Upload
sigurdur-fjalar-jonsson
View
228
Download
6
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Hugtök í verslun og þjónustu
Citation preview
STÆRÐFRÆÐI
hugtakaskilningur
Nafn: ___________________________________
sfjalar | www.sfjalar.net
Jónas fer í Kringluna til þess að kaupa sér nýjar buxur. Þegar hann kemur þangað sér
hann að verslunin þar sem hann ætlar að kaupa sér buxurnar er með útsölu. Hvað
þýðir það fyrir Jónas?
Buxurnar eru líklega ódýrari
Buxurnar eru líklega dýrari
Buxurnar kosta líklega sama og áður
Ásdís er að horfa á sjónvarpið og sér auglýsingu frá uppáhalds fataversluninni sinni. Í
auglýsingunni er sagt að þar sér algjört verðhrun. Hvað merkir það?
Vörurnar í búðinni eru ódýrari
Vörurnar í búðinni eru dýrari
Vörurnar í búðinni kosta það sama og venjulega
Gunnar les í Morgunblaðinu að Hreindýrakjöt sé á tilboðsverði í Bónus. Hvað merkir
það?
Hreindýrakjöt er ódýrara en venjulega í Bónus
Hreindýrakjöt er dýrara en venjulega í Bónus
Hreindýrakjöt kostar það sama og venjulega í Bónus
sfjalar | www.sfjalar.net
Þegar Atli fór í tölvuverslun til þess að kaupa sér disklinga sá hann að utan á glugga
verslunarinnar stóð „50% afsláttur á öllum vörum”. Hvað merkir það?
Vörurnar eru ódýrari en venjulega
Vörurnar eru dýrari en venjulega
Vörurnar kosta það sama og áður
Hafsteinn var mikill áhugamaður um golfíþróttina og eitt skipti sem oftar vantaði
honum golfkúlur. Hann fór í næstu golfverslun og spurði afgreiðslumanninn „eru til
golfkúlur á undir 200kr stykkið?” Hvað á Hafsteinn við?
Hann vill golfkúlur sem kosta meira en 200 kr stk.
Hann vill golfkúlur sem kosta minna en 200 kr stk
Hann vill golfkúlur sem kosta nákvæmlega 200 kr stk.
Indriði leikur gjarnan knattspyrnu með félögum sínum. Hann er markvörður. Eitt
sinn vantar honum nýja markmannshanska og fer því í íþróttaverslun. Hann spyr
afgreiðslumanninn hvort hann eigi hanska en tekur fram að þeir megi ekki kosta yfir
3000 kr. Hvað á Indriði við?
Hann vill hanska sem kosta nákvæmlega 3000 kr
Hann vill hanska sem kosta meira en 3000 kr
Hann vill hanska sem kosta minna en 3000 kr
sfjalar | www.sfjalar.net
Jónína er vön að versla við hverfisbúðina sína og hefur ætíð verið ánægð með bæði
verð og þjónustu þar. Síðan gerist það að búðin skiptir um eigendur og eitt skiptið
þegar Jónína fer þangað rekst hún á verslunarstjórann og segir við hann „þið leggið
miklu meira á vörurnar heldur en fyrri eigendur.” Hvað átti Jónína við?
Vörurnar í búðinni voru á sama verði og áður
Vörurnar í búðinni voru dýrari en hjá fyrri eigendum
Vörurnar í búðinni voru ódýrari en hjá fyrri eigendum.
Kjartan er að leita sér að íbúð til að kaupa í Reykjavík. Um daginn las hann í blaðinu
að verð á íbúðarhúsnæði í Reykjavík hefði vaxið um 30% á síðustu þremur árum.
Hvað merkir það?
Íbúðarhúsnæði í Reykjavík er á svipuðu verði nú og fyrir þremur árum
Íbúðarhúsnæði í Reykjavík er kostar meira nú en fyrir þremur árum
Íbúðarhúsnæði í Reykjavík er kostar minna nú en fyrir þremur árum
Auður er að skoða bíl á bílasölu með það í huga að kaupa sér hann. Bílasalinn segir
við hana að hann geti slegið hundrað þúsund kall af bílverðinu kaupi hún bílinn strax í
dag. Hvað meinar hann?
Hann er tilbúinn að selja henni bílinn á 100.000 kr
Hann er tilbúinn að selja henni bílinn á hundrað þúsund kall
Hann er tilbúinn að gefa henni 100.000 kr afslátt af bílverðinu