24
vf.is vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA FIMMTUDAGURINN 6. NÓVEMBER 2014 43. TÖLUBLAÐ 35. ÁRGANGUR Sonur með Downs heil- kenni gjörbreytti lífi Grindvíkingsins Sólnýjar Pálsdóttur bls. 12-13 Hringbraut 99 - 577 1150 25% AFLSÁTTUR á Nutrilenk 180 stk. GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457 H eildarkostnaður vegna stækkunar Bláa lónsins og byggingar lúxushótels nemur 6 milljörðum króna en mannvirki staðarins munu tvöfaldast í stærð. Heildar- stækkun á núverandi- og nýju upplifunarsvæði ásamt hóteli nemur um 10.000 fm. Á fram- kvæmdatíma sem áætlað er að verði tvö ár munu 150 starfs- menn starfa við verkefnið. Nýtt upplifunarsvæði verður byggt inn í hraunið vestur af núverandi lóni og mun svæðið tengja núverandi lón og lúxus- hótel. Með tilkomu hótelsins verður fyrsta flokks gisting hluti af upplifun í Bláa Lóninu. Í hótelinu er gert ráð fyrir 60 her- bergjum, veitingastað og fjöl- nota fundarsal. Stækkun og endurhönnun nú- verandi upplifunarsvæðis er mikilvægur þáttur í uppbygg- ingunni, en lónið sjálft verður stækkað um helming. Ný og glæsileg aðstaða fyrir spa með- ferðir sem boðið er upp á ofan í Lóninu er hluti stækkunarinnar. Hluti endurhönnunar felst einnig í enn betri hitastýringu á lóninu sjálfu auk þess sem að- gengi að hreinlætisaðstöðu á lónsvæðinu verður aukið. Verk- efnið er í takt við þróun Bláa Lónsins undanfarin ár þar sem jafnt og þétt hefur verið unnið að því að auka úrval og gæði þjónustu. Jarðvegsframkvæmdir munu hefjast í árslok 2014 og áætlað er að uppbyggingunni verði lokið vorið 2017. „Uppbyggingin er táknræn fyrir áherslu Bláa Lónsins um að styrkja stöðu sína sem ein- stakur viðkomustaður ferða- manna á heimsvísu. Ísland þarf í auknum mæli að horfa til þess að höfða til fólks sem leitar eftir miklum gæðum í þjónustu og aðbúnaði. Bláa Lónið vill halda áfram að sinna forystu í því að leiða íslenska ferðaþjónustu enn frekar á þær brautir og stuðla þannig að aukinni samkeppnis- hæfni Íslands á alþjóðlegum ferðamannamarkaði,“ segir“ Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins. Sigríður Sigþórsdóttir, hjá Bas- alt arkitektum, er aðalhönnuður verkefnisins, en hún er arkitekt allra mannvirkja Bláa Lónsins. Sigríður hefur starfað með Bláa Lóninu í tæplega tvo áratugi eða allt frá því að undirbúningur að núverandi mannvirkjum hófst um miðjan tíunda áratuginn. Hönnun Sigríðar fyrir Bláa Lónið hefur vakið athygli hér heima og erlendis, ekki hvað síst fyrir samspil hins manngerða og náttúrulega umhverfis. Upplifunarhönnun er órjúfan- legur þáttur af hönnun Bláa Lónsins og hefur teymi starfs- fólks Bláa Lónsins ásamt Sigurði Þorsteinssyni og fyrirtæki hans Design Group Italia, unnið að þeim þætti hönnunarinnar. Sigurður, sem er búsettur í Milano á Ítalíu hefur unnið með Bláa Lóninu undanfarin tuttugu ár og stýrt þróun vöru- merkis, ímyndar og upplifunar í samvinnu við stjórnendur Bláa Lónsins. Gert er ráð fyrir 100 nýjum störfum í tengslum við stækkun upplifunarsvæðis Bláa Lónsins og mun hluti starfsfólks hefja störf á framkvæmdatíma. Störfin verða fjölbreytt, en eins og önnur störf hjá fyrirtækinu munu þau miða að því að veita gestum Bláa Lónsins góða og fágaða þjónustu. Hluti starfanna sem verða til við stækkunina munu kalla á háskólamenntað fólk og starfsmenn með sér- þekkingu á sviði heilsu og vel- líðunar. Hjá Bláa Lóninu starfa um 300 starfsmenn á ársgrunni. Að framkvæmdum loknum er gert ráð fyrir því að heildar- starfsmannafjöldi verði 400. Bláa Lónið hefur framkvæmdir við stækkun upplifunarsvæðis og byggingu lúxushótels. Starfsmenn verða 400 að loknum framkvæmdum: Framkvæmdir fyrir 6 milljarða bls. 10 Unnu mál í hér- aðsdómi vegna fasteignaláns hjá Sparisjóðnum í Keflavík

43 tbl 2014

Embed Size (px)

DESCRIPTION

43. tbl. 35. árg. 2014.

Citation preview

Page 1: 43 tbl 2014

vf.isvf.is

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.isauðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

FIMMTUDAGURINN 6. NÓVEMBER 2014 • 43. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

Sonur með Downs heil-kenni gjörbreytti lífi Grindvíkingsins Sólnýjar Pálsdóttur

bls. 12-13

Hringbraut 99 - 577 1150

25% AFLSÁTTUR

á Nutrilenk 180 stk.

GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA

ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ

HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457

Heildarkostnaður vegna stækkunar Bláa lónsins

og byggingar lúxushótels nemur 6 milljörðum króna en mannvirki staðarins munu tvöfaldast í stærð. Heildar-stækkun á núverandi- og nýju upplifunarsvæði ásamt hóteli nemur um 10.000 fm. Á fram-kvæmdatíma sem áætlað er að verði tvö ár munu 150 starfs-menn starfa við verkefnið. Nýtt upplifunarsvæði verður byggt inn í hraunið vestur af núverandi lóni og mun svæðið tengja núverandi lón og lúxus-hótel. Með tilkomu hótelsins verður fyrsta flokks gisting hluti af upplifun í Bláa Lóninu. Í hótelinu er gert ráð fyrir 60 her-bergjum, veitingastað og fjöl-nota fundarsal. Stækkun og endurhönnun nú-verandi upplifunarsvæðis er mikilvægur þáttur í uppbygg-ingunni, en lónið sjálft verður stækkað um helming. Ný og

glæsileg aðstaða fyrir spa með-ferðir sem boðið er upp á ofan í Lóninu er hluti stækkunarinnar. Hluti endurhönnunar felst einnig í enn betri hitastýringu á lóninu sjálfu auk þess sem að-gengi að hreinlætisaðstöðu á lónsvæðinu verður aukið. Verk-efnið er í takt við þróun Bláa Lónsins undanfarin ár þar sem jafnt og þétt hefur verið unnið að því að auka úrval og gæði þjónustu.Jarðvegsframkvæmdir munu hefjast í árslok 2014 og áætlað er að uppbyggingunni verði lokið vorið 2017. „Uppbyggingin er táknræn fyrir áherslu Bláa Lónsins um að styrkja stöðu sína sem ein-stakur viðkomustaður ferða-manna á heimsvísu. Ísland þarf í auknum mæli að horfa til þess að höfða til fólks sem leitar eftir miklum gæðum í þjónustu og aðbúnaði. Bláa Lónið vill halda áfram að sinna forystu í því að

leiða íslenska ferðaþjónustu enn frekar á þær brautir og stuðla þannig að aukinni samkeppnis-hæfni Íslands á alþjóðlegum ferðamannamarkaði,“ segir“ Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins.Sigríður Sigþórsdóttir, hjá Bas-alt arkitektum, er aðalhönnuður verkefnisins, en hún er arkitekt allra mannvirkja Bláa Lónsins. Sigríður hefur starfað með Bláa Lóninu í tæplega tvo áratugi eða allt frá því að undirbúningur að núverandi mannvirkjum hófst um miðjan tíunda áratuginn. Hönnun Sigríðar fyrir Bláa Lónið hefur vakið athygli hér heima og erlendis, ekki hvað síst fyrir samspil hins manngerða og náttúrulega umhverfis. Upplifunarhönnun er órjúfan-legur þáttur af hönnun Bláa Lónsins og hefur teymi starfs-fólks Bláa Lónsins ásamt Sigurði Þorsteinssyni og fyrirtæki hans Design Group Italia, unnið að

þeim þætti hönnunarinnar. Sigurður, sem er búsettur í Milano á Ítalíu hefur unnið með Bláa Lóninu undanfarin tuttugu ár og stýrt þróun vöru-merkis, ímyndar og upplifunar í samvinnu við stjórnendur Bláa Lónsins.Gert er ráð fyrir 100 nýjum störfum í tengslum við stækkun upplifunarsvæðis Bláa Lónsins og mun hluti starfsfólks hefja störf á f ramkvæmdatíma. Störfin verða fjölbreytt, en eins og önnur störf hjá fyrirtækinu munu þau miða að því að veita gestum Bláa Lónsins góða og fágaða þjónustu. Hluti starfanna sem verða til við stækkunina munu kalla á háskólamenntað fólk og starfsmenn með sér-þekkingu á sviði heilsu og vel-líðunar. Hjá Bláa Lóninu starfa um 300 starfsmenn á ársgrunni. Að framkvæmdum loknum er gert ráð fyrir því að heildar-starfsmannafjöldi verði 400.

■■ Bláa Lónið hefur framkvæmdir við stækkun upplifunarsvæðis og byggingu lúxushótels. Starfsmenn verða 400 að loknum framkvæmdum:

Framkvæmdir fyrir 6 milljarða

bls. 10

Unnu mál í hér-aðsdómi vegna fasteignaláns hjá Sparisjóðnum í Keflavík

Page 2: 43 tbl 2014

2 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

Lumar þú á góðri hugmynd fyrir bæinn þinn eða vilt koma grein á framfæri?

Íbúavefurinn er vettvangur fyrir íbúa til að safna fylgi bak við hugmyndir sínar.Vefurinn er vaktaður og hugmyndum sem íbúar sameinast um er komið í ferli innan stjórnsýslunnar. 

Áhrif í krafti fjöldans!

PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR 21. nóvember í Stapa

JÓLATÓNLEIKAR KK & ELLENAR 12. desember í Stapa

VALDIMAR30. desember í Stapa

MIÐASALA Á HLJOMAHOLL.IS

Skólaþing verður haldið í Heiðarskóla, laugardaginn 15. nóvember kl. 10:30 – 13:30. Á þinginu gefst skólasamfélaginu tækifæri til þess að hafa áhrif á skólastarfið og hvert skólinn stefnir í menntun nemenda.

Dagskrá :10:30 - Setning og söngur nemenda skólans10:40 - Nýir tímar10:50 - Nýir kennsluhættir 11:00 - Hvernig manneskja vil ég vera11:10 - Nýtt námsmat 11:20 - Læsi í víðum skilningi11:30 - 12:00 - Matarhlé - Íslensk kjötsúpa í boði Skólamatar 12:00 - Sýn nemenda á skólastarf - Fulltrúar nemenda12:10 - 13:30 - Málstofur

Á þinginu verður formlega opnuð vefsíða með speglaðri kennslu í stærðfræði á unglingastigi.Ráðstefnustjóri : Helgi Grímsson formaður Samtaka áhugafólks um skólaþróun.

Foreldrar, forráðamenn, nemendur og allir aðrir sem áhuga hafa á skólamálum eru hvattir til þess að mæta og hafa áhrif á þróun skólastarfs í Heiðarskóla.

Rafræn skráning er á www.heidarskoli.is

ÍBÚAVEFUR REYKJANESBÆJAR

HLJÓMAHÖLLDAGSKRÁ FRAMUNDAN

SKÓLAÞING HEIÐARSKÓLA

MEÐ NESTI OG NÝJA SKÓ-HORFT TIL FRAMTÍÐAR-

-fréttir pósturu [email protected]

Fjölmenni á íbúafundi um fjárhagsstöðu

Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar er mjög slæm og hefur verið á rauðu ljósi í langan tíma en þó er

hægt að laga hana á næstu árum með ákveðnum aðgerðum að því er fram kom í máli sérfræðinga KPMG á íbúafundi um fjárhagsstöðu Reykjanes-bæjar á Stapa á miðvikudag í síðustu viku. Bærinn skuldar um 40 milljarða króna.Sérfræðingar KPMG úrskýrðu vel stöðuna og hvað þyrfti að gera á næstunni en það er í stuttu máli að finna 900 milljónir á ári, um 500 í sparnaði og um

400 millj. í auknum tekjum. Þá mun óhjákvæmilega þurfa að hækka skatta og útsvar líklega líka.Fundurinn fór nokkuð friðsamlega fram, nokkrar spurningar bárust úr sal og svöruðu sérfræðingar KPMG eða Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri þeim. Um fjögurhundruð manns sóttu fundinn en um tvö þúsund manns fylgdust með í beinni út-sendingu á netinu.Víkurfréttir tóku oddvita meirihluta bæjarstjórnar tali í vikunni vegna stöðunnar.

