24
Klæðningar Þekking, reynsla og fagmennska – Við fylgjum þér alla leið

Klæðningar

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Ýmsar tegundir klæðninga frá BYKO

Citation preview

Settu þig í samband við söluráðgjafa BYKO og njóttu dyggrar leiðsagnar reynslumikilla sérfræðinga á sviði húsaklæðninga. Við tökum vel á móti þér!

Þarfnist þú ráðgjafar meðan á framkvæmdum stendur eru ráðgjafar BYKO aldrei langt undan.

Ánægður viðskiptavinur skiptir okkur miklu máli. Þegar þú byggir með BYKO tryggir þú þér gæði á lægra verði.

Áður en þú sækir ráðgjöf hjá BYKO skaltu undirbúa þig vel. Finndu til allar teikningar er verkið varða. Ef um endurbætur er að ræða er mjög gott að hafa ljósmyndir meðferðis. Hafðu myndirnar fleiri en færri.

KlæðningarKlæðningarÞekking, reynsla og fagmennska– Við fylgjum þér alla leið

Þekking, reynsla og fagmennska– Við fylgjum þér alla leið

Áður en þú sækir ráðgjöf hjá BYKO skaltu undirbúa þig vel. Finndu til allar teikningar er verkið varða. Ef um endurbætur er að ræða er mjög gott að hafa ljósmyndir meðferðis. Hafðu myndirnar fleiri en færri.

Settu þig í samband við söluráðgjafa BYKO og njóttu dyggrar leiðsagnar reynslumikilla sérfræðinga á sviði húsaklæðninga. Við tökum vel á móti þér!

Þarfnist þú ráðgjafar meðan á framkvæmdum stendur eru ráðgjafar BYKO aldrei langt undan.

Ánægður viðskiptavinur skiptir okkur miklu máli. Þegar þú byggir með BYKO tryggir þú þér gæði á lægra verði.

Byggingaráðgjöf

Það er stefna BYKO að ráða ávallt

faglært fólk til starfa svo að viðskipta-

vinurinn njóti faglegrar ráðgjafar og

góðrar þjónustu. Hjá fyrir tækinu

starfa tæknifræðingar sem sérhæfa

sig í að veita ráðgjöf um húsbyggingar.

Þeir reikna út efnisþörfina, leysa

einangrunarvandamál, hjálpa til við

efnisval og leitast við að svara þeim

spurningum sem hús byggjand inn

kemur til með að standa frammi fyrir.

Við hvetjum þig til að nýta þér

þjónustu byggingaráðgjafanna og

munu þeir annast alla tilboðsgerð fyrir

þig. Það mun spara þér fé og óþarfa

fyrirhöfn og jafnvel forða þér frá

óþarfa vandamálum sem upp kunna

að koma á byggingatímanum.

Áhöldin

LM-BYKO – Leigumarkaður BYKO

kapp kostar að bjóða ávallt mesta úrval

landsins af tækjum og tólum fyrir

framkvæmdafólk. Kynntu þér nánar

þá fjölmörgu kosti sem stærsti

leigumarkaður landsins hefur upp á

að bjóða á www.byko.is

Það gildir einu hvort þú kýst að

kaupa áhöldin eða leigja. Þú munt

án efa finna það sem þig vantar til

framkvæmdanna hjá BYKO.

Viðskiptaráðgjöf

Í viðskiptaráðjöf BYKO færðu allar

upplýsingar um reikningsviðskipti og

þá lánamöguleika sem í boði eru. Þar

færðu jafnframt Viðskiptakort BYKO

sem auðveldar þér að eiga viðskipti

við okkur, en kortið gildir jafnframt

til úttektar í ELKO, Intersport og

Húsgagnahöllinni.

Í viðskiptaráðgjöfinni er lögð

áhersla á góða þjónustu og skjóta

afgreið slu mála. Opnunar tími er frá

kl. 08:00 til 18:00. Þér er velkomið að

hafa samband í síma 515 4000.

Fylgstu með stöðunni

Þjónustuver á heimasíðu BYKO:

Til að auðvelda viðskiptavinum okkar

að fylgjast með viðskiptum sínum geta

þeir fengið aðgang inn á sitt eigið

svæði á heimasíðu BYKO. Þar er hægt

að nálgast reikningsyfirlit, einstaka

reikninga og fara yfir afsláttarkjör. Þar

er einnig vöruskrá BYKO o.fl. Sækja

þarf um aðgang hjá viðskiptaráðgjöf

BYKO og við sendum aðganginn um

hæl.

Heimasíða BYKO – www.byko.is

Á vandaðri og aðgengilegri heimasíðu

BYKO má auk þjónustuvers finna

ýmislegt sem getur komið þér að

notum í þeim verkefnum sem þú ert

að fást við hverju sinni. Kíktu inn á

www.byko.is og sjáðu hvað er í boði

og fylgstu með tilboðum.

Gátlisti

Svona skaltu bera þig að áður en hafist er handa:

Komdu í heimsókn til okkar

hjá BYKO og kynntu þér alla þá

fjölbreyttu möguleika sem eru í

boði hverju sinni. Sölumenn og

ráðgjafar taka vel á móti þér og

leiðbeina þér í vali á úrlausnunum

sem þú leitar að.

Þegar þarfi r þínar eru

orðnar ljósar og hugmyndir farnar

að skýrast skaltu leita til arkitekts.

Arkitekt mun hjálpa þér að útfæra

hugmyndirnar og koma þeim á

blað.

Með teikningar í höndunum

skaltu því næst fá fyrirhugaðar

framkvæmdir samþykktar hjá yfi r-

völdum þíns bæjarfélags.

Þessu næst skaltu mæla

þér mót við sölumann BYKO

og mæta með samþykktar teikn-

ingar til að hrinda af stað fram-

kvæmdaferlinu. Sölumaður mun

gera þér tilboð í verkið og fræða

þig um fyrirhugaðar fram-

kvæmdir.

Stærstileigumarkaður

á ÍslandiSendu fyrirspurn á [email protected] og við svörum þér um hæl!

Vönduðtæki og áhöld

á frábæru verði

KlæðningarÞekking, reynsla og fagmennska– Við fylgjum þér alla leið

Þekking, reynsla og fagmennska í síma...

H Ú S A K L Æ Ð N I N G A RSteni Colour Matt Steni Colour Steni Interior System

V E G G K L Æ Ð N I N G A RSteni Nature Steni Imago Steni Terra

K L Æ Ð N I N G A RFlísar

V I Ð A R K L Æ Ð N I N G A RViður

Þ A K E F N IÞakstál Profil-Þak – Decra Icopal Shingles Icopal Listedækning / Listaþak Kongebro – Þakskífur

S T E I N K L Æ Ð N I N G A RMúrsteinn

Á L K L Æ Ð N I N G A RÁlklæðningar Ál-tré

B U R Ð A R K E R F IÁlburðarkefi – Etanco Timburburðarkerfi

B Y K OByggingaráðgjöf Áhöldin Viðskiptaráðgjöf Fylgstu með stöðunni Svona skaltu bera þig að

Steni húsaklæðning

Steni húsaklæðningar eru frá norska

fyrirtækinu Steni A/S. Klæðningarnar

eru framleiddar til klæðninga jafnt

utan sem innan húss. Steni framleiðir

ýmsar gerðir húsaklæðninga en þær

sem BYKO býður upp á eru:

Steni Colour, Steni Colour Matt,

Steni Natur (Facade Panel) og Steni

Imago.

