Upload
gaflariis
View
312
Download
0
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Vikublaðið Gaflari sem kom út 6. júní 2014
Citation preview
„Æðislegt að búa til, sýna það alveg eins aft ur og horfa á fólk upplifa það,“
segir Gunnar Björn Guðmundsson, kvikmyndaleikstjóri. Gunnar Björn rifj ar upp mótunarárin í Leikfélagi Hafnarfj arðar og segir frá nýrri íslenskri kvik-
mynd sem gerist í Hafnarfi rði. Gunnar Björn er gafl ari vikunnar.
Hvernig hefur bíllinn það?
Opið: mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00-18.00, föstudaga kl. 8.00-16.30
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Við hjá BJB erum sérfræðingar í dekkjum, pústi, smurningu og fleiru sem viðkemur reglubundnu viðhaldi bíla. Komdu með bílinn í BJB Hafnarfirði og þú færð góða þjónustu og vandaða vinnu.
2012
Tímapantanir í síma
565 1090
Save Water, Drink Beer
HAFNARFIRÐI
BOLTINNÍ BEINNI!
HAPPY HOUR16.00 – 19.00
TILVALINN STAÐURFYRIR EINKASAMKVÆMI
Björt framtíð ótvíræður sigurvegari kosningannaBss4Kíkt í kaffi : Ekki viss um að ég gæti verið í 9-5 rútínuKg8
Viðræður Bjartrar framtíðar Sjálfstæðisfl okks vel á veg komnarVS2
Hafnfi rðingar úti í BikarnumHí11
Frétt ir Umræðan Tilveran Íþrótt irgafl ari.is föstudagur 6. júní 2014 9. tbl. 1. árg.
2 - gafl ari.is
FRÉTTIR Nú hefur Menningar- og lista-
félag Hafnarfjarðar fengið lyklavöldin
í Bæjarbíói. Viðburðarstjóri félagsins,
Kristinn Sæmundsson, lofar líflegu og
skemmtilegu starfi í bíóinu í sumar og
vetur.
Menningar- og listafélagið ætlar að
byrja á því að bjóða börnum á bíósýn-
ingu á laugardaginn. Sýndar verða tvær
kvikmyndir, teiknimyndin Ernst og Celestine kl. 13.00 og mynd eftri Þrá-
inn Bertelsson kl. 15:00. Sá viðburður
er skipulagður í samstarfi við Miðbæj-
arsamtökin sem stendur fyrir Lifandi
laugardegi en þá eru verslanir í miðbæn-
um opnar lengur en venjulega eða til 17.
Kristinn segir að dagana 12. – 17. júní
verði svo opnunarhátíð í félagsins í
Bæjarbíó. „Við ætlum að kynna þver-
sniðið þess sem við ætlum að gera í
sumar. Við stefnum að því að halda tón-
leika einu sinni í viku, djasstónleika einu
sinni í mánuði, vera með tvö standup
í mánuði og svo ætlum við að endur-
vekja gömlu þrjúbíó stemninguna.“
Dagskrá vetrarins er ekki enn full-
mótuð. „Við erum nýbúin að fá lykl-
ana í hendurnar og ætlum að nota
sumarið til að finna út hvað það er
sem bæjarbúar vilja hafa í Bæjarbíói
og vinna út frá því,“ segir Kristinn og
bætir við: „Menningar- og listafélagið
er fúst til samstarfs við listamenn og
vonumst við til að Bæjarbíó laði til sín
listamenn enda er þetta einn fegursti
tónleikasalur á höfuðborgarsvæðinu.
Lifandi laugardagur og frítt í bíó
Símabúðin í Firði hefur heldur bet-
ur breytt um svip. Verslunin flutti
fyrir skömmu úr rúmum 20 fm í
200 fm og er nú komin í plássið
þar sem Ríkið var áður. “Þetta var
nú bara skyndihugdetta hjá okkur
hjónunum eins og flest annað hjá
okkur“, segir Fjóla Halldórsdóttir
og bætir við: „Stærri búð býður
upp á miklu meiri möguleika. Við
vorum löngu búin að sprengja
hitt húsnæðið utan af okkur. Við
höfum smátt og smátt verið að
bæta við þjónustuna og keyptum
t.d. framköllunarvél þegar Hans
Petersen hætti með verslun í
Firðinum.“
Í Símabúðinni er fjölbreytt úrval
af símum og aukahlutum auk þess
sem þar er séð um alla þjónustu fyrir
Símann. „Hjá okkur getur fólk komið
og fengið rádera, sótt um ný númer
og annað sem á þarf að halda.“
Í sumar verður svo einnig rekinn
grillmarkaður í Símabúðinni. „Við
erum með gott úrval af grillum og
öllu því sem tengist grillmennsk-
unni,“ segir Fjóla en hún og maður
hennar, Heimir Ásgeirsson, hafa
rekið Símabúðina frá 2003.
Símabúðin stækkar tífalt
Björt framtíð og Sjálfstæð-isflokkurinn í formlegum viðræðum
Næstkomandi laugardagskvöld 7. júní verða haldnir
tónleikar á Gamla Vínhúsinu. Yfirskriftin er Skriðið út úr skelinni en hugmyndin er að safna saman söngva-
skáldum úr Hafnarfirði en Hafnarfjörður á mikið magn
af hæfileikaríku listafólki. Tónlistaratriði kvöldsins eiga
það sameiginlegt að vera tiltölulega nýskriðin út úr skel-
inni með tónlist sína en fram koma: Sveinn Guðmunds-
son sem nýlega gaf út sína fyrstu breiðskífu Fyrir herra Spock, MacGyver og mig, Ingunn Huld sem útskrifaðist í
fyrra úr FÍH með próf í djasssöng og ætlar að leika frum-
samin lög og svo síðast en ekki síst spánýja tríóið Vít-iskvalir sem samanstendur af Gunnari Erlendssyni, Ívari
Atla Sigurjónssyni og Björk Björgúlfsdóttur.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og standa fram eftir
kveldi. Enginn aðgangseyrir.
Skriðið út úr skelinni: Tónleikar á Gamla Vínhúsinu
Í sumar verður boðið upp á menn-
ingargöngur með leiðsögn um svæðið
umhverfis miðbæ Hafnarfjarðar öll
fimmtudagskvöld kl. 20. Gengið er frá
Hafnarborg eða Pakkhúsi Byggðasafns
Hafnarfjarðar. Fyrsta gangan var farin í
gærkvöld, en þá leiddi Sigurður Hall-
grímsson fyrrum hafnsögumaður gesti
um svæði Hafnarfjarðarhafnar og
segja frá uppbyggingu og sögu hafnar-
innar.
Næsta ganga fer fram fimmtudaginn
12. júní og ber yfirskriftina Eilífur straum-
ur – saga rafmagns og virkjana í Hafnar-
Sumargöngur í Hafnarfirði
firði og þann 19. júní, á kvenréttinda-
daginn, verður gengið um miðbæinn og
sagt frá konum sem settu svip á söguna.
Hver ganga tekur um klukkustund, þátt-
taka er ókeypis og allir velkomnir. Nánari
upplýsingar á hafnarborg.is.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
og Bjartrar framtíðar í Hafnar-
firði hófu formlegar viðræður um
meirihlutasamstarf í bæjarstjórn á
miðvikudaginn. Unnið er að mótun
sameiginlegrar stefnu um málefni
og verklag með áherslu á víðtækt
samstarf allra kjörinna fulltrúa í
bæjarstjórn og er þessi vinna vel á
veg komin.
