16
vf.is vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 6. FEBRÚAR 2014 5. TÖLUBLAÐ 35. ÁRGANGUR af lyfjum utan greiðsluþátttöku af lausasölulyfjum og öðrum vörum Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ 16%afsláttur 12% afsláttur Lyfja Reykjanesbæ Krossmóa 4 Sími 421 6565 www.lyfja.is Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19 laugard. 10–16 sunnud. 12–16 Betri kjör fyrir heldri borgara Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ. Við stefnum að vellíðan. V ið Suðurnesjamenn vitum að hér er brú á milli tveggja heimsálfa. Mig langar að búa til nýja hefð sem verður fólgin í því að taka mynd hjá þessari brú eins og verið sé að halda á brúnni sem tengir Evrópu og Ameríku,“ segir Daniel Alexandersson, 13 ára nemi í 8. bekk í Akurskóla. Skakki turninn í ítölsku borginni Pisa er þekkt kennileiti og ferða- menn taka gjarnan mynd af sér hallandi eins og turninn eða styðjandi við hann. „Þetta er fræg ítölsk hefð og mig langar að hvetja til slíkrar hefðar hér hjá okkur. Auðvitað verður hún ekki allt í einu til og það þyrſti kannski að gera þægilega gangstétt sem leiðir að staðnum þar sem fólkið mun taka myndirnar,“ segir Daniel. Hann bætir við að sniðugt væri að láta þetta svo berast innan ferða- mannaiðnaðarins á Íslandi. „Hingað til lands koma margir frægir og það væri sniðugt að fá þá til þess að „halda á brúnni milli heimsálfa. Ég er viss um að þessi hefð gæti orðið mikilvæg fyrir Suðurnesin því hingað koma margir ferðamenn. Þetta gæti orð- ið skemmtileg viðbót til þess að hvetja ferðamenn til að fara víðar um Reykjanesið,“ segir hinn hug- myndaríki Daniel. VILL LÁTA „HALDA Á“ BRÚNNI Á MILLI HEIMSÁLFA Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslá af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Dim sokkar 20% afsláur TILBOÐ VIKUNNAR A tvinnuleysi á Suður- nesjum dróst töluvert saman á milli áranna 2012 og 2013. Í desember 2013 var atvinnuleysi 30% minna en á sama tíma árið áður. Alls voru 779 atvinnulausir á Suðurnesjum í lok árs 2013 en 1123 í lok árs 2012. Þetta kemur fram á vef Vinnu- málastofnunar. Þetta telst jákvæð þróun og atvinnu- lausum hefur fækkað jafnt og þétt en hæst fór fjöldi þeirra í 1670 sem voru án atvinnu á Suðurnesjum árið 2009. Þá fækkar atvinnulausum talsvert í öllum sveitarfélögum á svæð- inu. Atvinnulausir karlar voru í lok árs 2012 alls 567 og konur 556 án atvinnu en í desember 2013 voru 357 karlar án atvinnu á Suðurnesjum og 422 konur. Að sögn Krist- jáns Gunnars- sonar, formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, eru samninga- nefndir að hittast á ný þessa dagana og ráða ráðum sínum, eſtir að samningar voru felldir í janúar. Jákvæð þróun og stígandi sé í atvinnumálum og hann nefnir til dæmis að 100 færri voru á atvinnuleysis- skrá í janúar en í desember. „Þrátt fyrir að kjarasamningar væru felldir erum við í upp- sveiflu. Þegar þeir hafa náðst verður þetta allt upp á við,“ segir Kristján. Atvinnuleysi 35% minna Mörghundruð nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla á Suðurnesjum kynntu sér störf um 60 manns í íþróttamiðstöðinni við Sunnubraut á mánudags- morgun. Víkurfréttir voru á staðnum og tóku myndir og einnig viðtöl við nokkra viðstadda. Áhugasvið nemendanna voru fjölbreytt og þeir voru vel undirbúnir með tilbúnar spurningar. Flestir nem- endur spurðu um laun og vinnutíma en lengd náms og atvinnumöguleikar fylgdu þar fast á eftir. Fleiri myndir og frásögn eru á bls. 6 í blaðinu í dag. Hvað fáum við í laun? Listamaðurinn Guðmundur Rúnar Lúðvíksson hefur fengið góðar móttökur við hugmynd sinni um gera átta metra háa Norðurljósaturna sem hann hyggst reisa í Reykjanesbæ. Guðmundur hefur falast eftir landi undir verkið en ætlar sjálfur að standa straum af kostnaði við verkið sjálſt. Áhugasamir geta styrkt og hjálpað til við að gera Norðurljósaturnana að veruleika. Hver sá sem styrkir verkefnið um a.m.k. 1.140 kr. fær nafn sitt grafið í eina af súlunum á verkinu. Nú þegar hafa safnast hátt á 800 þúsund krónur en áætl- aður kostnaður eru órar milljónir. Á heimasíðu verkefnisins segir að með lítilli upphæð frá hverjum og einum ætti að vera möguleiki á að Norðurljósaturnarnir rísi hér á landi. Söfnun fyrir Norður- ljósaturnum gengur vel

05 tbl 2014

Embed Size (px)

DESCRIPTION

5.tbl.35.árg.

Citation preview

Page 1: 05 tbl 2014

vf.isvf.is

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

auðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

FIMMTUDAGURINN 6. FEBRÚAR 2014 • 5. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

af lyfjum utan greiðsluþátttöku

af lausasölulyfjum og öðrum vörum

Frábært vöruúrvalog þjónustaí Reykjanesbæ

16% afsláttur

12% afsláttur

Lyfja ReykjanesbæKrossmóa 4Sími 421 6565

www.lyfja.is

Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19laugard. 10–16sunnud. 12–16

Betri kjör fyrir heldri borgaraFélagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.

Við stefnum að vellíðan.

Við Suðurnesjamenn vitum að hér er brú á milli tveggja

heimsálfa. Mig langar að búa til nýja hefð sem verður fólgin í því að taka mynd hjá þessari brú eins og verið sé að halda á brúnni sem tengir Evrópu og Ameríku,“ segir Daniel Alexandersson, 13 ára nemi í 8. bekk í Akurskóla. Skakki turninn í ítölsku borginni Pisa er þekkt kennileiti og ferða-menn taka gjarnan mynd af sér hallandi eins og turninn eða styðjandi við hann. „Þetta er fræg ítölsk hefð og mig langar að hvetja til slíkrar hefðar hér hjá okkur. Auðvitað verður hún ekki allt í einu til og það þyrfti kannski að

gera þægilega gangstétt sem leiðir að staðnum þar sem fólkið mun taka myndirnar,“ segir Daniel.Hann bætir við að sniðugt væri að láta þetta svo berast innan ferða-mannaiðnaðarins á Íslandi.

„Hingað til lands koma margir frægir og það væri sniðugt að fá þá til þess að „halda á brúnni milli heimsálfa. Ég er viss um að þessi hefð gæti orðið mikilvæg fyrir Suðurnesin því hingað koma margir ferðamenn. Þetta gæti orð-ið skemmtileg viðbót til þess að hvetja ferðamenn til að fara víðar um Reykjanesið,“ segir hinn hug-myndaríki Daniel.

VILL LÁTA „HALDA Á“ BRÚNNI Á MILLI HEIMSÁLFA

Hringbraut 99 - 577 1150

Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum

Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.

VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐDim sokkar 20% afsláttur

TILBOÐ

VIKUNNAR

Atvinnuleysi á Suður-nesjum dróst töluvert

saman á milli áranna 2012 og 2013. Í desember 2013 var atvinnuleysi 30% minna en á sama tíma árið áður. Alls voru 779 atvinnulausir á Suðurnesjum í lok árs 2013 en 1123 í lok árs 2012.

Þetta kemur fram á vef Vinnu-málastofnunar. Þetta telst jákvæð þróun og atvinnu-lausum hefur fækkað jafnt og þétt en hæst fór fjöldi þeirra í 1670 sem voru án atvinnu á Suðurnesjum árið 2009. Þá fækkar atvinnulausum talsvert í öllum sveitarfélögum á svæð-inu. Atvinnulausir karlar voru í lok árs 2012 alls 567 og konur 556 án atvinnu en í desember

2013 voru 357 karlar án atvinnu á Suðurnesjum og 422 konur.Að sögn Krist-jáns Gunnars-sonar, formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, eru samninga-nefndir að hittast á ný þessa dagana og ráða ráðum sínum, eftir að samningar voru felldir í janúar. Jákvæð þróun og stígandi sé í atvinnumálum og hann nefnir til dæmis að 100 færri voru á atvinnuleysis-skrá í janúar en í desember. „Þrátt fyrir að kjarasamningar væru felldir erum við í upp-sveiflu. Þegar þeir hafa náðst verður þetta allt upp á við,“ segir Kristján.

Atvinnuleysi35% minna

Mörghundruð nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla á S u ð u r n e s j u m ky n n t u sér störf um 60 manns í í þ r ó tta m i ð s t ö ð i n n i v i ð Sunnubraut á mánudags- morgun. Víkurfréttir voru á staðnum og tóku myndir og einnig viðtöl við nokkra viðstadda. Áhugasvið nemendanna voru fjölbreytt og þeir voru vel undirbúnir með tilbúnar spurningar. Flestir nem-endur spurðu um laun og vinnutíma en lengd náms o g a t v i n n u m ö g u l e i k a r fylgdu þar fast á eftir. Fleiri myndir og frásögn eru á bls. 6 í blaðinu í dag.

Hvað fáum við í laun?

Listamaðurinn Guðmundur Rúnar Lúðvíksson hefur fengið góðar móttökur við hugmynd sinni um gera átta metra háa Norðurljósaturna sem hann hyggst reisa í Reykjanesbæ. Guðmundur hefur falast eftir landi undir verkið en ætlar sjálfur að standa straum af kostnaði við verkið sjálft.Áhugasamir geta styrkt og hjálpað til við að gera Norðurljósaturnana að veruleika. Hver sá sem styrkir verkefnið um a.m.k. 1.140 kr. fær nafn sitt grafið í eina af súlunum á verkinu. Nú þegar hafa safnast hátt á 800 þúsund krónur en áætl-aður kostnaður eru fjórar milljónir.Á heimasíðu verkefnisins segir að með lítilli upphæð frá hverjum og einum ætti að vera möguleiki á að Norðurljósaturnarnir rísi hér á landi.

Söfnun fyrir Norður-ljósaturnum gengur vel

Page 2: 05 tbl 2014

fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR2

NESVELLIRLéttur föstudagur 7. febrúar kl. 14:00 Séra Skúli, Arnór og félagar

Allir hjartanlega velkomnir

DUUSHÚSMENNINGAR- OG LISTAMIÐSTÖÐ REYKJANESBÆJAR

Í Duushúsum er opið virka daga frá kl. 12 – 17 og um helgar 13 -17.

Aðgangur að öllum sýningum er ókeypis.Nú standa y�r eftirtaldar sýningar:ListasalurKRÍA / KLETTUR / MÝSýning á nýjum þrívíddarverkum Svövu Björnsdóttur.

BátasalurSýning á y�r 100 bátalíkönum eftir Grím Karlsson og munum frá Byggðasafni Reykjanesbæjar.Ljósmyndir eftir Heimi Stígsson á breiðtjaldi.

ByggðasalurÁ vertíð – Þyrping verður að þorpi.Sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar. Sagan fyrir vélvæðingu.

BíósalurVerk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar.

Verið velkomin.

ERTU TIL Í FJÖR?

Hefur þú áhuga á leiklist, söng, dansi, sminki, búningagerð eða öðru því sem við kemur uppsetningu á söngleik?

Fimmtudaginn 6. febrúar 2014 verður hald-inn kynningarfundur á sviðsverki sem sýnt verður 26. og 27. apríl. Áætlað er að tvinna saman brot úr þekktum söngleikjum og spuna.

Fundurinn verður haldinn hjá MSS, Krossmóa 4a, 3. hæð kl. 20.00.

Leikstjórar eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir og Henning Emil Magnússon.

ALLIR VELKOMNIR!

Nánari upplýsingar hjá [email protected] eða í síma 421-7500 (Jenný Magnúsdóttir)

-fréttir pósturu [email protected]

Hvatagreiðslur hækka í 10.000

uBæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur ákveðið að upphæð á hvatagreiðslum árið 2014 verði 10.000 krónur á hvert barn á grunnskólaaldri til íþrótta-, tóm-stunda- og listgreinastarfs.Hvatagreiðslur voru teknar upp að nýju haustið 2013 en þá var upphæðin 9000 krónur á hvert barn í Reykja-nesbæ. Hvata-g r e i ð s l u r h j á b æ j a r f é l a g i n u hófust árið 2008 en var um tíma hætt vegna hagræðingar hjá Reykjanesbæ. Árið 2008 nýttu 650 börn greiðslurnar sem voru að upphæð 7000 krónur.Á árinu 2013 voru 840 börn frá 16 félögum sem nýttu sér hvata-greiðslurnar í Reykjanesbæ. Heildarupphæð greiðslna var sam-tals 7.560.000 krónur í samanburði við 4.550.000 kr. árið 2008.

