16
www.st amps .is 2/2013 Ný frímerki mars-maí 2013 Frímerkjafréttir

Frímerkjafréttir 2/2013

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Ný frímerki mars-maí 2013

Citation preview

ww

w.s

tam

ps.

is

2/2013

Ný frímerki mars-maí 2013

Frímerkjafréttir

FRÍMERKJASALANStórhöfða 29110 REYKJAVÍKSími: 580 1050 • Fax: 580 1059E-mail: [email protected] www.stamps.is

Forsíða: Hinsegin dagar í Reykjavík.

NORDIA 2013.Íþróttamiðstöðin Ásgarður, Garðabæ.

FrímerkjasýningarFrímerkjasala Íslandspósts tekur þátt í 23. alþjóðlegu frímerkjasýningunni í Essen í Þýskalandi 2.-4. maí 2013.

NORDIA 2013, Garðabæ, 7.-9. júní.

Sérstimplar Lágmarksburðargjald 175 kr. Pantanir verða að berast 10 dögum fyrir sýningardag.

Sérstimpill í tilefni gosloka í Vestmannaeyjum

Sérstimpill 3. júlí 2013 í tilefni þess að 40 ár eru liôin frá því eldgosinu í Vestmanna eyjum lauk. Gosið hófst 23. janúar 1973.

3

2013

Garðabær.

NORDIA 2013Landssamband íslenskra frímerkjasafnara efnir til norrænnar frímerkjasýningar dagana 7. til 9. júní 2013. Sýningin ber nafnið NORDIA 2013 og er það í samræmi við langa hefð sem landssamböndin á Norðurlöndum hafa fylgt alla tíð með örfáum undantekningum. Nordia 2013 er sjötta norræna frímerkjasýningin sem haldin er hér á landi. Allt frá árinu 1978 hefur Landssambandið verið þátttakandi í þessum samnorrænu sýningum á einn eða annan hátt. Fyrsta norræna frímerkjasýningin sem haldin var undir merkjum sambandsins var Nordia 84 (1984). Síðan fylgdu á eftir Nordia 91, Nordia 96, Nordia 2003 og Nordia 2009. Allar þessar sýningar voru haldnar í Reykjavík, nema Nordia 2009 sem haldin var í Hafnarfirði. Tókust þær allar með miklum ágætum. Að þessu sinni verður sýningin haldin í Garðabæ. Er það von sýningarnefndar að vel takist til að vanda og frímerkjasafnarar aðildarfélaga land-samband anna á Norðurlöndunum öllum svo og félagar í Scandinavian Collectors’ Club í Bandaríkjunum búi söfn sín til þátttöku þannig að gestir sýningarinnar megi kynnast fjölbreytilegu og menningarlegu inntaki frímerkjasöfnunar. Frekari upplýsingar um sýninguna er að finna á www.nordia2013.is

4

586A 586B

586C 586D

14.03.2013Heiti útgáfu: Íslensk samtímahönnun IV – grafísk hönnunÚtgáfunúmer: 586A-DHönnuður: Örn Smári Gíslason Siggi Odds (teikning) Ragnar Freyr (teikning) Rán Flygenring (teikning) Siggi Eggertsson (teikning)Prentsmiðja: Joh. Enschedé Prentunaraðferð: Offset Litho (CMYK) + 1 Pantone SilfurStærð frímerkja: 28,5 x 40 mmForm arkar: 10 frímerki í örkPappír: Tullis Russel 110 gsmVerðgildi: 50g innanlands (120 kr.) 250g innanlands (155 kr.) 100g til Evrópu (300 kr.) 100g utan Evrópu (475 kr.)Heildarupplag: 500.000Upplag pr. verðgildi: 586A: 140.000 586B: 120.000. 586C: 120.000 586D: 120.000

Íslensk samtímahönnun IV – grafísk hönnun

5

Fjórða frímerkjaröðin um íslenska samtímahönnun er tileinkuð grafískri hönnun. Myndefnin eru verk fjögurra ungra grafískra listamanna.

