110
tímarit um sportveiði og tengt efni 3 . 2011 VEIÐISLÓÐ

Veidislod 3 tbl 2011

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Efni þessa 3.tölublaðs VEIÐISLÓÐAR er margvíslegt að venju, en lesendur munu kannski taka eftir því að ljósmyndun er nokkur þungamiðja. Það stafar af því að við erum sammála Einari Fal Ingólfssyni ljósmyndara, sem skrifar pistil hér í blaðið, þess efnis að myndavél sé nú nánast ófrávíkjanlegur fylgihlutur hvers veiðimanns, hvort heldur er til að skrá minnistæða fiska, atvik og/eða íslenska náttúru í öllu sínu sumarveldi. Annars erum við að upplifa athyglisvert sumar núna, veiðin tók seint við sér, en hefur glæðst upp á síðkastið. Við sjáum hvað setur með það, en það verða alltaf góðar stundir á bökkum vatnanna hvort sem fiskur er að rokveiðast eða ekki.

Citation preview

Page 1: Veidislod 3 tbl 2011

tímarit um sportveiði og tengt efni

3. 2011

VEIÐISLÓÐ

Page 2: Veidislod 3 tbl 2011

Infinity

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

NÝJA NORSKA STÓRFISKASTÖNGIN FRÁ HENRIK MORTENSEN

Page 3: Veidislod 3 tbl 2011

frá ritstjórn

www.veidikortid.is

35 vatnasvæði aðeins kr. 6000

Ertu búinn að fá þér Veiðikortið?

00000

Komiði sælir lesendur góðir og bestu þakkir fyrir frábærar undirtektir. Heimsóknir og lestur þessa blaðs hefur farið fram úr okkar björtustu vonum. Við reynum að halda áfram á líkri braut með þó þeim vinkli að næsta blað sé betra en það síðasta o.s.frv. Efni þessa 3.tölublaðs VEIÐISLÓÐAR er margvíslegt að venju, en lesendur munu

kannski taka eftir því að ljósmyndun er nokkur þungamiðja. Það stafar af því að við erum

sammála Einari Fal Ingólfssyni ljósmyndara, sem skrifar pistil hér í blaðið, þess efnis að

myndavél sé nú nánast ófrávíkjanlegur fylgihlutur hvers veiðimanns, hvort heldur er til

að skrá minnistæða fiska, atvik og/eða íslenska náttúru í öllu sínu sumarveldi. Annars

erum við að upplifa athyglisvert sumar núna, veiðin tók seint við sér, en hefur glæðst upp

á síðkastið. Við sjáum hvað setur með það, en það verða alltaf góðar stundir á bökkum

vatnanna hvort sem fiskur er að rokveiðast eða ekki.

Við erum með netfang, [email protected] og þangað skuluð þið endilega senda

ábendingar og hugmyndir.

Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrot

Jón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif.

Page 5: Veidislod 3 tbl 2011

6 Stiklað á stóru Samantekt frá opnunm laxveiðiáa í júlímánuði.

10 Veiðistaðurinn Reykjadalsá í Reykjadal í Suður Þingeyjarsýslu, ásamt Eyvindarlæk.

20 Veiðistaðurinn Straumarnir í Hvítá eru ein-hver magnaðasti laxveiði-staður landsins..

26 Fluguboxið Við rifjum upp eina sem heillaði laxinn í gamla daga. Vulturine Blue Elver!

30 Fluguboxið Sigurður Héðinn hefur lengi lúrt á nokkrum eðal leynivopnum.

38 Ljósmyndun Myndavélar ættu að teljast til grunnbúnaðar stanga-veiðimanna.

40 Vöðluskór Lárus Gunnsteinsson heldur áfram að leiða okkur á góða staði um eðli og viðhald búnaðar.

42 Viðtal Veiðiheimur, þar sem fisk-arnir synda. Þrjú ungmenni, Einar Guðnason, Rut Val-geirsdóttir og Börkur Smári Kristinsson hafa stofnað fluguveiðiskóla.

52 Útivist Guðmundur Ingi Hauksson leiðir okkur inn í undraheim köfunar, heim þyngdarleysis og þrívíddar.

62 Fjölskylduveiði Meðalfellsvatn hefur allt til brunns að bera.

66 Fjölskylduveiði Baulárvallavatn heillar þá sem þangað koma til veiða.

70 Ljósmyndun Örn Óskarsson hefur um árabil verið heillaður af Veiðivötnum á Landmanna-afrétti.

86 Strandveiði Reynir Friðriksson veiðir háf á sunnlensku söndunum og skellir þeim á grillið!

90 Einu sinni var Hér rifjar Jóhannes Kristjánsson á Akureyri upp ótrúlegar uppákomur af bökkum Laxár í Aðaldal.

94 Villibráðareldhúsið Hér er lauflétt silungaupp-skrift sem við fengum frá hörkukokki.

96 Lífríkið Við ræðum við Jóhann Óla Hilmarsson fuglaljósmynd-ara sem var að endurútgefa Fuglavísinn.

100 Veiðisagan Jón Eyfjörð Friðriksson leiðir okkur inn í heim óbyggðaveiða. Að fara á heiðar með flugustöng, góðan búnað, plan og gps tæki er veiðiskapur sem heillar marga.

104 Græjur og fleira Hér kennir ýmissa grasa að venju. Byrjar á frásögn af skemmtilegri veiðistaða-getraun Veiðihornsins, sagt frá „flík“ sem fæst í Vesturröst sem er bakpoki og veiðivesti í senn, sagt frá sérhannaðri veiðitösku sem gæti leyst af hólmi hefð-bundnu veiðivestin, fæst líka í Vesturröst. Þá er sagt frá risaflugubar Veiðihorns-ins og sýnd nokkur sýnis-horn af þeim kokteilum sem þar er að finna ...

efnið

Page 6: Veidislod 3 tbl 2011

stiklað á STÓRU

6 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Björn K.Rúnarsson með hrikalegan stórlax úr Vatnsdalsá.

Page 7: Veidislod 3 tbl 2011

7

Segja má að sunnanlands og vestan hafi sumarið loksins haldið innreið sína í júlí. Norðan heiða og austan hélt áfram að vera rysjótt vor með stöku góðum dögum innan um. Laxinn lét bíða eftir sér víðast hvar, þó ekki á Norðaustur- og Austur- landi. Annars staðar fór laxveiðin afar hægt af stað og var beinlínis slök víða. Stórlax hélt veiðinni uppi, en við stórstrauminn um miðjan júlí varð afgerandi breyting. Lax fór að ganga, mikið af því smálax.

Page 8: Veidislod 3 tbl 2011

flokkurstiklað á stóru

Sumir voru farnir á taugum, en aðrir sögðu eðlilegt að gefa laxinum 1-2 vikur miðað við meðal árferði til að skila sér. Þegar þetta er ritað, komið fram undir lok júlí, þá virðist sem svo að bjartsýni megi ríkja eitthvað fram eftri sumri. En aðeins tíminn leiðir í ljós hvernig þetta fer.

Á silungaslóðum var veiði furðu góð á kuldasvæðum eins og í Suður Þingeyjarsýslu og á Landmannaafrétti. Þegar leið á júlí var þó kvartað undan slælegri töku í Veiðivötnum vegna þess að fiskur var allur að komast í æti. Það rættist þó úr. Sömuleiðis á Skagaheiði og Arnar-vatnsheiði svo eitthvað sé tínt til. En það væri skrök að segja að þetta hafi verið fínasta veiði. Þetta var hark í kuldatíð, en fór batnandi er leið á mánuðinn. Hvernig sem þetta endar allt saman, þá munu við vertíðarlok margar veiðisögur verða sagðar frá sumrinu 2011. Lítum svo á myndsjá fyrir síðasta mánuðinn...

1 Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir með glæsilegan 104 cm lax úr Laxá í Aðaldal. Mynd Þorgeir Frímann Óðinsson.

2 Mikið var um stórlaxa í opnun Breiðdalsár. Mynd frá www.strengir.is

3 Stefán Jón Hafstein með 7 punda urriða úr Ónefndavatni í Veiðivötnum.

4 Nils Folmar Jörgensen veiddi 103 cm lax á Hrauni í Laxá í Aðaldal.

5 Lochy Porter veiddi þennan rígvæna urriða í Geirastaðaskurði í Laxá í Mývatns­sveit. Mynd Bjarni Höskuldsson.

8 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Garðar K.Vilhjálmsson með glæsilegan lax í opnun Svartár. Mynd Páll Ketilsson.

Vigfús Orrason með tuttugu pundara í opnun Selár.

Jóhanna Malen veiddi þennan flotta lax í Norðfjarðará.

Page 9: Veidislod 3 tbl 2011

1

2

4

3

5

Page 10: Veidislod 3 tbl 2011

10 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Urriða landað í Stórulaugarpolli.Myndir með þessarri grein tók Einar Falur.

Page 11: Veidislod 3 tbl 2011

11

Reykjadalsá og Eyvindarlækur

Hér er bæði, magn og gæðiReykjadalsá ásamt Eyvindarlæk í Reykjadal í Suður Þingeyjarsýslu hefur það til brunns að bera sem margan veiðimanninn gleður. Ef að laxinn tekur ekki, þá er hún full af urriða. Sumir fara meira að segja í hana gagngert til að veiða urriða, t.d. franskir þurrflugukarlar sem þyrpast í hana um hásumarið og hverfa frá hyljum ef að laxar ætla að gera sér dælt við flugurnar. Það er því alltaf veiðivon, afburðagóð veiðivon. Og ekki spillir Reykjadalurinn, gróðurinn, fuglalífið og fjölbreytileiki árinnar. Stundum er talað um magn fremur en gæði eða gæði umfram magn. Hér er bæði, magn og gæði.

Aðaldalur sem Laxá í Aðaldal er kennd

við deilist til suðurs í tvo dali, sem heita

Laxárdalur og Reykjadalur. Um dalina

renna Laxá og Reykjadalsá sem samein-

ast stuttu fyrir neðan virkjanirnar sem

loka minni Laxárdals. Sá hluti Reykja-

dalsár sem nær frá Vestmannsvatni

og norður að ósi við Laxá er nefndur

Eyvindarlækur. Benedikt Helgason

leiðsögumaður og veiðimaður er öllum

hnútum kunnur við Reykjuna. Hér er

lýsing hans á ánni og svæðum hennar.

Reykjadalsá á upptök sín að hluta til

í Másvatni upp á Mývatnsheiði en að

hluta til sunnar á heiðunum við rætur

Reykjadals. Alls er veiðisvæði árinnar

um 35 km á lengd og er það veitt með 6

stöngum. Það er því óhætt að segja að

það sé rúmt um veiðimenn og nánast

ómögulegt að fara yfir allt veiðisvæðið

í þriggja daga veiðitúr svo vel sé. Nýtt

veiðihús sem rúmar 8-12 manns var

byggt við ánna árið 2004 og er almennt

mjög vel af því látið.

veiðistaðurinn

Page 12: Veidislod 3 tbl 2011

1

2

12 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 13: Veidislod 3 tbl 2011

13

Reykjadalsá og Eyvindarlækur

Stangveiðar hafa verið stundaðar í

Reykjadalsá í marga áratugi. Sennilega

hefur hún náð 1000 löxum þegar best

lét en hefur undanfarin ár verið á bilinu

100-200 laxar. En það er ekki bara

lax sem menn eru á höttunum eftir í

Reykjadalsá. Þar veiðast ár hvert þús-

undir urriða sem gefur ákveðna hug-

mynd um hversu frjósöm áin er. Mikið

af þessum urriða er að sönnu smáfiskur

en urriðar allt að 8 pundum hafa þó

fengist í ánni. Á neðsta svæði árinnar

(svæði 1) þar sem hún er lygnust má

einnig finna nokkuð af bleikju.

Árið 2003 tók Pétur Pétursson ána á

leigu og skyldaði sleppingar á laxi eins

hann gerði í Vatnsdalsá árið 1997. Það

er von manna að með þessu fyrir-

komulagi fái laxastofn árinnar mögu-

leika á að ná fyrri hæðum. Það er rétt að

minna veiðimenn sem halda til veiða

í Reykjadal í fyrsta sinn, á að þar gildir

að létta búnaðinn sinn eins og kostur

er. Stangir fyrir línur 3-5 eiga þarna vel

við og fáir veiðistaðir bera annað en

flotlínu. Þokkalegt kort af ánni má finna

á vefnum www.vatnsdalsa.is.

Veiðisvæði

Það er ákveðin hefð fyrir því að skipta

ánni upp í þrjú veiðisvæði. Svæði 1, nær

frá ósnum við Laxá til norðurs að brú

yfir ánna hjá Ökrum til suðurs. Svæði

2 nær svo upp að ræsi á þjóðvegi 1

innarlega í Reykjadal en þar fyrir ofan

tekur við gil sem tilheyrir svæði 3. Það

svæði endar í fossi ca. 2 km sunnan við

bæinn Stafn, sem blasir við frá þjóðvegi

eitt þegar ekið er upp á heiðina inn úr

dalnum í átt að Mývatni.

Hér á eftir verður farið stuttulega yfir

nokkra af helstu veiðistöðum árinnar en

þessi lýsing er engan veginn tæmandi.

Byrjað verður að lýsa veiðistöðum á

efsta svæðinu (svæði 3) en þaðan verður

áin stikuð í átt að ósnum við Laxá.

Almennt má segja að silungur veiðist

hvar sem er í ánni.

Svæði 3 - Gilið

„Þegar lagt er af stað til veiða í gilinu þá

keyra menn oft upp á Mývatnsheiðina

og svo inn afleggjarann að Víðum og

ganga þaðan annað hvort upp eða niður

gilið. Þá getur það verið skynsamlegt ef

menn hafa tvo bíla til umráða að skilja

annan eftir upp á heiði við Víðar eða

jafnvel hinu megin við ána við bæinn

Stafn og veiða sig niður gilið í áttina að

hinum bílnum eða öfugt allt eftir því

hvað hentar mönnum. Undirritaður

hefur haft það fyrir sið að leggja bílnum

á stæðinu við gömlu brúna á þjóðvegi

eitt og ganga upp gilið. Þá má veiða

ánna andstreymis hvort heldur sem

er að reynt er við lax eða silung. Sama

leið er þá gengin til baka niður gilið að

loknum veiðum en það er allt niður í

móti og til þess að gera auðvelt yfir-

ferðar. Á þennan hátt losnar maður við

að príla upp úr gilinu en á köflum er það

bratt og því þarf að velja uppgöngustaði

af varkárni.

Gilið er mjög spennandi veiðisvæði þar

sem skiptast á grunnar breiður og pollar

þar sem víða er hægt að finna fisk. Þegar

kemur fram á sumarið þá getur áin verið

orðin vatnslítil og óveiðileg en fiskur er

alltaf í verulegu magni á þessu svæði.

Hér hafa Evrópskir þurrfluguveiðimenn

oft sett í ævintýralega veiði og reyndar

er mælt með þeirri veiðiaðferð í Reykja-

dal í litlu vatni. Þegar fljótandi agni er

beitt við þessi skilyrði þá breytist áin

skyndilega í eitt stórt veiðisvæði því

1Dæmigerð mynd fyrir neðsta hluta árinnar áður en hún fellur í Vestmannsvatn, hæg, lygn og djúp....allt fullt af urriða og laxi.

2Rétt ofan við Laugar fellur áin í grunnu gróðursæli gili. Þar er veiðivon í öllum strengjum og pollum.

Page 14: Veidislod 3 tbl 2011

14 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

veiðistaðurinn

hvergi er hætta á að festa í botni. Þá

kemst maður að því að fiskur liggur á

ótrúlegustu stöðum. Allir speglar fyrir

framan og aftan steina sem standa upp

úr vatninu eru líklegir til að geyma fisk.

Svæði 2-Dalurinn

Efsti veiðstaðurinn sem eitthvað kveður

að er við sjálf svæðamörkin, en það er

hylurinn fyrir neðan ræsið yfir þjóðveg

eitt. Þessi staður lætur lítið yfir sér en

þar getur legið slæðingur af laxi þegar

kemur fram í ágúst. Menn geta valið að

veiða sig annað hvort upp ánna og þá

inn og í gegnum rörið, en þetta er allt

vætt ef ekki er mikið í ánni. Þá er einnig

hægt að fara hefðbundna leið að þessu

og byrja fyrir ofan rörið og veiða sig

þá leiðina í gegn. Hér er hægt að mæla

með stuttum stöngum til þess að hafa

pláss til þess að athafna sig þegar farið

er í gegnum rörið.

Næsti staður sem vert er að reyna er

Bjargstrengur sem er ca. 100 m neðan

við ræsið en staðinn er líka auðvelt að

finna frá þjóðveginum, því hann er beint

fyrir neðan kjarrið sem vex í hlíðinni hjá

eyðibýlinu sem þarna blasir við. Bjargs-

trengur er vandveiddur því straumurinn

í honum hentar illa fyrir flugu sem

kastað er andstreymis. Þegar staðurinn

er hins vegar veiddur forstreymis þá

blasir veiðimaður við fiskinum. Ef sú leið

er valin er hægt að mæla með að menn

haldi sig vel fyrir ofan staðinn og veiði

langt niður fyrir sig.

Um það bil 1 km fyrir neðan Bjargstreng

er frægur staður sem heitir því sérstaka

nafni Syðsta-lág. Það er næsta víst að ef

lax er farinn að ganga upp fyrir Laugar

að þá er lax á þessum stað. Það eru mý-

mörg dæmi þess að menn hafi kastað á

þennan stað heilum og hálfum flugu-

boxum án þess að verða varir einungis

til þess að hlusta á veiðifélagana segja

sögur af því að þeir hafi landað þar fiski

stuttu seinna. Það eru staðir á leiðinni

niður í Fosspollana sem vert er að kasta

á sérstaklega ef gott vatn er í ánni.

Beygjurnar fyrir neðan Syðstu-lág geta

verið stútfullar af urriða en færri sögum

fer þó af laxveiði á þessum stöðum.

Stóri Fosspollur sem er ca. 2 km neðan

við Syðstu-lág er einn af aðal stöðunum

í ánni. Þar má finna lax allt tímabilið

og urriði er þar einnig. Það virðist gilda

einu hvort kastað er í Fosspollinn ofan

frá klöppunum eða frá eyrinni sem lokar

fossbreiðunni. Báðar þessar aðferðir

gefa veiði. Oft liggur fiskur alveg undir

hvítfissinu en þetta á sérstaklega við

þegar lítið vatn er í ánni. Þá er ágætt að

kasta agninu andstreymis upp á klapp-

irnar og draga rólega fram af ef menn

ætla að reyna við þessa fiska. Ekki van-

meta hvaða áhrif kúluhaus af hentugri

þyngd getur haft þarna. Rétt fyrir ofan

Stóra Fosspoll eru staðir sem kallast

Efri Fosspollur og Breiða en fyrir neðan

Stóra Fosspoll er fallegur veiðistaður

sem kallast Bjarghylur. Allir þessir staðir

geyma urriða og stöku lax.

Ullarpollur er ca. 1 km fyrir neðan Foss-

pollana en þetta er stór staður á mæli-

kvarða Reykjadalsár. Til þess að komast

að staðnum þarf að keyra niður tún á

móts við yfirgefna byggingu á austur-

bakka árinnar.

Á leiðinni niður að Laugum má finna

fullt af stöðum sem geyma urriða en lax

er helst að finna í Fjóspolli á móts við

bæinn Hjalla og svo Stórulaugarpolli

spölkorn fyrir neðan Laugar. Á árum

áður þá var Stórulaugarpollur einn af

1 Margir veiðistaða Reykjadalsár eru stórfallegir, eins og þessi rétt neðan við þjóðveginn.

2 Fallegur strengur neðan við Stóra Fosspoll, hér er alltaf urriði og oft lax líka.

Page 15: Veidislod 3 tbl 2011

1

2

Page 16: Veidislod 3 tbl 2011

1

16 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

2 3

4

Page 17: Veidislod 3 tbl 2011

17

Reykjadalsá og Eyvindarlækur

aðalstöðum árinnar. Þó staðurinn sé

vissulega veiðilegur í dag þá virðist hann

vera orðinn það grunnur að hann heldur

illa laxi en áður fyrr var þetta djúpur

dammur. Það veiðast þó yfirleitt ein-

hverjir laxar þarna á hverju sumri og því

vel þess virði að kíkja þangað, þó ekki

væri nema til þess að renna eftir urriða í

strengjunum fyrir ofan veiðistaðinn.