„Þarf að leita svara hjá þeim sem mótuðu stefnuna“

-segir Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar

Friðjón Einarsson oddviti Sam-fylkingar í Reykjanesbæ kveðst

ánægður með íbúafundinn og við-tökur íbúa. „Við erum að byrja langt og strangt ferli og erum í mikilli vinnu með það. Við erum þakklát með viðtökur á þeim upplýsingum sem við erum að leggja fram. Við erum í þeirri vinnu að skilgreina og fljót-lega munum við leggja fram nýja fjár-

hagsáætlun,“ segir Friðjón. Hann segir fundinn fyrst og fremst hafa snúist um tölulegar upplýsingar frá bæjar-sjóði. „Ég veit að það hefur verið mikið áfall fyrir íbúa að heyra um raunstöðu bæjarins, þess vegna er ég sér-staklega ánægður með hvernig fundurinn fór vel fram. Ég átti ekki von á öðru í sjálfu sér.“

Sóknin ómöguleg ef þú hefur ekki trú á því að skora

-segir Gunnar Þórarinsson oddviti hjá Frjálsu Afli

Gunnar Þórarinsson hjá Frjálsu afli telur að skilaboðin á íbúa-

fundinum hafi verið góð og komist til skila. „Þeir íbúar sem ég hef heyrt í eru almennt ánægðir. Við vorum búin að leggja fundinn upp þannig að pólitíkinni yrði ekki blandað inn í þetta. Ég hef þó heyrt af því að fólk velti því fyrir sér af hverju stjórnmálin hafi ekki verið til umræðu en ég tel

okkur hafa útskýrt það vel. Næstu skref eru að ganga frá fjárhagsáætlun þannig að hún skili okkur þeim árangri sem við stefnum að. Svo þarf að berjast fyrir auknum verkefnum og finna meiri tekjur. Við þurfum að fá íbúa og ýmsa rekstraraðila með okkur í það að efla atvinnulífið og fá þar meiri tekjur inn. Sem betur fer er vaxandi ferðaþjónusta en það dugar hvergi, það þarf mun meira til. Það kemst enginn áfram nema með mikilli bjartsýni. Öðruvísi skorar þú ekki. Ef þú heldur að þú getir ekki skorað þá er sóknin ómögu-leg,“ segir Gunnar. Hann segir samstarf nýs meirihluta og bæjarstjóra hafa gengið ágætlega það sem af er. Risavaxið verkefni sé fyrir höndum og kappkostað við að leysa það.„Ég held að allir þeir sem hafi verið í bæjarstjórn á undan-förnum árum beri einhverja ábyrgð á þessu. Hitt er annað mál að margt að því sem er að valda þessu var komið fyrir mína tíð. Sem dæmi má nefna þessar miklu skuldir við Fasteign, þessar miklu skuldir hafnarinnar. Ég fór inn í þetta því ég vissi að þetta yrði erfitt á sínum tíma og vildi finna einhverjar lausnir. Auðvitað einbeittum við okkur of mikið að því að fá einhver verkefni hérna inn. Það hefur auðvitað brugðist. Við vorum með þá von í brjósti að t.d. álverið kæmi hingað. Það hefur auðvitað allt saman brugðist, af forsendum sem við ráðum ekkert við.“

Duga engar afsakanir núna-segir Guðbrandur Einarsson, oddviti Beinnar leiðar

Guðbrandur Einarsson oddviti Beinnar leiðar telur að flestir hafi

gert sér grein fyrir stöðu mála og að talsverk verk væri fyrir höndum. Hann segir viðbrögð bæjarbúa eftir fund-inn hafa verið jákvæð. Guðbrandur segir þó að það hafi komið sér á óvart hversu friðsamur fundurinn hafi verið. „Ég veit ekki endilega hvort ég hafi búist við látum en fundurinn var

þannig settur upp að verið var að upplýsa, frekar en ein-hver bardagi milli pólitíkusa, það virðist hafa heppnast ágætlega.“

Horfir Guðbrandur nú fram á veg eða hugsar til fortíðar?„Ég er ekki hættur að spá í fortíðina. Við erum öll að koma einhvers staðar frá og það skiptir máli að við lærum af reynslunni og við vitum hvaðan við komum. Ég lít samt þannig á að samstaða um aðgerðir sé mjög mikilvæg, þess vegna er ég að einblína á það sem þarf að ráðast í frekar en það sem hefur gerst. Þó ekki þannig að það sé bara gleymt og grafið sem hefur gerst.“

Guðbrandur segir fólk vera sammála um meginmarkmið og um það sem þarf til að ná tökum á því ástandi sem allir séu meðvitaðir um að sé til staðar. „Við eigum eftir að fara í greiningu um hvað eigi að gera og þá er ekkert víst að allir verði sammála um það. Nákvæmlega hvaða leiðir verða valdar til þess að ná þessum markmiðum vitum við ekki núna á þessu stigi máls og samstaða getur því brostið. Við erum auðvitað meðvituð um þær aðgerðir sem þarf að ráðast þarf í til þess að ná markmiðunum, sem við höfum ekkert val um að þurfi að ná. Það eru skýr lagafyrirmæli um það sem þarf að nást hérna.“

Hvaða varðar fortíðina og ástæður þess að staðan er eins og hún er, segist Friðjón ekki telja í sínum verkahring að svara fyrir það. Þeir sem voru við stjórnvölinn verði að gera það.„Að mínu viti er eiginlega ekki hægt að skilja fortíð og framtíð að. Það er ljóst að við erum í þessum vandamálum vegna fortíðarinnar. Þeir sem réðu ríkjum áður þurfa að svara fyrir þessar tölur sem kynntar voru á fundinum. Ég lít ekki svo á að það sé mitt að gera það. Það vita það allir sem fylgjast með stjórnmálunum í Reykjanesbæ að ég hef gagnrýnt fjárhagsáætlanagerð í fjölmörg ár, þannig að þessar tölur koma mér að sjálfu sér ekkert á óvart. Það er þó alveg ljóst að þetta hefur ekkert með herinn að gera. Staðan er slæm og það þarf að leita svara hjá þeim sem mótuðu stefnuna á þessum tólf árum, þeir þurfa að svara fyrir það, ég mun ekki gera það.“

Gerðuð þið í minnihlutanum á síðasta kjörtímabili nægilega mikið til þess að hafa áhrif á stöðuna?„Það er bara eðli stjórnmálanna að þeir sem ráða á hverjum tíma hafa mikið vald. Minnihluti getur stundum lítið gert annað en að benda á. Við reyndum að gera það allan tímann en því miður var ekki hlustað nóg á okkur. Það er þó auðvelt að vera vitur eftir á.“

Page 3: 43 tbl 2014

Þér og vinkonum þínum er boðið á huggulegt konukvöld og í létt dekur, fimmtudaginn 13. nóvember klukkan 19:30, í verslun okkar í Bláa Lóninu.

TAKTU DAGINN FRÁKONUKVÖLD 13. NÓVEMBER Í BLÁA LÓNINU

• 30% afsláttur af Blue Lagoon húðvörum

• 20% afsláttur af öðrum vörum

• Leyndarmálið á bak við ljómandi húð

• Veitingar frá matreiðslumeisturum LAVA

• Tónaflæði í höndum DJ Natalie

• Óvæntur glaðningur

Page 4: 43 tbl 2014

4 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

vf.isvf.isÚtgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected]éttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected] P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, [email protected], Eyþór Sæmundsson, [email protected]ýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected] P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, [email protected], Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected], Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einnsólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

SÍMI 421 0000

-viðtal pósturu [email protected]

Særún Rósa Ástþórsdóttir, verkefna-stjóri hjá MSS, vinnur að innleiðingu á aðferðum til hjálpar brotthvarfs-nemendum. Aðferðirnar lærði hún í Frakklandi og fékk þjálfun m.a.í gegnum Skype. Stefnt er að því að vinna með sem flestum menntastofn-unum á Suðurnesjum.„Innleiðingin gengur út á sam-skiptaaðferð, kennsluaðferð frá skól-anum og kennslumyndbönd. Gengið er út frá því að virkja styrkleika ein-staklinga, færa þeim ný verkefni, nýjar áskoranir og þeir eru spurðir að því hvað þeir vilja sjálfir gera. Það er n.k. matskerfi á því hvar erfiðleik-arnir liggja og hvernig er hægt að mæta þeim til að ná árangri,“ segir Særún Rósa Ástþórsdóttir, verkefna-stjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, en MSS vinnur að inn-leiðingu á aðferðum til hjálpar brott-hvarfsnemendum. „Þetta kom til með þeim hætti að kennari hjá okkur hitti konu frá Frakklandi sem hefur verið að vinna með brotthvarfsnemendur og hún benti henni á okkur og MSS var boðið í samstarf með mennta-stofnunum frá sex öðrum löndum. Þetta passaði vel við okkar starfsemi vegna þess að við erum m.a. að vinna með brottfallsnemendum,“ segir Særún. Starfsfólk MSS sé ætíð mót-tækilegt fyrir nýjum aðferðum til að takast á við námserfiðleika.

Sjái eigin þátt í ákvarðanatökumHlutverk MSS í verkefninu er í raun að deila reynslu sinni og stöðu brotthvarfsnemenda hér á landi og innleiða aðferðirnar sem unnið er með í Frakklandi. Þetta er viða-mikið verkefni sem tekur tvö ár. „Við erum búin að fara nokkrum sinnum til mismunandi landa. Ég fór í ein-staklingsþjálfun í gegnum skype og svo unnum við nánar með aðferð-ina á vinnufundunum úti. Aðferðin gengur út á það að einstaklingur átti sig á eigin hlutverki í ákvarðanatöku. Þegar ég bregst við einhverju þá er ég gerandi í því og hef áhrif á gang mála. Ef mig langar að mennta mig eða klára einhverja gráðu þá hafa mínar gjörðir og aðferðir alltaf áhrif á hvort mér tekst það eða ekki; hvort ég færist nær markmiðinu eða hvort

ég hef fjarlægst það. Þetta á við allt frá börnum til fullorðinna. Það er hægt að nýta þetta í starfi og per-sónulegu lífi. Þetta eru aðferðir sem fá mann til að horfa dálítið á sjálfan sig úr fjarlægð og skoða hvaða áhrif samskiptaleiðir mínar hafa á lífið og þróun þess.“

Fá stuðningstæki- og tólSærún segir að oft rekist brotthvarfs-nemendur á veggi, t.d. í samskiptum eða nái ekki að passa inn í „normið“ og rammann sem sé settur fyrir þau. „Þeir átta sig kannski ekki á því hvað er rétt og rangt og svo er spurning hvort félagslegur stuðningur sé til staðar. Ef við tökum dæmi um eitt af-markað atvik, t.d. að verið sé að ræða við nemenda sem er að falla á mæt-ingu í einhverju fagi. Þá myndum við fá þann nemanda til að horfa á það að hann fór úr tíma og kom ekki aftur, spyrja hann hvað hann var að gera þá, hvernig leit það út fyrir honum.“ Þá komi kannski fram einhverjar til-finningar og útskýringar sem hægt sé að greina. „Þegar einhver ákveður að mæta ekki í skólann þá er ekki bara hægt að segja að kennarinn sé ömur-legur, námið leiðinlegt eða aðrar af-sakanir, heldur ákvað viðkomandi að mæta ekki. Ákvörðunin getur alveg verið réttmæt en það þarf að átta sig á eigin þætti,“ segir Særún og bætir við að hugmyndin með verkefninu sé einnig sú að fagaðilarnir, foreldrar og stuðningsnet fái betri tæki og tól til þess að skoða sín eigin sam-skipti gagnvart viðkomandi og hjálpa þeim að skoða eigin ákvarðanatöku. „Kennari sem setur sig í dómarasæti

gagnvart nemanda hefur einnig áhrif á aðstæður.“

Komin með ráðgjafa í stýrihópSærún hefur fengið þjálfunina sem þarf til og er að þjálfa innan MSS fé-lagsráðgjafa í aðferðinni. „Við viljum dreifa þessu út. Þetta snýst um að við innleiðum og miðlum. Við horfum á Suðurnesin sem okkar starfsvæði sem við getum haft áhrif á og viljum í raun fá í lið með okkur fagfólk á öllum stigum innan menntageirans. Við erum komin með nokkra ráðgjafa í stýrihóp og horfum til menntastofn-ana á svæðinu. Þetta er viðfangsefni sem snertir okkur í raun alla ævina. Við þurfum að grípa miklu fyrr inn í. Þetta er mikil áskorun og erfitt að sjá fyrir hversu mikil áhrif þetta á eftir að hafa en það er þess virði að láta á reyna.“ Meðfram þjálfuninni verði búin til verkfærakista. Þeir sem vilji tileinka sér aðferðirnar hafi aðgengi-legt efni þannig að þeir geti farið skref fyrir skref í gegnum hana. „Í Svíþjóð verða framleidd myndbönd með aðferðunum í samráði við hin þátttökulöndin í verkefninu. Þannig að flestir geta nýtt sér þetta í starfi og vinnuumhverfi,“ segir Særún og bætir við að hluti af verkefninu sé svokallað „testing phase“ þar sem að-ferðin verður kynnt fyrir stærri hóp fagaðila sem vinna með brotthvarfs-nemendum. Þá gefst færi á að prófa aðferðina og verkfærin spennandi verði að sjá hver útkoman verður. Særún hvetur áhugasama fagaðila til að hafa samband við sig í netfangið [email protected].

■■ MSS Innleiðir aðferðir til hjálpar brotthvarfsnemendum:

Skoða betur eigin ákvarðanir

Kennari sem setur sig í dómara-sæti gagn-vart nemanda hefur einnig áhrif á að-stæður

Særún á skrifstofu sinni hjá MSS.

EN

NE

MM

/ N

M6

53

36

Omnis - Tjarnargötu 7, Reykjanesbæ | siminn.is

Verð án línugjalds

Ljósnetið- hraðvirkt og öruggt

Heimasíminn- ómissandi heimilistæki

Netvarinn- útilokar óæskilegt efni af Netinu

ABC Studios- ný efnisveita í anda Netflix

SkjárKrakkar- talsett barnaefni

Sjónvarp Símans- sjónvarpsstöðvar, Tímaflakk, SkjárBíó o.fl.

Venjulegt fjölskyldulíf felur í sér hin ótrúlegustu verkefni. Því höfum við sett Netið, heimasímann og sjónvarpið í þægilega Heimilispakka.

Þú getur meira með Símanum

Það er fullt starf að

vera fjölskylda

1.937 Legokubbar se

ttir á réttan s

tað -

730 tannburstan

ir -105 sinnum horft á F

rozen -- 2

.025 l

jósmynd

ir tekn

ar á sí

mann

- 1.72

2 blaut

handk

læði

hengd

upp

- 1

hnetuof

næmi vak

tað

- 1,2 t

onn af m

atarinnk

aupum

- 365 morgunverðir

framreiddir

49 risae

ðluheiti lö

gð á min

nið -52 nammidagar -8.937 púsl set

t á réttan stað

-

1.399 dagdraumar -

Særún ásamt hópnum sem hún kynntist í Frakklandi.

Fundur vegna stefnumótunarvinnu Minjastofnunar Íslands verður haldinn á

Reykjanesbæ, bíósal í Duushúsi, mánudaginn 17. nóvember kl. 14-16. Við hvetjum hagsmunaaðila til þess að mæta og koma skoðunum sínum á framfæri.

