hofgarði í öðru sæti og Alexandra Jónsdóttir úr Grunnskóla Djúpavogs í þriðja sæti. Keppendur stóðu sig öll með prýði og við óskum sigurvegurum hjartanlega til hamingju með sigurinn.

Sólmyrkvinn 20. mars 2015

Myndin er samsett til að sýna atburðarás sólmyrkva sem sást m.a. frá Tyrklandi 29. mars 2006. Tunglið fór að hylja sólina hægra megin frá svo horfa ætti á myndina frá hægri til vinstri. Meðan tunglið hylur einungis hluta af sólinni er myrkvinn svonefndur deildarmyrkvi. Í almyrkvanum sjálfum birtist sólkórónan og ýmis önnur fyrirbrigði. Séð frá Höfn í Hornafirði hylst 99,4% sólar svo það munar einungis hársbreidd að um almyrkva sé að ræða. Ljósmyndir Snævarr Guðmundsson.

Almyrkvi 29. mars 2006. Sólkórónan og sólstrókar frá yfirborði sólar sjáanlegir. Ljósmynd Snævarr Guðmundsson.

Stóra upplestrarkeppnin

Page 2: Eystrahorn 11. tbl. 2015

2 EystrahornFimmtudagur 19. mars 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

StyrktarreikningurElsku besti vinur okkar hann Hugi Einarsson er fallinn frá aðeins fimmtugur að aldri.

Við vinir þeirra Huga og Sigrúnar vitum að komandi tímar og ár

verða erfið fyrir Sigrúnu okkar og börnin þeirra.

Því höfum við stofnað styrktarreikning fyrir þau.

Ef þið sjáið ykkur fært að sýna stuðning þá er reikningurinn í Sparisjóðnum á Höfn:

1147-15-202411. kt. 241177-4409Margt smátt gerir eitt stórt

Hjartans þakkir og kveðjur, Vinirnir

Karlakvöld í tilefni af MottumarsKarlakvöld verður á Hótel Höfn þriðjudaginn 24.mars kl 20:00

• ÁgústÓskarGústafssonlæknirflyturhressilegterindiumkarlaheilsuogkrabbamein

• AuðunnHelgasonferyfiráhersluríþjálfunmeistaraflokkskarlaíknattspyrnuhjáSindra

• VibratoBluesBandhelduruppistuðinu• Léttarveitingarverðaáborðum

Allir karlmenn, karlaklúbbar og karlasamtök hjartanlega velkomin

Krabbameinsfélag Suðausturlands og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands

HafnarkirkjaKyrrðarstund á föstu

kl. 18:15 alla miðvikudaga fram að páskum.

PrestarnirVerið góðviljuð hvert við annað, miskunnsöm, fús til að fyrirgefa hvert öðru eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið ykkur.

Efesusbréfið 4:32

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

Útför míns ástkæra sambýlismanns, föður okkar, tengdaföður, sonar,

bróður, mágs og afa,

Huga Einarssonarsem lést 4. mars síðastliðinn

fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 21. mars kl 14:00.Athygli er vakin á að hægt er að fylgjast með útförinni

af skjá á Hótel Höfn.

Sigrún Kapitola GuðrúnardóttirUnnar Freyr HugasonVigdís Dröfn HugadóttirKristján Darri HugasonÖrvar Hugason Elín Dögg HaraldsdóttirUnnur Kristjánsdóttirsystkini, tengdafólk og barnabörn

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

FEH í Ekrunni í kvöld Félagsvistin HEldur áFram

Annað kvöldið er spilað fimmtudagskvöldið 19. mars kl. 20:00.

Aðgangseyrir 700 kr.Á fyrsta kvöldinu var spilað á 9 borðum

og mikið fjör !Allir alltaf velkomnir á vistina.

