20
vf.is vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 27. MARS 2014 12. TÖLUBLAÐ 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslá af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyum utan  greiðsluþáöku Rokksýning! Nú er unnið að upp- setningu á sýningu á Rokksafni Íslands í Hljómahöllinni og hér má sjá Björn Björns- son sýningarstjóra skoða sýningarmuni síðdegis í gær. Form- leg opnunarhátíð Hljómahallar og Rokk- safns Íslands verður þann 5. apríl nk. VF-mynd: Olga Björt Þ eir sem safna sér talsverðum lífeyris- sjóði á lífsleiðinni taka talsverðan þátt í dvalarkostnaði sínum þegar sú stund kemur að viðkomandi þarf að flytja á hjúkrunarheimili. Fólk getur þurft að borga með sér 350-360 þúsund krónur á mánuði ef árhagur þess er þannig. Það finnist mörgum ekki sanngjarnt. Þetta segir Finnbogi Björnsson, framkvæmda- stjóri Dvalarheimila aldraðra á Suður- nesjum [DS] í viðtali við Víkurfréttir í dag. Finnbogi segir að fólk hafi alla tíða átt erfitt með að sætta sig við þessa staðreynd. „Það leiðinlega sem okkur varðar sem rekstraraðila er að við fáum pappíra sem segja, þú átt að innheimta þetta mikið hjá þessum aðila. Síðan eigum við að skila þessu til Tryggingastofnunar. Ef að við náum ekki þessum ármunum frá heimilisfólkinu, þá draga þeir það frá daggjöldunum næsta mánuð á eſtir. Við höfum ekkert með þessa peninga að gera annað en að innheimta þá. Eins og vel er hægt að ímynda sér, þá er ekki alltaf skemmtilegt að rukka fólk um fleiri hundruð þúsund, vegna þess hversu góðan lífeyri það hefur unnið sér inn,“ segir Finn- bogi m.a. í viðtalinu við Víkurfréttir í dag. Finnbogi hefur starfað sem framkvæmda- stjóri DS í 37 ár en stendur nú á tímamótum eins og fram kemur í viðtalinu þar sem hann fer yfir sína vakt hjá DS í þessa tæpu óra áratugi. - Sjá síðu 12 Greiða allt að 360.000 kr. úr eigin vasa á mánuði - Finnbogi Björnsson framkvæmdastjóri DS til 37 ára gerir upp árin hjá Garðvangi og Hlévangi Íbúar á hjúkrunarheimilum sem hafa safnað talsverðum lífeyri: Söfnuðu 600 undirskriftum: 74% skrifa undir ósk um persónukjör B æjarfulltrúinn Pálmi Steinar Guð- mundsson gekk í nær öll hús í Garð- inum og safnaði 600 undirskriſtum fyrir persónukjöri í Sveitarfélaginu Garði. Undirskriftirnar afhenti hann Magnúsi Stefánssyni bæjarstjóra á mánudag og verða þær, ásamt erindi sem þeim fylgir, teknar fyrir í bæjarráði Garðs í dag, fimmtudag. „Ég hef átt samræður við flesta íbúa sem hér eru á kjörskrá og safnað undirskriſtum fyrir persónukjöri í komandi sveitarstjórnarkosn- ingum í Garðinum. Af þeim sem ég hef rætt við hafa 600 íbúar á kjörskrá ritað undir áskorun um að í kosningum 2014 verði við- haſt persónukjör í Sveitarfélaginu Garði. Í kosningunum 2010 greiddu 812 atkvæði sem þýðir að 74% þeirra sem tóku þátt í kosningunum vilja persónukjör í komandi sveitarstjórnarkosningum,“ segir Pálmi m.a. í erindi sínu til bæjarráðs. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, segir að erindið fari fyrir bæjarráð í dag og sam- kvæmt ósk Pálma á það svo að fara í fram- haldi fyrir bæjarstjórn. Þar hefur óskum um persónukjör hingað til verið hafnað af sitjandi meirihluta. Finnbogi er einnig í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN og vf.is í kvöld kl. 21:30 Sjónvarp! ERUM FLUTT Í SPORTHÚSIÐ Einkaþjálfun - Hópþjálfun - Fjarþjálfun www.einka.is

12 tbl 2014

Embed Size (px)

DESCRIPTION

12.tbl.35.árg.

Citation preview

Page 1: 12 tbl 2014

vf.isvf.is

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

auðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

FIMMTUDAGURINN 27. MARS 2014 • 12. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

Hringbraut 99 - 577 1150

Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum

Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.

VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐHjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan  greiðsluþáttöku

Rokksýning!

Nú er unnið að upp-setningu á sýningu á Rokksafni Íslands í Hljómahöllinni og hér má sjá Björn Björns-son sýningarstjóra skoða sýningarmuni síðdegis í gær. Form-leg opnunarhátíð Hljómahallar og Rokk-safns Íslands verður þann 5. apríl nk.VF-mynd: Olga Björt

Þeir sem safna sér talsverðum lífeyris-sjóði á lífsleiðinni taka talsverðan

þátt í dvalarkostnaði sínum þegar sú stund kemur að viðkomandi þarf að flytja á hjúkrunarheimili. Fólk getur þurft að borga með sér 350-360 þúsund krónur á mánuði ef fjárhagur þess er þannig. Það finnist mörgum ekki sanngjarnt. Þetta segir Finnbogi Björnsson, framkvæmda-stjóri Dvalarheimila aldraðra á Suður-nesjum [DS] í viðtali við Víkurfréttir í dag.Finnbogi segir að fólk hafi alla tíða átt erfitt með að sætta sig við þessa staðreynd.

„Það leiðinlega sem okkur varðar sem rekstraraðila er að við fáum pappíra sem segja, þú átt að innheimta þetta mikið hjá þessum aðila. Síðan eigum við að skila þessu til Tryggingastofnunar. Ef að við náum ekki

þessum fjármunum frá heimilisfólkinu, þá draga þeir það frá daggjöldunum næsta mánuð á eftir. Við höfum ekkert með þessa peninga að gera annað en að innheimta þá. Eins og vel er hægt að ímynda sér, þá er ekki alltaf skemmtilegt að rukka fólk um fleiri hundruð þúsund, vegna þess hversu góðan lífeyri það hefur unnið sér inn,“ segir Finn-bogi m.a. í viðtalinu við Víkurfréttir í dag. Finnbogi hefur starfað sem framkvæmda-stjóri DS í 37 ár en stendur nú á tímamótum eins og fram kemur í viðtalinu þar sem hann fer yfir sína vakt hjá DS í þessa tæpu fjóra áratugi. - Sjá síðu 12

Greiða allt að 360.000 kr.úr eigin vasa á mánuði

- Finnbogi Björnsson framkvæmdastjóri DS til 37 ára gerir upp árin hjá Garðvangi og Hlévangi

Íbúar á hjúkrunarheimilum sem hafa safnað talsverðum lífeyri:

Söfnuðu 600 undirskriftum:

74% skrifa undir ósk um persónukjör

Bæjarfulltrúinn Pálmi Steinar Guð-mundsson gekk í nær öll hús í Garð-

inum og safnaði 600 undirskriftum fyrir persónukjöri í Sveitarfélaginu Garði. Undirskriftirnar afhenti hann Magnúsi Stefánssyni bæjarstjóra á mánudag og verða þær, ásamt erindi sem þeim fylgir, teknar fyrir í bæjarráði Garðs í dag, fimmtudag.„Ég hef átt samræður við flesta íbúa sem hér eru á kjörskrá og safnað undirskriftum fyrir persónukjöri í komandi sveitarstjórnarkosn-ingum í Garðinum. Af þeim sem ég hef rætt við hafa 600 íbúar á kjörskrá ritað undir áskorun um að í kosningum 2014 verði við-haft persónukjör í Sveitarfélaginu Garði. Í kosningunum 2010 greiddu 812 atkvæði sem þýðir að 74% þeirra sem tóku þátt í kosningunum vilja persónukjör í komandi sveitarstjórnarkosningum,“ segir Pálmi m.a. í erindi sínu til bæjarráðs.Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, segir að erindið fari fyrir bæjarráð í dag og sam-kvæmt ósk Pálma á það svo að fara í fram-haldi fyrir bæjarstjórn. Þar hefur óskum um persónukjör hingað til verið hafnað af sitjandi meirihluta.

Finnbogi er einnig í viðtali

við Sjónvarp Víkurfrétta á

ÍNN og vf.isí kvöld kl. 21:30

Sjónvarp!

ERUM FLUTT Í SPORTHÚSIÐ

Einkaþjálfun - Hópþjálfun - Fjarþjálfunwww.einka.is

Page 2: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR2

Nokkur kurr og mikil um-ræða hefur verið vegna

framboðslista Sjálfstæðisflokks-ins í Reykjanesbæ sem sam-þykktur var eftir verulegar breyt-ingar frá niðurstöðu prófkjörs, á fundi fulltrúaráðs í síðustu viku. Tveir af núverandi bæjarfull-trúum flokksins eru ekki á meðal sjö efstu á listanum. Gunnar Þórarinsson, sem varð í 5. sæti í prófkjörinu fyrr í mánuðinum, er ekki á lista og Einar Magnússon, sem náði 7. sæti í prófkjörinu, er í næstneðsta sæti listans. Þá höfðu Böðvar Jónsson sem varð í 2. sæti og Magnea Guðmundsdóttir sem varð þriðja sætaskipti á listanum.Á fundi fulltrúaráðsins var tekist á um hvort listinn yrði óbreyttur frá niðurstöðum prófkjörs en þar

urðu tvær konur í tíu efstu sætum. Kjörnefnd hafði heimild til að gera breytingar á niðurstöðu prófkjörs, samkvæmt reglum flokksins, og lagði til að jafna hlut kvenna á list-anum. Meirihluti fulltrúaráðsins samþykkti þá niðurstöðu og röðun listans með 57% atkvæða á móti 43%. Listann skipa tólf karlar og tíu konur. Þrjár konur eru í sex efstu sætum á listanum. Þá er hlutur ungs fólks óvenjumikill á listanum sem samþykktur var á fundi full-trúaráðsins en ungir sjálfstæðis-menn voru ekki sáttir með niður-stöður prófkjörsins. Í kjölfar birtingu endanlegs lista hafa komið fram miklar umræður um hvernig staðið var að málum og bæði Gunnar og Einar tjáð sig í greinum á vef Víkurfrétta sem og

Ragnar Örn Pétursson, formaður fulltrúaráðs og fleiri aðilar.

Prófkjör virt að vettugiGunnar Þórarinsson skrifaði grein á vef Víkurfrétta í síðustu viku undir fyrirsögninni „Prófkjör virt

að vettugi“. Í grein-inni segir Gunnar m.a.: „Frá prófkjöri hefur verið mikil undiralda í ráðum og nefndum flokksins. Háværar raddir hafa verið uppi um að fara

algerlega á svig við úrslit prófkjörs-ins, réttlæta það með lagatækni-legum flækjum og þvinga þannig fram uppstillingu. Það kom svo á daginn að mér var boðið 7. sætið sem ég hafnaði á þeim forsendum að ég teldi prófkjörið hafa svarað því á lýðræðislegan hátt hver upp-röðun listans skyldi vera“. Gunnar segir svo að á fjölmennum fundi fulltrúaráðsins hafi síðan endanlega verið gengið frá fram-boðslistanum. „Þá kom í ljós það sem legið hafði í loftinu um nokk-urt skeið að nafn mitt var þurrkað út af listanum. Þau undirmál og ofríki sem hafa grasserað innan nefnda og ráða flokksins síðustu vikurnar opinberuðust þar með skýrum hætti“. Þá segir Gunnar undir lok bréfs-ins: „Ég mun á næstu vikum íhuga mín mál með mínum stuðnings-mönnum. Öllum má ljóst vera að ég hef fullan hug á því að vinna áfram að framfararmálum sveitar-félagsins með setu í bæjarstjórn. Fái ég til þess góðan byr og hvatningu mun ég ásamt stuðningsmönnum mínum efna til sérframboðs“.

Árni tilbúinn að taka 6. sætiðRagnar Örn Pétursson, formaður kjörnefndar fulltrúaráðs Sjálf-stæðisflokksins í Reykjanesbæ,

sá ástæðu til að rita grein á vef Víkurf-rétta um prófkjörið og þær ásakanir sem bornar höfðu verið á kjörnefnd flokksins. Hann segir í grein sinni að þegar niður-

stöður prófkjörs lágu fyrir var ljóst að mjög hallaði á konur í efstu sætum listans. Aðeins 2 konur voru í 10 efstu sætum hans og aðeins 1 kona var í efstu 5 sætum listans. Í ljósi niðurstöðu prófkjörs var kjör-nefnd sammála um að gera breyt-ingar á listanum þannig að hlutur kvenna yrði aukinn, enda hallaði mjög á hlut þeirra.„Kjörnefnd ræddi þessa áherslu við frambjóðendur sem tóku nær allir vel í að taka þátt í þessari vinnu. Böðvar Jónsson sem náði 2. sæti í prófkjörinu var tilbúinn að færa sig í það 3ja þannig að Magnea Guð-mundsdóttir yrði í 2. sæti. Einar Magnússon, sem náði 7. sæti í prófkjörinu var tilbúinn að víkja úr því sæti og þáði 21. sætið. Reynt var með öllum ráðum að fá Gunn-ar Þórarinsson með í þessa veg-

ferð til að hleypa konu að í 5. sætið. Honum var fyrst boðið að taka 7. sætið og reyndar á sama fundi var óskað eftir við Árna Sigfússon að hann færði sig í 6. sætið, þannig að allir frambjóðendur tækju þátt í þessari vinnu. Árni var tilbúinn að gera það en ekki Gunnar, sem hafnaði 7. sætinu. […] Til þess að ná sáttum var ákveðið að bjóða Gunnari svo 6. sætið en hann hafn-aði því og sagði að hann vildi ekki sæti neðar en 5. sætið, annars tæki hann ekki þátt og vildi ekki vera á lista. Meirihluti kjörnefndar ákvað að bjóða honum ekki 5. sætið og á fundi fulltrúaráðs var tillaga kjör-nefndar samþykkt“.Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykja-nesbæjar tjáir sig um málið á Face-book-síðu sinni.„Undarleg umræða og rangar stað-hæfingar tengdar undirbúningi að sérframboði Gunnars Þórarins-sonar. Hann sóttist eftir 1.-2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ en hafnaði í 5. sæti. Hann náði samt ekki tilskildum atkvæðafjölda til að eiga rétt á því sæti á lista samkvæmt prófkjör-sreglum. Það sem fáir vita fram að þessu er að þrátt fyrir sterka kosn-ingu í 1. sæti var ég reiðubúinn að fara í 6. sæti að ósk kjörnefndar. Þeirra hugmynd var að Gunnar tæki þá 7. sæti, sem er sami sæta-fjöldi og við höfum í bæjarstjórn í dag. Ég samþykkti að taka 6. sætið án skilyrða. Gunnar hafnaði 7. sæt-inu! Þá var honum boðið að fara í 6. sæti. Hann hafnaði því líka. Það var miður. Þessar staðreyndir sýna að það var fullur vilji til að hann ynni með okkur. Einhverra hluta vegna eru þessar upplýsingar ekki að koma fram hjá honum,“ segir Árni.