Björt framtíð fékk tvo fulltrúa
kjörna í bæjarstjórn, eða 19%
atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn
var með mesta fylgi allra flokka,
eða rúm 36% og fimm fulltrúa.
Samfylkingin fékk þrjá menn, eða
um 20% fylgi og Vinstri græn einn
mann.
gafl ari.is - 3
VíkingahátíðVíkingahátíð í Hafnarfirði 13.- 17. júní 2014
Víkingahátíð í Hafnarfirði 13.- 17. júní 2014
Dagskrá Víkingahátíðar 2014
Nú líður að því að 18. hátíðin verði sett og að vanda verður hún fjölbreytt. Dágóður hópur erlendra víkinga kemur til okkar, sumir í 18. skipti. Víkingarnir eru sögumenn, götulistamenn, handverksmenn sem bæði höggva í steina og tré og berja glóandi járn, bardagamenn og bogamenn svo eitthvað sé nefnt. Víkingahópurinn Rimmugýgur og fjöldinn allur af víkingum víðsvegar af landinu hefur boðað komu sína hingað til okkar. Á þriðja hundrað víkingar verða á svæðinu þegar mest lætur og fjölhæfir eru þeir eins og sjá má af upptalningunni hér fyrir framan.
Dansleikir eru fastir liðir meðan á hátíðinni stendur og í þetta skipti er það gamla góða Víkingasveitin okkar sem heldur uppi fjöri fram á nótt. Það
eru þeir bræður Hermann Ingi Hermannsson og Helgi Hermanns ásamt Smára sem spila.
Að lokum vil ég þakka þeim sem stutt hafa þetta framtak í gegnum árin en lógóin þeirra má sjá í dagskránni. Þeir hafa ekki brugðist og eru búnir að standa með okkur í gegnum öll árin og verður þeim seint fullþakkað.
Það er von mín að þessi hátíð eigi eftir að halda uppi merki víkinga og halda áfram að gleðja þá gesti sem á hátíðina koma.
Gleðilega VíkingahátíðJóhannes Viðar Bjarnason
Föstudagur 13. júní13:00 Markaður opnaður13:15 Víkingaskóli barnanna14:00 Bardagasýning14:30 Hljómsveitin Krauka spilar16:00 Bardagasýning17:00 Bogfimi og axakast17:30 Hljómsveitin Krauka spilar19:00 Bardagasýning19:30 Tónlist og söngur við eldstæðið20:00 Lokun markaðar 20:00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum, Víkingasveitin spilar22:30 Tónleikar í Fjörukránni með hljómsveitinni Krauka23:30 Dansleikur með hljómsveit Hermanns Inga, Helga Hermanns og Smára (Gamla víkingasveitin)03:00 Lokun
Laugardagur 14. júní13:00 Markaður opnaður13:30 Víkingaskóli barnanna14:00 Bardagasýning15:00 Sagnaþulir í Hellinum á hótelinu15:30 Hljómsveitin Krauka spilar16:00 Bardagasýning16:30 Bogfimikeppni víkinga17:00 Hljómsveitin Krauka spilar18:00 Hljómsveitin Krauka spilar19:00 Bardagasýning19:30 Tónlist og söngur við eldstæðið20:00 Lokun markaðar
20:00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum, Víkingasveitin spilar22:30 Tónleikar í Fjörukránni með hljómsveitinni Krauka23:30 Dansleikur með hljómsveit Hermanns Inga, Helga Hermanns og Smára (Gamla víkingasveitin)03:00 Lokun
Sunnudagur 15. júní13:00 Markaður opnaður13:30 Víkingaskóli barnanna14:00 Bardagasýning15:30 Hljómsveitin Krauka spilar16:00 Bardagasýning16:30 Bogfimikeppni víkinga17:00 Hljómsveitin Krauka spilar17:30 Sagnaþulir í Hellinum á hótelinu18:00 Hljómsveitin Krauka spilar19:00 Bardagasýning19:30 Tónlist og söngur við eldstæðið20:00 Lokun markaðar 20:00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum, Víkingasveitin spilar22:30 Tónleikar í Fjörukránni með hljómsveitinni Krauka01:00 Lokun
Mánudagur 16. júní12:00 Kraftakeppni, sterkasti fatlaði maður/kona heims12:30 Kraftakeppni, sterkasti fatlaði maður/kona heims13:00 Markaður opnaður13:30 Kraftakeppni, sterkasti fatlaði maður/kona heims13:30 Víkingaskóli barnanna14:00 Bardagasýning
14:45 Kraftakeppni, sterkasti fatlaði maður/kona heims15:00 Hljómsveitin Krauka spilar16:30 Bardagasýning16:30 Kraftakeppni, sterkasti fatlaði maður/kona heims18:00 Víkingasveitin spilar18:30 Bardagasýning19:00 Kraftakeppni, sterkasti fatlaði maður/kona heims20:00 Lokun markaðar 20:00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum, Víkingasveitin spilar22:30 Tónleikar í Fjörukránni með hljómsveitinni Krauka23:30 Dansleikur með hljómsveit Hermanns Inga, Helga Hermanns og Smára (Gamla víkingasveitin)03:00 Lokun
Þriðjudagur 17 júní13:00 Markaður opnaður13:30 Víkingaskóli barnanna14:00 Bardagasýning15:00 Sagnaþulir í Hellinum á hótelinu15:00 Hljómsveitin Krauka spilar16:00 Bardagasýning16:30 Bogfimikeppni víkinga17:00 Hljómsveitin Krauka spilar18:00 Hljómsveitin Krauka spilar19:00 Bardagasýning20:00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum, Víkingasveitin spilar20:30 Lokaathöfn með Gudrunu Vicktoriu og fleiri víkingum22:30 Tónlist í Fjörugarðinum að hætti víkinga01:00 Lokun
Fjölskylduhátíð
Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðu okkar www.fjorukrain.is
Víkingahátíðin er fyrir alla fjölskylduna13. til 17. júní 2014
Víkingamarkaður, handverks- og bardagavíkingar, fornir leikir, glíma, bogfimi og axarköst, fjöllistamenn,
víkingaskóli fyrir börn, víkingatónlist, eldsteikt lamb, víkingaveislur, kvöldvaka
að hætti víkinga, dansleikir og fleira.
HOTEL& Restaurants
GARÐABÆR / ÁLFTANES
Eftir að Víkingahátíðinni lýkur verður haldið til Vestmannaeyja þar sem haldin verður heljarinnar hátíð 20. og 21. júní í samvinnu við Herjólf, Vestmannaeyjabæ og veitingahúsið Vöruhúsið.
4 - gafl ari.is
Útgefandi: Bæjarfréttir ehf. - Kt. 521113-0300 • Ritstjórn og ábyrgðarmenn: Alda Áskelsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Helga Kristín Gilsdóttir & Kári Freyr Þórðarson
([email protected]) • Umbrot & hönnun: Prentun.is • Prentun: Prentun.is - Bæjarhrauni 22 • Ljósmyndari: Helga Laufey Guðmundsdóttir • Upplag: 10.500 eintök
Auglýsingar: Ólafur Guðlaugsson & Tryggvi Rafnsson, sími: 544 2100, netfang: [email protected]
Þegar orðið er
laust er fer hug-
urinn að reika. Af
ótrúlega mörgu er
að taka þegar velja
skal umfjöllunarefni í stutt Hafnar-
fjarðarbréf. Hvar ætti að bera nið-
ur? Hvað er efst í huga? Eru það
nýafstaðnar bæjarstjórnarkosn-
ingar sem ættu að hafa mesta vigt
í svona pistli eða e.t.v. frekar hversu
dræm þátttakan var í kosningunum?