Það er komin mög góð reynsla á Steni

húsaklæðningu á Íslandi enda hafa

fjölmörg íslensk hús verið klædd með

þessu margrómaða gæðaefni. Steni er

tiltölulega ódýr og hentug klæðning

miðað við aðra valmöguleika sem

fólki stendur til boða. Steni er af

mörgum talin afar hentug lausn og

með frábæra endingu.

Steni Colour MattNú til dags er mjög gott framboð á

húsaklæðningum og er húseigendum

oft ærinn vandi á höndum þegar velja

á hentuga klæðningu á bygginguna.

Þegar velja skal utanhússklæðningu

sem er falleg, endingargóð og

hentug í uppsetningu, viljum við

sérstaklega benda fólki á efnin frá

Steni AS í Noregi. Steni Colour Matt

er ný klæðningalína frá Steni sem

byggir á áratugalangri reynslu. Steni

Colour er glertrefjastyrktar plötur

úr Polymer Resin. Steni Colour Matt

er, eins og nafnið ber með sér, með

matt yfirborð og þar af leiðandi er

engin endurspeglun af yfirborði þess.

Framleiðsla og efniseiginleikar gera

það að verkum að nú er mun minni

hætta á rispum en hingað til hefur

tíðkast í sambærilegum efnum. Steni

Colour Matt er afskaplega sterkt efni

og eintaklega veðrunarþolið. Steni

Colour er framleidd í 30 staðallitum.

Einnig er boðið upp á að sérpanta

liti.

Steni Colour Matt hefur mjög

fallega yfirborðsáferð. Yfirborðið er

alveg slétt og mjúkt viðkomu en engu

að síður mjög slitsterkt enda rafgreint

akrílefni notað í framleiðsluna. Þess

vegna eru afar litlar líkur á að yfir-

borðið rispist þótt það verði fyrir

hnjaski.

SA

KLÆ

ÐN

ING

AR

Steni Colour MattSteni ColourSteni Interior System

Á myndunum hér á síðunum sést vel að Steni

klæðningar eru afar stílhrein lausn sem býður

upp á fjölbreytta möguleika til útfærslu.

Á myndunum hér að ofan má sjá snyrtilegan

frágang á úthorni. Einnig sést vel hversu

frágangur við glugga getur verið vandaður.

Hér hefur vel tekist til við að skapa áferðarfallegt

fjölbýlishús sem mun verða jafnt íbúum sem

byggingaraðilum til sóma um ókomin ár.

Steni húsaklæðning er viðhaldslítil lausn og

svo sannarlega fjárfesting til framtíðar.

Steni húsaklæðning hefur fjölbreytta

notkunarmöguleika og fjölgar ört atvinnu-

húsnæði þar sem þessi slitsterka en jafnframt

snyrtilega lausn verður fyrir valinu. Hér sést

verslunarrými klætt Steni Matt húsaklæðningu.

Steni ColourSteni Colour er glertrefjastyrktar

klæðningaplötur úr Polymer Resin

og með sléttu yfirborði. Steni Colour

er framleitt í 40 staðallitum og þar af

15 í þremur mismunandi gljástigum

– M (matt), HM (hálfmatt) og HG

(háglans). Auk þess er hægt að

sérpanta liti. Hafa ber í huga að

gluggafrágangur er breytilegur eftir

því hvaða klæðningaraðferð er

notuð.

Steni Interior SystemSteni Interiror System er kerfi sem

samanstendur af állistum og Steni

Colour plötum í 4 og 6 mm þykktum.

Samskeytum er lokað með sérstökum

þar til gerðum gúmmílistum sem

hindra að óhreinindi geti náð að

festast eftir að búið er að þrífa. Kerfið

er hannað til nota þar sem krafist

er mesta mögulega hreinlætis og

vatnsheldni veggja, s.s. hjá matvæla-

fyrirtækjum, í byggingar tengdum

sundlaugarekstri og víðar.

Auk þess að þola vel ágang veðurs

og vinda hentar klæðningin einnig

afar vel í byggingar þar sem starfsemi

húseiganda krefst notkunar ýmissra

kemískra efna. Má þar t.a.m. nefna

smur- og þvottastöðvar svo eitthvað

sé nefnt.

Sérþjónusta SteniSteni býður upp á að saga efnin til í

stærðir sem henta hverju tilviki.

Það övar litla fólkið að leika sér og læra í litríku

umhverfi. Hér var notast við Steni Colour í gulum

og gráum litum í veggklæðningar og þeim teflt

á móti þakklæðningu úr bláu stallastáli. Glaðlegt

og þroskandi umhverfi – líka í skammdeginu.

Í upphafi skal ávallt endinn skoða. Hér hefur

svo sannarlega vel tekist til við að láta hinar

ýmsu húsaklæðningar spila vel saman og

búa í sátt við nærliggjandi náttúru.

Steni Nature (Facade Panel)Steni Nature er utanhússklæðning.

Steni Nature er glertrefjabundnar

Polymer Cement plötur og yfirborð

þeirra er þakið muldum náttúrusteini.

Náttúrusteinninn er framleiddur í

þremur grófleikum – fínn, miðlungs

og grófur. Steni Nature er fáanlegt

í 18 litbrigðum og nást þau fram

með mismunandi blöndum náttúru-

steinsins.

BYKO hefur á lager Steni Nature í

hvítu og gráu með milligrófri áferð.

Steni Imago (Facade Panel)Steni Imago er nýr valmöguleiki

með yfirborð úr keramikhúðuðum

kalkbrenndum tinnusteini. Steni er

stílheint og afar hagkvæmt efni. Hægt

er mynda alveg einstaklega fallegar

litasamsetningar sem fyrirfinnast

hvergi í náttúrunni. Steni Imago býðst

ýmist í hreinum litum eða blönduðum

– 11 hreinir litir og 4 blandaðir. Efnin

sem notuð eru í Steni Imago, sem og

framleiðsluaðferðin, gæða efnið mjög

góðri vörn gegn útfjólubláum geislum

(UV-vörn) og halda þar af leiðandi

betur lit sínum en margar aðrar

sambærilegar lausnir. Steni Imago er

algerlega vatnshelt efni sem tryggir

frábæra vörn gegn veðri og vindum

– enginn fúi og enginn sveppagróður.

VE

GG

KLÆ

ÐN

ING

AR

Steni Facade Panel lausnir flokkast í

hóp með umhverfisvænustu klæðn-

ingunum á markaðnum og liggja

fyrir niðurstöður ýmissa óháðra

aðila því til sönnunar. Við slíkar

rannsóknir eru framleiðsluaðferðir

skoðaðar sem og áhrif orkunotkunar

á náttúruna og ná rannsóknirnar til

vörunnar sjálfrar.

Myndirnar sýna tvö einbýlishús klædd Steni

Nature húsaklæðningu með grófri áferð. Annað

húsið er klætt Steni Nature í laxableikum lit en

hitt með Steni Imago í gráum lit. Annars vegar

sjáum við hvar sóst er eftir hlýleika með samspili

veggklæðningar og steinalagnar en hins vegar

hvar hlutleysi gráa litarins er ætlað að skapa

skemmtilegan bakgrunn fyrir tréverk og gróður.