Nokkru fyrir neðan Laugar er að finna

tvo staði sem kallast Illakelda og Hall-

dórshylur. Þarna er áin orðin tiltölulega

lygn og frekar óspennandi til veiða en

af einhverjum ástæðum þá safnast yfir-

leitt á þessa tvo staði mikið magn af laxi

þegar líða tekur á tímabilið. Stundum

er svo mikið af honum að þeir liggja

á öllu svæðinu á milli veiðistaðanna.

Þegar þannig árar þá er líka að hægt

að finna lax á svæðinu fyrir ofan Ill-

ukeldu. Illakelda og Halldórshylur eru

að öllu jöfnu þeir staðir ásamt Stóra

Fosspolli sem gefa flesta laxa ár hvert.

En þessir hyljir henta ekki smekk allra.

Menn annað hvort elska þá eða hata, en

það er engu logið um magnið af fiski á

þessum stöðum. Á þessu svæði er enn

fremur mikið af urriða og oft á skrítnum

stöðum, eins og uppi í harðalandi á

grunnu vatni.

Þegar menn hafa lokið veiðum í Hall-

dórshyl þá er sjálfsagt að eyða nokkrum

köstum í Ármótin þar sem Seljadalsáin

rennur út í Reykjadalsá. Sá hylur gefur

stundum lax en eins má dunda sér

við silungsveiðar á stöðunum þar fyrir

neðan en þar eykst hraðinn á vatninu

á stuttum kafla. Rennsli á fluguna er

flestum að skapi sem hafa eytt tíma við

reyna að gefa flugunni líf í Halldórshyl

og Illukeldu.

Svæði 1-Flatlendið

Svæðið frá Ármótum og niður að

Pálmholti er ekki mikið stundað en

þar er engu að síður töluvert af silungi.

Þessu ræður að einhverju leyti lakara

aðgengi að ánni en víðast annars staðar

en sjálfsagt líka að áin þykir ekki eins

spennandi á þessum hluta vegna þess

hversu straumurinn er hægur.

Við bæinn Pálmholt rétt sunnan við

Vestmannsvatn er að finna nokkra staði

í ánni sem geyma mikið af silungi og

alltaf eitthvað af laxi. Þetta eru staðirnir:

Kúavað, Pálmholtshylur og Mayershorn.

Þar sem rennur út úr Vestmannsvatni

til norðurs er staður sem nefnist Stráka-

bryggja. Þarna er áin lygn en örlítið brot

í straumnum myndar þarna fantagóðan

veiðistað. Lax liggur þarna bæði fyrir

ofan brotið en eins í straumröstinni

fyrir neðan það. Þarna er að öllu jöfnu

líka góð urriðaveiði. Reyndar er tím-

anum ágætlega varið í að veiða sig með

straumflugu niður að næsta stað fyrir

neðan sem heitir Skurðbrot. Sá staður

gefur stundum lax en á leiðinni þangað

er líklegt að þokkalegur veiðimaður setji

í töluvert af silungi.

Í framhaldi af þessu þá rennur áinn í

gegnum tvö vötn á þessu svæði. Þau

heita Sýrnesvatn og Mýrlaugsstaðavatn.

Áin er lítið stunduð í kringum vötnin

og ræður þar mestu erfitt aðgengi, en

það er helst að menn reyni staðina í

kringum brúna á afleggjaranum að

Laxárvirkjun. Fyrir ofan brúnna fellur

áin sitt hvoru megin við hólma. Fyrir

neðan hólmann og að brúnni er oft svo

mikið af urriða að áin hreinlega sýður

þegar fluga er komin á kreik. Oftast

er þetta þó smáfiskur en einn og einn

vænni leynist þar innan um.

1 Kvöldstemning við Eyvindarlæk

2 Í Gilinu.

3 Nettur Reykju­urriði.

4 Nærri Brúarhyl. Dæmigerð fyrir efri hluta árinnar neðan þó við gilið.

Page 18: Veidislod 3 tbl 2011

18 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Fyrir neðan brúnna og niður að ósnum

við Laxá minnir áin helst á síki með tak-

mörkuðum straumi. Á vorin er nokkuð

algengt að menn eyði tíma sínum í að

veiða sig niður að Laxá en vegalendin er

kannski rúmur kílómeter. Um þennan

hluta af ánni segja kunnugir að finna

megi væna urriða á vorin.“

Þar með lýkur lýsingu Benedikts á

Reykjadalsá, en hana má einnig finna

á vef leigutakans, www.vatnsdalsa.is .

Ritstjóri vill ekki skilja við ána án þess að

leggja nokkur orð í belg. Ég hef nokkr-

um sinnum veitt í henni í júnímánuði,

stundum mokað upp fiski og farið í að

veiða „viðunandi“. Oft væna fiska í bland

við þá smærri, 2-3 punda og það er

frábær skemmtun með léttum græjum.

Þetta er ein af eftirlætisám undirritaðs

og sums staðar er hún svo falleg að

menn gætu orðið orðlausir. Eins og t.d. í

gilinu ofan við Laugar, þar sem áin fellur

í fossum og flúðum í gegnum og fram

hjá gömlum stíflumannvirkjum. Vörðuð

hvönn og blómskrúði og vænir urr-

iðar tifandi í strengjunum. Eða í gilinu

ofan við þjóðveginn. Eða í Bjargstreng

beint fyrir neðan þjóðveginn, þar sem

skógurinn nánast lafir fram af bjarginu

og virðist einungis eiga eftir að falla

ofan í ána!

veiðistaðurinn

Kastað á uppitöku!

Page 19: Veidislod 3 tbl 2011

19

Það er ekki tilviljun að Sage flugustangirnar eru þær vinsælustu í úrvalsflokki flugustanga. Að margra mati eru flugustangirnar frá Sage þær bestu á markaðnum. Því mótmælum við ekki. Allar Sage flugustangir eru hannaðar og þróaðar af flugveiðimönnum og framleiddar í Seattle í Bandaríkjunum. Að kasta fyrir fisk og veiða með Sage er einstök upplifun. Allir fluguveiðimenn verða að eiga að minnsta kosti eina Sage stöng.

Allar Sage stangir eru með lífstíðarábyrgð frá framleiðanda!

VINSÆLASTA FLUGUSTÖNGIN. ÞAÐ ER EKKI TILVILJUN

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

Z-AXIS ROD SERIES - Verð 99.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.

99 ROD SERIES - Verð 99.990,-Mið-hröð stöng. Djúp hleðsla. Sérhönnuð til að bera þungar flugur og túpur.

VXP ROD SERIES - Verð 74.990,-Mið-hröð stöng. Kraftmikil og fínleg stöng fyrir allar aðstæður.

FLIGHT ROD SERIES - Verð 59.990,-Mið-hröð stöng. Góð alhliða flugustöng.

VANTAGE ROD SERIES - Verð 39.990,-Mið-hröð stöng. Góð byrjendastöng á góðu verði.

Page 20: Veidislod 3 tbl 2011

1

2 3

4

20 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 21: Veidislod 3 tbl 2011

21

Straumar

Hér er stundum allt í keng, vakt eftir vakt!Straumarnir eru í Hvítá og eru þar sem Norðurá og

Gljúfurá renna sameiginlega í hana, mynda tæra rönd

sem nær mislangt niður með Hvítá, eftir því hversu mikið

vatn er í ánum sem mynda þetta veiðisvæði.

Þar heitir Straumaklöpp þar sem árnar mætast, mikið dýpi

þar, síðan kemur vík neðan við þessa klöpp og þar úti er

kallað Bugt. Neðst í víkinni er stór steinn á bakkanum

og þar byrjar áin að brotna upp í streng með fallegu

V-laga broti. Þetta er kallað Strenghorn. Þetta er afar stutt

svæði, Bugt og Strenghorn nánast sami veiðistaðurinn

og hér veiðist yfir 90 prósent af Straumalaxinum.

veiðistaðurinn

SVFR er með Straumana á leigu og

þarna er leyft að veiða á tvær stangir.

Leyfunum fylgir aðgangur að einstak-

lega hlýlegu veiðihúsi sem að hluta til

er eitt elsta veiðihús landsins. Það hefur

verið lappað mikið upp á það og byggt

við það, en það heldur gamla útlitinu

og er afar skemmtilegt þar sem það

stendur við gróskumikla skógrækt ör-

skammt frá veiðistaðnum. Við hlið þess

er rúmgott aukahús ef að mannmargar

fjölskyldur vilja leigja daga þarna.

Sumir eru ekki fyrir svona veiðisvæði,

segja að það vanti fjölbreytni, en það

er líka afar heillandi, að rölta niður að á

á tveimur mínútum og rölta svo upp í

kofa í kaffi. Ræsa aldrei bílinn á meðan

veiðitúrinn stendur yfir. Og það má

kannski segja að það vanti fjölbreytni

í veiðistaði í Straumunum. En á móti

kemur, og mörgum þykir það jafna leik-

inn talsvert, að það er enginn skortur á

laxi. Þarna fer allur Norðurár, Gljúfurár

og Þverárlax fram hjá. Líklega stoppar

1 Hér sést aðal­veiðisvæðið, Bugt og Strenghorn.

2 Einn dæmigerður úr Straumunum, 5 punda á Snældu!

3 Komið ofan í strenginn neðan við Strenghorn.

4 Veiðihúsið gamla og góða.

Myndir gg og Herdís Ben.

Page 22: Veidislod 3 tbl 2011

22 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

veiðistaðurinn

Þverárlaxinn ekki, en Norðurárlaxinn

og Gljúfurárlaxinn gerir það. Þarna

er stundum lítið líf að sjá , það gætir

sjávarfalla upp á Straumaklöpp, það

getur því allt orðið bandvitlaust á svip-

stundu ef að laxar koma inn á svæðið.

Heyrst hefur að allur lax sem veiðist

í Straumunum sé lúsugur og það er

eflaust margt til í því.

En veiðisvæðið er vissulega stutt þó það

sé líka langt. Það nær talsvert niðurúr

og þar fyrir neðan eru svokallaðar

Ferjukotseyrar sem Lax-á er með á

leigu. Það er mun lakara svæði, en samt

setja menn oft í fisk þar.

Straumaklöppin sjálf er ekki sérlega

góður veiðistaður. Hyldjúp breiða,

en stundum setja menn þar í lax eða

sjóbirting sem talsvert er af í Straumun-

um. Þetta eru sjálf ármótin og þeir sem

veiða frá Flóðatanga eru mjög hrifnir af

því að veiða hér. Þeir hörðustu ganga

frekar langt, vaða Hvítána langleiðina

að sjálfum skilunum og kasta upp í land

hjá Straumamönnum. Eflaust yrðu oft

árekstrar ef Straumaklöppin væri ekki

jafn slakur veiðistaður Straumamegin

og raun ber vitni.

En um það bil í miðri Bugtinni byrjar

að vera alvöru veiðivon og hún verður

meiri og meiri eftir því sem neðar dreg-

ur. Menn þurfa að vaða þarna aðeins út

til að ná út í skilin og eftir því sem vaðið

er neðar, þoka menn sér smátt og smátt

til lands, uns það er hrein firra annað

en að standa uppi á þurru. Þá er komið

niður undir Strenghornið. Þar er stór

steinn á þurru í vatnsborðinu og út af

og upp af honum eru tökumið...einnig

niður með. Þarna er þetta fallega V-laga

brot. Þetta er skammt frá landi og þarna

er oft haugur af laxi og auðvlet að hitsa

þetta ef menn eru þannig stemmdir.

Þetta er frábær hits-staður. Einnig má

þverkasta og draga fluguna hratt, eða

hafa það gamla hefðbundna þverkastið

með þungri flugu eða sökktaum, eða

bæði. Þá er takan hæg og þung, ella

hröð og geggjuð. Menn bara velja. Allt

agn er leyfilegt í Straumunum, þannig

að sumir hafa gaman að því að vaða út

ofan við miðja bugt, þverkasta maðki

fyrst, en langrenna síðan er neðar

dregur, enda er heitasti veiðistaðurinn

á Strenghorninu mjög nálægt landi.

Spón má reyna þarna en varast ætti að

þrákasta með honum. Nokkur köst í lok

vakta ætti að duga, því laxinn rýkur með

látum í spóninn ef hann er til staðar, ella

styggist hann bara ef menn taka upp á

því að þrákasta.

Straumarnir byrja yfirleitt að gefa vel

þegar lítið er eftir af júní. Það er eins

og tveggja ára júnílaxinn stoppi minna

þarna heldur en smálaxinn sem seinna

kemur. Þó koma oftast skot í júní og

júnímánuður í fyrra, 2010, var frábær,

enda laxinn óvenjulega snemma á

ferðinni. En þó að þorrinn af laxinum

í Straumunum sé smálax, þá er hann

þarna að veiðast á svæði þar sem sjávar-

falla gætir. Hann er grálúsugur og fullur

af orku, ekkert farinn að takast á við

fossa og flúðir. Þetta er örasti nýrenn-

ingur sem að menn komast í tæri við.

Enda er veiðin iðulega ævintýraleg

þegar skilyrðin eru hagstæð.

En menn ættu að nýta sér hversu

afslappaður og einfaldur veiðistaður

Straumarnir eru, líta upp úr ánni af og

til og virða fyrir sér fallegan fjallahring

Borgarfjaðrar og njóta fuglasinfóní-

unnar, sem er óvenjulega fjölskrúðug.

Einhverju sinni taldi ritstjóri nærri 40

tegundir fugla í einni og sömu veiði-

Page 23: Veidislod 3 tbl 2011

23

Straumar

ferðinni. Þar á meðal voru rjúpa, lómur,

brandugla, brandönd og starri, sem var

með óðal í klettunum við skógræktina.

Eitt skiptið sem ritstjóri veiddi í Straum-

unum verpti brandönd undir verönd

hússins, beint fyrir neðan útidyrnar. Ef

lagst var á pallinn og kíkt á milli spýtna,

mátti sjá kolluna stara reiðilega á móti.

Brandöndin er stór og litskrúðugur fugl

og mjög sérstakt að hún skuli velja sér

svona varpstað. Tvisvar á sólarhring

kom steggurinn gangandi, lét holtið

við húsið skýla sér og gægðist síðan að

húsinu. Það var eins og kollan skynjaði

karlinn, því hún spratt af eggjunum

um leið og hann sást gægjast, smaug

undan pallinum og síðan sást til þeirra

fljúga til hafs. Þau fóru sem sagt tvisvar

út að borða saman á sólarhring þrátt

fyrir verkefnið undir pallinum.

Þá varð þarna eitt sinn mergjaður

atburður sem tengdist einum af vængj-

uðu nágrönnunum. Skólabróðir einn

gamall sagði þessa sögu er hann veiddi

eitt sinn í Straumunum: Í miðdegis-

hléinu sat allt fólkið úti á verönd í góðu

veðri og borðaði hádegismatinn. Stang-

ir voru hér og þar, hallað upp að hús-

veggjum. Ein kaststöng lá upp að vegg

verandarinnar við norðurgafinn og De-

von sem var á línunni, fremur stór og

brúnn, hafði losnað frá lykkjunni sem

hann hafði verið festur við. Þar vingsaði

hann sem sagt. Skyndilega varð uppi

fótur og fit á veröndinni þegar smyrill

kom með miklum fyrirgangi og gerði

harða hríð að Devoninum, renndi sér

hvað eftir annað á hann, sló til hans

með klónum og reyndu að klófesta

hann. Devoninn fór að sveiflast til og frá

Hér er Bugt og Strenghorn. Baula og fleira af fjallahringnum í baksýn.

Page 24: Veidislod 3 tbl 2011

24 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

veiðistaðurinn

við þessar aðfarir og færðist smyrillinn

bara í aukana og linnti ekki látunum

fyrr en að einhver í hópnum áttaði sig

og greip stöngina áður en ránfuglinn

færi sér að voða. En málinu var ekki þar

með lokið, því smyrillinn var kominn í

slíkan vígahug að hann réðist í staðinn

að veiðimanninum sem hafði gripið

stöngina og enduðu þessi viðskipti með

þeim hætti að veiðimennirnir á verönd-

inni ruddust allir inn í hús með snarvit-

lausan smyrilinn á hælunum!

Öðru sinni sátum við úti á verönd að

kvöldlagi við lok veiðidags og spjöll-

uðum saman. Sumarnóttin nálgaðist,

björt og heillandi. Skyndilega sáum við

hreyfingu innan við tíu metra frá okkur,

beint framundan veiðihúsinu. Rjúpa

laumaðist þar milli þúfna. Síðan ekkert.

Eftir stutta stund gengum við varlega

þangað sem síðast sást til rjúpunnar

og í fyrstu var ekkert að sjá. En það var

vegna þess hversu samlit móanum hún

var. Þarna lá hún á eggjum sínum og

svo gæf að hún hreyfði sig ekki þótt

við krypum tvö við hlið hennar. Næsta

morgun var síðan karrinn í leirbaði ekki

þrjá metra frá mér er ég sat og horfði

yfir Strenghornið. Hvers vegna karrarnir

fara í leirbað skal ósagt látið, en kenning

er til um að þeir séu að reyna að dempa

hvíta litinn sem þeir sitja uppi með og

gerir þá afar sýnilega fálkanum.

En aftur að laxinum, en þó að mest af

laxinum sem veiðist í Straumunum sé

smár, þá var svo ekki hér fyrr á árum

þegar stærri laxar voru fleiri. Þá veiddi

t.d. Garðar heitinn Svavarsson eitt árið

tvo laxa sama daginn sem voru annars

vegar 20 og hins vegar 29 pund. Þegar

Garðar var að kljást við þann stærri var

hann undir lokin kominn eitthvað niður

með á og búinn að vaða út á svarta

sandeyri þar sem hann náði að stranda

laxinum. Tókust þeir þar á kapparnir og

gekk svo mikið á að laxinn jós svörtum

sandi yfir Garðar. Leist áhorfandi

börnum hans ekki betur á gang mála en

svo að þau hlupu grátandi upp í veiði-

hús og sögðu mömmu sinni að laxinn

væri að drepa pabba! Garðar veiddi

fleiri stórlaxa í Straumunum, m.a. 24

og 25 punda, þannig að þá var –öldin

sannarlega önnur

Einn úr Bugtinni.

Meðalveiði: 1.053 laxar á 5-6 stangir á ári, árin 2006-2009

Verð: 14.000-69.000 kr. á hv. stangardag

Fyrirkomulag: 2ja daga „holl“ hádegi til hádegis

Leyfilegt agn: Fluga og maðkur

Gisting: 2ja manna herbergi með uppábúnum rúmum, 12.000 kr. á sólarhring

Tímabil: 18. júlí til 30. september

Laxveiði í einni bestu á landsins!

Norðlingafljót

Jóhannes B. SigmarssonS: 771 6353, [email protected]

Borgarfirði

www.nordlingafljot.com

Page 25: Veidislod 3 tbl 2011

Meðalveiði: 1.053 laxar á 5-6 stangir á ári, árin 2006-2009

Verð: 14.000-69.000 kr. á hv. stangardag

Fyrirkomulag: 2ja daga „holl“ hádegi til hádegis

Leyfilegt agn: Fluga og maðkur

Gisting: 2ja manna herbergi með uppábúnum rúmum, 12.000 kr. á sólarhring

Tímabil: 18. júlí til 30. september

Laxveiði í einni bestu á landsins!

Norðlingafljót

Jóhannes B. SigmarssonS: 771 6353, [email protected]

Borgarfirði

www.nordlingafljot.com

Page 26: Veidislod 3 tbl 2011

Vulturine Blue Elver með stuttum væng og löngum. Báðar magnaðar.

26 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 27: Veidislod 3 tbl 2011

fluguboxið

Ein gömul og góð sem gaman væri að dusta rykið afÞað eru margar laxaflugurnar sem voru og hétu eitt sinn í íslenskum ám, en hafa síðan meira og minna horfið af sviðinu með tilkomu alls konar nútímalegri flugna sem við hirðum ekki um að nefna. Í síðasta tölublaði minntum við á Night Hawk, sem á þó enn sína áhangendur hér á landi. Ef að Vulturine Blue Elver á sér enn vildarvini, þá þekkjum við a.m.k. ekki til þeirra. VBE er þó kyngimögnuð fluga og líklega önnur tveggja sem reyndar hafa verið hér á landi sem áttu að svipa til álalirfa á leið frá Þanghafinu.