Spila- og dansnefndin

Samúðarkort Hafnarkirkjueru til afgreiðslu hjá:Ástu Sveinbjörnsdóttur í sími 478-1479 / 847-8918 Guðrúnu Þorsteinsdóttur í sími 478-1646 / 864-4246

Sóknarnefnd Hafnarsóknar

Í KVÖLD

Page 3: Eystrahorn 11. tbl. 2015

3Eystrahorn Fimmtudagur 19. mars 2015

Eins og fram hefur komið hefur slitnað upp úr viðræðum S t a r f s g r e i n a s a m b a n d s i n s við Samtök Atvinnulífsins. Verkamannadeild AFLs er með umboð sitt fyrir almenna markaðinn að mestu leyti hjá Starfsgreinasambandinu. Þetta þýðir því að slitnað hefur upp úr viðræðum AFLs fyrir verkafólk á almenna markaðnum en kjarasamningarnir runnu út í febrúarlok. Eins og kunnugt er var leitað til félagsmanna í janúar um mótun launakrafna fyrir yfirstandandi viðræður, niðurstaða þeirrar vinnu var í samræmi við niðurstöður annarra verkalýðsfélaga innan Starfsgreinasambandsins. Sambandið fór fram með það megin markmið að lægsti taxti yrði kominn upp í 300.000 krónur innan þriggja ára. Auk þess, lagfæringar á launatöflu og að útflutningsgreinar s.s fiskvinnsla og ferðaþjónusta, hækki laun sinna starfsmanna sérstaklega. Áður höfðu verið lagðar fram sérkröfur um breytingar á köflum í kjarasamningi. Lítils háttar viðræður hafa farið fram um sérmálin en lítið þokast áfram. Engin efnisleg umræða hefur farið fram um launakröfuna, heldur hefur henni verið alfarið hafnað. Alið hefur verið á hræðsluáróðri af hálfu vinnuveitenda um verðbólgu og að allt fari hér á hliðina ef samið verði á þeim nótum sem krafan byggir á. Okkur stendur til boða 3%, jafnvel 3,5% launahækkun. Það er fjarri þeim markmiðum sem við lögðum upp með. 300.000 þúsund krónur lámarkslaun er sanngjörn og réttlát krafa. Jafnvel þykir mörgum það lág laun, sér í lagi þar sem er verið að gera kröfu um að hún verði ekki komin að fullu til framkvæmda fyrr en eftir rúma 30 mánuði. En viðbrögðin við þessari sanngjörnu og réttlátu kröfu urðu til þess að samninganefndin samþykkti einróma að slíta viðræðum og leita til félagsmanna til að fylgja eftir sanngjörnum kröfum.

Hvað þýðir það að fylgja eftir kröfumNæstu skref eru í höndum félagmanna. Atkvæðagreiðsla mun fara fram um boðun verkfalla. Það eru áratugir síðan verkafólk í félaginu hefur farið í verkföll og heil kynslóð sem þekkir þau eingöngu af afspurn. Því er nauðsynlegt að fram fari umræður sem víðast, á vinnustöðum, heimilum og annars staðar þar sem verkafólk kemur saman um mikilvægi samstöðunnar. Atkvæðagreiðslan fer fram dagana 23.-30. mars og verður rafræn og er góð þátttaka í henni afar brýn. Mikilvægt er að þeir sem eru tilbúnir að fylgja kröfunum eftir greiði atkvæði og samþykki verkfall. Verði verkfalli hafnað, þá er það 3,5% launahækkunin sem er í boði.

Samstaðan er sterkasta vopnið – nú er rétti tíminn til að beita því!

Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs Starfsgreinafélags.

Skýringar:Viðræður eru í gangi fyrir verslunarmenn og iðnaðarmenn í félaginu. Eins fyrir starfsmenn Alcoa. Samningar við ríkið og sveitarfélögin renna út í lok apríl. Ekki er verið að fara í atkvæðagreiðslu hjá þessum hópum núna, né hjá sjómönnum þótt samningar þar hafi verið lausir í mörg ár.

Aðalfundur Kvenfélagsins Tíbráverður haldinn föstudaginn 27. mars

klukkan 20:00 í EkrunniDagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf

Nýjar félagskonur velkomnar.Stjórn Kvenfélagsins Tíbrá

Samstaða launafólks er sterkasta vopnið

Viðskiptavinir athugið.Lokum 20. mars

ENN MEIRI AFSLÁTTUR

Kíkið við og gerið góð kaup

Verið velkomin

Aðalfundur FrjálsíþróttadeildarAðalfundur Frjálsíþróttadeildar Sindra verður haldinn í Sindrahúsinu 24. mars kl. 19:30

Venjuleg aðalfundarstörf.