Myndirnar hér til hliðar sýna gráa Steni

Nature veggklæðningu með grófri áferð.

Steni NatureSteni TerraSteni Imago

Steni TerraSteni Terra er glertrefjabundnar

Polymer Composite plötur og yfir-

borðið þakið muldum náttúrusteini.

Húsaklæðningin er afar einföld í upp-

setningu og heyrir nú allt viðhald svo

að segja sögunni til!

Helstu eiginleikar Steni Terra:

■ Öflugar og þola vel hnjask.

■ Langur líftími.

■ Vatnsheldnar og hægt að

klæða á kaf í vatn.

■ Fela allar sprungur og

gamlar skemmdir.

■ Hægt að hreinsa með

háþrýstiþvotti.

Steni Terra hentar mjög vel til

klæðningar á þrepum, geymslu-

skúrum, útihúsum, sorpgeymslum,

bílskúrum sem og víða annars staðar.

Steni Terra er einnig mjög góður

kostur þegar viðhald eða breytingar

krefjast uppsetningar á viðbótar

einangrun.

Láttu þinn smekk ráða för. Hér sjáum við

Steni Terra þar sem segja má að áherslum

hafi verið snúið við. Dökkt þakefnið og

timburverkið passa við rauða húsaklæðninguna

en myndar hins vegar sterka andstæðu á móti

hvítum gluggunum sem og öðrum frágangi.

Hér er steinlögnin að mestu byggð úr svörtum

og rauðum steini en brotin upp með hlutlausari

gráum flötum sem lagðir hafa verið í öðru mynstri.

Flísar

Terracotta keramikflísar hafa verið að

ryðja sér til rúms á Íslandi undanfarin

ár og árangurinn ekki látið á sér

standa. Í fyrstu voru byggingarnar

fáar og vöktu ómælda athygli fyrir

nýsköpun og óvenjulegt yfirbragð.

Einstakur arkitektúrTerracotta nýtur viðurkenningar

og hylli um allan heim og er notað

í arkitektúr í öllum heimsálfum og

jöfnum höndum í mannvirki sem þurfa

þola gríðarmikinn hita eða nístings-

kulda og geta ekki brunnið. Hvert

mannvirkið af öðru þar sem notast

er við Terracotta er ávísun á frekari

afrek í sögu byggingarlistarinnar. Öll

mannvirkin eiga það þó sameiginlegt

að mynda afar sérstakan arkitektúr.

Einfaldleiki með langa sögu

Stöðugt er verið að þróa nýjar

aðferðir við framleiðslu Terracotta en

grunnur framleiðslunnar snýst enn í

dag í kringum þrjú grunnefni – eld,

vatn og leir – eins og hann hefur gert

í þúsundir ára.

Með Terracotta flísum gefst

arkitektum og hönnuðum kostur á

að gæða byggingar sínar einstöku

lífi og skapa þeim sterkan karakter.

Terracotta flísar eru afar áferðarfagurt

efni og hægt að fá þær í ýmsum

stærðum og gerðum.

Með þar til gerðum burðarkerfum

er hægt að setja Terracotta upp á öll

byggingarefni og hentar því jafnt

við enduruppbyggingu húsa sem og í

nýbyggingar. Sé Terracotta klæðning

notuð á heila byggingu pakkast

mannvirkið inn í vel loftræsta skel sem

tryggir endingargóða og viðhaldsfría

fjárfestingu.

Formfegurð og fallegar línur

sem gleðja augað

Dagsljósið er síbreytilegt og mis-

munandi eftir árstíðum. Terracotta

flísar taka skemmtilegum breytingum

eftir því hvernig dagsbirtan fellur á

flísalagðan flötinn. Útkoman verður

ávallt á þá leið að vekur athygli og

gleður augað.

Terracotta flísar mynda áhugaverða

andstöðu á móti öðrum efnum

eins og t.a.m. steypu, gleri og stáli.

Einn af einkennandi útlitsþáttum

Terracotta flísa er að oftast er

yfirborðið eilítið skýjað. Það hefur

stöðugt færst í vöxt að hönnuðir

nýti sér þennan útlitsþátt til að

gæða stóra húsafleti meira lífi, hvort

heldur notaðar eru leirlitaðar flísar

KL

ÆÐ

NIN

GA

R Krafmikill rauður liturinn í Steni Colour setur

skemmtilegan svip á þessa virðulegu opinberu

menntastofnun. Falleg hönnun sem gerir mannvirkið

að auðþekktu kennileiti í sínu nánasta umhverfi.

Fínlegar litasveiflurnar í efninu

lífga upp á stóra flísalagða fletina.

Hér myndast skemmtilegt samspil

litbrigða í efninu og skugganna

frá trjánum sem hefur verið

haganlega komið fyrir meðfram

byggingunni.

til að mynda hlýleika á móti köldum

stálklæddum flötum eða koksgráar

flísar til að skapa kraftmikla andstöðu

á móti glansandi og litríkri Steni

Colour veggklæðningu.

Terracotta flísar eru iðulega

festar á álgrindarkerfi sem ber

klæðninguna og smá bil haft á

milli þeirra til að lofti vel um allan

flötinn. Engir láréttir grindarprófílar

eru notaðir og nær loftið þannig að

leika um bakhluta klæðningarinnar.

Hönnunarmöguleikar eru nánast

endalausir og þessu efni gjarnan teflt

á móti ýmsum öðrum til að gæða

formin sterkari karakter og meira lífi.

Með Terracotta flísum er annars vegar

unnt að mynda hughrif frá hlýleika

timburs en hinn bóginn nýta sér styrk

og veðrunarþol leirsins. Útkoman

verður undantekningalaust eftirtektar-

verður arkitektúr og hafa margir af

fremstu arktitekum sögunnar nýtt sér

þessa kosti.

Íslenskar aðstæður

Þrátt fyrir tiltölulega stuttan tíma

á íslenskum markaði eru Terracotta

keramikflísar búnar að sanna notagildi

sitt og góða endingu við íslenskar

aðstæður. Mörg glæsilega hönnuð

mannvirki sem klædd hafa verið

með Terracotta prýða nú umhverfi

okkar og gleðja augað árið um kring.

Terracotta uppfyllir allar kröfur sem

byggingareglugerðir gera til slíkra

efna. Terracotta þolir vel útfjólubláa

geisla sólar (UV) og veðrast afar vel.

Gegnheilar eða með holrými

Terracotta flísar eru fánlegar ýmist

gegnheilar eða með holrými. Holrýmið

í flísunum þjónar tvennum tilgangi.

Annars vegar að gera flísarnar léttari

en hins vegar að auka styrk þeirra.

Ivarsson býður aðeins upp á flísar með

holrými en NBK-Keramik GmbH býður

upp á hvoru tveggja.

Vanda skal það sem lengi skal standa.

Glæsilegt mannvirki sem ber vott um

framsýni og fágaðan smekk.

Það er farið að hausta. Flottar andstæður

í tilkomumikilli byggingu – gler, ál og

Terracotta – og náttúran skiptir litum þegar

hún leggst í dvala fyrir veturinn.

Viðarklæðningar

Viðarklæðningar eru frábær kostur

þegar húseigendur og hönnuðir

kjósa að tefla saman andstæðum í

eiginleikum byggingarefna s.s. mýkt

timburs og hörku steins og stáls. Eins

og sjá má á þessum síðum hefur átt

sér stað afar skemmtileg þróun hér á

landi í notkun og meðferð efnanna.