Undir Minjastofnun Íslands heyra menningarminjar, s.s. fornleifar, hús og önnur mannvirki (t.d. brýr og vegir), skip og bátar, minningamörk og gamlir kirkjugarðar. Nánar má lesa um stofnunina og starfsemi hennar á www.minjastofnun.is auk þess sem nálgast má lög um menningarminjar (80/2012) á síðunni www.althingi.is/altext/stjt/2012.080.html

Suðurgötu 39, 101 Reykjavík

Sími: 570 1300

www.minjastofnun.is

[email protected]

Minjastofnun Íslands boðar til umræðufunda vegna stefnumótunarvinnu stofnunarinnar

Eftir frekar neikvæða umræðu í kringum allt skuldafenið hjá Reykja-nesbæ er ekki laust við að maður hýrni aðeins við að heyra sér-fræðinga Íslandsbanka segja frá betri tíð í vændum. Meiri hagvöxtur, skuldir að lækka, laun að hækka og nýtt hagvaxtaskeið sé byrjað. Tækifæri framundan og betra hljóð í mönnum. Sem sagt; góðar fréttir af fundi bankans um efnahagsmál í Stapa í vikunni.Þetta hljóta að vera góð tíðindi fyrir forráðamenn Reykjanesbæjar sem standa frammi fyrir milljaðra sparnaði á næstu árum. Fleiri störf og meiri peningur í bæjarkassann. Umhverfi fyrirtækja er að lagast og þegar maður heyrir í forráðamönnum margra hér á Suðurnesjum þá er jú, hljóðið mun betra en verið hefur, í raun það besta frá hruni. Vinnuvélaverktaki sagði VF frá því að hann hefði verið með 30 manns eða þrefalt fleiri en áður, í vinnu við breytingar á flugstöð Leifs Eiríks-sonar í sumar og enn væri allt á fullu þar. Iðnaðarmenn hafa verið þar nótt og dag og verða áfram við milljarða breytingar og stækkun á flugstöðinni. Stærsta flugfélag Breta verður með 8 flugleiðir í boði til Keflavíkur á næsta ári en þeir byrjuðu fyrst að fljúga til Íslands fyrir tveimur árum. Það kallar á fjölda starfa hér og þar. Hundrað manns munu vinna við stækkun Bláa lónsins og við byggingu lúxushótels. Það er vöxtur í sjávarútvegi á Suðurnesjum, ný fyrirtæki hafa verið stofnuð og nýir bátar fyrir hundruð milljóna eru líka að renna inn í höfn í Grindavík. Sighvatur Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka segir í viðtalið við VF að uppsveiflan hafi þó verið hægari hjá almenn-ingi hér á Suðurnesjum en bendir á vöxt á fyrirtækjamarkaði. Upp-sveiflan er hófleg sagði kollegi hans hjá bankanum í Stapa í vikunni. Við erum með mjög áhugavert viðtal við húseiganda í Grindavík sem vann mál vegna fasteignaláns frá Sparisjóðnum/Landsbankanum. Hundruð slíkra mála gætu farið á sama veg til hagsbóta fyrir fólkið sem tók þessi ólöglegu lán.Nú eru liðin sex ár frá hruni. Fólk og fyrirtæki hafa beðið eftir betri tíð. Eigum við ekki að segja að hún sé að koma.

Er að koma betri tíð?

-ritstjórnarbréfPáll Ketilsson skrifar

Page 5: 43 tbl 2014

EN

NE

MM

/ N

M6

53

36

Omnis - Tjarnargötu 7, Reykjanesbæ | siminn.is

Verð án línugjalds

Ljósnetið- hraðvirkt og öruggt

Heimasíminn- ómissandi heimilistæki

Netvarinn- útilokar óæskilegt efni af Netinu

ABC Studios- ný efnisveita í anda Netflix

SkjárKrakkar- talsett barnaefni

Sjónvarp Símans- sjónvarpsstöðvar, Tímaflakk, SkjárBíó o.fl.

Venjulegt fjölskyldulíf felur í sér hin ótrúlegustu verkefni. Því höfum við sett Netið, heimasímann og sjónvarpið í þægilega Heimilispakka.

Þú getur meira með Símanum

Það er fullt starf að

vera fjölskylda

1.937 Legokubbar se

ttir á réttan s

tað -

730 tannburstan

ir -105 sinnum horft á F

rozen -- 2

.025 l

jósmynd

ir tekn

ar á sí

mann

- 1.72

2 blaut

handk

læði

hengd

upp

- 1

hnetuof

næmi vak

tað- 1

,2 tonn

af matar

innkaupu

m

- 365 morgunverðir

framreiddir

49 risae

ðluheiti lö

gð á min

nið -52 nammidagar -8.937 púsl set

t á réttan stað

-

1.399 dagdraumar -

Page 6: 43 tbl 2014

Kræsingar & kostakjör

www.netto.is| Mjódd · Grandi · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Tilboðin gilda 6. - 9. nóv 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

KjúKlingalundirDanpo 700 gPakkaverðVERð áðuR 1.694,-

999,-

gæsheil 4 kgkílóverðVERð áðuR 1.999,-

1.599,-

-41%

-21%

Hangilæri m/beinisagað í Poka - frosiðkílóverðVERð áðuR 2.598,-

1.793,-

pítubuff 6 stk m/brauðiPakkaverðVERð áðuR 1.279,-

998,-

HvítlauKsbrauðx-tra 2 stk PakkaverðVERð áðuR 229,-

179,-

lambaHryggurléttreyktur keakílóverðVERð áðuR 2.498,-

1.998,-

Ks lambaKórónaChampagnakílóverðVERð áðuR 3.998,-

3.198,-

-31%

-22%

-22%

-20% -25% -20%

-20%-20%

gæsabringur

kílóverðVERð áðuR 3.998,-

2.999,-

Önd heil 625 gsTYkkJaverðVERð áðuR 2.998,-

1.979,-

freyju smárís 170 g kassiPakkaverðVERð áðuR 299,-

269,-

dr pepper 330 mlsTYkkJaverðVERð áðuR 139,-

109,-

Capri súKKulaði200 gr pakkarPakkaverðVERð áðuR 219,-

189,-

-25%

-34%

rauðgulgrænJonagoldpink ladymacintosh

-30%

EPLADAGAR

Calypso safiappelsínu eða epla 200 mlsTYkkJaverðVERð áðuR 79,-

59,-

Candylandmarsmallows 300 gPakkaverðVERð áðuR 399,-

199,-

body attaCKprotein shake 250 mlsTYkkJaverðVERð áðuR 449,-

359,-

KelKin jaffa Kex150 gPakkaverðVERð áðuR 449,-

359,-peter larsen Kaffi3 tegunDir

-15%áramótasteiKin 2014

Page 7: 43 tbl 2014

Kræsingar & kostakjör

www.netto.is| Mjódd · Grandi · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Tilboðin gilda 6. - 9. nóv 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

KjúKlingalundirDanpo 700 gPakkaverðVERð áðuR 1.694,-

999,-

gæsheil 4 kgkílóverðVERð áðuR 1.999,-

1.599,-

-41%

-21%

Hangilæri m/beinisagað í Poka - frosiðkílóverðVERð áðuR 2.598,-

1.793,-

pítubuff 6 stk m/brauðiPakkaverðVERð áðuR 1.279,-

998,-

HvítlauKsbrauðx-tra 2 stk PakkaverðVERð áðuR 229,-

179,-

lambaHryggurléttreyktur keakílóverðVERð áðuR 2.498,-

1.998,-

Ks lambaKórónaChampagnakílóverðVERð áðuR 3.998,-

3.198,-

-31%

-22%

-22%

-20% -25% -20%

-20%-20%

gæsabringur

kílóverðVERð áðuR 3.998,-

2.999,-

Önd heil 625 gsTYkkJaverðVERð áðuR 2.998,-

1.979,-

freyju smárís 170 g kassiPakkaverðVERð áðuR 299,-

269,-

dr pepper 330 mlsTYkkJaverðVERð áðuR 139,-

109,-

Capri súKKulaði200 gr pakkarPakkaverðVERð áðuR 219,-

189,-

-25%

-34%

rauðgulgrænJonagoldpink ladymacintosh

-30%

EPLADAGAR

Calypso safiappelsínu eða epla 200 mlsTYkkJaverðVERð áðuR 79,-

59,-

Candylandmarsmallows 300 gPakkaverðVERð áðuR 399,-

199,-

body attaCKprotein shake 250 mlsTYkkJaverðVERð áðuR 449,-

359,-

KelKin jaffa Kex150 gPakkaverðVERð áðuR 449,-

359,-peter larsen Kaffi3 tegunDir

-15%áramótasteiKin 2014

Page 8: 43 tbl 2014

8 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir pósturu [email protected]

Fréttamenn suður-kóreska ríkissjónvarpsins eru staddir

hérlendis um þessar mundir í þeim tilgangi að kynna sér svo-kallaða speglaða kennslu, eða vendinám. Keilir á Ásbrú hefur verið leiðandi í slíkri kennslu hér-lendis, en grunnskólar í Reykja-nesbæ hafa einnig innleitt kennsl-una hjá sér. Hjálmar Árnason hjá Keili sagði í samtali við Víkur-fréttir að þriggja þátta sería sé í vinnslu hjá kóreska sjónvarpinu, en sjónvarpsmenn hafa verið hér síðustu þrjá daga að kynna

sér kennsluna undir handleiðslu Hjálmars.Mikil ásókn skólafólks hefur verið síðasta árið til Keilis vegna vendináms. Kennarar um allan heim eru að leita að nýjum leiðum í starfi sínu og virðist vendinám vekja áhuga margra. Þá leiðir Keilir samstarf átta skóla í Evrópu þar sem reynt verður að draga fram leiðbeiningar til skóla um leiðir að vendinámi. Verkefnið fellur undir Erasmus á vegum Evrópusam-bandsins og leiðir Keilir verkefnið. Í tengslum við það verður alþjóðleg

ráðstefna um vendinám á Ásbrú í apríl á næsta ári.Vendinám snýst um að hefðbund-inni kennslu er snúið við þar sem fyrirlestrar og kynningar kennara eru vistuð á netinu. Nemendur geta horft og hlustað á kynningarnar eins oft og þeim sýnist og hvar sem þeim sýnist. Þá geta nemendur sent spurningar um efnið til kennara og fá svör á netinu sem öllum eru opin. Þá eru nemendur hvattir til að nota netið til að finna heppilegt kennsluefni.

Kóreubúar forvitnir um vendinámGera heimildarþætti þar sem Ísland er í brennidepli

LEIKHÚSFERÐFélags eldri borgara verður farin

21. nóvember. Farið verður í Þjóðleikhúsið að sjá Karítas.

Sýningin hefst kl. 19:30. Miði og rúta kr. 5.500.-

Pantanir hjá Ólu Björk í s. 421 2972 og 898 2243,Björgu í s. 421 5709 og 865 9897, Ásthildi

í s. 861 6770 og Guðrúnu í s. 659 0201 eftir kl. 13:00.

Miðar seldir á Nesvöllum �mmtudaginn 13. nóv. kl. 14:30-16:00.Tökum ekki kort!

Farið frá SBK kl. 18:00.

Komið við í Hornbjargi, Nesvöllum, Grindavíkurtorgi og Vogatorgi.

Leikhúsnefnd FEBS

Ölgerðin óskar eftir að ráða starfsmann í hlutastarf við áfyllingar í verslanir í Reykjanesbæ.

Vinnutími er tvö kvöld í viku og aðra hverja helgi.

Áhugasamir sendi upplýsingar á netfangið [email protected].

 

ATVINNA Í BOÐI

MIKIÐ ÚRVAL AF ÚTIVISTARFATNAÐIfrá Didriksons

OLÍS-VERSLUNIN NJARÐVÍKFitjabakka 2–4 | Sími 420 1000 | [email protected]

PIPAR\

TBWA

• SÍA

• 1

43

71

9

Page 9: 43 tbl 2014

ReykjavíkTangarhöfða 8Sími: 590 2000

ReykjanesbærNjarðarbraut 9Sími: 420 3330

AkureyriGlerárgötu 36Sími: 461 3636

Nánari upplýsingar á benni.is Bílabúð Benna í Reykjanesbæ

Opið alla virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 10 til 14Verið velkomin í reynsluakstur.

NOTAÐIR BÍLAR Í ÁBYRGÐ?

BÍLABÚÐ BENNA - REYKJANESBÆ

Chevrolet SparkVerð frá: 1.390.000 kr.

Chevrolet Captiva Verð frá: 4.290.000 kr.

Fjármögnum það sem upp á vantar

Nú getur þú fengið enn meira við kaup á notuðum Chevrolet.Tryggðu þér nýlegan bílaleigubíl frá Sixt sem eru í verksmiðjuábyrgð. Í boði eru árgerðir frá 2012 og 2013 - veldu þann sem hentar þínum þörfum best.

Frábær kjör á bílaleigubílum - 20% útborgun

Skoðaðu fjölbreytt úrval notaðra bíla á benni.is

20% útborgun - aðeins 278.000 kr.Bíll í verksmiðjuábyrgð

20% útborgun - aðeins 858.000 kr.Bíll í verksmiðjuábyrgð

Page 10: 43 tbl 2014

10 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

„Þetta er búið að einkennast af mikilli von frá því að Snorri tók málið að sér. Þá sá maður fram á að það væri kannski einhver glæta. Jólin í fyrra voru aðeins betri en jólin þar á undan,“ segir Hallfríður Hólmgrímsdóttir, sem tók lán í Sparisjóðnum í Keflavík árið 2006 til þess að fjármagna byggingu húss sjö manna fjöl-skyldu sinnar í Grindavík. Lánið hækkaði úr 23 milljónum í 49 á einni nóttu í kjölfar efnahags-hrunsins árið 2008. Svo var það endurreiknað og lækkað í 34 milljónir árið 2011. Lánasamn-ingurinn var dæmdur ólögmætur í héraðsdómi í síðustu viku. „Engu að síður kostaði okkur blóð, svita og tár að koma þaki yfir okkur. Afborgunin hækkaði svo gríðarlega við það að færa lánið yfir í íslenskar krónur með íslenska vexti. Staðan á mánuði var í raun verri við að gera það.“

Afborganir fóru í kvartmilljónHallfríður segist hafa séð fram á ofboðslega erfiða tíma, sem urðu svo sannarlega. „Það komu þarna greiðslustopp og það má segja að þau hafi kannski bjargað manni um tíma og maður hafði a.m.k. þó þá skynsemi að bera að spara peninginn í greiðslustoppunum til að eiga upp í það sem vantaði um hver mánaðamót. Ég sótti um allar þessar frystingar sem hægt var að fá til þess að eiga upp í næstu af-borganir. Öðruvísi hefði þetta ekki gengið.“ Afborganir af láninu fóru úr 70-80 þúsund í 250.000 krónur á mánuði. Hallfríður hafði fram að því alltaf staðið í skilum með lánið og nánast aldrei greitt dráttarvexti. Það hefði ekki verið sjálfgefin staða í framtíðinni ef málið hefði ekki farið eins og það fór.