Bauðst aldrei 7. sætiðEinar Magnússon bæjarfulltrúi, sem hafnaði í 7. sæti í prófkjörinu en var færður niður í það 21. sá

einnig ástæðu til að skrifa grein á vef Vík-urfrétta til að leiðrétta rangfærslu í grein Ragnars Arnar Pét-urssonar formanns kjörnefndar. Ragnar Örn hafði skrifað: „Einar Magnússon,

sem náði 7. sæti í prófkjörinu var tilbúinn að víkja úr því sæti og þáði 21. sætið.“Í grein Einars segir hins vegar: „Þetta er rangt og vegna þess að margir af mínum stuðnings-mönnum hafa spurt mig að því hvers vegna listinn er eins og hann er finnst mér þeir eiga rétt á að vita hið rétta í málinu. Hið rétta er að mér bauðst aldrei 7. sætið eins og Ragnar heldur fram og ég bauðst

ekki til að víkja úr því. Í prófkjörinu sóttist ég eftir 4. sæti og fer ekki leynt með að égt varð vonsvikinn að hafna í 7. sæti. […] Það kom mér því á óvart þegar ég var kallaður aftur á fund kjörnefndar og mér boðið neðsta sætið á listanum. Á þeim fundi afþakkaði ég sæti á list-anum. Síðar var mér boðið 8. sæti listans, sem ég þáði ekki heldur. […] Ég er ekki vanur að hlaupa frá verkum mínum. Ég ákvað því að lokum, kvöldið áður en listinn var samþykktur, að taka 21. sætið á list-anum til að sýna stuðning við sam-starfsfólk mitt og að ég væri stoltur af þeim verkum sem ég hef tekið þátt í að vinna að í bæjarstjórn á kjörtímabilinu. […] Pólitíkin hefur ekki sérlega góða ímynd þessa dag-ana og til að fá fleira ungt fólk og fleiri konur að pólitísku starfi er mikilvægt að auka gegnsæi,“ segir Einar Magnússon m.a. í grein sinni.

-pólitík pósturu [email protected]

n Tekist á um framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Tveir núverandi bæjarfulltrúar ósáttir:

Gunnar út af listanum og íhugar sérframboð-Einar í næst neðsta sæti. Bæjarstjóri bauðst til að taka 6. sætið

15%afsláttur*Af öllum pakkningum

* Gildir í mars

Allt fasteignir á Suðurnes-jum – sími 426-8890

Allt fasteignir - fasteignasa-la í Grindavík

YFIR 300 EIGNIR Á SUÐURNESJUM TIL SÖLU HJÁ OKKUR

Skoðið heimasíðu okkar alltfasteignir.is

Grindavík sími 426-8890Dagbjartur Willardsson sölustjóri gsm 861 7507 // Þórir Sigfússon sölufull-trúi gsm 612 2266 // Þorbjörn Pálsson löggiltur fasteignasali gsm 898 1233.

Framboðslisti Sjálfstæðis-flokksins í Reykjanesbæ

1. Árni Sigfússon, bæjarstjóri2. Magnea Guðmundsóttir, upplýsingafulltrúi og bæjarfulltrúi3. Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi4. Baldur Guðmundsson, útibússtjóri og bæjarfulltrúi5. Björk Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri og bæjarfulltrúi6. Ingigerður Sæmundsdóttir, framhaldsskólakennari7. Jóhann S. Sigurbergsson, forstöðumaður8. Una Sigurðardóttir, sérfræðingur9. Ísak Ernir Kristinsson, stúdent10. Guðmundur Pétursson, fram-kvæmdastjóri11. Hildur Gunnarsdóttir, lögfræðingur og varaformaður SUS12. Hanna B. Konráðsdóttir, viðskiptafræðingur og meistara-prófsnemi í lögfræði13. Þórarinn Gunnarsson, stúd-ent og formaður ungra sjálf-stæðismanna í Reykjanesbæ14. Anna Sigríður Jóhannesdóttir, sálfræðinemi15. Rúnar Arnarson, bankastarfsmaður16. Haraldur Helgason, matreiðslumeistari17. Sigrún I. Ævarsdóttir, lögfræðingur og kaupmaður18. Erlingur Bjarnason, rekstrarstjóri19. Gígja S. Guðjónsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur20. Grétar Guðlaugsson, byggingafræðingur21. Einar Magnússon, skipstjóri og bæjarfulltrúi22. Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður og ráðherra

Um 1500 manns tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Aðeins tveir af sjö efstu í prófkjörinu eru í sömu sætum

eftir breytingar fulltrúaráðs á listanum.

Page 3: 12 tbl 2014

www.peugeot.is

Bernhard Reykjanesbæ • Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ, sími 421 7800

LAUGARDAG MILLI KL. 11:00 OG 16:00

Frumsýnum bíl ársins

PEUGEOT

PEUGEOT 308

kostar frá kr. 3.360.000Bíll ársins í Evrópu 2014

Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri frá 3,6 til 5,6L/100km og CO2 útblástur (g/km) frá 93 til 129.

Þú finnur okkur á

facebook.com/PeugeotIceland

Page 4: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR4

Símafélagið og Netsamskipti hafa komist að samkomulagi

um að sameina rekstur félaganna undir merkjum Símafélagsins og styrkja starfsstöð sameinaðs reksturs á Suðurnesjum.Félögin hafa á undanförnum árum aukið samstarf sitt verulega og hófu Netsamskipti til að mynda á síðasta ári að bjóða upp á símaþjónustu til einstaklinga og fyrirtækja á kerfum Símafélagsins.Félögin höfðu áður sameinað út-landagáttir sínar fyrir Internet og þótti sameiginlegur rekstur því eðlilegt framhald á samstarf-inu. Með þeirri hagræðingu sem myndast með sameiningunni eykst rekstraröryggi, þjónustustig og vöruframboð.„Með sameiningunni verður til stærri og öflugri rekstareining og gefur okkur aukna möguleika að mæta betur þeim fjölmörgu verk-efnum sem framundan eru. Mann-auðurinn er mjög mikill og hér er verðmæt sérþekking og kunnáttta. Framundan eru spennandi tímar enda sjáum við mikla möguleika í

þessum geira,“ segir Brjánn Jóns-son, framkvæmdastjóri Símafé-lagsins.Netsamskipti er eitt elsta Internet-fyrirtæki landsins en það er stofnað árið 1994. Félagið er staðsett í hjarta Reykjanesbæjar og hefur veitt Suðurnesjabúum netþjónustu, hýsingarþjónustu, tækniþjónustu og nýverið einnig símaþjónustu. Viðskiptavinir eru bæði einstakl-ingar og fyrirtæki og hefur félag-ið lagt áherslu á að veita heima-

mönnum fyrsta flokks þjónustu í sinni heimabyggð. Símafélagið hóf starfsemi 1. nóv-ember 2008 og hefur á þeim tíma byggt upp mjög öflugt grunnnet á höfuðborgarsvæðinu, Suður-nesjum, Selfossi, Akureyri og víða á Norðausturlandi. Símafélagið hefur frá upphafi lagt áherslu á að byggja upp sín eigin kerfi, bæði fyrir Internet og síma og rekur nú eitt af þremur stærstu grunn-kerfum landsins.

Skólastjóraskipti í HoltaskólaJóhann Geirdal hættir og Eðvarð Þór tekur við

„ Ákvörðunin hefur ek ker t að gera me ð rekstur Myllu-bakkaskóla eða samskipti mín við starfsfólk, nemendur og foreldra þar.

Mig langaði einfaldlega í þetta starf og sló til,“ segir Eðvarð Þór Eðvarðsson, skólastjóri Myllu-bakkaskóla en Bæjarráð Reykja-nesbæjar samþykkti beiðni Eð-

varðs Þórs um tilfærslu í starfi fimmtudaginn 13. mars síðast-liðinn. Hann hefur störf sem skólastjóri Holtaskóla í haust og tekur við keflinu af Jóhanni Geirdal, sem hefur sinnt því starfi síðan 2007. Eðvarð Þór hefur verið skóla-stjóri Myllubakkaskóla í tvö ár og var þar áður aðstoðarskólastjóri í Holtaskóla og þar áður kennari við Heiðarskóla. Staða skólastjóra Myllubakkaskóla hefur þegar verið auglýst.

Heiða í stjórn Félags leikskóla-

kennarau Heiða Ingólfsdóttir, sér-kennslustjóri á leikskólanum Holti í Reykjanesbæ, var kjörin í stjórn Félags leikskólakennara í síðustu viku.Ný stjórn Félags leikskólakennara tekur við á aðalfundi félagsins 25. apríl næstkomandi og situr fram að aðalfundi árið 2017. Formaður FL, Haraldur Freyr Gíslason, er sjálfkjörinn en kosið verður í önnur trúnaðarstörf á aðalfund-inum í apríl.

Kjarasamningur verslunarmanna

samþykkturu Kjörfundi um nýjan kjara-samning milli Verslunarmanna-félags Suðurnesja og Samtaka atvinnulífsins sem skrifað var undir 20. febrúar sl. lauk kl. 14. föstudaginn 28. febrúar.Alls voru 1.175 á kjörskráAtkvæði greiddu 130 eða 11,06%Já sögðu 103 eða 79,23%Nei sögðu 27 eða 20,77%Auðir seðlar og ógildir 0Kjarasamningurinn telst því sam-þykktur

Leikskólinn Holt tilnefndur til

verðlauna- Evrópuverðlaunin 2014

uLeikskólinn Holt hefði verið tilnefndur til Evrópuverðlauna 2014 fyrir e twinning verkefnið „talking Pictures“. Verkefnið var valið úr 134 verkefnum víðs vegar að úr Evrópu og lenti í einu af þremur efstu sætunum. Mun Anna Sofia, deildarstjóri á Holti, sem hefur leitt verkefnið, fara til Brussel nú í vor og veita verðlaun-unum viðtöku.

Hvernig nýtist Facebook mínu fyrirtæki?– margir hlýddu á fyrirlestur Þórönnu Jónsdóttur í Eldey

Margir nýttu sér tækifærið og hlýddu á fyrirlestur Þór-

önnu Jónsdóttur í Eldey frum-kvöðlasetri í vikunni sem leið, en þar sagði hún frá því hvernig samfélagsmiðillinn Facebook getur nýst sprotafyrirtækjum til markaðssetningar.Facebook er langstærsti samfélags-

miðillinn á Íslandi og notendur ein billjón í heiminum. Að sögn Þór-önnu skiptir mestu máli að efnið sem miðlað er á Facebook sé áhuga-vert því annars minnkar sýnileiki. Þar skiptir mestu að byggja upp samband við viðskiptavini á per-sónulegum nótum og þekkja þarfir hans og uppfylla.

-fréttir pósturu [email protected]

SUMARSTÖRFÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR OG VINNUSKÓLA

Þjónustumiðstöð og Vinnuskóli Reykjanesbæjar auglýsa sumarstörf laus til umsóknar.Við leitum að starfsfólki í garðyrkjudeild, flokkstjórum, yfirflokkstjórum og starfsmanni á skrifstofu.

Allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf eða í síma 420-3204.

Umsóknafrestur er til 3. apríl 2014Önnur störf vinnuskóla verða auglýst síðar.ATH. eldri umsóknir verður að endurnýja!

BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR

ERLINGSKVÖLD

Boðið verður upp á ljóðasúpu og ljóðaþvo� á árlegu Erlingskvöldi Bókasafnsins sem fram fer í samstarfi við Ráðhúskaffi fimmtudaginn 27. mars kl. 18:00.

Gestir geta keypt sér súpu á viðráðanlegu verði og fá í kaupbæti listaukandi ljóðaflutning framreiddan af ljóðahópi Jakobs S. Jónssonar leikstjóra. Leikarar flytja.Þá verða íslensk og pólsk ljóð hengd upp á snúru „til þerris“.

Allir velkomnir.

LISTASAFN REYKJANESBÆJAR

LISTAMANNSLEIÐSÖGN

Laugardaginn 29. mars kl. 14.00 mun Stephen Lárus Stephen taka á móti gestum og spjalla um verk sín á sýningu Listasafnsins MANNLEGAR VÍDDIR. Stephen er annar tveggja myndlistarmanna sem sýna mannamyndir á sýningunni sem opnuð var þann 15. mars sl.

Athugið að leiðsögnin fer fram á ensku.

Hei� á könnunni, ókeypis aðgangur og allir hjartanlega velkomnir.

Netsamskipti og Símafélagið sameinast

Brjánn Jónsson, framkvæmdastjóri Símafélags-ins og Brynjar Jónsson eigandi Netsamskipta.

Page 5: 12 tbl 2014

Skemmtilegustu gjafirnar

444 9900 www.omnis.isAkranesi Dalbraut 1

Borgarnesi Borgarbraut 61

ReykjanesbæTjarnargötu 7

VAXTALAUSAR RAÐGREIÐSLUR Í ALLT AÐ 12 MÁNUÐI12 MÁNAÐA VAXTALAUST LÁN

• Intel Core i7 quad core 64bit • 16 GB DDR3 vinnsluminni • 15,6” FHD LED Full HD Skjár • TVÖ NVIDIA® GeForce® GT750M (2GB) Skjákort • 1TB diskur og 24GB SSD sem eykur afköst verulega • Windows 8.1• 3ja ára ábyrgð

IdeaPad Y510p er fáguð fartölva sem vekur athygli Hún er með Haswell örgjörva og er gerð fyrir leiki og skemmtun. kemur með tvöföldu skjákorti (nVidia SLI) - sem gefur hreint ótrúleg afköst og hágæða JBL Dolby hljóðkerfi.