Útkoman er mjög skemmtileg enda

hefur þekking manna á meðhöndlun

timburs sem byggingarefni aukist til

muna á síðustu árum.

Í upphafi skal endinn skoða

Unnið timbur er flokkað eftir því í hvað

á að nota það en ekki gæðaflokkað.

Því er nauðsynlegt að gera sér grein

fyrir því hvaða gallar mega vera í

timbri án þess að það rýri notagildið.

Ef náttúrulegt útlit timbursins á að

njóta sín er rétt að forðast sprungur

og merg í úthlið, grágeit, lausa

kvisti og trjákvoðu og það skal vera

réttvaxið. Ef verið er að velja timbur

undir málningu er rétt að hafa í huga

atriði eins og t.d. að sprungur séu ekki

gegnumgangandi, að timbrið sé laust

við trjákvoðu og kvistir séu fastir.

Þegar heflað timbur er valið í

veggjagrindur skiptir máli að viðarraki

sé réttur.

VIÐ

AR

KLÆ

ÐN

ING

AR

Myndirnar tala sínu máli. Hér er á ferð alveg

einstaklega skemmtilega hönnuð bygging og mjög

gott dæmi um að það er ekkert því til fyrirstöðu að

klæða stórar byggingar fallegum viðarklæðningum.

Tilkomumikil aðkoma og fallegt umhverfi hússins

eru því til sönnunar að vel hefur verið fyrir öllu

hugsað. Flottur frágangur hvar sem litið er. Að

stærstum hluta er húsið klætt fallegri sedrus

harðviðarklæðningu en auk þess var steinsalli

notaður á vel úthugsuðum stöðum til að brjóta upp

form hússins og skapa þannig fallegan arkitektúr.

Vatnsklæðning

Vatnsklæðning er notuð til að mynda

ytra byrði húsa og hefur mikið verið

notuð á sumarbústaði. Á hinn bóginn

er vatnsklæðning í auknum mæli

notuð utan á íbúðarhús og með góð-

um árangri.

Ávallt skal þó haft í huga að til að

tryggja góða útkomu liggur lykillinn í

réttu vali og meðhöndlun efnisins en

þannig tryggjum við betri endingu

og minna viðhald eignarinnar. Eitt

af lykilatriðunum er að gæta þess

að lofti vel um alla klæðninguna og

gildir einu hver viðartegundin er.

Auk hinna hefðbundnu viðar-

tegunda furu og greni eru nú

einnig fáanlegar nokkrar tegundir

af harðvið. Með tilkomu nýrra val-

möguleika hafa nýjar útfærslur og

ferskir stílar litið dagsins ljós í íslenskri

byggingarlist.

Heildarsvipur, stíll og formfegurð

Til að ná fram sterkum heildarsvip,

flottum stíl og formfegurð skal huga

vel að öllum þáttum hönnunarinnar.

Einu gildir hvaða efni lausnirnar kalla

á, það sem verkið útheimtir, mun

finnast hjá sérfræðingum og sölu-

mönnum BYKO.

Myndirnar hér að neðan sýna vel heppnaða

útfærslu þar sem notuð var kúpt furu vatnsklæðning

í efri hluta íbúðarhússins en hvítmálaður múr með

spænskri áferð í neðri hlutann. Hvítir gluggar,

vatnsbretti, þakskegg og frágangur á úthornum

gefa húsinu sérstakt suðrænt yfirbragð.

Vel heppnuð útfærsla þar sem andstæður í efni

og áferð fá að njóta sín til fulls. Hlýju efnin

sem notuð eru í þetta glæsilega íbúðarhús eru

bæsuð viðarklæðning á veggjum og harðviður í

pallaklæðningu í sólríkum garðinum. Auk þessa er öll

gluggaumgjörð úr ál-tré og Alusink húðaðar rennur

sjá um að skila regnvatni frá þakinu á rétta staði.

Bárujárnsklæðningar hafa á ný haldið innreið

sína í íslenska byggingagerðarlist og setur

báran mikinn svip á bygginguna. Eins og sjá má

sómir báran sér einkar vel í þessu samhengi.

Á húsinu eru margir gluggar sem hleypa mikilli

birtu í húsið. Í alla staði vel heppnað hús og

allur frágangur til mikillar fyrirmyndar.

Þakstál (Bárustál)Bárujárnsþök þekkja allir enda talið

að hús hafi fyrst verið klætt bárujárni

skömmu fyrir 1870. Galvaniserað báru-

járn hefur verið algengasta þakklæðn-

ingin á íslensk þök.

Í tímans rás hafa verið þróaðar

nýjar vinnsluaðferðir sem hafa getið

af sér ný form í þakklæðningum,

s.s. stallað þakstál sem er fáanlegt í

ýmsum litum. Á síðustu árum hafa

ýmsar nýjungar, frá frændum okkar

í Skandinavíu, verið að ryðja sér til

rúms hér á landi og er þeirra getið hér

á eftir s.s. Profil-ÞAK og Icopal Decra.

BYKO býður upp á bárustál og

stallað stál frá ýmsum framleiðendum

s.s. Límtré Vírnet í Borgarnesi.

Profil-ÞAKProfil-ÞAK (Profil-TAK) er þakskífukerfi

sem er byggt á stálskífum með

klassíska lögun stallaðs stáls og hentar

á flestar gerðir af þökum.

Að öllu jöfnu er notast við staðlaðar

stærðir og þær látnar skarast eftir

þörfum. Profil-ÞAK er hægt að klæða

ofan á ýmiskonar undirlag sem finnst

á hefðbundnum þökum.

Dekra frá Icopal í Danmörku

Decra er sterkasta þakskífuefni sem

Danir bjóða upp á.

Decra er ekki einungis fallegt

þakefni heldur eitthvert það sterkasta

sem í boði er. Skífurnar eru úr stáli og

Aluzink húðaðar en auk þess eru þær

ýmist húðaðar með keramiklituðum

steinsalla eða innbrenndu höggþolnu

duftlakki. Framleiðsluaðferðin tryggir

mjög langa endingu og sérlega góða

litheldni.

Decra ofan á eldra þakefni.

Decra skífurnar eru sterkar og

endingargóðar en engu að síður

mjög léttar. Þess vegna er oft hægt að

leggja þær beint ofan á fyrirliggjandi

eldra þakefni. Þannig má spara sér

mikla vinnu sem ella færi í að fjar-

lægja þakklæðninguna sem fyrir er.

ÞA

KE

FN

I Báran hefur löngum verið vinsælt þakefni en þróun

vörunnar hefur leitt til þess að nú er hún aftur

farin að ryðja sér til rúms sem veggklæðning.

Profil-ÞAK er tiltölulega einfalt að leggja. Fyrst er

gamla þakefnið fjarlægt og nýjum þakpappa komið

fyrir ef með þarf. Því næst eru lektur og leiðarar

lagðir um allt þakið. Að þessu loknu er hafist handa

við að leggja skífurnar. Alltaf er byrjað efst við

mæninn og unnið niður eftir þakinu. Kantfrágangi

er ýmist komið fyrir áður en eða eftir að þakskífunum

hefur verið komið fyrir – fer nokkuð eftir tegund

þakefnis og lögun þaksins. Að lokum er mænis-

skífunum komið fyrir.