Sigurður Oddsson fæddist í Reykjavík 1985 en ólst upp að miklu leyti í Vancouver í Kanada. Þar kynntist hann í frumbyggjalist indjána og sækir þangað í myndsköpun sinni. Sigurður útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2008. Hann hefur starfað fyrir lista-, tísku- og tónlistargeirann.

Ragnar Freyr Pálsson fæddist í Reykjavík 1980. Hann lauk námi frá Listaháskóla Íslands 2005 og fór þá til náms við Kennaraháskóla Íslands.Ragnar stofnaði vinnustofu í Reykjavík 2001. Í myndlist sinni og hönnun leggur Ragnar áherslu á einfaldleika og naumhyggju.

Rán Flygenring er fædd í Osló 1987 en ólst upp í Reykjavík. Hún útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands 2013. Hún var hirðteiknari Reykjavíkurborgar sumarið 2011 og hlaut þýsku barnabókaverðlaunin, „Deutscher Jugendliteratur Preis“ 2012, fyrir barnabókina „Frerk, du Zwerg“.

Sigurður Eggertsson fæddist á Akureyri 1984. Hann lærði grafíska hönnun í Listaháskóla Íslands. Hann stundaði nám við Weißensee Listaháskólann í Berlín en lauk náminu á Íslandi. Sigurður er búsettur í Berlín og vinnur fyrir viðskiptavini um allan heim.

Íslensk samtímahönnun IV – grafísk hönnun

6

H101

H102

Bílaöldin 1913-2013

Raunveruleg bílaöld á Íslandi er talin hefjast 1913 þegar fyrsti Ford T bíllinn kom til Íslands. Myndefnið á frímerkjunum er fjórar gamlar bifreiðir.

Ford T vörubíll. Bílar af gerðinni Ford-T sönnuðu að bílar væru þau samgöngutæki sem hentuðu á Íslandi. Ford-T var traustur, einfaldur og tiltölulega ódýr. Vörubílarnir komu hingað án yfirbyggingar. Hönnun Íslendinga á ekilshúsum og pöllum á vörubíla sem hingað komu á sér ekki sinn líka annars staðar í veröldinni.

Chevrolet hálfkassabíll eins og sá sem frímerkið sýnir tók 10 farþega. Bílinn kom nýr til landsins 1943 en var smíðaður 1942. Hann var notaður til fólks- og vöru flutninga í Eyjafirði en er nú á Samgönguminja safninu í Stóragerði í Óslandshlíð.

Mercedes Benz farþegabifreið (rúta) er fyrirmynd að þessu frímerki. Bíllinn er árgerð 1957 en fluttur inn árið 1962 og notaður á Siglufjarðarleið í 10 ár uns hann var seldur austur á firði þar sem hann var í ferðum nokkur ár enn. Hann er nú til sýnis á Samgöngusafninu í Stóragerði.

Bedford slökkvibíll. Um miðjan síðari hluta 20. aldar komu 68 slökkvibílar af gerðinni Bedford til landsins. Fram til þess tíma höfðu víða ekki verið til önnur slökkvitæki en brunadælur og tilkoma Bedford slökkvibílanna var að sögn þeirra sem gerst til þekkja mesta bylting sem orðið hefur í brunavörnum landsbyggðarinnar.

14.03.2013Heiti útgáfu: Bílaöld 1913-2013Útgáfunúmer: H101, H02Hönnuður: Hlynur Ólafsson Prentsmiðja: Joh. EnschedéPrentunaraðferð: Offset Litho (CMYK) + 1 Pantone liturStærð frímerkja: 39,00 x 27,00 mmStærð hefta/lokað: 55 x 90 mmForm heftis: 4 frímerki í örk/heftiPappír: 246 gsm sjálflímandi pappírVerðgildi: B50g innanlands (103 kr.) x 4 =412 kr. 50g til Evrópu (175 kr.) x 4 = 700 kr.Heildarupplag: 60.000Upplag pr. verðgildi: 30.000

