1
Birting lýsingar Eimskipafélags Íslands hf. Almennt útboð 30. október til 2. nóvember 2012 Í tengslum við almennt útboð skv. 43. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti á hlutabréfum í Eimskipafélagi Íslands hf. (hér eftir „Eimskip“ eða „félagið“) og umsókn félagsins um töku allra hlutabréfa í Eimskip til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. (hér eftir nefndur „Aðalmarkaður Kauphallarinnar“), hefur Eimskip birt lýsingu, sem saman- stendur af samantekt, verðbréfalýsingu og útgefandalýsingu, allt dagsett 22. október 2012 (hér eftir nefnt „Lýsingin“). Lýsingin er gefin út á ensku og birt á vefsíðu félagsins, www.eimskip.is, ásamt íslenskri þýðingu á samantektinni. Út- prentuð eintök af Lýsingunni má jafnframt nálgast í höfuðstöðvum Eimskips í Korngörðum 2, 104 Reykjavík. Lýsingin verður aðgengileg næstu 12 mánuði. Heildaröldi útgefinna hluta í Eimskip nemur 200.000.000, en þar af á félagið um 6,0% eigin hluta. Allir hlutirnir eru í sama flokki og jafn réttháir. Hlutir félagsins eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Stjórn félagsins hefur óskað eftir því að EIM verði auðkenni hlutabréfanna í kerfum NASDAQ OMX Iceland hf. (hér eftir nefnd „Kauphöllin“). Almennt útboð 30. október til 2. nóvember 2012 Almennt útboð fer fram frá kl. 10:00 þriðjudaginn 30. október og stendur til kl. 16:00 föstudaginn 2. nóvember 2012. Seljendur í útboðinu munu bjóða til sölu 10.000.000 áður útgefna hluti í Eimskip, sem samsvarar 5% af heildarhlutafé félagsins. Verði umframeftirspurn mun Eimskip bjóða til sölu allt að 6.000.000 af eigin hlutum og stækkar útboðið þá í allt að 8% af útgefnum hlutum eða samtals 16.000.000 hluti. Lágmarksáskrift er 25 þúsund krónur fyrir starfsmenn Eimskips og 50 þúsund krónur fyrir aðra árfesta. Útboðsgengið verður ákvarðað með hliðsjón af eftirspurn í lokuðu útboði sem haldið verður fyrir almenna útboðið, á tímabilinu frá þriðjudeginum 23. október til fimmtudagsins 25. október 2012. Útboðsgengið verður tilkynnt degi síðar, eða föstudaginn 26. október 2012. Öll hlutabréf í almenna útboðinu verða síðan boðin til sölu á þessu sama útboðsgengi. Útboðið er markaðssett á Íslandi. Skilyrði fyrir þátttöku í almenna útboðinu eru að þátttakendur hafi íslenska kennitölu og séu árráða. Áður en tekin er ákvörðun um árfestingu í hlutabréfum í Eimskip eru árfestar hvattir til að kynna sér allar upplýsingar í Lýsingunni í heild og skilmála útboðsins sem þar koma fram. Markmið Eimskips og seljenda er að útboðið geri Eimskip kleift að uppfylla skilyrði reglna NASDAQ OMX Iceland hf. fyrir útgefendur ármálagerninga, dags. 1. desember 2009, um dreifingu hlutaár. Er þá bæði horft til þess að almenningur og fagárfestar eignist hlut í félaginu. Það er jafnframt markmið seljenda að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína. Seljend- ur áskilja sér rétt að falla frá útboðinu ef ekki fást samanlagðar áskriftir í lokaða og almenna útboðinu fyrir að lágmarki 25% af útgefnum hlutum í Eimskip eða ef Kauphöllin samþykkir ekki fyrirliggjandi umsókn félagsins um að hlutir í Eimskip verði teknir til viðskipta. Niðurstöður almenna útboðsins munu liggja fyrir að morgni mánudags 5. nóvember 2012. Gert er ráð fyrir að 16. nóvem- ber 2012 verði fyrsti dagur viðskipta með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Kauphallarinnar, en hann verður tilkynntur af Kauphöllinni með minnst eins viðskiptadags fyrirvara. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar um Eimskipafélag Íslands hf. og skilmála almenna útboðsins má finna í Lýsingu Eimskips. Fyrir- tækjaráðgjöf Straums árfestingabanka hf. og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hafa umsjón með almenna útboðinu og því ferli að fá hluti félagsins tekna til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Straumur árfestingabanki hf. og Íslands- banki hf. veita nánari upplýsingar um útboðið í síma 525 7070 frá 30. október til 2. nóvember 2012. Reykjavík, 23. október 2012 Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. Fíton SÍA

Birting lýsingar Eimskipafélags Íslands hf. · Birting lýsingar Eimskipafélags Íslands hf. Almennt útboð 30. október til 2. nóvember 2012 Í tengslum við almennt útboð

