28
Hlíðaskóli Helga Snæbjörnsdóttir Kraftur og hreyfing 2. kafli

Kraftur og hreyfing

  • Upload
    kael

  • View
    117

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Kraftur og hreyfing. 2. kafli. 2-1 Kraftur. Kraftur verkar á hlut og veitir honum orku þannig að hann tekur að hreyfast, hættir að hreyfast eða breytir hraða sínum. Kraftur er mældur í njútonum (N). Njúton er þ.a.l. einingin fyrir kraft í SI kerfinu. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Kraftur og hreyfing

2. kafli

Page 2: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

2-1 Kraftur

Kraftur verkar á hlut og veitir honum orku þannig að hann tekur að hreyfast, hættir að hreyfast eða breytir hraða sínum.

Kraftur er mældur í njútonum (N). Njúton er þ.a.l. einingin fyrir kraft í SI kerfinu.

Eitt njúton er sá kraftur sem þarf til þess að gefa hlut með massann 1 kg. hröðunina 1 m/sek2

Page 3: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Dæmi: Mundu: Kraftur er massi hlutar

margfaldaður með hraðabreytingu á tíma

Hversu mikinn kraft þurfum við til að ýta af stað sleða sem er 10 kg. Við ætlum að breyta hraða hans úr 0 m/sek í 5 m/sek á einni sekúndu.

Við þurfum því að margfalda massann með hraða breytingunni, 10kg. x 5 m/sek = 50N

Page 4: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Prófaðu sjálf/ur

Prófaðu sjálf/ur Hvað þarftu mikinn kraft til að ýta þér af stað

á skíðum, ef þú ert 55 kg. og þú ætlar að fara úr kyrrstöðu (0 m/sek) í 30m/sek á einni sekúndu?

Svar:________________________________

Page 5: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Munur á massa og þyngd

Massi er mælikvarði á efnismagn og er mældur í kg. Þyngd er mælikvarði á það hversu mikill

þyngdarkraftur verkar á hlut. Þar sem þyngd er kraftur er hún mæld í njútonum.

Þyngdarkrafturinn er 9.8 njúton á jörðinni og margföldum við því massa okkar með þyngdarkraftinum og fáum út þyngd í njútonum.

Dæmi: Hver er þyngd 80 kg. manns í njútonum? 80 kg x 9,8N = 784 N

Page 6: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

2-1 Kraftur

Núningur: Er kraftur sem hamlar gegn hreyfingu hlutar, þ.e.

veldur því að hlutur á hreyfingu hægir á sér og stöðvast

3 megin gerðir núnings: Renninúningur (milli 2 fastra flata) Veltinúningur (á mótum veltandi hlutar og undirstöðu) Straummótstaða (milli hlutar og straumefnis, t.d. báts í

vatni eða flugvélar í lofti)

Page 7: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

2-2 Kraftar í straumefnum

Straumefni: Vökvar Lofttegundir

Straumefni skapa krafta: Núning (straummótstaðan) Þrýsting (kraftur sem verkar á ákveðinn flöt: Newton

á fersentimetra, þ.e. N/cm2) Flotkraft (lyftikraftur sem verkar á hlut í straumefni)

Page 8: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Flotkraftur

Lítill kraftur verkar á efra borð hlutarins

Mikill kraftur verkar á neðra borð hlutarins og ýtir honum

upp

Kraftur (þrýstingur)

eykst með dýpi

Page 9: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Flotkraftur 2.

Þegar hlutur er á kafi í vatni verkar flotkraftur þannig að hann ýtir hlutnum upp, á móti þyngdarkraftinum sem dregur hlutinn niður

Stærð flotkraftsins ákveður hvort hlutur flýtur eða sekkur:flotkraftur minni en þyngd hlutarins hluturinn sekkurflotkraftur meiri en þyngd hlutarins hluturinn flýtur

Page 10: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Lögmál ArkímedesarFlotkraftur á hlut

=Þyngd þess

vökva sem hluturinn ryður

frá sér

Hlutur flýtur í vökva ef

eðlismassi hlutarins er

minni en eðlismassi vökvans

Page 11: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Lögmál Arkímedesar frh.

Eðlismassi er hlutfallið milli massa efnis og rúmmáls þess.

Eðlismassi = Massi Rúmmál

Hægt er að tengja lögmál Arkimedesar við hugtakið um eðlismassa. Hlutur flýtur í vökva ef eðlismassi hlutarins er minni en eðlismassi vökvans.

Page 12: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Vökvaknúin tæki

Þrýstingur sem verkar á einum stað í vökva dreifist jafnt um allan vökvann

Vökvahemlar og vökvalyftarar byggjast á því að þrýstingur verkar jafnt til allra hliða, Þess vegna getur kraftur sem verkar í lítinn flöt vökvans valdið gríðarmiklum krafti á margfalt stærri flöt.

