50
Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig Ásgeir Jónsson

Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

  • Upload
    oma

  • View
    121

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig. Ásgeir Jónsson. Þýðing sögunnar. Fjármálaeignir sem skipta um hendur á fjármálamörkuðum eru yfirleitt fremur einsleitar á milli landa. Fjármálakerfi eru aftur á móti misleit á milli landa – hér skipta hliðarskilyrði sögunnar máli. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Þróun bankaviðskipta á Íslandi7 stig

Ásgeir Jónsson

Page 2: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Þýðing sögunnar• Fjármálaeignir sem skipta um hendur á fjármálamörkuðum eru

yfirleitt fremur einsleitar á milli landa. • Fjármálakerfi eru aftur á móti misleit á milli landa – hér skipta

hliðarskilyrði sögunnar máli.• Fjármálakerfi hvers lands er afkvæmi fjármálasögu þess og

mótað í fyrri fjármálakrísum enda til mismunandi stofnanalausnir á sömu vandamálum.

• Bandarískt fjármálakerfi er til að mynda „market based“ þar sem fyrirtæki fjármagna sig með útgáfum á hlutabréfamarkaði. – Samtaldar eignir bandarískra banka nema aðeins um 113%

landsframleiðslu BNA• Evrópskt bankakerfi er „bank based“ þar sem bankar hafa

gefið út skuldabréf og síðan lánað fyrirtækjum.– Meðalstærð evrópskra bankakerfa er um 350% af landsframleiðslu

heimaríkis.

Page 3: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Þróun bankakerfa• Flest bankakerfi hafa þó fylgt ákveðnu þróunarferli sem lengst

er komið í Bretlandi – enda er London fjármálahöfuðborg heimsins. Sjá Dow (1999) eða Chick (1986).

• Við hvert stig sem bankakerfið bætir við sig, eykst hagkvæmni bankaviðskipta, nýting fjármuna og framleiðni vex í efnahagslífinu.

• Þróunarferlið er án efa ekki á enda – fjármálabólan og afleiðingar hennar munu hafa breyta banka- og fjármálastarfsemi í grundvallaratriðum á næstu misserum.

Page 4: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Sjö stig í þróun bankarekstrar

1. Bein fjármálaleg milliganga (Pure financial intermediation)

2. Bankainnistæður notaðar sem gjaldmiðill

3. Tilkoma millibankamarkaðar

4. Tilkoma lánveitanda til þrautarvara

5. Skulda- og fjárstýring (Liability management)

6. Millilandavæðing – heimsvæðing (Internationalization – globalization)

7. Skuldavafningar (securitisation)

Page 5: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 1: Bein fjármálaleg milliganga• Bankar eða einstakir auðmenn lána út sinn eigin

sparnað en innlánsstofnanir eru ekki virkar. • Einhverjir slíkir lánveitendur eru til staðar í nær öllum

samfélögum, óháð því hversu þróað hagkerfið er. • Borgun í fríðu eða myntum úr góðmálmum.• Enginn bankamargfaldari M0=M1=M2=M3. • Lánveitingar takmarkaðar við slegna eða prentaða

peningaútgáfu ríkisins eða framboð á góðmálmum• Sparnaður verður að koma á undan fjárfestingu.• Lánveitingar yfirleitt fremur smáar í sniðum og til

skamms tíma, til þess að tryggja áhættudreifingu.

Page 6: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 1 á Íslandi• Lengi tíðkast að efnaðir bændur láni út fjármagn. Verslanir

stunduðu einnig innskriftarviðskipti.• Yfirleitt einn eða fleiri „heimabankar” í hverri sveit sem sáu

um smá lán til neyslujöfnunar eða til kaupa á jörðum eða bústofni

• Þessir „heimabankar” uxu þó ekki til þess að verða formlegar innlánsstofnanir né fóru verslanir út í bankarekstur.

• Reikningsverslun, bjöguð viðskiptakjör og frumstæð fjármálumgjörð ollu viðvarandi skorti á opinberum gjaldmiðli sem takmarkaði útlán heimabankanna (þar sem enginn peningamargfaldari var til staðar).

• Danir voru einnig áhugalausir um stofnun íslenskra fjármálastofnana, en voru tortryggnir ef aðrar þjóðir hugðust hasla sér hér völl.