Brjóti› saman og hefti› / Fold og hæft / Fold and staple / Falten und befestigen / Pliez et agrafez

Pöntun / Bestilling / Order form / Bestellung / Commande March-May 2013

Já takk! Ég panta hér með eftirfarandi YES, please! I would like to order the following item(s)

Nr. No. Lýsing Item

Óstimplað fjöldi

Mint

No. of items

Stimplað fjöldi Regular DayCancellationNo. of items

Útg.d. stimplað - fjöldiFist Day

CancellationNo. of items

VerðPriceISK

Verð Price1

€SamtalsTotal

586SET Íslensk samtímahönnun IV - Grafísk hönnun - sett Icelandic design IV - Graphic design - Set of stamps586FDCS Fyrstadagsumslag með setti (FDCS) First Day Cover w/set (FDCS)586FDC1 4 fyrstadagsumslög með stökum frímerkjum (FDC1) 4 First Day Covers w/single stamps (FDC1)586FDC4 4 fyrstadagsumslög með fjórblokk (FDC4) 4 First Day Covers w/blocks of four (FDC4)586SET4A Íslensk samtímahönnun IV - fjórblokk úr efri kanti Icelandic design IV, block of 4, upper edge586SET4B Íslensk samtímahönnun IV - fjórblokk úr neðri kanti Icelandic design IV, block of 4, lower edge586SORK Íslensk samtímahönnun IV - örk með 10 frímerkjum Icelandic design IV, sheet of 10586FDCB Autt fyrstadagsumslag útgáfunnar First Day Cover of the issue - blank 101HEF4 Bílaöld-Hefti m/4 frímerkjum The Automobile Age, booklet of 4 stamps101FDCS Fyrstadagsumslag með setti (FDCS) First Day Cover w/set (FDCS) 102HEF4 Bílaöld-Hefti m/4 frímerkjum The Automobile Age, booklet of 4 stamps102FDCS Fyrstadagsumslag með setti (FDCS) First Day Cover w/set (FDCS)101/102 Autt fyrstadagsumslag útgáfunnarFDCB First Day Cover of the issue - blank 587SET Bæjarhátíðir - sett Town Festivals - Set of stamps 587FDCS Fyrstadagsumslag með setti (FDCS) First Day Cover w/set (FDCS)587FDC1 5 fyrstadagsumslög með stökum frímerkjum (FDC1) 5 First Day Covers w/single stamps (FDC1)587FDC4 5 fyrstadagsumslög með fjórblokk (FDC4) 5 First Day Covers w/blocks of four (FDC4)587SET4A Bæjarhátíðir - fjórblokk úr eftri kanti Town Festivals, block of 4, upper edge587SET4B Bæjarhátíðir - fjórblokk úr neðri kanti Town Festivals, block of 4, lower edge587SORK Bæjarhátíðir - örk með 10 frímerkjum Town Festivals, sheet of 10587FDCB Autt fyrstadagsumslag útgáfunnar First Day Cover of the issue - blank588SET Evrópufrímerki 2013, póstbílar - sett Europa stamps 2013, Postal Vehicles - Set of stamps588FDCS Fyrstadagsumslag með setti (FDCS) First Day Cover w/set (FDCS)588FDC1 2 fyrstadagsumslög með stökum frímerkjum (FDC1) 2 First Day Covers w/single stamps (FDC1)588FDC4 2 fyrstadagsumslög með fjórblokk (FDC4) 2 First Day Covers w/blocks of four (FDC4)588SET4A Evrópufrímerki 2013 - fjórblokk úr efri kanti Europa stamps 2013, block of 4, upper edge588SET4B Evrópufrímerki 2013 - fjórblokk úr neðri kanti Europa stamps 2013, block of 4, lower edge588SORK Evrópufrímerki 2013 - örk með 10 frímerkjum Europa stamps 2013, sheet of 10588FDCB Autt fyrstadagsumslag útgáfunnar First Day Cover of the issue - blank

