13
Innleiðing spjaldtölva í grunnskóla Kópavogs

Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Innleiðing spjaldtölva í grunnskóla Kópavogs

Page 2: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Stefna í upplýsingatækni grunnskólanna

• Árið 2012 lauk vinnu við stefnumótun í upplýsingatækni grunnskólanna og framkvæmdaáætlun henni tengd. Vinnuhópurinn sem vann að stefnunni var skipaður fulltrúum skólastjórnenda, kennara, tölvuumsjónarmanna og fulltrúa skólanefndar.

Tilgangur stefnu

Í skóla án aðgreiningar skiptir fjölbreytni í kennsluaðferðum og vinnubrögðum miklu máli. Góður aðbúnaður í upplýsingatækni er veigamikill þáttur í að gera skólum kleift að koma til móts við kröfur nútímans. Mikilvægt er að nemendur öðlist heildstæða sýn og þjálfun í nútímatækni. Stuðlað skal að fjölbreyttum vinnubrögðum og nemendum veitt jöfn tækifæri til að afla sér þekkingar og upplýsinga og tækifæri til að miðla þeim á skapandi og gagnrýninn hátt. Til þess að svo geti orðið þurfa kennarar að hafa góða þekkingu á upplýsingatækni og aðgang að tækjabúnaði sem uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru á hverjum tíma.

Page 3: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Meðal þess sem stefnan fól í sér:

• Mörkuð var sú stefna að komið yrði upp þráðlausum nettengingum í grunnskólunum. Upplýsingatæknideild lauk framkvæmd haustið 2014. Fjármögnun verkefnisins byggði að hluta til á því að dregið var úr kostnaði við endurnýjun borðtölva.

• Skólar fengu aukið frjálsræði til að velja sér búnað og kostnaður við útstöðvar var leiðréttur til aukins fjárhagslegs svigrúms.

• Í tengslum við stefnuna var stutt við þróunarverkefni í nokkrum skólum. Eitt verkefnanna snéri að notkun spjaldtölva við kennslu í Salaskóla. Þar var keypt ca eitt bekkjarsett spjaldtölva í tengslum við verkefnið.

• Grunnskóladeild skipulagði fræðslufundi um nýjungar í skólastarfi á sviði upplýsingatækni og kynningar á þróunarverkefnum.

• Í apríl 2013 fóru skólastjórnendur og grunnskóladeild á ráðstefnu um vendikennslu hjá Keili. Nokkrir skólar hafa þróað sig áfram í vendikennslu í kjölfarið.

• Allir grunnskólar hafa keypt nokkrar spjaldtölvur, fyrst og fremst til notkunar í sérkennslu.

• Í janúar 2014 fóru fulltrúar menntasviðs og UT deildar á Bett sýninguna í London til að kynna sér strauma og stefnur í upplýsingatækni í skólastarfi.

Page 4: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Innleiðing spjaldtölva• Í málefnasamningi nýs meirihluta vorið 2014 var tekin ákvörðun um að keyptar yrðu

spjaldtölvur fyrir 5.-10. bekk grunnskóla. Innleiðing nánar útfærð í fjárhagsáætlun.• Haust 2014 fræðslufundur með fulltrúum Apple í Danmörku og starfsmönnum

menntasviðs og UT deildar á grundvelli mikillar reynslu Apple af innleiðingu spjaldtölva í skólastarfi í nágrannalöndum okkar.

• Jafnframt var 40 kennurum úr Kópavogi boðið á ráðstefnu á vegum Apple Danmörk í Hörpu þar sem lýst var hugmyndafræði, þróun kennsluhátta og reynslu kennara og skólastjórnenda erlendis af innleiðingu spjaldtölva í skólastarf.

• Haust 2014 haldnir fundir með fulltrúum Android, Microsoft og Chrome book um búnað og kennslulausnir.

• Haust 2014 skipaður stýrihópur skólastjórnenda, menntasviðs og UT deildar, sem hefur mótað næstu skref, drög að framkvæmdaáætlun, lýsingu á hlutverki verkefnastjóra, kennsluráðgjafa o.fl.