Lenovo IdeaPad Y510p

kr. 219.900Vörunr.: 59393363

Fermingartilboð

kr. 28.900Vörunr.: JH TV KURBIS BT

Fermingartilboð

Thonet&Vander Kürbis 2.0 Bluetooth

Tengdu snjallsímann, fartölvuna eða spjald- tölvuna þráðlaust við þessa glæsilegu Bluetooth hátalara, dúndur hljóðgæði.

kr. 4.990Vörunr.: EP53101

Fermingartilboð

UrbanMonkey hátalarar

• Spilar tónlist þráðlaust• Virkar sem handfrjáls búnaður fyrir farsímann

GoXtreme Speed Full HD hasarmyndavél

kr. 19.990Vörunr.: EP20106

Fermingartilboð

• Vatnshelt hús niður á 10 metra• 6 cm snertiskjár• 1920x1080p video með hljóðupptöku• 5mp hágæða sensor• 12mp kyrrmyndaupplausn með þjöppun• 4x digitalzoom• Fjarstýring fylgir• Linsa 120 gráður• Innbyggð lithium rafhlaða• Ýmsir fylgihlutir

Dell Inspiron 3537

kr. 134.990Vörunr.: INSPIRON3537#04

Fermingartilboð

• Intel Core i5-4200U• 4GB DDR3 vinnsluminni• 15.6” HD WLED True-Life skjár• 750GB harður diskur• Windows 8.1• 2GB AMD Radeon 8670M DDR3 skjákort• 3ja ára varahlutaábyrgð

kr. 13.990Vörunr.: 6224B006BA

Nettur og háþróaður fjölnota WiFi prentari með prentun, ljósritun og skönnun.

Canon MG4250 prentari

Lenovo IdeaPad S500

kr. 89.900Vörunr.: 59372485

Fermingartilboð

• Intel Pentium 2117U • 4GB vinnsluminni • 15,6” HD LED skjár • 500GB Harður diskur • Windows 8• 3 ára ábyrgð

Snilldar hönnun og glæsilegt útlit sem vekur athygli á frábæru verði.

í Omnis

Page 6: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR6

Logi Geirsson, fyrrum landsliðsmaður og at-vinnumaður í handbolta, er einn af tengda-

sonum Suðurnesja. Unnusta hans er Njarðvíkur-mærin Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir. Logi segir í stuttu viðtali við Víkurfréttir hvernig honum líkar að búa hér á svæðinu og hvað hann fæst við í dag.

Lítið mál að fá dagmömmu„Við fluttum frá Þýskalandi árið 2010 og fyrsta árið vorum við búsett í Hafnarfirði. Það var svo röð atvika sem leiddu okkur á Suðurnesin. Unnusta mín er flug-freyja hjá Icelandair og því vorum við stutt frá flugvell-inum. Einnig var erfitt að finna pláss hjá dagmömmu fyrir strákinn okkar í Hafnarfirði en það var lítið mál hér og svo leist okkur svo vel á eitt hús í Ásahverfinu að við skelltum okkur bara í smá ævintýri,“ segir Logi, sem núna er háskólanemi og eigandi Fjarform.is. Hann segir að fjölskyldunni líði mjög vel í Reykjanesbæ og geti varla hugsað sér að flytja þaðan, eins og staðan er. „Þetta er búið að vera eintóm hamingja síðan við settumst hér að. Kostirnir við samfélagið er smæð þess, það minnir mann svolítið á Hafn-arfjörð og maður er fljótur að kynnast fólki hérna.“

Lögreglan mjög sýnilegLogi segir Sporthúsið vera frá-bært mannvirki og eina glæsi-legustu stöð landsins sem hann vonar að sem flestir nýti sér; þar sé eitthvað fyrir alla. „Mér finnst líka gaman að sjá hvað Árni Sigfússon og félagar hafa búið til mikið aðdráttarafl og glætt bæjar-félagið og bæinn lífi. Svo finnst mér líka aðdáunarvert hversu sýnilegir lögreglumenn eru hérna, það heyrir til undantekninga að keyra Hafnargötuna án þess að mæta lögreglunni.“

Hollari skyndibitastaðir og jákvæðari fréttirÍ öllum sveitarfélögum er hægt að gera eitthvað betur og að mati Loga mættu koma hollir skyndibitastaðir eins og Saffran eða Serrano. „Einnig man ég tímana

þar sem ég mætti að horfa á körfuboltaleiki hérna á yngri árum þar sem yfirleitt var fullt af fólki og gríðarleg stemmning. Ég held að það væri hægt að rífa þetta betur upp hérna aftur með smá vinnu og vera með kjaftfullt á hverjum leik. Einnig mætti vera meira um einfalda viðburði tengdum menningu,“ segir Logi en tekur þó fram að svona heilt yfir þá telji hann að það mætti vera meira af jákvæðum fréttum af Suður-nesjum yfirleitt því að hellingur af góðum hlutum séu að gerast hérna á hverjum degi. „Einhverra hluta vegna skín það ekki í gegnum neikvæða umræðu sem virðist oft eiga sér stað um Suðurnesin.“

Langvarandi áhrif á líf fólksLogi er um þessar mundir að skrifa Bs. ritgerð í við-skiptafræði frá Háskólanum á Bifröst, útskrifast þaðan

í vor. „Síðan er það fyrirtæki mitt, www.fjarform.is, sem er eitt af því sem ég hef skapað og hef mest gaman af. Þar leitumst við eftir að vera mikils virði fyrir heilsu fólks og hafa góð langvarandi áhrif á líf fólks. Þetta er Fjarþjálfun í grunninn. Við fræðum fólk um það sem skiptir mestu máli og hvetjum það til að ná markmiðum sín-um.“ Logi segist mjög stoltur af því að geta hjálpað og kennt fólki að breyta um lífsstíl. „Ég hef fengið til mín í þjálfun helling af Suðurnesjafólki. Það hvílir mikil ábyrgð í því að

taka heilsu einstaklinga í sínar hendur en það er það skemmtilegasta sem ég geri.“

Samfélagsmiðill í smíðumEinnig er Logi með í smíðum samfélagsmiðil sem væntanlega verður að veruleika innan tveggja ára þannig að ekki vantar járnin í eldinn. „Suðurnesin hafa komið mér mikið á óvart og ég er stoltur af því að búa hérna. Það er ekki bara slagsmál og rok hérna eins og oft er talað um heldur er þetta fjölbreytt samfélag með marga frábæra kosti og satt best að segja grunaði mig ekki hversu gott er að búa hér,“ segir Logi að lokum.

Það er öruggt að mörgum Suðurnesja-mönnum muni hlýna um hjartaræturnar þegar þeir hafa lesið viðtal okkar við „hafn-firska“ handboltakappann og íþróttamann-inn Loga Geirsson (hér til hliðar).

Hann fer lofsamlegum orðum um svæðið en hann og kona hans, Suðurnesjamærin Ingi-björg Elva Vilbergsdóttir, sem m.a. lék körfu-bolta með sigurliði Keflavíkurstúlkna, búa í Reykjanesbæ.

„Suðurnesin hafa komið mér mikið á óvart og ég er stoltur af því að búa hérna. Það er ekki bara slagsmál og rok hérna eins og oft er talað um heldur er þetta fjölbreytt samfélag með marga frábæra kosti og satt best að segja grunaði mig ekki hversu gott er að búa hér,“ segir íþróttamaðurinn Logi Geirsson og bendir á ýmsa fleiri kosti en líka á það sem mætti gera betur.

Eitt af því sem „tengdasonur“ Suðurnesja segir frá í viðtalinu er að of mikið af neikvæðri umræðu gefi ekki rétt mynd af svæðinu, því svo margir jákvæðir hlutir séu að gerast á hverjum degi. Undir þetta má taka. Það er ekkert launungarmál að stefna okkar á Víkurfréttum er að einbeita okkur meira að jákvæðum málefnum þó vissulega birtist efni í miðlum okkar sem hægt er að segja að sé „neikvætt“.Í prentútgáfu Víkurfrétta og á vef okkar undanfarna mánuði hefur þetta komið skýrt fram, fjöldi viðtala við fólk sem er að gera skemmtilega og góða hluti sem og greina um margt jákvætt. Í sjónvarpsþáttum okkar í Sjónvarpi Víkurfrétta sem við sýnum vikulega á vef okkar vf.is, á kapalrás Reykjanesbæjar og á ÍNN þar sem fjöldi annarra en Suðurnesjamanna fylgist með, leggjum við mikla áherslu á að sýna hvað það er margt jákvætt og fjölbreytt í gangi í samfélaginu á Suðurnesjum.

Þetta ætti líka að vera umhugsunarefni fyrir alla sem eru duglegir á samfélagsmiðlum, - að gæta tungunnar þegar verið er að gagn-rýna aðra eða tjá sig á mjög neikvæðan hátt. Forseti Íslands benti á það í áramótaávarpi sínu að þróunin í tjáningu á samfélags-miðlum á borð við Facebook væri áhyggjuefni. Undir það má taka.

Flottur tengdasonur

-ritstjórnarbréf

vf.isvf.isÚtgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected]éttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected] P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, [email protected], Eyþór Sæmundsson, [email protected]ýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected] P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, [email protected], Þórgunnur Sigurjónsdóttir, [email protected]ðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, [email protected], Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: ÍslandspósturStafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.isTekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einnsólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Páll Ketilsson skrifar

SÍMI 421 0000

Suðurnesin hafa komið mér mikið á óvart og ég er stoltur af því að búa hérna

Mynd/Texti: Olga Björt Þórðardóttir // [email protected]

n Auðvelt að kynnast fólki á Suðurnesjum segir Logi Geirsson:

Eintóm hamingja að búa hér

Laugardaginn 29. mars kl. 14.00 tekur Stephen Lárus

Stephen, annar tveggja Stefána sem nú sýna í Listasafni Reykja-nesbæjar, á móti gestum og fjallar um verk sín á sýningunni MANNLEGAR VÍDDIR. Leið-sögnin fer fram á ensku.Stefánarnir báðir hafa sérhæft sig í gerð mannamynda. Báðir eiga þeir erlenda feður og hafa sótt list-menntun sína til annarra landa, Stephen Lárus til Bretlands og Stefán til Noregs og Ítalíu. Að öðru leyti eru þeir afar ólíkir.Stephen Lárus hefur getið sér gott orð fyrir portrettmyndir af ýmsum „opinberum“ Íslendingum. Mál-verk hans af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi alþingismanni og for-seta Alþingis, vakti nokkuð umtal þegar það var vígt fyrir tveimur árum; þetta málverk er að finna á sýningunni. Yfirlýst markmið Stephens er að koma á framfæri viðmóti fyrirsæta sinna, án þess

að ganga of nærri einkalífi þeirra. Þarna er um að ræða jafnvægislist þar sem listmálarinn þarf að taka tillit til margra þátta, sjálfsvirð-ingar þeirra sem sitja fyrir, þjóð-félagsstöðu þeirra, og ekki síst þess hlutverks sem portrettmyndirnar eiga að gegna. Meðan á vinnu-ferlinu stendur er listmálarinn í stöðugu „viðræðusambandi“ við margar þekktustu mannamyndir listasögunnar; þær eru honum allt í senn áskorun, viðmið og hug-myndabanki. Hér gefst gullið tæki-færi til að sjá saman komin mörg helstu portrett Stephens Lárusar hin síðari ár, en mörg þeirra hafa hvergi verið til sýnis opinberlega.Á sýningunni er einnig að finna formyndir listamannanna að nokkrum sýndum verkum, allt frá frumdrögum til nákvæmra lokaút-listana. Sýningarstjóri er Aðal-steinn Ingólfsson.Sýningin var opnuð þann 15. mars og stendur til 27. apríl 2014.

Stephen Lárus með leiðsögn í Listasafninu

Page 7: 12 tbl 2014

www.netto.is KROSSMÓA

REYKJANESBÆbækur

mar

khon

nun.

is

Á nÁmskeiðinu er farið yfir: – Svefn – Streitu – Hvað matur virkar fyrir þig – Hvers vegna léttist ég ekki – Hvaða leiðir eru færar í mataræði – Skipulag og hagkvæmni – Hvaða mat á ég að forðast – Hvernig kem ég blóðsykrinum í lag og losna við sykurpúkann

Davíð kristinsson, næringar- og lífsstílsþjálfari, verður með námskeiðið „30 DaGar-Leið TiL BeTri LÍfsssTÍLs“ í nettó krossmóa þann 3. apríl kl 20-21:30.

Það er ekki svo galið að taka sig á núna því mataræði Davíðs býður upp á marga góða og gómsæta möguleika. Mjög margir hafa tekið sig á að hætti Davíðs og náð mjög góðum árangri og sjaldan liðið betur.

Þess ber að geta að yfir 5500 íslendingar hafa farið í gegnum 30 daga hreinsun á mataræði. Davíð fer yfir mataræðið í bókinni.

Verð á námskeiði með bókinni 5.900 kr skráningar á www.30.is og í síma 461 3200

Davíð verður með fría ráðgjöf og aðstoðar þig við að versla inn fyrir 30 DaGa mataræðiðfimmtudaginn 3. apríl frá 16:30-18

Davíð mælir með nOWvörunum.

Page 8: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR8

Síðustu níu árin hefur Njarð-víkingurinn Elín Ragna Ólafs-

dóttir haldið til í Madríd höfuð-borg Spánar. Þar hefur hún sinnt spennandi starfi við þá Ólympíu-leika sem haldnir eru hverju sinni í heiminum. Ella, eins og hún er jafnan kölluð, unir vel við lífið á Spáni en hún hélt ævintýralegt brúðkaup á Íslandi í fyrra með alþjóðlegum blæ. Blaðamaður Víkurfrétta heyrði hljóðið í Ellu þar sem hún var nýlega komin heim frá vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi þar sem hún var við störf.

