Fjölskyldustofa - febrúar 2011
Tilraunaverkefni í þágu langveikra barna og barna með ADHD greiningu
Fjölskyldustofa Akraneskaupstaðar hefur unnið sl ár að tilraunaverkefnum í þágu langveikra
barna og barna með ADHD greiningu. Fjölskykldustofa hlaut styrk til þessara verkefna á
grundvelli samstarfssamnings velferðarráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, mennta- og
menningarráðuneytisins og Sambands íslenskra Sveitarfélaga. Styrkurinn er ætlaður til
tilraunaverkefna til að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni
og athyglisbrest.
Auglýst var eftir styrkjum í þessi verkefni fyrst árið 2010 og nú aftur 2011. Árið 2010 var
áhersla á verkefni sem fólu í sér:
• félagslegan stuðnings og eða skammtímavistun
• sjúkra-, iðju, og eða talþjálfun í leik- og grunnskólum
• fagleg leiðsögn sérfræðinga til leik- og grunnskólabarna sem geta vegna heilsu sinnar
ekki sótt leik- eða grunnskóla
• almenn verkefnið sem miða að bættri þjónustu við leik- og grunnskólabörn
Akraneskaupstaður sótti um styrk til eftirtalinna verkefna:
• COPE – námskeið fyrir foreldra ADHD/ADD barna. Slíkt námskeið var ekki haldið
þar sem leiðbeinendur fluttu erlendis. Því var ákveðið að vera samvinnu við Miðstöð
heilsuverndarbarna með skipulag á foreldranámskeiði. Sigríður K. Gísladóttir
iðjuþjálfi og Sigurveig Sigurðardóttir sálfræðingu halda utanum þetta skipulag. Fyrsta
námskeiðið er núna í gangi þessa dagana og annað verður haldið síðar á þessari önn.
• Snillinganámskeið – Námskeið haldið fyrir kennara til að öðlast leiðbeinendaréttindi á slík
námskeið. Á haust önn var haldið eitt námskeið fyrir nemendur í 4. og 5. bekk. Verið er að
skoða hvernig hægt er að nýta þekkinguna í skólastarfinu.
• Félagslegur stuðningu við börn og foreldra. Í samvinnu við sérfræðiþjónustu var ákveðið að
bjóða nokkrum börnum upp á liðveilsu í stuttan tíma og er því verkefni að ljúka þessa dagana.
• Talþjálfun í leikskóla fyrir langveik börn og börn með ADHD – Bergrós Ólafsdóttir
talmeinafræðingur sérfræðiþjónustu sinnir þessu verkefni í samvinnu við foreldra og leikskóla
skólaárið 2010-2011
• Iðju- og þroskaþjálfun – fyrir langveikt barna unnið í samvinni við foreldra, sérfærðinga og
leikskóla
• Fræðsla fyrir nemendur, kennara og starfsfólk grunnskóla. Þetta verkefni hlaut ekki styrk.