Einfalt verk en útheimtir töluverða verkþekkingu

og mælir BYKO því eindregið með að leitað sé til

fagmanna á þessu sviði.

Glæsilegt en afar sérstakt byggingarlag hússins

leiðir til þess að Decra þakið spilar stórt hlutverk

í heildarútliti hússins. Tilkomumikill þakglugginn

setur einnig einkennandi svip á húsið.

Falleg þakefni setja sterkan svip á heildarmynd

hússins. Rétt litaval skiptir einnig miklu máli.

Hljóðeinangrandi þakskífur

Decra þakskífur eru mjög

hljóðeinangrandi en það sama

er ekki hægt að segja um ýmis

önnur þakefni. Í vondu slagveðri

eða þegar haglél dynur á þakinu

getur ágangurinn stundum verið

óbærilegur. Yfirborðsmeðhöndlun

Decra Classic og Decra Stratos gerir

þakskífurnar ekki aðeins sterkari og

litheldnari, heldur alveg einstaklega

vel hljóðeinangrandi.

Decra Elegance er með

„innbyggðri“ hljóðeinangrun og

framleidd undir einkaleyfi. Þessi

einstaka meðhöndlun skífnanna

tryggir að einnig er hægt að njóta

þaksins innandyra.

Þrif á þökum

Þrif á þökum er nokkuð sem fólk

hugsar almennt ekki út í. Til að tryggja

langan líftíma og góða endingu er

mikilvægt að þrífa þakið reglulega.

Leitaðu til sölufulltrúa BYKO og fáðu

ráðleggingar um þennan mikilvæga

þátt viðhaldsins.

Vörumyndirnar hér til hliðar sýna fjórar gerðir með

sléttri áferð og eina með innbrenndum salla.

Icopal Shingles– ÞakpappiIcopal Shingles er þakpappi í formi

skífna. Shingles skífurnar eru mjög

hagkvæm þakklæðning samanborið

við hefðbundnar þakskífur og afar

auðveldar að vinna með. Hugmyndin

á bak við skörun skífnanna er sótt í

elstu byggingaraðferðina á bak við

lagningu á þakefni. Shingles skífurnar

eru flott þakklæðning og bjóða upp á

fjölmarga nýja möguleika í útfærslum.

Shingles skífurnar eru úr sterkum

efnum sem eru búin að sanna styrk sinn

og endingu og eiga sér langa sögu að

baki. Icopal Shingles þakskífurnar eru

framleiddar úr blöndu af trefjaefnum,

asfalti og steinsalla. Uppsetning er

auðveld og verkið vinnst fljótt og vel.

Útkoman verður því öruggt og þétt

þak með góða endingu og heildarsvip

á húsið svo gleður augað.

Fínlegt mynstrið sem skífur mynda

gefa byggingunum fágað og fínlegt

yfirbragð.

Shingles þakskífur má nota jafnt á

stór sem smá mannvirki þar sem sóst

er eftir sléttri þakklæðningu. Shingles

þakklæðning er með afar sérstakan

karakter og mjög frábrugðin öðrum

valmöguleikum.

Kostnaðarlega hagkvæmt

Singles er kostnaðarlega hagkvæm

lausn og með 10 ára vöruábyrgð.

Fjögur mismunandi mynstur

og sjö litbrigði

Icopal Shingles er fáanlegar í fjórum

mismunandi mynstrum sem hvert um

sig gefur þakinu sérstak yfirbragð. Þess

utan gefst aukið svigrúm í hönnun

með vali á sjö mismunandi litbrigðum.

Að auki er hægt að fá Icopan Shingles

kolsvartar og yfirborðið ysta lagsins úr

glansandi steinmulningi.

Meiri karakter

Ef látleysi er ekki það sem verið er að

sækjast eftir þá bjóðast nú skyggðar

Shingles þakskífur sem mynda

skarpari línur í yfirborði þaksins og því

meiri strúktur. Val og meðhöndlun í

höndum faglærðra er líklegra til góðs

árangurs en ella.

Icopal Listedækning/Listaþak– Þakpappi

Nútíma arkitektúr og lóðréttar

línur

Icopal Listedækning gengur undir

nafninu listaþak hér á landi. Listaþak

er ákveðin stíll þakklæðninga þar sem

notaður er nútíma þakpappi og hann

lagður í tveimur lögum. Þakpappi

nútímans á ekkert sammerkt með

fyrirrennara sínum annað en nafnið

eitt enda hefur þakpappi, á síðustu

15-20 árum, gengið í gegnum mörg

þróunarferli og verið hannað nýtt

efni frá grunni sem stenst samanburð

við öll önnur efni í þakklæðningar

nútímans. Samsetning þessa nýja

efnis veldur því meðal annars að þak-

pappinn hefur meiri sveigjanleika og

þolir betur miklar hitasveiflur. Til að

gæðin njóti sín til fullnustu þarf því

aðeins að gæta þess að vandað sé til

vinnunnar við lagningu þakpappans.

Listaþak nýtur stöðugt meiri

vinsælda um allan heim sökum

einfaldleika í útliti og ekkert efni

ÞA

KE

FN

I

Shingles þakklæðning er hagkvæm lausn og

hentar á flest þök. Þök sem klædd hafa verið með

Shingles þakklæðningu eru auðþekkt og mynstur

þeirra og áferð gefa heimilinu sjarmerandi blæ.

Orðið „pappí“ hljómar ekki sérlega traustvekjandi

en þetta er heldur enginn venjulegur pappi.

Shingles er níðsterkur valkostur sem stenst fyllilega

allar kröfur til slíkra efna við íslenskar aðstæður.

Nútíma þakpappi er afar skemmtilegt efni

handa snjöllum hönnuðum að vinna með.

Möguleikar í formum eru fleiri en ella og

hægt að nota láréttar og lóðréttar línur til að

kallast á við önnur form í heildarmyndinni.

til þakklæðninga býður upp á eins

mikinn sveigjanleika í útfærslum.

Listaþak þykir spennandi lausn fyrir

arkitekta og byggingatæknifræðinga

þar sem næst fram nútímalegt

yfirbragð og mikill styrkur úr

einföldum formum. Notkunarsviðið er

víðfeðmt og má sjá glæsilega útfærð

listaþök í sinni einföldustu mynd á

stórum byggingum eins og t.a.m.

vöruskemmum og í flóknari útfærslur

á atvinnuhúsnæði og opinberum

byggingum. Má þar t.d. nefna stóru

flughafnarbygginguna á Kaupmanna-

hafnarflugvelli. Listaþak hentar einnig

vel í smærri verkefni eins og bílskýli

og skúra.

Annar möguleiki við útfærslu er

„Plankedækning“ eða plankaþak en

með þessu lagi fást láréttar línur í

þakið.

Þegar byggingin er vel hönnuð

og vandað til verka má reikna með

sterku, sveigjanlegu og vatnsheldu

þaki með 40-50 ára endingartíma.

Gerðu kröfur, vandaðu valið og

tryggðu þér fagmann í verkið.

Þeim fj0lgar stöðugt þökunum þar sem listaþak

hefur orið fyrir valinu sem rétta efnið. Það er erfitt

að ímynda sér kunnuglegar byggingar í miðbæ

Reykjavíkur með eitthvert annað þakefni en listaþak.