Elín fluttist til Spánar árið 2005 og hóf nám í innanhússhönnun í Institutuo Europeo di Design skól-anum. Hún lauk námi árið 2008 en kynntist svo núverandi eigin-manni sínum. Örlögin sáu því til þess að hún ílengdist á Spáni. Eftir að námi lauk var Elín þegar farin að starfa í Madríd en fljótlega var henni boðin staða sem aðstoðar-manneskja forstjóra verkfræði-deildar hjá Olympic Broadcasting services, undirfyrirtæki Alþjóða ólympíunefndarinnar. Fyrirtækið sér um að sjónvarpa öllum Ól-ympíuleikum, vetrar- og sumar-leikum. Fyrirtækið er staðsett í Madríd en starfsmenn eru búsettir í nokkra mánuði í því landi sem leikarnir eru haldnir hverju sinni. Elín var til dæmis fjóra mánuði í London þegar sumarólympíuleik-arnir voru haldnir þar árið 2012.

Hún er svo rétt nýkomin frá Sochi í Rússlandi þar sem hún hefur dvalið síðustu tvo mánuði á meðan vetrarólympíuleikarnir fóru fram. Ásamt því að starfa að Ólympíu-leikunum hefur Elín verið að taka að sér hönnunarverkefni víðsvegar, m.a. fyrir Latabæ þegar sett var á laggirnar sýning á Spáni.

„Drifum okkur út á vit ævintýranna“

Ella hafði áður búið um stund í Venezuela og hafði því góð tök á spænskunni. Áður en Ella flutti til Spánar var hún við nám í tækni-teiknun í Iðnskólanum og starfaði á ferðaskrifstofunni Terranova. „Ég og sonur minn sem þá var fjögurra

ára drifum okkur út á vit ævin-týranna, ég hugsaði á þeim tíma að ég gæti alltaf komið til baka ef ég sæi að þetta myndi ekki ganga upp. Hins vegar gekk allt eins og í sögu, bæði með góðum stuðningi fólks míns hér heima og svo vinahópi sem ég kynntist í Madríd. Aron Tristan, sonur minn, er mjög að-

lögunarfær, hann var farinn að tala spænsku á einum mánuði þannig að það var lykillinn að velgengni okkar.“

Elín býr í miðborg Madrídar ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanni og tveimur börnum. Í maí er svo von á fjölgun í fjölskyldunni en þá er væntanleg lítil stúlka. „Það er frá-bært að búa í Madríd með börn, Spánverjar yfir höfuð eru mjög barnvænir og þó svo að Madríd sé stórborg þá er mikið af fallegum görðum til að vera með börnin, og ekki skemmir veðrið fyrir. Einnig er gaman að því að börn eru allt-af velkomin alls staðar, jafnvel á veitingastöðum og kaffihúsum að kvöldi til, aðrar stórborgir í Evr-ópu eru ekki eins fjölskylduvænar,“ segir Ella sem kann afar vel við Spánverjana. „Ég kann mjög vel við Spánverjana og eru þeir einhvern veginn alltaf glaðir, enda meistarar í að njóta lífsins og líðandi stundar, eitthvað sem kannski margar aðrar þjóðir gleyma í daglegri rútínu. Hér er alltaf tími fyrir að hitta vini á kaffihúsi í tapas og spjalla. Eitt sem við Íslendingar höfum þó fram yfir þá að mínu mati er bjartsýnin og jákvæðnin, Spánverjar eiga það til að detta svolítið í hann Nonna neikvæða.“

Spennandi starf á framandi stöðum

Starf Ellu felst aðallega í upp-setningu og skipulagningu fyrir Ólympíuleikana hverju sinni en fyrirtækið sem hún starfar hjá sér um að sjónvarpa frá leikunum. Ella segir Ólympíuleikana í London árið 2012 hafa verið frábæra í alla staði. Þeir hafi verið vel skipulagðir allt frá opnunarhátíð til enda og Englendingarnir tekið vel á móti gestum sínum. Munurinn á leik-unum í London og í Sochi var sá að í Rússlandi þurfti að byggja nánast allt frá grunni, þ.m.t. hótel og veitingastaði, ásamt leikvöngum og svæðum fyrir leikana sjálfa. „Rússar komu mér einstaklega á óvart, ofsalega kurteist og vin-gjarnlegt fólk. Varðandi Ólympíu-leikana, þá er alveg ótrúlegt hvað var byggt fyrir einungis þessar fjórar vikur sem leikarnir standa yfir. Þetta var allt mjög glæsilegt en

mig blæðir að hugsa til alls þess fjár sem var eytt og væri svo þarfara á öðrum stöðum.“ Eins og áður segir krefst starfið þess að Ella dvelji löngum stundum fjarri fjölskyld-unni á meðan á leikum stendur. „Það getur verið erfitt. Í London komu þau þó með mér og voru hjá mér allan tímann sem var alveg frá-bært.“ Næst á dagskrá hjá Ellu eru svo sumarleikarnir í Ríó árið 2016.

Ævintýralegt brúðkaup á Íslandi

Ella og Jorge eiginmaður hennar hafa verið saman síðan árið 2008 en í fyrra gengu þau í hjónaband. Brúðkaupið var tekið alla leið en það var haldið með frábæru fólki á Íslandi yfir eina ævintýralega helgi. „Þar sem við búum erlendis var það engin spurning að við vildum bæði halda brúðkaupið á Íslandi,“ segir Ella en brúðkaupið var með mjög alþjóðlegu ívafi. Í heildina voru 150 gestir en u.þ.b. helmingurinn kom erlendis frá. Allt frá Spáni, Bret-landi, Bandaríkjunum, Hollandi, Grikklandi, Tyrklandi, Portúgal, Ítalíu, Ungverjalandi, Kanada og Írlandi. Gera átti Íslandsdvölina sem eftirminnilegasta fyrir erlendu

gestina og lá undirbúningurinn að mestu í að skipuleggja skemmti-legar dagsferðir fyrir þau um landið. „Við vorum til dæmis uppi á Langjökli í 12 klukkustunda snjó-sleðaferð daginn fyrir brúðkaupið,“ segir Ella og hlær. Brúðkaupið var þó fremur hefðbundið að sögn Ellu, athöfn í Fríkirkjunni og tapasveisla að spænskum sið á Iðnó. Þegar líða tók á veisluna kom pylsuvagninn frá Bæjarins Bestu við og gátu gestir fengið sér alíslenska pylsu. „Útlendingarnir tala ennþá um hversu rosalega góðar pylsurnar voru. Ég heyrði að síðustu gestir hafi farið heim klukkan tæplega sjö um morguninn, þannig að ég efast ekki um að fólk hafi skemmt sér vel. Daginn eftir veisluna fórum við með tvær fullar rútur af gestum í Bláa lónið og þar var slakað á. Þetta var án efa skemmtilegasta helgi sem ég hef upplifað. Það er svo gaman að fá tækifæri til að fá alla vini og ættingja þína saman og fagna,“ segir Ella. Hún reynir að koma til Íslands í það minnsta einu sinni á ári og heimsækja fólkið sitt í Njarðvík. „Það er alveg nauðsyn-legt og ef ég ætti fleiri frídaga kæmi ég mun oftar,“ segir hún að lokum.

- Njarðvíkingurinn Elín Ragna elskar lífið í Madrid

Móðurfjölskylda eiginmanns Ellu stofnaði Hello tímaritið á sínum tíma. Skapast hefur hefð fyrir því að birta myndir af brúðkaupum í fjölskyldunni í

tímaritinu. Hér má sjá fallega mynd af Ellu og eiginmanninum Jorge Mendez Junco. Á myndinni fyrir ofan má sjá myndir úr brúðkaupinu þeirra í blaðinu.

Spánverjar eiga það til

að detta svolítið í hann Nonna neikvæða

Hjólað með fjölskyldunni í Madríd. F.v: Jorge, Nora, Ella og Aron.

„Spánverjar meistarar í að njóta lífsins og líðandi stundar“

Ella á sumarólympíuleikunum í London 2012.

Page 9: 12 tbl 2014

góð

þjónustA

og hAgstæð

kjör á

skoðunum

Opið frá kl. 9:00-15:00 þ. 29.03

opið á laugardagÍ rEYKJaNESBÆ

Sími: 570 9090 · Netfang; [email protected] · www.frumherji.isBifreiðaskoðun Reykjanesbæ

Þeir sem koma með bíl í skoðun hjá Frumherja geta skráð sig í happdrætti á heimasíðu

Frumherja og þannig öðlast möguleika á því að eignast stórglæsilegan Skoda Citigo sem

verður dreginn út 1. júlí 2014.

HappdrÆtti

Þú gætir eignast nýjan Skoda Citigo ef þú drífur bílinn í skoðun!

IS AP 234201414

KÆri BÍlEigaNdiMundu að aftasti stafurinn í bílnúmerinu þínu táknar

þann mánuð sem mæta á með bílinn í skoðun. Hafðu þitt á hreinu og komdu með bílinn í skoðun

til okkar á réttum tíma.

Engar tímapantanir (frjáls mæting).

Opið mánud.-föstud. kl. 8-17.

Page 10: 12 tbl 2014

Mar

khön

nun

ehf

Tilboðin gilda 27. mars – 6. apríl 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

-50%-40%

GrísarifBBQ - alvöru gæði!Verð per kílóÁður 1.498

749,-

kjúklinGapoppdanpo-240 gVerð per pk

498,-

BayonneskinkaVerð per kílóÁður 1.989

1.195,-

-33%

GrísaBóGurhringskorinnkílóVerðÁður 889

596,-

-50%

GrísakóteletturferstkílóVerðÁður 1.949

975,-

rækjur -500GsmÁar - ódýrt fyrir heimiliðpakkaVerðÁður 598

550,-

-30%

-25%

nautalunDirVerð per kílóÁður 4.989

3.492,-

kálfa riBeyefrosið 2-2,5kgVerð per kílóÁður 3.989

2.992,-

kjúklinGaBorGarardanpo-240 gVerð per pk

498,-

corDon Bleudanpo-240 gVerð per pk

598,-

kjúklinGurBringur/lundir900/700 Gr pokiÁður 1.698

1.398,-

kjúklinGanaGGardanpo-320 gVerð per pk

598,-

kjúklinGur heilldanpo-heillVerð per kGÁður 798.-

598,-

arla Buko4 tegundirVerð per pkVerð frá

382,- snofrisk125 gVerð per pkÁður 498

423,-

cociosúkkulaðimjólk 250 mlVerð per stk

199,-

-25%

Mikið úrval af

hágæða dönskuM kjötvöruM

frá tuliP

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

finthakket skinkesalat175 g

389 krstk

kylling&bacon salat175 g

398 krstk

reje salat175 g

389 krstk

æggesalat175 g

298 krstk

kjúklinGalæri/leGGirdanpo - 2 kgVerð per kGÁður 798.-

598,-

Page 11: 12 tbl 2014

Mar

khön

nun

ehf

Tilboðin gilda 27. mars – 6. apríl 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

-50%-40%

GrísarifBBQ - alvöru gæði!Verð per kílóÁður 1.498

749,-

kjúklinGapoppdanpo-240 gVerð per pk

498,-

BayonneskinkaVerð per kílóÁður 1.989

1.195,-

-33%

GrísaBóGurhringskorinnkílóVerðÁður 889

596,-

-50%

GrísakóteletturferstkílóVerðÁður 1.949

975,-

rækjur -500GsmÁar - ódýrt fyrir heimiliðpakkaVerðÁður 598

550,-

-30%

-25%

nautalunDirVerð per kílóÁður 4.989

3.492,-

kálfa riBeyefrosið 2-2,5kgVerð per kílóÁður 3.989

2.992,-

kjúklinGaBorGarardanpo-240 gVerð per pk

498,-

corDon Bleudanpo-240 gVerð per pk

598,-

kjúklinGurBringur/lundir900/700 Gr pokiÁður 1.698

1.398,-

kjúklinGanaGGardanpo-320 gVerð per pk

598,-

kjúklinGur heilldanpo-heillVerð per kGÁður 798.-

598,-

arla Buko4 tegundirVerð per pkVerð frá

382,- snofrisk125 gVerð per pkÁður 498

423,-

cociosúkkulaðimjólk 250 mlVerð per stk

199,-

-25%

Mikið úrval af

hágæða dönskuM kjötvöruM

frá tuliP

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

finthakket skinkesalat175 g

389 krstk

kylling&bacon salat175 g

398 krstk

reje salat175 g

389 krstk

æggesalat175 g

298 krstk

kjúklinGalæri/leGGirdanpo - 2 kgVerð per kGÁður 798.-

598,-

Page 12: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR12

Hófst með samstarfi sjö sveitarfélaga

Þetta eru veruleg tímamót þegar allur rekstur af Garðvangi er að flytja á Nesvelli. Ef þú rifjar upp þessa sögu, hvernig þetta byrjaði allt saman.„Þetta hófst með því að sveitar-félögin á Suðurnesjum, sem þá voru sjö, tóku sig saman um rekstur dvalarheimilis hér á Garðvangi. Þau keyptu þá þetta fyrsta húsnæði sem var risið þá og hét þá Gríms-hóll. Þá var þetta dvalarheimili og hér bjuggu 22 aðilar. Þróunin hér hefur verið sú að við bættum við árið 1984. Síðar var bætt við allri aðstöðu eins og sal fyrir félagsstarf, hand- og fótsnyrtingu og fleira árið 1996. Þetta þróaðist þannig að þegar mest var hér þá bjuggu hér liðlega 40 aðilar en Garðvangur breytist hægt og rólega úr dvalar-heimili yfir í hjúkrunarheimili og hefur verið hjúkrunarheimili allar götur síðan 1986“.

Keflavíkurbær hafði rekið Hlévang frá árinu 1958 en Dvalarheimili aldraðra á Suðurnesjum yfirtaka reksturinn árið 1981. Þá voru þret-tán einstaklingar á Hlévangi og það voru allt dvalarrými. Árið 1992 var lokið við að byggja við Hlévang og heimilismenn þar verða þrjátíu talsins og allt í dvalarrýmum.„Rýmin á Hlévangi breyttust svo hægt og rólega yfir í hjúkrunarrými þar sem fólkið var að eldast og var að koma veikara inn á heimilið en áður og nú eru þar 30 hjúkr-unarsjúklingar. Hrafnista tók yfir rekstur þess heimilis þann 1. mars sl. og heimilisfólkið af Garðvangi flutti á Nesvelli um þarsíðustu helgi“.