Allir velkomnir

Stjórnin

Aðalfundur KnattspyrnudeildarAðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra verður haldinn í Nýheimum 25. mars kl. 19:30

Venjuleg aðalfundarstörf.

Allir velkomnir

Stjórnin

Aðalfundur aðalstjórnarAðalfundur aðalstjórnar Sindra verður haldinn í Nýheimum 25. mars kl. 20:30 (strax á eftir knattspyrnudeild)

Venjuleg aðalfundarstörf.

Allir velkomnir

Stjórnin

Page 4: Eystrahorn 11. tbl. 2015

4 EystrahornFimmtudagur 19. mars 2015

Pálmasunnudagur 29. mars – Hafnarkirkja kl. 11:00• Benjamín Glói Brynjúlfsson• Hafsteinn Elvar Aðalsteinsson• Sara Kristín Kristjánsdóttir

Laugardagur fyrir páska 4. apríl – Hafnarkirkja kl. 11:00• Auðunn Ingason• Dagur Freyr Sævarsson• Hafdís Rut Vilhjálmsdóttir• Hafdís Ýr Sævarsdóttir• Ingibjörg María Jónsdóttir• Kári Svan Gautason• Malín Ingadóttir• Margrét Líf Margeirsdóttir• Nanna Guðný Karlsdóttir• Ragnar Ágúst Sumarliðason• Sigursteinn Örn Jónsson• Sebastian Gabríel Jónsson

Laugardagur f. páska 4. apríl – Hoffellskirkja kl. 14:00• Laufey Ösp Erlingsdóttir

Páskadagur 5. apríl – Bjarnaneskirkja kl. 13:00• Oddleifur Eiríksson• Kolbeinn Benedikt Guðjónsson

Annar í páskum 6. apríl – Stafafellskirkja kl. 13:00• Stefanía Björg Olsen

Hvítasunnudagur 24. maí – Hafnarkirkja kl. 11:00• Edda Björg Eiríksdóttir• Ívar Kristinsson• Jóhann Ragnar Guðmundsson• Kristján Bjarki Héðinsson• Kristofer Hernandez• Ragnheiður Inga Björnsdóttir

Sjómannadagur 7. júní – Bjarnaneskirkja kl. 11:00• Ástrós Aníta Óskarsdóttir

Fermingar 2015

verður með sölu og kynningu á nýjum vörum í Sporthöllinni og Hárgreiðslustofu Súu föstudaginn 20. mars kl. 16:00 - 18:00

Einstakar vörur úr íslenskum hráefnum

Fullkomnar í fermingargjafirnar  Þetta hefur fólk sennilega ekki séð áður. Nokkur hreindýr hafa sótt mikið í eyjarnar í Firðinum. Á dögunum rakst Gunnar Ásgeirsson á þau og tók þessa mynd þar sem sundið endaði inn í höfninni.

Þannig fór um sjóferð þá

Page 5: Eystrahorn 11. tbl. 2015

5Eystrahorn Fimmtudagur 19. mars 2015

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2015. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.Umsóknum skal fylgja:• Greinagóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.• Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verkefnisins.• Gera skal grein fyrir helstu samstarfsaðilum.• Gera skal grein fyrir fjárhagsáætlun verkefnisins, framlagi

samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.aUmsóknarfrestur er til 12. apríl nk. og skal umsóknum skilað á rafrænu formi til formanns sjóðsstjórnar, Sigurlaugar Gissurardóttur, Brunnhóli á Mýrum, 781 Hornafirði, merktar Kvískerjasjóður, á netfangið: [email protected] verður um styrkveitingar fyrir lok apríl og verður öllum umsóknum svarað. Nánari upplýsingar veittar í síma: 478 1029 eða á netfangi: [email protected] Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana.

Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur mikil áhersla verið lögð á að auka lestraráhuga nemenda og bæta árangur þeirra í lestri og lesskilningi. Markmiðið er að gera nemendur skólans enn betur læsa og ýta þannig undir að annar námsárangur þeirra verði betri en hann hefur verið að mælast fram að þessu. Á næsta ári verður haldið áfram á sömu braut en þá mun stærðfræðin fá meira vægi. Við undirbúning þessarar vinnu var leitað til Reykjanesbæjar eftir samstarfi en þar hefur verið lyft grettistaki hvað varðar bættan námsárangur nemenda. Segja má að grunnurinn að þeim árangri sé samstarf og samábyrgð allra þeirra sem koma að uppeldi og menntun barnanna allt frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla. Mjög góð samstaða hefur náðst hjá heimilum nemenda og skólunum varðandi þessa vinnu. Í grunnskólanum er enn meiri áhersla lögð á kennslu og þjálfun í lestri en áður og aukið hefur verið við skimanir og mælingar sem gefa upplýsingar um það hvort um framfarir sé að ræða eða ekki. Út frá niðurstöðunum er síðan brugðist við með úrræðum sem mæta sem best þörfum hvers og eins nemanda til að ná góðum árangri. Lestrarnám er mjög flókið ferli sem á sér fyrst og fremst stað í yngri bekkjum skólans og á meðan á því stendur er æfingin mjög mikilvæg. Það sem kannski kemur mörgum á óvart er að æfingar þátturinn þarf að vera áfram til staðar eftir að grunnfærni í lestri er náð, annars dregur úr lestrargetunni. Í skólanum er eins og áður segir mikil áhersla lögð á lesturinn og í flestum tilfellum eru heimilin að bregðast mjög vel við óskum skólans um samstarf og sinna heimalestri barnanna mjög vel. Í skólanum hafa lestrarvinir einnig lagt okkur lið í þessari vinnu, en bæði eldri Hornfirðingar og aðrir sem tök hafa á hafa skráð sig í lestrarvinahóp skólans og mæta í skólann og hlýða á nemendur lesa. Skemmst er frá því að segja að í mælingunum sem fram fóru s.l. febrúar mældust almennt miklar framfarir í lesfimi og lesskilningi hjá nemendum skólans. Í mörgum árgöngum náðu allir nemendur að bæta sig og margir þeirra bættu sig verulega. Áherslur skólans á lestur, þátttaka lestrarvinanna og metnaður barna og foreldra við heimalesturinn er greinilega að skila árangri. TIL HAMINGJU ÖLL! Það er gott fyrir okkur sem samfélag að börnin okkar standi sig vel í því sem þau eru að fást við og er námið og námsárangur þeirra mikilvægasta verkefnið þeirra. Mikilvægt er fyrir nemendur, foreldra og skólafólk að halda áfram þessu góða starfi og skapa aðstæður og umgjörð sem ýtt geta undir lestur og lestraráhuga barna. Góð færni í lestri getur aukið möguleika nemenda á mörgum sviðum hvort sem er í námi eða öðru. Munum að velgengni í námi, starfi og leik snýst fyrst og fremst um þrautseigju og dugnað, ekki heppni eða meðfædda hæfileika.

Kútmagakvöld Lionsverður 11. apríl nk.

Nánar auglýst síðar.

Miklar framfarir í lestriLaus störf kennara í FASKennara vantar í stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, líffræði og vélstjórnargreinar næsta skólaár.Laun og kjör skv. gildandi kjarasamningi og stofnanasamningi frá 2013 sem er á vef skólans.Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk.Upplýsingar og umsóknir skulu berast á netfangið: [email protected] Upplýsingar einnig gefnar í síma 4708070.

F.h. Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu,

Zophonías Torfason skólameistari

Sundlaug Hornafjarðar auglýsirVegna árshátíðar starfsmanna

verður sundlauginni lokað kl.18:00 föstudaginn 20. mars.