Ýmis önnur mannvirki en mannabústaðir eru einkar

vel til þess fallin að vera klædd listaþaki, Shingles

þaki eða hreinlega þakpappa. Sem dæmi má

nefna bílskýli og ýmsar gerðir skúra og útihúsa.

Kongebro– Þakskífur úr náttúrusteini

Tíu góðar áðstæður til að velja steinskífur á þak.Einstakt útlit og langur líftími eru

aðalsmerki steinskífuþaks. Efnið er

umhverfisvænt og engu öðru líkt. Að

kaupa steinskífuþak er ekki lengur

óyfirstíganlegt. Reynsla Skandinava

er að þök sem eru þannig gerð eru

hagkvæm og halda þéttleika sínum í

a.m.k. 100 ár. Margar góðar ástæður

eru fyrir því að velja Kongebro þak úr

ekta steinskífum og hér koma fyrstu

tíu ástæðurnar.

1. Frostþolið efni

Allar skífurnar eru prófaðar við sérlega

erfiðar aðstæður. Þak með steinskífum

mun halda þéttleika sínum í 100 til 150

ár. Engin önnur þakefni á markaðnum

hafa sama lítíma og steinskífur.

2. Hagkvæm lausn

Fjárfesting í steinskífuþaki er sú

hagkvæmasta sem völ er á ef tekið er

tillit til endingar efnisins. Steinskífuþak

eykur verðmæti hússins. Áður fyrr var

mjög dýrt að fjárfesta í steinskífuþaki

en nú getur Kongebro boðið skífur á

mjög hagstæðu verði.

3. Náttúrulegt efni

Steinskífa er 100% náttúrulegt efni.

Engin skaðleg efni eru í steinskífunum.

Steinskífur eru sérlega náttúruvænar.

4. Sterk efni

Steinskífuþak þolir umgang á þakinu.

Beygjustyrkur steinskífnanna er sam-

bærilegur við eik og þær þola jafnvel

mestu veðrabrigði.

5. Litheldni

Koksgrái liturinn upplitast aldrei.

Náttúrulegt efnið og yfirborð þess

heldur alltaf lit sínum.

6. Viðhaldsfrítt þak

Steinskífuþak þarf hvorki að hreinsa

né mála. Náttúrulegt olíuinnihald

steinskífnanna, ásamt lítilli vatns-

ídrægni, tryggir fallegt útlit í hvort

heldur er 10 eða 100 ár.

7. Glæsileiki og sérstakur blær

Breytingar í veðurfari og dagsbirtu

breyta ásýnd yfirborðs steinskífnanna

sem gefur húsinu afar sérstakan blæ.

Steinskífurnar skapa traust yfirbragð

án þess að verða yfirþyrmandi eða

þungar.

8. Einstök gæði

Steinskífurnar frá BYKO afgreiðast

eingöngu sem fyrsta flokks vara frá

heimsins bestu steinskífunámum. Öll

steinskífuframleiðslan er prófuð af

viðurkenndum evrópskum rann-

sóknarstofum og uppfyllir ströngustu

gæðakröfur sem gerðar eru til

þakefnis til notkunar á norðurslóðum.

9. Mikil reynsla

Kongebro er einn stærsti söluaðili

á Norðurlöndum á steinskífum sem

notaðar eru í viðhald á friðuðum

byggingum sem og í nýbyggingar.

Þegar þú velur að kaupa steinskífur

frá BYKO kemur sérfræðiaðstoð okkar

þér að góðum notum.

10. Heilsteypt lausn

Með steinskífum frá BYKO er bæði

tryggður lágmarks kostnaður og

tryggt að þakið er útfært á besta

mögulega máta. Steinskífuþak frá

BYKO er gleðigjafi húseigandans á

hverjum degi.

ÞA

KE

FN

I

Námurnar á Norður-Spáni gefa af sér rúmlega

75% af heimsframleiðslu á náttúrusteini.

Skífurnar eru sneiddar niður með sama hætti og fyrri

kynslóðir gerðu – höggnar til með hamri og meitli.

Kongebro skífurnar eru þekktar um allan

heim fyrir bestu gæði og eru þær notaðar á

margar af þekktustu byggingum heims.

Kongebro vinnur í nánu samstarfi við

heimsins stærsta framleiðanda á náttúrusteini

– Cupa Pizarras á Norður-Spáni.

Það eru magar góðar ástæður fyrir því að velja

þakefni úr náttúrusteini frá Kongebro.

Ein ástæðan er hvernig áferð og blæbrigði

skífnanna beytast í takt við breytilega

birtu á mismunandi árstímum.

Kongebro RustikKongebro Rustik steinskífan er

100% náttúrulegt efni og fellur því

vel að hugmyndum fólks um val á

umhverfisvænum byggingarefnum.

Kongebro Rustik er rökrétt val fyrir

sérstök einbýlishús þar sem óskað

er eftir náttúrulegu útliti skífnanna.

Konogebro Rustik er sterkasta

steinskífan á markaðnum og er þess

vegna vinsæl hjá þeim sem sækjast

eftir „öðruvísi“ þaki.

Kongebro FirkantKongebro Firkant er rökrétt val fyrir

sérstök einbýlishús eða sumarhús þar

sem óskað er eftir náttúrulegu útliti

skífnanna. Ólíkt lituðum þakefnum

gefur steinskífan húsinu dempaðan

glæsileika án þess að verða yfirdrifið.

Kongebro Firkant hefur skemmtilega

lifandi blæ þar sem áferð og

litur breytist í takt við breytileika

dagsbirtunnar.

Kongebro LapsteinÞeir húsbyggjendur sem vilja gæði eru

aftur byrjaðir að nota steinskífur og

fá þannig persónulegan blæ á húsið

sitt. Val á steinskífum er eðlilegt þegar

tekið er tillit til gæða, endingar og

viðhalds. Kongebro Lapstein hefur hið

þekkta ávala form sem undirstrikar

glæsileika steinskífnanna.

Múrsteinn

Múrsteinn er byggingarefni sem á

sér langa og merka sögu, einkum þó

á meginlandinu. Múrsteinninn hefur

sannað gildi sitt jafnt í byggingarlist

liðinna alda og hugverkum fremstu

arkitekta okkar tíma.

Egernsund Tegl er danskur múrsteins-

framleiðandi sem á sér langa sögu

enda verið starfandi í meira en 100 ár.

Í dag er fyrirtækið í eigu átta danskra

múrsteinsverksmiðja sem staðsettar

eru vítt og breitt um Danmörku.

Fyrirtækið býður upp á ríkulegt úrval

af múrsteinum og hver verksmiðja

sérhæfir sig í framleiðslu ákveðinna

steintegunda.

Þar sem múrsteinn er eingöngu

framleiddur úr náttúrulegu efni

– leir – hentar hann jafnt mönnum og

dýrum. Eiginleikar leirsins valda því

að múrsteinninn „andar“. Hann ýmist

dregur í sig eða gefur frá sér raka

og temprar þannig rakastigið í sínu

nánasta umhverfi. Þessi eiginleiki gerir

það að verkum að híbýli manna og

dýra verða afar notaleg. Auk þess að

vera hlýlegur og fallegur á að líta er

múrsteinn viðhaldslítið byggingarefni

og auðveldur í þrifum. Múrsteininn er

með „sál“, þar sem fara saman fallegt

samspil lita og mikill karakter.