Þrátt fyrir ys og þys og arg og þvarg
stjórnmálanna þá heldur lífið áfram
sinn vanagang og flest eigum við
okkar hversdagsleika sem einmitt
er í hávegum hafður þessa dagana
á snjáldurskjóðunni góðu. Þar deila
vinir og vandamenn hversdags-
myndum sem margar hverjar eru
athyglisverðar, enn fleiri skemmti-
legar og lífga upp á hversdaginn.
Nú nálgast skólalok og nemendur
gera sér dagamun og streyma í vor-
og vettvangsferðir, sér til ánægju
og fróðleiks. Bakarí bæjarins eru
troðfull á hverjum morgni af syfjuð-
um foreldrum sem fóru alltof seint
að sofa af því að það er svo bjart
á kvöldin, því það má jú koma með
sparinesti. Já, vorið er yndislegt,
framundan er sumarið og þá brjótum
við upp hversdaginn sem við erum
svo farin að þrá aftur seint í ágúst.
Hver árstíð hefur sinn sjarma,
njótið vel, nýtið tímann og bjartar
nætur til hins ítrasta.
Helga Kristín Gilsdóttir
Litríkir hversdagarLeiðari ritstjórnar Gaflarans
Flensborgar-skólinn í sóknUmsóknarfrestur um nám í Flens-
borg rennur út á þriðjudaginn og
eru nýnemar sérstaklega boðnir
velkomnir í skólann. Félagslíf skól-
ans hefur verið einkar öflugt að
undanförnu, Morfís lið skólans vann
ræðukeppni vetrarins og Nemenda-
félag skólans gerði nýverið samning
við Gaflaraleikhúsið um uppsetn-
ingu leikverks næsta vetur. Þá er
Íþróttaafrekssvið skólans í miklum
blóma og nýtt frjálsíþróttahús FH
býður upp á enn frekari tækifæri.
Flensborgarskólinn er einnig for-
ystuskóli í verkefninu Heilsueflandi
framhaldsskóli. Kannanir sýna að
stúdentar úr Flensborg standa
mjög vel að vígi í háskólanámi enda
öll aðstaða til náms frábær.
Björt framtíð ótvíræðir sigur-vegarar kosningannaGaflari fékk stjórnmálafræðinginn
Ólaf Þ Harðarson til að rýna í lands-
lagið í Hafnarfirði að afloknum kosn-
ingum.
Ólafi fannst kosningabaráttan al-
mennt hafa verið málefnaleg. “Það
var minna um skítkast og upphrópan-
ir en oft áður. Sumum finnst það dauf-
legt. Menn kvarta oft yfir skítkasti, en
ef það hverfur þá kvarta menn yfir
leiðinlegri kosningabaráttu!
Hvað úrslitin varðar segir Ólaf-
ur mikla tengingu vera á milli taps
Samfylkingarinnar og sigur Bjartrar
framtíðar. “Samfylkingin tapar stórt
í Hafnarfirði - en Björt framtíð fær
hins vegar álíka fylgi í þessum kosn-
ingum og Samfylking tapar. Það er
erfitt aðð segja hvað veldur þessu, en
ég tel mjög ólíklegt að persónuþættir
hafi spilað mikla rullu.”
Ólafur segir Bjarta framtíð vera
ótvíræða sigurvegara kosninganna
í Hafnarfirði. “Þetta er í fyrsta sinn
sem Björt framtíð býður fram í
Hafnarfirði og byrjunin er sannkölluð
óskabyrjun. Björt framtíð vinnur ein-
faldlega glæstan sigur í Hafnarfirði.
Hins vegar er Sjálfstæðisflokkurinn
stærstur, en það er ekki vegna þess
að hann hafi bætt við sig heldur vegna
þess að Samfylking tapar stórt.
Ólafur er varkár þegar hann er
beðinn um að spá fyrir um hvaða
flokkar komi til með að mynda
meirihluta. “Það er engin leið að spá
um það, en ég verð að viðurkenna að
mér finnast tilraunir Bjartrar framtíð-
ar til að mynda engan meirihluta vera
áhugaverðar.”
Að lokum er Ólafur spurður hvort
hann telji að Hafnarfjörður geti ekki
lengur kallast kratabær, eða krata-
bæli eins og hann hefur oft verið upp-
nefndur í gegnum tíðina, eftir stórtap
Samfylkingarinnar nú. “Hafnarfjörður
var kratabær frá 1926 til 1962. En
bærinn hefur alls ekki alltaf verið
kratabær. Kratar voru til dæmis
ekki sterkir í Hafnarfirði frá 1962 til
1986. Þá var Sjálfstæðisflokkurinn
stærstur flokka í bænum og lengst af
í meirihluta með Óháðum borgurum.
En kratar voru hins vegar sterkir frá
1986 til 2014 - en enginn veit hvernig
framtíðin verður.”
Lausamunir á hafnarsvæðinuEigendur lausamuna á hafnarsvæði
Hafnarfjarðarhafnar skulu fjarlægja þá af svæðinu fyrir 16. júní 2014.
Að öðrum kosti áskilur Hafnarfjarðarhöfn sér rétt til að láta fjarlægja þá á ábyrgð
og kostnað eigenda.
Hafnarfjarðarhöfn | Óseyrarbraut 4 | Sími 414 [email protected] | www.hafnarfjardarhofn.is
gafl ari.is - 5
JÚNÍTILBOÐ99 KR.
SNICKERS
1.980 kr./kg1.980 kr./kg129 KR.
LIONPEANUT
2.150 kr./kg2.150 k
199 KR.BURN 0,5 L
398 kr./ltr.
149 KR.SPORT LUNCH
1.863 kr./kg
129 KR.SUN RICE BAR
2.867 kr./kg
149 KR.FANTA 0,5 L
298 kr./ltr.
5 L
tr.
1.863 kr./kg
129 KR.KLEINUHRINGUR
129 kr./stk.
79 KR.CAPRI SONNE
395 kr./ltr.
398
SUN RICE BAR
6 - gafl ari.is
sem ég fann fyrir sýningastressi var
einmitt hér í þessu húsi. Þá lék ég í
Mómó, með Leiklistarfélagi Hafnar-
fjarðar, þarna er ég rétt rúmlega
tvítugur og korter í frumsýningu.
Ég kíkti fram í sal og sá að hann var
stappfullur af fólki, ég fór út í port og
þar var einn félagi minn kófsveittur
og keðjureykti og þá skall einhver
stressbylgja á mig. Annars líður mér
vel á sviði,“ segir Gunnar Björn og
það er greinilegt að honum líður vel
í þessu húsi. Enda þekkir hann hvern
krók og kima og hann hleypur um hús-
ið á meðan hann þusar upp upplýs-
ingum um rár, stokkar, stiga og svalir.
Allt sem var og ef til vill verður á ný.