Tvöfalt fleiri í strætó í Vogum

uAlls voru farþegar Vogastræ-tós 3.989 árið 2013, samanborið við 1.912 árið 2012. Farþegafjöldi í strætó í Vogum á Vatnsleysu-strönd tvöfaldaðist á milli ári en þeir voru fjögur þúsund árið 2013 í samanburði við 1912 árið á undan.Árið 2013 var annað heila árið í starfrækslu Vogastrætós eftir að fyrirkomulagi akstursins var breytt síðari hluta árs 2011. Þjónustan er nú orðin nokkuð föst í sessi, ferðum hefur markvisst verið fjölgað og farþegum fer fjölgandi. Akstrinum er nú sinnt af starfs-mönnum Umhverfisdeildar, með 14 farþega bíl í eigu sveitarfélags-ins. Nýting bílsins er góð, því auk strætóaksturs er hann er einnig notaður fyrir skólaakstur og fleira hjá sveitarfélaginu.

Opnað hefur verið fyrir um-sóknir í flugvirkjanám AST

hjá Keili sem hefst í lok ágúst 2014. Fyrst var boðið upp á flug-virkjanámið haustið 2013 og bárust vel yfir hundrað umsóknir um þau 28 pláss sem voru í boði. Það er því ljóst að mikill áhugi er meðal Íslendinga að sækja flug-virkjanám, enda er mikill skortur á flugvirkjum í heiminum. Keilir og AST vilja benda á að nám og starf í flugvirkjun hentar jafnt konum sem körlum og því hvetjum við konur sérstaklega til að skoða þennan möguleika í framtíðinni.

Atvinnugrein í örum vextiJens Þórðarson, framkvæmdastjóri ITS var í viðtali í Morgunblaðinu á dögunum, en þar var meðal ann-

ars fjallað um umsvif viðgerðar- og viðhaldsstöðvar þeirra á Kefla-víkurflugvelli. Alls starfa um 320 manns hjá fyrirtækinu og eru um helmingur starfsmanna flugvirkjar.„Síðustu misserin hefur verið tals-verð hreyfing á fólki og nokkrir af eldri starfsmönnum okkar farið á eftirlaun. Í staðinn hefur komið inn fínn mannskapur, til dæmis strákar sem í kringum aldamótin fóru til Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjum og tóku flugvirkjanámið,“ segir Jens. Í huga ungs fólks er flugið gjarnan sveipað ævintýraljóma, margir fara í flugnám eða leggja fyrir sig tengdar greinar svo sem flug-virkjun. Í dag eru á annað hundrað manns að læra flugvirkjun, þar á meðal hjá Keili á Ásbrú, sem gefur til kynna að flugið er áhugaverð at-vinnugrein í örum vexti.

Mikill áhugi og mögu-leikar í flugvirkjun

Fyrsti kennsludagur hjá Tónlistarskóla Reykja-nesbæjar í Hljómahöllinni var á sl. mánudag. Tónlistarskólinn flutti þangað með viðhöfn síð-astliðinn föstudag. Þegar Víkurfréttir litu við beið Gyða Dröfn Davíðsdóttir eftir að komast í þverflaututíma og var alveg til í að stilla sér upp með hljóðfærið.Þá var Emil Örn Gunnarsson í gítartíma hjá Alex-öndru Pitak og Snæbjörn Gauti Snæbjörnsson leið-

beindi Bergþóru Káradóttur á saxófón. Von var á fleiri nemendum í tíma þegar líða tók á daginn, enda fer kennslan í tónlistarskólanum að miklu leyti fram eftir að kennslu í grunnskólum lýkur.Aðstaða, borð og stólar, verða til staðar svo að krakkar geti nýtt stund á milli stríða í að kíkja í skólabækur. Nemendur og kennarar sem blaða-maður ræddi við voru ánægðir með nýju aðstöðuna og hlökkuðu til vetrarins.

n Tónlistarskólinn fluttur og allt komið í gang:

Fyrsti kennsludagur í Hljómahöllinni

Page 3: 05 tbl 2014

Tilboðin gilda 6. - 9. feb 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjör

vatnsmelónaÁður 279.–

140.--50% Kleinuhringir

usa - bakað Á staðnumÁður 189.–

129.--32% trópí

1 l appelsínuÁður 229.–

199.-

Coopsaltstangir250 gÁður 193.–

149.--23%

meðaldinKjöti

125ml Compact Care 499 399 kr.125ml extra White sensitive 499 399 kr.50ml adv.White max booster 879 703 kr.75ml adv.White 459 367 kr.75ml adv.White sensitive 459 367 kr.75ml brilliant sparkle 459 367 kr.

75ml enamel Care Whiten 799 639 kr.50ml adv.White max booster 879 703 kr.75ml adv.White 459 367 kr.75ml adv.White sensitive 459 367 kr.75ml brilliant sparkle 459 367 kr.75ml enamel Care Whiten 799 639 kr.

sonic tannburstar 2.497 1.998 kr.spinbrush my Way boys 1.699 1.359 kr.spinbrush my Way girls 1.699 1.359 kr. 799 639 kr.sonic tannb.áfyllingar 699 559 kr.spinbrush my Way girls 1.699 1.359 kr.

Tannkrem TannbursTar

-20%

Mar

khön

nun

ehf

magn-paKning

grísaKóteletturÁður 1.849.–

1.294.-

grísabógurferskurÁður 935

598.-

-30%

-36%

lambalæriÁður 1.998.–

1.598.-

grísahnaKKipork roastÁður 1.989.–

1.392.-

-20%

-30%

Frosiðsagað

Page 4: 05 tbl 2014

fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR4

-fréttir pósturu [email protected]

Tækifæri í atvinnuuppbygg-ingu á norðurslóðum voru

kynnt fyrir fyrirtækjum á Suður-nesjum í síðustu viku. Þá fór fram fyrsti kynningarfundur verk-efnisstjórnar á vegum Heklu-nnar- Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, Samtaka atvinnu-rekenda á Reykjanesi og Isavia um ný tækifæri í atvinnuupp-byggingu á norðurslóðum. Hátt í eitthundrað manns sóttu fundinn sem haldinn var í Eldey, þróunar-setrinu á Ásbrú.Helstu tækifæri Suðurnesjamanna í þjónustu við norðurslóðir er að á Keflavíkurflugvelli verði staðsett

björgunarmiðstöð fyrir norður-slóðir vegna þeirra verkefna sem unnið er að t.a.m. vegna opnunar siglingarleiða og í tengslum við olíuleit við austurstönd Grænlands, svo dæmi séu tekin.Fjórir aðilar fluttu fyrirlestra á fundinum og sögðu frá gangi mála í þessu stóra verkefni. Guðmundur Pétursson, formaður SAR, Sam-taka atvinnurekenda á Reykjanesi sem sá um undirbúning fundar-ins sagðist afar ánægður með þær upplýsingar sem komu fram og þá framtíðar möguleika sem væru fyrir Suðurnesjamenn í tengslum við norðurslóðir.

Tækifæri fyrir Suðurnesja-menn á norðurslóðum

Útibú Landabankans í Sand-gerði fagnaði 50 ára afmæli

síðastliðinn föstudag. Af því til-efni færðu bæjarstjórinn, Sig-rún Árnadóttir, og forseti bæjar-stjórnar, Ólafur Þór Ólafsson, El-ísu Baldursdóttur þjónustustjóra veglegan blómvönd. Elísa hefur starfað við bankann í tæp 30 ár, eða frá því hún var 17 ára. Nem-endur 3. bekkjar grunnskólans kíktu við og sungu afmælissöng-inn. Myndaalbúm lágu frammi fyrir viðskiptavini að skoða og gestir og gangandi gæddu sér á af-mælisköku og öðrum kræsingum

n Stór tímamót í Sandgerði:

Landsbankinn fimmtugur

Ólafur Þór Ólafsson, Elísa Baldursdóttir og Sigrún Árnadóttir.

Starfskonur Landsbankans, Guðrún Sig-ríður Helgadóttir, Hrönn Hjörleifsdóttir, Sigrún Ragnarsdóttir, Guðrún Jóna Ara-

dóttir og Elísa Baldursdóttir.

Grunnskólabörn sungu afmælissönginn og gæddu

sér á veitingum.Viðskiptavinur og fyrrum

starfsmaður skoðar albúm.

Mörghundruð nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla

á Suðurnesjum kynntu sér störf um 60 manns í íþróttamiðstöð-inni við Sunnubraut í morgun. Víkurfréttir voru á staðnum og tóku myndir og einnig viðtöl við nokkra viðstadda. Áhugasvið nemendanna voru fjölbreytt og

þeir voru vel undirbúnir með tilbúnar spurningar. Flestir nemendur spurðu um laun og vinnutíma en lengd náms og atvinnumöguleikar fylgdu þar fast á eftir. Einn hafði ákveðið fyrir 12 árum að verða kokkur og annar hafði gert myndbönd í 6 ár og stefnir í kvikmyndagerð.

Þá var ein stúlka harðákveðin í að verða lögregla. Almenn ánægja var meðal nemenda og þeirra sem standa að kynn-ingunni, sem síðast var árið 2010. Auðvelt var að fá fólk til að kynna störf sín og það í sjálfboðavinnu utan venjulegs vinnutíma.

n Vel heppnuð starfakynning fyrir grunnskólanema:

„Hvað færðu í laun?“ERUM FLUTTIR Á IÐJUSTÍG 1C

VIÐ HLIÐINÁ SS BÍLALEIGUNNI

Iðjustíg 1c - sími 421 7979www.bilarogpartar.is

BÍLAVIÐGERÐIR-PARTASALA

Orlofshús VSFKPáskar 2014

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:

2 hús í Svignaskarði3 hús í Húsafelli

2 hús í Ölfusborgum2 hús í Hraunborgum

1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h á Akureyri

Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 16. apríl til og með miðvikudeginum 23. apríl 2014.

Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og er umsóknarfresturtil kl. 15:00 föstudaginn 7. mars 2014.

Úthlutað verður samkvæmt punktaker�.

Orlofsstjórn VSFK

HONDA CR-V

BÍLL ÁRSINS 2014

Á ÍSLANDI Í FLOKKI JEPPA OG JEPPLINGA*

HONDA CR-V KOSTAR FRÁ 5.290.000 EYÐSLA FRÁ 4,5L/100km

www.honda.is

* S

kv. v

ali B

anda

lags

ísle

nskr

a bí

labl

aðam

anna

, BÍB

B.

Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is

Page 5: 05 tbl 2014

HONDA CR-V

BÍLL ÁRSINS 2014

Á ÍSLANDI Í FLOKKI JEPPA OG JEPPLINGA*

HONDA CR-V KOSTAR FRÁ 5.290.000 EYÐSLA FRÁ 4,5L/100km

www.honda.is

* S

kv. v

ali B

anda

lags

ísle

nskr

a bí

labl

aðam

anna

, BÍB

B.

Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 7800 • www.bernhard.is

Page 6: 05 tbl 2014

fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR6

Vörubíll í ljósum logum á SandgerðisvegiVörubifreið stóð í ljósum

logum á Sandgerðisvegi þegar lögregluna á Suðurnesjum bar þar að í síðustu viku. Hafði ökumaður ekið bifreiðinni suður Sandgerðisveg þegar hann varð var við eld í húsi hennar og stöðvaði hann hana þá þegar. Brunavarnir Suðurnesja sáu um

að slökkva eldinn og var bif-reiðin fjarlægð að því loknu. Þá var haft samband við vegagerðina og óskað eftir því að menn frá henni yrðu sendir til að þrífa upp óhreinindi á veginum eftir brun-ann, sem gætu ella skapað hættu fyrir aðra ökumenn.

-ritstjórnarbréf

vf.isvf.is

Samstaða í kjaramálum og norðurljósumÞað er ekki hægt annað en að vera á jákvæðu nótunum hér í þessum pistli þegar þróunin er á þann veg í atvinnulífinu hér á Suðurnesjum. Í blaðinu í dag er sagt frá kjarakönnun hjá Flóabandalaginu en Verka-lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur er í því. Þar má margt jákvætt sjá.Það sem vekur fyrst athygli er að nú eru fleiri í starfi en hafa verið síðan í ágúst 2007 og til að mynda voru 100 fleiri með atvinnu í desember 2013 miðað við sama mánuð árið á undan. Þá hafa samkvæmt könnuninni laun hækkað nokkuð en í niðurstöðu hennar kemur einnig fram að mikilvægt sé að hraða uppbyggingu efnahagslífsins með því að efla atvinnulífið og skapa þannig gott svigrúm til almennrar kaupmáttaraukningar. Losun hafta sé for-gangsmál og forsenda stöðugleika. Þetta kom líka fram í máli forráðamanns lífeyrissjóða í Kastljósi í vikunni. Og Kristján Gunnarsson, framkvæmdastjóri Verkalýðs- og sjó-mannafélags Keflavíkur og nágrennis, er bjartsýnn þó svo að kjarasamningar hafi fengið slæmar móttökur hjá fólki. „Þrátt fyrir að kjarasamningar væru felldir erum við í upp-sveiflu. Þegar þeir hafa náðst verður þetta allt upp á við,“ segir Kristján við Víkurfréttir. Háværar raddir um frekari kjarabætur m.a. hjá framhaldsskólakennurum og fleirum eru vissulega ákveðið áhyggjuefni því margir spá því að sú barátta muni enda með verkfalli. Það er því von allra að landsmenn, hvar í stétt þeir eru, taki höndum saman og nái samningum um kaup og kjör. Verkföll eru ekki það sem atvinnulífið og samfélagið á Íslandi þarf á að halda núna.