Hvað hafa margir dvalið á Garðvangi?„Við erum mjög nálægt því að hér hafi farið í gegn 450 aðilar á Garðv-angi og 230 manns verið heimilis-menn á Hlévangi í gegnum tíðina,

þannig að það eru að nálgast 700 manns sem hafa búið á þessum heimilum á minni vakt“.

Já, þú ert búinn að vera hérna frá upphafi.„Já, ég byrjaði hérna 1. nóvember 1976 en þá hafði enginn fengist til að sjá um launamál og annað, þannig að ég lét til leiðast að fara í þetta. Þetta þróaðist áfram, það fékkst ekki í þetta starfsmaður og ég var með þetta í hlutastarfi og gerði þetta með aðstoð konunnar minnar sem sá um launaútreikn-inga og eitt og annað. Það gerðist svo ýmislegt fleira, þannig að ég var ekki einvörðungu í þessu í 37 ár, það var sem betur fer meiri fjöl-breytni í þessu líka“.

Kynnst alveg ótrúlega mörgu fólki

Hvað er eftirminnilegast frá þessum tíma hjá dvalarheimilum aldraðra?„Þú kynnist alveg ótrúlega mörgu fólki. Af því heimilisfólki sem var hér að flytja á Nesvelli þá voru tveir sem hafa verið hér á Garðvangi í nær 10 ár. Fyrr á tíð var heimilis-fólk hér enn lengur þegar þetta var dvalarheimili. Ég þekkti mikið af eignaraðilum DS, sveitarstjórnar-mönnunum, í krafti þess að ég var það sjálfur hér í Garðinum. Þannig var þetta léttara, því ég hafði kynni

af þessu fólki á öðrum vettvangi“.Hvernig finnst þér skilningur rík-is og bæjar vera á því sem fer fram á þessum heimilum?„Ef við tölum um eignaraðilana að DS, þ.e. Reykjanesbæ, Sandgerði, Garð og Voga, þá er skilningur þeirra prýðilegur. Hér á Garðvangi stóðu menn frammi fyrir því að það þurfti að leggja töluvert fjár-magn til endurbóta ef við ætluðum að reyna að nálgast þær kröfur sem gerðar eru af hálfu hins opinbera til hjúkrunarrýma í dag. Rekstur hjúkrunarheimila á Íslandi er þungur. Hið opinbera hefur viður-kennt að daggjöldin eru of lág. Vonandi stendur það til bóta að það verði léttara fyrir reksturinn. Hjá sveitarfélögunum eru menn vel opnir fyrir þörfum þessara heimila“.

Reksturinn hefur orðið flóknari með árunum þar sem þeir sem koma hingað inn eru veikari?„Já, og það sem fólk hefur alla tíð átt erfitt með að sætta sig við er, að hafi fólk haft góðar tekjur og talsverðan lífeyrissjóð þá er þann-ig komið núna að fólk er farið að taka töluverðan þátt í dvalarkostn-aði sínum. Það finnst mörgum ekki sanngjarnt. Fólk getur þurft að borga með sér 350-60 þúsund krónur ef fjárhagur þess er þannig. Það leiðinlega sem okkur varðar sem rekstraraðila er að við fáum pappíra sem segja, þú átt að inn-heimta þetta mikið hjá þessum aðila. Síðan eigum við að skila þessu til Tryggingastofnunar. Ef að við náum ekki þessum fjármunum frá heimilisfólkinu, þá draga þeir það frá daggjöldunum næsta mánuð á eftir. Við höfum ekkert með þessa peninga að gera annað en að innheimta þá. Eins og vel er hægt að ímynda sér, þá er ekki alltaf skemmtilegt að rukka fólk um fleiri hundruð þúsund, vegna þess hversu góðan lífeyri það hefur unnið sér inn“.

Þeir sem eiga meiri pening, þeir þurfa að borga meira. Hver eru viðbrögð ættingja sem hjálpa sínu fólki?„Það tekur oft tíma að koma því í skilning um þetta. Skrifstofustjór-inn hjá mér til 28 ára, Guðrún Ey-

vindsdóttir, hefur þetta verkefni. Hún er ósköp þægileg viðureignar og það hefur því aldrei skapast leiðinlegt ástand þess vegna“.

Glæsileg aðstaða á NesvöllumHvernig finnast þér svo aðstæður á Nesvöllum og þessar breyt-ingar?„Þetta er glæsileg aðstaða og þetta er það sem koma skal. Hvort að rýmið á að vera 32 fermetrar nettó, eða 27 fermetrar eða eitthvað annað - það kostar mikið að byggja svona heimili. Þetta eru glæsi-legar vistarverur og gefur ekki eftir öðrum nýjum heimilum sem ég hef skoðað á landinu“.

Hvernig er tilfinningin að sjá þetta heimili hér í Garðinum tómt og alla vistmenn farna á nýjan stað. Hvernig er sú tilfinn-ing?„Við áttum mjög erfitt þegar fólkið

-viðtal pósturu [email protected]

Finnbogi Björnsson hefur verið framkvæmdastjóri Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum [DS] í 37 ár. Á þessum árum hafa heimilis-menn á Garðvangi og Hlévangi verið næstum 700 talsins að ótöldu öllu starfsfólkinu. Finnbogi segir líka að það sé eftirminnilegast frá öllum starfsárunum hjá DS hvað hann hafi kynnst mörgu fólki. Það var því líka undarleg stund á sunnudegi fyrir næstum hálfum mánuði þegar allt fólkið á Garðvangi borðaði saman hádegisverð í matsal heimilisins. Eftir að hafa fengið nautagúllas og tertusneið komu ættingar heimilisfólks og sóttu það og fluttu á nýtt heimili á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Eftir sat Finnbogi í yfirgefnu hjúkrunar-heimilinu í Garðinum sem var áður heimili allt að 40 einstaklinga og örugglega stærsti kvennavinnustaður byggðarlagsins.Víkurfréttir tóku hús á Finnboga daginn eftir að Garðvangur lokaði og ræddu við hann um starf hans hjá Dvalarheimilum aldraðra á Suðurnesjum og þau tímamót sem eru nú í öldrunarmálum á svæðinu.

n Finnbogi Björnsson hefur verið framkvæmdastjóri DS í 37 ár:

ÁTTUM MJÖG ERFITT ÞEGAR FÓLKIÐ VAR AÐ FARA

Finnbogi ásamt Halldóru Ingi-björnsdóttur á gangi Garðvangs.

Halldóra bjó alla sína tíð á Flanka-stöðum við Sandgerði og var

kennari við Gerðaskóla í fimm ára-tugi. Hún hefur síðustu ár dvalið á Garðvangi en er nú flutt á Nesvelli

eins og 37 aðrir heimilismenn af Garðvangi.

Aðalheiður Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá DS,kveður Bergþóru Ólafsdóttur sem var að flytja á Nesvelli.

Page 13: 12 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. mars 2014 13

var að fara. Fólkið sjálft skiptist nokkuð í hópa. Sumir voru með mikinn trega gagnvart þessu, aðrir glaðir og ánægðir. Það getur maður vel skilið. Af þessum 38 sem hér bjuggu, þá voru 30 að flytja heim í Keflavík og Njarðvík og örugglega finnst því fólki það notalegt en það er heldur ekki algilt. Við starfsfólkið vorum tregablandin og það var af-skaplega einkennilegt að ganga hér um ganga og heilsa ekki á báðar hendur eins og maður var vanur“.

Verður Garðvangur gistiheimili?

Hvað verður um þetta húsnæði?„Nú veit ég ekki. Nú þarf DS og eignaraðilar DS að taka ákvarð-anir um það. Mikið af búnaðinum höfum við selt yfir til Nesvalla. Þetta verður mjög líklega auglýst til leigu eða sölu.Húsið er í mismunandi ástandi. Elsti hlutinn þarf verulegra endur-bóta við. Það eru allir í ferðamálum í dag og þetta húsnæði er á margan hátt heppilegt í slíkt. Það sem hefur háð starfseminni hér er að her-bergin hafa verið lítil, mörg þeirra og salernisaðstaðan ekki nógu góð. Á nýju heimilunum eru allir með salerni upp á 6 fermetra og það er allt önnur staða fyrir fólk.Ég hef setið í nokkrum nefndum sem hafa haft samskipti við ráðu-neyti og hæsta talan sem ég hef heyrt nefnda að menn hafa viljað slást fyrir í rými eru 40 fermetrar. Á Nesvöllum eru rýmin 32 fermetrar nettó en þar eru 75 fermetrar alls á hvern einasta mann í því húsi“.

Hvernig var með starfsfólk sem var hérna, fékk það vinnu hjá nýjum aðila?„Já, ég held að allir sem óskuðu eftir því og vildu flytjast fengu vinnu. Mér bauðst það ekki, enda

orðinn of gamall og það eru tveir aðrir sem bauðst ekki sambæri-leg vinna. Tveir kusu að hætta en 96-7% af starfsfólkinu fékk vinnu áfram hjá Hrafnistu. Og það gerð-ist líka á Hlévangi, þar fengu allir vinnu áfram sem vildu vinna“.

Svona að lokum, hvernig sérðu þróunina í þessu á næstu árum?„Það er mikið talað um stefnur og hér vilja menn helst nálgast

Skandinavíu og Danmörku. Þar er það þannig að þegar þú ferð inn á heimili, þá ert þú með þinn sjálfstæða fjárhag. Þú borgar fyrir matinn þinn, þrifin og þvottana þína. Þannig veit fólk nákvæmlega að hverju það gengur og hvað það hefur. Það getur kannski sparað sér eitthvað og haft úr meiru að spila. Aðalatriðið þar, sem er ekki hér, að það heldur sínu fjárforræði. Það er það sem koma þarf “.

Er ekki í golfinu en ég finn mér eitthvað

Það eru ekki margir sem vinna hjá hinu opinbera í 37 ár. Hvað ætlar þú að fara að gera?„Ég ætla að klára að ganga frá reikningunum fyrir árið 2013 og þessum næstum þremur fyrstu mánuðum þessa árs. Ég er ekki mikið í golfinu, en ég finn mér eitt-hvað. Þegar ég varð sjötugur var ég beðinn um að vera áfram til að sjá hvernig þetta færi hér og síðan eru liðin um tvö ár. Ég kvíði þessu ekki, þetta er orðið mjög gott. Þetta er orðið ágætt.“

Daglegar fréttir á vf.is

Gólfdúkur skynsamleg, smekkleg og hagkvæm lausn

-léttur í þrifum -au›veldur í lögn -glæsilegt úrval -fæst í 2, 3 og 4 m rúllum.FLOORING SYSTEMS

hjarta heimilisinsEldhúsi›

þægilegt andrúmsloftSvefnherbergi›

alltaf jafn heimilislegtStofan

einfaldara ver›ur þa› ekkiForstofan

hl‡tt og mjúkt undir fætiBa›herbergi›

SÍ‹UMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510

Heimilisdúkur, sígild lausn: Sérverslun me› gólfdúk og teppi

Orlofshús VSFKSumar 2014

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar:

2 hús í Svignaskarði3 hús í Húsafelli

2 hús í Ölfusborgum2 hús í Hraunborgum

1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri

Útleigutímabilið er frá föstudeginum 30. maí og fram til föstudagsins 22. ágúst.

Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og er umsóknarfrestur til kl. 16:00

þriðjudaginn 15. apríl 2014. Úthlutað verður samkvæmt punktaker�.

Orlofsnefnd VSFK

AÐALFUNDUR

Keflavíkurkirkja

Keflavíkurkirkju verður haldinn 6. apríl kl. 12:30 í Kirkjulundi

Venjuleg aðalfundarstörf

Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju

Starfsmaður óskast í hálft starf.

Upplýsingar hjá Láru í verslun.

ATVINNA

Finnbogi Björnsson ásamt síðustu vaktinni á Garðvangi.

Page 14: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR14

Dagana 27. apríl, 10. og 11. maí 2014 verður skátaheimilið við Hringbraut opið frá kl. 10:30 - 15:00 fyrir þá sem vilja

heimsækja okkur. Einnig er hægt að hringja í síma 421-3190 til að senda fermingarbörnum heillaskeyti.

Skeytin eru alltaf á sama lága verðinu, eða kr. 1200.- fyrir hvert skeyti. Innifalið í verði er aksturs-/sendingarkostnaður.

Við minnum á að það er opið á netinu alla fermingardaga Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Garðs og sveitarfélagsins Voga til að panta skeyti. Þá er ekki óhugsandi að panta skeyti

handa fermingarbörnum í öðrum sóknum.

Skeytin verða keyrð út samdægurs eftir atvikum eða póstlögð daginn eftir að pöntun hefur borist.

SKEYTASLA VERÐUR OPIN SEM HÉR SEGIR

-fréttir pósturu [email protected]

Einar Jón Pálsson er í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokks og

óháðra í Garði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar eftir próf-kjör sem fram fór sl. laugardag. Nýr frambjóðandi á lista kom, sá og sigraði, því Jónína Magnúsdóttir tryggði sér annað sætið á listanum. Gísli Heiðarsson er þriðji, Einar Tryggvason fjórði og Brynja Krist-jánsdóttir fimmta.

Annars er röðin svona:1. Einar Jón Pálsson, tæknifræðingur og forseti bæjarstjórnar.2. Jónína Magnúsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá MSS.3. Gísli Heiðarsson, framkvæmdastjóri hjá GSE ehf og bæjarfulltrúi.4. Einar Tryggvason, vinnuvélastjórnandi og bæjarfulltrúi.5. Brynja Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi og aðalmaður í bæjarstjórn frá 2006.6. Björn Bergmann Vilhjálmsson,verkamaður sjá SI raflögnum.7. Bjarki Ásgeirsson, grunnskólakennari og húsasmíðameistari. Situr einnig í Bygginganefnd.8. Björn Vilhelmsson, kennari og deildarstjóri.9. Sævar Leifsson,

vallarstjóri hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur.