Svipt frelsi á einni nóttuEiginmaður Hallfríðar var einn úti-vinnandi þegar þau fengu skellinn og fjölskyldan þurfti að skipuleggja líf sitt upp á nýtt. „Það þurfti að skera niður alla aðstoð við elstu börnin og þau þurftu að fara út á vinnumarkaðinn samhliða námi

og bjarga sér meira sjálf,“ segir Hallfríður. Lánið stendur í rúmri 31 milljón og síðasta afborgun var 256 þúsund um síðustu mánaða-mót. „Við hefðum sennilega reynt að fá láninu skilmálabreytt eða eitthvað þessháttar, s.s. breytt því í verðtryggt lán sem hefði ekki verið ákjósanlegur kostur. Lánið hefði fljótlega farið upp fyrir verðmæti eignarinnar. Eða við hefðum reynt að selja húsið en við hefðum senni-lega ekki getað keypt annað hús því afgangurinn hefði ekki verið mikill. Ég hefði líklega gefist upp á þessari afborgun snemma á næsta ári og þannig þurft að bregðast við með einhverjum hætti. Þrátt fyrir að hafa varið ævinni í að vera skyn-söm til að geta á einhverjum tíma-punkti um frjálst höfuð strokið þá var ég svipt þessu frelsi á einni nóttu.“ Hallfríður viðurkennir að láninu hafi ekki verið prangað upp á hana en hvorki hún né neinn annar venjulegur neytandi gat ímyndað sér að lánið færi úr 23 milljónum í 49 nánast á einni nóttu. „Því miður þá hafði ég bara ekki meira vit á gengistryggingunni en þetta. Veðsetningarhlutfall eignar okkar var um 60% á sínum tíma og þó að eignfjárstaðan sé jákvæð um örfá prósent þá getur enginn staðið undir þessum afborgunum til lengdar og að því leytinu erum við föst.“

Fólk er að missa húsin sínLögmaðurinn Snorri bætir þarna inn í að hann hafi aðstoðað fólk sem sé með svona lán sem er að missa húsnæði sín. „Það eru fjöl-margar eignir hérna fjármagnaðar á grundvelli gengistryggðra lána sem verið er eða búið er að bjóða upp. Fyrir þá sem eru að missa húsið sitt gæti þetta orðið til þess að þau fái mögulega lánin endurreiknuð og jafnvel staðið undir þeim. Þegar kveðið var á um viðurkenningu á ólögmæti lánsins fyrir héraðsdómi þá gerði ég mér strax grein fyrir því hvað það þýddi fyrir allt þetta fólk. Þess vegna er svo mikið atriði að þessi mál fái réttan endi á æðsta dómstigi.“ Hallfríður segist einmitt

einnig hafa hugsað líka að hún væri ekki ein í þessari stöðu. „Fólk er jafnvel búið að missa húsin sín eða er við það að gera það. Hugsaðu þér hvernig jólin verða hjá þessu fólki? Ég get ekki hugsað það til enda. Ég varð fangi á eigin heimili, við komumst ekkert. Það yrði ekki ákjósanleg staða að fara á leigu-markaðinn með sjö manna fjöl-skyldu. Mér dugir ekki lítil blokk-aríbúð með börnin á breiðum aldri. Við reistum húsið okkar sjálf og lögðum allt sem við gátum í það.“

Von um staðfestingu í hæstaréttiSnorri segir að svona mál geri starf sitt þess virði. „Ég tel þennan dóm vera frekari staðfestingu á þeirri reglu í gengismálum sem kalla mætti misræmisregluna.“ Hún felst í því að ef tilgreining fjár-hæðar er í ósamræmi við önnur

ákvæði samningsins, þá verði að skoða hann heildstætt. Sé fjár-hæðin tildæmis tilgreind í erlendri mynt eins og í samningi Hallfríðar en kveðið á um gengistryggingu í öðrum ákvæðum, verði að skoða samningin heildstætt. Í 7. og 8. grein lánasamnings Hallfríðar er kveðið á um að ef vanefndir verði á samningnum skuli gengistrygg-ingin haldast eftir að búið að gjald-fella lánið. „Það væri engin þörf að kveða á um gengistryggingu í þessum ákvæðum samningsins ef lánið væri ekki gengistryggt. Þegar maður skoðar greiðslukvittanir og annað, þá er hægt að reikna sig í gegnum hvernig erlenda fjár-hæðin var aðeins til viðmiðunar.

Erlendir vextir og afborganir voru alltaf gengistryggðar með marg-földun við hið íslenska gengi við hver mánaðarmót. Alltaf fengust færri og færri erlendar myntir fyrir hverja íslenska krónu og þannig gengistrygging.“

Rétt er að leyfa dómaranum sem kvað um dóminn að eiga loka-orðin: „Þótt þessi ákvæði þyki ekki samrýmast efni lánssamnings málsaðila að öðru leyti verður ekki framhjá því litið að í þeim er kveðið á um að gengistrygging skuli hald-ast við vannefndir á samningnum, en engin þörf var að kveða á um slíkt ef lánið var í raun í erlendum gjaldmiðli.“

-viðtal pósturu [email protected]

Hallfríður Hólmgrímsdóttir tók fasteignalán árið 2006 til að fjármagna byggingu húss fyrir 7 manna fjölskyldu sína í Grindavík. Lánið stökkbreyttist í kjölfar hrunsins og var lánasamningurinn dæmdur ólögmætur í héraðsdómi í síðustu viku. Snorri Snorrason hdl flutti málið fyrir dómnum. Blaðamaður Víkurfrétta hitti Snorra og Hallfríði og ræddi við þau um styrk vonarinnar og mikilvægi réttlætis í sambærilegum málum. Mál Hallfríðar er fyrsta mál vegna einstaklingsláns vegna svona lánagerðar sem fær þessa meðferð fyrir héraðsdómi.

■■ Unnu mál í héraðsdómi vegna fasteigna-láns hjá Sparisjóðnum í Keflavík:

AUKIN VON FYRIR MARGA LÁNTAKA

Ég er með tugi slíkra mála á mínu borði og um er að ræða húsnæði víða á Suðurnesjum, einnig í eigu fyrir-tækja

AÐALFUNDUR MÁNA

Aðalfundur hestamannafélagsins Mána verður haldinn  þriðjudaginn 25. nóvember í félagsheimili Mána

og hefst hann kl. 20:00.

Dagskrá:1. Skýrslur stjórna og nefnda

2. Viðurkenningar 3. Kosning í stjórn og nefndir

4. Önnur mál   

Stjórn Mána

Sólný Pálsdóttir í Grindavík segir frá gjörbreyttu lífi sínu í einlægu viðtali

Þátturinn verður einnig aðgengilegur á vef Víkurfrétta í háskerpu

Sjón�� Víku�ré�a á Í�ö� ��tudagskvöld kl. 21:30

Orkubolti�Hilmir og lí�ðmeð Downs

Saga Lögreglunnar í Keflavík verður haldið í bókasafni Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, föstudaginn 7. nóvember, kl. 16:00 - 18:00. Lesnir verða valdir kaflar úr bókinni, boðið verður upp á kaffi og tónlist og ritnefnd mun árita bókina fyrir þá sem þess óska. Lögreglan mun verða áberandi í bókasafninu af þessu tilefni. 

Allir velkomnir.

ÚTGÁFUHÓF BÓKARINNAR

Page 11: 43 tbl 2014

Elskaðu spínat

– NÝTT Á SUBWAY –

– GRÆNA BYLTINGIN –

Nú getur þú sett spínat á bátinn þinn - frítt

Page 12: 43 tbl 2014

12 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal pósturu [email protected]

Að m e ð a l t a l i fæðast eitt til

tvö börn á ári með Downs heilkenni á Íslandi. Eitt þeirra er Hilmir Sveinsson, þriggja ára orkubolti og gleðigjafi, sem býr í Grindavík ásamt foreldrum og fjórum

eldri bræðrum. Olga Björt hitti Hilmi og móður hans, Sólnýju Pálsdóttur, sem segir á einlægan hátt frá þeim tilfinningalega rússíbana sem fylgir því að eignast fatlað barn. Sólný vill aukna fræðslu

og meðvitund um heil-kennið til að draga úr for-

dómum sem hún fann sjálf að hún glímdi við. Sólný

veitir lesendum innsýn inn í heim sem fæstir þekkja en

hefur reynst henni mikill skóli og jafnframt gefið henni svo margt.

Hélt að heimurinn væri hruninnÞað sem af er þessu ári hafa tveir drengir fæðst með Downs heilkenni. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá heilbrigðisráðherra greindust 38 tilvik af þrístæðu 21 við 12 vikna fósturskimun á árunum 2007 - 2012 og enduðu allar meðgöngurnar með fóstureyð-ingu. Grindvíkingurinn Sólný Pálsdóttir vissi ekki á sinni meðgöngu að Hilmir væri með heilkennið og hafði farið í hnakkaþykktar-mælingu þar sem ekkert óeðlilegt kom fram. Hún var 41 árs þegar Hilmir fæddist og hún dæmir ekki foreldra sem taka þá erfiðu ákvörðun að eyða fóstri. „Það urðu dálítil straumhvörf í lífi mínu þegar ég eignaðist hann. Ég var ekki undirbúin þegar hann kom og þetta var talsvert áfall. Ég þekkti engan með þetta heilkenni og vissi lítið um það. Ég var í raun hrædd, fyrst og femst. Hélt að heimurinn væri hruninn,“ segir Sólný. Síðar kom í ljós að heimurinn var svo sannar-lega ekki hruninn. Þetta var bara byrjunin á miklum viðhorfsbreytingum og þroskaferli í lífi hennar.

Tókst á við eigin fordómaHilmir fæddist með vanþroskaðan barka og átti í vandræðum með öndun. „Við vorum á

vökudeild í tíu daga og það var mikil rússí-banareið. Ég hafði fram að þessu alltaf haft stjórn á lífi mínu. Lokið framhaldsskóla- og kennaraháskólanámi og eignast börnin mín eftir plani. Allaf viljað hafa hlutina eftir mínu höfði og verið stjórnsöm. Þarna fæ ég barn í hendurnar sem ég var fyrirfram búin að ákveða hvernig ætti að vera. Svo var hann með þennan auka litning sem ég vissi svo lítið um.“ Það hafi síðan verið henni svo mikið um-hugsunarefni eftir á hvers vegna slík við-brögð komu fram hjá henni. Þessi mikla hræðsla og kvíði. Hvort hægt hefði verið að fara öðruvísi í gegnum þetta tímabil. „Ég þurfti að takast á við fordóma í sjálfri mér sem ég uppgötvaði þarna. Ég hugsaði: Af hverju er ég að eignast fatlað barn? En svo sá ég viðtal við Eddu Heiðrúnu Bachmann, rétt eftir að ég fæddi Hilmi, þar sem hún var spurð út í MS sjúkdóminn sem hún er með. Edda Heiðrún hafði hugsað: Af hverju ekki ég? Og það var eiginlega heila málið.“

Íslandsmeistari í hvert sinnSólný segir þau hjón hafa fengið afar góða þjónustu með Hilmi eftir að niðurstöður greiningar leiddu í ljós að hann væri með

Downs heilkenni. „Þá greip Greiningar-stöðin inn í og við vorum með hann í þroska-þjálfun og teymisvinnu í tvö ár. Að sjálfsögðu fór ég inn í þetta ferli eins og þjálfari, enda keppniskona. Sjúkraþjálfari og einkaþjálfari hans komu heim til aðstoða okkur hvernig best væri að hafa hlutina hérna heima. Svo var pikkað í mig og ég minnt á að ég væri mamman en ekki þjálfarinn,“ segir Sólný og hlær. Hver einasti áfangi og hvert ein-asta þroskaskref hafi síðan verið svo mikill sigur. „Það var eins og að hann verði Íslands-meistari í hvert skipti. Ég var alltaf frekar óþolinmóð og vildi að hlutirnir gengju hratt fyrir sig. Svo fæ ég þennan dreng inn í líf mitt og hann hægir á mér; gerir hlutina á sín-um hraða, ekki mínum. Hann er svo mikill gleðigjafi og hefur gefið okkur svo mikið.“ Núna fær Hilmir viðeigandi þjónustu á leik-skólanum og Sólný dásamar mikið teymið sem er í kringum hann. Allir sem vinni með honum geri það frá hjartanu og vilji honum svo vel. „Það hefur hjálpað okkur mikið. Við hjónin fengum líka net af stuðningi og rými til að sinna honum fyrstu vikurnar. Tengslanetið okkar tók bara yfir heimilið á meðan og strákarnir okkar fluttu bara inn á heimili vina sinna. Allir voru reiðubúnir að

■■ Sonur með Downs heilkenni gjörbreytti lífi Grindvíkingsins Sólnýjar Pálsdóttur:

Af hverju ekki ég?Hilmir Sveinsson er þriggja ára orkubolti og gleðigjafi, sem býr í Grindavík ásamt foreldrum og

fjórum eldri bræðrum. Sólný vill aukna fræðslu og meðvitund um heilkennið til að draga úr fordómum.

Svo fæ ég þennan dreng inn í líf mitt og hann hægir á mér; gerir hlutina á sínum hraða, ekki mínum

Page 13: 43 tbl 2014

aðstoða og næstelsta systir mín hefur reynst mér ómetanleg. Þetta eru forréttindi og ör-ugglega ekki margir í þeirri stöðu.“

Ekki bara ofdekraður krúttkallSólný og eiginmaður hennar, Sveinn Ari Guðjónsson, eiga fjóra aðra drengi og Sveinn tvær dætur fyrir. Hún segir þau afar heppin að eiga öll þessi börn. „Það er góð tilfinning varðandi framtíðina að vita af stuðningnum sem Hilmir á eftir að hafa allt sitt líf. Margir sem munu hjálpa honum að verða áfram ein-staklingur sem aðrir njóta samvista við. Ég vil heldur ekki að hann verði einhver ofdekraður krúttkall allt sitt líf. Ég vil gera kröfur til hans á hans forsendum. Hann á einstaklega fallegt samband við föður minn sem er 82 ára og sér ekki sólina fyrir Hilmi.“ Sólný lýsir sólar-geislanum sínum sem mjög gefandi, fullum af ást, hlýju og tilfinningum. „Svo er hann líka skapmikill, ákveðinn, kröftugur og hömlulaus. Það þarf að setja honum mörk. Það er mjög krefjandi að eiga hann og ég hef þurft að endurskoða allt í lífinu. Fór þetta fyrst á hörkunni og átti erfitt með að viðurkenna að þetta væri erfitt.“

Fór í andlegt þrotSólný var einnig hugsi eftir á hvort Íslendingar mættu stundum vera aðeins opnari og viðurkenna að eitthvað sé áfall eða erfitt. „Það er svo íslenskt held ég að spýta bara í lófana. Það kom mér um koll og ég keyrði mig áfram í tvö og hálft ár.“ Um áramótin í fyrra fór Sólný í andlegt þrot. Móðir hennar var með Alzheimer og lést þegar Hilmir var átta mánaða. „Ég var líka inni í því ferli og gat sem betur fer farið til hennar á hverjum degi áður en hún lést. Svo horfði ég á þessar tvær stóru manneskjur í mínu lífi. Mjög skrýtinn tími; gleði, sorg og söknuður allt í senn. Þá kom uppgjöfin og ég fór í mikla sjálfsvinnu, breytti um takt og leitaði hjálpar. Ég varð að hlúa að sjálfri mér og það má ekki gleyma að hlúa að hjónabandinu og fjöl-skyldunni líka. Þetta er álag fyrir okkur öll.“

„Á maður að segja til hamingju?“Í Grindavík býr annar einstaklingur með Downs heilkenni, stúlka sem komin er yfir tvítugt. Sólný velti fyrir sér viðbrögðum fólks sem var vandræðalegt þegar hún mætti því í verslunum. „Sumir forðuðu sér en ég hef ekki lent í því að fá samúðarkveðjur eins og einhverjir sem eignast hafa fatlað barn. Einn maður kom til Sveins í búðinni og sagði: Ég spurði mömmu hvað maður segir við fólk sem eignast fatlað barn. Á maður að segja til hamingju? Mamman sagði honum að sjálf-sögðu að gera það.“ Sólnýju og Sveini þótti vænt um þessa einlægni því það sé skiljanlegt að fólk viti ekki hvað það á að segja.