Gunnar Björn heldur áfram: „Það var
samt aldrei stefnan að verða leikari,
þó það hafi loðað við mig, ég lék síð-
ast á sviði fyrir tveimur árum í Barón
Munchausen í Gaflaraleikhúsinu. En
allan tímann var planið að skrifa og
leikstýra.“
Gaman að búa eitthvað til og horfa á fólk upplifa þaðGunnar Björn er uppalinn hér í Hafnar-
firði og býr hér í Firðinum, ásamt eig-
inkonu og tveimur dætrum. Gunnar
Björn fæddist á Selfossi, en fljótlega
fluttu foreldrar hans, þau Jóna Sig-
ríður Gunnarsdóttir og Guðmundur
Hjörtur Ákason í Fjörðinn, fyrst á
Vangana, svo á Álfaskeiðið. Gunnar
Björn segir að hann hafi ekki smit-
ast af leiklistarbakteríunni heima
fyrir, mamma hans vann lengi vel hjá
Póstinum og pabbi hans var með
gæðaeftirlit á eldsneyti fyrir herinn.
Það var því miklu frekar þetta frelsi
til sköpunar og eldmóðurinn sem ein-
kennt hefur starf Leikfélags Hafnar-
fjarðar alla tíð sem hreif hann með
sér. „Hér fékk ég að prófa allt, lýsa,
leika og leikstýra og ég var m.a.s. for-
maður leikfélagsins um tíma. Ég fékk
að spreyta mig á alls konar störfum
sem er alveg ómetanlegt. Héðan á
ég ótrúlega skemmtilegar minningar
og margir af mínum bestu vinum eru
einmitt frá þessum tíma.“
Gunnar Björn hefur ekki sagt skilið
við leikhúsið því hann hefur í gegnum
tíðina unnið samhliða bæði í kvik-
myndum og leikhúsi. „ En þegar ég
lék í fyrsta sinn í stuttmynd þá vissi
ég að þetta væri það listform sem
mig langaði til að vinna við. Þá var ég í
Verzló og ég hef í raun ekki gert neitt
Gerir bíómynd um tvær gaml-ar konur sem ræna banka í Hafnarfirði
Gunnar Björn Guðmundsson kvik-
myndaleikstjóri hefur lengi lifað og
hrærst í hafnfirsku leiklistarlífi og í
kvikmyndum sínum notað Hafnar-
fjörð sem sögusvið. Nú leggur hann
drög að nýrri íslenskra kvikmynd sem
á að gerast í miðbæ Hafnarfjarðar.
Erla Ragnarsdóttir hitti Gunnar Björn
í Bæjarbíói í dögunum en þar tók
Gunnar sín fyrstu skref í leiklistinni.
Alltaf planið að skrifa og leikstýra „Ég fór fyrst á svið hérna í húsinu á
grunnskólahátíð bæjarins. Lækjar-
skóli var með uppfærslu á Grease,
svona nokkurs konar styttri útgáfu
og þetta var geðveikt stuð. Og ég
fann það strax að þetta hentaði mér,
ég hef alltaf verið athyglissjúkur og
til í að sprella. Fyrsta og eina skiptið
gafl ari.is - 7
GAFLARi VIKUNNAR„Hér fékk ég að prófa allt, lýsa, leika og leikstýra
og ég var m.a.s. formaður leikfélagsins um tíma.
Ég fékk að spreyta mig á alls konar störfum sem er
alveg ómetanlegt. Héðan á ég ótrúlega skemmti-
legar minningar og margir af mínum bestu vinum
eru einmitt frá þessum tíma.“
annað síðan. Mér finnst það æðislegt
að búa til eitthvað, sýna það alveg
eins aftur og horfa á fólkið upplifa
það – það er ótrúleg tilfinning.“
Ævintýrið um Astrópíu og GauragangGunnar stofnaði fljótlega fyrirtæki
með félögum sínum og til að byrja
með snérist allt um að búa til stutt-
myndir. Í því fólst mikil hvatning og
ungu mennirnir voru fljótir að læra að
skiplagning og nákvæm vinnubrögð
skiptu miklu máli, ekki síst þegar kom
að kostnaði við framleiðslu. Á þess-
um árum datt svo fyrsta auglýsingin
í fangið á þeim. „Við vorum beðnir
um að gera auglýsingu fyrir Íslands-
banka, um Georg sparigrís og þá
loksins uppskárum við í samræmi við
erfiðið. Og í framhaldinu gerum við
3-400 auglýsingar og við tekur nokk-
uð stabíl vinna í átta ár. Á sama tíma
geri ég Karmellumyndina mína og í
framhaldi af því bauðst mér að gera
Astrópíu, fyrstu kvikmyndina mína í
fullri lengd,“ segir Gunnar Björn bros-
andi og rifjar upp þetta fyrsta, stóra
tækifæri. „Astrópía var búin að vera í
handritsvinnu í 2-3 ár og hún var orðin
svolítið útþvæld. Ég bað um fyrstu
gerðina og við unnum myndina þaðan.
Myndin kemur síðan út á því herrans
ári 2007 og var gríðarlega vel tekið.
Um 50.000 Íslendingar sáu hana og
hún seldist vel á DVD. Þetta var erfitt
ferli á margan hátt. Ég var þarna kom-
inn inn í Leiklistarskólann og þurfti að
hætta þegar komið var fjármagn til
að framleiða og hún var erfið í tökum,
enda ólík flestum öðrum íslenskum
myndum. Og á frumsýningardaginn
fæddist frumburðurinn, dóttir mín,
sem er sjö ára í dag. Ég rétt náði upp-
klappinu af myndinni og óð á sviðið
án þess í raun að vita hvernig salurinn
var að meðtaka myndina. Þetta var
allt saman mjög eftirminnilegt og
gríðarlega skemmtilegt.“
Þar næst kom Gauragangur, kvik-
mynd byggð á skáldsögu Ólafs Hauks
Símonarson, um ungt fólk og tilraunir
þess til að feta áfram leið þroska,
í leit að ást, vináttu og réttinum til
að vera til. Tökur á henni hófust árið
2010 og var myndin frumsýnd sama
ár. Gauragangur gerist að mestu leyti
að vetri til en myndin var tekin upp í
góðviðrinu sumarið 2010 og það gat
tekið á. Myndin var frumsýnd á annan
í jólum og fékk góða dóma og aðsókn
þó að minna hafi farið fyrir henni.
Sló í gegn hjá eldri borgurumÉg spyr Gunnar með drauminn um
frægð og frama í útlöndum og hann
segist ekkert vera neitt sérstaklega
upptekinn af honum. „Ég hugsa fyrst
og fremst um Ísland og að búa til kvik-
myndir sem gerast hér. Ég hef alltaf
einbeitt mér að markaðinum hér, ef
myndir ganga vel hér heima þá eru
allar líkur á að hún gangi vel erlendis.
Astrópía fór út og gekk vel á svona
óheðbundnum kvikmyndasýningum, á
ævintýramyndahátíðum. Í Kaíró voru
menn t.d. ánægðir með hvað hún var
létt og skemmtilegt, Egyptar voru
greinilega búnir að fá nóg af þungum
myndum og myndin var sýnd fyrir full-
um sal af eldri borgurum í Róm. Ég kom
aðeins of seint í salinn og ég fékk sjokk
– ég hélt ég yrði grillaður þegar kom að
því að sitja fyrir svörum um myndina,
en ítölsku öldungarnir voru þvílíkt ham-
ingjusamir með hana og virtust vera að
upplifa ungdóminn aftur.