• Mikil áhersla hefur verið lögð á að skapa sameiginlega sýn meðal skólastjórnenda sem leiðtoga verkefnisins í sínum skólum:

– Fræðslufundur fyrir skólastjóra um notkun spjaldtölva hjá fyrirtækinu Skema– Heimsókn í Heiðarskóla í Hvalfirði í desember– Ferð til London á ráðstefnu og skólaheimsóknir með skólastjórum, stýrihóp,

fulltrúum menntasviðs og UT deildar og bæjarstjóra

 

Page 5: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515
Page 6: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Matsferli til ákvörðunar um val á búnaði:• Hópur tölvuumsjónarmanna úr grunnskólunum undir stjórn forstöðumanns UT deildar bjó til

matsformið og ´kríteríur´• Valið var í matsnefnd úr hópi kennara og nemenda í öllum skólum. Matsnefndirnar fengu

viðeigandi undirbúning við að nýta matsformið.• Fjórir fundir, 1,5 klst hver, voru haldnir með helstu birgjum þar sem þeim var gert að vinna úr

matsforminu og matsnefndin mat árangur búnaðarins í samræmi. Upptökur af þessum fundum eru aðgengilegar.

• Niðurstaða matsferlis var að iPad spjaldtölvur frá Apple yrðu valdar og útboð í samræmi.

 

Page 7: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Næstu skref

• Björn Gunnlaugsson ráðinn verkefnastjóri frá 1. apríl sl. Var starfandi aðstoðarskólastjóri Smáraskóla í vetur. Áður skólastjóri Dalvíkurskóla og deildarstjóri í Norðlingaskóla, innleiddi spjaldtölvur á báðum

stöðum.

• Gengið hefur verið frá ráðningu þriggja kennsluráðgjafa sem hefja fullt starf í verkefninu 1. ágúst.

• Verkefnið er gríðarlega umfangsmikið, grunngreining telur yfir 200 verkþætti sem skilgreina þarf ábyrgð á.

• Unnið er að skilgreiningu árangursviðmiða og mælikvarða.

- m.a. PISA, Skólapúlsinn, samræmd próf, einnig sérsniðnar kannanir á viðhorfum, ánægju, vinnubrögðum o.fl.

.

Page 8: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Tækjakaup

• 1815 tæki boðin út í maí• 550 tæki afhent kennurum 11. júní

Fræðsludagar 12. og 15. júní• 315 tæki í bekkjarsettum afhent í ágúst• 950 tæki afhent nemendum í 8.-9. bekk í

ágúst eða september

Page 9: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Úthlutunaráætlun

• Haust 2015: 8.-9. bekkur• Ársbyrjun 2016: 6.-7. bekkur• Haust 2016: 5.-6. bekkur

• Gert er ráð fyrir að bekkjarsettum nýtist á miðstigi og í 10. bekk fyrra skólaárið og yngsta stigi eftir það.

Page 10: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Tæknihliðin

• Þráðlaust net komið í alla skóla• Verður prófað og bætt í sumar• Streymibúnaður einnig settur upp• MDM-lausn valin á næstu dögum

Page 11: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Verkaskipting

• Verkefnastjóri, kerfisstjóri og kennsluráðgjafar mynda teymi

• Vinna náið með skólastjórnendum og tölvuumsjónarmönnum að innleiðingu

• Leiðtogateymi kennara í öllum skólum

• Samstarf við aðila utan Kópavogs í mótun: tæknilausnir, þjálfun, námsefnisgerð, árangursmat...

Page 12: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Hvers vegna spjaldtölvur??• Fjölbreyttir kennsluhættir í takt við aðalnámskrá

– Styður við markmið um skóla án aðgreiningar– Meiri möguleikar til að koma til móts við jafnt áhuga sem getu

nemenda, mæta nemendum þar sem þeir eru staddir.• Aukin áhersla á skapandi vinnu og verkefni• Nemendur taka aukna ábyrgð á eigin námi og verkefnum sínum• Uppbygging sjálfstrausts nemenda, m.a. vegna aukinnar áherslu á

kynningu á eigin vinnu og verkefnum• Aukinn aðgangur og þátttaka foreldra í námi barnanna• O.fl….

Skólastarf og kennsla þarf að vera í takt við nútímann og þann veruleika sem nemendur lifa í utan skóla.

„Bring on the learning revolution“Ken Robinson

Page 13: Innleiðing spjaldtölva kynning verkefnis v.grunnsfundar 200515

Takk fyrir