Frábær hugmynd listamannsins Guðmundar R. Lúð-víkssonar um að reisa norðurljósaturna hefur fengið góðar móttökur en hann hvetur fólk, fyrirtæki og stofn-anir til að taka þátt í verkefninu. Á forsíðu blaðsins í dag er sagt frá stöðu mála en nú reynir á samstöðu þarna eins og víðar. Það er deginum ljósara að norður-ljósaturnar munu vekja heimsathygli hér á Suður-nesjum og draga hingað þúsundir ferðamanna.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected]éttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected] P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, [email protected], Eyþór Sæmundsson, [email protected]ýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected] P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, [email protected], Þórgunnur Sigurjónsdóttir, [email protected]ðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, [email protected], Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: ÍslandspósturStafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.isTekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einnsólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Páll Ketilsson skrifar

SÍMI 421 0000

Texti: Olga Björt Þórðardóttir // [email protected]

AðalfundurAðalfundur skátafélagsins Heiðabúa fer fram

mánudaginn 24. febrúar 2014 að Hringbraut 101 í Reykjanesbæ.

Venjuleg aðalfundarstörf.

Stjórn skátafélagsins Heiðabúa

n Bauð erlendum ferðamönnum gistingu í náttúruparadís:

BESTA ÚTISTURTA Í HEIMI Á REYKJANESI„Þegar ég segi fólki að ég eigi bústað á Reykjanesi spyr fólk stundum: Hvers vegna í ósköpunum þar? Ég svara því gjarnan til að hvergi sé Ísland fegurra en einmitt þar og mannlíf best í heimi hér. Það gengur ekki alltaf vel að útskýra að annað sé til en Gullfoss og Geysir,“ segir Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar. Hann á sumarhús á landi Hafur-bjarnarstaða, en það er gömul landnámsjörð í Sand-gerði.

Engin tölva og ekkert sjónvarp

Húsið notar hann sjálfur 10 daga í mánuði og segir strangar reglur gilda þar, svo sem að ekki má vera með tölvu og aðeins má nota síma til þess að hringja. Þar er ekkert sjónvarp en það má stilla á Bylgjuna. „Ég nota rekavið til að kynda upp. Brimið þarna og fuglalífið hafa ein-stök áhrif á Suðurnesjastrákinn í mér,“ segir Gylfi Jón.

Tjölduðu í skrúðgarðinumRocky Vachon og Paula Fatia frá Kanada voru gestir Gylfa Jóns í fyrrasumar og hann segir þau hafa fallið flöt fyrir mannlífi og náttúrufegurð á Suðurnesjum.

Hann sá út um gluggann á skrifstofunni sinni á bæjar-skrifstofunni að þau höfðu tjaldað í skrúðgarðinum innan um framkvæmdir. Hann gekk út til þeirra, kynnti sig og komst að því að þau voru strand vegna þess að þau biðu eftir að fá mótorhjólið sitt afgreitt úr tollinum í Kanada. „Ég bauð þeim þá í mat og svo gistingu í sumarhúsinu mínu næstu tvær vikur. Þau höfðu ákveðið að selja allt sitt, kaupa mótorhjól og

ferðast svo um heiminn. Síðan urðu þau par,“ segir Gylfi Jón.

Bestu sturtuferðirnar í vetrarhríð

„Rocky er snillingur með myndavélina og sannar að glöggt er gests augað. Næst þegar ég verð spurður: Af hverju í ósköpunum áttu bústað á Reykjanesi, ætla ég að sýna þeim myndirnar hans

Rocky. Paula segir að útisturtan í bústaðnum sé besta útisturta í heimi,“ segir Gylfi Jón og bætir við að bestu sturtuferðirnar séu þegar hríð er úti. „Þá finnur maður fyrir heitri sturtunni en fær jafnframt hríðina og vind-inn í andlitið. Manni verður heitt og kalt á sama tíma og það er mjög hressandi,“ segir Gylfi Jón að lokum.

Ég bauð þeim í mat og svo gistingu

Útsýnið frá sturtunni er ægifagurt.

Gylfi Jón sýnir gestunum

náttúrufegurð á Reykjanesi.

Rocky og Paula.

Paula ánægð í sturtunni.

Page 7: 05 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 7

Söngleikurinn Dirty Dancing verður frumsýndur í Andrews Theatre fimmtudaginn 20. febrúar

á vegum Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suður-nesja (NFS). Leikstjóri sýningarinnar er Gunnella Hólmarsdóttir og danshöfundur er Ásta Bærings. Sýningin er byggð á vinsælli kvikmynd frá níunda áratugnum sem sló eftirminnilega í gegn á sínum tíma. Tónlist, dans og drama spila stórt hlutverk í metnaðarfullri sýningu sem NFS stendur nú fyrir. Við tókum Aþenu Eir, unga aðalleikkonu Dirty Dancing tali. Hún er afar spennt fyrir sýningunni og segir að áhorfendur megi eiga von á frábærum tilþrifum.Hin 16 ára Aþena Eir Jónsdóttir fer með hlutverk Fran-ces „Baby“ Houseman, sem á íslensku kallast einfald-lega Lilla. Aþena sem er fædd og uppalin í Garðinum segist hafa horft á hina vinsælu bandarísku kvikmynd ótal sinnum í æsku. „Guð já, þetta er búin að vera uppáhalds myndin mín síðan ég var lítil,“ segir hún. Þannig að hún ætti líklega að vera með hlutverkið á hreinu? „Það mætti nú segja það,“ segir Aþena og hlær.Mikið er um dansatriði í sýningunni en sjálf hefur Aþena æft dans frá 10 ára aldri. Hún hefur m.a. stundað freestyle-dans, jazzballet og nútímadans. Um þessar mundir æfir hún hjá Danskompaníi og þar líður henni ákaflega vel. Aþena komst fyrst að í sýningu NFS sem dansari en var síðar beðin um að koma í leikprufu. „Eitt kvöldið var ég beðin um að koma í leikprufur og fékk þar af leiðandi þetta dúndur verkefni,“ segir hún spennt. Aþena er ekki alveg óvön því að leika á sviði en í grunnskóla lék hún iðulega í leikritum á

árshátíðum auk þess sem hún hefur oft komið fram sem dansari. Þetta verkefni er ívið stærra en Aþena er vön, en hún segist vera spennt fyrir frumsýningu. „Já það er nátt-úrulega mjög lítill tilfinningalegur munur á milli spennu og stress, þegar að þessu kemur mun ég ekki vita hvort ég sé spennt eða stressuð, en í augnablikinu er ég ótrúlega spennt.“Stór hópur kemur að sýningunni sem frumsýnd verður í Andrews Theatre þann 20. febrúar. „Hópurinn er alveg hreint frábær, við erum öll að verða nánari með hverjum deg-inum,“ segir Aþena en hún segir að áhorfendur megi eiga von á sjúklega flottum dansatriðum í sýningunni. „Verið bara tilbúin!“ segir hún. Tónlist skipar veiga-mikinn sess í sýningunni og verður Aþena að þenja raddböndin örlítið, en því er hún ekki vön. En gæti dansarinn úr Garðinum hugsað sér að leggja leiklistina fyrir sig? „Kannski svona „on the side,“ þetta heillar mig þó mikið og er ótrúlega skemmtilegt,“ segir Aþena sem stundar nám á viðskipta- og hagfræðibraut hrað-ferðalínu og stefnir á að útskrifast á þremur árum frá FS. Dansinn er ekki eina áhugamál Aþenu en hún er einnig mikil hestamanneskja og að eigin sögn algjör sveitastelpa.Sýningin 20. febrúar er ætluð nemendum FS eingöngu en síðar verða þrjár almennar sýningar helgina 21. - 23. febrúar. Miðasala fer einungis fram í gegnum netið á NFS.is.

Dansandi sveita-stelpa úr Garðinum- Dirty Dancing uppáhalds myndin. NFS frumsýnir söngleik 20. feb.

-viðtal pósturu [email protected]

Hagstæðustu gleraugnakaupinumgjarðir frá kr. 8.900

kaupauki

Með öllum margskiptum glerjum* fylgir annað par frÍtt með í sama styrkleika. Tilvalið sem sólgleraugu eða varagleraugu.

* Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler

Módel: Kristín Jóna Hilmarsdóttir

Umgjörð: Lindberg Spirit

Fagmennska fyrst og fremst Persónuleg og góð þjónusta

Page 8: 05 tbl 2014

fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR8

-viðtal pósturu [email protected]

Stefna tekin á heimsklassa stað

Þráinn Freyr Vigfússon er fyrir-liði kokkalandsliðsins. Hann er meðal fremstu matreiðslumeistara Evrópu og hefur náð einstökum árangri í alþjóðlegum matreiðslu-keppnum.

„Við erum með fullt af fólki sem vill skara framúr á sínu sviði og það er gaman að vinna með öllum þeim sem koma að starfsemi Bláa Lóns-ins á degi hverjum og taka þátt í uppbyggingu þess. Veitingaþáttur-inn er mikilvægur hluti af heildar-upplifun Bláa Lónsins. Þetta er bara teymisvinna, ekkert annað,“ segir Þráinn Freyr Vigfússon, einn af yfirmatreiðslumeisturum Bláa Lónsins og kom til starfa í septem-ber.

Með gott starfsfólk„Umhverfið er einstakt og spenn-andi að starfa innan ferðaþjónust-unnar, þar sem matarupplifunin skiptir miklu máli. Staðsetningin, nálægðin við náttúruna, fiskurinn úr sjónum við Grindavík og upp-byggingin sem er á döfinni eru allt þættir sem gera starfið enn áhuga-verðara. Þá er gaman að taka þátt í því sem matreiðslumeistararnir Ingi og Viktor eru búnir að byggja upp hér í Bláa Lóninu, ásamt Magnúsi Héðinssyni sem stýrir sviðinu,“ segir Þráinn og bætir við að hugmyndir séu um enn frekari stækkun og þróun. „Við erum með gott starfsfólk hjá okkur og erum að undirbúa okkur fyrir framtíð-ina. Við mætum miklum skilningi hjá þeim sem reka Bláa Lónið. Það skiptir svo miklu máli.“ Stefnan sé tekin á heimsklassa stað sem á að laða að erlenda og innlenda gesti. Heildarupplifun sem felst í mat, spa og gistingu.

Erum við öllu búin„Við erum með efnilega mat-reiðslumenn og erum að byggja upp það teymi sem þarf í framtíð-arþróun. Við finnum líka að vegna þess að við erum búin að byggja upp ákveðinn gæðastaðal þá hefur það þau áhrif að fólk sækir í að starfa hérna. Þetta er langhlaup og gerist ekki á einni nóttu,“ segir Þráinn. Hann starfaði á Mic-helin-stjörnu veitingastaðnum, Domaine de Clairfontane í Lyon í Frakklandi, auk þess sem hann hefur starfað sem aðstoðaryfirmat-reiðslumeistari á Grillinu og yfir-matreiðslumeistari á Kolabraut-inni hér heima. Hann segir starfið vera fjölbreytt en jafnframt mikla áskorun. „Hingað koma margir og það skiptir máli að halda í þann hóp. Kannski eru 2000 manns í Lóninu og það þarf ekki nema brot af því til að fylla salinn. Því verðum við að vera við öllu búin, hafa nægt starfsfólk og viðhalda góðri þjón-ustu,“ segir Þráinn að lokum.

Styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín- segir Viktor Örn Andrésson, Matreiðslumeistari ársins 2013

Viktor Örn Andrésson, er einn þriggja yfirkokka Bláa Lónsins og er að hefja sitt fjórða starfsár. Hann sigraði í keppninni um matreiðslu-mann ársins í fyrra og er með Þráni í kokkalandsliðinu. „Við erum þrír yfirmatreiðslumeistarar hér, erum ólíkir og styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín.“ Viktor segir að

þeir félagarnir séu á miðri leið og starfið hafi gengið vel. Þeir hafi þó að sjálfsögðu metnað í að gera enn betur. Viktor segir að það hafi verið gaman að taka þátt í uppbyggingu Lava veitingastaðar Bláa Lónsins. „Við þurfum að vera tilbúin til að taka á móti bæði hópum sem hafa bókað fyrirfram og einnig gestum Bláa Lónsins sem panta þá af seðli. Góð liðsheild og andi á meðal starfsfólks skiptir lykilmáli til að allt gangi vel hjá okkur.“

Umhverfið skiptir miklu máliErlendir gestir eru í meirihluta þeirra sem sækja veitingastaðinn og mest er að gera í hádeginu. Þar er íslenska lambið vinsælast ásamt fisknum. „Umhverfið skiptir miklu máli og fólk kann vel að meta um-hverfi Bláa Lónsins þar sem fólk slakar vel á og nýtur matarins um leið. Ég hvet þá sem eiga eftir að heimsækja okkur til að koma, sjá og upplifa,“ segir Viktor sem ekur 40 mínútna leið til vinnu frá höfuð-borginni.

Kemur pollrólegur heim„Ég gekk alltaf fimm mínútna leið til og frá vinnu áður og var því allt-af með vinnuna í kollinum þegar ég kom heim. Núna nýti ég tímann á leiðinni í að slaka á og fá tíma út af fyrir mig og hugsa. Það er fínt að keyra brautina og koma pollrólegur heim.“ Hann segist þó fara alltof sjaldan í Lónið en reyni þó að fara einu sinni í viku. Starf matreiðslu-manns er krefjandi og ekki fyrir alla,“ segir Viktor en hann er jafn-framt ánægður með hversu margir sýni því áhuga á að koma og læra hjá þeim.