„Framundan eru spennandi tímar í Garðinum“

„Ég er mjög þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fékk og fyrir það traust sem mér er veitt til að leiða listann í komandi sveitarstjórnar-kosningum. Frambjóðendunum sem tóku þátt í prófkjörinu þakka ég fyrir prófkjörsbaráttuna sem var í alla staði til fyrirmyndar þar sem virðing var höfð í heiðri og engan skugga bar á,“ segir Einar Jón Pálsson, sem verður oddviti Sjálfstæðismanna og óháðra á D-lista fyrir komandi sveitarstjórnar-kosningar í Garði.„Mér efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu íbúa sem tóku þátt í próf-kjörinu. Það er fagnaðarefni hve vel var mætt á kjörstað en 348 íbúar mættu til að taka þátt. Framundan er vinna við að klára uppröðun á list-ann og snúa sér svo að undirbúningi kosninganna þar sem fram verður lögð málefnaskrá okkar fyrir kom-andi kjörtímabil. Framundan eru spennandi tímar í Garðinum og ég er fullur tilhlökkunar að halda áfram að vinna með og fyrir íbúana að því markmiði að gera Garðinn að enn betri stað til að búa á,“ segir Einar Jón Pálsson.

Einar Jón efstur og Jónína í 2. sæti

Prófkjör S-listans í Sandgerði 5. aprílu Prófkjör S-lista Samfylk-ingarinnar og óháðra borgara í Sandgerði vegna vals á lista fyrir sveitarstjórnarkosningar 2014 fer fram laugardaginn 5. apríl. Þrjú efstu sæti prófkjörsins verða bindandi samkvæmt tillögu kjörstjórnar sem var samþykkt á opnum fundi S-listans síðast-liðinn miðvikudag. Kosið verður í sal Miðhúsa við Suðurgötu og verður kjörstaður opinn frá kl. 12:00 til kl. 18:00.

Það eru sjö einstaklingar sem gefa kost á sér í prófkjörinu:Andri Þór Ólafsson gefur kost á sér í 2.-3. sætiFríða Stefánsdóttir gefur kost á sér í 2.-4. sætiHelgi Haraldsson gefur kost á sér í 2.-3. sætiKristinn Halldórsson gefur kost á sér í 2.-4. sætiLúðvík Júlíusson gefur kost á sér í 1.-6. sætiÓlafur Þór Ólafsson gefur kost á sér í 1. sætiSigursveinn Bjarni Jónsson gefur kost á sér í 2. sæti

SSS stefnir ríkinuuStefna Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) á hendur íslenska ríkinu vegna aftur-köllunar einkaleyfis á fólks-flutningum til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður þingfest í þessari viku. Í ársbyrjun 2012 gerðu SSS og Vegagerðin samning sem veitti landshlutasamtökunum einkaleyfi á almenningssam-göngum í landshlutanum og teng-ingu við höfuðborgarsvæðið, þar með talinn akstur til og frá FLE.Vegagerðin afturkallaði hins vegar einhliða einkaleyfið á akstrinum milli FLE og höfuðborgarsvæðis-ins í árslok 2013. SSS telur þá afturköllun ólögmæta og krefst nú skaðabóta. Reynt var til þrautar að leita lausnar á ágreiningnum undanfarna mánuði, en án árang-urs. Sambandinu er því nauðugur sá kostur að gæta hagsmuna sinna og svæðisins með því að leita til dómstóla..

Stolin bifreið á Geirsnefi

uLögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um helgina að bifreið hefði verið stolið í umdæminu. Eigand-inn kom á lögreglustöð og kvað bíl sínum hafa verið stolið í hádeginu á laugardag. Lögregla hóf þegar leit að bifreiðinni og fannst hún síðar um daginn á Geirsnefi í Reykjavík.

Bifreiðir skullu samanu Tvær bifreiðir skullu saman á Grindavíkurvegi á sunnudags-morgun. Ökumenn voru báðir í ör-yggisbeltum og sakaði þá ekki.Þá var lögreglan á Suðurnesjum kölluð út um helgina vegna um-ferðaróhapps við Krossmóa. Þar hafði bifreið verið ekið inn í hlið

annarrar bifreiðar. Engin slys urðu á fólki. Loks voru fjórir ökumenn staðnir að því að virða ekki stöðv-unarskyldu. Einn þeirra var ekki með ökuskírteini meðferðis og öku-réttindi annars voru fallin úr gildi.

Neitaði að blása í áfengismæli

u Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í síðustu viku för ofurölvi ökumanns, sem einnig var undir áhrifum fíkniefna. Hann var hand-tekinn og færður á lögreglustöð. Þar neitaði hann að blása í áfengis-mæli, en tjáði lögreglu að hann hefði drukkið einn til þrjá bjóra og hálfan vodkapela. Þá kvaðst hann einnig hafa reykt þrjár „jónur“ um kvöldið. Sýnatökur staðfestu að hann hefði neytt kannabis.

Page 15: 12 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. mars 2014 15

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

Gefðu sparnað í fermingargjöf og Landsbankinn bætir 6.000 krónum við

Þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn

á Framtíðargrunn Landsbankans greiðir bankinn 6.000

króna mótframlag inn á sama reikning. Þannig viljum við

hvetja til sparnaðar.

-fréttir pósturu [email protected]

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur heimilað Landsneti hf.

að taka eignarnámi ákveðnar jarðir á Suðurnesjum vegna lagn-ingu Suðurnesjalínu 2.Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu. Þar segir að beiðni um eignarnám hafi borist ráðuneytinu í febrúar í fyrra og hafi gagnaöflun staðið yfir síðan. Eignarnámsbeiðnin snýr að 220

kílóvatta háspennulínu (Suðurnes-jalínu 2) sem fyrirhugað er að reisa á milli Hafnarfjarðar og Reykja-nesbæjar.Í ákvörðun ráðuneytisins um að heimila eignarnám er rakið að öll skilyrði eignarnáms séu að mati ráðuneytisins til staðar, þ.e. skil-yrði um lagafyrirmæli. Samninga-leið hafi verið reynd til þrautar, að almenningsþörf liggi að baki,

að nauðsyn beri til, að meðalhófs sé gætt og skilyrði um afmörkun eignarnáms. Í eignarnáminu felst ákveðinn afnotaréttur af viðkom-andi jörðum fyrir Landsnet, í þágu framkvæmdarinnar.Matsnefnd eignarnámsbóta sker úr ágreiningi um eignarnámsbætur komi hann upp.

Eignarnám heimilað vegna Suðurnesjalínu

Hvar er fundar-gerðarbók Eldeyjar?

Nú er verið að ganga frá sögu Bj ö r g u n a r s v e i t a r i n n a r

Eldeyjar. Sveitin var stofnuð 6. desember 1931 og lögð niður 1999 og síðar sameinuð Björg-unarsveitinni Suðurnes. Nú vantar fundargerðarbók sveitar-innar og liggur hún væntanlega hjá ritara stjórnar frá því fyrir 15 árum síðan.Þeir sem hafa upplýsingar um hvar fundargerðarbókina er að finna geta haft samband við Jón Borgar-sson í síma 421 6919 eða 898 6919 sem kemur og sækir bókina, sé þess óskað. Einnig má koma bókinni góðu til Víkurfrétta, sem síðan koma henni í réttar hendur.

Klippt af sex bifreiðum

Fimm ótryggðar og ein óskoðuð

Skráningarnúmer voru fjar-lægð af sex bifreiðum í um-

dæmi lögreglunnar á Suður-nesjum í vikunni. Fimm þeirra voru ótryggðar og ein hafði ekki verið færð til skoðunar innan til-skilins tímaramma. Þá var einn ökumaður sektaður fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu.Lögregla beinir þeim tilmælum til forráðamanna bifreiða að hafa tryggingar- og skoðunarmál í lagi svo ekki þurfi að koma til þess að þær verði teknar úr umferð.

Vatnsskemmdir í Vogum

Í upphafi síðustu viku gerði asa-hláku með þeim afleiðingum

að snjór og klaki tók að bráðna af miklum móð. Í íþróttahúsinu í Vogum vildi ekki betur til en svo að niðurföllin höfðu ekki undan og vatn tók að flæða inn á gólfið. Það fór svo að lokum að slökkviliðið var kallað til svo unnt væri að dæla vatninu burt með öflugum dælubúnaði. Það fór því betur en á horfðist í fyrstu, eigi að síður urðu smávægilegar skemmdir á parketinu. Skemmdirnar eru þó ekki það miklar að unnt er að nota allt gólfið án vandkvæða.

Gömul bifreið Björgunarsveitar-innar Eldeyjar. Hún er núna á safni.

Page 16: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR16

-ung

Hvað gerirðu eftir skóla? Ég legg mig oft eftir skóla og fer svo á æfingu um kvöldið en ef það er engin æfing hitti ég vini mína.

Hver eru áhugamál þín? Fótbolti aðallega.

Uppáhaldsfag í skólanum? Íþróttir og heimilisfræði.

En leiðinlegasta? Klárlega stærðfræði og íslenska.

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Luis Suarez framherji Liverpool.

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann? Að vera ofur-hraður, það kæmi sér mjög vel ef maður er að verða of seinn.

Hvað er draumastarfið? Atvinnumaður í fótbolta að sjálfsögðu.

Hver er frægastur í símanum þínum? Ætli það sé ekki bara Arnór Sindri Sölvason bróðir minn vegna Tví-eggja.

Andri Snær Sölvason er í 10. bekk í Myllubakkaskóla. Hann er harður Livepool aðdáandi og hann myndi vilja hitta Luis Suarez, framherja liðsins.

Hress fótboltafíkill

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Dietmar Hamann fyrrum leik-mann Liverpool.

Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag? Leynast í flug til Liverpool og fara á Anfield.Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Frekar venjulegur bara bolur peysa og nettar buxur.

Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Hress gaur sem er fótbolta fíkill.

Hvað er skemmtilegast við Myllubakkaskóla? Hann er svo þægilegur skóli því það eru svo fáir í 10. bekk svo ég held að það sé skemmtilegast við hann.

Hvaða lag myndi lýsa þér best? Friðrik Dór - Alveg sama (Til í allt II)

Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? Brooklyn Nine-Nine vegna húmorsins.

BestaBíómynd?

The Wolf of Wall Street.

Sjónvarpsþáttur? Breaking Bad.

Tónlistarmaður/Hljómsveit? Kanye West.

Matur? Pizza.

Drykkur? Pepsi.

Leikari/Leikkona? Leonardo DiCaprio.

Lið í Ensku deildinni? Liverpool!

Lið í NBA? Miami Heat.

pósturu [email protected]

-heilsa pósturu [email protected]

ATVINNA 

Óskum eftir starfsmanni í 50% starf við að annast þrif.Erum staðsett í Garðinum.

 Nánari upplýsingar veita

Gunnlaugur í síma 863 2105 og Ágústa í síma 863 0458 

Suðurgata 8 í Reykjanesbæ

Falleg og björt 64.4m2 íbúð á 2. hæð (1. hæð frá Suðurgötu) í fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri.

Eignin er öll mjög snyrtileg og í góðu ástandi og hefur fallegt útsýni yfir hluta af skrúðgarðinum.

Eignin er laus strax.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Stuðlabergs og á studlaberg.is

Hafnargötu 20 // 230 Reykjanesbæ // Sími: 420 4000 // www.studlaberg.is

Halldór MagnússonLöggiltur fasteignasali

FÉLAGSFUNDUR SAMFYLKINGARINNAR

í Reykjanesbæ verður haldinn fimmtudaginn 3. apríl kl. 20:00 að Víkurbraut 13 við Keflavíkurhöfn.

 Dagskrá

Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista Samfylkingarinnar og óháðra fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Reykjanesbæ 2014.

  Önnur mál.

 Stjórnin

Suðurnesjamaðurinn Davíð Kristinsson á mest seldu bók-

ina á Íslandi frá áramótum, 30 dagar leið til betri lífsstíls, skv. Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda. Davíð verður með ókeypis ráðgjöf í Nettó Reykjanesbæ þriðjudaginn 3. apríl kl. 16 til 18.Davíð Kristinsson hefur starfað sem einkaþjálfari í 15 ár og sér-menntað sig sem næringar- og lífs-stílsþjálfari. Hann rekur nú Heilsu-þjálfun ehf. á Akureyri ásamt eiginkonu sinni Evu Ósk. Hann segir að mataræðið sem kynnt er í bókinni 30 dagar – leið til betri lífsstíls, sé enginn kraftaverka- eða sveltikúr, heldur áhrifarík leið til að bæta heilsuna, koma jafnvægi á blóðsykurinn, vinna gegn ýmsum kvillum og öðlast aukna vellíðan og orku. Þetta megi gera með því að borða hreint fæði og útiloka mat sem gæti haft slæm áhrif á líkams-starfsemina.Í bókinni er að finna fróðleik um jákvæð og neikvæð áhrif mismun-andi fæðu, leiðbeiningar um hvað eigi að borða og hvað skal forð-ast, sem og grunnmatseðil fyrir 30 daga en einnig fitubrennslumat-seðil og framhaldsmatseðil.Í bókinni eru líka hátt á annað hundrað uppskriftir að hollum og girnilegum réttum, innkaupalistar og útskýringar þar sem farið er yfir dagana 30, skref fyrir skref. Einnig er í bókinni ítarleg líkamsræktará-ætlun í myndum, máli og töflum.Þann 3. apríl kl. 20-22 verður Davíð með námskeið um kvöldið. Hægt er að skrá sig á námskeiðið á www.30.is, á netfangið [email protected] og í síma 461 3200.

Á námskeiðinu er farið yfir:Svefn.Streitu.Hvaða matur virkar fyrir þig.Hvers vegna léttist ég ekki.Hvaða leiðir eru færar í mataræði.Skipulag og hagkvæmni.Hvaða mat á ég að forðast.Hvernig kem ég blóðsykrinum í lag og losna við sykurpúkann.

Þess ber að geta að yfir 5500 Ís-lendingar hafa farið í gegnum 30 daga hreinsun á mataræði.

Suðurnesjamaður með mest seldu bókina frá áramótum

Davíð Kristinsson hefur starfað við

einkaþjálfun í 15 ár.

