6
Grundarfjörður Ljósmyndir og fróðleikur Samantekt Eiríkur Grímsson

Grundarfjörður

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Myndir og fróðleikur

Citation preview

Grundarfjörður

Ljósmyndir og fróðleikur

Samantekt Eiríkur Grímsson

Grundarfjörður er bær á norðanverðu Snæfellsnesi á Íslandi, í miðjum firði umkringdur fjöllum, en

vestanmegin við hann liggur Kirkjufell. Bærinn er á milli Stykkishólms og Ólafsvíkur.

Helstu atvinnuvegir í Grundarfirði eru sjómennska og fiskvinnsla.

Skipaumferð hefur aukist til muna á Grundarfirði, enda þykja Grundarfjarðarhöfn og fjörðurinn sjálfur

með eindæmum skjólgóð. Viðlegukantur norðurhafnarinnar var stækkaður árið 2002.

Íbúar í Grundarfirði eru um 900.

Grundarfjörður hefur verið mikilvægur verslunarstaður í margar aldir, og er það bæði því að þakka að

bærinn býr yfir góðri höfn sem og legu hans mitt á Snæfellsnesinu. Elstu heimildir um verslun á

Grundarfirði eru frá landnámsöld þegar skip komu í Salteyrarós (sem að öllum líkindum er þar sem nú

á tímum heitir Hálsvaðall vestur við Kirkjufell). Á þessu svæði er margar fornminjar að finna, sem

gefur til kynna mikil umsvif á víkingaöld. Grundarfjarðarkaupstaður var forn kaupstaður sem stóð á

Grundarkampi við botn fjarðarins og hafa þar fundist rústir frá ýmsum tímum.

Verslun þar jókst verulega á 15. öld og eftir einokunarverslunina óx Grundarfirði fiskur um hrygg og

var verslunarstaðurinn löggiltur sem einn af sex fyrstu kaupstöðum landsins með lagasetningu árið

1786. Þá var Grundarfjarðarkaupstaður gerður að höfuðstað Vesturamtsins og átti að vera

miðpunktur verslunar og þjónustu í amtinu. Þessi lög voru einkennileg vegna þess að ekki mátti

stunda verslun í vesturamti nema hafa borgararéttindi í Grundarfirði. Fyrsti skipulagsuppdráttur á

Íslandi og líklega sá eini hérlendis byggður með borgarskipulagi er af Grundarfjarðarkaupstað. Finna

má merki um þessa byggð á Grundarkampi.

Kirkjufell

Horft yfir höfnina í Grundarfirði. Kirkjufell í baksýn

Höfnin í Grundarfriði

Kirkjan í Grundarfirði

Kaffi 59

Leikskólinn

Götumynd

Verslanir

Horft til Grundarfjarðar