Transcript
Page 1: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Ísland - Tékkland12. júní - Kl. 18:45

Ísland U21 - Makedónía U2111. júní - Kl. 19:15

Page 2: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Velkomin í nýjan netbanka

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

Nýr netbanki Landsbankans hefur verið endurhannaður

frá grunni og byggir á ítarlegum notkunarmælingum og þeim

aðgerðum sem viðskiptavinir nota mest. Kynntu þér nýjan

netbanka á landsbankinn.is/netbanki.

Page 3: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Úrslitakeppni EM A landsliða karla fer fram í Frakklandi sumarið 2016. Fyrsti áfangi almennrar miðasölu á keppnina hefst 10. júní næstkomandi og stendur til 10. júlí. Í þessum fyrsta áfanga verður 1 milljón aðgöngumiða til sölu.

Aðgöngumiðar á leiki keppninnar eingöngu seldir í gegnum netsölu á vefsíðunni www.euro2016.com og eingöngu verður hægt að kaupa miða með kreditkorti. Á meðan á keppninni sjálfri stendur verða jafnframt engir miðar seldir við leikvangana sjálfa, heldur eingöngu á vefnum. Komi til þess að kaupandi geti af einhverjum ástæðum ekki nýtt miðann sinn á hann þess kost að endurselja miðann í gegnum sérstakt endursöluvefsvæði, sem mun opna í mars/apríl 2016. Sótt er um miða í gegnum vefinn og er hægt að sækja um að hámarki 4 miða í ýmsum verðflokkum á hvern leik.

Í þeim tilfellum þar sem eftirspurn á tiltekinn leik er meiri en framboð verður efnt til happdrættis og standa þá allir umsækjendur jafnt, burtséð frá því hvaðan í heiminum umsóknin kemur og burtséð frá því hvenær á tímabilinu 10. júní til 10. júlí umsóknin var skráð.

Hægt verður að kaupa miða á staka leiki, miða á tvo leiki á sama leikvangi, eða miðaröð sem tryggir að kaupandinn geti fylgt sínu liði alla keppnina (3-7 miðar). Næsti áfangi verður svo í desember, þegar dregið hefur verið í riðla fyrir úrslitakeppnina, og þá fara 800 þúsund miðar í sölu til stuðningsmanna þeirra liða sem hafa tryggt sér sæti í úrslitakeppninni.

KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS | FOOTBALL ASSOCIATION OF ICELANDLAUGARDAL | 104 REYKJAVIK | +354 510 2900 | [email protected] | WWW.KSI.IS

FACEBOOK.COM/FOOTBALLICELAND | TWITTER @FOOTBALLICELAND | INSTAGRAM @FOOTBALLICELAND

Miðar á úrslita-keppni EM 2016

Page 4: Ísland - Tékkland 2015 UEFA
Page 5: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Nú er einn mikilvægasti leikurinn sem karlalandsliðið í knattspyrnu hefur spilað framundan. Með sigri gegn Tékkum er íslenska liðið í afar góðri stöðu með að komast á stórmót í fyrsta sinn. Lars Lagerbäck kveðst spenntur fyrir verkefninu.

„Ég segi alltaf þegar það styttist í leiki að þetta sé það skemmtilegasta við að vera þjálfari og þess vegna hlakka ég mikið til,” segir Lars Lagerbäck og ræðir svo um leikinn

„Þetta verður afar erfiður leikur. Þeir hafa staðið sig vel í fyrstu fimm leikjunum í undankeppninni og eru í efsta sæti riðilsins. Þeir eru mjög skipulagðir og við þurfum að vera á tánum til þess að ná í stigin þrjú.”

En hvað þarf að bæta frá fyrri leiknum gegn Tékklandi?„Við áttum að mörgu leyti góðan leik þegar við mættum Tékkum seinast. Við þurfum að gefa þeim minna pláss og vera áræðnir. Ef við gerum það eigum við mikið betri möguleika á sigri.”

Þá segist Lars ánægður með stöðuna á hópnum, ”Ég er mjög ánægður með hópinn. Það er mikið af leikmönnum sem hafa verið utan hóps sem eru að nálgast hópinn og það er jákvætt fyrir okkur að hafa úr mörgum leikmönnum að velja,” segir Lars og bætir því við að hann treysti leikmönnum til að halda sér í formi þar til landsliðið kemur saman.