Með 14 nema í vinnuUm er að ræða nemendur sem búnir eru með grunnnám og einn-ig ungt fólk sem er harðákveðið í að fara út í þetta og á eftir að fara í nám. „Við erum með 14 nema hjá okkur núna og við reynum að hvetja þá til að taka þátt í keppnum og fara til útlanda til að heim-sækja erlenda veitingastaði, dvelja um tíma og fá að taka þátt í starfi þeirra. Hann er nýkominn frá Chicago þar sem hann heimsótti veitingastaðinn Alinea og kynnt-ist því helsta sem er einkennandi fyrir einn framsæknasta veitinga-stað heims. Veitingahúsaumhverfi getur verið mjög krefjandi en einn af kostunum við að vera kokkur er að það er hægt að vinna hvar sem er í heiminum,“ segir Viktor og brosir.

„Hér er besta aðstaðan og kennslan, með landsliðsstjóra og fyrirliða kokkalandsliðsins, ásamt matreiðslumanni ársins. Ég gæti ekki fengið betri kenn-ara,“ segir Rúnar Pierre Her-iveanx, sem byrjaði fyrir ári sem matreiðslunemi í Lava. Hann segist áður hafa haft smá-vegis starfsreynslu í eldhúsi en gerði sér svo lítið fyrir og sigraði nema-keppni Matreiðslu-manns árs ins í september í fyrra. „Fyrir keppnina k u n n i é g e k k i mikið en svo tóku Viktor og Ingi mig í gegn í svona viku-tíma og veittu mér frábæra leiðsögn og þjálfun. Bláa Lónið hjálpaði mér einnig mikið með hráefni og aðstöðu. Viktor og Ingi hvöttu mig til að taka þátt og til að byrja með var ég ekkert rosalega spenntur. En þeir héldu áfram að hvetja mig og segja að ég yrði Íslandsmeistari.“ Og það gekk eftir.Rúnar segir undirbúningsvikuna hafa verið rosalega. Hann hafi

fengið að gista í Lækningalind-inni því hann undirbjó sig fram á nótt og varð að byrja æfingar snemma næsta dag. „Ég var mjög stressaður. Viktor er frekar strangur þjálfari og þjálfaði mig í þeim fjölmörgu atriðum sem snerta keppnina alla vikuna. Við tókum þetta í raun skrefinu

lengra en í nema-keppninni sjálfri og ég fékk einkunnina 10, en hefði í raun ekkert átt að fá hana því það gera allir einhver mistök í svona keppni,“ segir Rúnar hæv-erskur og hann hafi verið hissa á að hafa unnið. „Ég brosti ekki einu

sinni og varð hálf vandræðalegur þegar ég var spurður að því hvort ég væri ekki ánægður. En ég var feginn þegar keppnin var búin,“ segir hann og bætir aðspurður við að hann ætlar að taka þátt í keppninni um Matreiðslumann ársins eftir að hann útskrifast. „Já þeir hafa líka verið að þrýsta á mig með það,“ segir þessi ungi metnaðarfulli matreiðslunemi.

Keflvíkingurinn Stefán Geirs-son hefur verið nemi hjá Vikt-ori, Inga og Þráni í bráðum þrjá mánuði. „Mér líkar mjög vel, reyndar alveg frábærlega, starfið kom skemmtilega á óvart.“ Stefán segir að veitinga-teymi Bláa Lónsins hafi verið að leita að nemum og hann ákveðið að slá til. „Ég fékk áhuga á náminu þegar ég komst að því að ég kynni ekki að elda. Þá vatt ég mér bara út í það að læra og kom hingað á besta staðinn, hjá þremur meisturum.“ Stefán segir það besta við að vera hjá Bláa Lóninu sé hversu mikið nýtt hann læri á hverjum degi.

Starfið verður í raun lífsstíll og það kemur fyrir að ekki mikið annað rúmist innan dagsins, sér-staklega þegar mikið er að gera.“ Stefáni finnst starfið eiga vel við hann og er spenntur fyrir því að læra til meistarans.

Rúnar Pierre, Matreiðslunemi ársins 2013 er ánægður í eldhúsinu í Bláa lóninu:

Gæti ekki fengið betri kennara

Stefán Geirsson, matreiðslunemi kann vel við sig innan um meistarakokka Lava:

Kunni ekki að eldaViktor og Þráinn fyrir utan Lava, veitingahús Bláa lónsins.

n Bláa Lónið laðar að sér starfskrafta og er með landsliðsmenn í eldhúsinu:

Lært af þeim bestu í LóninuNokkrir af bestu matreiðslumeisturum Íslands starfa hjá Bláa Lóninu þar sem þeir Ingi Þórarinn Friðriksson og landsliðskokkarnir Þráinn Freyr Vigfússon og Viktor Örn Andrésson starfa. Matreiðslumeistarar fram-tíðarinnar starfa einnig hjá Bláa Lóninu en þar eru nú 14 matreiðslunemar sem læra af þeim bestu eins og þeir segja sjálfir. Olga Björt leit í heimsókn í Bláa Lónið og spjallaði við matreiðslumeistara og nema.

Page 9: 05 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 9

-fréttir

DagskráFyrirkomulag og undirbúningur framboðs Samfylkingarinnar

til sveitarstjórnakosninganna í Reykjanesbæ í maí n.k.   

Félagar fjölmennið.

Laugardagskaffi 8. febrúar Munið laugardagskaffi jafnaðarmanna á hverjum laugardegi

kl. 10:30-12:00 að Víkurbraut 13. Næsta laugardag þann 8. feb. munu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar halda stutt erindi og svara spurningum

sem brenna á íbúum.

Félagar takið með ykkur gesti.  

Allir velkomnir!

FÉLAGSFUNDURFélagsfundur Samfylkingarfélaganna í Reykjanesbæ verður

haldinn fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20:00 í sal Samfylkingarinnar að Víkurbraut 13 við Keflavíkurhöfn.

FRÁBÆRT ATVINNUTÆKIFÆRI

Fiskbúðin Vík í Keflavík er til leigu/sölu.Nánari upplýsingar í síma 898 4694

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir:

Þín heilsa – þín skemmtun

Landskeppni í hreyfingu

ÍSL

EN

SK

A/S

IA.I

S/I

SI

6677

5 01

/14

Skráðu þigLífshlaupiðbyrjar 5. febrúar!

Skráning og nánari upplýsingar á:

www.lifshlaupid.is

• Vinnustaðakeppni• Grunnskólakeppni• Einstaklingskeppni

Samstarfsaðilar

Ólympíufjölskylda ÍSÍ

Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ fyrir alla aldurshópa. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um hrey�ngu og gera hrey�ngu að föstum lið í lífsstíl sínum.

Fleiri eru í fullu starfi nú en hafa verið síðan í ágúst 2007

og hlutfall þeirra sem eru starf-andi eykst í öllum aldurshópum hjá Eflingu og VSFK en stendur í stað hjá Hlíf. Þó er dvínandi starfsöryggi og óöryggi tengist t.a.m. áhyggjum af fjárhagsstöðu. Þetta er á meðal helstu niður-staðna nýrrar kjarakönnunar sem Capacent gerði fyrir Flóabanda-lagið, en í því eru Efling, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis.

Aukin atvinnuþátttakaFjölgun meðal atvinnuþátttakenda er í næstum öllum aldurshópum og aukning hjá öllum félögum. Þá hefur atvinnuleysistími styst. Lægst var starfsöryggi hjá ríki, í byggingarstarfsemi/mannvirkja-gerð, málmframleiðslu, heildsölu og smásölu. Auknar áhyggjur eru af fjárhagsstöðu í öllum aldurshópum og stéttarfélögunum þremur.

Laun hækka og vinnutími stendur í stað

Heildarlaun hækka um 10%, körlum fjölgar örlítið í hópnum og því hækka launin í heild meira en hjá hvoru kyni fyrir sig. Laun félagsmanna félaganna þriggja hækka mismikið en álíka mikið ef miðað er við tímabilið 2010-2013. Þá er ánægja með að laun standi í stað. Vinnutími og vinnuálag standa nokkurn veginn í stað. Fjar-vistir hafa aukist síðustu ár, úr 38% 2011 í 42% 2013. Flestir eru ánægð-ir með staðsetningu orlofshúsa og mjög fáir óánægðir.

Fleiri konur atvinnulausarYngra fólk hefur frekar reynslu af atvinnuleysi síðastliðin tvö ár og

fólk með skemmri starfsaldur. Fólk með „veika atvinnustöðu“ hefur einnig frekar reynslu af atvinnu-leysi. 67 af svarendum voru án at-vinnu, flestir styttra en 2 mánuði. Flestir atvinnulausir eru konur á aldrinum 45-54 ára.

Úrtak og þýðiLagt var upp með að úrtak endur-speglaði þýði með tilliti til stéttar-félags og ÍSAT Atvinnugreinar. Ef litið er til kynjahlutfalla svarenda, þá starfa karlar aðallega sem verka-menn og véla- og vélgæslumenn, en konur í mötuneytum, við veitinga-störf, umönnun og ræstingar, leið-beinendur og við iðnaðarstörf. Þá hafa flestir svarendur lokið grunn-skólaprófi auk starfsmenntunar. 81,5% svarenda eru launþegar eða einyrkjar, 8% án atvinnu og 10,5% eru í námi, leyfi, á eftirlaunum eða heimavinnandi.

Um þriðjungur svaraðiKönnunin fór þannig fram að send voru bréf til 3300 viðtakenda, með upplýsingum um könnunina, vef-slóð og lykilorði. Af 3300 bréfum voru 329 endursend þar sem þátt-takendur fundust ekki. Í framhald-inu var hringt í þátttakendur og þeim boðið að svara könnuninni í síma eða á neti. Af þeim sem náðist í neituðu 725 að svara en 519 fundust ekki. Það náðist í 1449, sem fengu senda könnun og henni svöruðu 1082.

Aukinn kostnaður á almenning

Á vefsíðu VSKF kemur fram að minnkandi atvinnuleysi megi rekja að miklu leyti til fjölgunar starfa í ferðaþjónustu sem óvíst sé að verði til frambúðar. Bág kjör, erfið

n Ný kjarakönnun Flóabandalagsins:

Fleiri með vinnu og auknar fjárhagsáhyggjur

skuldastaða heimila og fyrirtækja og viðvarandi há verðbólga sé það sem einkenni íslenskt samfélag. Ríki, sveitarfélög og atvinnulífið í landinu hafi ítrekað velt kostnaðar-auka yfir á almenning. Á sama tíma og forsvarsmenn atvinnulífsins og ríkisvaldið tali um nauðsyn þjóðar-sáttar í formi kostnaðaraðhalds í samfélaginu séu vísbendingar um aukið launamisrétti í þjóðfélaginu.

Stöðugleiki ekki á valdi launafólks

Mikilvægt sé að hraða uppbyggingu efnahagslífsins með því að efla at-vinnulífið og skapa gott svigrúm til almennrar kaupmáttaraukningar. Losun hafta sé forgangsmál og for-senda stöðugleika. Það verði hins vegar ekki gert með því að setja kröfuna um stöðugleika á launafólk eitt og sér. Til verði að koma víð-tæk aðgerðaráætlun og samstaða þar sem ríkisvaldið, sveitarfélög, fjármálamarkaðurinn og Samtök atvinnulífsins axli einnig ábyrgð á viðfangsefninu.

Samræmd launastefnaMegináherslur Flóabandalagsins taka mið af fyrrgreindum stað-reyndum og að markmið launa-breytinga verði að tryggja aukinn kaupmátt, hækka sérstaklega lægri launataxta og tekjutryggingu. Mikilvæg forsenda samninga verði að byggt sé á samræmdri launa-stefnu allra samtaka launafólks.

6. febrúar er merkisdagur í leik-skólum landsins. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leik-skólakennara fyrstu samtök sín. Markmiðið með þessum degi er að beina kastljósinu að því gróskumikla og mikilvæga starfi sem fram fer innan leikskólanna og beina sjónum að menntun og velferð ungra barna.Leikskólar eru eins fjölbreyttir og þeir eru margir en eiga það sam-eiginlegt að vinna á markvissan hátt að því að efla þroska barna og undirbúa þau fyrir lífið sem framundan er í lýðræðissamfélagi. Í leikskóla stíga börn sín fyrstu skref á menntabrautinni og er því mikilvægt að sú reynsla sé jákvæð.Að vekja áhuga barna á námi er eitt af því mikilvægasta sem góður leikskólakennari gerir. Það skilar sér í gagnrýnum einstaklingum sem hafa gaman af áskorunum lífsins. Leikskólakennarastarfið er einstaklega fjölbreytt starf og

enginn dagur er eins. Það sem einkennir leikskólana er gleði og jákvæðni en öll börn eiga skilið að alast upp og menntast í jákvæðu og styðjandi skólaumhverfi. Góð-ir leikskólar eru stolt hvers bæjar-félags og getur okkar bær hreykt sér af metnaðarfullum leikskólum og leikskólakennurum. Við óskum leikskólasamfélaginu öllu til hamingju með daginn.

Margrét Kolbeinsdóttir, Heiða Ingólfsdóttir, Ragna

Kristín ÁrnadóttirStjórn Félags leikskóla-

kennara. 9. deild.