Mars / March 2013

1.050

1.120

1.330

4.480

4.200

4.200

10.500

70

412

276

700

420

70

566

636

916

2.614

2.264

2.264

5.660

70

405

475

545

1.760

1.620

1.620

4.050

70

6,05

6,50

7,70

25,90

24,30

24,30

60,70

0,40

2,40

1,60

4,05

2,45

0,40

3,30

3,70

5,30

15,10

13,10

13,10

32,70

0,40

2,35

2,75

3,15

10,20

9,35

9,35

23,40

0,40

Maí / May 2013

Óstimplað fjöldi

Mint

No. of items

Stimplað fjöldi Regular DayCancellationNo. of items

Útg.d. stimplað - fjöldiFist Day

CancellationNo. of items

VerðPriceISK

Verð Price1

€SamtalsTotal

H103S Evrópufrímerki 2013 - stakt frímerki úr hefti Europa stamps 2013, single stamp from booklet103HEFT Evrópufrímerkin 2013 - Hefti m/10 frímerkjum Europa stamps 2013, booklet of 10 stampsH104S Evrópufrímerki 2013 - stakt frímerki úr hefti Europa stamps 2013, single stamp from booklet104HEFT Evrópufrímerkin 2013 - Hefti m/10 frímerkjum Europa stamps 2013, booklet of 10 stamps103/104 Fyrstadagsumslag með setti (FDCS) úr heftumFDCS First Day Cover w/set (FDCS) from booklets103/104 Fyrstadagsumslag með stökum frím. (FDC1) úr heftumFDC1 First day cover w/single stamps (FDC1) from booklets 589BLOK Nordia 2013, Norðurljós - smáörk Souvenir sheet: Nordia 2013 - Aurora Borealis589FDCS Fyrstadagsumslag með setti (FDCS) First Day Cover w/souvenir sheet (FDCS)589FDCB Autt fyrstadagsumslag útgáfunnar First Day Cover of the issue - blank B108 Safnarabíll nr. 8, íslenskir póstbílar „kassabíll“ Model car no. 8. Icelandic postal vehicles, postal truck K010 Póstkort, stakt án frímerkis Postcard without any stampsK011 Póstkort m/setti af Evrópufrímerkjum 2013 Postcard w/set of Europa stamps 2013K012 2 póstkort með stökum Evrópufrímerkjum 2013 2 postcards w/single Europa stamps 2013

175

1.750

230

2.300

475

545

700

770

70

3.750

150

555

705

1,00

10,00

1,35

13,50

2,75

3,15

4,05

4,45

0,40

21,60

0,85

3,20

4,10

Nr. No. Lýsing Item

*According to Rate of Exchange pr. 01.02.2013

A service fee is added to all orders - 200 ISK for subscription and 300 ISK for extra orders.

Þjónustugjald er lagt á allar pantanir, 200 kr. á fasta áskrift, 300 kr á stakar pantanir.

Burðargjöld vegna þyngri póstsendinga, s.s. fyrir safnarabíl nr. 8, er samkvæmt gildandi verðlista Póstsins.

Postage rates for heavier packages, such as model car No. 8 will be charged according to Iceland Post valid price list.

SAMTALS/TOTAL ISK / €

Bankareikningur: 528-26-3035. Kennitala Frímerkjasölu: 701296-6139

ÍslandspósturFrímerkjasalaStórhöfða 29

110 Reykjavík

Sími: 580 1050

Fax: 580 1059

[email protected]