„Margir leikmenn hafa ekki spilað fótbolta í nokkrar vikur eftir að tímabilinu með félagsliðunum lauk en þeir lofuðu mér að þeir myndu halda sér í formi með að æfa sjálfir.“

Um hinn reynslumikla Eið Smára Guðjohnsen sagði Lars þetta. ”Hann átti góðan leik gegn Kasakstan og með hans gæði og reynsluna sem hann býr yfir getur hann reynst okkur mikilvægur innan sem utan vallar.”

LARS LAGERBÄCKMIKIL TILHLÖKKUN

Page 6: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna sjálfboðaliðastarfs við úrslitakeppni EM karlalandsliða 2016, en keppnin fer fram í Frakklandi sumarið 2016. Alls munu um 6.500 sjálfboðaliðar starfa við mótið, sem fer fram í 10 borgum víðs vegar um Frakkland. Mótið er gríðarlega umfangsmikið og mun þáttur sjálfboðaliða vera stór í því að

sem best til takist og til að mótið verði sem glæsilegast.Skráning umsókna fer fram á vefsíðunni www.volunteers.euro2016.fr og er opið fyrir umsóknir til loka nóvembermánaðar. Sérstakur verndari sjálfboðaliðaverkefnisins er Christian Karembeu, fyrrverandi landsliðsmaður Frakka.

Viltu starfa við úrslita-keppni EM 2016?

Page 7: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Fylgstu með landsleiknum á Snapchat með N1 og KSÍ

Skannaðu Snapchat táknið til að gerast vinur „LANDSLEIKURINN” á Snapchat og fylgstu með undirbúningnum fyrir einn mikilvægasta landsleik Íslandssögunnar þegar Íslendingar mæta Tékkum á Laugardalsvelli.

www.n1.is facebook.com/enneinn

Hluti af sterkri liðsheild

N1 er bakhjarl KSÍ

Page 8: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Það má segja að Eiður Smári Guðjohnsen sé fulltrúi tveggja kynslóða af landsliðsmönnum. Hann byrjaði að leika með landsliðinu fyrir 20 árum síðan og er nú að leika við hlið leikmanna sem eru talsvert yngri en hann, samt gefur hann þeim ekkert eftir. Eiður er reynslumikill og þekkir sorgirnar og sigrana í fótboltanum. Hann lék með liðum eins og Chelsea og Barcelona en sem stendur er hann leikmaður Bolton á Englandi en þar lék hann á árum áður. Við settumst niður með Eiði Smára og spurðum hann um hitt og þetta.

Hvernig standi er hann í? „Standið er á mér er bara fínt. Ég hef reynt að halda mér við eins og ég hef getað eða síðan deildin kláraðist hjá okkur fyrir um mánuði síðan. Maður hefur þurft að vera samviskusamur í líkamsræktinni og svo fór ég til Bandaríkjanna og æfði þar en það var bara til að komast á fótboltaæfingar. Maður má ekki stoppa of lengi og ég held að ég geti sagt að ég hafi æft mikið og þegar ég var samningslaus þá æfði ég samt fimm daga vikunnar til að halda mér í formi. Það var komið á það stig að ég þurfti að fara að komast í fótbolta-rútínuna aftur ef ég ætlaði að halda áfram. En ég spilaði mikið af leikjum með Bolton í vetur og get ekki verið annað en sáttur með stöðu mála. Ég fékk að spila mikið og spilaði margar mínútur. Þegar ég kem til Bolton er liðið í næstneðsta sætinu og við náðum að lokum að halda sæti okkar í deildinni. Það var

ánægjulegt fyrir mig að hjálpa liðinu með það en Bolton á auðvitað að vera með stærri markmið en það. Varðandi framtíðina þá er meiri líkur en minni að ég verði áfram hjá Bolton en það er ekki frágengið.”