Heilt kjörtímabil með SkaupiðÞegar Gunnari Birni var boðið að gera
Skaupið sló hann til, enda að mörgu
leyti það gamanefni sem vekur mesta
athyglina hér á landi. „Þetta er auð-
vitað stærsta sviðið hér á landi, á
gamlárskvöld, á sjónvarpsskjánum
heima í stofu hjá Íslendingum. Um
90% þjóðarinnar er að horfa, en á
sama tíma er tilvalinn staður til að
verða tekinn á lífi. Mér fannst þetta
geðveikt tækifæri og það er í raun
fáranlegt að þora ekki í þennan slag.
Og við gerðum þetta fjórum sinnum.
Þegar til stóð að gera Skaupið í annað
sinn, þá þurfti maður aðeins að hugsa
sig um, en létum svo tilleiðast. Ég sé
ekki eftir því.“
Eins og að komast í landsliðiðOg Hafnfirðingar sem og aðrir Ís-
lendingar muna sjálfsagt vel eftir
Skaupunum hans Gunnars.Þetta eru
skaupin eftir bankahrun þar sem
sungið er um Ólafs Ragnars stæl
og Djöfulsins snillinga, villuráfandi
stjórnarleiðtoga á ferð um landið
á stórum amerískum kagga og ör-
væntingarfull börn sem óttuðust
örlög þjóðarinnar. Þar sem Gunnar
Helgason leikari og einn af hand-
ritshöfundum Skaupsins fór m.a. á
kostum í hlutverki Jóns Bjarnasonar,
þáverandi ráðherra og Anna Svava
Knútsdóttir, einnig handritshöf-
undur, komst á kortið sem ein af
okkar helstu gamanleikkonum. „Ég
er gríðarlega ánægður með þau öll.
Það er sami tónn í þeim öllum og ef-
laust voru margir kátir með það. En
þetta er alveg einstakt form og alveg
gríðarlega mikilvægt, þetta er svona
eins og að komast í landsliðið, miklar
væntingar, engir peningar og stuttur
tími sem við höfðum til stefnu hverju
sinni. Við vildum vera up to date og
vorum því með handritsvinnufundi
fram á síðasta dag og skutum fram til
17. desember og svo var bara stokkið
af stað og fyllt í hólfin. Og þetta er
alveg gríðarlega mikilvægt form sem
ég vona að úreldist ekki. Maður hefur
áhrif, enda að gagnrýna hluti – það
hefur áhrif. Þetta er svona eins og á
þorrablótum úti á landi, menn gera
mistök, það er tekið fyrir á blóti og þá
eru allir búnir að fyrirgefa.“
Ný íslensk bíómynd á teikniborðinuGunnar Björn leikstýrir í dag norskri
teiknimyndaþáttum um björgunar-
bátinn Elías. Þetta er stórt og mik-
ið verkefni og hefur gunnar Björn
verið önnum kafinn síðasta árið við
framleiðsluna. Þættirnir eru að vissu
leyti alþjóðlegir, eru norskir þættir-
skrifaðir í Bretlandi, framleiddir hér
á landi. Þættirnir sem eru alls 52 eru
nú í sýningu í Noregi og verða eflaust
sýndir hér á næstunni. Gunnar Björn
hefur einnig tekið að sér að leikstýra
leikfélögum út á landi og það var
einmitt í einni slíkri vinnuferð austur
á Hérað, þar sem Gunnar Björn leik-
stýrði uppfærslu Leikfélags Fljóts-
dalshéraðs á Kardimommubænum,
sem vinan við nýja íslenska kvikmynd
hófst .
„Ég er að skrifa nýja mynd um
tvær gamlar konur sem ákveða
að ræna banka í Hafnarfirði og fer
hún vonandi í vinnslu á næstunni.
Þær eru háaldraðar þessar tvær og
kostulegar og vantar greinilega til-
breytingu í lífið og svo flækist fyrir
þeim ungur og metnaðarfullur rann-
sóknarlögregluþjónn,“ segir Gunnar
Björn hlæjandi og segir að nú megi
hann ekki segja meira og ég verð
að virða það. En eru tækifærin í ís-
lenskri kvikmyndagerð óþrjótandi?
Já, ég held það. Ég held að fólk vill sjá
íslenskt efni og íslenskar bíómyndir.
Allar áhorfstölur undanfarin ár hafa
verið með íslensku efni. Ég get nefnt
margar myndir sem hafa verið að
virka, eins og Svartur á leik og nú
Vonarstræti. Þetta eru myndir fyrir
fólk á bíóaldri. Þetta er ekki auðvelt,
það er mikil samkeppni og oft erfitt
að ná í fjármagn, en ef þú ert með
gott efni þá gengur þetta vel. Þetta
er bara eins og öll verktakavinna, þú
þarft að gefa allt þitt í þetta. Ég hef
svo ofboðslega gaman af þessu, en
eflaust er þetta ekki fyrir alla. Mað-
ur veit ekki alltaf hvað verður næsta
verkefni – en svoleiðis er bransinn.
Á meðan maður vill gera eitthvað
og hefur eitthvað að segja að þá er
þetta þess virði. Og rúmlega það.“
8 - gafl ari.is
Auglýsingasími Gaflara544 2100
TILVERAN
Menntun? BA-próf í bókasafns- og upplýsingafræði, master í mannauðsstjórnun og kennslu-réttindi.
Hvaða bók er á náttborðinu? Engin bók eins og er.
Eftirlætis kvikmyndin? Erfitt að velja eina en ég hef einstaklega gam-an af að horfa á íslenskar myndir og fer helst á þær allar í bíó, fór síðast á Vonarstræti.
Play-listinn í ræktinni? Mín líkams-rækt felst í að ganga. Fer c.a. 3-4 sinnum í viku í langa göngutúra með vinkonum mínum. Það er ekki pláss fyrir músík því við tölum svo mikið.
Hvers vegna Hafnarfjörður? Mað-urinn minn er Hafnfirðingur og dró mig hingað, kann bara vel við mig og hér er líka fallegt.
Eftirlætis maturinn? Lambalæri hjá mömmu er best en ég er líka mikið fyrir fisk.
Eftirlætis heimilisverkið? Mér finnst ekki alslæmt að skúra.
Helstu áhugamál? Vera með fjöl-skyldu og vinum, útivera, ferðalög og ég hef gaman af að horfa á góðar bíómyndir. Er aðeins að spreyta mig í golfi og það gæti komið sterkt inn á næstu árum.
Það sem gefur lífinu gildi? Fjöl-skyldan og vinirnir, njóta augnabliks-ins og þess sem maður hefur og að gefa af sér.
Hvers vegna flugfreyja? Flugfreyju-draumurinn kviknaði þegar ég var unglingur og ég er þakklát fyrir að fá að vinna við það sem mér finnst skemmtilegt. Það hentar mér að vera á ferð og flugi og vaktavinna á vel við mig. Ég er ekki viss um að ég gæti verið í 9-5 rútínu. Starfið er svo heillandi á margan hátt en það er líka krefjandi oft og tíðum.
KÍKT Í KAFFI Marta Jóhannsdóttir flugfreyja hjá Icelandair hefur í nógu að snúast. Hún gaf sér þó tíma til að setjast niður þegar Gaflarinn kíkti í kaffi til hennar á dögunum.
Flugfreyjudraumurinn kvikn-aði þegar ég var unglingur
Skemmtilegast við starfið? Allt fólkið sem maður vinnur með og það að allir vinnudagar eru ólíkir gerir starfið skemmtilegt.
Erfiðast við starfið? Ég er ekki mik-il morgunmanneskja þannig að erfið-ast finnst mér að vakna eldsnemma. Set það þó ekki fyrir mig og geri það með glöðu geði.