Hin flugan var auðvitað Black Sheep

Haraldar Stefánssonar. Og raunar er fátt

skylt með þessum flugum, Vulturine

Blue Elver og Black Sheep, utan að

báðar eru upprunalega hnýttar með

mjög langa vængi.

Þá er langa hvíta gammafjöðrin í væng

VBE sem gefur henni álalirfu-„lúkkið“.

Blái liturinn er að öðru leyti drottnandi í

flugunni sem gefur hafinu vissa skír-

skotun. Blátt í laxaflugum hefur að auki

reynst fádæma vel í íslenskum laxveiði-

ám og þegar langa hvíta röndin bætist

við, þá má heita með ólíkindum að svo

fáir kasti lengur þessari flugu.

Ritstjóri er ekkert gamalmenni, en

samt var farið að fjara unda VBE á

27

mínum yngri árum í laxveiðinni. Fáir

að nota hana, en þó voru algjörir topp-

veiðimenn á borð við látnu meistarana

Garðar H.Svavarsson og Rafn Hafnfjörð

að hvetja mig til að eignast hana og

reyna hana. Hún væri mögnuð fluga og

í hópi eftirlæta þeirra. Garðar gaf mér

meira að segja tvö eintök sem ég tímdi

aldrei að nota í mörg ár. Ein þeirra,

númer 6, gaf mér seinna þrjá laxa í beit

í Eyrarhyl í Gljúfurá í Borgarfirði, en

þegar fjórði laxinn hristi sig af, tók fyrir

tökuna. Flugan sú er ekki hæf til ljós-

myndunar eftir atburðinn, en hér getur

að líta hina og athyglisvert er að hún

er hnýtt með stuttan væng. VBE er að

upplagi „long tail“ fluga. Í Eyrarhylnum

var flugan veidd hægt og djúpt í þessu

tilviki, en virkar án vafa hraðar og ofar.

Page 28: Veidislod 3 tbl 2011

Garðar og Rafn töluðu alltaf um Vult-

urine Blue Elver, en í flugubiblíu Jóns

Inga Ágústssonar er talað um tvær

nauðalíkar flugur, Elver og Blue Elver.

Segir og að Elver gangi stundum undir

nafninu Blue Elver og Ransome´s Elver,

eftir höfundi sínum Arthur Ransome.

Þetta eru líkar flugur og líklega er Blue

Elver sú sem meistararnir kölluðu

Vulturine Blue Elver. Vulturine höfðar

til gamms sem lagði til hvítu fjaðrirnar í

væng flugunnar. Gammur þessi gerðist

afar sjaldgæfur og allt annað en rétt-

dræpur. Sumir sögðu að hann hefði

dáið út og aðrir að hann hefði farið

tæpt. Jón Ingi segir í bók sinni að hvíta

fjöðrin komi nú úr „gammhænu“.

Það þarf ekki annað en að líta á VBE

til að átta sig á því að þetta er mögnuð

laxafluga, sérstaklega „rétta“ útfærslan

með langa vængnum. Skemmtileg

veiðisaga tengd flugunni er höfð eftir

Rafni heitnum Hafnfjörð í nýlegu tölu-

blaði Áróðs, fréttabréfi Ármanna. Gefum

Rafni orðið:

-Ég veiði minn fyrsta lax í Selá árið 1969

og það var svolítið ævintýri. Gústaf,

Oddur og Vífill höfðu verið þarna í viku

og ekki fengið neinn lax. Vífill kemur

þá og bauð mér að veiða á þeirra svæði.

Við tjölduðum við lítinn læk í túninu á

Leifsstöðum. Frá bænum og tjaldinu var

stutt að labba að Leifsstaðahyl, og þar

kemur hlaupandi Oddur, sonur Vífils,

sem þá var sjö ára. Ég kasta þarna minni

uppáhaldsflugu, Vulturine Blue Elver

númer 6 – og það er lax á í fyrsta kasti.

Ég landa honum og rota. Drengurinn

hoppar af ánægju og við setjumst á

stein og dáumst að laxinum um stund.

„Ætlarðu ekki að kasta aftur?“, spyr

strákurinn. ‚Eg geri það og annar tók

fluguboxið Vulturine Blue Elver

strax. Þá rétti ég drengnum stöngina og

segi: „Þú verður að veiða þennan.“ Þetta

var svo skemmtilegt að ég gleymi því

því aldrei. Strákur tekur við stönginni,

setur á öxlina, snýr frá ánni og hleypur í

átt að bænum, og laxinn fleytti kerling-

ar á ánni og langt upp á land, þar sem

drengurinn kastar sér á hann. Þegar við

höfðum rotað laxinn tók stráksi hann í

fangið og bar heim. Þar tóku fagnandi á

móti honum faðir og afi.“

Og þar sem við erum að rifja upp afrek

gömlu meistaranna með Vulturine Blue

Elver, þá er líka skráð veiðisaga eftir

Garðar H. Svavarsson í bókinni Varstu

að fá ´ann sem kom út árið 1983. Garðar

segir frá atviki úr Flóku í Borgarfirði:

-Daginn eftir fór ég í veiðistað sem

heitir Rangur, og er örskammt fyrir

ofan neðri brúna. Birgir fór í Hundsfoss

að eiga við lax sem hann vissi af þar. En

ég fékk fljótlega fisk í Rang á Vulturine

Blue Elver númer 6, og það gekk alveg

voðalega illa að eiga við hann. Í klukku-

stund gat ég varla haggað honum og

ég hélt lengi vel að hann væri í góðri

aðstöðu á bak við stein eða eitthvað

þvíumlíkt. Það kom á daginn að svo var

ekki og ég gat ekki fundið aðra skýr-

ingu en að straumlagið væri honum

svona óvenjulega hagstætt. Í heila

klukkustund gat ég varla hreyft hann

af fermetranum sínum þótt ég togaði

af öllum kröftum. Svo náði ég honum,

þetta var 17 punda, nýrunninn og alveg

stórfallegur hængur. Stærsti laxinn úr

Flóku það sumar.“

Af þessu má ráða að VBE er sterk

fluga og verðskuldar það ekki að falla

í gleymskunar dá meðal veiðimanna.

Þetta er ein þeirra gömlu flugna sem

ber að halda á lofti.

28 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Page 29: Veidislod 3 tbl 2011

29

Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal

BESTA URRIÐAVEIÐISVÆÐI Í HEIMI! Veiðileyfin færðu á SVFR.IS

Page 30: Veidislod 3 tbl 2011

flokkur

Sigurður Héðinn alias Siggi Haugur afhjúpar leynivopnin

Hef farið með þessar flugur eins og

fluguboxið

Sigurður Héðinn heitir einn slyngasti fluguhnýtari og fluguhönnuður

landsins. Sumir þekkja hann líka undir nafninu Siggi Haugur og er hann

þar kenndur við fluguna Haug sem er geysilega veiðin fluga sem hann

hannaði um árið. Það er mikill fengur að því fyrir stangaveiðimenn,

einkum þá sem stunda meira laxveiðina, þegar hann ákveður að sýna

nokkrar magnaðar flugur sem einungis hann sjálfur og nánir vinir hafa

fengið að nota síðustu árin. Þetta eru túpuútgáfa af Haug og síðan

flugurnar Von, Gosi, Hrútur og Skuggi.

Sigurður er með fastsettar skoðanir á

hlutunum og fer aldrei undan í flæm-

ingi með þær. Alltaf talað tæpitungu-

laust og það fyrsta sem hann segir

okkur, í sömu andrá og hann sam-

þykkir að sýna lesendum Veiðislóðar

flugurnar, að hann sé ekkert hrifinn af

því að gera það. Tilfellið sé nefnilega

að margir hnýtarar víla ekki fyrir sér

að brjóta höfundarrétt á kollegum

sínum. Taka sömu fluguna, breyta

henni lítillega og skýra upp á nýtt. Það

sé kannski eðlilegt upp að vissu marki

því margar flugur séu líkar og hnýtarar

margir hverjir sérvitrir. En þegar aug-

ljóslega sé verið að stæla annars hönn-

un, nýtt nafn skjóti upp kollinum og

viðkomandi selji þær flugur sem eigin

hönnun, þá sé nóg komið. En hvað

þessar flugur varðar, jú þetta gæti gerst

með þær, en „ég hef farið með þessar

flugur eins og mannsmorð síðustu

árin, en það er bara kominn tími á að

fleiri fái að sjá þær,“ segir Sigurður og

getur þess einnig að hann sýni aldrei

flugur eða mæli með þeim, nema að

hann sé sjálfur ánægður með þær og

hafi veitt á þær. „Ef ég get ekki veitt á

tilteknar flugur, þá fer ég ekki að mæla

með því aðrir noti þær flugur. Það

er því margt sem hefur farið í rusla-

kistuna, en þessar flugur eiga það þó

sammerkt, að þær hafa verið reyndar

ítrekað og þær veiða, og veiða vel. Þetta

er bara mín fílósófía og ég er ánægður

með hana,“ segir Sigurður.

30 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

mannsmorð

Page 31: Veidislod 3 tbl 2011

31

Túpu-Haugur

Ef við byrjum á túpuútgáfunni af Haug,

þá hefur hún verið til frá árinu 2000.

Bara ekki til sýnis, nema löxum í til-

teknum ám. Sigurður á 11,2 kg fisk af

Nesveiðunum í Laxá í Aðaldal fyrir níu

árum síðan sem hann veiddi á túpu-

Haug. Það er athyglisvert með Hauginn,

segir Sigurður, að hún var upprunalega

hönnuð sem bjartviðrisfluga, en virkar

þó aldrei betur heldur en í mígandi

rigningu og þungbúnu veðri. Eins og

sjá má af myndinni, þá er flugan for-

áttuveiðileg. Þegar við sátum kvöld-

stund með Sigurði vegna þessa pistils,

þá hafði hann nýverið heyrt frá vini

sínum sem var að ljúka sinni fyrstu vakt

í Straumunum. Hann var með túpu-

Haug og var búinn að landa 9 löxum!

Þannig að já, þær veiða.

31

Ljósmyndir: Heimir Óskarsson

Page 32: Veidislod 3 tbl 2011

32 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Von

Von er eina flugan úr smiðju Sigurðar

sem hefur kvenkyns nafn. „Ég ákvað

snemma að skýra allar mínar flugur

karlkyns nöfnum. Fannst bara of mikið

af kvenkyns nöfnum í fluguflórunni.

Vildi jafna þetta aðeins út. Þessi undan-

tekning er þannig til komin að ég

setti hana í samkeppni Krabbameins-

félagsins árið 2006/7 um veiðilegustu

fluguna. Hilmar Hansson vann þá

keppni með Krabbaflugunni, en nafnið

Von skírskotar til krabbameinssjúkra,

að þeir eigi von. Græni liturinn er mjög

mikilvægur í Von og í aðalatriðum er

hún græn útgáfa af Haug. Það er komin

bullandi reynsla á þessa flugu og hún

veiðir gríðarlega vel við vissar aðstæður,

t.d. þegar grænn litarkeimur er á ánum.

Á Von sést annað sérkenni sem loðir við

mínar flugur. Það er rauði hausinn. Mér

fannst mikið til koma spænska flugu-

hnýtingarmeistarans Bella Martinez

sem hnýtti allar sínar flugur með brún-

um haus. Mér finnst hausinn á flug-

unum vera afar mikilvægur og ákvað að

hafa þetta svona.

Page 33: Veidislod 3 tbl 2011

33

Gosi

Burðarlitir Gosa eru hvítt, silfur og

appelsínugult skegg, auk rauða hauss-

ins. Þessi fluga var hnýtt fyrir mann

sem átti fertugsafmæli árið 2006. Sá átti

forláta Harley Davidson mótorhjól og

litirnir eru hinir sömu og eru í merki

HD framleiðandans. Kappinn ætlaði

síðan að kaupa mikið af flugunni, gerði

það síðan ekki og þá breytti Sigurður

nafni hennar í Gosa. En fyrir hét hún

Harley. Það er sama með Gosa og aðrar

flugur í þessum pistli, það er komin

reynsla á hana og hún er afar gjöful.

Page 34: Veidislod 3 tbl 2011

34 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Hrútur

Gult er áberandi í fluguni Hrúti og hún

er einkum gjöful og góð í björtu veðri.

Það er búið að reyna Hrút vandlega eins

og aðrar flugur og hún reynist vel. „Mér

finnst Hrútur skemmtilegt nafn á flugu“,

segir Sigurður!

Page 35: Veidislod 3 tbl 2011

35

Skuggi

Loks er það Skuggi, sem Sigurður segir

fullum fetum að sé ekkert annað en

hans eigin prívat íslenska útgáfa af

Sunray Shadow. „Ég býst við að þessi

fluga eigi eftir að gera allt vitlaust og

menn spyrji sig og hneykslist á því

hvernig ég vogi mér að senda frá

mér svona flugu. Það eru komnar alls

konar útgáfur af þessari flugu og fullt

af nöfnum. Ef við tökum fyrir upp-

runalegu Sunray Shadow, þá er hún

hönnun Ray Brooks og heitir í raun Sun

Ray, með tveimur orðum. Þegar ég hef

veitt á þessa flugu hef ég gjarnan bókað

með skammstöfun, SRS. Ég er ekkert að

fela hver fyrirmyndin er, þetta er bara

persónuleg útfærsla og Skugganafnið

er skírskotun í Shadow. Auk þess finnst

mér Skuggi vera flott nafn á flugu,“ segir

Sigurður.

Page 36: Veidislod 3 tbl 2011

36 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

fluguboxið

Fleiri pælingar

Sigurður Héðinn hefur verið leiðsögu-

maður veiðimanna í meira en tuttugu

ár. Hann hefur því marga fjöruna sopið

og er geysilega öflugur veiðimaður.

Hann segir að yfirborðsveiði sé topp-

urinn hjá sér og hafi lengi verið. Hvort

heldur hann „hitsar“, strippar eða veiðir

með öðrum hætti, það er yfirborðs-

takan sem gefur honum mest. Hann

byrjar alltaf með því að hitsa og flugan

er alltaf smá. Með túpum notar hann

helst einkrækjur sem hann vill gjarnan

hafa aðeins sveigðar. Það er skemmtileg

lógík í einkrækjunotkuninni. Það er ekki

einungis að það er auðveldara að sleppa

laxi af einkrækju, ef það á að sleppa yfir-

leitt, heldur er það þannig að þegar lax

grípur einkrækju, en hún festist ekki,

þá verður laxinn fyrir algerri lágmarks

styggð og getur komið aftur og aftur og

gripið fluguna, sem oftar en ekki leiðir

til þess að hann festir sig fyrir rest.

Sigurður notar langa tauma með flotlín-

unni, ekki undir 12 fetum. Hann hefur

þá kóníska, sem auðveldar að þeir rétti

rétt úr sér í kastinu. Sem er lykilatriði,

sérstaklega þegar veitt er í yfirborðinu

við viðkvæmar aðstæður eins og oft eru,

í vatnsleysi, sólskini osfrv.

Flugur Sigurðar eru hugsaðar í „low

water“ stílnum sem var afar vinsæll með

tilkomu hárflugna fyrir einhverjum

áratugum. Þær flugur voru miklu minna

klæddar heldur en gömlu fjaðrabrýnin.

Þetta má sjá á því hversu langt frá

öngulbugnum búkklæðning flugnanna

endar. Nettur hausinn er einnig í þess-

um stíl, en Sigurður segir fluguhausinn

algert lykilatriði, því flugan sem fangar

veiðimanninn fyrst, fangar laxinn síðan

í framhaldinu og fallegur haus á flugu

gefur yfirbragð stílhreinleika sem lokkar

menn til að velja sér viðkomandi flugur.

Loks segir Sigurður að eina vitið sé að

nota Kamasan öngla. „Þeir eru dýrir, en

þeir eru lang flottastir og bestir í þetta,“

látum við vera lokaorð Sigurðar Héðins,

Sigga Haug.

Og ef menn eru að velta fyrir sér hvar

flugur Sigurðar fást, þá hefur Haugur-

inn verið hnýttur af ýmsum og seldur í

búðum víða. Hinar flugurnar, þær sem

hér eru kynntar, eru ekki í veiðibúð-

unum. Menn verða að nálgast þær beint

frá meistaranum sjálfum.

Page 37: Veidislod 3 tbl 2011

37

Söluvefur sem aldrei sefurBestu verðin - Sértilboð í hverri viku

- fjöldi veiðsvæða um land allt

Page 38: Veidislod 3 tbl 2011

38 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

ljósmyndun

Myndavélin hluti af grunnbúnaði veiðimannsinsÍ dag er óhætt að segja að myndavél megi teljast til grunnbúnaðar stangveiði­mannsins. Ekki bara vegna þess hvað færst hefur í vöxt að veiðimenn sleppi veiddum fiskum, en þá er vitaskuld nauð­synlegt að eiga ljósmynd af aflanum – góða ljósmynd!, heldur eru vandaðar ljósmyndir hluti af góðum minningum um veiðiferðir. Minningum sem gaman er að deila með öðrum.

Ekki er nóg að taka myndavélina með

í veiði ef hún er ekki til taks á bakkanum

þegar fiskinum hefur verið landað;

heyrst hefur af veiðimönnum sem

gleyma vélinni í bílnum eða í veiðihús-

inu þegar draumafiskurinn gefur sig

loksins. Þess vegna er gott að vera með

myndavél sem ekki fer mikið fyrir,

vél sem rennur í vasa á flíspeysu eða

veiðivesti, og er því til alltaf taks þegar

á þarf að halda.

Framboð af myndavélum er mikið,

og kröfur veiðimanna mismiklar, en

grunnkrafan ætti einfaldlega að vera

sú að myndavélin skili af sér skírum

ljósmyndum í fullnægjandi gæðum.

Að mínu mati skila margir símar til að

mynda alls ekki boðlegum myndum,

ekki einu sinni fyrir netupplausn. Sjálfur

kýs ég því raunverulega myndavél – eða

síma sem er líka raunveruleg myndavél.

Veiðimyndir eru nefnilega alls ekki bara

af fiskum, heldur eru þetta myndir af

landslagi og náttúru, myndir af stemn-

ingunni á bakkanum – það nennir

enginn a horfa á myndir sem eru ekki

boðlegar tæknilega. Hvort sem menn

nota sjálfvirkan ham á vélunum eða vilja

stilla þær sjálfir, þá þurfa þeir að kunna á

þau atriði þegar á hólminn er komið. Það

er svekkjandi að klúðra góðu myndefni

vegna þess að menn lærðu ekki á tækin

áður en þeir fóru að nota þau.

Einar Falur Ingólfsson

Page 39: Veidislod 3 tbl 2011

39

Veiðislóð

Myndavélin hluti af grunnbúnaði veiðimannsins

Hvernig myndavélin er annars, er undir

efnum og aðstæðum veiðimannsins

komið. Vatnsheld eða ekki, stór eða lítil,

með skiptanlegum linsum eða föstum

linsum, það skiptir ekki máli; svo lengi

sem vélin er frambærileg tæknilega þá

er það undir veiðimaninum, eða ljós-

myndaranum, komið hvernig hann

rammar myndir sínar inn og hvort þær

verði vel lukkaðar.

En hvað á þá að hafa í huga? Að mynd-

ramminn sé áhugaverður og allt sé

innan hans sem þar á að vera. Að það

sé líf í myndinni, umhverfið, að fjöll og

á eða vatn sé rammað inn á fallegan

og áhugaverðan hátt. Myndir af veiði-

mönnum að togast á við fiska eru oft

áhugaverðari en myndir af fiskunum

sjálfum, og þá er um að gera að ná því á

mynd þegar kastað er, einbeitingunni,

sveigju stangarinar þegar fiskurinn

hefur tekið, viðbrögðum veiðifélaganna

sem samgleðjast; allt segir þetta söguna.