Nú varstu búinn að kveðja landsliðið óformlega eftir Króatíuleikina en ert svo kallaður aftur í hópinn. Kom það þér á óvart? „Það kom mér kannski ekki á óvart eftir að ég var byrjaður að spila reglulega og spila vel að vera kallaður aftur í hópinn. Á þessum tíma þegar ég hélt að þetta væri minn síðasti landsleikur þá höfðu Heimir og Lars stundum samband og spurðu hvort það væri ekki í lagi að hafa þessa dyr opnar ef hlutirnir myndu þróast þannig. Ég sagði að þetta væru auðvitað ekkert sem ég myndi loka á og svo kom þessi staða upp og ég sló bara til. Ég ákvað að taka þann vinkil að maður spilar bara fótbolta vissan hluta ævinnar og ég vildi ekki sjá eftir því að hafa ekki gefið kost á mér. Við náðum líka góðum árangri og því var þetta bara mjög skemmtilegt fyrir mig.”

Þú tilheyrir má segja tveimur kynslóðum leikmanna eftir að spila í nánast tvo áratugi. Hvað hefur breyst að þínu mati á þessum tíma? „Þróunin er í rétta átt. Hugsunarhátturinn í kringum landsliðið er orðinn faglegri og gæðin innan vallar eru meiri en þau voru en það eru að koma upp yngri strákar sem eru góðir og við

EIÐUR SMÁRI ÞAÐ LEGGJA ALLIR EITTHVAÐ TIL

Page 9: Ísland - Tékkland 2015 UEFA
Page 10: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

þurfum að halda áfram þessum stíganda. Þetta er sambland af mörgum þáttum. Það er búið að byggja þessar innanhúshallir og krakkar geta verið í fótbolta allan ársins hring og geta þannig æft og bætt sig daglega. Svo eru mun fleiri að fara í atvinnumennsku, sem þýðir að þeirra þróun verður hraðari en hér áður fyrr, hugsunarhátturinn er meira „professional” og öll umgjörðin.”

Nú að Tékkaleiknum, hvernig leggst hann í þig? „Þetta er auðvitað leikurinn sem maður hefur verið að bíða eftir, baráttan um toppsætið. Þetta hefur nú heyrst oft áður að þetta sé stærsti leikur í sögu Íslands. Ég lít á þennan leik sem mikilvægan en það er alls enginn heimsendir þó hann vinnist ekki. Það vinnst ekkert með því að taka 3 stig, sigur getur komið okkur í góða stöðu í riðlinum en það er mikið eftir. Við erum ekki komnir þangað sem við viljum vera, en það væri gott fyrir okkur að ná stigi eða stigum úr leiknum.”

Erum við að gera of miklar væntingar til okkar eftir tap í Tékklandi og vera pirraðir yfir að ná ekki betri úrslitum? „Með velgengni koma alltaf væntingar. Það er allt í lagi að vera svekktur eftir leikinn úti þegar maður horfir á að við komumst yfir í leiknum og þeir voru ekki að pressa okkur mikið. Það er engin skömm

í því að fara til Tékklands og tapa en pirringurinn kemur ef þér finnst eins og þú hefðir átt að fá eitthvað úr leiknum. Það er nánast auðveldara að sætta sig við að tapa leik 3-0 og eiga aldrei séns, en þá verður maður bara að játa að þeir voru bara betri en við. En það var ekki þannig í Tékklandi og því getur maður verið pirraður eftir þann leik. Við getum tekið það með okkur í leikinn á föstudaginn en við eigum ekkert að hugsa um við hverja við erum að spila eða slíkt. Við erum með gott lið og eigum að einbeita okkur að því sem við höfum verið að gera. Við erum að gera eitthvað rétt og eigum bara að halda þeim dampi.”

Að lokum, hversu mikilvægt væri það fyrir þig að ljúka ferlinum á lokamóti? „Það er alveg ástæða fyrir því að ég kom aftur í landsliðið. Við vitum hver markmiðin eru og við skulum halda þeim fyrir okkur. Ég er búinn að vera að spila með landsliðinu í um 20 ár með hléum vegna meiðsla. Ég held að það segi sig sjálft hversu mikil viðurkenning það yrði að komast á lokamót þó það sé ekkert lífsnauðsynlegt fyrir mig.” Og þú ætlar að leggja þitt af mörkum til að gera það að veruleika. “Það leggja allir það á sig, sama þó það sé ég, þeir sem mæta á völlinn að styðja okkur og allir sem eru í kringum íslenska landsliðið. Það leggja allir eitthvað til.”