• Frumstætt fjármálakerfi og bið eftir stigi 2 í fjármagns-viðskiptum hefur án efa tafið framþróun landsins um áratugi.

Page 7: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Brúnastaðabankinn

• Jóhann Pétursson hreppstjóri á Brúnastöðum í Skagafirði var umsvifamikill bankamaður á árunum 1870-1924.

• Hann lánaði til bænda, kaupmanna og embættismanna með 5-6% vöxtum til þess að brúa bilið á milli neyslu og tekna.

• Á sama tíma voru innlánsvextir í Landsbankans 4%.• Jóhann lánaði raunar allt á milli himins á himins jarðar – hvort sem um

var að ræða sauðatað, hey, korn, tóbak eða brennivín.

Við dauða Jóhanns árið 1926 rann höfuðstóll Brúnastaðabanka í Sparisjóð Sauðárkróks með stofnun styrktarsjóða sem áttu m.a. að styðja við fátæk börn í Lýtingsstaðahreppi. (Sparisjóður Sauðárkróks rann inn í Búnaðarbankann um 1970)

Page 8: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 2: Bankainnistæður sem gjaldmiðill

• Innlánsstofnanir búa til seljanleika Breyta skammtímainnistæðum í langatímalán Breyta mörgum smáum innstæðum í stór lán. Lækkun viðskiptakostnaðar einstaklinga og fyrirtækja

• Stærðarhagkvæmni í fjárhagslegri milligöngu upplýsingaöflun, eftirfylgni, áhættudreifing.

• Peningamargfaldarinn virkur – fjármálakerfið getur vaxið með aukningu bankainnistæðna.

• Bankakerfið tengir saman þá sem spara og þá sem fjárfesta og tengir efnahagslífið saman í einu greiðsluneti.

• Forsenda fyrir nútímavæðingu hagkerfisins.

Page 9: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 2 á Íslandi

• Þrátt fyrir stofnun Landsbankans 1887 og sparisjóðir skytu upp kollinum (24 sparisjóðir voru starfandi árið 1900) var lítil hreyfing á bankaviðskiptum fyrir stofnun Íslandsbanka 1904.

• Fyrir þann tíma stóð Landsbankinn með eina starfsstöð í Reykjavík með takmarkanir á útlánum og verulega áhættufælni.

• Fjármálakerfið svæðisbundið með heimabönkum og sparisjóðum sem stóðu stakir, höfðu litla burði og tengdust lítt.

• Landsbankinn stundaði mjög takmarkaða viðskiptabankastarfsemi en endurlánaði þó sparisjóðunum sem þeir nýttu til neytendalána

• Árið 1900 eru veltiinnlán (ótímatengdar bankainnistæður) aðeins um 29% af seðlum og mynt í umferð.

• Það þýðir að greiðsluþjónusta var að litlu leyti í höndum innlánsstofnana og galdur nútíma bankaviðskipta var ekki enn farinn að verka í íslensku hagkerfi.

Page 10: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Tilkoma Íslandsbanka 1904

• Íslensk fjármálasaga tók stökk með stofnun Íslandsbanka árið 1904.• Íslandsbanki var hlutafélag í erlendri eigu sem var skráð á Börsen í

Kaupmannahöfn.• Bankinn hafði það sem markmið að stunda viðskiptabankastarfsemi

en fékk einnig réttindi til þess að gefa út peningaseðla fyrir Ísland sem voru gulltryggðir.

• Bankastjórarnir voru þrír: 1 var danskur bankamaður en hinir 2 Íslendingar – 1 frá Valtýingum og 1 frá Heimastjórnarmönnum.

• Stjórnin var aftur á móti skipuð af Alþingi og forsætisráðherra var ávallt stjórnarformaður bankans.

• Íslandsbanki opnaði brátt útibú á Ísafirði, Akureyri, Vestmannaeyjum og Seyðisfirði.

• Með Íslandsbanka hefst sannarlega fjármálabylting.