Auðvitað þarf síðan að mynda fiskana,

og þá þarf að láta veiðimennina halda

fallega á þeim, snúa þeim þannig að þeir

komi sem best út á myndinni, að veiði-

maður og fiskar njóti sín. Og ekki mynda

blóðuga fiska, eða fiska í plasti. Það hefur

enginn áhuga á slíku – þótt aflinn kunni

að bragðast vel þegar heim er komið.

Einar Falur að störfum við Þverá, myndefnið er Gunnar Gíslason og ungur sonur hans með fyrsta laxinn úr ánni 2008. Mynd gg.

Page 40: Veidislod 3 tbl 2011

vöðluskór

Eitt og annað um hirðingu vöðluskóa

Lárus Gunnsteinsson, einn af okkar fremstu sérfræðingum í vöðlum og hirðingu þeirra og aukahluta, tók sam-an eftirfarandi pistil um vöðluskóna og eins í pistli Lárusar í síðasta blaði um Gore Tex, þá eru hér ýmsir punktar sem mikið gagn era ð fyrir veiðimenn. Svona ekta „gott að vita” efni.

Lárus skrifar: -Skórnir, bæði á vöðlunum

og þeir sem eru notaðir á sokkavöðlur,

eru eilítið vandmeðfarnari en vöðlurnar

sjálfar en þeir þurfa góða umhirðu ef

þeir eiga að endast eitthvað. Svo sem í

leðurskó á alltaf að setja skóspennur og

haldast þeir þá beinir en ekki krump-

aðir. Einnig kiprar leðrið sig þegar það

þornar. Einnig að láta gera við þá áður

en saumar rakna upp svo þeir fyllist ekki

af sandi.

Þá er nauðsynlegt að skoða skóna vel að

innan því ef það eru göt eða slit þá getur

það skaðað vöðlurnar mjög fljótt. Nauð-

synlegt er að þvo skóna mjög vel og oft

því leður springur. Ekki bara við vatnið,

heldur er það skíturinn sem þornar í

mettaða vatninu og harðnar þá leðrið og

springur. Sama gildir um filset gerviefni.

Loks er gott er að skipta um innri sólana

(leppana) annað slagið og hafa með sér

auka reimar.

40 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Vöðluskór verða að vera traustir og góðir, þægilegir og sterkir og umfram allt þá mega þeir ekki vera orðnir svo slitnir að innan að þeir eyðileggi vöðlusokkana. Þeir nudda neoprenið að vísu smátt og smátt, en séu þeir orðnir úr sér gengnir þá gefur neoprenið eftir mun hraðar og þá er kominn aukinn kostnaður og leiðindi og vosbúð sem geta stafað af lekum vöðlum.

Page 41: Veidislod 3 tbl 2011

41

Lárus Gunnsteinsson

Page 42: Veidislod 3 tbl 2011

42 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 43: Veidislod 3 tbl 2011

43

Þar sem fiskarnir syndaVeiðiheimur, „það sem fiskarnir synda” heitir skemmtilegur

fluguveiðiskóli sem rekinn er af þremur ungmennum.

Skólastjóri er Einar Guðnason en auk hans kenna við

skólann Rut Valgeirsdóttir og Börkur Smári Kristinsson.

Þrátt fyrir ungan aldur, 20 til 22 ára, eru þau þrautreyndir

stangaveiðimenn og er látið afar vel af námskeiðum þeirra,

hvort heldur eru fyrir börn og unglinga eða eldri.

viðtal

Page 44: Veidislod 3 tbl 2011

44 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

viðtal

Einar sagði í samtali við Veiðislóð að

markmiðið með námskeiðunum væri

að þátttakendur stæðu uppi albúnir til

að veiða á eigin spýtur, hvort heldur

væri í stöðu- eða straumvatni. „Ekk-

ert kemur í staðinn fyrir reynsluna, en

fólk þarf að vita hvert næsta skref er

þegar að vatnsbakka er komið,” segir

Einar. Sem dæmi um hvað felst í hinum

ýmsum námskeiðum Veiðiheims, má

nefna fluguveiði af öllum toga, flugu-

hnýtingar, fluguköst með einhendum

og tvíhendum, ráðgjöf við allan búnað

og veiðigræjur, umhirðu veiðibúnaðar,

öryggi í veiði, lestur á vatni og veiði-

stöðum, frágangur og meðferð afla,

fiskalíffræði, flökun og eldun. Nám-

skeiðin fyrir yngra fólkið miðast við 18

ára aldurinn, en eldra fólkið allt þar fyrir

ofan. Hópurinn hefur aðstöðu í gömlu

hlöðunni við Elliðavatnsbæinn.

En hvernig byrjaði þessi skóli? Einar segir: „Þetta byrjaði á því að ég

var að hjálpa vinahópum, fólki sem ég

þekkti, svona prívat og persónulega.

Tók það í tíma og fór yfir í fluguveiðar.

Ég fann þá að fyrir marga getur verið

erfitt að byrja. Menn þekkja engan og

vita ekki hvernig best er að koma sér af

stað. Þar með var hugmyndin komin og

svo gerðist allt eiginlega fáránlega hratt.

Þetta var í fyrrasumar að við suðum

saman fyrstu námskeiðin, auglýstum

þau á föstudegi og næsta miðvikudag

var þetta farið í gang. Þetta braut ísinn

og fékk fínar viðtökur þannig að við

bættum við námskeiðin og fjölguðum

þeim. Höfðum þau líka fyrir eldri. “

Finnið þið ekki fyrir því að fólki finnst þið helst til ung til að geta kennt öðrum?„Jújú, það hefur örugglega komið ein-

hverjum spánskt fyrir sjónir, en það

kemur fljótt fram að við höfum mikla

reynslu og talsvert vit á því sem við

erum að tala um, þannig að allt slíkt

hverfur um leið. Sjálfur hef ég gædað í

laxveiði í þó nokkur ár og veitt á flugu

frá því að ég var 12-13 ára.”

Segðu okkur meira…. þið eruð líka farin að bjóða með í veiðitúra….„Já, við leggjum þetta þannig upp að

við nefnum dagsetningar og hvert

við ætlum og þeim er frjálst að koma

með sem hafa sótt námskeiðin okkar.

Verða bara að koma sér sjálf, en njóta

leiðsagnar okkar og aðstoðar. Við erum

með ferðir t.d. á Arnarvatnsheiði og

Skagaheiði. Seinna ætlum við svo í lax

og sjóbirting, en þá er fjöldinn takmark-

aður í samræmi við leyfilegan stangar-

fjölda. Þetta hefur mælst vel fyrir og

kemur inn á þetta atriði sem ég nefndi

áðan, að margir byrjendur þekkja eng-

ann sem er að veiða og félagsskapur í

veiði er mikilvægur.”

En meira um þig sem veiðimann?„Foreldrar mínir giftu sig þegar ég var

fimm ára gamall og amma mín gaf mér

þá kaststöng, svo ég yrði ekki útundan

í gjafaflóðinu. Næstu árin var ég að

veiða af klettum og klöppum í sjónum

á Kjalarnesi og fékk oft sjóbirting. Á

unglingsárunum var enginn jafnaldr-

anna að veiða, en ég var alveg heillaður

af þessu öllu saman og fékk flugu-

græjur. Fór með þær í Elliðavatn og allt

fór í hönk og flækju og ég var farinn

heim eftir fimm mínútur! Ég lét það

hins vegar ekki stoppa mig, fór í Þing-

vallavatn þar sem murtan var á alveg

stanslaust og maður fékk tilfinningu

og sjálfstraust. Síðan var það Þjórsá og

Reyðarvatn og svo koll af kolli, reynslan

hlóðst upp. Maður lærði meira og meira

Page 45: Veidislod 3 tbl 2011

45

Veiðiheimur

og samhliða varð þetta bara skemmti-

legra og skemmtilegra.“

Hvað er skemmtilegast í fluguveiðinni?„Það er öll yfirborðsveiðin. Ég er mikið

í vatnaveiði á vorin og fram á sumarið

og fer síðan í leiðsögumennsku. Síðan

aftur í eigin veiðiskap þegar líður á.

Í silungsveiði er það þurrfluguveiðin

sem er toppurinn. Fyrsti silungurinn

sem ég veiddi á þurrflugu er líklega sá

minnistæðasti, ekki aðeins vegna þess

hvað takan var eftirminnileg heldur líka

vegna þess hversu fallegur fiskurinn

var. Þetta var í Elliðavatni og urriðinn

var ekki stór, varla meira en pundið,

en litamynstrið hans var svo fallegt að

ég hef varla séð annað eins síðan. Aðal

þurrflugan í silunginn er Black Gnat og

stærðin er númer 12. Við köllum hana

El Classico. Í laxveiðinni er það sama

sagan, en þar er það hitsveiðin sem

stendur upp úr. Að sjá fiskinn koma og

taka í yfirborðinu…það er ekkert sem

slær það út. Þess vegan byrja ég alltaf

með léttum búnaði og smáum flugum.

Hitsa first og svo kemur annað á eftir. Ef

það er hægt að fá tökurnar í yfirborðinu

þá verður maður að reyna það first til að

hámarka skemmtunina.”

Einar og Rut eru par, rétt að það

komi fram áður en skoðuð er síðasta

spurningin á Einar. En hún er um

eftirminnilegasta fiskinn sem hann

hefur „veitt”. Gæsalappirnar eru vegna

þess að eftirminnilegasti fiskur Einars

er Maríulax Rutar.

„Sá atburður var ótrúlegur. Hún setti í

laxinn í Seiðkatli í Elliðaánum og þarna

eru flúðir og fossar og laxinn lét sig

vaða niður eftir. Æddi niður úr hverjum

pyttinum af öðrum með okkur á eftir

og það spruttu nokkrar laxar úr hverri

holu á leiðinni. Laxinn kom svo á land

í Stórhyl eftir mikinn eltingarleik. Þetta

var ekki stærsti laxinn, en öll atburðar-

rásin var svo mögnuð, adrenalínið á

fullu….”

Einar segir okkur síðan að lokum að nú

um mitt sumarið séu allir að veiða, en

með síðsumrinu byrji Veiðiheimur aftur

með ný námskeið. Slóðin til þessara

hressu krakka er www.veidiheimur.is

Page 46: Veidislod 3 tbl 2011

46 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 47: Veidislod 3 tbl 2011

47

Page 48: Veidislod 3 tbl 2011

48 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

viðtal

Rut. Þekkt er að konur taka veiðiskap

allt öðrum tökum heldur en karlar og

það er skemmtilegt að ræða veiðiskap

við Rut Valgeirsdóttur. Kannski ekki

holdgervingur íslenskra fluguveiði-

manna, 22 ára fimleikaþjálfari, háskóla-

nemi og kona. En þetta er líka til sem

betur fer og hún er aukinheldur kennari

í fluguveiðiskólanum Veiðiheim. Þar

tekur hún til hendinni á öllum sviðum,

líkt og Einar og Börkur.

„Ég fór í útilegur með fjölskyldunni

þegar ég var bara barn og var að veiða

með flotholti og svoleiðis. Var kannski

sex ára, en ég man ekkert mikið eftir

þessu! En svo hvarf þetta úr lífi mínu

þangað til að ég kynntist Einari.

Hann fór að taka mig fyrir, kenna

mér að veiða, kasta, hnýta og allan

pakkann. Mér finnst ég hafa verið

lengi að ná þessu, að læra köstin og

gera hlutina sómasamlega. En í dag er

ég nokkuð góð í þessu og ég er löngu

komin með veiðidellu. Er vel smituð

af þessu,” segir Rut.

En hvað er skemmtilegast við veiði?„Skemmtilegast? Jah, mér finnst ekkert

sérlega skemmtilegt ef að það veiðist

ekkert. Mér finnst frábært að fara í veiði

og veiða eitthvað. Það er þannig séð

keppnisskap í mér en sannast sagna þá

er þó aðalatriðið líklega útiveran og að

vera að sýsla við þetta samhliða.“

Það segir á vefsíðunni ykkar að þú unir þér best í einhverjum afdal þar sem þú getur kastað þurrflugu að sjóbleikju….er það málið?„Við erum mikið í vatnaveiði á vorin

og fram á sumar og svo erum við í alls

konar tilfallandi veiði. Þetta með þurr-

fluguna og bleikjuna, já það er málið.

Við höfum farið út á Vestfirði og keypt

leyfi beint af bændum í litlum fallegum

afdalaám. Það er sjóbleikja í öllum

þessum sprænum þarna fyrir vestan og

þar höfum við lent í þessum aðstæðum

að geta veitt sjóbleikju á þurrflugu. Ég er

hrifnust af því af því sem ég hef upplifað

í veiði. Það er ótrúlega skemmtilegt.”

Þú ert þá meira fyrir netta veiðiskapinn?„Ég hef mest gaman af því að veiða í

litlar fallegar flugur. Ég vil hafa þær fal-

legar. Ég er ekkert voðalega spennt fyrir

stórum flugum sem er festast í botni

eða eru að flækjast í taumnum. Ég vil

hafa þetta nett og fallegt,” segir Rut Val-

geirsdóttir, fluguveiðikennari.

Page 49: Veidislod 3 tbl 2011

49

Veiðiheimur

Börkur. Börkur heitir fullu nafni Börkur

Smári Kristinsson og er stúdent sem

er á leið í HÍ. Hann er og frjálsíþrótta-

þjálfari hjá ÍR. Bara rétt ríflega tvítugur.

Saga hans er þessi: „Ég var um 15 ára

þegar ég skráði mig í fluguhnýtingar-

námskeið í grunnskólanum mínum. Ég

hafði fengið flugustöng í fermingar-

gjöf, þannig að áhuginn var fyrir hendi.

Það er skemmst frá að segja að ég féll

alveg fyrir þessu og áður en ég vissi var

ég farinn að hjóla upp í Vífilstaðavatn

á hverju kvöldi. Það er hins vegar líka

skemmst frá að segja að það var ekkert

að ganga upp hjá mér þar, sama hvað

ég reyndi. En ég vissi af Einari, hann

var tveimur árum eldri og hann kom

endrum og sinnum í fluguhnýtinga-

tímana. Hann átti heima stutt frá mér á

þessum tíma og svo kom bara að því að

ég bankaði upp á hjá honum og spurði

hann hvort hann vildi koma að veiða

með mér. Síðan höfum við veitt mikið

saman og ég lærði gríðarlega mikið

af honum. Á þessum tíma missti ég

allan áhuga á því að veiða á neitt nema

flugu,” segir Börkur.

En hver er Börkur sem veiðimaður?„Ég telst líklega alveg púra silungsveiði-

maður. Ég læt það kannski eftir mér

einu sinni á sumri að fara í laxveiði, en

það er þá bara Elliðaárnar í hálfan dag.

Maður er jú bara fátækur námsmaður.

Sennilega er dýrasta veiðileyfi sem ég

hef keypt á silungasvæðið í Miðfjarðará.

En vötnin í nágrenni Reykjavíkur eru

mikilvæg á vorin og framan af sumri.

Síðan fer ég mikið á Arnarvatnsheiðina,

sérstaklega að norðan. Þar er fjöl-

skyldan með ákveðin svæði sem við

höfum fundið með dugnaði og löngum

göngum. Við förum upp eftir og löbb-

um, kannski 20 kílómetra á einum degi.

Þannig finnur maður lítt og ósnortnar

slóðir, það er fátt sem gefur mér meira í

veiði en svoleiðis.”

Page 50: Veidislod 3 tbl 2011

50 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

viðtal

En einhver skemmtileg augnablik úr veiðinni?„Já, t.d. Maríulaxinn minn. Þá fór ég í

Elliðaárnar með Einari og þetta gekk

eitthvað illa og ég gat ekki sett í fisk. Þá

setti hann maðk í Sjávarfossinn og óðar

var kominn lax á. Hann rétti mér stöng-

ina, ég átti að þreyta þó ég hefði ekki

sett í laxinn. Nema hvað, ég var óvanur

og laxinn var stór, 8-9 punda nýgeng-

inn og hann óð niður alla strengi og

við þurftum að elta hann. Við vorum

komnir undir brýrnar fyrir neðan þegar

við áttuðum okkur á því að við vorum

ekki með háf. Einar var þá kominn út í,

adrenalínið alveg að ganga frá honum

og ég ætlaði að kippa laxinum upp úr.

Einar var þá einmitt búinn að grípa lax-

inn og línan fór í sundur við þessi læti,

laxinn hentist upp á land, en Einar datt

í ána. Ég gleymi því aldrei, augnablik-

unum þegar laxinn var að berjast upp á

bakkanum og Einar að klöngrast upp úr

ánni, þetta var svo magnað moment að

það gleymist aldrei.

Annars er ég bara ungur í þessu og á

margt eftir. Annað atvik get ég nefnt

sem er kannski skemmtilegra þegar

skoðað er í stærra samhengi. Þannig er

mál vexti að fjölskyldan mín fer gjarnan

í langa göngutúra upp á Arnarvatns-

heiði. Ein laxveiðiáin sem þar byrjar

er okkur sérstaklega kær. Þegar ég var

16 ára fórum við upp eftir og ég var

mmmm…hvað getum við sagt, „veiði-

graður” á þeim tíma. Ég æddi á undan

öllum og þegar við fórum að veiða

okkur niður ána, var ég langt á undan

hinum og landaði hverjum 3-4 punda

urriðanum á eftir öðrum. Svo komu

þau á eftir mér og fengu ekki neitt. Ég

var í skýjunum, en þau voru ekki alveg

eins hress. Ég er viss um að margir geta

sagt svipaða sögu. Ég lærði held ég

mikið á þessu, maður á að taka tillit til

annarra veiðimanna og gleðjast yfir afla

annarra. Allt of margir líta á stangaveiði

sem keppni og miða allt við að veiða

sem mest. Þetta er rangt, menn læra að

njóta þessa miklu meira og betur þegar

þeir átta sig á því að þetta snýst ekki um

keppni. Ég hef upplifað það að menn

breytast. Það sem áður snérist um

magn, þá er nú aðalmálið að einn fal-

legur fiskur er bara nóg til að dagurinn

er góður.”

Page 51: Veidislod 3 tbl 2011

Matseðilldagsins

NJ@

RANGA.DK

Page 52: Veidislod 3 tbl 2011

útisvist

52 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Þetta er allt önnur veröld, veröld þyngdarleysis og þrívíddar“

Page 53: Veidislod 3 tbl 2011

53

Köfun á vaxandi vinsældum að fagna hér á landi. Víða eru hér frábærir köfunarmöguleikar og margir sem læra köfun fyllast þrá að gera og sjá meira og taka upp á því að kafa erlendis. Einn slíkur er Guðmundur Ingi Hauksson. Við mæltum okkur mót við Inga. Okkur langaði til að fræðast um köfun og athuga jafnvel hvort að sportið gæti með einhverjum hætti tengst veiðiskap. Það reyndist að vísu dálítið langsótt, en þó ...

Mynd: Guðmundur Ingi Hauksson

Page 54: Veidislod 3 tbl 2011

2

3 44

1

5

Page 55: Veidislod 3 tbl 2011

55

Við báðum Inga fyrst um að útlista fyrir okkur hvernig áhugasamir en þekkingarlausir einstaklingar gætu komið sér af stað í köfun.„Það eru nokkrir aðilar hér á landi sem

halda námskeið og hafa þeir til þess al-

þjóðleg kennsluréttindi. Þetta er sport

sem verður að lærast áður en menn

geta steypt sér í það. Menn byrja á því

að fá sér það sem heitir „open water“

réttindi og fá þá alþjóðlegt skírteini

sem menn geta sýnt alls staðar. Það er

hægt að fara á slík námskeið í flestum

löndum, en mér finnst það sérstaklega

sniðugt að gera það hér á landi. Taka

námskeiðið við þær krefjandi aðstæður

sem hér finnast, frekar en eitthvað

hraðsoðnara á skyndinámskeiðum

í hlýrri löndum. Það getur hljómað

spennandi, menn í sumum tilvikum

hreinlega að kafa í sundskýlunni og í

verra falli þunnum blautbúningi, en

menn græða meira og læra meira á því

að taka námskeiðin hér heima. Það er

vatnskuldinn sem gerir það að verkum

að köfun hér á landi er jafn krefjandi og

raun ber vitni. Hér á landi gætum við

aldrei verið í þunnum blautbúningum.