Page 17: 12 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. mars 2014 17

Hrafnhildur Betty Adolfs-dóttir Young fæddist þann

20. desember 1943 í Keflavík. Hún lést 10. Janúar síðastliðinn í Bandaríkjunum. Foreldrar hennar voru hjónin Hans Adolf Helgason, f. í Keflavík 22.5. 1913, d. 13.2. 1987 og Guðrún Indriða-dóttir f. í Reykjavík 16.8. 1916, d. 15.6. 2009. Þau bjuggu allan sinn búskap í Keflavík. Systkini Hrafnhildar eru Vilhelm Bern-höft Adolfsson, f. 31.7. 1939, Ind-riði Arnar Adolfsson, f. 24.11. 1940, d. 18.8. 2009 og Sigríður Anna Adolfsdóttir, f. 31.12. 1949. Árið 1971 giftist Hrafnhildur William J. Young höfuðsmanni í Bandaríska flughernum sem hafði verið sendur hingað til lands frá Viet-nam. Fyrir átti Hrafn-hildur eina dóttur Guð-rúnu Helgu Mehring f. 18.7. 1965 en eiginkona Gúðrúnar Helgu er Monique Mehring og eru þær bú-settar í Baltimore, fyrir átti Moni-que tvö börn. Sama ár og Hrafn-hildur og William giftu sig fluttu þau til Bandaríkjanna. Næstu fimmtán árin áttu þau eftir að búa ýmist á Íslandi eða í Bandaríkj-unum þ.e. 5 ár í Bandaríkjunum en 10 ár hér á landi. Árið 1986 fór William svo á eftirlaun og þá fluttu þau alfarið til Charleston í Suður-Karólínu en þaðan er hann ættaður. Í bandaríkjunum starf-aði Hrafnhildur sem hárgreiðslu-kona. Útförin fór fram frá Kefla-víkurkirkju föstudaginn 14. mars klukkan eitt.Mig langar til þess að minn-ast frænku minnar Hrafnhildar Bettyar Adolfsdóttur Young í nokkrum fátæklegum orðum. Fyrstu viðbrögð mín við fréttunum um að þessi kraftmikla kona væri horfin á braut var óraunveruleika-tilfinning. Mér fannst svo ótrúlega stutt síðan við sátum saman einn sólríkan dag, hér heima á Íslandi, og ég tók viðtal við Betty um lífið í Suðurríkjum Bandaríkjanna.Á þeim tíma átti Betty, eins og vinir og ættingjar voru vön að kalla hana, 28 ár í hamingjusömu hjóna-

bandi með William J. Young. Þau Betty höfðu kynnst þegar hún vann hjá Birgðarstofnun Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli en hann var höfuðsmaður í Bandaríska hernum og hafði verið sendur hingað eftir að hafa verið í Víetnam.Viðtalið var fyrirhugað að birta í tímaritinu Nýju lífi og birtist í 98. tbl. 22. árg. 1999. Við fréttirnar af andlátinu tek ég fram blaðið og hef lesturinn: “Ég sit og bíð eftir að Betty mæti í viðtalið og á mín-

útunni sem við höfum mælt okkur mót hringir bjallan. Úti fyrir stendur kona grönn og spengileg. Ég veit að hún er 56 ára en hún lítur út fyrir að vera um fertugt. Um leið og Betty er komin inn fyrir dyrnar lifnar umhverfið við. Hún hefur greinilega lag á að skapa líf og fjör í kringum sig.”

Þessi orð lýsa Betty vel. Þessi orku mikla kona segir jafnframt frá því í viðtalinu þegar hún er spurð að því hvernig henni hafi tekist að aðlagast lífinu í Bandaríkjunum að sjálfsögðu hafi þetta verið ör-lítið erfitt í upphafi þar sem hún hafi farið í burtu frá ættingjum og vinum. Spurningin sé þó ávallt á endanum um að vorkenna sjálfum sér og leggjast í volæði eða finna upp á einhverju skemmtilegu sem gaman er að og lifa lífinu einsog maður eigi að gera það. Það sé hugarástand hvers og eins sem skipti mestu máli og að hún hafi aldrei verið á stað þar sem hún hafi verið óánægð: “Ég hef alltaf fundið eitthvað til þess að gleðjast yfir.”Já það er ótrúlegt að þessi orku-mikla kona sé horfin á braut. Betty sem kom í heimsóknir til Íslands tvisvar til þrisvar á ári og hljóp tvær og hálfa mílu á hverjum einasta degi í mörg ár. Þegar Betty var í heimsókn í Keflavík sáu íbúar bæjarfélagsins hana oft á hlaupum í hlýrabol, buxum og strigaskóm einum fata, jafnvel í hörkufrosti. Elsku William, Guðrún Helga, Sirrý, Villi og fjölskyldan öll. Ég votta ykkur innilega samúð mína.

Steinunn Björk Sigurðardóttir

Hrafnhildur Betty Adolfsdóttir Young

-minning

-aðsent

pósturu [email protected]

pósturu [email protected]

n Starfsfólk heimahjúkrunar skrifar:

Stöndum vörð um þjónustuúrræði við eldri borgara í heimahúsumÍ síðasta tölublaði Víkurfrétta

ritar Eyjólfur Eysteinsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjanesbæ, grein þar sem að hann fagnar fjölgun hjúkrunar-rýma á Suðurnesjum. Starfsfólk heimahjúkrunar fagnar einnig þessum áfanga og óskar Suður-nesjafólki til hamingju með nýtt og stórglæsilegt hjúkrunar-heimili á Nesvöllum. Fjölgun hjúkrunarrýma er þó einungis eitt púsl í heildarmyndinni. Til að koma til móts við þarfir eldir borgara sem búa í heimahúsum og eru að kljást við skerta færni eða veikindi er ekki nóg að fjölga hjúkrunarrýmum, annað þarf að koma til. Einstaklingar eru með misjafnar þarfir, það þurfa því að vera fjölbreytt úrræði í boði og er mikilvægt að góð samvinna ríki á milli þjónustuaðila. Við þurfum að hafa öfluga heimahjúkrun, fé-

lagslega aðstoð, dagdvalarúrræði ásamt aðgengi að endurhæfinga- og hvíldarinnlögnum.Við í heimahjúkrun greinum í auknu mæli þörfina á endurhæf-inga- og hvíldarinnlögnum hjá skjólstæðingum okkar. Einstakl-ingar eru veikari heima og hvílir mikið álag á aðstandendum. Við opnun nýs hjúkrunarheimilis skap-ast tækifæri á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að sinna þessari þjón-ustu. Ef við fáum fjármagn til. Þetta er hagsmunamál okkar allra og hvetjum við í heimahjúkrun Suðurnesjafólk til að standa betur vörð um Heilbrigðisstofnun Suður-nesja og berjast fyrir starfsemi sem mun þjóna eldri borgurum og að-standendum þeirra.

Virðingafyllst, starfs-fólk heimahjúkrunar

Markaðsstofa Reykjaness og Heklan standa fyrir námskeiði í notkun á Facebook og samfélagsmiðlum fyrir fyrirtæki á Suðurnesjum.

Á námskeiðinu verður farið yfir notkun á samfélagsmiðlum og verður gerð greining á Facebook síðum þátttakenda. Farið er í allt frá því hvernig Facebook síður eru stofnaðar til þess hvernig samfélagsvefurinn er notaður sem markaðstæki. Hvað ber að varast og hvar liggja tækifærin? Hvað virkar og hvað virkar ekki? Hvernig nær maður árangri og hvenær er maður að eyða tíma sínum til einskis? Hvernig á að búa til Facebook auglýsingar? Hvað eru Facebook öpp og get ég nýtt mér slíkt?Áhersla er lögð á að námskeiðið sé hagnýtt og fólk öðlist þekkingu sem það geti nýtt sér þegar í stað. Sérfræðingar í samfélagsmiðlum frá PIPAR/TBWA, Kristín Elfa Ragnarsdóttir, og PIPAR/TRAVEL, Unnar Bergþórsson, leiðbeina þátttakendum í gegnum efni námskeiðsins.

Námskeiðið virkar bæði fyrir þá sem kunna talsvert fyrir sér í tölvunotkun og þá sem lítið kunna. Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að geta nýtt miðilinn Facebook sem markaðstæki á markvissan hátt.

Staður: Frumkvöðlasetrið Eldey, Grænásbraut 506 á Ásbrú.Tími: Fimmtudagurinn 10. apríl kl. 8:00 - 12.00 (fyrir byrjendur).Föstudagurinn 11. apríl kl. 8:00 - 12:00 (fyrir lengra koma).

Skráning: Skráning fer fram á www.heklan.is, þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir miðnætti 3. apríl nk.Verð: 10.000 kr. Innifalið er námskeið, veitingar, úttekt á Facebook síðu og ráðgjöf frá Pipar/TBWA að námskeiði loknu. Frekari upplýsingar um námskeiðið er að finna á heklan.is eða hjá Dagnýju, [email protected] eða Þuríði, [email protected]

FACEBOOK OG SAMFÉLAGSMIÐLARNÁMSKEIÐ FYRIR FYRIRTÆKI

SUÐURNES GARÐUR GRINDAVÍK REYKJANESBÆR SANDGERÐI VOGAR

TIL LEIGU

Vatnsnesvegur 5 -atvinnuhúsnæði til leigu70 fm atvinnuhúsnæði með innkeyrslu-dyrum og góðri lofthæð á besta stað í Keflavík. Mjög auðveld aðkoma. Frekari upplýsingar í síma 661 7000.

Notaleg tveggja herbergja risíbúð á Þórustíg.Vel skipulögð tveggja herbergja risíbúð til leigu á Þórustíg í Njarðvík. Þvotta-hús, flottur garður, bílastæði og sól-pallur í sameign. Leiguverð er 70.000 kr á mánuði + hiti og rafmagn. 140.000 kr trygging. Laus strax. Nánari uppl í s: 774 2037 eða 820 0099.

TIL SÖLU

Hundasnyrting.Tek að mér að klippa og snyrta hunda. Löng reynsla. Sjá á FB Hundasnyrting. Kristín s.897 9002

ÞJÓNUSTA

BRÚÐKAUPSAFMÆLI

Skattframtalsgerð. Tek að mér gerð skattframtala fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. Bókhaldsþjónusta Suðurnesja sf Jónas Óskarsson Sími: 691 2361

- smáauglýsingar BílaviðgerðirPartasala

Kaupum bilaðaog tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979www.bilarogpartar.is

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 27. - 2. apríl nk. • Bingó • Listasmiðja • Handverk

• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.• Félagsvist • Bridge

• Hádegismatur • Síðdegiskaffi

Föstudaginn 28.mars n.k.á Nesvöl-lum kl. 14:00.

Kynning á þjónustu Securitas.

Allir velkomnir

Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.rnb.is

Forvarnir með næringu

STAPAFELLHafnargötu 50, Keflavík

NÝTT

Opið alla dagafram á kvöld

Þessi yndislegu hjón eiga 40 ára brúð-kaupsafmæli þann 29. mars næstkom-andi. Innilega til hamingju með daginn elskurnar okkar. Við elskum ykkur. Knús-kveðja frá dætrum, tengdasynum og barnabörnum.

Page 18: 12 tbl 2014

fimmtudagurinn 27. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR18

-íþróttir pósturu [email protected]

„Erum í kjörstöðu til þess að klára dæmið“

Logi Gunnarsson nýtur forréttindanna að fá að taka þátt í íslensku úrslitakeppninni Njarðvíkingar geta klárað Hauka á morgun

„Maður vissi að þetta yrði hörku-rimma. Við erum í kjörstöðu til þess að klára dæmið og mér líst vel á að spila á heimavelli á föstu-daginn fyrir okkar fólk. Þó svo að við höfum 2-0 forystu þá er ég óhræddur við það að menn verði værukærir eins og stundum vill verða,“ segir Logi en Njarð-víkingar hafa ekki klárað rimmu í lengri tíma í úrslitakeppni og nú telur Logi að tími sé til kominn. „Við höfum spilað mikið saman og eigum bara eftir að verða betri, sérstaklega með innkomu Ólafs Helga og Maciej.“ Logi veit sem er að Njarðvíkingar eru ekki búnir að vinna leikina gegn Haukum með mjög sannfærandi hætti, en hann telur það mikilvægt skref fyrir fé-lagið að komast áfram í næstu um-ferð eftir magurt gengi undanfar-inna ára í úrslitakeppninni. Liðið hefur ekki farið í undanúrslit síðan árið 2010 en þá töpuðu Njarðvík-ingar gegn Keflvíkingum 3-1.

Frábær tímasetning hjá Einari Á dögunum tilkynnti Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga að hann hyggðist hætta þjálfun meistaraflokks. Einar hefur verið með í verkefni sem hófst fyrir

rúmum tveimur árum þar sem ákveðið var að byggja liðið upp af ungum heimamönnum. „Það er búið að vera ákveðið ferli í gangi hjá þessu unga liði. Ég held að þetta sé frábær tímasetning hjá Einari að tilkynna þetta núna. Mér hefði fundist það óréttlátt hefði hann ekki gert það, þar sem margir leikmenn liðsins hafa verið með honum frá því að þeir fóru að drippla bolta. Það er gott að fá aukinn kraft með þessu og klára dæmið með Einari á frábærum nótum. Menn vilja oft klára fyrir þjálfara sinn á fullu gasi og gefa honum eitthvað til þess að geta gengið stoltur frá borði,“ segir Logi um ákvörðun þjálfarans. Nú er að klárast ákveðið tímabil hjá Njarðvík þar sem breytingar eru að verða á liðinu og stjórn. Elvar Már er að fara erlendis og nýr þjálfari kemur til með að stjórna liðinu í haust. Logi sjálfur samdi til árs tíma en hann segist vel getað hugsað sér að vera áfram í grænu. Hann sé þó aðeins að hugsa um úrslitakeppnina að svo stöddu og ekki farinn að huga að framtíðinni.