Page 11: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Með tilkomu Íslandsbanka verða bankainnistæður gjaldmiðillHlutfall seðla og myntar í umferð á móti M1

0%

20%

40%

60%

80%

100%

120%

18

86

18

94

19

02

19

10

19

18

19

26

19

34

19

42

19

50

19

58

19

66

19

74

19

82

19

90

19

98

Page 12: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Útlán taka einnig við sér 1904

Raunútlán á mann m.v. verðlag 1930

0

200

400

600

800

1000

1200

1886

1890

1894

1898

1902

1906

1910

1914

1918

1922

1926

1930

1934

1938

Page 13: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Vægi sparisjóða í innlánum og útlánum

Page 14: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 3: Millibankamarkaður• Eftir að viðskiptabankar hafa vaxið og myndað fjármagnskerfi

er næsta skref að mynda millibankamarkað um heildsölu á fjármagni

• Bankarnir sjá sameiginlegan hag í því að lækka lausafjáráhættu hvers annars með millibankalánum.

• Peningamargfaldari stækkar sökum þess að þörfin fyrir lausafé hefur minnkað.

• Peningamargfaldarinn hefur hraðari virkni• Mun meiri arðsemi bankakerfisins og minni vaxtamunur.• Heildsala með lausafé á millibankamörkuðum forsenda fyrir

sköpun seljanleika á eignamörkuðum og virka verðmyndun, t.d. á gjaldeyri.

• Virkur millibankamarkaður forsenda fyrir því að Seðlabankinn geti beitt markaðsaðgerðum til þess að hafa áhrif vaxtastigið

Page 15: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 3 á Íslandi• Millibankamarkaður komst á í frumstæðu formi árið 1980.• Fram til þess hindraði verðbólga og rentusókn ríkisins

millibankaviðskipti.• Ríkið setti á lausafjárkvaðir sem bundu fé bankanna á

neikvæðum raunvöxtum. • Engin þörf talin á verðmyndun á frjálsum fjármagnsmörkuðum.• Skortur á gagnkvæmni á milli bankanna skapaði alls kyns bjögun

í fjármagnsviðskiptum.• Nútímalegur millibankamarkaður með bæði krónur og gjaldeyri

varð til árið 1998 eftir umbætur leiddar af Seðlabanka Íslands.

Page 16: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Bankabólan 1914-1918

• Í öðrum löndum óx fjármálakerfið frá frumkvöðlum og sparisjóðum. • Á Íslandi var bankastarfsemi pólitískt project og rekstri ríkisbanka

eða samstarfsverkefni ríkis og einkaaðila líkt og með Íslandsbanka. • Tilkoma Íslandsbanka olli byltingu árið 1904 og skilaði landinu

miklum framförum á skömmum tíma. • Árið 1913 kom nýr bankastjóri til sögunnar H. Tofte. • Hann var sendur af Privatbanken, helsta viðskiptabanka og eiganda

Íslandsbanka og breytti viðskiptalíkani bankans. • Eiginfjárhlutfall lækkað, víxilútgáfa margfölduð og ennfremur voru

bónusgreiðslur auknar verulega. • Og svo þegar gullinnlausn var afnumin árið 1914 hófst gríðarleg

peningaprentun. • Þetta var uppskrift að bankabólu – efnahagsreikningur Íslandsbanka

fimmfaldaðist á milli 1913 og 1919 og hlutfall víxla af útlánum hækkaði úr 30-40% af lánabók og upp í 60-70%.

• Seðlaprentunin sjöfaldaðist og verðlag fjórfaldaðist

Page 17: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Breyting með nýjum bankastjóra 1913

0,00

0,05

0,10

0,15

0,20

0,25

0,30

0,35

0,40

0,45

0,50

190519061907190819091910191119121913191419151916191719181919192019211922192319241925192619271928

0

100

200

300

400

500

600

700

800

Eiginfjárhlutfall

Arðgreiðslur

Page 18: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Bónusgreiðslur – tengdar veltu

0

20

40

60

80

100

120

140

160

180

1905

1906

1907

1908

1909

1910

1911

1912

1913

1914

1915

1916

1917

1918

1919

1920

1921

1922

1923

1924

1925

1926

1927

1928

1929

Ágóðahluti fulltrúaráðsog framkvæmdastjórnar

Page 19: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Útlánabóla

0

10.000

20.000

30.000

40.000

50.000

60.000

70.000

80.000

90.000

100.000

1905

1906

1907

1908

1909

1910

1911

1912

1913

1914

1915

1916

1917

1918

1919

1920

1921

1922

1923

1924

1925

1926

1927

1928

1929

Víxillán

Efnahagsreikningur Íslandsbanka

Page 20: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Peningaprentun úr böndunum