Hér dugar ekki annað en þykkur þurr-

galli sem hefur svo mikinn flotkraft að

menn verða að þyngja hann með blýi.

Þá erum við komnir með ansi þungan

köfunarbúning.“

En segðu okkur meira frá námskeið-unum...hvað er verið að læra, hversu lengi og hvað kostar þetta?„Við erum að tala um grunnnám-

skeið sem kostar að ég held á bilinu

60 til 70 þúsund í dag. Það er bóklegt

og verklegt nám í þessu og allur bún-

aður er útvegaður ef menn eiga ekki

sinn eiginn. Meðal þess sem kennt er,

má nefna að farið er yfir þær hættur

sem bíða kafara og hvernig eigi að

bera kennsl á þær og varast þær. T.d.

köfunarveikina. Farið yfir hvers ber að

varast. Þá er þrýstingsfræðin mikil-

væg og mönnum er t.d. kennt hvernig

vaxandi dýpt eykur notkun súrefnis.

Súrefnisþörfin t.d. á metersdýpi er 1 at-

hmosphere, en tvöfaldast á 10 metrum,

þrefaldast á 20 metrum og þannig koll

af kolli. Það má segja að köfun niður á

18 metra dýpi er þægileg og afslöppuð.

Sólarljósið er t.d. í lagi og þrýstingurinn

lítill. Fari menn dýpra, eykst þrýstingur

og ljós tapast. Þá geta menn ekki lengur

bara skotið sér úr kafi, heldur þarf

að trappa sig upp eftir lögmáli sem

kennt er og menn geta síðan ástundað

sjálfir með útreikningum á drjúgstórum

köfunartölvuskermi sem festur er við

annan úlnliðinn. Þetta allt og miklu

fleira er í bóklega þættinum. Þar er og

kaflapróf í öllu og síðan lokapróf. Síðan

er verklegi þátturinn. Þá byrja menn í

sundlaug þar sem farið er yfir öll helstu

mál. Annar fasinn er að kafa í bergvatni.

Loks er þriðja þrepið sjóköfun, en þar

eru aðstæðar gerólíkar því sem menn

kynnast annars staðar og iðulega mjög

skert skyggni miðað við bergvatnið.

Lengd námskeiða fer nokkuð eftir

óskum og þörfum þeirra sem taka þátt

hverju sinni.“

Þetta hljómar allt saman dýrt, hvað heldurðu að startpakkinn kosti í dag, þ.e.a.s. námskeiðið og nauðsynlegur búnaður?„Það er með þetta eins og annað, að

það kostar talsvert að byrja. Ég gæti

trúað því að startpakkinn allur gæti

verið 300þúsund krónur, námskeið

og búnaður. Hins vegar er það kostur

við köfun, líkt og t.d. kajakróður, að

eftir startkostnaðinn þá er þetta tiltölu-

lega lítið, öfugt t.d. við stangaveiðina

þar sem startpakkinn getur líka verið

1 Bátarnir eru engin smásmíði, enda eru þeir á sjó í heila viku.

2 Áður en kafað er að skipsflaki er flakið kynnt og sýnt.

4 Guðmundur Ingi.

3 Kominn í gallann.

5 Hoppað í sjóinn.

Page 56: Veidislod 3 tbl 2011

56 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

útivist

talsvert dýr og síðan þarf að viðhalda

áhugamálinu með veiðileyfum á hverju

sumri, sem sum hver eru líka ansi dýr.

Annars er lang best að leita nákvæmra

upplýsinga hjá þeim aðilum sem kenna

þetta.“

Hvað er það við köfun sem heillar svo mjög?„Þetta er allt önnur veröld, veröld

þyngdarleysis og þrívíddar. Algjör slow

motion veröld. Maður nýtur þess mjög,

en síðan fer maður og kannar meira.

Maður fer t.d. að kafa að næturlagi. Það

er alveg magnað, þá verða t.d. fiskar

hreyfingarlausir þegar maður setur

ljósbjarmann á þá. Þetta hef ég gert og

það er alveg magnað að fara alveg upp

að þeim. Ég hef heyrt af köfurum sem

tóku með sér poka í djúpið og tóku sér

í soðið. Næturköfun býður líka upp á

fleira, ég get t.d. nefnt að kafa ofan í

Silfru á Þingvöllum á heiðskíru stjörnu-

björtu vetrarkvöldi og liggja á 15 metra

dýpi og horfa upp í himininn!

Margir sem læra að kafa á Íslandi vilja

meira eftir því sem sportið grípur

þá meira. Þá er að fara til útlanda og

kafa. Sjálfur hef ég farið til Egypta-

lands nokkrum sinnum og kafað í

Rauðahafið. Þá er farið á stórum bátum

sem eru á sjó í heila viku og farið á

nýjan stað á hverjum degi. Þarna eru

kóralrif um allt og skipsflök út um allt.

Allt er þetta vandlega kortlagt og það

er gífurlega vinsælt og spennandi að

kafa að þessum flökum. Í þeim og í

kring um þau eru sérstök samfélög í

lífríkinu, smáfiskatorfur sem leita sér

skjóls í flökunum og ránfiskar sem elta

þá þangað. Og utan um allt kóralar og

sjávargróður. Ótrúleg litadýrð í dulúð-

legu umhverfi. Einnig þarna er magnað

að kafa að nóttu til. Þarna er t.d. mjög

kræfur ránfiskur sem heitir Lionfish,

ótrvíræður kóngur í ríki sínu, með ban-

eitrað spjót. Hann hefur tekið upp á því

að elta kafara í næturköfun og nýta sér

þegar smáfiskarnir frjósa í ljósbjarm-

anum. Það má segja að menn séu að

mata kvikindið, en þetta er skemmtilegt

samspil manns og fisks.

Síðan er annað sem fljótlega sækir á

menn í köfun og það er ljósmyndun.

Það er ekki hægt annað en að reyna að

fanga þessa furðuveröld og það er mjög

krefjandi að taka góðar myndir í undir-

djúpunum. Náttúrulegir litir hverfa

þegar neðar dregur og á 30 metrum

er ekkert nema blái liturinn eftir. Þá

þarf lýsingu til að ná litunum aftur inn,

en þá lýsast líka upp alls konar agnir í

djúpinu sem gerir þetta tæknilega örð-

ugt, en um leið ótrúlega spennandi og

skemmtilegt. Ljósmyndun með köfun

er líkt og í veiðiskapnum, þ.e.a.s. breytir

venjulegri útivist í útivist með tilgangi.

Síðan má við þetta bæta, að köfun er

einfaldlega skemmtileg viðbót í fríum

fólks erlendis. Hafi það skírteinið, má

nálgast allan búnað og koma sér á

spennandi slóðir.“

Þú nefndir köfun að skipsflökum, það er meira af svoleiðis sérdeildum í köfun ekki satt?„Jú, einmitt. Flakaköfun er mjög vinsæl.

Önnur er hellaköfun, en bæði flaka- og

hellaköfun útheimta meiri varkárni

heldur en almenn opin köfun, því það

er vandasamara að bjarga sér ef eitt-

hvað kemur upp á. Og það sem helst

getur komið uppá er að menn verði

„narkaðir“ eins og það er kallað og er

dregið af narkósis. Þá geta menn orðið

ringlaðir ef þeir fara ekki niður fyrir 18

metrana eftir settum reglum. Að vera

á 10 til 18 metrum er tiltölulega hættu-

Sýnishorn af dulúð og litadýrð undirdjúpanna.Myndir: Guðmundur Ingi Hauksson

Page 57: Veidislod 3 tbl 2011

57

Page 58: Veidislod 3 tbl 2011

58 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Þetta er einstök upplifun og ekki algengt að fá svona vinalega heimsókn í undirdjúpunum.Mynd: Guðmundur Ingi Hauksson

Page 59: Veidislod 3 tbl 2011

59

Page 60: Veidislod 3 tbl 2011

60 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

útivist

laust, en þegar niður fyrir það er komið

aukast allar hættur verulega og þá er

nauðsynlegt að menn séu með kollinn

skýrann. Þau slys sem verða í köfun

tengjast narkósis meira og minna.“

Það er alltaf talað um Silfru á Þingvöllum, en hvað með aðra góða staði hér á landi?„Silfra er geysilega vinsæl og er með 99

prósent tærleika. Silfra er auglýst um

heim allann sem einn besti og flott-

asti köfunarstaðurinn í heimi. En það

er víðar hægt að kafa á skemmtilegum

stöðum. Það er t.d. vinsælt að kafa

að El Grillo í Seyðisfirði. Hann liggur

ansi djúpt og fyrir kemur að menn sjá

varla grilla í hann. Svo er líka vinsælt

að kafa niður að Strýtunni í Eyjafirði,

en þar hefur jarðhiti hlaðið upp fallegri

kísilstrýtu. Þá erum við félagarnir alltaf

á leiðinni að kafa í Ísafjarðardjúpi.

Það er allt annar sjór þar heldur en

sunnar með landinu. Þetta er ekki

Golfsstraumssjór heldur Íshafssjór og

tærleikinn er því miklu meiri. Maður

sér vel niður á tuttugu metra dýpi þar

og örugglega frábær skemmtun að

kafa á þeim slóðum. Þá hef ég aðeins

prófað Breiðafjörðinn og þar er enn

ein útfærslan, svokölluð straumköfun.

Algengt að menn vippi sér úr bát á til-

teknum stað og fylgi straumunum. En

það er gott að vera þar með kunnugum

því straumarnir á milli eyjanna geta

verið varasamir. Þeir fara í allar áttir

og niður líka. Það getur verið eins og í

klósetti og þá sogast menn bara niður.

Kunnugleiki er því nauðsynlegur á

þeim bænum.“

Vídeó Inga frá köfun í Silfru á Þingvöllum. Smelltu á myndina og fylgdu slóðinni til að horfa á myndbandið.

Vídeó Inga frá köfun í Rauðahafinu að skipsflaki. Smelltu á myndina og fylgdu slóðinni til að horfa á myndbandið.

VIDEO

VIDEO

Page 61: Veidislod 3 tbl 2011

Lax-, silungs- og skotveiði

Hrútafjarðará, Breiðdalsá, Jökla,

Tungulækur, Minnivallalækur

og Fögruhlíðará

www.strengir.is

Page 62: Veidislod 3 tbl 2011

62 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Hægt að setja í allan kokteilinn í Meðalfellsvatni

fjölskylduveiði

Meðalfellsvatn er mörgum hugleikið.

Það er stutt frá lang fjölmennasta þétt-

býliskjarna landsins á Suðvesturhorn-

inu. Er opið öllum á meðan olnboga-

rými leyfir og er fullt af fiski. Það er ekki

þar með sagt að allir veiði, silungurinn

er dyntóttur á stundum, en svo er alltaf

möguleikinn fyrir hendi að setja í lax

eða sjóbirting. Og ekki spillir að hand-

hafar Veiðikortsins mega bleyta þar

færi.

Page 63: Veidislod 3 tbl 2011

63

Loftmynd af Meðalfellsvatni. Mynd Einar Falur Ingólfsson.

Page 64: Veidislod 3 tbl 2011

64 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

fjölskylduveiði Meðalfellsvatn

Meðalfellsvatnið er því frábær kostur

fyrir dag eða dagspart. Það er í Kjós, sem

er eðli málsins samkvæmt, í Kjósarsýslu.

Stæðilegt og fallegt stöðuvatn. Úr því

fellur Bugða sem er allgóð laxveiðiá og

fylgir útleigu Laxár í Kjós sem bugða

fellur í svo til neðst í Laxárdalnum.

Meðalfellsvatn er opnað um leið og

möguleiki er á því, en þó er miðað við

1.apríl. Stundum er æði kuldalegt ennþá

í Kjósinni svo snemma vors og ísinn

jafnvel ekki farinn af vatninu. Hörðustu

kapparnir hafa sést verið að kasta í vakir

frá harðalandi, en lítið veitt. Þegar ísa

leysir gerast hlutirnir hins vegar hratt

og þess má geta að allra síðustu árin

hefur komið í ljós að sjóbirtingur notar

vatnið nokkuð til að hafa vetursetu. Það

kom mönnum dálítið í opna skjöldu, því

Bugða er ekki þekkt fyrir sjóbirtings-

göngur. Laxá er það hins vegar, en þessi

fiskur þarf þá að ganga úr Laxá, um

Bugðu til vatnsins eftir að hrygningar-

tíma lýkur. Kyndugt ferðalag í sjálfu sér,

en staðreyndirnar tala sínu máli...birt-

ingurinn finnst í vatninu á vorin. Hann

getur verið ansi vænn og veiðst hafa

6 til 8 punda fiskar. Oftast eru það þó

þunnir fiskar sem hrygndu haustið áður

og holdafarið eftir því. Þykja slíkir fiskar

ekki heppilegir til átu og sama segir

um hoplaxa sem oft veiðast í vatninu

snemma vors. Þeir eru horaðir og lítt

fýsilegir sem hráefni til manneldis.

Mikið er af smárri bleikju í vatninu.

Eitt sinn var reynt að grysja hana, en

tókst ekki. Mestur slægur fyrir veiði-

menn er þó í urriðanum. Er hann af

ýmsum stærðum, mest rétt innan við

og um pundið en stundum koma stærri

fiskar, 1,5, 2 punda og jafnvel einn og

einn stærri. Þessir fiskar eru að taka

ýmislegt. Maðkur sem liggur úti undir

flotholti getur gefið, einnig spónn.

Fluguveiðimenn veiða líka og nota

ýmist algengar púpur eða straumflugur.

Veiðivon er víða í Meðalfellsvatni. Veiði-

menn standa víða og allir geta veitt.

Þó eru jafnan ákveðnir staðir sem gefa

betur og er það helst þar sem sprænur

renna í vatnið. Tvær slíkar skipta

mestu máli, Sandá og Flekkudalsá og

á myndinni geta menn séð hvar þær

er að finna. Vesturlega að norðanverðu

blasa og stórir steinar við úti í vatninu.

Þeir munu heita Hljóðasteinar og þykir

veiðilegt að kasta að þeim. Stundum,

þegar lax er kominn í vatnið, stekkur

hann mikið með norðurlandinu. Ekki

síst nærri Hljóðasteinum. Ekki er leyfi-

legt að fara nærri ósi Bugðu og eru þar

veiðimörk sem ber að virða. Mikið er

hins vegar af urriða í ofanverðri Bugðu,

en það er önnur saga. Þá er afar vinsælt

hjá mörgum fastagestum vatnsins að

veiða af báti. Kemur þá vel út að draga

spón hægt á eftri bátnum, eða kasta

flugunni. Bátsverjar setja oft í lax og

fræg er saga þegar ónefnd veiðikona sat

á þóftu og dró spón aftan í báti. Þegar

hún eitt sinn kippti spæninum upp

úr vatninu og bjóst til að kasta aftur,

sýndist henni hún sjá silfrað leiftur í

vatnsborðinu þar sem spónninn hafði

skotist upp úr. Sekúndubroti síðar kom

síðan vænn lax svífandi úr djúpinu og

lenti við fætur veiðikonunnar í botni

bátsins. Einn allra feigasti lax landsins,

a.m.k. það árið. Skipti engum togum að

konan var snögg að ganga frá laxinum,

sem reyndist vera heil 14 pund.

Gleraugað • Bláu húsin við Faxafen • 108 Reykjavík • Sími 568 1800 • gleraugad.is

Page 65: Veidislod 3 tbl 2011

Gleraugað • Bláu húsin við Faxafen • 108 Reykjavík • Sími 568 1800 • gleraugad.is

Sjón er sögu ríkari!

Polarized veiðigleraugumeð gulgrænum litúr ekta gleri

Fánleg í þínum styrkog fleiri litum

Page 66: Veidislod 3 tbl 2011

66 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

fjölskylduveiði

Baulárvalalvatn er nokkuð djúpt á köflum,

mest mælt dýpi er 47 metrar og víða er

það grængolandi, grunnt aðeins frá landi

og svo snardýpkar. Það er líka talsvert

stórt vatn, mælt 1,6 ferkílómetri að stærð.

Vatnaá rennur í vatni úr vestri, hún er

komin frá öðru mögnuðu silungsveiði-

vatni í fjallasölunum þar efra, Hrauns-

fjarðarvatni. Baulá rennur úr vatninu,

hún er stutt og fljót að slá sér saman við

Straumfjarðará. Straumfjarðará er mjög

góð laxveiðiá, en það er önnur saga.

Veiðikortshafar mega veiða frá norður-

bakka Vatnaár og allar götur að útfallinu í

Straumfjarðarár. Það er drjúgur bakki, nóg

pláss og veiðivon mikil. Veiðimenn mega

slá tjöldum, ætli þeir að stoppa lengur en

bara daginn. Aðstaða er þó engin þó að

góð tjaldstæði séu hér og þar.

Við ætlum aðeins að skoða Baulárvalla-

vatn. Það er á Snæfellnesi, skammt

vestan við Vatnaleiðina, sem er nýjasti

vegurinn yfir fjallaskörð Snæfellsnes.

Sú leið var afar umdeild á sínum tíma,

en eins og oftast áður, höfðu vegagerð-

armenn og stjórnvöld sitt fram.

Vatnið er 160 km frá Reykjavík og því

létt verk að sækja það sem dagsferð frá

höfuðborginni. Komi menn að sunnan

er ekið út á nesið, að Vegamótaskál-

anum og þar hefst Vatnaleiðin. Komi

menn að austan, verður að aka Skógar-

ströndina í átt að Stykkishólmi, fram

hjá afleggjaranum að Hólminum og

von ráðar er þá komið að Vatnaleiðinni

að norðanverðu. Vatnaleiðin liggur fast

við austurbakka vatnsins, þannig að

aðgengi er betra en nokkru sinni fyrr.

Dulúðlegt og firnagott urriðavatnÁstæðan fyrir því að mælt er með vötnum en ekki straumvötnum þegar

við fjöllum um fjölskylduvæna veiði er sú að yngri kynslóðin og aðrir

sem minna kunna eiga hægara með að athafna sig og læra að þekkja til

veiðitækja sinna. Svo er vatnaveiðin margfalt ódýrari í flestum tilvikum

heldur en straumvatnsveiðin. Ef að allur hópurinn á að geta tekið þátt

í gleðinni þá henta vötnin einfaldlega betur. Okkur hefur verið nokkuð

tíðrætt um vötn Veiðikortsins í þessum umfjöllunum í fyrstu blöðunum

og við höldum því áfram, einfaldlega vegna þess að fjárhagslega er

Veiðikortið svo hagstætt. 6000 krónur fyrir aðgang að ríflega 30 vötn-

um um land allt segir alla söguna.

Page 67: Veidislod 3 tbl 2011

67

Baulárvallavatn

Og þá er það veiðin. Mikið er af urriða

í vatninu og reynslan hefur sýnt að

talsvert af honum er af góðri stærð af

vatnafiski að vera. Erum við þá að tala

um 1 til 3 punda fiska og fyrir kemur að

menn fái stærri. Talið er að veiðivon sé

nánast hvar sem er, en þó er ós Vatnaár

vinsæll, urriði er alltaf hrifinn af straum-

vatni og renni vatn þá má reikna með

urriða nærri. Sama er að segja um útfall

Straumfjarðarár, þar þykir gott að veiða.

En urriðinn er dyntóttur. Þó nóg sé af

honum er engan vegin gefið að hann

veiðist. Stundum standa menn lengi

og það er ekkert nema þolinmæðin

sem gildir. Allt í einu fer hann að gefa

sig. Oft er það þegar halla tekur degi

eða þegar skyggja tekur. Kenningin er

hin sama og víða þar sem urriði byggir

djúp stöðuvötn, að hann haldi sig djúpt

að deginum en fari á stjá þegar rökkva

tekur, elti þá seiði og hornsíli inn á

grynnra vatn. Þetta ver vel þekkt.

En dyntóttur já, heldur betur. Eitt sinn

sagði okkur veiðimaður ótrúlega sögu

frá Baulárvallavatni. Hann var þar við

annan mann og voru þeir báðir með

maðk á flotholti, með langan taum og

sökku til að halda beitunni niðri. Þeir

voru ekkert að flýta sér, sátu með stangir

sínar og spjölluðu um daginn og veg-

inn. Allt í einu fór fiskur loks að taka...

en aðeins hjá öðrum þeirra. Hrinan

gaf þeim veiðikappa tólf urriða, 1 til 5

punda, en félaginn varð ekki var!