Íslenska úrslitakeppnin einstök

Logi segir að hann sé ánægður með

tímabilið hjá Njarðvík til þessa en hann kom til uppeldisfélagsins eftir langa dvöl erlendis áður en tíma-bilið hófst. „Auðvitað eru nokkrir leikir sem við hefðum viljað vinna og gaman hefði verið að fara alla leið í bikarúrslitin. Það gekk ekki eftir en svoleiðis er boltinn. Yfir heildina er ég sáttur við minn leik og liðsins.“ Logi er gríðarlega reynslumikill og hann reynir að miðla af visku sinni til ungu strákanna. Hann veit sjálfur hve sérstök íslensk úrslita-keppni er og á ferli sínum erlendis saknaði hann oft heimahaganna þegar vora tók. „Hér er maður að spila fyrir andlit sem maður þekkir í stúkunni og þetta er allt svo nærri manni. Þú ert að gera þetta fyrir þitt bæjarfélag og þitt fólk. Ég tel þetta bara vera þvílík forréttindi fyrir mig að fá svona leiki eins og gegn Haukum á föstudag.“ Logi segir að hann reyni að miðla þessu til ungu leikmannanna, að þeir eigi að njóta þessara augnablika.„Það er búin að vera frábær stemn-ing gegn Haukum hingað til og við treystum mikið á kraft og leikleik-gleði sem kemur að miklu leyti frá áhorfendum.“

Njarðvíkingar eru þessa stundina í bestu stöðu Suðurnesjaliðanna þegar tveimur leikjum er lokið í hverri rimmu í úrslitakeppni Domino’s deildar karla í körfubolta. Njarðvíkingar leiða 2-0 gegn Haukum og getur liðið tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri í Ljónagryfjunni á morgun. Bakvörðurinn reyndi Logi Gunnarsson hefur ýmsa fjöruna sopið en hann er afar sáttur við stöðuna sem og tímabilið í heild, en Logi kom sem kunnugt er úr atvinnumennsku til Njarðvíkinga fyrr í vetur.

Stóri maðurinn búinn að léttast um 15 kíló

Miðherjinn Trac y Smith hefur heldur betur vakið

athygli fyrir vakslega framgöngu að undanförnu enda búinn að leika stórkostlega gegn Haukum. Kappinn var ekki ýkja hreifan-legur þegar hann mætti fyrst í Ljónagryfjuna og mátti sæta nokkurri gagnrýni fyrir auka-kílóin. „Hann er að nálgast sitt

besta form og það sést vel á leik hans,“ segir Logi en Smith er búinn að missa heil 15 kíló síðan hann kom um síðustu áramót. „Hann er klárlega besti stóri leikmaðurinn í þessari deild, ásamt Michael Cra-ion,“ segir Logi að lokum en Njarð-víkingar freista þess að klára Hauka á morgun í Ljónagryfjunni.

„Ég held að það hafi enginn gert ráð fyrir því að við myndum lenda í svona vandræðum í fyrstu tveimur leikjunum gegn Stjörn-unni. Mér dettur ekkert annað orð en vanmat í hug,“ sagði Kefl-víkingurinn Guðmundur Jóns-son en þriðji leikur Keflvíkinga og Stjörnunnar í Domino´s deildinni í körfubolta verður í TM höllinni annað kvöld.Stjörnumenn hafa unnið tvo fyrstu leikina sannfærandi og örugg-lega. Guðmundur segir að tapið í fyrsta leiknum hafi verið óvænt og köld vatnsgusa í andlit Kefl-víkinga. Hugarfarið í upphitun í öðrum leiknum hafi verið gott en ekki skilað sér þegar í leikinn var komið. „Það var einhver helv… hræðsla um að staðan yrði slæm ef við töpuðum. Einbeitingin sem sagt úti á túni, fannst mér.“Nú eru Keflvíkingar með bakið upp að vegg og verða að sigra í leiknum ætli þeir sér ekki að fljúga beint í sumarfríið.„Við höfum ekki náð að leika þann bolta sem við gerðum svo vel í vetur, höfum reyndar ekki gert

það eftir nauma tapið fyrir KR á dögunum. Ég trúi ekki öðru en að þessar rassskellingar veki okkur. Við erum með mjög gott lið og þess vegna segi ég ískaldur að það sé ekkert óraunhæft að við vinnum Stjörnuna þrisvar í röð. En það þarf að byrja á því að vinna næsta leik. Það er fyrsti hluti í því stóra verkefni.“Guðmundur hefur leikið vel með Keflavík í vetur. Smollið inn í liðið eins og innfæddur Keflvíkingur þótt hann hafi alið manninn hjá Njarðvík og eigi bróður í ná-grannaliðinu.„Það var pínu skrýtið fyrst að vera í Keflavíkurbúningi en mjög fljótt að venjast. Mér líður afar vel í Keflavík og mér hefur verið tekið mjög vel,“ en kappinn endurnýjaði samning við liðið nýlega.Aðspurður um amerískan þjálfara liðsins segir Guðmundur að hann sé mjög ánægður með hans störf og hafi aldrei haft annan eins þjálf-ara. „Mér fannst ég hreinlega vera að byrja í körfubolta fyrst eftir að hann kom. Hann kom með nýjar víddir inn í boltann okkar.“

Grindavík mætir Þór í þriðja leik liðanna í 8 liða úrslitum

Domin's deildarinnar í körfu-bolta í kvöld. Liðin hafa unnið sitt

hvorn leikinn. Grindvíkingar urðu fyrir áfalli þegar Þorleifur Ólafsson, fyrirliði meiddist í síðasta leik og verður ekkert meira með.

Trúi ekki öðru en að þessar rassskellingar veki okkur-segir Guðmundur Jónsson leikmaður Keflavíkur. Þriðji leikurinn gegn Stjörnunni á föstudagskvöld í Keflavík.

Grindvíkingar mæta ÞÓR í kvöld

Page 19: 12 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. mars 2014 191

4-0

81

5 -

HV

ÍTA

SIÐ

/ S

ÍA

/ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /

Viltu þjóna flugi með okkur?

Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna

Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbygg- ingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.

Isavia leitar að öflugum smiði í viðhaldsteymi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og fjöl- hæfum rafvirkja eða rafeindavirkja til að vinna við viðgerðir og eftirlit með rafmagnskerfum og rafbúnaði Keflavíkurflugvallar. Umsækjendur þurfa að hafa sveinsbréf í viðkomandi fögum og búa yfir góðri tölvu- og tungumálakunnáttu.

Isavia óskar eftir að ráða smið og rafvirkja eða rafeindavirkja

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl. Umsóknum skal skila inn rafrænt á www.isavia.is/atvinna, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar.

Golfklúbbur Suðurnesja varð 50 ára 4. mars sl. og það er

okkar markmið á hálfrar aldar afmæli klúbbsins að reyna eftir

fremsta megni að gera golfsumarið eftirminnilegt og skemmtilegt fyrir klúbbfélaga. Með það markmið í far-teskinu stefnum v i ð á a ð h a l d a

uppi líflegu félagsstarfi, að halda skemmtileg innanfélagsmót og hvetjum alla félaga til að vera duglega að taka þátt.

MótamálVið vonum að vorið í ár verði gott hér á Suðurnesjum, enda stefnum við á að halda afmælismótaröð GS í apríl. Vormótin okkar hafa verið vel sótt undanfarin ár því Hólms-völlur er fljótur að taka við sér í byrjun sumars (og hjá golfurum byrjar sumarið eigi síðar en 1. apr-íl). Eins og vanalega höldum við Þ-mótunum gangandi í allt sumar, en þau eru innanfélagsmót sem haldin eru flesta þriðjudaga frá maí fram í september. Þ-mótin hafa verið vin-sæl meðal félaga Golfklúbbs Suður-nesja og hörð keppni er háð um sigur í mótaröðinni ár hvert. Í fyrra stóðu uppi sem stigameistarar þau Karitas Sigurvinsdóttir og Guð-finnur S. Jóhannsson.Í sumar munum við einnig endur-

vekja MasterCard-bikarinn. Í fyrstu umferð MasterCard-bik-arsins verður leikið eftir punkta-fyrirkomulagi og 64 efstu kylfingar keppa svo í holukeppni með forgjöf þar til einn stendur uppi sem sigur-vegari. Að auki heldur GS fjölmörg opin golfmót fyrir íslenska kylfinga þar sem öllum er heimil þátttaka.Vilhjálmsbikarinn er mót sem fjöl-skylda Vilhjálms Vilhjálmssonar hefur haldið undanfarinn áratug í Leirunni til minningar um Vil-hjálm Vilhjálmsson, kylfing úr GS, sem lést árið 2000 aðeins tvítugur að aldri. Mótið hefur einnig verið kallað Íslandsmótið í Greensome en það er einmitt leikfyrirkomu-lagið sem er leikið eftir í Vilhjálms-bikarnum. Sú breyting verður á að héðan í frá mun Golfklúbbur Suðurnesja standa að baki mót-inu og verður það haldið í ágúst-

mánuði samkvæmt venju. Opna EGF kvennamótið verður haldið á Hólmsvelli um miðjan júní og verður mikið í það lagt enda eiga konurnar okkar skilið aðeins það besta. Það eru vonir okkar að EGF kvennamótið eigi eftir að skjóta rótum hjá okkur og verða að ár-legum viðburði héðan í frá.

Öflugt kvennastarfKonurnar í klúbbnum hafa átt frá-tekinn tíma á Leirunni á mánu-dögum og verður þannig áfram. Þarna koma saman konur af öllum getustigum, leika golf og skemmta sér. Þetta er tilvalinn vettvangur fyrir þær konur sem eru að taka fyrstu skrefin í golfíþróttinni því stefnt verður að því að hafa leið-beinanda til taks á þessum konu-tímum í sumar. Mótum hefur verið slegið upp hjá GS konum bæði á

Leirunni og Jóel, en á Jóelnum hitt-ast nýliðar alltaf á miðvikudögum. Nánar er hægt að kynna sér kvenna-starfið á heimasíðunni gs.is.Síðasta sumar var slegið upp tveimur léttum vinaklúbbamótum, GS konur fóru þá til GSE kvenna í Golfklúbbi Setbergs og Setbergs-konur heimsóttu okkur á Hólms-völl. Þetta þótti heppnast afbragðs vel og stendur til að endurtaka leik-inn í sumar.Þær konur sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi GS kvenna er bent á að 23. apríl nk. verður haldið sumaropnunarteiti GS kvenna í golfskálanum til að kynna starfið sem framundan er.Bjóðum nýja félaga velkomna – golf er fyrir allaGolf er frábært áhugamál og heilsu-rækt. Golf er alltaf hægt að stunda, sama hvernig viðrar því veðurfar er hugarfar. Golf er íþrótt sem allir geta stundað saman, frábært fjöl-skyldusport þar sem margir ætt-liðir geta jafnvel verið saman í holli ef því er að skipta. Áhugasömum er bent á að kíkja á heimasíðu GS til að kynna sér sérstakt nýliðatilboð sem er í boði nú á afmælisárinu.

Heimasíða Golfklúbbs Suðurnesja – gs.is

Heimasíða klúbbsins hefur verið tekin hressilega í gegn og virkni hennar aukin. Síðan á eftir að gegna

miklu hlutverki fyrir félaga í framtíð-inni, en þar er hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um klúbbinn, fé-lagsstarfið, þá viðburði sem fram-undan eru og senda fyrirspurnir.Skemmtileg viðbót á heimasíðunni er tenging við samfélagsmiðilinn Instagram og við hvetjum alla golf-ara að vera með símann við hend-ina í sumar, smella af myndum í Leirunni og merkja #leiran til að deila með öðrum hvernig lífið er í Leirunni.

Hólmsvöllur í hálfa öldVið hér á Suðurnesjum eigum þessa dásamlegu perlu sem Hólms-völlur er. Í Leirunni byrjum við að leika golf fyrr á árinu og hættum seinna en á flestum öðrum golf-völlum landsins. Það eru forrétt-indi okkar Suðurnesjamanna að geta farið í golf nánast hvenær sem okkur dettur í hug – og við ættum að nýta okkur það. Hólmsvöllur tekur vel á móti öllum. Hlakka til að hitta ykkur í Leirunni í sumar.

Frábært félagsstarf á fimmtíu ára afmælisárinu– Jóhann Páll Kristbjörnsson, formaður móta- og nýliðanefnda Golfklúbbs Suðurnesja

Kinga Korpak, einn efnilegasti kylfingur GS á 6. teig í Leirunni

Hólmsvöllur í hálfa öld

PÁSKAPÚTTMÓTARÖÐ UNGL-INGAHÓPS GS Í HF Í KVÖLD FRÁ KL. 19. TÍU PÁSKAEGG OG FLEIRI VINNINGAR Í BOÐI.

Page 20: 12 tbl 2014

vf.isvf.is

FIMMTUDAGURINN 27. MARS 2014 • 12. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

-mundiRúmast þú ekki í þínum flokki?

Það er kannski tækifæri í Garðinum ef þeir samþykkja persónukjör...

Vinnur áROÐA, ÞURRK

Og stReKKtRi húÐÁN PARABENA, LITAR- OG ILMEFNA

KOmdU meÐ bROddAnA

nú eR viÐKvæm húÐ mÍn tilbúin

niveA.com

nýtt

VIKAN Á VEFNUM

Guðmundur AuðunÉg get ekki séð að Böðvar hafi svarað neinni af spurn-ingum Særúnar.

Hann virðist vilja grafa þetta niður sem fyrst. #dapurt

BensoKeflavík 2-0 undir á móti Stjörnunni, Árni Sigfússon hlýtur að boða til

blaðamannafundar og lofa álveri í Helguvík#leysiröll-heimsinsvandamál

Arnór Ingvi TraustaAlltaf gaman að sjá Njarðvík vinna! #letsdothis

Anton Ingi LeifssonTeitur Örlygs er svo endalaust mikill winner! Respect á

hann!

Brynjar Guðlaugsson Lélegasta frammi-staða Keflavíkur töl-fræðilegaséð í vetur,

og aðeins 9 stig. Guð hjálpi stjörnunni ef við spilum bara miðlungs góðan bolta.

Aron HlynurEr ekki búinn að taka upp bók í þessu verkfall, er ég einn um það? #bóka-

ormur

Róbert Þór GuðnasonAndy verður at-vinnulaus næst-komandi föstudag

kl 22:00

Einar Daníelsson Langaði þig alltaf að leika í bíómynd og vera frægur eins og Ólafur Darri og

Mark Wahlberg? Það er enn hægt! Þeir sem hafa áhuga á að vera aukaleikarar á Kefla-víkurflugvelli á laugardaginn kemur endilega hafið samband við Sunna Guðrún Pétursdóttir með því að senda póst á [email protected]. Laun í boði! Viðkomandi þarf helst að vera yfir 35 ára.