www.stamps.is

Pöntun / Order form Breyting á greiðslumáta / Change mode of payment

InnanlandsDomestic

Til EvrópuTo Europe

Utan EvrópuOther countries

ÞyngdWeight

A-pósturPriority

B-pósturEconomy

A-pósturPriority

B-pósturEconomy

A-pósturPriority

B-pósturEconomy

0-50 g 120 ISK 103 ISK 175 ISK 160 ISK 230 ISK 205 ISK

51-100 g 125 ISK

Ekki í boðiNot

available

300 ISK 270 ISK 475 ISK 425 ISK

101-250 g 155 ISK 580 ISK 520 ISK 955 ISK 860 ISK

251-500 g 225 ISK 1.025 ISK 925 ISK 1.745 ISK 1.570 ISK

501-1000 g 480 ISK 1.765 ISK 1.590 ISK 2.690 ISK 2.420 ISK

1001-1500 g 565 ISK 2.410 ISK 2.170 ISK 3.645 ISK 3.280 ISK

1501-2000 g 630 ISK 2.865 ISK 2.580 ISK 4.345 ISK 3.910 ISK

Verð eru án póstburðargjalda sem leggjast á þyngri vörur samkvæmt gjaldskrá Póstsins júlí 2012

Prices do not include postage which will be added to heavier products according to Iceland Post price list July 2012

VERðSKRá – PRICE LIST Bréfapóstur – Almenn bréf / Letters – Regular letters

Kennitala/Kundenummer/Customer No./Kunden-Nr./No. de client

Nafn/Navn/Name/Name/Nom:

Gata/Gade/Street/Straße/Rue:

Póstnr./Postnr./Postal Code/PLZ/Code Postal:

Staður/By/City/Stadt/Localité:

Land/Country/Staat/Pays:

Greiðslumáti / Betalingsmetoder / Mode of payment / Zahlungsart / Mode de paiement

VISA MASTERCARD American Express Beingreiðsla Póstkrafa (Iceland only)

Kort nr./Card no./Karte Nr./Carte nr.:

Gildir til/Gyldig/Exp.date/Gültig bis/Date d'exp.:

Undirskrift/Underskrift/Signature/Unterschrift:

(500 kr. bætast við í póstkröfugjald) (Iceland only)

11

B108

K010

K011

K012

Safnarabíll nr. 8

Þessi safnarabíll, í stærðinni 1:87, er samnefnari fyrir flutningabíla sem Pósturinn notar í rekstri sínum. Bílarnir annast póstflutninga á höfuð bor-gar svæðinu, til Suðurnesja og Selfoss.

Módelið er eitt af 1200 tölusettum eintökum sem Íslandspóstur gefur út í 2. maí 2013. Upprunavottorð og póstkort án frímerkis, sem sést hér á síðunni, fylgir bílnum. Verð: 3.750 kr.

Einnig er póstkortið fáanlegt á eftirfarandi hátt:

K010 Póstkort, stakt án frímerkis. Verð 150 kr.

K011 1 póstkort m/setti af Evrópufrímerkjum 2013.

Verð 555 kr.

K012 2 póstkort með stökum Evrópufrímerkjum 2013.

Verð 705 kr.

12

587A 587B

Bæjarhátíðum sem haldnar eru hérlendis á sumrin hefur farið fjölgandi á undanförnum árum og eru víða orðnar ríkur þáttur í menningarlífi margra bæja og byggðarlaga á Íslandi. Hinsegin dagar í Reykjavík eru haldnir í ágúst ár hvert. Þessi hátíð samkynhneigðra barst frá Bandaríkjunum til Evrópu og ber nú upp á flestar helgar sumarsins víða um heim. Hinsegin dagar voru fyrst haldnir hátíðlegir hér á landi árið 2000.

Aldrei fór ég suður – tónlistarhátíðin var haldin á Ísafirði fyrsta sinni árið 2004. Hátíðin þykir sérstök sökum sérstakrar staðsetningar og umgjarðar og hefur haft jákvæð áhrif á samfélagið auk þess sem bærinn hefur endurnýjað ímynd sína sem tónlistarbær.