Dagur leikskólans 6. febrúar

Page 10: 05 tbl 2014

fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR10

Reykjanesbæ

Starfskraftur óskast til starfa í afgreiðslustörf.

Æskilegt að viðkomandi hafi kunnáttu á meðhöndlun á kjöt- og fisk.

Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected].

Atvinna

TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR

NÁMSKEIÐ Í HLJÓMASLÆTTI Á KASSAGÍTARNámskeiðið er ætlað byrjendum og lengra komnum.Kennt verður í litlum hópum, 1 klst. í senn á þriðjudögum í 8 vikur.

Einungis verður um 3 hópa að ræða og tímasetningar verða sem hér segir: Kl. 16-17, 17-18 og 18-19

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 18. febrúar og lýkur þriðjudaginn 8. apríl.

Kennsla fer fram í nýju húsi skólans í Hljómahöll.Kennari er Þorvaldur Már Guðmundsson

Innritun stendur yfir frá 6. til 14. febrúar frá kl.13:00 - 17:00 á skrifstofu skólans Austurgötu 13 eða í síma 420-1400

Skólastjóri

A t v i n n aSorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar

eftir starfsmanni í brennslustöð fyrirtækisins. Unnið er á vöktum og um er að ræða framtíðarstarf.

Óskað er eftir vélfræðingi eða aðila með vélstjórnarréttindi eða aðra menntun sem nýtist í starfið. Starfsmenn í brennslustöð þurfa að

hafa frumkvæði og góða samskiptahæfni, geta unnið skipulega og sjálfstætt og vera vel tölvufærir. Góð enskukunnátta er kostur.

Upplýsingar veitir rekstrarstjóri brennslustöðvar í síma 862 3505.

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2014.

Umsóknir sendist til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ.

Netföng: [email protected] og/eða [email protected]

-mannlíf pósturu [email protected]

Um fjögur hundruð manns mættu á skemmti-legt þorrablót Ungmennafélags Njarðvíkur

sem fram fór í Ljónagryfjunni sl. laugardag. Blótið þótti heppnast afar vel, góður matur, skemmtiatriði og fjör.Örn Árnason skemmti Njarðvíkingum en hann var

veislustjóri kvöldsins og þá þóttu körfuboltaþjálfar-arnir Örvar Þór Kristjánsson og Einar Árni Jóhanns-son fara á kostum í annál sem þeir fluttu.Hreimur Örn Heimisson og Magni Ásgeirsson sáu um danstónlistina fram eftir morgni.

Fjör á fjölmennu Njarðvíkurblóti

Page 11: 05 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 11

Í áramótaræðu minni á gamlárs-dag 2012 ræddi ég um kosti per-

sónukjörs í smærri sveitafélögum. Ég sé persónukjör fyrir mér með þeim hætti að kjósendur velji sjö nöfn úr hópi þeirra kandídata sem í kjöri eru. Þeir sjö efstu skipa þannig sveitastjórn og sjö næstu verða varamenn í þeirri röð sem atkvæðamagn þeirra segir til um. Þessi hópur myndar þannig stjórn sveitafélagsins. Þessir einstaklingar geta haft ólíka sýn á hin ýmsu mál, þeir hafa rétt á að vinna hugsjónum sínum fylgi, hafa eflaust kynnt helstu stefnumál sín og svo fram-vegis. Þessir sjö gætu þess vegna haft einhvern nærhóp á bak við sig sem einstaklingar eða fleiri saman. Hóp sem þeir virkja til að spegla hugmyndir sínar.Helstu kostir þessa fyrirkomulags eru í mínum huga eftirfarandi:Mál geta farið í gegnum sveitastjórn á ólíkum meirihluta hverju sinni. Samstarf er ekki sett í uppnám þó um hitamál sé að ræða. Menn taka upplýsta ákvörðun, komast að niður-stöðu og halda áfram.Hver sveitastjórnarmaður er bund-

inn sinni sannfæringu og þarf að vera trúr henni. Treysti hann sér ekki til að vinna áfram tekur fyrsti vara-maður sæti hans.Minni líkur eru á að góðar hug-myndir fari forgörðum af því að þær komu ekki úr „réttri átt“ ef svo má að orði komast.Opnir íbúafundir gætu verið upp-lýsandi og leiðbeinandi fyrir sveita-stjórnarmenn um vilja íbúa í ein-stökum málum. Meiri líkur eru á farsælu samstarfi allra fulltrúa þar sem allir eru í raun í sama liðinu.Ég leyfi mér að skora á hin smærri sveitafélög hér á Suðurnesjum, þ.e. Voga, Grindavík, Garð og Sand-gerði að hafa persónukjör í komandi sveitastjórnarkosningum og bera síðan saman bækur sínar reglulega á kjörtímabilinu til að meta árangur þessa fyrirkomulags. Vilji allra er sá sami, að bæta samfélagið í sinni heimabyggð.

Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur Útskálaprestakalli

-aðsent pósturu [email protected]

Vönduð kærleiksrík umönnun og þjálfun fyrir börn á fyrstu

árunum í lífi þeirra er áhrifaríkast til að þau nái að vaxa sem heilbrigðir, ham-ingjusamir og sjálf-stæðir einstaklingar. Þetta er þjónusta sem leikskólarnir okkar veita öllum börnum í góðu samstarfi við

foreldra.Það eru ekki öll samfélög sem bjóða vandaða dagforeldraþjónustu fyrir þá sem á þurfa að halda og síðan leik-skóla fyrir öll börn tveggja til sex ára. Hér í Reykjanesbæ höfum við sér-staklega notið þess í nærsamfélaginu að hafa getað sinnt þörfum sérhvers einstaklings, líka þeirra sem standa höllum fæti eða hafa veikt bakland. Alúð og fagmennska leikskólastarfs-fólks er aðdáunarverð.Hér gefst einstakt tækifæri fyrir okkur að sameina krafta foreldra og fagfólks til að tryggja að öll börn eigi færi á að njóta hins besta á þessum mikilvægu uppvaxtarárum.

Byggt á niðurstöðum vandaðra rannsókna

Niðurstöður erlendra rannsókna, með áherslu á að veita börnum með veikt bakland sérstaka athygli og örvun, hafa fært okkur heim sann-inn um gildi örvunar og góðs atlætis barna fyrstu æviárin þegar barnið er móttækilegast fyrir að ná góðum málþroska, hreyfi- og tilfinninga-þroska.Rannsóknir, þar sem fylgst var með sömu einstaklingum í allt að fjöru-tíu ár, hafa sýnt greinilegan mun á börnunum sem á fyrstu æviárum fengu sérstaka örvun og þjálfun á móti samanburðarhópi sem fékk ekki

sömu þjálfun. Þetta eru einstaklingar sem nú eru orðnir fertugir en voru á leikskólaaldri þegar þjálfun hófst, sem þó stóð yfir í aðeins nokkur ár. Hér liggja m.a. að baki niðurstöður tveggja langtímarannsókna. Þær eru kenndar við Abecedarian Project og Perry Preschool ProjectÞær sýna að börnin sem fá vandaða umönnun og skipulega þjálfun á fyrstu æviárunum, þurfa minni sér-kennslu, ljúka frekar grunnskóla og framhaldsnámi en samanburðarhóp-arnir, eru félagslega sterkari, þurfa síður á bótakerfum að halda, lenda síður í afbrotum og hafa að meðaltali hærri laun á vinnumarkaði.

Áhugi hagfræðingaÞað er þess vegna sem virtir hag-fræðingar hafa fengið áhuga á mál-inu, tekið niðurstöðurnar og reiknað þjóðfélagslegan sparnað af því að leggja meira í stuðning við þessi fyrstu æviár.Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, James Heckman, hefur sýnt fram á að fyrir hverja eina krónu sem fjárfest er í vandaðri umönnun og fræðslu á fyrstu árunum í lífi hvers barns, sparist þannig 7 krónur í félagslegum kostnaði skattgreiðenda síðar. Rann-sóknir sýna að því eldri sem börnin eru þegar byrjað er að örva þau, verður erfiðara að ná sama árangri.Vinna Heckmans byggir á að þróa vísindalegan grunn fyrir efnahags-stefnu sem styður öflugri menntun og örvun barna á leikskólaaldri. Hann hefur skoðað atvinnuleysi, launaþróun og færni á vinnumarkaði í samhengi og sýnt fram á hvernig aukin framleiðni einstaklingsins getur verið byggð á því að fjárfesta sérstaklega í þjálfun hans á þessum fyrstu æviárum. Það eru því ekki

bara rök fyrir félagslega sterkari og sjálfstæðari einstaklingum sem hvetja til fjárfestingar í leikskóla-starfinu, heldur einnig rök fyrir bæði lægri samfélagskostnaði og aukinni framleiðni.Leiðin er skýrÞað er þess vegna sem leikskólarnir okkar, í góðu samstarfi við foreldra, geta verið eins og Masterlykill að heilbrigði, hamingju og sjálfstæði barnanna, auk minni útgjalda úr opinberum bótakerfum.

Í dag er „dagur leikskólans“. En það er alltaf við hæfi að draga fram mikilvægi leikskólastarfsins. Allir þeir tíu leikskólar sem reknir eru hér í Reykjanesbæ, vinna af miklum metnaði. Þeir eru að takast á við þetta stóra verkefni að búa börnin okkar undir framtíðina. Þar er faglegt starf haft í heiðri. Þar er öflugt fag-fólk og nánast undantekningalaust stöðugleiki í starfsmannahaldi. Leik-skólarnir bjóða umönnun og nám af bestu gerð með sérstaka áherslu á læsi og stærðfræði. Öll nálgun er lausnarmiðuð. Þar ríkir opinn hugur og kjarkur fyrir nýjum leiðum og áskorunum. Allir leikskólar Reykja-nesbæjar gefa úr nýja skólanámskrá á þessu ári sem tekur mið af nýrri aðal-námskrá leikskóla. Skólarnir okkar eru fyrirmynd um gott samstarf for-eldra og fagmanna sem ná fram lang-tímaárangri. Yngstu börnin okkar eru þegar að sýna óvenju góðan ár-angur á fyrstu árum grunnskólans. Það verður áhugavert að fylgjast með þeim áfram næstu 40 árin og sjá þau vaxa sem hamingjusama, heilbrigða og sjálfstæða einstaklinga.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri

n Árni Sigfússon bæjarstjóri:

Masterlykillinn!

Ávaxtakarfan í FrumleikhúsinuLeikfélag Kef lavíkur æfir

nú uppsetningu á Ávaxta-körfunni eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur, en um þessar mundir eru 15 ár síðan Ávaxta-karfan var fyrst sett á svið. Æf-ingar hófust fyrir 2 vikum undir stjórn leikstjórans Gunnars Helgasonar.Gunnar er þaulreyndur leikari og leikstjóri og hefur einnig getið sér gott orð sem barnabókahöfundur. Hann skrifaði fótboltabækurnar Víti í Vestmannaeyjum, Auka-spyrna á Akureyri og Rangstæður í Reykjavík. Bæði ungir og reyndir leikarar sem fara með hlutverk í sýningunni en haldnar voru leik- og söngprufur þar sem fjölmargir, hæfileikaríkir einstaklingar komu og reyndu sig.Leikfélag Keflavíkur er eitt það öflugasta á landinu og er þetta 3. sýningin sem sett er á svið í Frum-leikhúsinu þetta leikárið. Sviðs-myndin er hönnuð af Davíð Erni Óskarssyni, en eins og nafn verks-ins gefur til kynna þá gerist leik-ritið í ávaxtakörfu þar sem ávextir og grænmeti af öllum stærðum og gerðum koma fram. Stefnt er að frumsýningu föstudaginn 7. mars. Nánar verður fjallað um uppsetn-inguna í næstu tölublöðum Víkurf-rétta.

n Sigurður G. Sigurðsson sóknarprestur:

Persónukjör - áhuga-verður kostur

LESTURVINSÆLASTI

FRÉTTAMIÐILL Á SUÐURNESJUM

www.vf.is+

83%

Page 12: 05 tbl 2014

fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR12

KENNA SUÐURNESJA-MÖNNUM LJÓSMYNDUN

Algengt er að fólk fjárfesti í dýrum myndavélum án

þess að nota alla þá möguleika sem vélarnar bjóða upp á. Ljós-myndararnir Ellert Grétarsson og Oddgeir Karlsson hyggjast bæta úr þessu með kvöldnám-skeiðinu „Hugsað út f y r ir auto- i ð“ s em verður á næstunni haldið á Ljósmynda-stofu Oddgeirs v ið Borgarveg í Njarðvík.Um er að ræða ódýr 3ja t íma kvöldnámskeið fyrir þá sem vilja læra á DSLR myndavélina sína og nýta möguleika hennar betur til skapandi verka. Farið verður yfir grunnstillingar og tæknileg atriði ljósmyndunar, s.s. sam-spil hraða og ljósops, iso, white balance og annað sem ræður lýs-ingu myndar. Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 13. feb kl.

19 – 22 og fimmtudaginn 18. feb. á sama tíma. Þá verður einnig boðið upp á námskeiðið „Taktu betri myndir“. Þar verður fjallað um hagnýt at-riði ljósmyndunar og hvernig maður ber sig að við mismun-

andi viðfangsefni, s.s. lands-lags- og náttúrumyndatökur og barna- og fjölskyldumynda-tökur. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir þá sem hafa lært betur á myndavélina sína á myndavél-anámskeiðinu og aðra sem vilja fræðast meira um ljósmyndun.

Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 25. febrúar kl. 19 – 22 og miðvikudaginn 5. mars kl. 19 – 22.Myndvinnsla er nauðsynlegur hluti stafrænnar ljósmyndunar og ætla þeir félagar því að bjóða

upp á tveggja kvölda grunnnámskeið í Lig-htroom, sem er eitt vin-sælasta myndvinnslu-forrit samtímans. Það verður haldið mánudag-inn 10. mars og þriðju-daginn 11. mars frá kl. 19 – 22.Þátttaka verður tak-

mörkuð við einungis 8-10 manns á hvert námskeið svo hægt verði að sinna betur hverjum og einum þátttakanda.

Skráning á Ljósmyndastofu Oddgeirs, í síma 421 6556 eða [email protected] eða [email protected]

- fs-ingur vikunnar pósturu [email protected]

Helsti kostur FS? Þeir eru nú alveg nokkrir, skemmti-legir kennarar, stutt fyrir mig að rölta í skólann og svona.

Hjúskaparstaða? Er í sambandi.

Hvað hræðistu mest? Það er margt, er með snákafóbíu en það hljómar bara gelgjulega þann-ig að örugglega bara svona þetta týpíska, að missa sína nánustu og þannig.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Kannski Guðbjörg Ægisdóttir vin-kona mín fyrir verðlauna fram-komu sína í Landsbankamynd-bandinu.

Hver er fyndnastur í skólanum? Myndi segja að það væri strákur sem er með mér í tíma, veit ekki hvað hann heitir og ég held hann sé heldur ekkert að reyna að vera fyndinn. Annars finnst mér bróðir minn Eyjólfur vera eitt það fyndn-asta sem ég veit um, hann er í FS.

Hvað sástu síðast í bíó og hvernig var sú mynd? Fór með mömmu og systur minni á Last Vegas síðustu helgi, hún var virkilega skemmtileg fannst mér.

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Kannski allt.

Hver er þinn helsti galli? Óþarfa stress og stundum get ég verið mjög löt.

Hvað er heitasta parið í skólanum? Vá, ef ég á að segja eins og er þá dettur mér ekkert par í hug bara

Alexandra Herbertsdóttir er tvítugur Keflvíkingur sem þjáist af snákafóbíu. Hennar helsti galli er óþarfa stress og hún á það til að vera löt. Alexöndru finnst gaman að lesa, hlusta á tónlist og svona. FS-ingur vikunnar gjörið þið svo vel.

Held að hausinn á mér springi á endanumyfir höfuð, greinilega ekki nógu mikið inn í öllu.

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Góð spurning, kannski byrja aftur á að hafa kvöldskóla og breyta sumum reglum annars er skólinn fínn. En svo væri náttúrulega fínt að hafa fleiri sófa og svona kósý.

Áttu þér viðurnefni? Það virðist oft taka of langan tíma að segja Alexandra þannig að oftast heyri ég bara Lexa, annars er ég með mörg viðurnefni frá hinum og þessum.

Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? „What“

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Tek nú ekki mikinn þátt í því lengur en held það sé örugglega bara fínt.

Áhugamál?Hreyfing, hollusta, ræktin, vera í góðra vina hóp og hafa gaman að lífinu og áskorunum sem verða á vegi mínum. Nei ég er að grínast, ég er samt farin að hafa áhuga á hreyfingu talsvert meira en ég gerði áður, svo finnst mér gaman að lesa og hlusta á tónlist og svona.

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Það er mjög góð spurning sem ég þori ekki að svara, svo margt sem mig langar að stundum held ég að hausinn springi á endanum.

Ertu að vinna með skóla? Já er að vinna í Eymundsson og bæði sem liðveitandi og stuðnings-foreldri sem er virkilega gaman!

Hver er best klædd/ur í FS? Finnst svo margir flott klæddir alltaf í skólanum, en ef ég þyrfti að velja einn þá væri það pottþétt Valur Orri, hann er alltaf flottur.

Hver myndi leika þig ef gerð yrði kvikmynd um líf þitt? Eflaust margir sem myndu slást um það hlutverk en mér finnst Ellen Page voða skemmtileg.

Eftirlætis: Kennari: Má segja Heba? Annars hefur mér alltaf fundist allir kenn-arar skemmtilegir á sinn hátt.

Fag í skólanum: Líffræði

Sjónvarpsþættir: Sex and the city, modern family, entourage, friends og svo margir að ég nenni ekki að telja þá upp, er núna að horfa á Will and Grace og ég dýrka þá.

Kvikmynd: Búin að hugsa það mikið og fyrir utan Rocky horror picture show þá verð ég að segja Batman myndirnar. Hljómsveit/tónlistarmaður: Á mér margar uppáhalds hljóm-sveitir, Daft Punk og Gus Gus eru svona með bestu en svo eru líka hljómsveitir eins og Crystal Castles, Röyksopp, Chromeo, Fm Belfast, Hot Chip,The knife og fleiri.

Leikari: Leonardo di Caprio shet.

Vefsíður: Þær vefsíður sem ég skoða mest eru mbl, vísir, facebook, google og svo finnst mér mjög gaman að fara á vísindavefinn.

Flíkin: Maður gerir ekki upp á milli barna sinna

Skyndibiti: KFC alltaf. Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi (guilty pleasure)? Hlusta stundum á kjánaleg technolög svona þegar enginn er nálægt en það er þá oftast bara ef ég er í ræktinni eða sam-bærilegum fíling.

Daglegar fréttir á vf.is

TIL LEIGU

Vatnsnesvegur 5Ca. 70 fm atvinnuhúsnæði með inn-keyrsludyrum og góðri loftæð á besta stað í Keflavík. Mjög auðvelt aðkoma. Frekari upplýsingar í síma 661 7000.

2 herb. íbúð i GrindavíkTil leigu strax falleg 2 herbergja íbúð. Vinsaml. sendið okkur E-mail á [email protected] og við munum hafa samband.

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 16. - 22. jan. nk. • Bingó • Listasmiðja • Handverk

• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.• Félagsvist • Bridge

• Hádegismatur • Síðdegiskaffi

Föstudaginn 24. jan nk. á Nesvöllum kl. 14:00.

Sigurður Guðmundsson frá UMFÍ , kynnir Landsmót 50+ 2014

Allir velkomnir

Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.nesvellir.is

- smáauglýsingar

PARKETÞJÓNUSTAParketslípun, lagnir, við-

gerðir og almennt viðhald húsnæðis.

Látið fagmenn vinna verkin!

Parketþjónusta Árna Gunnars,

s. 698 1559,[email protected]

ÓSKAST

Óskum eftir einbýlishúsi eða íbuð til leigu í innri NjarðvíkHjón með 3 börn og eitt á leiðinni óska eftir húsnæði til leigu í innri Njarðvík sem fyrst. Erum með 100% meðmæli frá fyrri leigusala, Öruggar greyðslur og góð umgengni. Uppl. í síma 8465898 Palli

ÞJÓNUSTA

Vantar þig iðnaðarmann ?Lærður húsasmiður getur bætt við sig verkefnum, utan sem innanhúss. Ára-tuga reynsla. s.863 6095

ÓDÝR HÚSGAGNA OG TEPPAHREINSUNVið djúphreinsum: rúmdýnur, sófa-sett, hæginastóla, teppi og mottur. s:7808319; [email protected]

GÆLUDÝR

HundasnyrtingTek að mér að klippa og snyrta hunda.Löng reynsla og vönduð vinnubrögð. Sjá FB síðu Hundasnyrting. Kristin S. 897 9002

BílaviðgerðirPartasala

Kaupum bilaðaog tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979www.bilarogpartar.is

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 7. - 13. feb. nk. • Bingó • Listasmiðja • Handverk

• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.• Félagsvist • Bridge

• Hádegismatur • Síðdegiskaffi

Föstudaginn 8. feb nk.á Nesvöllum kl. 14:00.

Séra Skúli , Arnór og félagar Allir velkomnir

Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á

www.nesvellir.is/

Forvarnir með næringu

STAPAFELLHafnargötu 50, Keflavík

NÝTT

Opið alla dagafram á kvöld

Sandra Valsdóttir, Garðar Magnússon,Dagný Ósk,

Rökkvi.

Ástkær dóttir okkar og systir,

Bryndís Hulda Garðarsdóttir,Skógarbraut 1101, Ásbrú/Reykjanesbæ,

lést miðvikudaginn 22. janúar á gjörgæsludeild Landspítalans. Útför hennar fer fram í Keflavíkurkirkju þann 7. febrúar kl. 13:00.

LESTURVINSÆLASTI

FRÉTTAMIÐILL Á SUÐURNESJUM

www.vf.is+

83%

Page 13: 05 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 13

Halla Margrét Helgadóttir er í Heiðarskóla í 10. bekk. Hún elskar að fara á snjóbretti og dansa. Henni finnst sund leiðin-legasta fagið í skólanum og væri til í að verða flugmaður.Hvað geriru eftir skóla? Fer oftast bara heim að chilla og fer á dansæfingu eða ræktina.

Hver eru áhugamál þín? Mér finnst geggjað að fara á snjóbretti og svo er það náttúrulega dansinn og vera með vinunum.

Uppáhalds fag í skólanum?Íþróttir er alltaf skemmtilegast. En leiðinlegasta? Váhh það er sko sund!

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Miley Cyrus allan daginn!

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann? Að getað lesið hugsanir væri svaða-legt.

Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Draumajobbið er að verða flug-maður.

Hver er frægastur í símanum þínum? Haha vinkonur minar þær eru frægastar.

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Ætlaði í bíó í Boston og hitti Obama fyrir utan á leiðinni á operu.

Hvað myndiru gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag? Myndi örugglega taka næsta flug til Ameríku og fara í svakalega verslunarferð og taka allt sem mig langaði í.

Hvernig myndiru lýsa fatastílnum þínum?Myndi lýsa honum sem frekar kósy bara.

Hvernig myndiru lýsa þér í einni setningu? Er geimvera frá plánetunni Halla.

Hvað er skemmtilegast við Heiðarskóla? Alltaf gaman að hitta alla krakkana í skólanum.

Hvaða lag myndi lýsa þér best? Three little birds með Bob Marley.

Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? Friends held ég bara.

Besta:Bíómynd? Ætli það sé ekki Titanic.

Sjónvarpsþáttur? Chuck

Tónlistarmaður/Hljómsveit? Queen B ofcourse.

Matur? Kalkúnninn á áramó-tonum.

Drykkur? Mix hefur alltaf verið best.

Leikari/Leikkona? Ed Westwick og Jennifer Lawrence.Fatabúð? Urban Outfitters er flott-ust!

Vefsíða? Twitter hefur tekið við af facebook.

Bók? Englar Alheimsins.

- ung // Halla Margrét Helgadóttir pósturu [email protected]

Hitti Obama á leiðinni í óperu

+ Umsóknir óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi  síðar en 17. febrúar.

TÆKNIÞJÓNUSTA ICELANDAIR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI ÓSKAR EFTIR RENNISMIÐ-CNC

STARFSSVIÐ: ■ Rennismíði og CNC vinna

HÆFNISKRÖFUR: ■ Viðkomandi ha� menntun og/eða reynslu á sviði rennismíði og fræsivinnu

■ Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Nánari upplýsingar veita:

Theodór Brynjólfsson, netfang: [email protected]

Steinunn Una Sigurðardóttir, netfang: [email protected]

Við leitum að ö�ugum liðsmanni til starfa í stærsta �ugskýli landsins í tæknivæddu og alþjóðlegu umhver�. Um er að ræða spennandi og kre�andi framtíðarstarf í góðu starfsumhver� þar sem öryggi, áreiðanleiki og hágæðavinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á að ná árangri í star� og hafa metnað til að vinna sem hluti af ö�ugri liðsheild.

KOMDU TIL LIÐS VIÐ OKKUR

n Stórhuga lýðheilsufulltrúi Sandgerðisbæjar:

Draumurinn að efla alla aldurshópa„Ég var ekkert endilega að leita að öðru starfi en þegar ég sá auglýsinguna fannst mér starfs-lýsingin skemmtileg og eiga vel við mig. Er mjög ánægð með að reyna fyrir mér í þessu,“ segir Rut Sigurðardóttir, lýðheilsufull-trúi hjá Sandgerðisbæ. Hún tók við þessu nýja starfi í september sem gengur út á að skipuleggja alls kyns íþrótta- og frístund-astarf í bænum. Blaðamaður Víkurfrétta hitti hana í húsnæði bæjarskrifstofunnar.

Mest gefandi þegar vel tekst til

Rut er frá Akureyri og hefur búið í Reykjanesbæ í 8 ár, þar sem hún var íþróttakennari áður en hún tók við starfi lýð-heilsufulltrúa. Þá þjálfar hún í Sporthúsinu á morgnana og að-stoðar eiginmann sinn, Helga Rafn Guðmundsson, í að þjálfa nemendur í taekwondo. „Allt sem ég starfa við eru áhugasvið mín. Það er mest gefandi þegar vel tekst til og fólk er ánægt með það sem ég geri.“ Rut hóf starfið með því að leggja könnun fyrir alla nemendur grunnskólans um hvers konar námskeið og annað þau hefðu áhuga á að boðið yrði upp á. „Ég er svolítið að verða

við þeirra óskum og ætla að þróa það áfram. Ég er að fara af stað með ýmiss námskeið handa grunnskólabörnum,“ segir Rut. Þá sér hún mikið um að skipu-leggja, búa til auglýsingar, fara í skólana að hitta krakka, kennara og skólastjóra. Einnig fer hún í Miðhús að hitta eldri borgara og í íþróttamiðstöðina.

