Upload
haru
View
32
Download
0
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Almennt um nýjar námskrár – uppbygging og álitamál. Námskeið um innleiðingu námskráa í Borgarbyggð 17. ágúst 2012 Gunnar E. Finnbogason. Ný námskrá – hefur reglugerðarígildi. - PowerPoint PPT Presentation
Citation preview
Almennt um nýjar námskrár – uppbygging og álitamál
Námskeið um innleiðingu námskráa í Borgarbyggð 17. ágúst 2012
Gunnar E. Finnbogason
Ný námskrá – hefur reglugerðarígildi
,,Aðalnámskrá er sett af mennta- og menningarmálaráðherra með sama hætti og reglugerðir og gegnir margvíslegu hlutverki.”
,,Á kennurum hvílir ekki aðeins sú skylda að miðla þekkingu
til nemenda heldur einnig að veita þeim tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni, örva starfsgleði þeirra og efla frjóa hugsun.”
Hversu skuldbundnir eru skólar að fara eftir fyrirmælum
stjórnvalda?
Hnattvæðing
• Einnig er tekið tillit til alþjóðlegra samninga sem Ísland er aðili að, svo sem barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og stefnu alþjóðlegra stofnana sem Ísland er aðili að. Þar má nefna stefnumörkun UNESCO um almenna menntun og um sjálfbæra þróun og stefnumörkun Evrópuráðsins um lýðræði og mannréttindi.
• Hvert er samfélagslegt hlutverk skólans?
Aðalnámskrá er ætlað:
• að vera stjórntæki (markmiða/reglustýring)• að vera fyrirmæli fræðsluyfirvalda um
skólastefnu/menntastefnu• að vera samsafn sameiginlegra markmiða í
landinu
Aðalnámskrá er einnig ætlað:
• að samræma nám og kennslu• að tryggja rétt allra nemenda til lágmarks-
menntunar• að tryggja jafnrétti til náms
Athafnarými skóla
Lög og Athafnarými námskrár
Skólinn
Sameiginlegur hluti
• ,,Kaflar 1-3 eru sameiginlegir í námskrám skólastiganna þriggja en þar er fjallað um stefnumið menntakerfisins, um almenna menntun og markmið skólakerfisins, um grunnþætti menntunar og um mat á skólastarfi.”
• Viðleitni til að skapa samfellu í námið.
Nýjar áherslur í aðalnámskrá 2011
Grunnþættir Lykilhæfni Menntun
Grunnþættir
• Grunnþáttunum er ætlað að undirstrika meginatriði í almennri menntun og stuðla að meiri samfellu í öllu skólastarfi. Þegar skólastarf er metið þarf að skoða hvernig grunnþættirnir setja mark sitt á kennslu, leik og nám.
• Þeir varða starfshætti, inntak og umhverfi náms á öllum skólastigum og skapa mikilvæga samfellu í íslensku skólakerfi (úr formála Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra).
• Hugmyndirnar að baki grunnþáttunum eiga að endurspeglast í starfsháttum skóla, samskiptum og skólabrag. Þeir skulu vera sýnilegir í skólastarfinu öllu og koma fram í inntaki námsgreina og námssviða, bæði hvað varðar þá þekkingu og leikni sem börn og ungmenni skulu afla sér.
Leiðarljós við námskrágerð
Þessir grunnþættir eru:• læsi,• sjálfbærni,• heilbrigði og velferð,• lýðræði og mannréttindi,• jafnrétti,• sköpun.
Lykilhæfni
• Nútímasamfélag gerir margar og oft mótsagnakenndar kröfur til þegnanna.
• Nemendur þurfa að vita hvað þeir vita og hvað þeir geta og vita hvernig best er að beita þekkingu sinni og leikni til að hafa áhrif á umhverfi sitt og bæta það.
• Hæfni er þannig meira en þekking og leikni, hún felur einnig í sér viðhorf og siðferðisstyrk, tilfinningar og sköpunarmátt, félagsfærni og frumkvæði.
• Lykilhæfni er því sú hæfni nemenda sem stuðlar að lausn margvíslegra verkefna við ólík skilyrði.
Námshæfni
• Námshæfni er þannig undirstöðuþáttur í öllu skólastarfi og byggist á sjálfsskilningi og áhuga. Námshæfni felur einnig í sér að þekkja eigin styrkleika og veikleika og að vera fær um að taka ákvarðanir á þeim grunni.