Skondin saga úr vinnunni? Ég hef lent í mörgum skondnum atvikum og flestum vil ég ekki segja frá. Get þó látið það flakka að einu sinni fyrir
allmörgum árum gekk ég galvösk um Leifsstöð eftir flug og flaug svona skemmtilega á hausinn. Féll ég al-veg kylliflöt en stóð upp á methraða með aðstoð samstarfsfélaga, get hlegið að þessu í dag enda meiddist ég ekki.
Síðasta sms-ið? Sækirðu mig? Gauji, eiginmaðurinn
Siðasti facebook status? Hvers-dagsmynd 2 - matur hjá múttu.
Á föstudagskvöldið var ég? Heima hjá mér i rólegheitum
Hollráð SteinarsVæta í veðri undanfarna daga hef-
ur gert það að verkum að gróður-
inn sprettur upp sem aldrei fyrr.
Vinnuskólinn er kominn á stjá við
sláttur og nú er kominn tími til að
setja niður sumarblóm. Steinar
hjá Skógræktinni gefur lesendum
Gaflarans góð ráð fyrir garðinn.
Sumarblóm: Flest sumarblóm
eru viðkvæm fyrir frosti. Enn er
hætta á næturfrosti. Þó eru sumar
tegundir sumarblóma harðgerðari
en aðrar hvað þetta varðar eins
og t.d. stjúpur, fjólur, fagurfífill
(Bellis), silfurkambur, möggubrá
og morgunfrú. Nota má akrýl yfir-
breiðsludúk til að verja sumarblóm
fyrir kulda. Einnig borgar sig að
vökva vel ef hætta er á nætur-
frosti þar sem varmi losnar þegar
vatn frýs.
GAFLARI MÆLIR MEÐ...
…að kaupa sér nýjan kjól fyr-
ir sumarið hjá
AndreA bout-iqe á Strand-
götunni. Nýja línan sem AndreA
sýndi á dögunum í Hafnarborg,
innblásin af diskódrottningunni
Díönu Ross, er hressandi og litrík.
Og hvað er betra en að geta keypt
sér hátískufatnað í Hafnarfirði?
… h j ó l r e i ð -um. Hjól er vel
hægt að nota
sem aðalfarar-
tæki heimilis
og fjölskyldan getur sameinast í
styttri og lengri hjólreiðatúrum.
Og í upphafi sumars er tilvalið
að heimsækja snillinga í Hjóla-spretti til að yfirfara hjólið, græja
hjóladressið fyrir sumarið nú eða
splæsa í nýtt hjól.
gafl ari.is - 9
Utanvegahlaup um uppland Hafnarfjarðar á Hvítasunnu
Að vökva lestrarblómin – eða láta þau visna
AÐSEND GREIN Skokkhópur Hauka
og Sportís efnir til Hvítasunnu-
hlaups í annað sinn. Hlaupið verður
um upplönd Hafnarfjarðar annan í
hvítasunnu, þann 9. Júní 2014. Í fyrra
tók mikill fjöldi hlaupara þátt í hlaup-
inu, þar á meðal margir af fremstu
hlaupurum landsins. Í ár hafa boðað
komu sína flestir af sterkustu kven-
og karlutanvegahlaupurum landsins,
meðal annars sigurvegarar á síðasta
ári í Hvítasunnu-, Laugarvegs-, Esju-
og Snæfellshlaupi auk þess sem sig-
urvegari í 21 km í Reykjavíkurmara-
þoni mun taka þátt.
Í fyrra heppnaðist hlaupið
einstaklega vel og mikil ánægja var
með hlaupið í heild sinni. Margir voru
heillaðir af hlaupaleiðinni sem liggur
um einstaka náttúruperlur Hafnar-
fjarðar í nágrenni Hvaleyravatns og
hefur hlauparinn stórkostlegt útsýni
allt frá því að hann leggur af stað og
þar til hann kemur í mark. Í ár verður
sú breyting á framkvæmd hlaupsins
að boðið er upp á tvær vegalengdir,
annarsvegar 17,5 km eins og áður
auk þess sem sú nýjung verður að
nú verður boðið upp á 14 km leið
þar sem erfiðleikastigið er minnkað
mikið. Mikil áhersla verður lögð á
merkingar á hlaupaleiðinni.
Lagt er af stað frá Ásvöllum,
íþróttasvæði Hauka í Hafnarfirði.
Hlaupið er um svæði skógrækt-
ar við Ástjörn, Hvaleyrarvatn og
Stórhöfða. Þeir sem kjósa styttri
vegalengdina hlaupa þó ekki um
Stórhöfða og ætti sú leið að vera á
færi flestra hlaupara. Þorri leiðar-
innar liggur um góða stíga. Tvær
drykkjarstöðvar verða á leiðinni
þar sem boðið verður uppá Power-
ade-orkudrykk og vatn.
Heimasíða hlaupsins er hvita-sunnuhlaup.is en þar má meðal
annars sjá myndbandsupptöku af
allri leiðinni. Einnig má finna upplýs-
ingar um hlaupið á facebook undir
“Utanvegarhlaup á hvítasunnu”.
Skráning í hlaupið er hafin á
hlaup.is. Allir þátttakendur geta
unnið stórglæsileg útdráttarverð-
laun en meðal verðlauna eru sex pör
af hlaupaskóm frá Asics. Sportís er
aðalstyrktaraðili hlaupsins.
Fjöldi sjálfboðaliða koma að
hlaupinu. Sjálfboðaliðum verður
skipt í hópa og munu hlauparar að
hlaupi loknu velja úr besta sjálf-
boðaliðahópinn. Heyrst hefur að
sjálfboðaliðar taki keppninni mjög
alvarlega og hafa meðal annars
boðað plötusnúða á staðinn.
Pétur Svavarsson Skokkhópur
Hauka
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDSðurh 5, Rv 5 1 00 t n
Sverrir Einarsson
Kristín Ingólfsdóttir
HinrikValsson
Í starfi mínu sem talmeinafræðingur
og sérkennari hef ég oft orðið vitni
að því að lestrarfærni nemenda hefur
hrakað yfir sumarmánuðina og nem-
endum farið aftur í lestri. Einkum er
hætta á þessu þegar nemendur hafa
glímt við lestrarerfiðleika en þá getur
bakslagið jafnvel orðið það mikið að
lestrarfærni að hausti (í atkvæðum
talið) stendur á sama stað og í byrjun
árs. Það þýðir í raun að heil önn hefur
tapast. Til að koma í veg fyrir þetta er
einfalt ráð: Að börnin lesi að jafnaði
u.þ.b. tvisvar í viku yfir sumartímann.
Tilmæli frá kennara vega þungt og
veit ég um marga kennara sem nesta
sína nemendur með fyrirmælum
um að lesa heima yfir sumartímann.
Margir setja upp umbunarkerfi og í
sumum skólum hafa verið settar af
stað lestrarkeppnir milli bekkja til að
ýta undir sumarlestur.
Í lestrarfræðunum er gjarnan
talað um Mattheusaráhrifin, en
það er hugtak sem er notað til að
skýra hvað á sér stað þegar börn
ná ekki tökum á lestrinum í byrjun.