Myndirnar urðu múrbrjóturSólný tók í framhaldinu þá ákvörðun að gera Hilmi dálítið meira sýnilegan. „Ég hafði tekið

frí frá kennslu 36 ára og farið í ljósmynd-anám. Ég trúi því í dag að það hafi ekki verið tilviljun og er eiginlega hætt að trúa á tilvilj-anir. Ég tók myndir af Hilmi og hef notað Fa-cebook mikið til að birta þær. Mér finnst það hafa auðveldað litla samfélaginu í Grindavík að koma að mér og segja eitthvað fallegt. Það brast einhver múr. Einnig hefur verið styðjandi að finna að fólk fylgist með Hilmi og gleðjist yfir myndum af honum. Ég sé líka á myndunum sem ég hef tekið að ég hef farið í gegnum visst þroskaferli með framsetning-una. Þær myndir sem mér þykir vænst um í dag eru þær sem sýna persónueinkenni Hilmis; þegar hann er þreyttur, pirraður, reiður eða hlæjandi. Svo eru ekki nema 16 mánuðir á milli hans og næstyngsta stráksins míns, Fjölnis, sem er svo duglegur og kennir honum margt. Ég er meira með myndavélina á eftir þeim en með ryksuguna,“ segir hún

hlæjandi.

Aukalitningur ekki utan að komandiÍ dag segist Sólný vera mjög þakklát og að hún hefði líklega aldrei farið í þetta andlega ferðalag nema af því að hún þurfti að takast á við sjálfa sig og brotna aðeins til að byggja sig upp aftur. „Ég dæmi mig ekki í dag en sé stundum eftir tímanum sem fór í dýfurnar. En sorgarferli þró-

ast og maður lærir að lifa með því að eiga fatlað barn. Það sem skiptir mig máli er að hann fái sömu tækifæri og aðrir. Fái að vera í íþróttum, tónlistarskóla og gera þá hluti sem hafa ekki verið sjálfsagðir fyrir fatlaða. Heimur-inn væri ekki eins yndislegur og hann er ef börn með Downs myndu ekki lengur fæðast, sem allt virðist stefna í. Við erum öll ólík hvort sem við erum með aukalitning eða ekki. Stundum gleymist að fólk með Downs heilkenni er ekki heilkennið. Þó að þetta heiti aukalitningur þá er hann frá okkur foreldrunum og gerir Hilmi að því sem hann er. Hann er líkur okkur á svo

margan hátt.“

Fræðsla er svo mikilvægÞegar Sólný var var á vöku-

deildinni fékk hún póst frá móður sem á dreng með Downs sem er að-eins eldri en Hilmir. „Hún sagði við mig hvernig mér kæmi líklega til með að líða eftir einhvern vissan tíma og það hefur allt saman staðist. Kannski get ég hjálpað einhverjum sem verða í sömu stöðu. Vonandi get ég veitt þeim einhverja gleði og sýnt fram á að Hilmir getur svo margt þó að hann þurfti lengri tíma í það og á sínum hraða. Hann heldur mér a.m.k. í formi því ég slaka ekki mikið á með hann,“ segir Sólný og bætir við með áherslu að þessi reynsla sé hennar skóli. „Ég ákvað að horfa á þetta sem gjöf. Fræðslan er svo mikil-væg og að við miðlum henni til barnanna okkar. Maður er bara hræddur við það sem maður þekkir ekki,“ segir Sólný að lokum.

Fjölskyldan öll saman komin. Mynd: Sissa. Sólný með yngstu synina.

Glænýr í faðmi foreldra.

Íþróttaálfurinn í essinu sínu.

16 mánuðir eru á milli Fjölnis og Hilmis.

Boltastrákurinn Hilmir.

Page 14: 43 tbl 2014

14 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir pósturu [email protected]

SUÐURNES | GARÐUR | GRINDAVÍK | REYKJANESBÆR | SANDGERÐI | VOGAR

Vaxtarsamningur SuðurnesjaVerkefnastyrkir

Auglýst er eftir styrkumsóknum til Vaxtarsamnings Suðurnesja á grundvelli samnings um framlög til byggðaþróunar á Suður- nesjum árið 2014.

Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verk- efni feli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að mark- miðum samningsins sem og verklagsreglum um úthlutun. Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda. Skilgreining á styrk-hæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að finna á vefsíðu vaxtarsamningsins: vaxtarsamningur.sss.is.

Umsóknarfrestur Mánudaginn 1. desember 2014, kl. 16:00. Umsóknum skal skila á netfangið [email protected].

Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir verkefnastjóri [email protected], sími 420 3288.

Viðtalstímar verkefnastjóraVerkefnastjóri Vaxtarsamnings Suðurnesja verður til viðtals fyrir umsækjendur á bæjarskrifstofum sveitarfélaganna sem hér segir:

Garður: Mánudagur 10. nóvember kl. 10:00 – 11:00.Sandgerði: Mánudagur 10. nóvember kl. 13:00 – 14:00.Grindavík: Þriðjudagur 11. nóvember kl. 13:00 – 14:00.Vogar: Þriðjudagur 11. nóvember kl. 11:00 – 12:00.

heklan.is

Fjöldi fólks úr atvinnulífinu á Suðurnesjum mætti á morgunverðarfund Íslandsbanka.

Ekki alveg á sama stað og höfuðborgarsvæðið

-segir Sighvatur Gunnarsson, útibússtjóri Íslandsbanka

Þegar við berum saman þjóðhagsspá bankans við stöð-una á Suðurnesjum þá er ljóst að við erum kannski

ekki alveg komin á sama stað og t.d. höfuðborgarsvæðið. Við höfum hér á svæðinu t.d. verið að glíma við erfiðari stöðu í atvinnulífinu þó við sjáum jákvæð teikn á lofti. Kaupmáttur hefur því kannski almennt ekki vaxið jafn hratt hér og við hefðum viljað auk þess sem eignaverð hefur ekki hækkað hér að neinu ráði og þar af leiðandi höfum við ekki séð skuldahlutföll lækka jafn hratt og á höfuðborgarsvæðinu. Það eru þó almennt jákvæðar horfur í efnahagslífinu og það mun sannarlega skila sér inn á Suðurnesin,“ segir Sighvatur Gunnarsson, útibússtjóri Ís-landsbanka. Hver er þín skoðun á framgangi fyrirtækja á Suðurnesjum á næstunni?„Ég er mjög bjartsýnn gagnvart viðskiptalífinu hér á Suður-nesjum og hægt að sjá tækifæri víða. Sjávarútvegurinn hefur verið að gera ágætis hluti og hefur eflst t.d. með breytingum hjá Vísi í Grindavík. Við sjáum einnig fyrirtæki vera að fjár-festa í þessum geira í Garði og Sandgerði. Það eru gríðarlegar fjárfestingar í tengslum við ferðamannageirann hér á svæðinu og er nóg að nefna framkvæmdir hjá Isavia á Keflavíkurflug-velli og fyrirhugaðar framkvæmdir hjá Bláa Lóninu. Einn-

ig má nefna mikla uppbyggingu í fiskeldi með tilkomu Stolt Seafarm úti á Reykjanesi. Mikil fjárfesting liggur í Helguvík og ég er bjartsýnn á að atvinnusvæðið skili allavega að einhverju leiti þeirri uppbyggingu sem við höfum verið að vonast eftir á næstunni.Það væri hægt að telja upp mörg önnur dæmi um þá upp-byggingu sem nú er að eiga sér stað á Suðurnesjum. Ég tel því að það séu skilyrði framundan fyrir fyrirtæki á Suðurnesjum til þess að vaxa og gera góða hluti.“

Gestir í Bláa lóninu eyða meira

Meðaltekjur gesta í Bláa Lón-inu hafa hækkað um 70% og

fjöldi stöðugilda um 60% á sama tíma. Miðaverð í Lónið hækkaði um 52% á árunum 2010-2013 en það tekur mið af sambærilegri þjónustu erlendis. Framboð á stærri og dýrari „pökkum“ til út-lendinga hafa slegið í gegn. Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri sagði á morgunverðarfundi Ís-landsbanka að sífellt væri verið að vinna að því að auka virði hverrar heimsóknar ferðamannsins og það hafi tekist mjög vel.„Framundan er risaverkefni upp á 6 milljarða króna með stækkun lóns og byggingar lúxushótels,“ sagði hún.Dagný nefndi að gullæði á mark-aðnum í ferðaþjónustunni væri visst áhyggjuefni en ytri aðstæður hafa verið Íslendingum afar hagstæðar. Enn væri mikill áhuga á Íslandi en það væri ekki hægt að gefa sér það að endalaust framhald yrði á því.

Dagný Péturs-dóttir, fram-

kvæmdastjóri Bláa lónsins

Það eru ýmis merki um bata í efnahagslífi þjóðar-innar og hagvaxtahorfur eru góðar að okkar mati.

Við væntum þess að atvinnulífið haldi áfram að styrkjast á næstu árum þó svo vissulega sé einhver óvissa í kringum afnám gjaldeyrishafta, sagði Ingólfur Bender, forstöðu-maður Greiningar Íslandsbanka á morgunverðarfundi bankans í Stapa í vikunni.

Íslendingar hafa straujað kortin sín af nokkuð meiri krafti fyrstu átta mánuði þessa árs en þeir hafa gert undanfarin ár, sérstaklega erlendis en einnig hér heima. Innflutningur hefur aukist mikið á neysluvörum og fleiri nýir bílar hafa selst, allt merki um meiri hagvöxt hér á landi. Ingólfur kom víða við í erindi sínu um stöðuna í efnahagsmálunum í dag en hann var jákvæður í máli sínu, benti á minnkandi atvinnuleysi og betri stöðu á vinnumarkaði. Til að mynda væri farið að flytja inn vinnuafl á nýjan leik. Efnahagur fyrirtækja og heimila hafi batnað mikið með auknum kaupmætti. Fasteignaverð hafi hækkað, skuldahlutfall hafi lækkað, verðbólga minni og stöðug króna. „Þetta er hófleg uppsveifla miðað við fyrri upp-sveiflur hér á landi. Íslenska hagkerfið hefur haft tilhneigingu til að sveiflast meira en önnur í nágrannalöndunum okkar.

Ingólfur sagði að skuldir heimilanna hafi lækkað mikið á undanförnum árum en ólíkt því sem algengt væri víða úti í heimi, þá ættu Íslendingar frekar sitt húsnæði en leiga væri mun algengari þar. Hluti af skuldsetningu heimila hér á landi liggi aðallega þar. Hann sagði einn mesta batann að undanförnu hafi birst í hækkun húsnæðisverðs og þá hafi laun hækkað um 4% sem væri langtum hærra en úti í heimi. Andlegt ástand almennings lyftist þó hægar og enn vantaði nokkuð upp á í væntingavísitölunni. Hann sagði einkaneyslu hafa aukist á ný með auknum kaupmætti og að hagvöxtur á næstunni myndi byggjast mikið á innlendri eftirspurn sem muni aukast áfram allhratt á næstu árum þó að nokkuð dragi úr vextinum. Í fyrra var hagvöxtur fyrst og fremst borinn uppi af utanríkisviðskiptum en þar hefur ferðaþjónustan komið gríðarlega sterk inn.

Framundan væru þó innan um nokkur óvissa og Seðla-bankinn væri að bregðast við markaðnum með hóflegum vaxtahækkunum og þá væri kurr á vinnumarkaði varðandi kjarasamninga einnig hluti af óvissupakkanum. Afnám gjald-eyrishafta fylgdi líka óvissa með tilheyrandi áhrifum á krónu og verðbólgu. Gjaldeyrishöft væru ekki boðlegt umhverfi til lengri tíma.

Þróttmikill hagvöxtur framundan með betri tíð-sagði Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka á morgunverðarfundi í Reykjanesbæ

Ingólfur og Sighvatur á morgunverðarfundinum.

Page 15: 43 tbl 2014

Allt frá grunni Að góðu heimili síðAn 1956

Dagskrá hefst kl. 19:00 Örn garðarsson frá soho veitingum verður með

humarsúpu og heimabakað brauð

gallery 8 verður með sölusýningu á handverki Dúettinn hZ vantar konu, spilar fyrir gesti

tískusýning Verslunin Gallerí Keflavík Dömudeild

Kynningar:

Kaffitár býður upp á nýja Hátíðarkaffið

Kynning á Ritzenhoff glösum og bollum frá Casa

ný snyrtivörulína kynnt frá Crabtree and Evelyn

Quality street konfekt

*AFSLÁTTUR gildir ekki af vörum merktum Lægsta lága verð Húsasmiðjunnar og tilboðsvörum.

hluti af Bygma

KonukvöldFimmtudaginn 6. nóvember

í Húsasmiðjunni og Blómavali Reykjanesbæ frá kl 19 til 21

gerðu Allt fínt fYrir

Jólin á BetrA Verði

á Konukvöldi í reykjanesbæ

AfslÆttir á KOnuKVÖlDi*25%25%25%

AllAr VÖrur í BlómAVAli gJAfAVÖrur,JólAVÖrur, JólA-lJós Og JólAseríurÚtiVistArfAtnAður, BÚsáhÖlD

JólAseríur

JólAsKrAut

JólAgJAfir

25%afslátturaf öllum vörum í Blómavali

happdrætti fjöldi glæsilegra vinninga: Jólarósir • Jólastyttur • Frost jólaljós • Ritzenhoff glös Snyrtivörur frá Crabtree and Evelyn • Jólageisladiskur og margt fleira.

Page 16: 43 tbl 2014

16 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

Ert þú bókaormur?

Hæfniskröfur:• Góðtungumálakunnátta

• Reynslaafafgreiðslustörfumæskileg

• Góðalmenntölvukunnátta,þekkingáNavisionerkostur

• Ríkþjónustulundogjákvæðni

• Hæfniímannlegumsamskiptum

EYMUNDSSON LEIFSSTÖÐ:

Áhugasamir vinsamlegast sendið umsóknir og fyrirspurnir á [email protected] fyrir 12.nóvember nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Um framtíðarstörf er að ræða og er æskilegt að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.

EYMUNDSSON REYKJANESBÆ:

Hæfniskröfur:• Reynslaafafgreiðslustörfum

• Ríkþjónustulundogjákvæðni• Hæfniímannlegumsamskiptum• Góðalmenntölvukunnátta,þekkingáNavisionerkostur

Umfulltstarferaðræðaogervinnutíminnfrákl.9-18allavirkadaga.

Unniðereftirvaktaskipulagi.

Hjá Eymundsson starfar frábær hópur fjölhæfra og skemmtilegra einstaklinga – en okkur vantar fleiri. Við óskum eftir harðduglegu og brosmildu starfsfólki í afgreiðslustarf í verslanir okkar.Laust er í eftirfarandi stöður í Reykjanesbæ:

540 2000 | [email protected] | www.penninn.is | www.eymundsson.is

Nærri fimmhundruð manns nutu magnaðrar villibráðar í Bláa lóninu um síðustu helgi. Eina helgi á ári er villibráð í boði í Lava veitingasal Bláa

lónsins og nú sem fyrr fóru matreiðslumeistarar staðarins á kostum.Öll helsta villibráð Íslands var á boðstólum að undanskilinni rjúpunni enda er finnst hún ekki þessa dagana. Gæs, lundi, önd, lax, lamb og hreindýr var meðal þess sem gestir sporðrenndu. Víkurfréttir voru á staðnum og mynduðu góða gesti sem m.a. komu frá Íslandsbanka og HS Veitum og HS Orku.