-20%

-10%

0%

10%

20%

30%

40%

50%

1902

1904

1906

1908

1910

1912

1914

1916

1918

1920

1922

1924

1926

1928

1930

1932

1934

1936

1938

Árleg breyting í seðlaframboði

Page 21: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Gjaldþrot Íslandsbanka• Lendingin eftir bólu stríðsáranna var hörð – krónan féll í verði

og útlánatöp fylgdi í kjölfarið.• Stærsti sparisjóður landsins – Sparisjóður Árnessýslu – varð

gjaldþrota árið 1925 og rann inn í Landsbankann með nauðasamningum þar sem innistæðueigendur töpuðu 25% af innistæðum sínum.

• Landsbankinn var endurfjármagnaður af ríkinu og hélt því mjög á lofti að innistæður hjá honum væru með ríkisábyrgður.

• Stöðugt fjaraði undan Íslandsbanka og svo við upphaf Kreppunar miklu barst út orðrómur um útlánatöp í sjávarútvegi.

• Hlutabréf bankans hrundu í verði í Kaupmannahöfn – og brátt byrjaði bankaáhlaup.

• Raðir af fólki söfnuðust saman fyrir utan bankann til þess að taka út innistæður.

Page 22: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Gjaldþrot Íslandsbanka• Síðdegis á föstudegi þann 31. janúar 1930 lokaði Íslandsbanki

afgreiðslu sinni og lagði fram beiðni um lausafjáraðstoð og ríkisábyrgð frá Alþingi.

• Alþingi kom saman á næturfundi á sunnudagskvöldi (2. mars) og þar var aðstoð við Íslandsbanka hafnað og bankin lokaði.

• Brátt tóku að berast erlend símskeyti og frá reiðum lánadrottnum sem voru með peninga fasta í bankanum.

• Þeir höfðu allir staðið í þeirri trú að Íslandsbanki væri með ríkisábyrgð (enda forsætisráðherra stjórnarformaður.)

• Íslendingar beygðu sig og stofnuðu nýjan banka, Útvegsbankann, er yfirtók eignir og skuldir Íslandsbanka.

• Erlendum skuldabréfum var breytt í hlutafé en Íslenska ríkið fór samt með stjórn bankans.

Page 23: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 3 á Íslandi• Eftir að Íslandsbanki var tekinn til gjaldþrotaskipta árið 1930

og Útvegsbankinn stofnaður á rústum hans, var lagður grunnur að bankakerfi með þremur stórum viðskiptabönkum í ríkiseigu.

• Síðar bættust við smærri bankar á vegum einstakra atvinnugreina sem voru fremur smáir og vanmáttugir og vörðu hagsmuni þeirrar greinar sem þeim var ætlað að þjóna.

• Í þessu nýja kerfi lögðust allar framfarir niður í íslenskum fjármagnsviðskiptum í hálfa öld.

• Skortur á millibankaviðskiptum sem líklega hafa komið í veg fyrir myndun virkra eignamarkaða hérlendis og sérhæfðra fjármálafyrirtækja þar til á níunda áratug tuttugustu aldar.

• Bankarnir urðu fyrst og fremst tæki stjórnvalda í pólitískri stefnumótun fyrir einstakar atvinnugreinar og jafnvel einstök kjördæmi

Page 24: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 4: Lánveitandi til þrautarvara• Allir bankar eiga við óbrúaðan tímavanda (maturity mismatch)

að etja á milli útlána (eigna) og innlána (skulda). • Lausafjárforði bankanna er yfirleitt aðeins brot af

heildarskuldbindingum. • Bankarnir geta því ekki á neinum tíma staðið skil á skuldum

sínum sé eftir þeim kallað. • Þróað bankakerfi hlýtur að kalla eftir Seðlabanka eða

sambærilegri stofnun er tryggir innra greiðsluhæfi bankakerfisins.