  • Upload
    others

  • View
    2

  • Download
    0

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Birting lýsingar Eimskipafélags Íslands hf. · Birting lýsingar Eimskipafélags Íslands hf. Almennt útboð 30. október til 2. nóvember 2012 Í tengslum við almennt útboð

Birting lýsingar Eimskipafélags Íslands hf.Almennt útboð 30. október til 2. nóvember 2012

Í tengslum við almennt útboð skv. 43. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti á hlutabréfum í Eimskipafélagi Íslands hf. (hér eftir „Eimskip“ eða „félagið“) og umsókn félagsins um töku allra hlutabréfa í Eimskip til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. (hér eftir nefndur „Aðalmarkaður Kauphallarinnar“), hefur Eimskip birt lýsingu, sem saman- stendur af samantekt, verðbréfalýsingu og útgefandalýsingu, allt dagsett 22. október 2012 (hér eftir nefnt „Lýsingin“). Lýsingin er gefin út á ensku og birt á vefsíðu félagsins, www.eimskip.is, ásamt íslenskri þýðingu á samantektinni. Út- prentuð eintök af Lýsingunni má jafnframt nálgast í höfuðstöðvum Eimskips í Korngörðum 2, 104 Reykjavík. Lýsingin verður aðgengileg næstu 12 mánuði.

Heildar�öldi útgefinna hluta í Eimskip nemur 200.000.000, en þar af á félagið um 6,0% eigin hluta. Allir hlutirnir eru í sama flokki og jafn réttháir. Hlutir félagsins eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Stjórn félagsins hefur óskað eftir því að EIM verði auðkenni hlutabréfanna í kerfum NASDAQ OMX Iceland hf. (hér eftir nefnd „Kauphöllin“).

Almennt útboð 30. október til 2. nóvember 2012

Almennt útboð fer fram frá kl. 10:00 þriðjudaginn 30. október og stendur til kl. 16:00 föstudaginn 2. nóvember 2012. Seljendur í útboðinu munu bjóða til sölu 10.000.000 áður útgefna hluti í Eimskip, sem samsvarar 5% af heildarhlutafé félagsins. Verði umframeftirspurn mun Eimskip bjóða til sölu allt að 6.000.000 af eigin hlutum og stækkar útboðið þá í allt að 8% af útgefnum hlutum eða samtals 16.000.000 hluti. Lágmarksáskrift er 25 þúsund krónur fyrir starfsmenn Eimskips og 50 þúsund krónur fyrir aðra �árfesta. Útboðsgengið verður ákvarðað með hliðsjón af eftirspurn í lokuðu útboði sem haldið verður fyrir almenna útboðið, á tímabilinu frá þriðjudeginum 23. október til fimmtudagsins 25. október 2012. Útboðsgengið verður tilkynnt degi síðar, eða föstudaginn 26. október 2012. Öll hlutabréf í almenna útboðinu verða síðan boðin til sölu á þessu sama útboðsgengi. Útboðið er markaðssett á Íslandi. Skilyrði fyrir þátttöku í almenna útboðinu eru að þátttakendur hafi íslenska kennitölu og séu �árráða. Áður en tekin er ákvörðun um �árfestingu í hlutabréfum í Eimskip eru �árfestar hvattir til að kynna sér allar upplýsingar í Lýsingunni í heild og skilmála útboðsins sem þar koma fram.

Markmið Eimskips og seljenda er að útboðið geri Eimskip kleift að uppfylla skilyrði reglna NASDAQ OMX Iceland hf. fyrir útgefendur �ármálagerninga, dags. 1. desember 2009, um dreifingu hluta�ár. Er þá bæði horft til þess að almenningur og fag�árfestar eignist hlut í félaginu. Það er jafnframt markmið seljenda að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína. Seljend-ur áskilja sér rétt að falla frá útboðinu ef ekki fást samanlagðar áskriftir í lokaða og almenna útboðinu fyrir að lágmarki 25% af útgefnum hlutum í Eimskip eða ef Kauphöllin samþykkir ekki fyrirliggjandi umsókn félagsins um að hlutir í Eimskip verði teknir til viðskipta.

Niðurstöður almenna útboðsins munu liggja fyrir að morgni mánudags 5. nóvember 2012. Gert er ráð fyrir að 16. nóvem-ber 2012 verði fyrsti dagur viðskipta með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Kauphallarinnar, en hann verður tilkynntur af Kauphöllinni með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Eimskipafélag Íslands hf. og skilmála almenna útboðsins má finna í Lýsingu Eimskips. Fyrir- tækjaráðgjöf Straums �árfestingabanka hf. og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hafa umsjón með almenna útboðinu og því ferli að fá hluti félagsins tekna til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Straumur �árfestingabanki hf. og Íslands-banki hf. veita nánari upplýsingar um útboðið í síma 525 7070 frá 30. október til 2. nóvember 2012.

Reykjavík, 23. október 2012

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. F

íto

n S

ÍA