Starfsfólk sundlaugar

Page 6: Eystrahorn 11. tbl. 2015

6 EystrahornFimmtudagur 19. mars 2015

Sunnudaginn 22. mars næstkomandi verður árleg bókmenntadagskrá í Þórbergssetri í tilefni af því að í marsmánuði er afmælisdagur Þórbergs Þórðarsonar . Hann var fæddur á Hala í Suðursveit 12. mars 1888. Gestir hátíðarinnar verða að þessu sinni Ófeigur Sigurðsson rithöfundur sem les úr bók sinni Öræfi og segir frá tilurð hennar. Bókin Öræfi hefur vakið mikla eftirtekt og hlaut hin íslensku bókmenntaverðlaun fyrir árið 2014. Í umsögn um hana kemur fram að,, Á köflum er þessi bók nokkurs konar sálumessa yfir Íslandi. Þetta er magnaður óður um öræfi landsins, öræfi mannssálarinnar og öræfi íslenskrar menningar. Hér skiptist á fjarstæðukennt grín og kraftmikil ádeila og allt vitnar um djúpa tilfinningu höfundar fyrir íslenskri náttúru og mannlífi gegnum aldirnar“.Systurnar Þórunn Erla Valdimarsdóttir og Lilja Valdimarsdóttir verða einnig gestir hátíðarinnar. Þórunn les úr sjálfsævisögu sem hún er að skrifa um þessar mundir og saman ætla þær að spila nokkur vel valin lög á píanó og horn en Lilja er hljóðfæraleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur sem nú er að ljúka við doktorsritgerð um verk Þórbergs Þórðarsonar flytur erindi sem hún kallar Rómantísk vitfirring og dýrð náttúrunnar. Nokkur orð um landslagslýsingar Þórbergs í Suðursveitarbókunum. Væntanlega kemur út ný bók um Þórberg Þórðarson fljótlega, höfundarverk Soffíu Auðar sem hún hefur verið að vinna að á undanförnum árum.Að lokinni dagskrá verða kaffiveitingar. Allir velkomnir

Dagskrá14:00 Öræfi; Ófeigur Sigurðsson les úr verðlaunabók sinni og skýrir frá tilurð hennar.14:40 Ritlist og hljómlist; Systurnar Þórunn Erla Valdimarsdóttir og Lilja Valdimarsdóttir flytja dagskrá, Þórunn les upp úr sjálfsævisögu sinni og saman spila þær á píanó og horn og þjóðkórinn í salnum tekur undir.15:20 Rómantísk vitfirring og dýrð náttúrunnar. Nokkur orð um landslagslýsingar Þórbergs í Suðursveitarbókunum; Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur16:00 Kaffiveitingar

Föstudaginn 13.mars s.l. voru menningarverðlaun Hornafjarðar og styrkir afhentir við hátíðlega athöfn í Nýheimum. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1995. Það er Menningarmálanefnd sem velur verðlaunahafa úr hópi tilnefndra og voru níu tilnefningar sem bárust að þessu sinni.Hlynur Pálmason hefur með framlagi sínu á sviði kvikmyndagerðar, sjón- og listsýninga auðgað menningarlífið í Hornafirði sem og annarsstaðar svo eftir er tekið með eindæmum og er framtíðin björt fyrir hann og okkur sem njóta.

Þeir aðilar sem hlutu menningarstyrki í ár voru:• Gleðigjafar• Karlakórinn Jökull• Kvennakór Hornafjarðar• Leikfélag Hornafjarðar• Lúðrasveit Hornafjarðar• Blús- og rokkklúbbur Hornafjarðar• Samkór Hornafjarðar• Hornfirska Skemmtifélagið• Stakir Jakar

Bæjarráð veitti eftirfarandi aðilum styrki árið 2015:

• Félag eldri borgara í Öræfum• Björgunarsveitin Kári• Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu• Ungmennafélagið Sindri - Fimleikadeild• Félag eldri Hornfirðinga• Fuglaathugunarstöð Suðausturlands• Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu

Fræðslu- og tómstundanefnd Hornafjarðar afhenti eftirfarandi aðilum styrki árið 2015:

• Hestamannafélagið Hornfirðingur• Ungmennfélagið Máni

Hlynur Pálmason hlaut menningarverðlaun

Bókmenntahátíð í Þórbergssetri

Ferðaskrifstofan Mundo býður upp á ferðir þar sem menntun, skemmtun, menning og þjálfun fara saman. Miðvikudaginn 25. mars verður Mundo með kynningu á sumarbúðum Mundo fyrir 14-18 ára unglinga, skiptinámi, ferðum um Jakobsveg, umhverfis Mont Blanc og til Íran. Mundo tekur einnig að sér að skipuleggja hvers kyns ferðir fyrir hópa. Eigandi Mundo, Margrét Jónsdóttir Njarðvík kemur til Hafnar að kynna ferðirnar. Soffía Auður Birgisdóttir og Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, sem báðar hafa farið í ferðir með Mundo munu einnig segja frá reynslu sinni. Þar sem Mundo blandar ávallt saman menntun og skemmtun verður sérstök kynning á ólvíuolíum sem Mundo flytur inn beint frá bónda í Extremadura héraði á Spáni.Allir velkomnir!