-mannlíf pósturu [email protected]

Ljúf kvöldstund í villibráð í Lóninu

Page 17: 43 tbl 2014

tm.is/afhverju

Tryggingamiðstöðin Hafnargötu 31 Sími 515 2620 [email protected] tm.is

Hvað sem verður…komdu í hóp ánægðra viðskiptavina TM

Page 18: 43 tbl 2014

18 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf pósturu [email protected]

„Það gengur bara ágætlega hjá okkur en auðvitað hafa verið sviptingar eins og gengur. Við erum ánægð með að vera komin á þennan stað, aðstaða starfsfólks er miklu betri og þá eru helmingi fleiri sæti en á gamla staðnum,“ sagði Gunnar Friðriksson sem á og rekur veitingastaðinn Olsen Olsen með Bergljótu Gríms-dóttur, konu sinni.Gunnar er ekki ókunnur á þessum gamla verslunarstað við Hafnar-götu 62 en þar hefur verið starf-rækt verslun eða þjónusta óslitið í tæpa sjö áratugi. Ekkert annað hús á lengri sögu í verslun og þjónustu í Reykjanesbæ. Eftir áratuga rekstur Kaupfélags Suðurnesja í plássinu opnaði Axel Jónsson veitingastað-inn Langbest árið 1986. Ári síðar keyptu Gunnar og Bergljót veit-

ingastaðinn og ráku hann í áratug. Ingólfur Karlsson og Helena Guð-jónsdóttir tóku við keflinu á Lang-best árið 1987 þar til þau lokuðu fyrir stuttu og fluttu alla starfsemi Langbest á Ásbrú. Gunnar starf-aði á Langbest og þar á undan á veitingastaðnum Glóðinni í sama húsi. Síðustu árin hafa þau hjónin rekið Olsen Olsen við Hafnargötu 17. Gunnar segir að þegar honum hafi staðið til boða að færa staðinn hafi hann strax fundist það spenn-andi hugmynd og svo ákveðið að láta verða af því. Hann var sáttur við gang mála þegar VF leit við hjá honum í opnunarteiti á nýja staðnum.Gunnar er sáttur með gang mála í rekstrinum og segir að sumrin séu sífellt að verða stærri með fleiri ferðamönnum. Hann nefnir líka

athyglisverða breytingu sem varð þegar Varnarliðið fór með manni og mús frá Keflavíkurflugvelli en Kanarnir voru góðir viðskiptavinir hjá honum. Það hlýtur að hafa verið áfall fyrir veitingastaðinn? „Ótrúlegt en satt þá varð breytingin þannig að Íslendingar fylltu í skarð Varnarliðsmanna. Það má ekki gleyma því að fjöldi heimamanna stundaði veitingastaði á Vellinum. Þeir fluttu sig bara hingað niður eftir,“ segir Gunnar þegar hann rifjar þetta upp.Olsen Olsen hefur stundum verið líkt við ameríska staðinn Route 66 sem margir þekkja. Gunnar og hans starfsfólk matreiðir vinsæla báta en auk þess hamborgara, sam-lokur og fleira með öllu tilheyr-andi. Hann lofar áfram ljúffengum skyndibita á nýjum stað.

Íslendingar komu í stað Varn-arliðsmanna á Olsen Olsen Fluttur á nýjan stað. Rekstur samfleytt í sama húsnæði við Hafnargötu 62 í sjö áratugi

Ingólfur Karlsson og kona hans Helena Guðjónsdóttir komu færandi hendi og

fóru reyndar út frá Gunnari Bergljótu með pakka. VF-myndir/pket.

Hvað er barnið að segja? er meðal umfjöllunarefni á

námskeiði fyrir verðandi foreldra hjá 9mánuðum. Mosfellsbær niðurgreiðir 50% af þátttöku-gjaldinu. Margir þekkja þjáning-una sem fylgir því að skilja ekki ungabarnið sitt, vita ekki hvað það er að segja með merkjum sínum. Þetta námskeið er frá-bært hjálpartæki fyrir verðandi og nýorðna foreldra sem hjálpar þeim að skilja ungabörnin sín og svara þörfum þeirra. Rannsóknir sýna að það að foreldrar geti lesið í þarfir barna sinna styrkir tengsl þeirra á milli og eykur á vellíðan fjölskyldunnar.„Fyrir nýja foreldra getur heimur ungabarna stundum virst mjög ruglingslegur, jafnvel bara það að leika við ungabarnið þitt og skilja merkin sem ungabarnið gefur frá sér, getur verið mjög erfitt. Rann-sóknirnar sem ég hef gert á rann-sóknarstofu minni með Alyson Shapiro og rannsóknir Ed Tronick og T. Berry Brazelton hafa sýnt að eitt af því mikilvægasta sem við getum gert sem foreldrar er að læra er að lesa merkin og vísbending-arnar sem ungabarnið ykkar gefur frá sér. Þannig getir orðið þú orðið

næmari fyrir barninu þínu þegar þú leikur við það. Börn eru fædd tilbúin til að hafa samskipti við ykkur. Það er ekki til neitt vísinda-lega hannað leikfang, sem unga-barnið þitt hefur meiri áhuga á en andlitið á þér. Og það er ekki hægt að semja neina tónlist sem barnið þitt hefur meiri áhuga á en rödd-inni þinni.“ Dr. John Gottman er höfundur námskeiðsins Ertu að verða for-eldri? Það er nýtt námskeið hjá 9mánuðum heilsumiðstöð. Nám-skeiðið Ertu að verða foreldri? miðar einnig að því að kynna helstu breytingar sem verða þegar par verða foreldrar, og leggja til gagnleg verkfæri í það efni. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Ástþóra Krist-insdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og Ólafur Grétar Gunn-arsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi hjá 9mánuðum.Námskeiðið verður haldið að Hlíð-arsmára 2 í Kópavogi miðvikudag-inn 12. nóvember kl. 18:00 – 20:30. Skráning og nánari upplýsingar á 9manudir.is

Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi

■■ Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi hjá 9mánuðum skrifar:

Hvað er barnið að segja?

-aðsent pósturu [email protected]

Vinir og ættingjar samfögnuðu með Gunnari og Bergljótu á nýja staðnum.

augaRevía

GETUM BÆTT VIÐ OKKUR VERKEFNUM

KRISTJÁN VALTÝSSONrafverktaki,

sími 862 2662

EINAR SVEINSSONtrésmíðameistari,

sími 897 6422

• Öll almenn raflagnavinna • nýlagnir • breytingar

• viðgerðir • nýsmíði • nýbyggingar o.fl.

[email protected]

Page 19: 43 tbl 2014

www.kia.com

HV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

– 1

4-24

36

7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum

Bílasalan K. Steinarsson, umboðsaðili Öskju á Suðurnesjum, fagnar 15 ára starfsafmæli um þessar mundir. Laugardaginn 8. nóvember verður mikið um dýrðir. Trúðurinn Wally skemmtir börnunum og blöðrulistamaður sýnir snilli sína. Glæsileg afmæliskaka, kleinur, vöfflur, kaffi og gos fyrir alla.

Hlökkum til að sjá þig í afmælisveislunni!

15 ára afmælisveisla hjá K. Steinarsson

Þér er boðið til veislu laugardaginn 8. nóvember kl. 12-17

Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook

ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.isViðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.

Holtsgötu 52 · Reykjanesbær · Sími 420 5000 · ksteinarsson.is

Kaupauki

Vetrardekk

og dráttar-

beisli Eigum

bíla til

afgreiðslu

strax!

Page 20: 43 tbl 2014

20 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

Ekki get ég sagt a ð f j ár h a g s -

staða Reykjanes-bæjar hafi komið á óvart, og þó. Hún er verri. Það lá við að maður feng i áfall á kynningar-fundinum í Stapa,

á miðvikudaginn var. Spilin voru lögð á borðið. Staðan er miklu verri en ég hafði getað ímyndað mér. Spurningin er því þessi: Hvers vegna hafði eftirlitsnefnd með mál-efnum sveitarfélaga og innanríkis-ráðuneytið ekki gripið í taumana, tekið yfir reksturinn, tekið hann úr höndum bæjarstjórnar, eins og ber að gera lögum samkvæmt? Það mál verður að skýra.Fyrir liggur taprekstur á bæjarsjóði öll ár frá 2002 til 2013 nema einu. Hallinn var litlar 25 þúsund milljónir króna. Taprekstrinum var mætt með sölu eigna bæjarins og nýjum lánum. Bærinn er flakandi skuldasár uppá 43 milljarða. Upp í skuldahítina þarf að ná í 900 milljónir á ári fyrir bæjar-sjóð næsta áratuginn. Áætlun nýrrar bæjarstjórnar, Sóknin, kveður á um að skerða þjónustu um 500 milljónir á ári og auka tekjur um 400 millj-ónir. Ekki kom fram á Stapafund-inum hvernig það verður gert. Skýrist í desember? Kannski.Vera má að skýringin á öllu tapinu sé öðru að kenna en okkur. Atvinnu-leysi eftir herinn, fjármálahruni frjálshyggjunnar, falli Sparisjóðsins. Bærinn hafi orðið að bregðast við nýjum aðstæðum í anda þess að ef illa aflast verði að sækja lengra á miðin, hvernig sem viðrar. Það er gott að eiga draum og hafa framtíðarsýn, en það er afleitt að flytja inn í drauminn. Við erum að súpa seiðið af því núna. Það hefur orðið enn eitt hrunið. Heimalagað hjá okkur.Fjárfestingin (sem tekin var að láni) í götum og lóðum í Helguvík, Njarð-vík og víðar liggur í dvala og mun liggja þar áfram og safna mosa um ókomin ár. Auðvitað er þessi fjar-festing ekki farin, hún er þarna, en hún er bara engum til gagns. Ekki ennþá. Allt var þetta í plati. Hún er nú blýþungur skuldabaggi á herðum okkar íbúanna. Þá byrði verðum við að bera saman.Kannski er best að vera ekki með neitt neikvæðniraus. Öll dýrin í skóg-inum eiga að vera vinir, eins og mér heyrðist nýi bæjarstjórinn ýja að í Stapa. Mikið rétt. Við Suðurnesja-menn erum vanir að lenda í ýmsu.

Köllum ekki allt ömmu okkar, og fast þeir sóttu sjóinn og allt það. Nei, kæru vinir, brettum upp ermar, öxlum ábyrgð á gjörðum okkar (þ.e. síðustu bæjarstjórnar) og borgum brúsann með bros á vör. Hér eru tækifæri. Ekki skal gert lítið úr því. Ég tek undir það. Gott landsvæði, framtíð í ferðaþjónustu og orku, ekki bara í jarðhita, heldur eru líklega hvergi betri skilyrði fyrir vindorkuver í Evrópu en einmitt hér á Suðurnesjum, vindorkuver sem gætu framleitt meiri orku en bæði Reykjanesvirkjun og Svartsengi framleiða saman í dag. Álver og annar orkufrekur iðnaður er vissulega enn tækifæri. Fleira mætti nefna. En að nýjum atvinnutæki-færum þarf að vinna af skynsemi og nú þarf að breyta um stíl. Sleppa loft-köstulunum og ráðast fyrst í fram-kvæmdir þegar þeirra er raunaveru-lega þörf og samningar liggja fyrir um tækifærin. Þá mun okkur farnast vel. En það kostar fórnir að snúa vörn í sókn.Það verður að greiða reikninginn fyrir þá loftkastala sem fyrri bæjar-stjórn byggði og enginn flutti inn í nema hún sjálf í draumi sínum. Það þarf að snúa niður óráðsíuna. Reikn-ingurinn hljóðar upp á 900 milljónir á ári, næsta áratuginn. Það samsvarar 700 þúsund kr. skuld hvers einasta íbúa, að meðtöldum kornabörnum og gamlingjum. Skuldina verður að borga á næstu 10 árum, með verri þjónustu og hærri sköttum. En hvernig? Því mun núverandi bæjar-stjórn svara þegar Sóknin hefst og/eða eftirlitsnefndin með fjármálum sveitarfélaga.Maður spyr sig: Verður sundlauginni lokað? Íþróttahúsum? Snjómokstri hætt? Fjárfestingar og viðhald húsa og gatna sett í lágmark? Uppsagnir? 50 eða 100 manns hjá bænum, kannski enn fleiri? Hækka fasteiga-gjöld og útsvar, með undanþágu, um 5-6%? Það yrði auðvitað kjaraskerð-ing sem aðrir íbúar þessa lands þurfa ekki að taka á sig. Bara við. Menn munu hugsa sig um tvisvar að flytja til bæjarins. Hér verður dýrara að búa. Þjónusta verri. Já, þetta er vissulega enn eitt áfallið sem á okkur dynur, en látum það ekki ganga af okkur dauðum. Vinnum okkur út úr vandanum og vonum að okkur muni farnast vel. En bataferlið verður bæði hægt og sársaukafullt. Því miður.

Skúli Thoroddsen

■■ Skúli Thoroddsen skrifar:

Enn eitt hrunið

Innan skamms verða verðtryggð

húsnæðislán heim-ilanna leiðrétt. Um jafnræðisaðgerð er að ræða sem mun koma flestum ís-lenskum heimilum til góða. Loksins fá heimilin að njóta

einhverrar sanngirni og réttlætis. Húsnæðismálin eru einnig í brenni-depli en húsnæðismálaráðherra mun leggja fram fjögur frumvörp þessa efnis á yfirstandandi þingi. Lengi hefur verið talað um þörf á nýju húsnæðiskerfi og loksins sjáum við fram á að það verði að veruleika.

Stóra planið gengur uppÁ sumarþingi 2013 samþykkti Al-þingi þingsályktunartillögu um aðgerðir vegna skuldavanda heim-ilanna. Tillagan var í tíu liðum og leiðréttingin er aðeins einn liður af tíu. Aðrir þættir aðgerðaráætlunar eru t.d. að gerðar verði tillögur um framtíðarskipan húsnæðismála. Umsóknir um leiðréttingu á lánum voru 69 þúsund frá 105 þúsund ein-staklingum. Umsóknarferlið var ein-falt og vinnan við að reikna út leið-réttinguna gengur mjög vel. Innan skamms munu tilkynningar berast um leiðréttingu lána.

SpunameistararnirNú þegar leiðréttingin er handan við hornið er eins og sumir hafi gleymt

af hverju farið var í þessa vegferð. Á síðasta kjörtímabili vildu sumir þing-menn þáverandi stjórnarflokka fara í aðgerðir til að leiðrétta stökkbreytt verðtryggð húsnæðislán. Úr því varð ekki. Þáverandi forsætisráðherra sagði nefnilega að ekki yrði meira gert fyrir skuldsett heimili. Á sama tíma var ráðist í stórar efnahagsað-gerðir; skuldir fyrirtækja afskrifaðar og gengistryggð lán voru endur-reiknuð. Þeir sátu eftir sem skulduðu verðtryggð lán.