• Seðlabankinn hefur það hlutverk að veita lán til þrautarvara þegar kerfisbundin lausafjárskortur skapast.

• Seðlabankinn tryggir einnig ytra greiðsluhæfi með gjaldeyrisvarasjóði og gjaldeyrisviðskiptum á reikning ríkisins.

• Áhersla á eitthvert þjóðhagslegt jafnvægi eða peningalegt akkeri, t.d. gullfót, fastgengi, verðbólgu etc.

Page 25: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Óviðbúið peningalegt sjálfstæði• Íslendingar voru alls óviðbúnir peningalegu sjálfstæðu árið 1918

enda hafði landið verið í myntbandalagi Norðurlanda frá 1875. • Seðlabanki landsins var danskur viðskiptabanki – Íslandsbanki –

sem lenti á milli vita eftir fullveldi.• Íslandsbanki sjálfur hafði ekki tekið hlutverk sitt sem seðlabanki

alvarlega heldur litið á sig sem einkabanka undir verndarvæng danska seðlabankans.

• Eftir 1918 naut Íslandsbanki hvorki stuðnings Dana né Íslendinga og veslaðist upp og dó í bankaáhlaupi 1930.

• Íslendingar höfðu einfaldlega ekki stofnanir til að takast á við peningalegt sjálfstæði og opið efnahagslegt umhverfi.

• Stofnanalegir þverbrestir í peningamálum leiddu til þess að landið lokaði sig frá alþjóðamörkuðum árið 1931

Page 26: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Bóla - gjaldeyriskrísa

50

70

90

110

130

150

170

190

210

1914

1916

1918

1920

1922

1924

1926

1928

1930

1932

1934

1936

1938

Raungengi Íslensku krónunnar

Page 27: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Erlendar eignir Íslandsbanka – gjaldeyrisforði landsins

0

1.000

2.000

3.000

4.000

5.000

6.000

7.000

1905

1906

1907

1908

1909

1910

1911

1912

1913

1914

1915

1916

1917

1918

1919

1920

1921

1922

1923

1924

1925

1926

1927

1928

1929

Page 28: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 4 á Íslandi• Landsbankinn tók við sem Seðlabanki árið 1928 en hugsaði einnig

eins og viðskiptabanki og lét peningaprentun stjórnast af viðskiptasjónarmiðum.

• Réðu samkeppnishagsmunir því að Landsbankinn neitaði Íslandsbanka um millibankalán eða lán til þrautarvara árið 1930 en vísaði þess í stað á ríkissjóð?

• Peningaprentun Landsbankans skapaði stað víxlverkun á milli peningaprentunar, útþenslu í ríkisfjármálum, vaxtar í eftirspurn og síðan viðskiptahalla er leiddu til gjaldeyrisvandræða.

• ...sem síðan leiddu til tímabundinna aðgerða – s.s. fjármagnshafta. • Á eftir fylgdu innflutningshöft sem reyrðust þéttar og þéttar að

íslensku efnahagslífi með hverju árinu sem leið, í því augnmiði að spara gjaldeyri.

• Við lok seinni heimsstyrjaldar var Ísland ein ríkasta þjóð Evrópu en gat þó ekki flutt inn í ávexti nema aðeins fyrir jólin!

Page 29: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Orsakir erfiðleikanna

• Benjamín J. Eiríksson benti á það árið 1938 að orsakir erfiðleikanna í atvinnu og gjaldeyrismálum á kreppuárunum væri að leita til áreksturs í starfsemi Landsbankans sem Seðlabanka og sem viðskiptabanka.

• Lánsfjárþensla Landsbankans kom fram eins og peningaprentun er var í andstöðu við fastgengismarkmið ríkisstjórnar og leiddi til þráláts viðskiptahalla og gjaldeyrisskorts.

• Landsbankinn reyndi að veikum mætti að tryggja greiðsluhæfi landsins með gjaldeyrisvarasjóði, en bað um gjaldeyrishöft í upphafi kreppunnar til þess að ná því markmiði. Það var upphaf haftakerfisins.

• Skortur á Seðlabanka hefur án efa framlengt haftakerfið um 10-20 ár.