Page 11: Ísland - Tékkland 2015 UEFA
Page 12: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Markmenn13 Gunnleifur Gunnleifsson 1975 | 2000-2015 | 28 | Breiðablik

1 Hannes Þór Halldórsson 1984 | 2011-2015 | 26 | Sandnes Ulf

12 Ögmundur Kristinsson1989 | 2015 | 4 | Randers FC

Varnarmenn 2 Birkir Már Sævarsson1984 | 2007-2015 | 47 | 0 | Hammerby IF

6 Ragnar Sigurðsson 1986 | 2007-2015 | 44 | 1 | FK Krosnodar

14 Kári Árnason 1982 | 2005-2015 | 40 | 2 | Rotherham United

23 Ari Freyr Skúlason 1987 | 2009-2015 | 28 | 0 | OB

3 Hallgrímur Jónasson 1986 | 2008-2015 | 14 | 3 | OB

5 Sölvi Geir Ottesen1984 | 2005-2015 | 26 | 0 | Jiangsu Guoxin-S.

18 Theodór Elmar Bjarnason1989 | 2005-2015 | 19 | 0 | Randers FC

4 Kristinn Jónsson1990 | 2009-2015 | 4 | 0 | Breiðablik

Miðjumenn 20 Emil Hallfreðsson 1984 | 2007-2015 | 48 | 1 | Hellas Verona

17 Aron Einar Gunnarsson 1989 | 2008-2015 | 50 | 1 | Cardiff City FC

Leikmenn Íslands8 Birkir Bjarnason 1988 | 2010-2015 | 37 | 6 | Pescara

19 Rúrik Gíslason 1988 | 2009-2015 | 36 | 3 | FC København

10 Gylfi Þór Sigurðsson 1989 | 2010-2015 | 29 | 9 | Swansea City FC

7 Jóhann Berg Guðmundsson1990 | 2008-2015 | 36 | 5 | Charlton

16 Rúnar Már Sigurjónsson1990 | 2012-2015 | 4 | 1 | GIF Sundsvall

22 Eiður Smári Guðjohnsen1978 | 1996 - 2015 | 79 | 25 | Bolton

Sóknarmenn 9 Kolbeinn Sigþórsson 1990 | 2010-2015 | 28 | 16 | Ajax FC

21 Viðar Örn Kjartansson1990 | 2015 | 4 | 0| Jiangsu Guoxin-S.

15 Jón Daði Böðvarsson1993 | 2012-2015 | 12 | 1 | Viking FK

11 Alfreð Finnbogason1989 | 2010 - 2015 | 25 | 5 | Real Sociedad

Liðsstjórn Lars Lagerbäck ÞjálfariHeimir Hallgrímsson ÞjálfariGuðmundur Hreiðarsson MarkvarðaþjálfariSveinbjörn Brandsson LæknirFriðrik Ellert Jónsson SjúkraþjálfariStefán Stefánsson SjúkraþjálfariÓðinn Svansson NuddariSigurður Sv. Þórðarson BúningastjóriÓmar Smárason FjölmiðlafulltrúiGunnar Gylfason StarfsmaðurDagur Dagbjartsson Leikgreining

*Fæðingarár | Ár með landsliði | Leikir með landsliði | Mörk skoruð | Félag

Óvænt úrslit eða algjörlega fyrirsjáanleg? Tippaðu!

Stoltur styrktaraðili KSÍ

Page 13: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Óvænt úrslit eða algjörlega fyrirsjáanleg? Tippaðu!