Tekjulágir fá meiraSama fólk og talaði á síðasta kjör-tímabili fyrir nauðsyn þess að leið-rétta stökkbreytt lán, talar nú gegn aðgerðum ríkisstjórnarinnar og kastar vísvitandi ryki í augu almenn-ings. Talað er um kaldar pizzur og visa skuldir í þessu samhengi. Sann-leikurinn er sá að hlutfall fjárhæðar niðurfærslu og árstekna er hærra hjá tekjulægri heimilum en þeim tekju-hærri. Þannig að þeir tekjulægri fá hlutfallslega meira. Tæpur helmingur leiðréttingarinnar fer til heimila með undir 6 milljón kr. í árslaun sem eru t.d. heimili þar sem tveir einstakl-ingar eru hvor um sig með undir 250 þús. kr. í mánaðarlaun. Meðal-fjárhæð niðurfærslu hækkar eftir því sem fjöldi barna er meiri, þar sem stærri fjölskyldur eiga iðulega stærra húsnæði og meiri skuldir. Rétt er að benda á að ef þessi leiðrétting kæmi ekki til nú, þá yrði hækkun höfuð-stóls enn meiri vegna verðbólgunnar.

Unnið er hörðum höndum innan ráðuneyta að afnámi verðtryggingar og munu niðurstöður þeirrar vinnu liggja fyrir í mars 2015.

Skattgreiðendur og hrægammarÞað hefur legið fyrir frá því fram-kvæmd leiðréttingarinnar var kynnt að bankaskattur yrði hækkaður og undanþága fjármálastofnana í slita-meðferð frá skattinum afnumin. Í fyrsta sinn eru þrotabúin skattlögð og gert er ráð fyrir að þessar breytingar auki tekjur ríkissjóðs um 92 m.kr. á fjórum árum. Það er fráleitt að halda því fram að heimilin borgi leiðrétt-inguna í þeim skilningi sem sumir kjósa að túlka svo. Þeir sem ekki eiga húsnæði geta einnig notið góðs af aðgerðum ríkisstjórnarinnar með því að nýta séreignarsparnað og safna í sjóð til húsnæðiskaupa. Nýtt hús-næðiskerfi mun einnig tryggja hag-muni leigjenda mun betur en nú er.Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunn-laugssonar stendur með heimilunum og ræðst í verkefni sem fyrri ríkis-stjórn taldi ógerlegt. Núverandi ríkis-stjórnar verður minnst í sögubókum framtíðarinnar fyrir að hafa reist hina langþráðu skjaldborg um heimilin í landinu.

Silja Dögg Gunnarsdóttir og Elsa Lára Arnardóttir, þing-menn Framsóknarflokksins

■■ Silja Dögg Gunnarsdóttir og Elsa Lára Arnardóttir skrifa:

Skjaldborgin rís eftir langa bið

Kertatónleikar Karlakórs Keflavíkur■uÞann 3. desember nk. efnir Karlakór Keflavíkur til sinna árlegu

Kertatónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Slíkir tónleikar hafa verið haldnir til margra ára og jafnan í upphafi aðventunnar. Að þessu sinni mun Barnakór Grunnskóla Sandgerðis vera gestakór á tónleikunum og syngja bæði ein sér sem og með körlunum. Stjórnandi Barnaskórsins er Sigurbjörg Hjálmarsdóttir. Þá mun Jóhann Smári Sævarsson óperu-söngvari og söngkennari með meiru syngja einsöng á tónleikunum ásamt því að syngja með karlakórnum. Það er alltaf sérstök stemning sem hefur skapast á kertatónleikunum og í raun má segja að karla-kórinn syngi aðventuna inn með ýmiss konar jólatónlist frá ýmsum tímum og af öllum gerðum. Að sögn Þorvarðar Guðmundssonar, formanns karlakórsins, hafa karlarnir æft ný og gömul jólalög í haust og eru því komnir í jólaskapið og hlakka til að syngja aðventuna inn. Stjórnandi Karlakórs Keflavíkur er Guðlaugur Viktorsson sem tók aftur við stjórnartaumunum eftir tveggja ára fjarveru meðan hann var við nám í Danmörku í kórstjórn.

Styrktarsjóður Isavia veitir í ár styrki til barna- og

unglingastarfs á Suðurnesjum. Styrkjunum er ætlað að styðja við allar greinar íþrótta og stuðla að auknum möguleikum barna- og unglinga til að stunda sínar íþróttir og fara í nauðsynlegar æfinga og keppnisferðir.Styrkirnir voru á dögunum af-hentir íþróttarféögum í Garði, Sandgerði, Vogum, Grindavík og þeim aðildarfélögum Íþrótta-bandalags Reykjanesbæjar (ÍRB) sem þegar eru eða eru við það að

verða fyrirmyndarfélög Íþrótta-sambands Íslands.Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, veitti styrkina til félaganna. „Keflavíkurflugvöllur er stærsti vinnuveitandinn hér á Suður-nesjum og því ákváðum við að styrkveitingar í ár skyldu renna til barna- og unglingastarfs hér á svæðinu. Við vitum að það er brýn þörf fyrir slíkan stuðning og við vonum að styrktarféð komi nærsamfélagi flugvallarins að góðum notum.“

Ingigerður Sæmundsdóttir, for-maður ÍRB, sagðist afar ánægð með framtak Isavia. „Uppbygg-ing á íþróttastarfi fyrir börn og unglinga er fjárfrek og því er afar ánægjulegt þegar öflug fyrirtæki eins og Isavia sjá sér fært að styðja við starfið með myndarlegum hætti. Þessir fjármunir munu því koma sér afar vel hjá félögum innan ÍRB sem hafa uppfyllt eða eru við það að uppfylla öll skilyrði um fyrirmyndafélög hjá ÍSÍ."Meðfylgandi eru myndir frá af-hendingu styrkjanna.

Isavia styrkir barna- og unglingastarf á Suðurnesjum

Forsvarsmenn og iðkendur félaga innan Íþróttabandalags Reykjanesbæjar ásamt Birni Óla Haukssyni forstjóra Isavia.

Forsvarsmenn og iðkendur íþróttafélaga í Sandgerði, Garði, Vogum og Grindavík ásamt Birni Óla Hauks-syni forstjóra Isavia.

Page 21: 43 tbl 2014

21VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. nóvember 2014

Á hvaða braut ertu? Félagsfræðibraut

Hvaðan ertu og aldur? Ég er 19 ára frá Keflavík

Helsti kostur FS? Fjölbreyttur og gott félagslíf.

Hjúskaparstaða?Í sambandi.

Hvað hræðistu mest? Að missa einhvern nákominn mér.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Þóra Lind mun ná langt á fyrir-sætuferlinum.

Hver er fyndnastur í skólanum? Sigurður Smári klikkar ekki.

Hvað sástu síðast í bíó og hvernig var sú mynd?

Borgríki 2, hún var ekki alveg fyrir mig.

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Mér finnst mötuneytið bara frekar fjölbreytt og gott, alveg nóg fyrir mig allavega.

Hver er þinn helsti galli? Fljótfær og utan við mig.

Hvað er heitasta parið í skólanum? Mér finnst Brynjar og Aníta Car-ter alltaf voða sæt.

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Halda enn betur persónulega utan um nemendur, bæði hvað varðar nám og vellíðan nemenda í skól-anum, svo að minna verði um brottfall.

Áttu þér viðurnefni? Nei, ekkert svoleiðis.

Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Snilld.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Ótrúlega fínt, mikið um að vera.

Áhugamál? Tónlist og dans og svo er alltaf gaman að ferðast og njóta þess að vera með fjölskyldu og vinum.

Hvert er stefnan tekin í fram-tíðinni? Fara í áframhaldandi nám og stofna fjölskyldu, svo langar mig til þess að prófa að búa í út-löndum.

Ertu að vinna með skóla?Já, ég er danskennari í Danskomp-aní.

Hver er best klædd/ur í FS? Hanna Dís

Hera Ketilsdóttir er 19 ára Keflavíkurmær. Hún hefur mikinn áhuga á dansi og tónlist en hún starfar sem danskennari samhliða námi. Hún heldur lúmskt upp á lagið Litir úr Ávaxtakörfunni. Sálfræði er eftirlætis fagið hennar í skólanum og Kristrún íslenskukennari er í uppáhaldi hjá Heru.

Getur verið fljótfær og utan við sig

-fs-ingur vikunnar

Kennari: Kristrún

Fag í skólanum: SálfræðiSjón-varps-þættir: FriendsKvik-mynd: Bridget Jones’s Diary

Hljómsveit/tónlistarmaður: Af íslenskum hljómsveitum f i n n s t m é r Hjálmar standa upp úr og svo eru Sia og Lykke Li í miklu uppá-haldi hjá mér.Leikari: Jennifer Lawrence

Vefsíður: Mig langar ekki að segja það en ætli það sé ekki Facebook.Flíkin:Hvítur, síður, þæginlegur jakki sem passar við allt.Skyndibiti: SubwayHvað tónlist/lag fílarðu í laumi (gu-ilty pleasure)? Lagið Litir í Ávaxta-körfunni.

Eftirlætis

ORLOFSHÚSÁ SPÁNI

Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins á Spáni laust til umsóknar fyrir páska. Einnig auglýsir félagið Spánarhús

laust til umsóknar fyrir sumar.

Páskaúthlutun 2015

Orlofshús á La Marina á Spáni.31. mars til 14. apríl.

Umsóknarfrestur til 19. nóvember

Sumarúthlutun 2015

Orlofshús á La Marina á Spáni.Sumarúthlutun er frá 26. maí 29. sept.

(2 vikur hver úthlutun)

Umsóknarfrestur til 19. nóvember

Hægt er að sækja um á skrifstofu félagsins eða á vefnum www.stfs.is.

Orlofsnefnd STFS

-uppboð

-mannlíf pósturu [email protected]

Leikfélag Keflavíkur frumsýndi sl. föstudags-kvöld revíuna Með ryk í auga. Þetta er átt-

unda revían sem leikfélagið setur upp en um þessar mundir eru liðin 25 ár frá því fyrsta revía Leikfélags Keflavíkur var sett upp. Hún hét „Við kynntumst fyrst í Keflavík“ eftir Ómar heitinn Jóhannsson.Með ryk í auga er í leikstjórn Hjálmars Hjálmars-sonar en handritshöfundar eru Arnar Ingi Tryggva-son, Jón Bjarni Ísaksson, Arnór Sölvason, Gustav Helgi Haraldsson, Ómar Ólafsson, Júlíus Freyr Guðmundsson og svo er stjórn Leikfélags Kefla-víkur einnig skrifuð fyrir handritinu.Revían er byggð upp á átján atriðum eða sketsum með gríni og tónlist þar sem þekkt lög eru flutt með nýjum og staðbundnum textum.Leikarahópurinn sem tekur þátt í uppfærslunni er samsettur af fólki með talsverða sviðsreynslu hjá leikfélaginu og nýjum andlitum. Ekki er hægt að setja út á frammistöðu leikaranna sem allir skila sínum hlutverkum vel. Nokkrir leikarar fara þó algjörlega á kostum í uppfærslunni og það er mikill fjársjóður fyrir Leikfélag Keflavíkur að eiga svoleiðis fólk. Fyrstan ber að nefna Arnar Inga Tryggvason í hlutverki Árna Sigfússonar. Daði Freyr Þorgeirsson á mjög góða spretti í sýningunni

m.a. sem Óli Geir, Guðmundur Rúnar Lúðvíksson listamaður og Sigurjón Vikarsson.Halla Karen Guðjónsdóttir sem Anna Lóa Ólafs-dóttir og Berglind Bjarnadóttir sem Bryndís Guð-mundsdóttir eiginkona Árna Sigfússonar eiga báðar hrós skilið. Þá eru þeir Arnór Sindri Sölvason og Jón Bjarni Ísaksson mikill hvalreki fyrir leik-félagið. Arnór Sindri fer t.d. á kostum í hlutverki Konráðs Lúðvíkssonar læknis.Í revíunni Með ryk í auga er gert mikið grín af pólitíkinni í Reykjanesbæ og fá bæjarfulltrúar það óþvegið. Einnig fær Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinn skammt af gríninu, auk þess sem stungið er á ýmsum málum í bæjarfélaginu. Lögreglan, Óli Geir og Keflavík Music Festival, Sparisjóðsmál og fjöl-margt fleira.Í kosningaslagnum í Reykjanesbæ í vor varð einn bæjarbúi nokkuð áberandi í umræðunni. Styrmir Barkarson blandaðist inn í umræðuna. Hann leikur sjálfan sig í revíunni og bregður sér einnig í hlutverk bæjarfulltrúans Böðvars Jónssonar í sýningunni.Það er full ástæða til að hvetja íbúa Reykjanesbæjar til að skella sér í Frumleikhúsið á revíu eina kvöld-stund. Uppfærsla Leikfélags Keflavíkur er alveg þess virði.

Hilmar Bragi Bárðarson

■■ Leikfélag Keflavíkur sýnir Með ryk í auga:

Bæjarstjórnin og Óli Geir fá það óþvegið

TIL LEIGU

TIL SÖLU

ÞJÓNUSTA

Pokoje do wynajecia w Sand-gerði. Bardzo dobre warunki.

tel.6901460 po 17.00

Hef til leigu bílskúr 30fm.í Engja-dal í Innri Njarðvík. uppl. 772-4475

Til sölu rafmagnsrúm frá LÚR . 8 mán.120x190. Kostar nýtt kr.318.000 fer á kr.200.000.

Uppl.í síma 691-4098 Kolbrún

Lærður húsasmiður /smiður getur bætt við sig verkefnum,  utan sem innanhúss, góð þjónusta og gott verð. Áratuga reynsla. s.8636095.

Ég þek að mér alþrif/jólaþrif. Er mjög vandvirk, rösk,og skipu-lögð.Endilega hafið samband í

síma 777-4663. Annie Björt

Rafvirki getur bætt við sig verkum! Get bætt við mig verkum, úti-

lýsing,viðhald,nýbygging og margt fleira. Vönduð vinnubrögð,traust

og örugg þjónusta 772-2482

BílaviðgerðirPartasala

Kaupum bilaðaog tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979www.bilarogpartar.is

- smáauglýsingar

Eftirtaldir munir verða boðnir upp fimmtudaginn 13. nóvember 2014 kl. 13:00 að Selvík 1, Keflavík:Formaco sprautusöltunarvél, árg. 1998 og færibönd úr hraðfrysti með viftum og elementi.Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Keflavík,4. nóvember 2014.Ásgeir Eiríksson,staðgengill sýslumanns.

Bæjarstjórahjónin Kjartan og Jóna skemmtu sér vel

Hjálmar leikstjóri fékk vænan blómvönd

Leikarahópurinn á sviðinu eftir frumsýningu.