Page 30: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Vaxtastjórn Landsbankans

Vextir Landsbanka Íslands 1886-1970

0,00

2,00

4,00

6,00

8,00

10,00

12,00

1886

1891

1896

1901

1906

1911

1916

1921

1926

1931

1936

1941

1946

1951

1956

1961

1966

Forvextir almennra víxla

Innlánsvextir á almennum sparisjóðsbókum

Page 31: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Þegar tíminn stöðvaðist• Íslensk bankaþróun stöðvaðist árið 1930 með yfirtöku ríkisins á

bankakerfinu og fjármagnshöftum ári síðar. • Íslensk bankareynsla skildist frá öðrum þjóðum og þróuð

viðskiptabankahefð náði ekki að myndast. • Með þessu sköpuðu Íslendingar sér sérstöðu sem lokað fjármálakerfi

á forræði ríkisins sem leiddi bæði til fjármálalegrar vanþróunar á tuttugustu öld sem og ofvaxtar og hruns á þeirri tuttugustu fyrstu.

• Seðlabanki Íslands stofnaður árið 1960 og sinnti hlutverki sínu sem lánveitandi til þrautavara og sem umsjónarmaður fyrir ytra greiðsluhæfi landsins

• Seðlabankinn hóf að einhverju leyti vaxtastýringu eftir 1987 eftir að vextir innlánsstofnana voru gefnir frjálsir

• Nútímalegar markaðsaðgerðir Seðlabankans hefjast ekki fyrr en eftir tilkomu millibankamarkaðarins um og eftir 1998.

Page 32: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 5: Skulda- og fjárstýring (Liability management)

• Stig 5 hefst eftir að bankaviðskipti hafa verið gefin frjáls og bönkunum er frjálst að þróa fjölhæfða fjármálaþjónustu og nýta sér samlegðaráhrif ólíkrar fjármálaþjónustu.

• Eignahliðin verður ráðandi í starfseminni – starfsemin takmarkast ekki af innlánum. Fjárfestingar og útlán eru ákveðin og síðan fjármögnunin fundin í framhaldi, s.s. með heildsölukaupum á fjármagni, s.s. í gegnum millibankamarkaði eða skuldabréfaútboðum.

• Bankarnir færa út kvíarnar frá hefðbundinni greiðsluþjónustu og yfir í fjölhliða fjármálaþjónustu, s.s. öfluga eigna- og lausafjárstýringu fyrir aðila utan bankans.

• Samhliða þurfa bankarnir að fást við samkeppni frá öðrum tegundum fyrirtækja, s.s. tryggingafélaga, lífeyrissjóða, sérhæfðra fjármálafyrirtækja sem sækja á sömu mið og berjast hatrammlega um markaðshlutdeild.

Page 33: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 5 á Íslandi

• Íslenskt bankakerfi komst á stig fimm eftir 1998.

• Undanfari: vaxtafrelsi eftir 1985, frelsi í fjármagnsflutningum við útlönd eftir árið 1995, tilkoma nútímalegs millibankamarkaðar með krónur og gjaldeyri árið 1998 og síðan einkavæðing bankakerfisins sem átti sér stað í þrepum á árunum 1998-2003.

• Bankakerfið er nú í auknum mæli orðið vettvangur fyrir háskólamenntaða sérfræðinga á ýmsum sviðum og býður upp á mjög fjölbreytta fjármálaþjónustu bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Page 34: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Bankabyltingin 1998

Raunútlán á mann m.v. verðlag 1930

02000400060008000

1000012000140001600018000

1886

1895

1904

1913

1922

1931

1940

1949

1958

1967

1976

1985

1994

2003

Page 35: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Heildsölufjármagn kemur til skjalannaInnlánsstofnanir - hlutfall innlána af útlánum

0%

10%

20%

30%

40%

50%

60%

70%

80%

90%

100%

1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004

Landsbanki ÍslandsbankiKB banki Sparisjóðir

Page 36: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 6: Alþjóðavæðing (globalization)

• Alþjóðavæðing (globalization) byggir á því að viðkomandi banki byggir "local presence" á viðkomandi markaði og fjármagnar fjárfestingar og útlán að miklu leyti með staðbundnum hætti.

• Þannig er dregið úr þeirri áhættu sem fylgir greiðsluflæði á milli landa (transfer risk) en þess í stað eykst þjóðríkisáhætta (country risk).