Þá er hætta á að bilið milli þeirra og
barna sem ekki glíma við erfiðleika
eigi eftir að breikka. Þarna er verið
að vísa í söguna um ríka manninn í
Mattheusarguðspjalli, en þar kem-
ur fram að þeir ríku verða ríkari og
þeir fátæku fátækari. Þeir sem ekki
eru í erfileikum halda áfram á sinni
braut og taka stöðugum framförum í
lestri, hins vegar er hætta á að lestr-
arerfiðleikarnir hægi á framförum
hjá þeim sem við þá glíma. Ef ekki er
veittur góður stuðningur frá upphafi
er hætta á að barnið upplifi vanmátt
og verði smám saman afhuga lestri.
Það dregur úr lestrarþjálfun, barnið
lendir í vítahring neikvæðra viðhorfa
og tekur litlum framförum. Bóklestur
eflir orðaforða og bætir málskilning
og því dragast þessi börn einnig aftur
úr hvað varðar málþroska.
Ég hvet foreldra allra grunnskóla-
barna til að huga að því að lestrar-
blómin fái áfram næringu í sumar
þannig að þau geti haldið áfram að
vaxa og dafna. Notið ykkur frábæra
þjónustu Bókasafns Hafnarfjarðar
eða leitið til umsjónarkennara barna
ykkar um heppilegt lesefni fyrir sum-
arið. Komum þeim boðum til barn-
anna okkar að það sé gaman að lesa
skemmtilegar bækur og að lestrar-
stundir séu góðar samverustundir.
Bjartey Sigurðardóttir, talmeina-
fræðingur á Skólaskrifstofu Hafnar-
fjarðar
Ljósmyndari ©Sigurjón Pétursson
10 - gafl ari.is
Sweet salat
UNDIR GAFLINUM
MATUR Þetta salat er algjörlega
sumar á diski. Það er dásamlegt
að fá sér ferskt og gott salat og
mangóið er algjörlega ómissandi
sérstaklega þegar maður er svo
heppinn að hitta á það alveg rétt
þroskað. Auðvitað má alltaf
breyta þessu salati og bæta eftir
smekk hvers og eins. Stundum
rista ég kasjúhneturnar á pönnu en
það er alls ekki nauðsynlegt.
3 kjúklingabringur skornar í bita
1 mangó
1 poki spínat
1 lúka saxað kóríander
1 pakki konfekt-tómatar
1 rauðlaukur
1 poki ferskur mozzarella ostur
kasjúhnetur
Skemmtilegir pennar leggja Gafl ara lið.Þeir fj alla um ólík málefni og áhugamál, s.s. heilsu, dýramál, tísku og lífstíl, mat, sögu og Hafnfi rðinga í útlöndum skrifa
heim. Á gafl ari.is birtist svo í hverri viku nýr og skemmtilegur pistill eft ir hvern þeirra.
salt og pipar
kjúklingakrydd(ég nota Nicolas Vahé kryddið)
sweet chilli sósa
Skerið kjúklingabringurnar í bita
og steikið á pönnu, kryddið með
salti og pipar og kjúklingakryddi
og þegar kjúklingurinn er steiktur í
gegn þá er gott að hella sweet chilli
sósunni yfir og blanda vel saman.
Setjið spínatið í skál eða á disk,
dreifið kóríander yfir, skerið rauð-
laukinn í litla bita og dreifið yfir og
skerið síðan mangóið og tómatana
í bita og bætið saman við. Síðan
er gott að rífa niður mozzarella
ostinn og setja yfir, bæta síð-
an kjúklingnum við og að lokum
dreifa hnetunum yfir. Ef maður
vill hafa sósu með svona aðeins til
að bleyta betur í þessu er gott að
dreifa smá balsamik síróp yfir og
jafnvel blanda saman svona eins og
1 dl sweet chilli sósunni saman við
2 msk af sýrðum rjóma til að hafa
með.
Lolý
Kæru Hafnfirðingar,
Þökkum fyrir samstarfið á liðnu kjörtímabili
og stuðning ykkar í nýafstöðnum kosningum.
Hlökkum til áframhaldandi samvinnu á komandi kjörtímabili.
www.vinstrid.is
gafl ari.is - 11
ÍÞRÓTTIRAuglýsing 93x25 mmAuAuAuAuAuAuAAuAuAuAAuAuAAuAuuuuAuAAuAuAAAAAuAuuuuAuAAAAAuuuuuAuAuAAAAuuuAuAAAAuAAuAuAuuAuAuAuAAAAAAuAuuAuAAAAAAAAAAAuAuAuAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAuAuAuAAAAAAAAAAAAAAAAAAuAAAAAAAAAAAAAAAAAuuAuAAAAAAAAAAuAuuAuAAAuAuAuAuAuAuAuAuuuuuuuuuuuuuAuAuuuuAuuuuuuuuAuuAuAuAuuuuuAuAuuAuAuAuuAAAAuAAAuAuAAAAuAuuuuAAuAuAuAAAuuuuuuuuuAuAAuAuAuAuuuuuuuuAAAAuuuuuuuuAuAuuAuuuuAuAuuuuAAAAuAuAAuAAuuuuuAAAuAAAuuAAAuAuuAAAuAAAuuuuuuuuggggggggglggglglgllglggggglglglgggggggllglllgggglglgllggggggggglglglgggggggglglggggggglggggggglgglglglglgllggggggglglgllggglglgggggglgllglgggglgglgllgggglgllgggggggglggggggggggggggggggglglglgggggglglgggggggggglgggggggggggggggglgggggggggggggglggggggglgggglglgggglglggglggggglgglglglglggggglglggggglggggllggggllgglgglgllgllgggggllggglllgggggllgggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggg ýýýýýýýýýýýýýsýsýýýýýýýýýýýýýsýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýý iiiiiiininnnnnnnnnnniiiiiinnnniiinnnniiinnnniiininnnnnnnnnnniiniinnnnnniinnnniinnnnnininniinnnniinnnnnnninnnnnnnnnnniinnnnnnnnnnnnnnnnnnniinnniinnniiinnnniiiiiiinnnniiiiiinnniiiiiiiinnnnnniiiiiiiiinnniiiiiiiinnnggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggg
33333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333333x2x2xxx2xx2x2x2x2x2x2xxx2x2xx2xx2x2xx2x2x2x2x2x2xx2x2x2x2x 555555555555555555AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA99999999999993939939399999939999999933999999999999999999999993999399399399939993999999999393999999999339999999999999399999999999999939999999999999999999999999993999999999999999993393999999999999993999999993399999999339999999999999993999999339999999999999999999999999999999999999999999
Frétta- ogmannlífsvefurinn
ýsýýsýsýsýýýsssýsssssýsssssssssýssýssýsýsýsýssýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýýý iiiiiiiiinnnnnnnnnnnnnnnnniiiiinnnnnnnnnnnnnnnininiiniiiinnnnnnnnnnniiiiinnninnnniiiiiinnnnnnnnnniiiinnnnnnnniiiiinnnnnnniiiiiiinnnnnnnniiiiiininnnnnnniiiiiii ggggggggggggggggggggggggg ggggggggggggggggggggggggg g g g g ggggggggg gg ggggggggggg ggggggg gggggg ggggg gg ggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggg5 5 55 555555 555555555555555555555 mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
32-liða úrslit í Borgunarbik-
ar karla lauk í síðustu viku en
Hafnfirðingar áttu þrjú lið sem
voru komin þar áfram. FH-ingar
mættu KR-ingum, ÍH fengu
Þórsara í heimsókn og að lok-
um fóru Haukar til Vestmanna-
eyja þar sem þeir kepptu gegn
liði ÍBV. Skemmst er frá því að
segja að öll liðin þurftu að lúta
í lægra haldi og er því ekkert
lið frá Hafnarfirði sem kemst
í 16-liða úrslitin. FH-ingar töp-
uðu naumlega 0-1 gegn KR-
ingum þar sem að ljúfmennið
Jón Ragnar Jónsson fékk að
líta rauða spjaldið. ÍH-ingar
töpuðu 1-5 á Schenkervellin-
um en það verður að hrósa ÍH-
liðinu fyrir fína spilamennsku
þar sem þeir stóðu lengi vel
í Pepsi-deildar liði Þórsara.