Bæjarhátíðir

02.05.2013Heiti útgáfu: Bæjarhátíðir Útgáfunúmer: 587A-EHönnuður: Linda ÓlafsdóttirPrentsmiðja: Joh. EnschedéPrentunaraðferð: Offset Litho (CMYK)Stærð frímerkis: 33,35 x 28,00 mmForm arkar: 10 frímerki í örk Pappír: 196 gsm sjálflímandi pappírVerðgildi: B50g innanlands (103 kr.) B50g innanlands (103 kr.) 50g innanlands (120 kr.) 50g innanlands (120 kr.) 50g innanlands (120 kr.)Heildarupplag: 600.000Upplag pr. verðgildi: 120.000

13

587C 587D 587E

Fiskidagurinn mikli er fjölskylduhátíð sem er haldin hátíðleg í Dalvíkurbyggð fyrsta laugardag eftir verslunar-mannahelgi. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, skemmti sér og snæði fisk. Fjölbreytt skemmtidagskrá er í tengslum við hátíðina.

Tónlistarveislan Bræðslan á Borgarfirði eystri hefur í tímans rás skipað sér sess sem hlekkur í tónlistarlífi lands manna. Tónleikarnir fara fram í gamalli síldarbræðslu sem heimamenn breyta í tónleikahöll einu sinni á ári. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var fyrst haldin 1874. Íþróttabandalag Vestmannaeyja skipuleggur hana. Hátíðin hefur þróast í eina metnaðarfyllstu tónlistarhátíð landsins og hefur aldrei fallið niður, hvorki vegna veðurs né náttúruhamfara á eyjunum.

Bæjarhátíðir

14

588A

588B

H103H104

ÚTGÁF

UDA

GUR 02. 05. 2013

R E Y K JAVÍK

Evrópufrímerki 2013 – Póstbílar

Þema Evrópufrímerkjanna 2013 eru póstbílar í notkun. Einnig eru frímerkin tileinkuð 20 ára afmæli PostEurop sem eru samtök póstrekenda í Evrópu. Íslandspóstur rekur einn stærsta bílaflota landsins, um 110 bíla, sem sem eingöngu sinna póstflutningum. Heildaraksturinn er í kringum 3,5 milljón km á ári en landpóstakeyrslan er ekki inni í þeirri tölu. Landpóstar eru þeir aðilar sem sjá um póstflutninga í hinum dreifðu byggðum landsins. Pósturinn hefur sett sér umhverfis stefnu og fylgist með kolefnis mengun bílaflotans. Um þriðjungur allra póstbíla á stór Reykjavíkursvæðinu eru metangasbílar og stefnt er að fjölgun slíkra vistvænna bifreiða. Við brennslu á metangasi í stað bensíns eða díselolíu fer mun minna af koldíoxíði og öðrum gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið. Ellefu ár eru síðan Íslandspóstur tók fyrstu metangasbifreiðina í notkun. Í öllum bifreiðum Póstsins eru ökusíritar sem skrá upplýsingar um aksturslag. Með þeim er hægt að fylgjast með bílunum í rauntíma á tölvuskjá og þar sést hvar bílarnir eru, á hvaða hraða þeir aka og í hvaða átt þeir stefna. Þessi tækni auðveldar að miklum mun allt skipulag póstflutninga kringum landið. Bílarnir á frímerkjunum eru Ford Transit 350m árg. 2012 og Man Tgs árg. 2010.

02.05.2013Heiti útgáfu: Evrópufrímerki – PóstbílarÚtgáfunúmer: 588A-BHönnuður: Bergþóra Birgisdóttir /Sverrir Björnsson og Arnaldur Halldórsson (ljósmyndir)Prentsmiðja: Cartor Security Print Prentunaraðferð: Offset Litho (CMYK)Stærð frímerkja: 40,00 x 25,30 mmForm arkar: 10 frímerki í örkPappír: 247 gsm sjálflímandi pappírVerðgildi: 50g til Evrópu (175 kr.) 50g utan Evrópu (230 kr.) Heildarupplag: 450.000 Upplag pr. verðgildi: 588A: 300.000 588B: 150.000