• Þetta er m.a. ein afleiðing af þeirri samþjöppun sem hefur átt sér stað í bankarekstri í heiminum á síðari árum, en með þessu hætti er bæði hægt að nýta stærðar- og breiddarhagkvæmni (economies of scale and scope) en samt sem áður byggja á staðbundnum upplýsingum og framleiðsluþáttum.

Page 37: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 6: Milliþjóða- og alþjóðavæðing

• Alþjóðlegum bankaviðskiptum er yfirleitt skipt í tvennt. (Sjá McCauley, Ruud og Woolridge (2002))

• Milliþjóðavæðingu (internationalization)Bankar fjármagna sig í útlöndum og lána út á heimamarkaði

– eða öfugt.

• Alþjóðavæðingu (globalization)Banki með höfuðstöðvar í einu landi fjármagnar sig

erlendis og lánar einnig út erlendis. Ennfremur, algengt að bankar byggi "local presence" á heimamörkuðum annarra landa.

• Alþjóðleg bankakaviðskipti hófst með milliþjóðavæðingu upp úr 1970– með sérstakri áherslu á eurobond markaðina - en hafa snúist yfir í alþjóðavæðingu eftir 1990.

Page 38: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 6: Af hverju alþjóðavæðing?

• Alþjóðavæðing fjármálaviðskipta byggði á þeirri skoðun að virðisauki í bankarekstri í framtíðinni verði til hjá stærstu aðilunum sem eru ráðandi á hverju sviði.

• Hægt er að byggja upp stóran efnahagsreikning og ráða sérhæft menntaðan vinnukraft í höfuðstöðvunum til þess að bjóða bæði sérhæfða og fjölbreytta bankaþjónustu.

• Á sama tíma er lögð áhersla á að nýta sér svæðisbundnar upplýsingar og mannauð – sem bankaviðskipti hljóta ávallt að byggja á.

• Þessi þróun hefur ekki látið neitt frjálst bankakerfi eftir ósnortið. Annað hvort hafa heimabankarnir farið í útrás eða innrás hefur verið gerð af erlendum bönkum.

• Á stærri mörkuðum hefur vitaskuld hvoru tveggja gerst en á þeim smærri hefur borið mun meira á innrás erlendra banka – í mörgum löndum A- Evrópu hefur innlenda bankakerfið verið tekið yfir af erlendum aðilum.

Page 39: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Fjármálaútrásin hófst þegar Ísland fékk Aaa

Lánshæfi Íslands samkvæmt Moody's

1989 1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009

A2

A1

Aa3

Aaa

Aa1

A1

Baa3

Baa1

Page 40: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Íslensk millilandavæðing hófst eftir 1995

Erlend endurlán sem hlutfall af innlendum útlánum bankakerfisins

0%

5%

10%

15%

20%

25%

30%

35%

40%

45%

sep.

93

sep.

94

sep.

95

sep.

96

sep.

97

sep.

98

sep.

99

sep.

00

sep.

01

sep.

02

sep.

03

sep.

04

sep.

05

Page 41: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Útrásin virtist “virtous cycle”

Bankaeignir – sem hlutfall af landsframleiðslu Íslands

Moody’s Foreign LT bank deposits rating of Kaupthing and its predecessor

Page 42: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

26.663

16.329

11.586 11.365

9.148

4.970

12.811

0

5.000

10.000

15.000

20.000

25.000

30.000

Nordea Bank Danske Bank DnB NOR SHB SEB Swedbank Kaupthing Bank

Íslensku bankarnir voru stórir miðað við Ísland en litlir miðað við erlenda banka.

Stærstu bankar Norðurlanda eftir virði hlutafjár – 31 mars 2008

Fjárhæðir í EURm

Page 43: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Íslensku bankarnir voru með heildsölufjármögnun

40%

40%

41%

42%

46%

55%

58%

63%

70%

70%

80%

82%

85%

109%

112%

139%

139%

143%

SHB¹

Swedbank

Morgan Stanley

Kaupthing

Danske Bank

DNB Nor

Nordea

Santander

SEB

Landsbanki

Anglo Irish Bank

RBS

Barclays

Merrill Lynch

HSBC

Citigroup

Credit Suisse

J P Morgan

Source: Company data¹ Net interest income / Average assets

Deposit to loan ratio for 2007 Cost income ratio in 2006

60%

60%

59%

59%

59%

59%

58%

56%

56%

56%

56%

54%

54%

53%

53%

52%

52%

52%

51%

46%

45%

45%

44%

42%

39%

38%

Barclays

J yske Bank

San Paolo

Sabadell

Unicredit

KBC Bank

Santander

UBI Banca

Raiffeisenb.