Beituveiði virkar vel í vatninu, einnig

spónveiði og þeir sem hafa reynt

fluguna hafa margir hverjir fengið

fínan afla, enda engin ástæða til þess að

fluga virki ekki á sama tíma og annað

agn gefur veiði. Þeir fluguveiðimenn

sem við höfum heyrt af, hafa mest

megnis verið með litaglaðar straum-

flugur. Nefndar hafa verið Black Ghost,

svartur Nobbler og sjóbirtingsflugan

Flæðarmús, bæði í rauðu og svörtu út-

gáfunni. Einn þekkjum við sem fékk eitt

sinn fimm eða sex væna urriða á svarta

Hólmfríði.

„Það er dulúðleg náttúrufegurð við Baulárvallavatn. Mynd veidikortid.is

Page 68: Veidislod 3 tbl 2011

68 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

fjölskylduveiði

Baulárvallavatn er fallegt fjallavatn.

Fjalllendi Snæfellsnes er tilkomumikið

á þessum slóðum og skammt undan

eru tvö önnur stórgóð veiðivötn sem

við fjöllum eflaust um fyrr en seinna,

Hraunsfjarðarvatn og Selvallavatn.

Menn geta rekist þarna á refi, rjúpu,

himbrima og haförn. Kannski eitthvað

dularfyllra og óútskýrnalegt líka? Allt

um það, þá er til mergjuð þjóðsaga frá

þessum slóðum, saga sem skráð er í

þjóðsagnasöfn.

Sagt er að þarna megi einhvers staðar

sjá enn móta fyrir tóttum að bænum

Baulárvöllum. Það var harðbýlt kot

og ábúendur efnalitlir smábændur.

Vetur einn fór allt á kaf í snjó og vistir

þraut, auk þess sem hætta var talin á

að eld myndi skorta. Afréð bóndi því að

brjótast til byggða í suðurátt og freista

þess að bjarga fjölskyldu sinni. Eftir sat

eiginkonan og börnin og gerðu þau lítið

annað en að hírast í kotinu vegna veð-

urs. En kvöld eitt heyrðu þau gríðarlegt

hark og læti úti fyrir. Urðu þau felmtri

slegin og ekki dró úr þegar eitthvað sem

úti var tók að berja og djöflast á útidyra-

hurðinni. Móðir og börn földu sig laf-

hrædd inni í bæ og loks linnti látnum.

Þau þorðu sig þó hvergi að hræra lengi

vel, en daginn eftir kom bóndi heim

og með honum fólk . Brá mönnum við

aðkomuna, en miklar skemmdir voru á

útidyrahurð þó að hún hafi haldið. Og

undrun manna varð enn meiri þegar sjá

mátti feiknastór spor, eins og eftir stóra

hlemma, sem traðkað höfðu snjóinn allt

um kring. Og spor þessi komu frá og

héldu aftur til opinni vök í Baulárvalla-

vatni. Ábúendur vildu fyrir enga muni

vera þarna lengur og brugðu þau búi og

héldu til byggða með aðkomufólkinu.

Þarna er sem sagt skrímslasaga á ferð

og svæðið er þekkt fyrir þær fleiri, því

skráðar hafa verið sagnir af ókenni-

legum, stórum dýrum á sundi í Hrauns-

fjarðarvatni. Skrímsli leynast greinilega

víða í íslenskum stöðuvötnum.

Baulárvallavatn er því skemmtilegur

kostur. Veiði hefst þar á vorin þegar ísa

leysir og stendur veiðin út september.

Vatnið gefur veiði alla vertíðina sem er

að sjálfsögðu mikill kostur. Að öðru leyti

þurfa handhafar Veiðikortsins að kynna

sér hvaða reglur kunni að gilda um veiði

í vatninu. Klikkjum hér út með nokkrum

færslum af vef Veiðikortsins, www.

veidikortid.is þar sem veiðifólk segir í

nokkrum orðum frá reynslu sinni:

Hrafnhildur, 9.ágúst 2010: Var þarna í

gær og fékk ekki nema einn urriða, ansi

vænann reyndar.

„Dóri“, 19.júlí 2010: Fór þangað fyrir

tveimur vikum og fékk fjóra væna urr-

iða og missti þrjá. Fínt vatn!

Kristinn Guðmundsson, 29.júní 2009:

Fór að kvöldi 14 maí, var smá strekk-

ingur en datt í dúna lognum miðnætti

svo ég tjaldaði. Um morguninn náði

ég í einn vænann 3-4 punda og einn

2 punda um hádegi.Þeir voru feitir og

gómsætir

Gore-tex gerir gæfumuninn.

Gore-tex öndunarfilman

ber höfuð og herðar yfir

aðrar öndunarfilmur bæði

hvað varðar vatnsheldni og

útöndun.

Simms notar Gore-tex Per-

formance-Shell og Gore-tex

Pro-Shell í vöðlur og jakka.

Engar málamiðlanir. Simms

er málið

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

ALLIR VEIÐIMENN ÞEKKJA SIMMS GÆÐI!

ÞÚ FÆRÐ SIMMS EINNIG HJÁ VEIÐIMANNINUM.

VEIÐIBÚÐ ALLRA LANDSMANNA Á NETINU.

VEIDIMADURINN.IS

Page 69: Veidislod 3 tbl 2011

69

Baulárvallavatn

Gore-tex gerir gæfumuninn.

Gore-tex öndunarfilman

ber höfuð og herðar yfir

aðrar öndunarfilmur bæði

hvað varðar vatnsheldni og

útöndun.

Simms notar Gore-tex Per-

formance-Shell og Gore-tex

Pro-Shell í vöðlur og jakka.

Engar málamiðlanir. Simms

er málið

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

ALLIR VEIÐIMENN ÞEKKJA SIMMS GÆÐI!

ÞÚ FÆRÐ SIMMS EINNIG HJÁ VEIÐIMANNINUM.

VEIÐIBÚÐ ALLRA LANDSMANNA Á NETINU.

VEIDIMADURINN.IS

Page 70: Veidislod 3 tbl 2011

Litlisjór í forgrunni og Hraunvötn í fjarska.

70 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 71: Veidislod 3 tbl 2011

Ljósmyndagalleríið að þessu sinni er frá Erni Óskarssyni, líffræðingi og framhaldsskólakennara á Selfossi. Örn hefur lengi ljósmyndað ís­lenska náttútu og hann hefur enn fremur gengið veg veiðigyðjunnar, með sérstaklega sterk tengsl inn í Veiðivötn á Landmannaafrétti. Enda eru myndirnar í þessu galleríi allar teknar þar og má því segja að í fyrsta skipti sé ljósmyndagallerí Veiðislóðar með ákveðið tema, sem er Veiðivötn, landslag, fiskar, fuglar og stemningar.

Örn segir: „Náttúruljósmyndun hefur fylgt mér frá því ég eignaðist mína fyrstu myndavél upp úr 1970. Fyrstu árin tók ég einkum svart­hvítar myndir sem ég framkallaði sjálfur. Fljótlega fór ég að taka litmyndir samhliða þeim svarthvítu, bæði skyggnur og á negatívur. Árið 1999 eignaðist ég mína fyrstu digitalvél og frá árinu 2001 hef ég eingöngu tekið myndir á slíkar vélar. Síðustu árin hef ég einkum fengist við að ljósmynda fugla, en fólk, landslag og plöntur hafa fylgt með. Myndirnar sem hér birtast eru teknar á Nikon D70 og Nikon D90 myndavélar. Ég nota bæði Nikkor og Sigma linsur.

Veiðivötn á Landmannaafrétti hef ég heimsótt árlega frá árinu 1969. Fyrst voru þetta veiðiferðir en nú í seinni tíð hefur náttúruskoðun og ljósmyndun tekið æ meiri tíma. Stundum má ég ekki vera að því að veiða. Einkum er það fuglalífið sem heillar ásamt stórkostlegri og fjöl­breytilegri náttúru svæðisins. Þó svo ferðirnar í Veiðivötn séu að nálgast annað hundraðið sé ég ávallt eitthvað nýtt og spennandi í hverri ferð.“

71

Veiðivötn í öllu sínu veldi

ljósmyndun

Page 72: Veidislod 3 tbl 2011

Veiðimenn við veiðar í Snjóöldupolli.

Page 73: Veidislod 3 tbl 2011

73

Page 74: Veidislod 3 tbl 2011

Kvöld við Litlasjó.

Page 75: Veidislod 3 tbl 2011

75

Kirkjuhólmakvísl á miðnætti.

Page 76: Veidislod 3 tbl 2011

Júlímorgun við Tjaldvatn.

Page 77: Veidislod 3 tbl 2011

77

Page 78: Veidislod 3 tbl 2011

78 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Veiðivatnaurriðinn getur orðið stórvaxinn. Árlega veiðast 10­12 punda urriðar á stöng og þeir eru til mun stærri. Hér er Anna Rut Arnardóttir með 9 punda urriða sem hún veiddi í Hraunvötnum.

Page 79: Veidislod 3 tbl 2011

79

Falleg bleikjuveiði úr Snjóölduvatni.

Page 80: Veidislod 3 tbl 2011

Óðinshanar eru kvikir og skemmtilegir vaðfuglar. Þeir eru algengir á Veiðivatnasvæðinu.

Page 81: Veidislod 3 tbl 2011

81

Page 82: Veidislod 3 tbl 2011

Himbrimi er einn af einkennisfuglum í Veiðivatna. Á svæðinu eru 10­15 varppör. Þessi styggi fugl hefur aðlagast návist manna vel í Veiðivötnum og því er óvíða betra að skoða hann í návígi.

Page 83: Veidislod 3 tbl 2011

83

Page 84: Veidislod 3 tbl 2011

84 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Tjaldvatn og Langavatn.

Fossvatnakvísl bugðast um sanda í kvöldroðanum.

Page 86: Veidislod 3 tbl 2011

86 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Háfur búinn að hremma beituna.

Page 87: Veidislod 3 tbl 2011

87

Reynir Friðriksson

Reynir Friðriksson veiðir háf á sunnlensku söndunum og skellir honum á grilliðReynir Friðriksson stundar nám í sjávarútvegsfræðum á vetrum og veiðir og leiðsegir á sumrum. Hann er einkum leiðsögumaður hjá Lax-á við Ytri Rangá, en eitt af því skemmtilegasta sem hann gerir þegar hann á sjálfur frístundir, er að stunda strandveiði. Hann segist stunda slíka veiði um allt land, eftir því hvar hann er á ferðinni hverju sinni, vinsælt svæði er þó bæði í grennd við Keflavík og í Geldinga-nesi á Reykjavíkursvæðinu. En eitthvert almesta fjörið er þó á sunn-lensku söndunum þar sem Reynir veiðir háf, 90 til 100 cm háfa, sem eins og kunnugt er, eru af hákarlaætt. Við ræddum við Reyni um þennan athyglisverða veiðiskap.

strandveiði

„Háfurinn kemur upp að suðurströnd-

inni í maimánuði í stórum torfum og

best er að veiða hann á sandströndun-

um á Suðurlandi. Háfurinn veiðist um

alla suðurströndina, allt frá Þorlákshöfn

til Hafnar í Hornafirði. Á vestanverðum

hlutanum er þetta bara háfur, en austar,

þegar nær dregur Vík geta fleiri kvik-

indi komið á krókinn, menn hafa t.d.

veitt hlýra, lýsu, kola og þorsk,“ sagði

Reynir fyrst er við viðruðum við hann

þessa óvenjulegu bráð.

En hvað með búnaðiinn?„Ég veiði hann stundum á þessar stóru

sterku strandveiðigræjur. Það eru tæki

sem maður er að kasta hundrað metra

með. Skemmtillegra með háfinn er þó

að nota bara venjulegar kastsstangir, 8-9

feta, eins og maður notar í laxinn, því

það þarf ekki svo rosalega löng köst fyrir

háfinn. Það duga kannski 40 metrar,

hann kemur það nærri ströndinni í ætis-

leit. Hann er á eftir sandsíli og trönusíli

og bara öllu sem hann ræður við.“

Hvað tekur hann?„Ég hef verið að taka hann aðallega á

makríl. Aðalmálið er beita, fiskur. Ég hef

ekki reynt annað, en langar til að reyna

að fá hann á spón. Ég geri fastlega ráð

fyrir að það sé hægt, þetta er mikið

rándýr sem er einmitt að elta sílin upp

undir fjöruna.“

Page 88: Veidislod 3 tbl 2011

88 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Háfurinn kemur bröltandi upp í sandfjöruna.Þetta er eins og lítill hákarl...enda er þetta einmitt það, sem sagt lítill hákarl.

Page 89: Veidislod 3 tbl 2011

89

strandveiði Reynir Friðriksson

En hvað er þetta stór fiskur....og er eitthvað varið í að veiða hann?„Þetta eru stórir fiskar, algengt svona

90 til 95 cm. Ég veit stærst um 112 cm.

Þyngdin er minni heldur en hjá laxi

miðað við lengd, 105 til 110 cm háfur

er svona ábilinu 6 til 7 kíló, eða 12 til

14 pund. Þeir eru miklu rennilegri á

búkinn heldur en laxinn. Og þetta

eru sterkir fiskar. Þeir eru ekki sérlega

spretthraðir, þumbast meira og geta

haldið vel út. Það er alveg vel tekið á því.

Svo er annað sem gerir þessa veiði svo

heillandi og það er umhverfið sem veitt

er í. Þetta er niðri á söndum og það eru

selir og mikið fuglalíf. Súlur að kasta

sér í sjóinn, þrumandi brimalda. Alveg

magnað!“

Er þetta um allan sjó og algerlega á vísan að róa?„Þetta er bara eins og önnur veiði,

það gerist kannski ekkert um tíma, en

svo koma skot þegar menn hitta á að

göngur eru að fara fram hjá. Þá getur

maður tekið nokkra í beit.“

Er ekki stórhættulegt að losa úr þess-um dýrum?„Jah, það er allavega ekki mælt með því

að vaðið sé upp í kjaftinn á þeim. Það

eru rosalgar tennurnar í þeim svo mikið

er víst. Ég hef verið með 0.60 línu og

þeir hafa klippt hana í sundur eins og

tvinna. Best reynist að vera með vír-

taum eða það sem við köllum O-króka.

Þeir ná í hálfhring. Eru það sem menn

nota á lúðulínur. Þeir eru það stórir að

háfurinn festir þá aðallega í kjaftvikin

og þá er auðvelt að húkka úr þeim án

þess að ganga frá fingrunum á sér.“

Hvaða gagn er síðan að svona afla, er þetta étið?„Já, það er nú eitt af því sem er svo

heillandi við þetta. Þetta er nefnilega

stórgóður fiskur að éta og með þeim

hollustu sem völ er á, því það er svo

mikið af Omegasýrum í honum.

Meira heldur en í laxi. Mér finnst mjög

skemmtilegt að skella háf á grillið. Þá

geri ég það helst þannig að ég flaka

fiskinn. Það þarf ekki að beinhreinsa

því þetta er brjóskfiskur. Ég sneiði hann

niður í bita, pensla hann með hvítlauks-

bættri ólífuolíu. Krydda líka með salti,

pipar, basilíkum og steinselju, og renni

upp á spjót með grænmeti. Þetta er stífur

fiskur, líkt og skötuselur, þannig að hann

tollir vel og hruflast lítið. Með á spjótið

fer t.d. laukur og paprika og meðlæti

er gjarnan grillaðar sneiðar af sætum

kartöflum. Þær pensla ég með ólífolíu

sem er krydduð með salti, pipar og

hvítlauk. Fersk sumarsalat passar síðan

ágætlega með þessu öllu saman og þetta

er magnaður réttur. Og svo eru þessir

fiskar svo drjúgir, að eitt flak dugar í mat

handa 5-6 manns,“ segir Reynir.

Viðmælandi okkar, Reynir Friðriksson búinn að landa einum vænum.

Page 90: Veidislod 3 tbl 2011

einu sinni var

„Ertu ekki að ljúga?“

Eins og nærri má geta snérist spjallið

meira og minna um stóra laxa og þar

sem drottningin norðan heiða virðist

hafa verið að rétta sig við sem stórlaxaá

allra síðustu sumrin, væri ekki úr vegi að

rifja upp nokkur brot úr umræddu við-

tali. Til þess höfum við leyfi skrásetjara

viðtalsins sem er enginn annar en sá

hinn sami og ritstýrir þessu vefblaði.

Þetta verður ekki viðtalið í heild, heldur

valdir kaflar héðan og þaðan.

Jóhannes: Eins og ég sagði áðan, þá

missi ég oft stærstu laxana nú orðið.

Þann 11.-14.júlí 1980 var ég til dæmis að

veiðum og það gekk afar vel. Ég fékk 30

laxa, þar af 20 á flugu, 7 á maðk og 3 á

spón. Þetta voru óvanalega jafn stórir

fiskar, vógu samtals 354 pund, en eng-

inn var stærri en 18 pund. Tveir 5 pund-

arar skemmdu meðalvigtina. En mér

gekk þó ekki allt í haginn, því að annann

daginn missti ég tvo gríðarstóra fiska.

Ég var við Hagabakka og hafði fengið

þrjár fallegar hrygnur, 11, 13 og 13 punda

á Blue Charm númer 8, er feiknar bolti

kom á hjá mér. Ég sá hann vel og giska

á að hann hafi verið 27-30 pund. Ég

mátti elta hann niður undir þinghúsin

við Hólmavað og alltaf fór hann niður

með hinum bakkanum. Laxinn snéri við

þegar þangað var komið, synti aftur upp

eftir, upp undir brúna, fór þar fyrir festu,

sleit og tók alla línuna mína með sér.

Ég renndi á ný og setti nær samstundis í

annan geysistóran, en þó aðeins minni

en áður, þessi var svona 22-24 pund.

Hann dró mig sömu leið og lék mig

næstum jafn grátt, en lét sér þó nægja að

slíta tauminn. Þá hætti ég þarna, en samt

var þetta góður eftirmiðdagur, ég fékk

sjö stórar hrygnur.

Stundum náði maður þeim stóru

og dagur einn fyrir mörgum árum

verður lengi í minnum hafður. Það var

22. júlí 1952 og ég átti veiðileyfi fyrir

neðan Æðarfossa. Kristján, vinur minn

á Hólmavaði, hringdi í mig daginn áður

og sagði mér að það væri engin veiði og

slæmar horfur, en ef ég vildi þá mætti

90 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Einu sinni var Jóhannes Kristjánsson bifvélavirkjameistari á Akureyri einn öflugasti veiðimaður Laxár í Aðaldal og enginn lax var óhultur fyrir honum. Til fjölda ára veiddi hann helst með syni sínum, Kristjáni, sem einnig lærði til bílaviðgerða. Vorið 1983 var tekið viðtal við þá feðga sam-an fyrir bókina Varstu að fá’ann? Og fóru þeir þá mikinn í frásögnum sínum af eftirminnilegum glímum og dögum á bökkum Laxár í Aðaldal.

úr samtali við Jóhannes Kristjánsson á Akureyri um stóra laxa og fleira í Laxá í Aðaldal

Page 91: Veidislod 3 tbl 2011

ég koma til sín umkvöldið og renna „á

Stífluna“. Ég fékk lánaðan vörubíl hjá

Bifröst og lagði af stað, en það sprakk

á leiðinni og mér seinkaði mikið við

það. Ég man að klukkan var að ganga

tíu þegar ég loksins kom að Hólmavaði.

Kristján beið eftir mér, en Benedikt faðir

hans, var niður við á með Agli Jónassyni

skáldi. Þeir voru á báti úti á flúðinni og

renndu maðki.

Ég hugsaði mér að byrja með flugu en

hætti við það og hnýtti á stóran „Alberts-

spón“. Ég var ekki byrjaður þegar þeir

settu í fisk og ég man að um leið og

91

Jóhannes Kristjánsson frá Akureyri

þeir misstu fiskinn fram af flúðinni

kallaði Benedikt til mín hvort ég væri

með gogg. Ég var með gogg og kast-

aði honum til Benedikts, en um leið

krossbölvaði hann hástöfum. „Þetta

er kolmóauður urriðahundur, ekkert

nema lengdin,“ kallaði hann. Ég hló og

gerði grín að þeim um leið og ég kastaði

spæninum á ská upp fyrir mig „upp á

Stífluna“. Það skipti engum togum, að

stórlax greip spóninn. Hann bylti sér

og ég sá að þetta myndi vera einn af

þeim stóru, en síðan þaut hann niður að

Stíflunni og fram hjá þeim Benedikt og

Agli. Ég kallaði til þeirra og sagðist vera

með rosafisk á og mig vantaði bátinn.