Kynning á öðruvísi ferðalögum

Í Nýheimum mánudaginn 23. mars, kl. 12:15 - 13:00Starfsmenn vantar

í sumarafleysingarEimskip á Höfn vantar tvo starfsmenn til sumarafleysinga.

• Meiraprófsbílstjóra frá 1. maí til 31. október

• Minnaprófsbílstjóra frá 15. maí til 31. ágúst.

Lyftararéttindi æskilegt en ekki nauðsyn.Upplýsingar gefur Heimir í síma 894-4107.

Page 7: Eystrahorn 11. tbl. 2015

7Eystrahorn Fimmtudagur 19. mars 2015

300ÞÚSUNDKRÓNA

LÁGMARKS LAUN

Jáwww.sgs.is

MIÐJA SKAPANDI GREINA Á HORNAFIRÐI

Haldið verður 10 tíma námskeið í málun helgina 18. og 19. apríl. Áhersla verður lögð á litablöndun, ljós og skugga. Kennari verður Sandra María Sigurðardóttir, myndlistarkona. Námskeiðs- gjald er 15.000. Þátttakendur koma með liti og efni fyrir sig. Skráning fer fram hjá Vilhjálmi í Vöruhúsinu. Loka skráningardagur er 31. mars. [email protected] / Sími: 8620648.

Nánari upplýsingar má finna á www.voruhushofn.is

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags A-Skaft.Fundurinn verður fimmtudaginn 19. mars kl. 20:00 í Sjálfstæðishúsinu.

• Venjuleg aðalfundarstörf.

• Nýir félagsmenn velkomnir.

Stjórnin

Almennur félagsfundurBoðað er til almenns félagsfundar í Framsóknarfélagi A.- Skaft. fimmtudaginn 19. mars kl. 20:00 í húsi félagsins við Álaugarveg.

Stjórnin

Í KVÖLD

Í KVÖLD

Page 8: Eystrahorn 11. tbl. 2015

8 EystrahornFimmtudagur 19. mars 2015

hluti af Bygma

Allt frá grunni Að góðu heimili síðAn 1956

Húsasmiðjan vill ráða starfsmann til sölu- og afgreiðslustarfa í verslun fyrirtækisins á Höfn í HornafirðiUm er að ræða framtíðarstarf og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst

Ábyrgðarsvið •Sala,afgreiðslaogþjónustaviðviðskiptavini•Önnurtilfallandistörf

Hæfniskröfur •Reynslaafafgreiðslustörfumkostur•Samskiptahæfni•Sjálfstæðogvönduðvinnubrögð

Viljum einnig ráða starfsmann til sumarafleysinga•Skilyrðiaðviðkomandiséorðinn17ára.

Húsasmiðjan leitarað öflUgUm liðsmanni

Umsóknir berist fyrir 29.mars n.k.til Kristjáns Björgvinssonar, rekstrarstjó[email protected] , sími 6603037öllum umsóknum verður svarað

metnaðurÞjónustulundsérþekkingÁreiðanleikiliðsheild

Húsasmiðjanleggurmetnaðsinníað

veitafyrstaflokksþjónustuoghafagott

aðgengiaðvörumsínumogstarfsfólki.

Þaðsemeinkennirstarfsmenn

Húsasmiðjunnarerueftirfarandigildi:

Bændur í Sveitarfélaginu Hornafirði, kærar þakkir fyrir að ganga vel um og hafa rúlluplastið hreint. Nú er fyrri söfnun landbúnaðarplasts lokið og búið að koma því í bagga og gera klárt til útflutnings og frekari endurvinnslu. Aðeins urðu tvær undantekningar á þessari góðu umgengni, einn bóndinn hefur fram að þessu brennt sitt plast, en eftir góð samskipti er hann farinn að safna sínu plasti saman. Og í hinu tilfellinu var mikið rusl í plastinu. Nú í fyrsta skipti var plastinu safnað saman samkvæmt fyrirfram ákveðnum dögum, það fyrirkomulag tókst vel og er komið til að vera. Í þessari söfnum komu 33 tonn af plasti í Gámaportið. Aðrir íbúar í okkar samfélagi, kærar þakkir fyrir að flokka betur. Okkur starfsmönnum í Áhaldahúsinu finnst mun betra ástand vera á flokkuninni og betri umgangur um flokkunartunnuna en var. Samt má gera mun betur, það er enn of mikið að almennu sorpi með. Það þarf ekki marga poka af almennu sorpi til að skemma mikið af endurvinnanlegu efni. Það er enn of mikið um það að endurvinnsluefni er sett í plastpokum í flokkunartunnu, þeim hefur þó fækkað til muna. Það á að setja efnið laust í endurvinnslutunnuna. Endurvinnanlega efnið eru verðmæti, en í okkar tilfelli hér í Hornafirði er betri nýting eða endingartími á urðunarstaðnum í Lóninu aðal ávinningurinn, að óbreyttu fer að þrengja þar að. Ef flokkunin er eitthvað að vefjast

fyrir fólki er sjálfsagt að hafa samband til að fá ráð, einnig eru leiðbeiningar á heimasíðu sveitarfélagsins. En umfram allt forðist að almenna sorpið fari í stóru tunnuna og setjið endurvinnsluefnið laust í hana. Ef einhver vafi er á hvar á setja efnið hafið þá samband og fáið upplýsingar. Setjið vafaefni frekar í litlu tunnuna, það er þá ekki að skemma út frá sér. Til gamans má setja hér fram nokkrar tölur þ.e. hvað kostar að senda óþarfa sorp til flokkunar á Reyðarfirði. Flutningur austur 8 kr. flokkun 12 kr. urðun 15 kr. = 35 pr. kg. Í janúar sendum við rúm 10.000 kg. af endurvinnanlegu sorpi til flokkunar. Það var um 20 % sem fóru í urðun af þessu magni, sem gera 2.000 kg. 70.000 á mánuði sem er 840.000 á ári. Þetta eru peningar sem við sem skattborgarar þurfum að greið vegna þess að flokkun er ekki nógu vel unnin. Það er samt

rétt að vekja athygli á að þetta er að lagast. Reynslan á landsvísu er að 5 % af efni sem sett er í flokkunartunnuna fer til urðunar. Ef því viðmiði er náð væri dæmið svona 500 kg. 210.000 mismunur uppá 630.000 á ári. Það má gera eitthvað skynsamlegra við 630.000 á ári en að greiða fyrir að urða endurvinnsluefni sem eru verðmæti. Á 10 árum er þessi tala 6,3 milljónir. Það vekur kannski undrun að flokkunarefnið skuli sent austur á land til flokkunar, ástæða þess er að Gámaþjónustan á Reyðarfirði er með sérútbúna aðstöðu til að flokka endurvinnsluefni en þeir flokka allt endurvinnsluefni á Austurlandi. Það kostar mikið að koma þeirri aðstöðu upp hér á Hornafirði en það er í nánari skoðun hvernig mögulegt er að hagræða sem mest í endurvinnslu og úrgangsmálum sveitarfélagsins. Kærar þakkir

Endurvinnsla

Page 9: Eystrahorn 11. tbl. 2015
Page 10: Eystrahorn 11. tbl. 2015

frábærtverð!kjúklingabringur

nettó

1.798áður 1.998 kr/kg

PáSkaegg 250góDÝrt nr 4

799 kr/Stk

lambabógurkS - froSið

790áður 1.026 kr/kg

-23%

Mar

khön

nun

ehf

Kræsingar & kostakjör

baYonneSkinka

959áður 1.598 kr/kg

-40%

íSblóm 4Stkm/jarðarb.+ Daim

399áður 469 kr/Pk

lambahrYggurléttreYktur - kjötSel

1.591áður 2.375 kr/kg

lambafille m/fitukjötborð

3.195áður 4.044 kr/kg

jarðarberfroSin - great taSte

399 kr/Pk

frábærtverð!

Tilboðin gilda 19. – 22. mars 2015Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Sunwarrior Prótein 1 kg

6 teg

6.499SiStema hriStibrúSi fYlgir 1kg. Sw PróteinPokum