Gefðu hugmyndafluginu lausan

tauminn

Þegar múrsteinn er notaður í bygg-

ingar eru möguleikarnir gríðarlega

margir. Hönnuðum stendur til boða

fjöldinn allur af litum og formum til

að leika sér með. Hér fá hönnun og

handverk að njóta sín til fullnustu.

Hvort heldur sóst er eftir anda

liðinna tíma eða hönnun og stíl

færustu hönnuða okkar tíma þá eru

allir vegir færir með Egernsund Tegl

múrsteinunum.

ST

EIN

KL

ÆÐ

NIN

GA

RMúrsteinn á sér djúpar rætur í danskri sögu.

Múrsteinn er byggingarefni sem víða er notað

í Evrópu og margur Íslendingurinn hefur dvalist

langdvölum erlendis umlukinn þessu einstaka

byggingarefni. Skal því engan undra að þeim

fer fjölgandi húsunum sem klædd eru þessu

hlýlega efni. Hús klædd múrsteini henta vel

fólki sem er að sækjast eftir hörku steinsins

en hlýleika náttúrlegra jarðlita. Múrsteinn er

hagkvæm lausn sem útheimtir lítið viðhald.

Nýsköpun og þróun

Þrátt fyrir fábrotinn grunn, þ.e. leir,

vatn og eld, er mönnum enn að takast

að þróa nýjar vörur úr sömu efnum

og grunnaðferðum. Þróuð hafa verið

ýmis ný litbrigði þar sem einkum hefur

verið tekið tillit til óska arkitekta um

aukna fjölbreytni til að mæta kröfum

nýrra markaða. Tekist hefur að kalla

fram nýja liti í múrsteininum með því

að hafa stjórn á efnahvörfum sem

eiga sér stað í leirnum þegar hann

er brenndur. Ljósgráir og ljósbrúnir

tónar eru nú nokkuð vinsælir meðal

arkitekta og passa litirnir einkar

vel við nýjustu strauma og stefnur í

byggingarlist.

Yfir 100 gerðir steina

Tidens Sten eru sérvaldir steinar

með nýstárlegu útliti. Steinarnir eru

frumlegir en jafnframt áreiðanlegir.

Sýnishornin hér að ofan sýna aðeins

brot af því sem um er að velja og ættu

því allir að geta fundið eitthvað við

sitt hæfi.

Álklæðningar

Álklæðningar búa yfir einstaklega

góðu viðnámi gegn tæringu. Þegar

álið hefur verið glærlakkað fær það á

sig silfraðan blæ sem er mjög vel

viðeigandi á stórar og tilkomumiklar

byggingar. Álið er tiltölulega létt

byggingarefni miðað við önnur efni

og með mikinn burðarstyrk og

hentar því vel þegar klæða á stóra

fleti. Álklæðningar eru einnig mjög

vel til þess fallnar að klæða mannvirki

þar sem um mikla glerfleti er að

ræða. Nú til dags standa húsbyggj-

endum margir útfærslumöguleikar

til boða þegar klætt er með áli.

Stílhreinar álklæðningar

Ál er með silfurgrátt yfirborð sem

endurkastar mýkri birtu en aðrir

málmar með sömu yfirborðsáferð.

Þegar álið er notað utanhúss og án

þess að vera yfirborðsmeðhöndlað

veðrast það með tímanum og tekur á

sig matta og lítilsháttar skýjaða áferð.

Hægt er að fá álið fægt eða burstað en

til að fyrirbyggja breytingar á yfirborði

er það jafnan rafbrynjað til að falleg

áferðin haldist sem lengst. Rafbrynjun

hefur þó sínar takmarkanir og því rétt

að ráðfæra sig við söluráðgjafa BYKO

áður en þessi möguleiki er skoðaður.

Margir litamöguleikar eru í boði og

hönnuðum þar með gert kleift að

skapa afar athygliverð mannvirki svo

tekið er eftir. Álklæðningar prýða

jafnt einbýlishús, skólabyggingar,

dagheimili og skrifstofubyggingar.

Eins og flest húsaklæðningaefni eru

álklæðningar settar upp á burðarkerfi

eins og Etanco frá BYKO.

ÁL

KLÆ

ÐN

ING

AR

Eitt af stærri kennileitum sem byggð hafa verið

á Stór-Reykjavíkursvæðinu upp á síðkastið er

verslunarmiðstöðin Smáralind. Rafbrynjuð og völsuð

álklæðning frá BYKO var notuð á tilkomumikla

turnbygginguna. Einnig var notast við ál og

álklæðningar víðar í bygginguna. Merk hönnun

og vel heppnað verk eins og raun ber vitni.

Gluggar úr ál-tré frá BYKO

Hvort heldur mannvirkin eru stór eða

smá þarf alltaf að gefa glugga-

umgjörðinni gaum. Gluggalausnir eins

og BYKO ál-tré tyggja lágmarks

viðhald. Ál-tré er viðarrammi alklædd-

ur áli og þarfnast því lágmarks

viðhalds. Mannvirki, stór sem smá,

njóta góðs af slíkum útfærslum.

Viðhaldskostnaður er nokkuð sem allir myndu vilja

halda í lágmarki sé þess frekast kostur. Til að svo

megi verða þarf að gaumgæfa vel hvaða umgjörð

gluggar hússins eiga að fá. Ál-trés gluggaumgjarðir

frá BYKO eru ein slík lausn og mælum við með

að allir húsbyggjendur kynni sér þennan kost.

Stórar byggingar sem hýsa margþættan rekstur

þurfa viðhlítandi umgjörð utan um starfsemina sem

þar fer fram. Háreistar standa byggingarnar sem

kennileiti í umhverfinu og hér hefur vel tekist til við

að reisa eitt slíkt mannvirki. Nýja Hjartaverndarhúsið

er umhverfi sínu og hönnuðum til mikils sóma.

Timburburðarkerfi

Burðarkerfi timburhúsa lúta sínum

eigin lögmálum og þarf því að bera

sig öðru vísi að en þegar byggt er úr

öðrum byggingarefnum. BYKO hefur

upp á að bjóða allt til verksins – gæða

efni, umfangsmikla þekkingu og fyrsta

fl okks þjónustu.

Þegar klæða skal timburhús er að

ýmsu að hyggja. Húsið verður að

vera vel hannað og burðarþol gott.

Lektur og leiðarar þurfa að vera úr

góðum efnum og passlegt bil á milli

þeirra. Vindpappa þarf að vera komið

fyrir með réttum hætti og viðeigandi

einangrun notuð. Velja þarf vandaðan

krossvið, spónaplötur og panil og þessu

öllu komið fyrir með réttum hætti.

Leitaðu ráða hjá sérfræðingum BYKO

áður en ráðist er í framkvæmdir.

Yfi r borð ið með höndl að

Þeg ar með höndla á yfi r borð ið þarf

raka stig við ar ins að vera minna en

20% til þess að við ar vörn in loði við og

smjúgi inn í við inn. Til þess að mæla

þenn an raka eru not að ir sér stak ir mæl-

ar sem hægt er að kaupa eða leigja.