Stoltur styrktaraðili KSÍ

Page 14: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

TékklandLeikmennMarkmenn: Félag:Petr Cech Chelsea Tomas Grigar Teplice Ales Hruska Boleslav Tomas Vaclik Basilej

Varnarmenn: Theodor Gebre Selassien Werder Bremen Pavel Kaderabek Sparta Prag Michal Kadlec Fenerbahce Jan Kovaric Viktoria Plzen Marek Suchy Basel David Limbersky Viktoria Plzen Vaclav Prochazka Viktoria Plzen Tomas Sivok Besiktas

Miðjumenn: Vladimir Darida Freiburg Brek Dockal Sparta Prag Vaclav Kadlec Sparta Prag Daniel Kolar Viktoria Plzen Jan Kopic Baumit Jablonec Ladislav Krejci Sparta Prag Jaroslav Plasil Bordeaux Tomas Rosicky Arsenal Lukas Vacha Sparta Prag

Framherjar: Milan Skoda Slavia Prag Tomáš Necid Zwolle

Þjálfari: Pavel Vrba

Page 15: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Borgun býður fjölbreyttar lausnir og góða þjónustu fyrir þá sem vilja

taka við öllum greiðslukortum gegnum vefsvæði eða app.

Kannaðu málið á borgun.is.

Ertu með vefverslun?

Borgun er stoltur styrktaraðili íslenska landsliðsins.

Page 16: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

U21Ísland - Makedónía11. júní - Kl. 19:15 - Vodafonevelli

Page 17: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Leikmenn Íslands U21Markmann Fæddur Leikir Félag

Rúnar Alex Rúnarsson 180295 11 N Sjælland

Frederik August Albrecht Schram 190195 2 V Sjælland

Fannar Hafsteinsson 300695 KA

Aðrir leikmenn

Orri Sigurður Ómarsson 180295 11 Valur

Aron Elís Þrándarson 101194 4 Álasund

Oliver Sigurjónsson 030395 2 Breiðablik

Elías Már Ómarsson 180195 2 Valerenga

Þorri Geir Rúnarsson 240495 2 Stjarnan

Adam Örn Arnarsson 270895 1 N Sjælland

Böðvar Böðvarsson 090495 1 FH

Daníel Leó Grétarsson 021095 1 Álasund

Heiðar Ægisson 100895 1 Stjarnan

Höskuldur Gunnlaugsson 260994 1 Breiðablik

Kristján Flóki Finnbogason 120195 1 FH

Aron Rúnarsson Heiðdal 300195 Stjarnan

Davíð Örn Atlason 180894 Víkingur

Ívar Örn Jónsson 020294 Víkingur

Sindri Björnsson 290395 Leiknir

Viktor Jónsson 230694 Þróttur R

Ævar Ingi Jóhannesson 310195 KA

Liðsstjórn Hlutverk

Eyjólfur Sverrisson Þjálfari

Tómas Ingi Tómasson Aðst. þjálfari

Hjalti Kristjánsson Læknir

Róbert Magnússon Sjúkraþjálfari

Þórður Þórðarsson Markmannsþjálfari

Lúðvík Jónsson Búningastjóri

Guðlaugur Kristinn Gunnarsson Liðsstjóri

Vignir Þormóðsson Aðalfararstjóri

Gísli Gíslason Fararstjóri

Page 18: Ísland - Tékkland 2015 UEFA
Page 19: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Fimmtudaginn 11. júní mun íslenska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri hefja undankeppnina fyrir EM 2017 þegar liðið mætir Makedóníu. Auk Makedóníu er íslenska liðið í riðli með Frakklandi, Norður-Írlandi, Skotlandi og Úkraínu. Eyjólfur Sverrisson mun mun sem fyrr þjálfa liðið.

„Þetta leggst bara vel í mig enda spennandi tímar framundan. Við erum að byrja með alveg nýtt lið og það verður gaman að sjá hvernig útkoman verður,” segir Eyjólfur Sverrisson og bætir við að hann sé ánægður með hópinn.

„Mér líst bara vel á hópinn, þarna er fullt af góðum strákum. Við þurfum að hitta á réttu blönduna til að ná árangri og búa til framtíðar leikmenn fyrir A-landsliðið.”

Langflestir leikmenn hópsins spila enn á Íslandi en það segir Eyjólfur að sé bara af hinu góða. „Það er bara jákvætt. Við ætlum að gera þá ennþá betri og búa til atvinnumenn úr þeim. Það gerum við með því að gefa þeim reynslu í alþjóðlegum fótbolta.”Þá var komið að hinni klassísku spurningu, að spyrja út í möguleika liðsins. „Það er erfitt að segja. Við sjáum það betur þegar keppnin er farin af stað. Væntingarnar voru ekki miklar seinast en samt vorum við nálægt því að fara áfram. Ég hef trú á að við getum gert góða hluti.”