„Ertu ekki að ljúga?,“ kallaði Benedikt, en

sá svo sem var. Bátinn komu þeir með

og fiskinum landaði ég yst í Hrúthólm-

anum með aðstoð þeirra eftir hálfa aðra

klukkustund. Við gengum síðan að

Hólmavaði og héldum á stórfiskinum á

milli okkar. Er til okkar sást frá bænum,

kom fólkið út á hlað. Þar sagði Kristján að

það myndi víst hafa verið ég sem hefði

veitt þennan fisk, hann var alveg klár á

því. Þetta var 30 punda lax.

Daginn eftir fór ég svo niður fyrir Æðar-

fossa og með mér var Birgir Steingríms-

son frá Húsavík, snjall veiðimaður. Hann

fór í Stórafoss en ég í Kistukvísl. Þegar

ég kom að Sóleyjarviki, sá ég bláma á

nokkrum stórum löxum og var þó einn

þeirra sýnu stærstur. Ég skreið eins og

ánamaðkur og laumaði færinu út, en

ekkert gerðist í fyrstu. Kíkti ég þá í pytt-

inn og sá þá að laxarnir voru allir farnir,

utan sá stóri, sem enn lá þarna makinda-

lega. Ég slengdi maðkinum út aftur og

það var tekið í. Laxinn kjammsaði svo

á beitunni og svo fór að lokum að ég

stríkkaði á línunni og atgangurinn hófst.

Hann var geysilega sterkur og eins og títt

er á þessum slóðum, fór hann niður alla

Page 92: Veidislod 3 tbl 2011

92 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

einu sinni var

Kvísl og fram í Kistuhyl. Ég var heppinn

því venjulega taka þeir Kvíslina í einum

rjúkandi spretti, en þessi seig rólega

niður eftir og sparaði kraftana.

Þarna niður frá er brú yfir miðkvíslina

og allt niður að henni hafði laxinn tekið

lífinu með ró. En þegar ég var að príla

upp á brúna, breyttist átakið og laxinn

þaut af stað. Það kom mér sannarlega

vel að vera með 180 metra langa línu,

því ekki veitti af þarna. Þetta varð einnig

til þess að ég náði ekki til bátsins og

laxinn flaug út á Kistuhyl. En það varð

mér til happs, að Birgir kom til mín,

sagðist hafa heyrt hvininn í hjólinu hjá

mér! Hann sótti bátinn og síðan fórum

við á eftir fiskinum, hann undir árum,

en ég upptekinn við stöngina. Þetta tók

óratíma og ég fór að hafa áhyggjur af

því að skemma daginn fyrir Birgi. Ég

sagði honum því að setja mig í land, það

myndi vera óhætt úr þessu, en sjálfur

skyldi hann reyna að veiða eitthvað. Eftir

dálitlar fortölur féllst hann á þetta og fór.

-Laxinn var farinn að róast en samt

mátti ég ganga á eftir honum hálfan

annan kílómetra norður allan sand í átt

að ósnum. Alls var ég í tæpa þrjá tíma

að ná þessum fiski, sem var 31 pund.

Þessi afli var ekki síður fallegur er ég

lagði við hlið laxins tvo 18 punda fiska

sem ég hafði fengið fyrr um morguninn

og annan tíu punda sem ég nappaði á

síðustu mínútunni.

Metmorguninn

Eins og ég gat um áður, var meðalþung-

inn talsvert hærri hér á árum áður og

þegar ég get þess, minnist ég veiðidags

sem ég átti með Steingrími heitnum í

Nesi 28. ágúst 1951. Þann dag fékk ég

fimm laxa, 21, 21, 22, 22 og 23 punda,

alla á maðk. Steingrímur fékk einn yfir

20 pund, annan 16 punda auk þess sem

hann sleit úr tveimur fiskum. Annar

þeirra var 25-30 pund, hinn eitthvað yfir

20 pund. Þrjá af þessum fiskum veiddi ég

í Vitaðsgjafa, einn í Kirkjuhólmakvísl og

einn í Eyjakvíslum.

Skringilega tekinn

En ótrúlegustu söguna geta þeir

sennilega sagt, þeir Jón Einarsson

framkvæmdastjóri í Krossanesi og

Bragi Eiríksson forstjóri Skreiðarsam-

bandsins. Þeir voru saman að veiðum í

Laxá og lönduðu stórum laxi. Sá kom á

maðk, en þegar átti að leysa úr honum,

hrukku félagarnir ansi mikið við, er þeir

urðu þess varir, að línan lá ekki inn um

munn fisksins, en þó sáu þeir öngulinn

vel í koki hans. Enn meiri varð undrunin

þegar þeir sá, að línan hafði farið inn um

tálknlokið, hvernig sem það hefur eigin-

lega getað gerst..

Við gluggum kannski aftur síðar í fleiri

frásagnir í viðtalinu við þá feðga, en eins

og sjá má er Jóhannes í forsætinu, við

eigum Kristján alveg eftir.

Page 93: Veidislod 3 tbl 2011

Meðalveiði: 1.053 laxar á 5-6 stangir á ári, árin 2006-2009

Verð: 14.000-69.000 kr. á hv. stangardag

Fyrirkomulag: 2ja daga „holl“ hádegi til hádegis

Leyfilegt agn: Fluga og maðkur

Gisting: 2ja manna herbergi með uppábúnum rúmum, 12.000 kr. á sólarhring

Tímabil: 18. júlí til 30. september

Laxveiði í einni bestu á landsins!

Norðlingafljót

Jóhannes B. SigmarssonS: 771 6353, [email protected]

Borgarfirði

www.nordlingafljot.com

Page 94: Veidislod 3 tbl 2011

villibráðareldhúsið

Skemmtileg og létt serimonía

Silungsconfit með tómatsalsaÁður en að allt treðst undir í frystikist-unni væri ekki úr vegi að fara að grilla eitthvað af öllum þessum sil ungi og laxi sem þar er að safnast upp. Og er ekki líka málið að prófa eitthvað nýtt? Það er fátt í matarflórunni sem hægt er að framreiða á jafn fjölbreyttan hátt og silungur og lax. Fyrir nokkrum misserum lét Ari Karlsson meistara-kokkur, kenndur við Argen tínu steik-hús, okkur í té nokkrar girnilegar uppskriftir. Í huganum var silungur, en eins og oft vill verða má allt eins framreiða lax í staðinn án þess að spilla gæðum réttarins.

Silungaconfit:

• Flakafsilungi

• Salt

• Olía

Tómatsalsa:

• 3stkplómutómatur

• Steinselja-eðadill

• Koriander-eðasítrónutimian

• Ólifuolía

• Saltogpipar

Silungaconfit:

Silungurinn er skorinn niður í bita og saltaður á báðum hliðum látinn standa inn í kæli í 20 mín. Silungurinn er þá skolaður og settur í eldfast mót og olíu hellt yfir þangað til hún flýtur yfir silunginn. Ofninn er hitaður í 140°C og silungurinn er eldaður í 20 mín (alls ekki meira) síðan tekin út og látinn kólna í olíunni. Svo er hann þerraður og létt grillaður á roðhliðinni einni og borinn fram með tómatsalsa

Tómatsalsa

Plómutómaturinn er afhýddur og kjarnhreinsaður. Skorinn niður í teninga, steinseljan og koriander er saxað niður og blandað saman við tómatinn. Ólífu­olían er sett út í og smakkað til með salti og pipar.

94 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

hráefni aðferð

My

nd

irn

ar t

ók

Hei

mir

Ósk

arss

on

Satt að segja vitum við ekki hvort að Ari er enn innan­

búðarmaður á Argentínu, en það er ekki mál málanna,

Argentína er frábær veitingastaður og gott að leita þar

fanga þegar finna skal út frábæra rétti. Þegar við báðum

Ara um þetta viðvik á sínum tíma létum við þess getið að

einfaldir réttir væru málið, því oft er einfaldleikinn bestur.

Hann var því sammála og sagði: „Þetta eru allt mjög

auðveldar uppskriftir sem allir ættu að geta prófað.“

En þessi réttur er þó aðeins að í aðalatriðum frá Ara.

Hann nefndi steinselju og kóríander sem eru mjög afger­

andi krydd. Við prófuðum í staðinn dill og sítrónutimian

með frábærum árangri. Þetta er því eins og svo oft, hægt

og gerlegt á fleiri en eina vegu. Við stækkuðum líka

tómatsalsa skammtinn þar sem að okkur fannst það gefa

réttinum ferskari blæ, þ.e. að hafa meira af fersku með!

Page 95: Veidislod 3 tbl 2011

95

Page 96: Veidislod 3 tbl 2011

lífríkið

Nýr Fuglavísir Þarf að breyta veiðireglum og veiðisiðferðiÖll erum við hluti af lífríkinu og sum

okkar eru duglegri en önnur við að

kynna lífríkið fyrir fjöldanum. Jóhann Óli Hilmarsson

er fuglaljósmyndari og hefur stundað þá sérgrein um árabil. Í nóvem-

ber 1999 kom út bókin Fuglavísir. Handhæg bók sem hjálpaði fólki að

greina fugla sem fyrir augu ber í íslenskri náttúru. Ári seinna kom bókin

úr á ensku og þýsku. Núna hefur komið út endurútgáfa, mikið uppfærð

og stórbætt. En samt handhæg og þægileg. Eiguleg fyrir alla náttúruun-

nendur. Við ræddum við Jóhann Óla í tilefni þessa og spurðum hann

fyrst hvers vegna hann hefði ráðist í endurgerð.

„Það var ákveðið á 10 ára afmælinu 2009

að endurútgefa bókina. Bókin hefur selst

mjög vel, er reyndar metsölubók, salan

er komin yfir 30.000 eintök á öllum

tungumálum. En íslensk fuglafána er

sífelldum breytingum undirorpin og því

var ýmislegt orðið úrelt í gömlu bókinni.

Einnig langaði mig til að bæta mynda-

kostinn, sem reyndar endaði með því að

ég skipti út nær öllum myndum nema

myndunum af eggjunum, en bætti þar

við nokkrum fuglategundunum. Það tók

síðan hálftannað ár að koma nýju út-

gáfunni á koppinn.“

Hvað er helst í bókinni sem var ekki í þeirri fyrri? „Ég bætti við 34 nýjum fuglum, sem

ekki voru í þeirri fyrri, flækingsfuglum

eða gestum, sem sjást næstum árlega.

Auk þess hækkaði ég fáeina fugla í þann

status að vera fullgildir íslenskir varp-

fuglar, það eru skógarsnípa, snæugla

og glókollur. Nokkrar tegundir knýja þó

dyra og bara fyrir tveimur vikum fund-

um við nokkrir félagar þrjú eyruglupör

með unga í skóglendi á Suðurlandi og

eru þau að öllum líkindum fleiri. Um-

fjöllun um eyruglu í bókinni er því strax

96 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 97: Veidislod 3 tbl 2011

orðin úrelt. Krossnefur virðist líka vera að

nema land, sömuleiðis fjallkjói, dverg-

máfur og fleiri fuglar.

Annars er mest allt nýtt í bókinni, nýtt

umbrot, nýjar myndir, ný útbreiðslukort,

nýjar töflur yfir dvalar- og varptíma, nýir

kaflar um fæðu, búsvæði og sérkenni

íslensku fánunnar, svo nokkuð sé nefnt.

Auk þessara nýju fugla, sem ég nefndi

áðan. Það er helst að meginhluti textans

og eggjamyndirnar sem halda sér frá

fyrri útgáfu.“

97

Page 98: Veidislod 3 tbl 2011

lífríkið

98 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Smávegis um feril þinn sem fuglaljósmyndara? „Ég er búinn að hafa áhuga á fuglum

frá barnæsku og árið 1977 eignaðist ég

fyrstu spegilvélina og aðdráttarlinsuna.

Mig langaði til að teikna fugla, en gat

það ekki og því varð ljósmyndun fyrir

valinu. Þegar ég fór að mynda í fyrri

útgáfu Fuglavísis árið 1997 fékk ég mér

almennilegar græjur, góða myndavél

með átófókus og stóra aðdráttarlinsu.

Þá var teningnum endanlega kastað.

Svo kom stafræna tæknin til sögunnar

skömmu uppúr aldamótum og ég

fékk mér mína fyrstu stafrænu vél árið

2003. En ég fer samt enn í filmusafnið

og skanna eina og eina mynd, til að

gleyma ekki tilfinningunni, sömuleiðis

á ég mediumformat filmuvél, algjörlega

basik apparat, sem ég nota einnig

stöku sinnum ennþá til að taka lands-

lagsmyndir. Því ég tek ekki eingöngu

fuglamyndir, íslensk náttúra býður

uppá svo margt og ég hef svoldið fiktað

við plöntur, smádýr og lífríki fjörunnar.“

Hvað er að vera fuglaljósmyndari?„Að taka ljósmyndir

af fuglum, liggur það

ekki í augum uppi? Án gríns, þá

segi ég oft að fuglaljósmyndari þurfi að

uppfylla 5 skilyrði: þekkingu á fuglum,

góðar græjur, skynbragð á myndbygg-

ingu, virðingu fyrir viðfangsefninu og

vænan slatta af þolinmæði. Ég þekki

dæmi þess að atvinnulandslagsljós-

myndarar hafi græjað sig upp og ætlað

að fara að mynda fugla, en lítið orðið úr.

Starfið krefst oft mikillar yfirlegu, langra

og erfiðra ferðalaga, kulda og vosbúðar

og jafnframt að vera við öllu búin, því

stundum kemur ekkert útúr margra

tíma eða jafnvel daga setu í felutjaldi.

Það er þeim mun gleðilegra þegar góður

árangur næst. Fyrir um 10 árum voru

íslenskir fuglaljósmyndarar teljandi á

fingrum annarrar handar, nú skipta

þeir tugum, stafræna byltingin hefur

gefið miklu fleiri kost á að stunda þessa

gefandi og skemmtilegu iðju.“

Gulandarpar á flugi.

Ljósmyndir:Jóhann Óli Hilmarsson

Page 99: Veidislod 3 tbl 2011

Jóhann Óli Hilmarsson

99

Viðhorf landsmanna til fugla....breyst, versnað, batnað? „Viðhorfið er nú heldur að batna, eftir

því sem meðvitund fólks um náttúruna

eykst. Náttúran er okkar mesta auðlind

til langs tíma litið. Besta nýtingin er að

leyfa fólki að njóta hennar. Það hefur

gengið erfiðlega að koma þessu inní

hausinn á þeim sem vilja leggja náttúr-

una undir sig með framkvæmdum og

virkjunum. T.d. eru miðlunarlón virkjana

oftast á fuglaríkum svæðum í hálend-

inu. Svo eru það þeir sem hafa einu

ánægjuna af dauðum fuglum. Það þarf

að breyta veiðireglum og veiðisiðferði

núna þegar langvarandi hrun er í sjó-

fuglastofnum. T.d. þurfa Vestamanna-

eyingar að venja sig á að snæða annað

á þjóðhátíð en reyktan lunda. Ofveiði er

sennilega stunduð á þeim stöðum þar

sem lundi veiðist, menn græða stórum

á að veiða lunda ofaní Eyjamenn. Þetta

ætti að breytast verði komið á banni við

sölu á villibráð, en það er mál sem við hjá

Fuglavernd höfum lengi barist fyrir. Það

kæmi sennilega í veg fyrir magnveiði á

gæs og annarri rányrkju á fuglum, sem

nú er stunduð. Magnveiðimennirnir

eru svartir sauðir í hópi veiðimanna,

sem langflestir umgangast náttúruna af

virðingu, sbr. kjöroð Skotvís. Núverandi

umhverfisráðherra er með bein í nefinu

og það er unnið að endurskoðun Veiði-

og friðunarlaganna, svo þarna gæti orðið

breyting á.

Loks eru það þeir sem skipa fuglum

í góða fugla og vonda fugla. Ég geri

fuglum ekki upp neinar slíkar skoðanir

eða tilfinningar, fyrir mér eru þeir allir

jafnir. Í náttúrunni gildir að eta eða vera

etin, svangir fuglar leita sér að sjálfsögðu

fanga sem víðast og geta þar af leiðandi

gengið fram af viðkvæmu fólki.“

Uppáhaldsfuglar að mynda? Þessu er ekki auðsvarað. Ég held að það sé

sá fugl sem ég er að mynda hverju sinni.

Ég hef lengi reynt að hafa líf í mynd-

unum og jafnframt að einbeita mér ekki

eingöngu að portrettmyndum, heldur

fanga fuglinn í landslaginu, fylgja finnska

skólanum svokallaða í fuglaljósmyndun.

Félagi minn, listamaðurinn Jón Baldur

Hlíðberg sem hefur teiknað íslenskt lífríki

flestum mönnum betur, sagði einhverju

sinni að ég hefði komið með aksjónina

inní íslenska fuglaljósmyndun, mér hefur

alltaf þótt vænt um þau orð.“

Ertu álitinn sérvitringur? „Já tvímælalaust, en samt miklu minna

nú en áður, eftir því sem þeim fjölgar sem

stunda sömu iðju. Félagafjöldi Fugla-

verndar, þar sem ég hef lengi verið innan-

búðar, hefur tvöfaldast á fáum árum.

Einnig hefur verið mikil vakning í fugla-

tengdri ferðaþjónustu að undaförnu ...“ Maríuerla teygir úr sér.

Kríur kljást.

Page 100: Veidislod 3 tbl 2011

100 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Sko, þetta gátum við!

veiðisaga

Einn í okkar hópi leggur það í vana sinn að fara í langar óbyggðagöngur með stöng í hönd á hverju sumri. Hann er jafnan búinn að kortleggja hvert hann ætlar, merkja allt inn á GPS, athuga með slóða og landslag. Sjaldnast veit hann fyrir víst hvort að fiskur er þar sem hann ætlar. Oftar en ekki, uppgötvar hann þó hreinar veiðiparadísir. Og af því má ráða, að af þeim er nóg á Íslandi, miklu fleiri en nokkurn grunar.

Það þarf bara að hafa áræði og nennu

til að standa í þessu. Það verður ríkulega

umbunað, því í viðbót við þau forréttindi

að kasta fyrir heiðasilunga, oft rígvæna,

sem hafa kannski aldrei séð agn áður,

þá fá menn íslenskar óbyggðir og öræfi

beint í æð í öllu sínu stórkostlega veldi.

Gönguferð sumarsins er afstaðin og hún

var mögnuð. Staðsetningin liggur milli

hluta. Það er viljandi gert, menn eiga

einfaldllega að nota svona frásögn sem

hvatningu til að gera eitthvað frumlegt

sjálfir. Jón Eyfjörð tekur nú við:

Landssvæðið er Norðurland og við

erum langt frá mannabyggðum. Fram-

undan er lítið ævintýri, dags gönguferð.

Heiðin, með öllum sínum vötnum og

Page 101: Veidislod 3 tbl 2011

101

sprænum bíður okkar. Það er júní og

veðrið er eins og best verður á kosið,

norðan andvari og hiti um 12 °C.

Við höldum af stað snemma morguns

vopnaðir léttum flugustöngum en í

vöðlum. Við vitum af mýrarflákum á

leiðinni og erum búnir að skoða kort

af svæðinu gaumgæfilega. Okkur er

ekið upp að vatni og þaðan verður svo

gengið 25 – 30 km. áður en við náum til

mannabyggða seint um kvöld.

Við höldum af stað og finnum útfall

vatnsins. Þar er byrjað að veiða með

litlum kúluhausum. Pheasant tail og

Krókurinn eru reyndir en ekkert verður

vart. Því er haldið niður með ánni/

læknum og kastað á leiðinni.

Skömmu neðar er gripið í fluguna

augnablik en svo er allt laust. Aftur er

kastað á sama stein en ekkert gerist.