Nordea

OP Bank

DnB Nor

Danske Bank

Sampo Group

Dexia

Caja Madrid

Swedbank

Lloyds TSB

HSBC

BBVA

RBS

HBOS

Glitnir

SHB

Kaupthing

Banco Popular

Page 44: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Íslenska bankahrunið

• Íslendingar byggðu stórt alþjóðlegt bankakerfi á smæsta gjaldmiðli heims.

• Þegar fjármálakreppan skall á 2007 hættu utanaðkomandi aðilar að líta á íslenska bankakerfið sem alþjóðlegt heldur risastórt íslenskt fjármálakerfi.

• Allt í einu rann upp fyrir mönnum að íslensku bankarnir höfðu engan trúverðugan lánveitanda til þrautarvara sökum stærðar sinnar.

• Seðlabanki Íslands getur líka aðeins prentað krónur en bankarnir þurftu evrur og pund.

• Þegar ljóst var að hinir stóru alþjóðlegu seðlabankar myndu ekki veita lausafjáraðstoð var draumurinn úti og bankarnir féllu.

• Ísland lenti í tvíburakreppu – gjaldeyris- og bankakrísu.

Page 45: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Fjármagnið leitar til Íslands

Viðskiptajöfnuður og fjármagnsjöfnuður, % of GDP

-80%

-60%

-40%

-20%

0%

20%

40%

60%

80%

1978 1981 1984 1987 1990 1993 1996 1999 2002 2005 2008 2011

Forecast

Capital inflows

Current Account Deficits

Page 46: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Gjaldeyrisbóla

Page 47: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Gjaldeyrisbóla

Page 48: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 7: Skuldavafningar (securitisation)• Þeir vaxtamöguleikar sem kynntir voru til sögunnar í fimmta stigi hafa

verið nýttir til fullnustu og bankarnir þurfa jafnvel að fást við timburmenn vegna hraðrar útþenslu, s.s. útlánatöp.

• Bönkunum er nauðsyn að auka markaðshæfi eigna sinna með sk. skuldavafningum (e. securitization) þar sem lánum er vafið um í markaðshæf skuldabréf.

• Aðalávinningurinn felst í minni áhættu vegna seljanleika auk þess sem t.d. hægt er að flytja hægt að flytja vaxtaáhættu af bönkunum yfir á lífeyrissjóði – einnig möguleiki á því að auka gírun

• Í þessum nýja bankaheimi eru það reglur um eigið fé (CAD) sem eru notaðar til þess að hafa hemil á útlánum þar sem lausafé er ekki lengur takmarkandi þáttur.

• Samhliða eykst starfsemi utan efnahagsreiknings (off balance sheet activity), s.s. með sölu afleiða, þóknunum eða sérhæfðri ráðgjöf sems skapar ráðgjöf án þess binda eigið fé bankans.

• Athugið að í Evrópu komu skuldavafningar á undan alþjóðavæðingu.

Page 49: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Stig 7 á Íslandi• Skuldavafningar höfðu ekki náð að ryðja sér til rúms

hérlendis þegar undirmálslánakrísan kippti fótunum undan þessari starfsemi á erlendum vetvangi.

• Bankarnir þrír hafa því ekki tapað neinum fjárhæðum á slíkum vafningum!

• Hins vegar var stór hluti af skuldabréfaútgáfu bankanna frá 2006 selt inn í skuldabréfavafninga í BNA.

• Skuldahliðin er aftur orðin ráðandi í bankarekstri – fjármögnunin takmarkar umfang eignahliðarinnar.

Page 50: Þróun bankaviðskipta á Íslandi 7 stig

Hvar er íslenska bankakerfið nú?

• Aftur til fortíðar??????