SPENNANDI TÍMAR

Page 20: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Lokamót Evrópukeppni U17 kvenna verður haldið á Íslandi í sumar. Mótið er stórt og viðamikið enda öllu tjaldað til þegar um lokamót er að ræða.

Keppnin fer fram daganna 22. júní - 4. júli og er leikið á völlum í Reykjavík, Kópavogi, Grindavík og Akranesi.

Fyrirfram var vitað að Ísland, sem gestgjafi, myndi leika í A-riðli. Auk Ísland drógust í riðilinn þjóðirnar tvær sem léku til úrslita í síðustu keppni, Þjóðverjar og Spánverjar, en þessar þjóðir hafa einmitt hampað Evrópumeistaratitli í aldursflokknum í 6 af þeim 7 skiptum sem keppnin hefur verið haldin. Fjórða þjóðin í

riðlinum er svo önnur knattspyrnuþjóð með mikla sögu, Englendingar. Það er því ljóst að verðugt verkefni bíður stelpnanna okkar. Fyrsti leikur Íslands er gegn ríkjandi meisturum Þjóðverja á Grindavíkurvelli.

Í B-riðli eru Írland, Frakkland, Sviss og Noregur. Frakkar hafa þrisvar sinnum leikið til úrslita í aldursflokknum og eru líklega sterkasta liðið í B-riðli.

Á mótinu leika helstu vonarstjörnur kvennafótboltans í Evrópu og er því um að gera að mæta á leiki mótsins og sjá stjörnur framtíðarinnnar etja kappi.

Frítt er á alla leiki mótsins.

Lokamót U17 kvenna á Íslandi

Page 21: Ísland - Tékkland 2015 UEFA
Page 22: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum er aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Tyrklands sem hefst kl. 18:45.

Það er gott að vera á góðum tíma til að forðast óþarfa biðraðir. Þá er minnt á að strætisvagnar stoppa víðsvegar í kringum Laugardalinn og geta verið afar góður kostur fyrir marga vallargesti.Mörg hlið verða opin á leiknum til að koma fótboltaþyrstum stuðningsmönnum sem fyrst í sætin sín og biðjum við alla að dreifa álaginu á hliðin.

LaugardalurLaugardalur-enginn skortur á bílastæðum!

SUNDLAUGAVEGUR

RE

YK

JA

VE

GU

R

LA

UG

AR

ÁS

VE

GU

R

SU

ÐU

RLA

ND

SB

RAU

TEN

GJA

VEG

UR

Skautahöll, Grasagarður173 stæði

World Class110 stæði

Laugardalsvöllur530 stæði

Íþróttasvæði Þróttar130 stæði

ÍSÍ50 stæði

Á bak við Laugardalshöll160 stæði

Austan við Laugardalshöll115 stæði

Ofan við Fjölskyldu- og húsdýragarð100 stæði

TBR húsið80 stæði

Laugardalshöll100 stæði

Í Laugardal, einu allra vinsælasta Íþrótta- og útivistarsvæði landsins

er að finna yfir 1800 bílastæði.

Þó svo að ekki séu laus stæði næst þeim stað í dalnum sem þú ætlar á,

bendum við á að víða í Laugardal er að finna næg bílastæði.

Sýnum sjálfsagða tillitssemiog leggjum aldrei á gangstígum.

Laugardalslaug190 stæði

Bílastæðamál við Laugardalsvöll

Page 23: Ísland - Tékkland 2015 UEFA
Page 24: Ísland - Tékkland 2015 UEFA
Page 25: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Hvar er sætið þitt?

Page 26: Ísland - Tékkland 2015 UEFA

Vertu með okkur

#FljugduVel

Alltaf innifalið: Frjálst sætaval við bókun | Afþreyingarkerfi 350 klst. | 10 kg handfarangur

Meira pláss milli sæta | Ein ferðataska allt að 23 kg til Evrópu og tvær töskur til N-Ameríku

Matur fyrir börnin | Óáfengir drykkir og dagblöð I Vildarpunktar | Flug- og flugvallarskattar

FARANGUR INNIFALINN

MEÐ ICELANDAIR


Recommended