Þrýstingur

Page 13: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Lögmál Bernoullis

4 ólíkir kraftar verka á flugvél á flugi:

Knýr

Þyn

gd

Ly

ftik

raft

urViðnám

Page 14: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Lögmál Bernoullis

Loftið fer hraðar, minni þrýstingur Þrýstingur í vökva/lofti á hreyfingu er minni en

í vökva/lofti sem hreyfist ekki. Því hraðar sem vökvi/loft streymir því minni verður þrýstingurinn sem hann skapar

Page 15: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Lögmál Bernoullis

Lyftikraftur (þrýstikraftur): Krafturinn sem verkar á flugvélavængi og lyftir vélunum upp Þegar flugvél flýgur í jafnri hæð er þrýstikrafturinn jafn

þyngd flugvélarinnar (kraftinum sem togar vélina niður til jarðar)

Knýr (spyrna): Kraftur sem verkar á flugvél í lofti og spyrnir henni áfram

Viðnám (loftmótstaða): Kraftur sem verkar í andstæða átt við knýinn og dregur því

úr hraða flugvélar Þyngdarkraftur

Kraftur sem togar flugvél niður

Page 16: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

2-3Vinna, orka og afl

Vinna er notað yfir það þegar kraftur færir hlut úr stað (hluturinn er dreginn, honum ýtt eða kastað)

Vinna = kraftur x vegalengd Mælieiningin fyrir vinnu hefur 2 nöfn:

Newtonmetri (skammstafað Nm) Júl (Joule) (skammstafað J) 1 Nm = 1 J

Page 17: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Afl

Afl er mælikvarði á hversu hratt vinna er unnin, það er, hversu mikil vinna fer fram á tiltekna tímaeiningu

Afl = vinna = orka tími tími

Afl = kraftur x vegalengdtími

Mælieiningin fyrir afl er watt (W).1 W = 1 Júl á sekúndu = 1 J/sek

Dæmi: 60 W ljósapera skilar vinnu sem nemur 60 júlum á sekúndu

Page 18: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Spreytið ykkur

Helga ætlar að færa kennaraborðið um 5 metra. Það tekur hana nákvæmlega 10 sekúndur og hún þarf að nota 100N kraft til þess.

Hversu mikið afl notar hún?

Svar:_______________________________

Page 19: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

2-4 Vélar

Vél er tæki sem léttir mönnum vinnu með því að breyta stærð eða stefnu þess krafts sem beitt er við vinnuna

Tvenns konar kraftar koma við sögu í vélum: Inntakskraftur: sá kraftur sem beitt er á vélina Skilakraftur: sá kraftur sem vélin skilar frá sér

Page 20: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Vélar 2.

Kraftahlutfall: skilakraftur

inntakskraftur segir til um

hversu oft vél margfaldar inntakskraftinn

inntakskraftur

skilakraftur

Page 21: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Vélar 3.

Vélar margfalda kraftinn, en sú vinna sem vél skilar verður aldrei meiri en sú vinna sem beitt er á vélina

Nýtni er samanburður á inntaksvinnu og úttaksvinnu:

Nýtni er aldrei meiri en 100% Núningur kemur alltaf í veg fyrir það að nýtni vélar sé 100% - nýtnin er alltaf minni

Hagkvæmustu vélarnar eru þær sem hafa besta nýtni og því er mikilvægt að minnka núning með smurningsefnum

Page 22: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Vélar 4.

Einfaldar vélar framkvæma vinnu með einni hreyfingu.

Samsettar vélar eru gerðar úr tveimur eða fleiri einföldum vélum

Page 23: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Einfaldar vélar 1.

Vogarstöng: Stöng sem snýst um

fastan punkt (vogarásinn)

vogarás

skilakraftur

inntakskraftur

Page 24: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Einfaldar vélar 2.

Trissa (talía): Band sem brugðið er

um hjól Verkar á tvennan hátt:

Getur breytt stefnu krafts (föst trissa)

Getur breytt stærð krafts (hreyfanleg trissa)

Föst trissa

Page 25: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Einfaldar vélar 3.

Hjól og ás: Hjól er kringlóttur hlutur

sem snýst um minni kringlóttan hlut, ásinn

Ef krafti er beitt á hjólið, margfaldast hann við ásinn

inntaks-kraftur

skilakraftur

Page 26: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Einfaldar vélar 4.

Skáborð: Skáborð er beinn, hallandi

flötur Notaður til að koma hlutum

upp á hærra svæði Hluturinn fer lengri leið, en

þá þarf líka minni inntakskraft til að koma honum upp

Maðurinn þarf að koma steininum efst í rennibrautina.

Á hann að lyfta steininum beint upp?

Eða á hann að ýta honum upp rennuna?

Page 27: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Einfaldar vélar 5.

Fleygur: Tveir sléttir fletir sem mætast í

hvössu horni – egginni Þegar krafti er beitt á fleyginn,

verður skilakrafturinn við eggina mikill

Við brýnum hnífa til að þynna eggina og stækka þar með kraftahlutfallið – þá þarf minni inntakskraft til að fá mikinn skilakraft

Page 28: Kraftur og hreyfing

HlíðaskóliHelga Snæbjörnsdóttir

Einfaldar vélar 6.

Skrúfa: Skrúfa er í raun skáborð

sem búið er að vefja um sívalning

Skrúfa fer því í raun langa vegalengd til að auka kraftahlutfallið. Það þarf mikinn kraft til að koma skrúfunni á kaf í spýtu, en með því að notfæra sér skáborðið getum við gert þetta með handafli!