Page 22: 43 tbl 2014

22 fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir pósturu [email protected]

Ástrós í undanúrslit á HM í taekwondo- sló út ríkjandi EM meistara frá Serbíu í fyrstu umferð.

■uÁstrós Brynjarsdóttir, taekwondo kona Íslands og íþróttamaður Reykja-nesbæjar, komst í undanúrslit á heimsmeistaramótinu í taekwondo tækni um liðna helgi. Þar keppti hún í unglingaflokki og það voru 22 sterkustu keppendur heims sem höfðu unnið sér þátttökurétt í hennar flokki. Ástrós sló út ríkjandi EM meistara frá Serbíu í fyrstu umferð. Þess má geta að Ástrós hefur aldrei tapað í þessari grein á Íslandi.

Ragnheiður Sara í 2.-3. sæti á Íslandsmótinu í Crossfit

■uSuðurnesjakonan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir hafnaði í 2-3 sæti á Íslandsmótinu í Crossfit nú um helgina. Sara hefur stöðugt verið að bæta sig að undanförnu, en hún hefur náð frábærum árangri í mótum víða um heim. Fleiri keppendur frá Crossfit Suðurnes stóðu sig vel, en Hafdís Ýr Óskarsdóttir hafnaði í 9. sæti í kvennaflokki. Kefl-víkingurinn Daníel Þórðarson hafnaði svo í 10. sæti karla.

Unnu fyrsta bikarmót vetrarinsKraftur í keflvísku taekwondo-fólki

■uKeflvíkingar unnu fyrsta Bikarmót vetrarins í taekwondo sem haldið var á Selfossi á laugardag. Keflvíkingar voru með 117 stig, í öðru sæti voru Ármenningar með 81 stig og í þriðja sæti var Aftur-elding með 45 stig. Keppendur mótsins voru Dýrleif Rúnarsdóttir og Ólafur Þorsteinn Skúlason, bæði úr Keflavík.

Gunnlaugur þjálfar Keflvíkinga■uGunnlaugur Kárason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks

kvenna í knattspyrnu hjá Keflavík. Gunnlaugur er heimamaður og öllum hnútum kunnugur hjá Keflavík, en hann hefur áður starfað sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu, en það var árið 2006 í Landsbankadeildinni sálugu. Gunnlaugur er með UEFA-A þjálfara-réttindi og er auk þess íþróttakennari að mennt.

Fimleikadeild Keflavíkur vann til 41 verðlauna á

þrepamóti þar sem allir yngri iðkendur í fimleikum á land-inu voru samankomnir. Þetta er stórglæsilegur árangur hjá fimleikafólkinu í Keflavík sem hafa æft að kappi að undanfarna mánuði. Framtíðin virðist svo sannarlega björt hjá fimleika-deildinni enda nóg af duglegur og hæfileikaríkum krökkum í fimleikum. Framundan er nóg um að vera hjá Keflvíkingum en um miðjan nóvember fer fram stökkmót sem deildin heldur í fyrsta sinn. Eins fer árleg jóla-sýning fram 13. des en sýningin sú vekur jafnan mikla athygli.

UNNU TIL 41 VERÐ-LAUNA Í FIMLEIKUM

-frammistaða vikunnar

1. Hvaða tveir leikmenn hafa leikið bæði með Keflavík og Njarðvík í bæði körfubolta og fót-bolta í meistaraflokki? Teitur: Heyrðu það er Sverrir Þór. Steini Bjarna? Jonni: Steini Bjarna og Óli Gott.

2. Hvaða þrír leikmenn sem leika með liðunum í Reykjanesbæ í dag, hafa leikið með báðum liðum? Teitur: Það er Gummi Jóns, Snorri og Valur Orri.Jonni: Snorri í Njarðvík, Guðmundur Jóns og hverjum er ég að gleyma.

3. Fyrir Jonna - Hvenær urðu Njarðvíkingar síðast Íslandsmeistarar í karlaflokki og hverja unnu þeir í úrslitum? Jonni: Árið 2006 og unnu Snæfell.

4. Fyrir Teit - Hvenær urðu Keflvíkingar síðast Ís-landsmeistarar í karlaflokki og hverja unnu þeir í úrslitum? Teitur: Nú verð ég að passa, ég hef ekki hugmynd.

5. Hvaða tveir þjálfarar hafa þjálfað bæði Kefla-vík og Njarðvík í meistaraflokki karla í körfu-bolta?Teitur: Siggi Ingimundar og Gunni Þorvarðarson. Jonni: Sigurður Ingimundarson og Gunnar Þor-varðar frændi minn.

6. Fyrir Jonna: Hvað heitir Bandaríkjamaðurinn í liði Njarðvíkinga þessa leiktíðina?Jonni: Ég man það ekki.

7. Fyrir Teit: Hvað heitir erlendur leikmaður Kefl-víkinga þessa leiktíðina?Teitur: Er það ekki Will, William? Ég man ekki eftirnafnið.

8. Í frægum bikarúrslitaleik árið 1999 milli Kefla-víkur og Njarðvíkur réðust úrslitin á ögurstundu. Kristján Guðlaugsson kom þá inn af bekknum og misnotaði tvö vítaskot fyrir Keflavík. Her-mann Hauksson skoraði svo þriggja stiga körfu og tryggði Njarðvíkingum framlengingu. Brotið hafði verið á leikmanni Keflavíkur sem þurfti að fara meiddur af velli, Kristján kom í hans stað og tók vítin. Hver var þessi leikmaður sem fór meiddur af velli?Teitur: Það var Birgir Örn Birgisson þjálfari KFÍ.Jonni: Birgir Örn Birgisson.

9. Njarðvíkingar og Keflvíkingar léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn árin 1999 og árið 2002, hvernig fóru rimmurnar?Teitur: Ég ætla að segja að báðar hafi farið 3-2.Jonni: 99 unnum við Keflvíkingar í hörkurimmu 3-2, 2002 unnu þeir 3-0.

10. Hvaða leikmaður sem hefur leikið með báðum liðum er yngsti leikmaðurinn til þess að leika í úrvalsdeild frá upphafi?Teitur: Það hlýtur að vera Valur Orri. Jonni: Valur Orri.

1 1 . H v e r s u o f t h a f a Ke f l v í k i n g a r o r ð i ð Íslandsmeistarar karla í körfubolta?Teitur: Hvað á maður að segja, átta sinnum. Jonni: Níu sinnum.

12. Hversu oft hafa Njarðvíkingar orðið Íslandsmeistarar karla í körfubolta?Teitur: Þrettán sinnum. Jonni: Það er eitthvað aðeins meira en við erum að nálgast þá. Þrettán sinnum.

13. Fyrir Teit - Hvaða ár er Jonni fæddur?Teitur: Jonni er 76 árgerð.

14. Fyrir Jonna - Hvaða ár er Teitur fæddur?Jonni: Það var fyrir stríð. Segjum 1968.

15. Teitur fór í framboð nú í vor, hjá hvaða flokki var Teitur á lista?Jonni: Hann var hjá Frjálsu afli.

16. Jón Norðdal hefur gert það gott í fyrirsætu-bransanum sem og körfuboltanum, hvaða gos-drykk var Jonni fenginn til þess að auglýsa hér um árið?Teitur: Mig rámar í þetta. Var það ekki Sprite? Eða er það eitthvað sem er dottið út af markaði?

17. Teitur spyr: Hvað vann ég marga Íslands-meistaratitla með Njarðvík?Jonni: Tíu.

18. Jonni spyr: Númer hvað var ég allan minn feril?Teitur: Þetta á ég að vita. Ég held að það hafi verið sjö

Bónus spurning: Tímabilið 2001-2002 voru þið tveir iðnir við kolann þegar kom að því að stela boltum, en hvor ykkar stal fleiri boltum það tímabil? Teitur: Nú man ég það ekki. Ég man þó að ég vann þetta oftast. Eigum við ekki að gefa Jonna þetta þar sem ég var orðinn gamall. Jonni: Teitur var helvíti þjófóttur. Segjum bara ég. Svo fór að Jón Norðdal Hafsteinsson stóð uppi sem sigurvegari, hann hlaut 14 stig gegn 12 hjá Teiti. Nú verður bara að koma í ljós hvort Keflvíkingar fylgi for-dæmi Jóns og sæki sigur í Njarðvík á mánudag.

■■ Aðstoðarþjálfarar Keflavíkur og Njarðvíkur takast á í spurningakeppni VF

Hvað vita þjálfararnir um körfubolta?Á mánudag kemur eigast við erkifjendurnir Njarðvík og Keflavík í Domino’s deild karla í körfubolta.

Leikmenn munu þar líklega berjst til síðasta svitadropa enda heiðurinn í veði. Þjálfarar verða einn-ig í eldlínunni í Ljónagryfjunni en hjá báðum liðum eru þungavigtarmenn í brúnni. Aðstoðarþjálfarar liðanna eru þeir Jón Norðdal Hafsteinsson hjá Keflavík og Teitur Örlygsson hjá Njarðvík. Sem leikmenn tóku þeir þátt í fjölda leikja milli þessara liða enda léku þeir báðir aðeins fyrir uppeldisfélagið á farsælum ferli. Við ákváðum að leggja nokkrar spurningar fyrir kappana um sögu þessara tveggja risa í körfubolt-anum á Íslandi.

1. Sverrir Þór Sverrisson, Þorsteinn Bjarnason2. Guðmundur Jónsson, Valur Orri Valsson og Snorri Hrafnkelsson.3. 2006 gegn Skallagrími.4. 2008 gegn Snæfellingum.5. Sigurður Ingimundarson og Gunnar Þorvarðarson.6. Dustin Salisbery.7. William Thomas Graves VI.8. Birgir Örn Birgisson.9. Keflvíkingar urðu meistarar árið 1999 eftir 3-2 rimmu. Njarðvíkingar unnu svo 3-0 árið 2002.

10.Valur Orri Valsson, 14 ára gamall lék hann í efstu deild með Njarðvík.11.Níu sinnum.12. Þrettán sinnum.13.1981.14. 1967.15. Samfylkingunni og óháðum.16. Egils kristal.17. Teitur spyr: Tíu sinnum.18. Jonni Spyr: Númer sjö.Bónus spurning: Teitur með 2,48. Jonni stal 2,43 boltum í leik það tímabilið.

?

Page 23: 43 tbl 2014

M Á N U D A G U R I N N 1 0 . N Ó V E M B E R K L . 1 9 : 1 5

F Y R S T I A L V Ö R U L E I K U R V E T R A R I N S F E R F R A M Í L J Ó N A G R Y F J U N N I M Á N U D A G S K V Ö L D I Ð 1 0 . N Ó V E M B E RÞ E G A R T A K A Á M Ó T I G R Ö N N U M S Í N U M Ú R

N Ú T R O Ð F Y L L U M V I Ð KO FA N N

N J A R Ð V Í K I N G A R

K E F L A V Í K

ÁFRAM NJARÐVÍK!

HS VEITUR HF

Sími: 4567600

Vs

M I N N U M E I N N I G Á U M F N - S T J A R N A N Í 1 . D E I L DK V E N N A S U N N U D A G I N N 9 . N Ó V E M B E R K L . 1 9 : 1 5

V E L K O M N I R H E I M

Í L J Ó N A G R Y F J U N A !

FRIÐRIK RÚNARSSON TEITUR ÖRLYGSSON

RIS

AL

EIK

UR

!

Page 24: 43 tbl 2014

Brynja Björk Harðardóttir The proudest mama in Manhattan.

Ólafur Þór Ólafsson Nú kætist hver einasti kjaftur og klappar hver

einasti raftur. Farin úr Fasteignarkló friður er aftur og ró. Nú eigum við sjálf okkur aftur. G.Þ.K.

Ellert Grétarsson Kallinn kominn á bullandi lóðarí. Styttist í jómfrúar-flugið. Svo þarf ég

bara að finna út burðargetuna. Hvað þarf annars mikið dýnamít til að sprengja niður glænýtt há-spennumastur?

Sigurður Smári (@ssmari95) Að sjá gaur drepa í sígarettunni sinni á ruslabílnum sem hann er að vinna á og

henda svo sígarettustubbnum á götuna er frekar steikt….

Vogamenn ekki nógu duglegir í bólinu– slá slöku við í barneignum og þurfa ástarviku

vf.isvf.is

-mundiKarlmenn í Vogum athugið! Inn, út, inn, út... snúa sér svo yfir á hina hliðina.

FIMMTUDAGINN 6. NÓVEMBER 2014 • 43. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

Leiðsögumenn óskast í hlutastörf- Þekking á Reykjanesi mikilvægur kostur -

Upplýsingar í sima 421 4444 á skrifstofutíma eða i [email protected]

■uÁsgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum veltir því fyrir sér hvort Vogamenn þurfi að fylgja fordæmi að vestan og efna til ástarviku. Samkvæmt tölu Hag-stofunnar bjuggu 1.118 íbúar í Vogum um mitt árið. Þá hafði bæjarbúum fækkað um 11 manns frá áramótum. Í vikulegu fréttabréfi bæjarstjórans í Vogum, sem kom út nýlega, segir að áhugavert sé að skoða fjölda barna í hverjum árgangi. Í grunn-skólanum eru tæplega 200 nemendur í 10 árgöngum,

svo meðaltal í árgangi er um 20 nemendur. Í árgöngum leikskólabarna eru eilítið færri nem-endur að meðaltali í árgangi, eða liðlega 17 börn.Það sem vekur hins vegar athygli að börn á fyrsta ári eru einungis 6 talsins samkvæmt gögnum Hag-stofunnar. „Vogabúar eru því eitthvað að slá slöku við í barneignum. Við ættum e.t.v. að taka Bolvíkinga okkur til fyrirmyndar og efna til ástarviku?,“ segir Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum í fréttabréfinu.

FJÖLBREYTT STARF Í SPENNANDI STARFSUMHVERFIFRAMTÍÐARSTARF VIÐ EITT AF UNDRUM VERALDAR

Við leitum að orkumiklum og metnaðarfullum starfsmanni til að sinna starfi þjónustu- og gæslumanns í kvennaklefa. Starfið felst meðal annars í því að veita gestum upplýsingar, gæta öryggis þeirra og halda klefum snyrtilegum og aðlaðandi. Um vaktavinnu er að ræða og er æskilegt að viðkomandi sé 20 ára eða eldri.

Hjá Bláa Lóninu starfar öflugt og samhent teymi starfsmanna.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ester Gísladóttir deildarstjóri spa og Sylvía sérfræðingur á mannauðssviðií síma 420 8800.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2014.

Bláa Lónið hefur margsinnis verið valinn einn besti spa staðurinn á heimsvísu og fékk nýverið nafnbótina eitt af 25 undrum veraldar að mati National Geographic. Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði um 280 starfsmenn.

Hæfniskröfur: • Þjónustulund og jákvæðni• Áreiðanleiki og stundvísi• Góð samskipta- og samstarfshæfni• Sjálfstæði og öguð vinnubrögð• Samviskusemi• Góð enskukunnátta

VIKAN Á VEFNUM