Ef nota á gegn sæja eða hálf gegn sæja

við ar vörn má bera hana beint á við-

inn en gæta þarf að því að setja vel í

öll sár, bæði í enda timb ur og þar sem

sag að hef ur ver ið í við inn. Ef raka stig

við ar ins er hærra en 20% má bera

um ferð af grunn við ar ol íu á við inn en

hún minnk ar lík ur á að timbrið þorni

of fl jótt og sprung ur mynd ist. Þeg ar

timbrið hef ur þorn að má svo bera end-

an lega vörn á það.

Álburðarkerfi ðEtanco Framleiðandi gerir ráð fyrir að Steni

plötur séu festar á Etanco álburðar-

kerfi (Facular LR. 110).

Hér eru talin upp nokkur atriði sem

hafa ber í huga áður en ráðist er í

framkvæmdir:

■ Gerð byggingar.

■ Umfang verkefnis.

■ Fyrirliggjandi hönnunarforsendur.

■ Verður byggingin

einangruð eða ekki.

■ Hvaða byggingarefni mun

bera Etanco kerfi ð?

■ Þyngd og gerð húsaklæðningar.

■ Landfæðileg staðsetning –

Hvar á landinu mun

byggingin standa?

Vindálag reiknað út með

tilliti til landfræðilegrar

legu byggingarinnar og

hæð hennar í landi.

BU

AR

KE

RF

I

Algengustu Pinotex litirnir

sem viðarvörn á klæðninguna.

GLÆRT FURA

602

HNOTA

630

GRÆNT

821

Áður en þú sækir ráðgjöf hjá BYKO skaltu undirbúa þig vel. Finndu til allar teikningar er verkið varða. Ef um endurbætur er að ræða er mjög gott að hafa ljósmyndir meðferðis. Hafðu myndirnar fleiri en færri.

Settu þig í samband við söluráðgjafa BYKO og njóttu dyggrar leiðsagnar reynslumikilla sérfræðinga á sviði húsaklæðninga. Við tökum vel á móti þér!

Þarfnist þú ráðgjafar meðan á framkvæmdum stendur eru ráðgjafar BYKO aldrei langt undan.

Ánægður viðskiptavinur skiptir okkur miklu máli. Þegar þú byggir með BYKO tryggir þú þér gæði á lægra verði.

Byggingaráðgjöf

Það er stefna BYKO að ráða ávallt

faglært fólk til starfa svo að viðskipta-

vinurinn njóti faglegrar ráðgjafar og

góðrar þjónustu. Hjá fyrir tækinu

starfa tæknifræðingar sem sérhæfa

sig í að veita ráðgjöf um húsbyggingar.

Þeir reikna út efnisþörfina, leysa

einangrunarvandamál, hjálpa til við

efnisval og leitast við að svara þeim

spurningum sem hús byggjand inn

kemur til með að standa frammi fyrir.

Við hvetjum þig til að nýta þér

þjónustu byggingaráðgjafanna og

munu þeir annast alla tilboðsgerð fyrir

þig. Það mun spara þér fé og óþarfa

fyrirhöfn og jafnvel forða þér frá

óþarfa vandamálum sem upp kunna

að koma á byggingatímanum.

Áhöldin

LM-BYKO – Leigumarkaður BYKO

kapp kostar að bjóða ávallt mesta úrval

landsins af tækjum og tólum fyrir

framkvæmdafólk. Kynntu þér nánar

þá fjölmörgu kosti sem stærsti

leigumarkaður landsins hefur upp á

að bjóða á www.byko.is

Það gildir einu hvort þú kýst að

kaupa áhöldin eða leigja. Þú munt

án efa finna það sem þig vantar til

framkvæmdanna hjá BYKO.

Viðskiptaráðgjöf

Í viðskiptaráðjöf BYKO færðu allar

upplýsingar um reikningsviðskipti og

þá lánamöguleika sem í boði eru. Þar

færðu jafnframt Viðskiptakort BYKO

sem auðveldar þér að eiga viðskipti

við okkur, en kortið gildir jafnframt

til úttektar í ELKO, Intersport og

Húsgagnahöllinni.

Í viðskiptaráðgjöfinni er lögð

áhersla á góða þjónustu og skjóta

afgreið slu mála. Opnunar tími er frá

kl. 08:00 til 18:00. Þér er velkomið að

hafa samband í síma 515 4000.

Fylgstu með stöðunni

Þjónustuver á heimasíðu BYKO:

Til að auðvelda viðskiptavinum okkar

að fylgjast með viðskiptum sínum geta

þeir fengið aðgang inn á sitt eigið

svæði á heimasíðu BYKO. Þar er hægt

að nálgast reikningsyfirlit, einstaka

reikninga og fara yfir afsláttarkjör. Þar

er einnig vöruskrá BYKO o.fl. Sækja

þarf um aðgang hjá viðskiptaráðgjöf

BYKO og við sendum aðganginn um

hæl.

Heimasíða BYKO – www.byko.is

Á vandaðri og aðgengilegri heimasíðu

BYKO má auk þjónustuvers finna

ýmislegt sem getur komið þér að

notum í þeim verkefnum sem þú ert

að fást við hverju sinni. Kíktu inn á

www.byko.is og sjáðu hvað er í boði

og fylgstu með tilboðum.

Gátlisti

Svona skaltu bera þig að áður en hafist er handa:

Komdu í heimsókn til okkar

hjá BYKO og kynntu þér alla þá

fjölbreyttu möguleika sem eru í

boði hverju sinni. Sölumenn og

ráðgjafar taka vel á móti þér og

leiðbeina þér í vali á úrlausnunum

sem þú leitar að.

Þegar þarfi r þínar eru

orðnar ljósar og hugmyndir farnar

að skýrast skaltu leita til arkitekts.

Arkitekt mun hjálpa þér að útfæra

hugmyndirnar og koma þeim á

blað.

Með teikningar í höndunum

skaltu því næst fá fyrirhugaðar

framkvæmdir samþykktar hjá yfi r-

völdum þíns bæjarfélags.

Þessu næst skaltu mæla

þér mót við sölumann BYKO

og mæta með samþykktar teikn-

ingar til að hrinda af stað fram-

kvæmdaferlinu. Sölumaður mun

gera þér tilboð í verkið og fræða

þig um fyrirhugaðar fram-

kvæmdir.

Stærstileigumarkaður

á ÍslandiSendu fyrirspurn á [email protected] og við svörum þér um hæl!

Vönduðtæki og áhöld

á frábæru verði

KlæðningarÞekking, reynsla og fagmennska– Við fylgjum þér alla leið

Þekking, reynsla og fagmennska í síma...

Settu þig í samband við söluráðgjafa BYKO og njóttu dyggrar leiðsagnar reynslumikilla sérfræðinga á sviði húsaklæðninga. Við tökum vel á móti þér!

Þarfnist þú ráðgjafar meðan á framkvæmdum stendur eru ráðgjafar BYKO aldrei langt undan.

Ánægður viðskiptavinur skiptir okkur miklu máli. Þegar þú byggir með BYKO tryggir þú þér gæði á lægra verði.

Áður en þú sækir ráðgjöf hjá BYKO skaltu undirbúa þig vel. Finndu til allar teikningar er verkið varða. Ef um endurbætur er að ræða er mjög gott að hafa ljósmyndir meðferðis. Hafðu myndirnar fleiri en færri.

KlæðningarKlæðningarÞekking, reynsla og fagmennska– Við fylgjum þér alla leið

Þekking, reynsla og fagmennska– Við fylgjum þér alla leið