Eldri borgarar rosalega dug-legir

Heilsueflingarátak hefur verið fyrir eldri borgara síðan í nóv-ember, m.a. stafganga og jóga. „Stafgangan átti að hætta fyrir skömmu en það kom ósk frá þeim um að halda áfram alla vega mánuð í viðbót. Það er alltaf að bætast í hópinn og þetta gengur vel. Þau ganga í öllum færum og eru rosalega dugleg.“ Fyrstu vikuna í mars verður heilsuvika fyrir alla ald-urshópa. Rut finnst spennandi hvað verður hægt að vinna úr því. Ef það er eitthvað sem fólk hefur áhuga á vill hún endilega koma því í framkvæmd. „Minn draumur er að efla þetta enn betur. Bjóða upp á eitthvað fyrir alla aldurshópa, bæði hreyfingu og alls kyns frístundastarf, “ segir Rut hress að lokum.

Gettu enn betur, spurningakeppni grunnskólanna í Reykjanesbæ, var haldin mánudagskvöldið 3. febrúar í Myllubakkaskóla. Lið

Heiðarskóla fór með sigur af hólmi að þessu sinni eftir harða og jafna keppni. Ásamt Heiðarskóla sendu Akurskóli, Holtaskóli, Myllubakka-skóli og Njarðvíkurskóli lið til þátttöku.Í úrslitum mættust Heiðarskóli og Njarðvíkurskóli. Eftir jafna og skemmtilega úrslitaviðureign stóð Heiðarskóli uppi sem sigurvegari í Gettu enn betur 2014.

Heiðarskóli sigraði Gettu enn betur

Page 14: 05 tbl 2014

fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR14

-íþróttir pósturu [email protected]

60 manna hópur NES til Malmö

u Íþróttafélagið NES mun á morgun föstudag skella sér á íþróttamótið Malmö Open sem fram fer í Svíþjóð. Alls fer um 60 manna hópur frá NES og munu keppendur keppa í sundi og boccia. Með í ferð verða þjálfarar og aðstandendur keppenda. Mikil eftirvænting er komin í mann-skapinn og allir ætla að gera sitt besta ásamt því að kynnast nýju fólki og skoða sig um í Malmö. Er þetta í annað skipti sem NES fer á mótið en í fyrra stóðu keppendur sig með mikilli prýði. Við á VF munum fylgjast með gengi NES á mótinu og flytja fréttir á vf.is.

Porsche Landry farin frá Keflvíkingum

uKvennalið Keflavíkur í Dom-ino's deildinni hefur samið við Diamber Johnson sem áður lék með Hamri. Porsche Landry mun því ekki leika áfram með liðinu en hún er farin af landi brott. Sam-kvæmt upplýsingum Víkurfrétta óskaði Landry eftir því að komast heim til Bandaríkjanna og virtist leikmaðurinn ekki hafa löngun til þess að spila hérlendis lengur. Áður en leikmannaglugginn lokaðist bauðst Keflvíkingum að fá Johnson til liðsins og það þáðu þeir með þökkum.„Við ætluðum okkur að hafa þær báðar fyrst til að byrja með og taka svo ákvörðun. Porsche vildi svo halda aftur heim og því tók hún í raun ákvörðunina fyrir okkur,“ sagði Sævar Sævarsson í stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur í samtali við Víkur-fréttir. Hann sagðist ekki viss um hvaða ástæður lægju að baki, hvort um heimþrá væri hreinlega að ræða hjá Landry.

Grindvíkingar í bikarúrslit

uGrindvíkingar tryggðu sér sæti í bikarúrslitum karla í körfubolta með góðum sigri gegn Þórsurum. Leikurinn fór fram í Grindavík og lauk honum með 93-84 sigri Ís-landsmeistaranna. Grindvíkingar byrjuðu af krafti og leiddu 32-19 eftir fyrsta leikhluta. Allt virtist stefna í stórsigur en Þórsarar voru ekki á þeim buxunum. Gestirnir minnkuðu muninn í næstu tveimur leikhlutum og hleyptu spennu í leikinn. Að lokum sýndu Grindvíkingar þó styrk sinn og höfðu níu stiga sigur. Grind-víkingar leika svo gegn ÍR-ingum í úrslitum en leikurinn fer fram síðar í febrúar.

Jóhannes aðstoðarþjálfari Keflvíkinga

Jóhannes Hleiðar Gíslason var í vikunni ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna Keflavíkur í knattspyrnu. Hann verður því Heiðari Birni Torleifssyni þjálfara liðsins til aðstoðar fram á haust. Ráðningin er liður í því að efla kvennaknattspyrnuna hjá Kefla-vík.

Friðrik Erlendur Stefánsson kom til Njarðvíkinga um

rúmlega tvítugt. Hefur hann verið sigursæll með liðinu svo ekki sé meira sagt. Nú þegar „Heimakletturinn“, eins og hann er stundum kallaður, er að slaga í 38 árin, er þó kominn tími til þess að segja þetta gott. Miðherjinn stæðilegi hóf tímabilið í haust með það fyrir augum að freista þess að fá lokatækifæri til þess að berjast um titla. Faðir tími og meiðsli hafa hins vegar reynst erfið og því var ákvörðunin tekin um að hætta. Þegar blaðamaður Víkurfrétta náði tali af Friðriki var hann nýbúinn að spila einn-á-einn við stórsöngvarann Sverri Bergmann. Ætli það hafi ekki verið síðasti leikurinn á ferlinum.

Var sáttur við að hættaFriðrik hætti áður körfuboltaiðkun árið 2011 og hann var satt best að segja nokkuð sáttur við það. „Ég var alveg fínn, ætla ekkert að ljúga að þér með það. Það vantaði svo stóran varamann og ég sló aftur til. Maður fer svo bara aftur að æfa eins og maður sé 25 ára ennþá og slakar lítið á.“ Friðrik segir að eftir tíma-bilið í fyrra hafi hann ekki verið alveg sáttur og viljað meira. Hann sá að mikið bjó í ungu strákunum í Njarðvík. Því átti að taka tímabilið núna með trompi. Skrokkurinn var hins vegar á öðru máli.

Var á leið í handboltannFriðrik hóf ferilinn í heimabænum Vestmannaeyjum þar sem hann fékk fljótlega tækifæri með ungl-ingalandsliði Íslands, enda stórir og sterkir strákar ekki á hverju strái. Hann tók svo þá ákvörðun að reyna fyrir sér í höfuðborginni og varð KR þar fyrir valinu. Hann fór eftir það á svolítið flakk. Þá stóð til boða að fara til Ísafjarðar að spila og Friðrik stökk á það tækifæri. „Það var enn eitt flippið og gerðist

bara fyrir röð tilviljana.“ Friðrik lék þar með KFÍ í 1. deild en bauðst svo að fara til Þórs Akureyri þar sem hann hugðist reyna fyrir sér í úrvalsdeildinni. Atvinnuástandið var ekki sem best fyrir norðan á þeim tíma svo Friðrik fór á æsku-slóðirnar þar sem loðnuvertíð og handbolti tóku við. „Þar datt ég inn í handboltann aftur og var á leið til Svíþjóðar með liði ÍBV í æfingaferð. Þorbergur Aðalsteinsson fyrrum landsliðsþjálfari var þarna með liðið,“ rifjar Friðrik upp og hlær. Þá kom aftur símtal frá Ísafirði þar

sem óskað var eftir starfskröftum Vestmannaeyingsins stóra. Þrátt fyrir að kunna ágætlega við hand-boltann kallaði körfuboltinn á Friðrik. Þar fór boltinn að rúlla og Friðrik vakti athygli fyrir vasklega framgöngu sína. Eftir eitt ár með KFÍ í úrvalsdeild kom tilboð frá Bandaríkjunum. Háskóli í Jackson-ville, Flórída, vildi fá Friðrik í sínar raðið og var hann spenntur fyrir því. Það gekk hins vegar ekki upp af ýmsum ástæðum.

Hafði alltaf haldið með Njarð-vík

Njarðvík var lið sem Friðrik hafði hug á að leika með. „Ég hafði allt-af haldið með þeim þegar ég var yngri. Við Palli Kristins vorum líka miklir vinir í gegnum unglinga-landsliðin.“ Önnur lið vildu ólm fá miðherjann enda var hann þarna einn efnilegasti leikmaður lands-ins. „Ég hef bara alltaf fylgt minni sannfæringu. Oft getur það verið

djöfuls vitleysa hjá manni. Maður hefði kannski átt að elta peningana einhvern tímann,“ segir Friðrik um þá ákvörðun að fara til Njarðvíkur á sínum tíma. Það átti hins vegar eftir að reynast ágætis ákvörðun hjá honum.

Fór í starfsnám til FinnlandsFriðrik segir að af og til hafi komið tilboð um tækifæri í atvinnu-mennsku auk þess sem önnur ís-lensk lið hafi viljað hann. Friðrik reyndi fyrir sér í Finnlandi um stutta stund en það segir hann ein-

faldlega hafa verið algjört klúður. „Ég var þarna á starfssamningi í stutta stund,“ segir miðherjinn kíminn. „Þar var enginn peningur og snarvitlaus þjálfari. Tóm veit-leysa bara,“ segir Friðrik og hlær.

Allt toppmenn í NjarðvíkÞegar Friðrik lítur yfir farsælan feril hjá Njarðvík er þar margs að minnast. „Það fór m.a. fram risa-stór bikarúrslitaleikur árið 99’ þegar Hemmi [Hauksson] rölti aðeins og smellti þristi til þess að jafna leikinn,“ rifjar hann upp.Allir titlarnir sem unnust eru eftir-minnilegir en tímabilið 2005-2006 var sérstaklega eftirminnilegt að sögn Friðriks. „Það var mitt besta tímabil. Þá var ég fyrirliði og við vorum með virkilega flottan hóp. Þarna voru ungir guttar í bland við okkur sem vorum leiðtogar í liðinu. Þarna voru sérstaklega margir góðir varnarmenn. Ég hef reyndar verið heppinn með að

hafa haft góða varnarmenn með mér í Njarðvík, það eru mikil for-réttindi.“ Aragrúi leikmanna hafa orðið á vegi Friðriks á ferlinum. Margir hverjir ansi eftirminnilegir persónuleikar. „Fyrsta nafnið sem skýst upp í hausinn á mér er Ör-lygur heitinn. Svo gæti ég haldið áfram endalaust, þetta eru allt ein-tómir snillingar. Þetta eru allt topp-menn hérna í Njarðvík.“

Alltaf tilbúinn að spila fyrir þjóðina

Friðrik á 112 landsleiki að baki og þykir það mikill heiður. Hann hefur sterkar skoðanir á land-liðinu og rekstri þess. „Það er til háborinnar skammar hvernig ríkið kemur fram við mörg landslið okkar. Maður er þó alltaf tilbúinn að spila fyrir Ísland. Það er mesti heiður sem manni hlotnast. Það á líka að vera búið þannig að því að þú eigir að vera stoltur að spila fyrir þjóðina.“Friðrik verður alltaf talinn meðal bestu íslensku miðherjanna en hann hefur barist við þá nokkra góða. „Á tímabili áttum við nokkra ansi frambærilega miðherja. Það var alltaf erfitt að spila gegn Fann-ari Ólafs og Hlyni Bærings. Svo var leiðinlegt að spila gegn Palla Krist-ins þegar hann fór til Grindavíkur.“Þú getur ekki verið annað en sáttur með ferilinn, er það nokkuð? „Jú maður er sáttur. Ég er samt það mikill keppnismaður að maður er aldrei sáttur. Ég er alveg fáránlega tapsár,“ segir Friðrik og hlær. „Það eru hlutir sem svíða þegar maður horfir yfir ferilinn. Ef ég hefði samt talað um að eiga svona feril í körfu-bolta þegar ég var að slá úr tækj-unum á loðnuvertíð í Vestmanna-eyjum, þá held ég að fólk hefði talið mann vera eitthvað klikkaðan,“ segir Friðrik að lokum.

Körfuboltinn kallaði- Frá loðnuvertíð í Vestmannaeyjum til Njarðvíkur

Ef ég hefði samt talað um að eiga svona feril í körfubolta þegar ég var að slá úr tækjunum á loðnuvertíð í

Vestmannaeyjum, þá held ég að fólk hefði talið mann vera eitthvað klikkaðan

„Ég er samt það mikill keppnismaður að maður er aldrei sáttur. Ég er alveg fáránlega tapsár,“

Page 15: 05 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 15

pósturu [email protected] fréttir

Þreytt á að vera þreytt?

Margir sem leita til mín eru að glíma við þreytu og slen, þetta eru sennilega með algengari einkennum sem ég hef

orðið vitni að í gegnum árin meðal skjólstæðinga minna. Sumir eiga erfitt með að koma sér fram úr á morgnana þrátt fyrir að hafa sofið ágætlega yfir nóttina og eru jafnvel þreyttir yfir allann daginn. Það er vissulega eðlilegt að finna fyrir þreytu af og til en það er ekki eðlilegt þegar við erum langvarandi þreytt og yfirleitt er þá eitthvað undir-liggjandi sem orsakar þreytuna. Hér eru nokkrir algengir orsakaþættir sem geta oft leitt til þreytu.