02.05.2013Heiti útgáfu: Evrópufrímerki – Póstbílar – FrímerkjaheftiÚtgáfunúmer: H103, H104Hönnuður: Bergþóra BirgisdóttirPrentsmiðja: Cartor Security Print Prentunaraðferð: Offset Litho (CMYK)Stærð frímerkja: 40,00 x 25,30 mmStærð hefta/lokað: 95 x 145 mmForm heftis: 10 frímerki í örk/heftiPappír: 247 gsm sjálflímandi pappírVerðgildi: 50g til Evrópu (175 kr.) 50g utan Evrópu (230 kr.) Heildarupplag: 26.000 Upplag pr. verðgildi: 13.000

15

589A

Nordia 2013 – Norðurljós

Norræna frímerkjasýningin NORDIA 2013 verður haldin í Ásgarði í Garðabæ 7.-9. júní 2013. Þetta er í sjötta sinn sem sýningin er haldin hérlendis. Íslandspóstur mun að venju gefa út smáörk í tilefni hennar og eru norðurljósin þema hennar að þessu sinni. Frá sólinni berst í sífellu svonefndur sólvindur sem er straumur rafhlaðinna agna. Segulsvið jarðarinnar hrindir honum frá sér nema í kringum segulpólana þar sem eitthvað af ögnunum sleppur inn. Þegar þær rekast á lofthjúp jarðar, í um 100-250 km hæð örvast sameindir og frumeindir í hjúpnum og senda frá sér ljós sem við köllum norður- eða suðurljós. Áhrif sólvindsins eru mest á kraga kringum segulpólana og þar eru norður- og suðurljósin einnig mest áberandi. Ísland er í norðurljósakraganum að nóttu til við eðlileg skilyrði. Hægt er að sjá norðurljósin hvar sem er á Íslandi þegar norðurljósakraginn svonefndi er yfir landinu, himinninn heiðskír og myrkt er úti. Stærð og umfang norðurljósakragans er breytilegt og veltur að mestu á virkni sólar og þar af leiðandi sólvindinum. Sé virkni sólar lítil er kraginn venjulega lítill en sé virkni sólar mikil er kraginn venjulega stór og breiður.

02.05.2013Heiti útgáfu: Nordia 2013 – NorðurljósÚtgáfunúmer: 589AHönnuður: Hlynur Ólafsson / Olgeir Andrésson (ljósmyndir)Prentsmiðja: Joh. Enschedé Prentunaraðferð: Offset Litho (CMYK) + Pantone gullStærð frímerkja: 36,20 x 23,68 mmStærð smáarkar: 113 x 70 mmPappír: 196 gsm sjálflímandi pappírVerðgildi: 50g til Evrópu (175 kr.) x 4 = 700 kr.Heildarupplag: 80.000

FRÍMERKJASALANÁ FACEBOOK

Í febrúar 2012 opnaði Frímerkjasalan facebook-síðu fyrir íslensk frímerki. Þar með er Frímerkjasalan komin í hóp fjölmargra póststjórna sem eru á einni stærstu samskiptasíðu heims, facebook eða fésbókinni.

Í þeim hópi eru meðal annarra Færeyjar, Álandseyjar, Mön, Noregur, Indland og Austurríki. Síðan ber heitið Icelandic stamps en þar er að finna áhugavert efni um frímerki og tengdar vörur, fréttir héðan og þaðan, skemmtiefni, myndir af íslenskum frímerkjum og margt fleira. Með þessu viljum við hjá Frímerkjasölunni veita öllum aðgengilegar og áhugaverðar upplýsingar um starfsemina og íslensk frímerki og gefa fólki kost á því að eiga bein samskipti við okkur. Við svörum öllum fyrirspurnum hratt og örugglega og tökum jafnframt við öllum ábendingum með bros á vör. Okkur finnst alltaf gaman að heyra frá viðskiptavinum sem og áhugafólki um íslensk frímerki!

Endilega kíkið við á www.facebook.com/icelandicstamps og takið þátt í fjörinu. Síðan er á íslensku og ensku.