Urriðinn kemur tvisvar og kíkir á flug-

una en tekur ekki. Nokkru neðar sjáum

við 4 fiska saman í litlum hyl, nánast

fyrsta hylnum í læknum/ánni. Þar er

Króknum beitt og áður en langt um

líður hefur fyrsti urriðinn tekið. Þetta

er sterkur fiskur og hefur engan áhuga

á að gefast upp. Hann syndir upp og

niður hylinn og um það bil þegar losa á

úr honum tekur hann ómakið af veiði-

manninum og slítur sig lausan. Þetta

var nokkuð stór fiskur, líklega um 50

cm langur. Staðnum gefin smá stund

til að jafna sig og aftur er Króknum

kastað. Flugan er varla lent þegar hún

er tekin. Þessi fiskur reynist vera minni

og mældur 44 cm, spikfeitur. Aftur

er Krókurinn sendur í leiðangur um

hylinn og eftir nokkur köst kemur stór

urriði og tekur en losnar eftir nokkrar

sekúndur. „Þessi var stór“, sagði fé-

laginn, sem sat á bakkanum.

Togast á!

Allar myndir Jón Eyfjörð

Jón Eyfjörð Friðriksson

Page 102: Veidislod 3 tbl 2011

2

1

2

102 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

3 4 5

6

Page 103: Veidislod 3 tbl 2011

1 Einn með sjálfum sér í óbyggðunum ...hvað er betra en það?

2 Víða voru veiðileg urriðaóðul.

3 Þeir eru sumir engin smásmíði, hálendisurriðarnir!

4 Oft er bleikja líka í óbyggðalækjunum.

5 Bústinn öræfaurriði.

6 Einn vígalegur.

103

veiðisaga Jón Eyfjörð Friðriksson

Við höldum ferðinni áfram en fáum ekki

mikið. Þarna var áin/lækurinn frekar

breið og grýtt, lítið um hylji og urriðaóð-

ölin smá. Einn og einn fiskur á stangli

og allir voru þeir á bilinu 45 – 48 cm.

Þegar neðar dregur breytist rennslið,

verður hægara og jafnframt breytist

landslagið, því nú rennur áin/lækurinn

um gróin heiðarlönd í tiltölulega mjórri

og djúpri rennu. Þarna fáum við nokkra

væna urriða á stærðarbilinu 50 cm – 54

cm. Allir eru þessir fiskar vel haldnir.

Því verður ekki neitað að þúfurnar,

skorningarnir og mýrin eru byrjuð að

segja til sín. Fæturnir hlýða þó ennþá og

suðusúkkulaði og rúsínur bæta orkubú-

skapinn talsvert. Þá er vatnið bráð-

nauðsynlegt, því vökvatap á göngu sem

þessari er umtalsvert og nauðsynlegt að

drekka mikið af vatni.

Nokkru neðar kemur annar lækur

saman við þann sem við eltum. Þar

myndast falleg straumskil og nú er

skipt um veiðiaðferð. Lítill hvítbleikur

Nobbler er settur undir og taumurinn

lengdur. Flugan lendir 15 – 20 metrum

neðan við straumskilin og strippið er

hægt, rétt undir yfirborðinu. Skyndilega

sjáum við koma boða undan bakka

og skömmu síðar er flugan negld,

fiskurinn snýr við og vill aftur í bæli sitt.

Þarna háðum við svo baráttu við úrillan

urriða sem strikaði hvað eftir annað um

alla breiðu með alla flugulínuna, alveg

niður á undirlínu. Um síðir tekst þó að

koma fiskinum að landi, mæla hann og

gefa honum frelsið aftur. Þetta reyndist

vera 56 cm. langur hængur og hann

var búinn að leggja sig allan í baráttuna

því það tók drykklanga stund að koma

honum aftur á réttan kjöl.

Það tók að kula aðeins þegar líða tók

á daginn og við greikkuðum sporið,

svona eins og hægt var sökum þreytu.

Við gerðumst vandfýsnir á veiðistaði,

hættum að kasta á girnilega staka steina

og einbeittum okkur að stærri veiði-

stöðum, sem fjölgaði sem neðar dró.

Jafnframt því fórum við nú einnig að fá

bleikju en hún var smærri en urriðinn.

Við vorum farnir að grilla í áfanga-

staðinn þegar lygndi aftur og við fórum

að sjá fiskinn vaka. Fyrst einn og einn

og svo allt í einu var bara hringur við

hring á yfirborðinu. Enn var skipt um

veiðiaðferð. Þurrfluga. Nokkrar reyndar,

s.s. Galdrahopper, Royal Coachman,

Black Gnat en ekkert gerðist fyrr en

agnarsmátt Héraeyra var hnýtt á 4

punda taum. Þá tók fyrsta bleikjan, ekki

stór en bráðskemmtileg viðureignar.

Henni gefið líf og aftur reynt. Önnur

bleikja náðist, sýnu stærri. Þá var ágætt

að halda ferðinni áfram.

Loks, þegar líða tók á kvöld, náðum við

áfangastað, sælir, glaðir en gersam-

lega úrvinda af þreytu. GPS tækið sýndi

að við höfðum gengið 32 km. og verið

ríflega 14 stundir að því. Veiðin var með

ágætum, urriði og bleikja í bland en það

var tilhugsunin um að komast í sturtu

og heitan pott sem var öllu öðru sterkari

og þegar við litum upp í heiðina hugs-

uðum við báðir, „Sko, þetta gátum við!“

Lokaorð: Það voru óðöl víða á leiðinni,

misstór og misáhugaverð en þau áttu

það sameiginlegt að þar bjuggu urriðar.

Það er skylda að bera virðingu fyrir

þeim. Það er líka mikilvægt að sleppa

þeim fiskum sem veiðast vegna þess

að þeir eiga það skilið og áin/lækurinn

er þeirra. Við skulum ganga um þessar

perlur af auðmýkt og virðingu og skilja

ekkert eftir okkur nema sporin og ég

lofa ykkur því að minningarnar líða

ekkert fyrir það þótt ekki liggi dauðir

fiskar í frystikistunni.

Page 104: Veidislod 3 tbl 2011

græjur ofl.

Nýstárleg veiðistaðasamkeppni

Sage One – Verðlaunagripur veiðistaðasamkeppni Veiðihornsins

Veiðihornið bregður á leik í sumar í tilefni af því að um þessar mundir er að koma á markaðinn byltingar-kennd flugustöng frá Sage. Stöngin sem hlotið hefur nafnið Sage One er nú þegar farin að sópa að sér verðlaunum en nú á dögunum var hún valin besta nýja flugustöngin á markaðnum.

Sage One er væntanleg í Veiðihornið í ágústbyrjun.

Af þessu tilefni hafa bílastæði við verslun Veiðihornsins í Síðumúla 8 verið merkt veiðistöðum úr nokkrum íslenskum laxveiðiám. Þátttakendur í veiðistaðaleik Veiðihornsins þurfa að nefna árnar sem veiðistaðirnir eru í, fylla út eyðublað í Veiðihorninu með nöfnum ánna og skila í kassa í versluninni.

Nafn heppins vinningshafa sem hefur allar árnar réttar verður dregið úr potti og hlýtur sá hinn sami að launum splunkunýja Sage One einhendu. Aukaverðlaun verða veitt fyrir bestu veiðisöguna úr hverjum hyl. Aukaverðlaunin eru Bonnand flugubox með völdum laxaflugum sem ganga vel í viðkomandi á.

104 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Page 105: Veidislod 3 tbl 2011

græjur ofl.

105

Taska í stað veiðivestis

Fyrir heiðarlöndin: Bakpoki og vesti í senn

Veiðivestin eru kannski ekki á undan-haldi, en víst er að æ fleiri veiðimenn kjósa að létta aðeins á byrðinni þegar út í ána er komið. Orvis hefur brugðist við þessari vaxandi bylgju og framleitt það sem kallast á íslensku....ja kallast hvað? Sling bag kalla þeir það á ensku og er sér hönnuð hliðar-taska sem menn geta „slöngvað“ til og frá eftir því hvað er verið að stússa við í ánni hverju sinni. Taskan er nokkurs konar hliðartaska í ól og sér-staklega hönnuð til að þvælast ekki fyrir, en rúma margt á sama tíma.

Eitt af því sem íslenskir stangaveiði-menn hafa verið að uppgötva hin allra síðustu ár, og sumir áttuðu sig á fyrir löngu, er hversu óendanlega skemmtilegt það er að elggja vel á sig til að komast í ó- eða lítt snortna veiði. Ganga á heiðar, að upptökum áa, að vötnum og fylgja sprænum sem renna í þau og úr. Slíkt útheimtir líkamlegt þol sem er á flestra færi að koma sér í (þó að sníði megi alltaf stakk eftir vexti), en einnig góðan og réttan búnað.

Þessi taska fæst í Vesturröst og er ekki dýr. Hér er slóð að myndbandi sem sýnir kosti þessarar græju og má eiginlega segja að sjón sé sögu ríkari. Þarna rúmast mörg flugubox og taumarúllur og gert er ráð fyrir öllum helstu tækjum og tólum eins og klippum og svo framvegis. Það er meira að segja hugsað fyrir því að geta þurrkað flugur milli þess að þær eru notaðar.

Í Vesturröst fæst þetta skemmtilega verkfæri sem er nýtt frá Airflo. Þetta er bæði léttur bakpoki og vesti með vasafjöld í senn. Ein stærð fyrir alla og stillanlegt á alla kanta eins og góður léttur bakpoki. Ingólfur í Vesturröst segir: „þarna er hægt að vera með allt á sér og veiða í senn. Gott þar sem þarf að ganga , t.d. við ár og vötn á heiðum. Þetta er frábær hönnun á góðu verði. Á vestishlut-anum eru tveir vasar með innbyggðu foam fyrir flugur, tveir gormar fyrir klippur og fl. Og fjöldinn allur af hólfum og vösum fyrir útbúnaðinn , hugsað fyrir öllu.“

Kynningarmyndband fyrir Orvis töskuna. Smelltu á myndina og fylgdu slóðinni til að horfa á.

VIDEO

Page 106: Veidislod 3 tbl 2011

græjur ofl.

Stærsti flugubarinn

Sýnishorn úr kokteilnum mikla

Nú í vorbyrjun var tekinn í notkun nýr flugubar í Veiðihorninu Síðumúla 8. Flugubarinn er hannaður eftir bandarískri fyrirmynd og aðlagaður því fluguúrvali sem við þekkjum og var barinn smíðaður af íslenskum hagleiksmönnum.

Öllum flugum er haganlega komið fyrir í barnum, ýmist raðað í efri hillur barsins eða komið fyrir í hólfum í skúffum. Flugurnar eru allar vel merktar og geta veiðimenn þar af leiðandi bjargað sér sjálfir við að velja flugur í veiðiferðina eða notið að-stoðar vanra veiðimanna Veiðihorns-ins sem allir hafa áralanga reynslu af fluguveiði og leiðsögn í fjölmörgum ám landsins.

Óhætt er að segja að þessi einstaki flugubar Veiðihornsins hafi slegið í gegn í sumar enda skapast oft á tíðum skemmtileg stemning þar sem veiðimenn bera saman bækur sínar og segja veiðisögur á öllum tungumálum yfir rjúkandi kaffi eða ískaldri kók. Flugubarinn sem er tæpir 10 fermetrar geymir eitt mesta úrval landsins af vönduðum, vel hnýttum og veiðnum flugum á góðu verði en stór hluti úrvalsins er einnig fáanlegur í flugubúðinni á netinu, Flugan.is. Starfsfólk Veiðihornsins býður alla fluguveiðimenn velkomna á flugubarinn fyrir næstu veiðiferð hvort heldur sem haldið skal til veiða í silungsvötnum landsins eða laxám.

106 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Fyrst dró Jói fram Bismo, flugu sem Henrik Andersen bjó til. Hún er hér í þremur litaútgáfum. Jói segir: „Þetta er í sjálfu sér ekkert annað en enn ein útgáfan af Sunray, en það er aðeins meira í þessa lagt, hún er með augum og er efnismeiri heldur en hin hefðbundna Sunray. Þetta er feiknalega öflug fluga, ég heyrði að einn morguninn í Ytri Rangá um daginn hefðu 46 laxar komið á land, hver og einn einasti á þessa flugu. Hún er sérstaklega öflug í Rangánum, en við höfum heyrt veiðisögur af henni víða um land.“

Flugubarinn í Veiðihorninu er vissulega mikið augnayndi og mikill og magnaður „kokteill“ þar á ferð. Við báðum Jóhann Þorbjörnsson, (já, hann heitir ekki Jói í Veiðihorn-inu) að velja nokkur sýnishorn sem

hæfa árstímanum, en nú er hásumar, laxagöngur byrjaðar af krafti, betra seint en aldrei, og sjóbleikjuveiðar eru að komast á skrið. Og síðan stutt í haustið þegar sjóbirtingurinn bætist í pakkann.

Page 107: Veidislod 3 tbl 2011

107

græjur ofl.

Pool Fly. „Þessi fluga hefur ekki fengist hjá okkur um hríð, Skúli Kristinsson leiðsögumaður við Rangárnar hnýtir hana mikið og notar þar. En hún er góð alls staðar. Hún er þung og á eirlegg. Hún er sérstaklega skæð í lituðu vatni og gæti því komið sterk inn þegar haustar.“

Bleik og blá/Heimasæta: „Sjó-bleikjutíminn er kominn á fullt og þessar flugur í straumflugubúningi eru vel þekktar og með allra bestu flugum sem menn kasta á sjóbleikju. Púpuútgáfurnar sem við erum með hérna eru komnar með mikla reynslu líka og eru ekki síður magnaðar.“

Dýrbítur – appelsínugulur/Rubber legs: „Dyrbíturinn er nú kominn appels-ínugulur og hann er sérstaklega magnaður þegar hann er hnýttur með gúmmílöppum. Þetta er afar góð sjóbirtingsfluga og víst er að æ fleiri þekktar straumflugur verða hnýttar með gúmmílöppunum í framtíðinni. Í Argentínu nota menn víða nánast eingöngu strímera með gúmmílöppum, þær gæða flugurnar svo miklu lífi.“

Tvívængjur: „Þessar flugur höfum við Óli verið að hanna í samvinnu síðustu misseri. Þessar fjórar eru með höfuðliti Black og Green Brahan, Skógá.is og Collie Dog. Það er komin nokkur reynsla á þær og þær veiða virkilega vel.“

Copper John og Latex systurnar: „Þetta eru með albestu vatnaflugum sem völ er á. Copper John er bara góður alls staðar, kannski sérstaklega í Hlíðarvatni og Latex systurnar eftir Birgi Arnarson eru ótrúlega magnaðar. Ég held að hann hafi vígt þær í stórbleikjunni í Köldukvísl forðum og síðan hafa þær ítrekað sannað gildi sitt bæði þar og miklu víðar.“

Page 108: Veidislod 3 tbl 2011

græjur ofl.

108 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júlí 2011

Um skotlínur, kosti þeirra og gallaSkotlínum má í raun skipta gróflega í tvo flokka. Annars vegar línur sem eru samsettar úr skothaus og rennilínu með lykkjum og hins vegar línur þar sem skothausinn er áfastur rennilínunni. Þær fyrrnefndu hafa óneitanlega þann kost að hægt er að skipta um haus á fljótlegan hátt, smella undir sökkhaus þegar svo ber undir og spara með því aukaspólur á fluguhjólin. Samsettu línurnar eru einkum vinsælar á tvíhendur en í seinni tíð eru heilu skotlínurnar orðnar vinsælli á einhendur.

Vinsældir skotlína hafa aukist mikið meðal íslenskra fluguveiðimanna síðustu árin. En skyldu skotlínur vera nýjung? Svarið við því er nei. Áratugir eru síðan veiðimenn fóru að skera niður skothausa og hnýta við nælongirni í þeim tilgangi að geta kastað lengra en með hefðbundnum flugulínum. Undirritaður minnist eldri veiðimanna sem stunduðu Sogið í „gamla daga“ og beittu heimatilbúnum skotlínum óspart til að ná vel út þar sem þeir stóru lágu.

Gallinn við heimatilbúnu skotlínurnar var helstur sá að nælongirnið sem notað var sem rennilína („running line“) var óþjált, átti til að flækjast og þegar það gerðist var úr vöndu að ráða. Þá er rétt að geta þess að í þá daga voru „línuvísindi“ ekki orðin eins þróuð og í dag. Menn prófuðu sig áfram með línuþyngdir, höfðu hausinn langan í fyrstu en klipptu hann niður, fet fyrir fet þar til passleg þyngd var fundin.

Um langt árabil hefur verið boðið upp á þá þjónustu í Veiðihorninu að vigta skothausa og skera niður í passlegar þyngdir fyrir viðskiptavini. Þetta var þó mikilvægara fyrir nokkr-um árum þegar úrval og framboð af skothausum var af skornari skammti. Línuframleiðendur á borð við RIO bjóða nú svo gott úrval af heilum og samsettum skotlínum að þess gerist vart þörf að standa í vigtun lína nema í undantekningartilfellum.

Það má segja að skotlínur hafi fyrst náð almennum vinsældum þegar línuframleiðendur fóru að fram-leiða rennilínur með mjúkum kjarna og plastkápu. Rennilínurnar eru fáanlegar í nokkrum sverleikum; þær grennstu fyrir léttari línur en sverari rennilínur henta þyngri tvíhendulínum.

En hvað gerir skotlínur svona vinsælar? Svarið við því er einfalt. Það er auðveldara að kasta með skotlínum, sér í lagi þegar kasta þarf langt. Skotlínur henta því vel byrjendum og þeim sem ekki teljast góðir kastarar.

Hvað gerir skotlínur svo frábrugðnar hefðbundnari línum? Belgur / haus skotlínunnar er styttri og þyngri en belgur / haus hefðbundinna lína. Þyngdin liggur á tiltölulega stuttum kafla línunnar. Þetta gerir það að verkum að auðveldara er að kasta skotlínum ekki síst fyrir byrjendur og óvana kastara. En eru þá einhverjir gallar við skotlínur? Svarið við því er já. Vegna eðlis skotlínunnar, þ.e. hve stuttur og sver belgurinn / hausinn er trufla þær meira og eru því síður heppilegur valkostur þegar veitt er við viðkvæmari aðstæður, t.d. í litlu vatni.

Veiðihornið hefur á boðstólum nokkrar gerðir skotlína. Vinsælustu skotlínurnar fyrir einhendur eru án efa Outbound frá Rio og HMT frá Scierra. Báðar eru þessar línur heilar, þ.e. með áfastri rennilínu („running line“). Línurnar eru þó gjörólíkar þar sem Rio Outbound hefur stuttan, sveran og þungan belg / haus líkt og ýmsar af skandinavískum skot-línum sem hafa verið hér á markaði um lengri og skemmri tíma enda framleiðir Rio þær margar hverjar. Rio framleiðir einnig HMT línuna fyrir Scierra en HMT línan er hönnuð af Íslandsvininum Henrik Mortensen. Hausinn eða belgurinn á Scierra HMT línunni er nokkuð frábrugðinn Outbound að því leitinu til að hann er talsvert lengri og grennri og leggst því betur á vatn. Scierra HMT er því heppilegri til veiða í glæru og litlu vatni, við viðkvæmar aðstæður.

Veiðimönnum skal bent á að vanda val sitt á flugulínum því vel sam-settur búnaður stangar, hjóls og línu skipti sköpum til þess að ná góðum árangri.

Svo viss erum við um ágæti Scierra HMT og Rio Outbound flugulína að við bjóðum viðskiptavinum okkar að skila þessum línum gegn endur-greiðslu uppfylli þær ekki væntingar þeirra.

Úr fróðleikshorni Veiðihornsins Ólafur Vigfússon

Page 109: Veidislod 3 tbl 2011

FermingarBrúðkaupAfmæli

Árshátíðir FundirMóttökur

veisluþjónusta

Búðakór 1 • 203 Kópavogi • Sími 820 7085 • [email protected]

Lystaukandi veislur

Page 110: Veidislod 3 tbl 2011

VEIÐISLÓÐtímarit um sportveiði og tengt efni

Útgefandi:GHJ útgáfa ehf.

Ritstjórn:Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrotJón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif

Netfang: [email protected]