Haukar töpuðu svo illa 0-3
gegn ÍBV þar sem að Sigurður
Ragnar Eyjólfsson vann sinn
fyrsta leik í sumar með ÍBV-
liðinu. Enginn Borgunarbikar í
fjörðinn en við vonum þá bara
að aðrir stærri bikarar endi í
Firðinum í lok sumars.
Bikar-draumur Hafnar-fjarðar úti
HANDBOLTI Um síðustu helgi var
„Final four“ helgin í Meistaradeild
Evrópu í handboltanum. Hafn-
firðingarnir og fyrrverandi FH-ingarn-
ir Aron Pálmarsson og Ólafur Gúst-
afsson spila með Kiel og Flensborg
en þessi lið mættust í úrslitaleiknum.
Leikurinn var æsispennandi og voru
lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel
með yfirhöndina í hálfleik 16-14. Með
frábærri markvörslu náðu leikmenn
Flensborgar að sigla fram úr og upp-
skáru að lokum tveggja marka sigur
30-28. Ólafur Gústafsson tók ekki
þátt í leiknum en er engu að síður í
liði Flensborgar og fagnaði því fyrsta
Evrópumeistaratitli sínum. Aron
Pálmarsson var frábær í liði Kiel og
var valinn besti leikmaður úrslita-
keppninnar. Frábær árangur hjá Aroni
og Ólafi og við hjá Gaflaranum óskum
þeim að sjálfsögðu til hamingju með
frábæran árangur.
Frábær árangur hjá hafn-firskum handboltamönnum
ÍSLANDSMÓTIÐ Í KNATTSPYRNU
FH-stúlkur FaxaflóameistariHANDBOLTI 4.flokkur kvenna hjá
FH varð á dögunum Faxaflómeistari.
Stúlkurnar hafa spila nokkuð vel í vet-
ur og eru margir gríðarlega efnilegir
leikmenn í liðinu. Alls spiluðu stelpurn-
ar 6 leiki í Faxaflóamótinu og unnust
þeir allir með talsverðum yfirburðum.
Stelpurnar skoruðu 33 mörk í þessum
sex leikjum og fengu aðeins 6 mörk á
sig. Liðið er því alls líklegt í Íslands-
mótinu í sumar en 4.flokkur kvenna
hjá FH mun senda þrjú lið til keppni í
Íslandsmótinu í ár. Sannarlega björt
framtíð hjá Fimleikafélaginu.
NÚ Í FULLUM GANGIÍ FIRÐINUM
FRÁ 6. JÚNÍ TIL 22. JÚNÍ OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 TIL 18
12 - gafl ari.is
Aron PálmasonHandboltamaðurAron Pálmarsson var um síð-
ustu helgi valinn besti leikmaður
Meistardeildar Evrópu. Á dögun-
um undirritaði Aron þriggja ára
samning við ungverska liðið
Veszprém. Aron stendur upp úr
þessa vikuna.
Aron er fyrst og
fremst rosalega
flottur strákur sem
ég er óendanlega
stolt af. Hann er mikill karakter
sem elskar að gefa af sér, gefa
gjafir og koma okkur hinum á
óvart. Aron er næstum því óþol-
andi stundvís og alveg ferlega
morgunfúll en bætir það upp eftir
klukkan tólf með gleði og góðri
nærveru. Arndís Heiða Einarsdótt ir, móðir
Arons
Aron er stundvís,
metnaðarfullur og
vill alltaf vinna sem
hann gerir reyndar
næstum alltaf. Hann er myndar-
legur, skynsamur og traustur en
vill lítið láta tala við sig þegar
hann er nývaknaður, það er ekki
mikið fyrir okkar mann. Svo er
Aron kurteis og hrikalega góður
vinur sem er alltaf til staðar og
ekki má gleyma að hann er með
sex grjótharða vöðva á magan-
um. Stefán Rafn Sigurmannsson, vinur
Arons
Borghildur Sturludóttir, arkitekt.Ég vona að helgin byrji
á fimmtudagskvöldið,
setjumst niður með börnunum og heyr-
um þeirra óskir. Þetta er fyrsta helgin í
langan tíma þar sem fundarhöld, kosn-
inga“bingó“, vinna eða sundmót eru ekki
á dagskrá. Á föstudaginn eru skólaslit
hjá elstu börnunum og það þýðir von-
andi súkkulaðikaka og ísköld mjólk í
kaffitímanum. Laugardagur verður von-
andi hjóladagur en 5 ára eintakið er að
æfa sig og hoppum á trampólíni á milli
æfinga. Sund verður vonandi á dagskrá
og góður matur með áherslu á eftirrétti.
Einhversstaðar þarna á milli þarf að ráð-
ast á fjall af þvotti sem hefur ekki ratað
á rétta staði sl. 3 vikur, versla og ryksuga
en það fær að mæta algjörum afgangi.
Heiðar Bergmann Heiðarsson, fulltrúi í markaðs og vörustjórn BYKO.
Á föstudaginn hitti ég félagana á bar í
höfuðborginni og við ræðum úrslit kosn-
inganna og þær afsakanir sem við þurfum
að hafa á takteinum fyrir HM-veisluna
sem byrjar fljótlega. Laugardagurinn fer
allur í klippivinnu fyrir heimildamynd sem
ég er að gera um ,,Vallargerðisvöll,, sem
var fyrsti knattspyrnuvöllur Breiðabliks.
Pakka niður fyrir frúna á laugardagskvöld
þar sem hún leggur í söngferðalag með
Kammerkór Hafnarfjarðar á sunnudags-
morgun. Á sunnudag fer ég í golf með hópi
æringja úr Hafnarfirði og Vestmanna-
eyjum, skrepp svo í eftirmiðdagskaffi til
foreldranna. Loka helginni í heitu baði og
stelst í baðkúlur frú Sigrúnar.
STENDUR UPP ÚR
HELGIN MÍN
helgi í öllum verslunum Fjarðar
Tax FreeFrá fimmtudegi til laugardags
3490 kr.verð áður 4990 kr.
1190kr.verð áður 1890 kr.
1190 kr.verð áður 1690 kr.
30%afsláttur
37%afsláttur
Humar
Djúpsteiktir Cammenber
Sumar-hamborgari
Júní tilboð!
hársnyrtistofa
– í miðbæ Hafnarfjarðar
30%afsláttur
Combi Camp í Firðikíktu við!
- Tax Free í öllum verslunum.- Combi Camp sýning.- Markaðsbásar á jarðhæð.- Grillmarkaður á jarðhæð.- Ódýri tónlistar- og DVD markaðurinn opnar á 2. hæð.
Á lifandi laugardag:- Opnun á Litla róló í bakgarði Fjarðar.- Skottsalan í bakgarði Fjarðar.- Andlitsmálun á II hæð frá 13-15.
Dagskrá í Firði:
NÝTT
NÝTT