• Mataræði. Heilsusamlegt mataræði er stór þáttur í því að viðhalda góðri orku yfir daginn og margt í fæðunni okkar sem að sama skapi getur gert okkur slenug og þreytt eins og ofneysla koffíns (kaffi, súkkulaði, koffínte, gos, orkudrykkir), sykur og unnin kolvetni, óhóflegir matarskammtar (ofát),

skortur á ýmsum næringarefnum (t.d. B12, járni) og fæðu-óþol/ofnæmi. Kaffi og sykur veita okkur tímabundna orku en eyða þó orkubirgðunum okkar til lengri tíma litið og skilja okkur eftir þreytt.

• Sýkingar/sjúkdómar. Ýmsar örverur geta valdið lang-vinnum sýkingum í líkamanum eins og sveppir (candida), sníkjudýr, vírusar (Epstein Barr-virus) og bakteríur geta haft bælandi áhrif á ónæmiskerfið og þar með stuðlað að þreytueinkennum. Mikilvægt er að vinna á þessum sýkingum ef viðkomandi grunar að um eitthvað af ofan-greindum sýkingum er að ræða. Eins ef um langvinna sjúkdóma er að ræða þá er þreyta oft óhjákvæmilegur fylgikvilli.

• Hormónaójafnvægi. Þarna ber helst að nefna innkirtla eins og nýrnahettur og skjaldkirtil en þessi líffæri eru afar mikilvæg til þess að viðhalda orkunni. Langvarandi streita og stress hefur letjandi áhrif á þessi líffæri til lengdar sem getur komið fram sem síþreyta. Ýmsar jurtir hafa styrkj-andi áhrif á þessi líffæri og eins er mikilvægt að draga úr streitu eins og hægt er með t.d. jóga, göngutúrum, slökun og hugleiðslu.

• Umhverfisþættir. Streita, svefnleysi, toxísk efni í um-hverfi hafa öll hver á sinn hátt skaðleg áhrif á heilsu okkar og geta haft truflandi áhrif á starfssemi líffærakerfa með mismunandi hætti. Gífurlegt magn toxískra efna úr umhverfi og fæðu er eitthvað sem við þurfum að vera á varðbergi fyrir en þar má t.d. nefna plastefni s.s. phalates, skordýraeitur, þungamálar eins og kvikasilfur og myglu-sveppaeitrun, en þetta geta m.a. verið undirliggjandi þættir að þreytu í sumum tilfellum.Til þess að við náum að endurvekja lífskraftinn og grunn-orkuna á ný ber því að huga að ýmsum þáttum og gagnlegt að fara yfir hjá sjálfum sér hvað það er í lífsstílnum okkar eða umhverfi sem dregur úr orkunni okkar.

Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.www.facebook.com/grasalaeknir.is

www.pinterest.com/grasalaeknir

HEILSUHORNIÐ

ÁSDÍSGRASALÆKNIRSKRIFAR

ReykjavíkBorgartúni 27

AkureyriGlerárgötu 24

BlönduósHúnabraut 4

BorgarnesBjarnarbraut 8

EgilsstaðirFagradalsbraut 11

Höfn í HornafirðiKrosseyjarvegi 17

www.kpmg.is

ReyðarfjörðurAusturvegi 20

ReykjanesbærKrossmóa 4

SauðárkrókurBorgarmýri 1

SelfossAusturvegi 4

SkagaströndOddagötu 22

VestmannaeyjarKirkjuvegi 23

Sími 545 6000

SKATTA- OG LÖGFRÆÐISVIÐ

Skattabæklingur 2014

Upplýsingar um skattamál einstaklinga og rekstraraðila

2013 / 2014

kpmg.is

Í bæklingi þessum koma fram almennar upplýsingar og meginreglur. Í honum er ekki lýst aðstæðum tiltekinna fyrirtækja eða einstaklinga. Enginn ætti að grípa til aðgerða á grundvelli þessara upplýsinga nema tengja þær aðstæðum sínum eða leita faglegrar aðstoðar um það tilvik sem um ræðir.© 2014 KPMG ehf. á Íslandi er aðili að alþjóðlegu neti KPMG, samtökum sjálfstæðra fyrirtækja sem aðild eiga að KPMG International Cooperative (“KPMG International”), svissnesku samvinnufélagi. Nafn og kennimark KPMG eru vöru merki KPMG International Cooperative.

Skattabæklingur 2014

SKATTAMÁL

Fróðleiksfundur í ReykjanesbæFim. 13. feb. | kl. 16:30 | Krossmóa 4

Á hverju ári eru fjöldi skattalagabreytinga sem snerta fólk og fyrirtæki. Á þessum fróðleiksfundi verða helstu breytingarnar kynntar auk þess sem handbók KPMG um skattamál verður dreift.

Skráning er án endurgjalds og fer fram á kpmg.is

Skráning og frekari upplýsingar um fróðleiksfundinn er að finna á kpmg.is

Dagskrá fróðleiksfundarinsn Helstu skattalagabreytingar árið 2013

n Hvað fer úrskeiðis í sköttum

n Skattamál ferðaþjónustunnar

Loftvarnaræfing Atlantshafsbandalagsins, Icel-and Air Meet 2014, hófst með formlegum hætti

í gær, mánudag. Æfingin er með stærstu varnar-æfingum sem haldin hefur verið hérlendis á síðustu árum en í henni taka þátt 300 manns og 23 erlend loftför þ.m.t. 18 herþotur frá Norðurlöndunum ásamt tveimur finnskum leitar- og björgunar-þyrlum. Æfingunni lýkur 21. febrúar n.k.Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er æfingin er haldin samhliða reglubundinni loft-rýmisgæsluvakt Atlantshafsbandalagsins á Íslandi sem

Norðmenn hafa með höndum að þessu sinni. Sam-starfsríki Atlantshafsbandalagsins, Svíþjóð og Finn-land, taka þátt í æfingunni en sinna ekki loftrýmis-gæsluverkefnum. Holland og Bandaríkin leggja til eldsneytisflugvélar sem þjónusta flugsveitirnar ásamt radarflugvél frá Atlantshafsbandalaginu.Þetta er í fyrsta skipti sem Svíar og Finnar taka þátt í loftvarnaræfingum á Íslandi og er æfingin mikilvægur liður í auknu öryggis- og varnarsamstarfi Norður-landanna sem hefur vaxið ásmegin á síðustu árum.

Með stærstu varnar-æfingum hérlendis

Icelandic Group kaupir Ný-FiskIcelandic Group hefur keypt

fiskvinnslufyrirtækið Ný‐Fisk í Sandgerði. Ný‐Fiskur sér-hæfir sig í frumvinnslu og sölu á ferskum sjávarafurðum, sér í lagi þorski og ýsu. Samhliða mun Icelandic Group yfirtaka Útgerðarfélag Sandgerðis sem rekur línubátinn Von GK‐113 með kvóta upp á um 800 tonn.Í fréttatilkynningu kemur fram að Ný‐Fiskur notar yfir 7.000 tonn af hráefni árlega til sinnar fram-leiðslu. Um 70% af framleiðslunni er send sem ferskar afurðir með flugi þar sem fiskurinn er kom-inn á disk neytenda innan við 48 tímum eftir að fiskurinn kemur upp úr sjó. Í kjölfar kaupanna verður nafni Ný‐Fisks breytt í Icelandic Ný‐Fiskur.Í umfjöllun Fiskifrétta um Ný-Fisk síðasta sumar kom fram

að Ný-Fiskur veltir hátt á fjórða milljarð króna. Fiskvinnslu-fyrirtækið Ný-Fiskur ehf., var stofnað árið 1996 af Birgi Krist-inssyni framkvæmdastjóra félags-ins. Fyrirtækið er staðsett í 3000 fm húsnæði að Hafnargötu 1 og eru starfsmenn þess tæplega 100 talsins.Allt frá stofnun hefur höfuð-áhersla verið lögð á að selja ferskan línuveiddan fisk til við-skiptavina víðsvegar um Evrópu. Auk þess er Ný‐Fiskur mikilvægur birgir Icelandic Gadus, dóttur-félags Icelandic Group í Belgíu. Ný‐Fiskur rekur verksmiðju sem fengið hefur BRC vottun ásamt því að reka HACCP gæðakerfi og er ein af fáum fiskvinnslum á Ís-landi sem hefur fengið slíkar vott-anir.

Loftvarnaræfing Atlants-hafsbandalagsins, Iceland

Air Meet 2014 er með stærstu varnaræfingum sem haldin hefur verið hérlendis á síð-

ustu árum.

Page 16: 05 tbl 2014

vf.isvf.is

FIMMTUDAGURINN 6. FEBRÚAR 2014 • 5. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

VIKAN Á VEFNUM

Ragnheiður Elín Árnadóttir Þing-maður frá KeflavíkKomst ekki á blótið en frétti að verið

væri að gera grín að mér í ann-álnum á Njarðvíkurblótinu…einhverjir lausir í flutninga á morgun?

Jón Björn Ólafsson ritstjóri Karfan.is„Og þeir skora“ - langbesta stuðnings-lag Grindavikur...og

þeir eiga nokkur

Jósef K. Jósefsson leikmaður Grind-víkinga í fótboltaBASSI nú stoppar þú !

Hjörvar Hafliðason Dagskrástjóri Stöð 2 SportÉg skora Suður-nesin svona: 1.-2.

sæti Sandgerði og Garður. Aðrir neðar. Þó ég haldi með Njarðvík í körfubolta.

Gabriela Ósk nemiÉg heimta ísbúð í Keflavík opna allan sólahringinn!

Hinrik Hafsteinsson, nemiGP fær plús fyrir að alltaf seegja Keflavík og NJARÐVÍK þegar hann ávvarpaði salinn

Lovísa FalsdóttirLeikmaður Kefla-víkur í körfuboltaEr svoldið pirruð því að Þorvaldur sagði

að líklegast væru allir strákarnir sterkari en við stelpurnar í tím-anum. Ég er reddý í sjómann!

+ Umsóknir óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 17. febrúar 2014. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

STARFSSVIÐ:■ Greining tækniupplýsinga

■ Miðlun upplýsinga um tækni og viðhaldsgögn■ Samskipti við viðskiptavini innan sem utan fyrirtækisins■ Greining tækniupplýsinga

HÆFNISKRÖFUR:■ Háskólapróf eða önnur sambærileg menntun

■ Góð almenn tölvukunnátta

■ Góð enskukunnátta er skilyrði

■ Lögð er áhersla á vönduð og sjálfstæð vinnubrögð og góða samskiptahæfileika.

Nánari upplýsingar veita:Hafliði Jón Sigurðsson I [email protected] Una Sigurðardóttir I [email protected]

ÍSLE

NSK

A S

IA.I

S IC

E 6

7708

2/1

4

TÆKNIÞJÓNUSTA ICELANDAIR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI ÓSKAR AÐ RÁÐA TIL SÍN SÉRFRÆÐING Í SKJÖLUN TÆKNIGAGNA (TECHNICAL RECORDS)Viðkomandi starfsmaður þarf að hafa þekkingu á rafrænni skjölun, vera nákæmur og eiga auðvelt með samskipti því starfinu fylgir miðlun upplýsinga til viðskiptavina innan og utan fyrirtækisins. Við leitum að kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi í spennandi og krefjandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem öryggi, áreiðanleiki og hágæða vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Liðsmanni með ríka þjónustulund sem hefur brennandi áhuga á að ná góðum árangri í starfi og hefur gaman að vinna sem hluti af liðsheild.

HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI • VARAHLUTIRBÍLAVERKSTÆÐI • SMURÞJÓNUSTA

BÍLASALA • BÓNSTÖÐ

SÍMI : 4 200 400

UMBOÐSAÐILAR BL & BÍLALANDS

UMBOÐSAÐILAR

-mundiMagga systir tekur við

Shippu-bandinu af Gunna bróður

Nýir eigendur að Ship o Hoj-Versluninni í Njarðvík hefur verið vel tekið

Margrét Örlygsdóttir og Gunnar Sigurðsson hafa

keypt rekstur verslunarinnar Ship o Hoj af þeim Gunnari Örlygssyni og Arthuri Galvez. Ship o Hoj býður upp á ferskar fisk- og kjöt-vörur í smá- & heildsölu og er auk þess með veitinga- og veisluþjón-ustu. Reksturinn í Reykjanesbæ hófst í byrjun október 2013 og hefur verið verið hægt og bítandi að festa sig í sessi.„Reksturinn verður áfram innan fjölskyldunnar þar sem systir mín Margrét mun taka við keflinu. Hún er kunn fyrir frábæra mat-seld og hefur nef fyrir þessu. Ship o Hoj mun án efa eflast fyrir vikið enda mikilvægt að eigendur starfi sjálfir öllum stundum að rekstri

sem þessum. Fiskvinnsla okkar Arthurs í Sandgerði er að færa út kvíarnar og því var ákveðið að ein-beita sér að þeim breytingum sem framundan eru í Sandgerði. Okkar fyrirtæki, AG Seafood, mun sem fyrr halda áfram að útvega ferskar sjávarafurðir til Ship o Hoj,“ segir í tilkynningu frá Gunnari Örlygs-syni.Hannes

FriðrikssonBara að hringja, á ennþá lausa kassa:)