• Námshæfni byggist á eðlislægri forvitni barna og ungmenna, áhugahvöt þeirra, trú á eigin getu og hæfileika til að beita hæfni sinni í margvíslegum viðfangsefnum á uppbyggilegan hátt.
• Hver er munurinn á hæfni og námshæfni?
Grunnþætti fléttast inn í allt skólastarf
,,Þeir [grunnþættir] byggjast á þeirri hugmynd að ekki geti orðið virkt lýðræði án læsis á hvers konar táknkerfi og samskiptakerfi samfélagsins. Þeir eru einnig byggðir á því að virkt lýðræði þrífist aðeins ef jafnframt er stuðlað að hvers konar jafnrétti milli einstaklinga og hópa í samfélaginu. Mannréttindi allra verða ekki tryggð nema stuðlað sé að heilbrigði og velferð hvers og eins og baráttu gegn mismunun og hvers konar ofbeldi, þar með töldu einelti.”
Námsgrein - námssvið
• ,,Það er ekki markmið skóla að kenna námsgreinar, en námsgreinar eru mikilvægar vegna markmiða skólans.”
Hver er munurinn á námsgrein og námssviði?
Lýðræði og mannréttindi
• ,,Viðhorf, gildismat og siðferði eru ríkir þættir í lýðræðismenntun jafnframt því sem þau atriði fléttast saman við aðra grunnþætti menntunar.”
• ,,Skólum ber að rækta það viðhorf að samfélagið eigi að vera lýðræðislegt og einstaklingarnir gagnrýnir og með framtíðarsýn.”
• ,,Gert er ráð fyrir því að börn og ungmenni læri til lýðræðis með því að læra um lýðræði í lýðræði.”
Kennsla og lýðræði – þrjár leiðir(byggt á Arthur og Wright, 2001)
Stig Dæmi um viðfangsefni Markmið kennslu
Kennsla um lýðræði Nem. læra um stjórnmálakerfið á Íslandi og um alþjóðleg stjórnmál
Þekking og skilningur sem gerir nem. að upplýstum borgurum
Kennsla sem undirbýr nem. til að verða lýðræðislegir þátttakendur
Nem. öðlast færni og gildi til að auka virkni sína sem lýðræðislegir gerendur
Nem. þróa með sér gagnrýna hugsun, hæfni til að rannsaka þætti út frá ólíkum sjónarhornum og lýðræðislega samskiptahæfni
Kennsla í gegnum virka þátttöku nem. Nem. læra í gegnum virka þátttöku í skólanum og fyrir utan skólann.
Þróa hæfnisþætti sem gerir nem. kleift að taka þátt í lýðræðislegu ferli á ábyrgan hátt
Sjálfbærni í leikskóla
• ,,Menntun til sjálfbærni miðar að því að gera fólki kleift að takast á við viðfangsefni sem lúta að samspili umhverfis, félagslegra þátta og efnahags í þróun samfélags.”
• Leiðarljós: ,, Menntun til sjálfbærni á að endurspeglast í öllu starfi leikskóla í virku samstarfi við heimili og nærsamfélag.
• Hvaða kröfur gerir þetta leiðarljós til starfs í leikskólum?
,,Félagslega” sjálfbærni byggir á lýðræðishugsjóninni.” I. Pramling Samuelsson,(2005)
Til að mæta þessum kröfum þarf að vinna með börnum á eftirfarandi hátt:
- Styðja barnið í þekkingarleit sinni og til að það tileinki sér trausta sjálfsmynd.
- Hjálpa barninu til að finna til öryggis og að það sýni samkennd í samskiptum við önnur börn með ólíkan bakgrunn.
Félagsleg sjálfbærni frh.
- Þjálfa barnið í gagnrýnni hugsun gagnvart fordómum.
- Styðja við hæfni barnsins til að láta í sér heyra og standa á sínu, bæði hvað varðar það sjálft og aðra. (Derman–Sparks (1989).
Menntastefna (1)
• Allir eiga að ná takmarki sínu• Skóli fyrir alla• Heildstæður skóli• Áhersla á almenna menntun• Áhersla á að barn/nemandi verði gerandi í
eigin lífi• Barn/nemandi er hluti af samfélaginu
Menntastefna (2)
• Áhersla á hæfni en ekki bara prófgráða• Áhersla á lýðræði í samskiptum• Áhersla á jafnrétti og manngildi• Áhersla á læsi og tjáningu