12
Georg Guðni

Georg Guðni

Embed Size (px)

DESCRIPTION

 

Citation preview

Page 1: Georg Guðni

Georg Guðni

Page 2: Georg Guðni

Sýning á verkum Georgs Guðna í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 1912. september til 11. desember 2015.

Page 3: Georg Guðni

Búrfell2009Olía á striga30 x 50 cm hvert

Í eigu Sigrúnar Jónasdóttur

Page 4: Georg Guðni

Án titils2007Olía á striga50 x 50 cm

Í einkaeigu

Án titils2005Vatnslitur á pappír37,5 x 56,5 cm

Í einkaeigu

Án titils2005Olía á striga 190 x 140 cm

Með leyfi Sigrúnar Jónasdóttur og Hverfisgallerís

Án titils2005Vatnslitur á pappír37,5 x 56,5 cm

Í einkaeigu

Page 5: Georg Guðni

Án titils2002Olía á striga50 x 55 cm

Í einkaeigu

Án titils2001Olía á striga200 x 180 cm

Í eigu Ingunnar Wernersdóttur

Án titils 2000 Olía á striga135,5 x 150 cm

Í eigu Arion banka

Án titils2004 Olía á striga70 x 130 cm

Í eigu Arion banka

Page 6: Georg Guðni

Án titils1996 Olía á striga135,5 x,150 cm

Í eigu Arion banka

Án titils1995/2000Olía á striga32 x 64,5 cm

Í eigu Braga Guðlaugssonar

Án titils1999Olía á striga100 x 110 cm

Með leyfi Sigrúnar Jónasdóttur og Hverfisgallerís

Án titils1998Olía á striga193 x 223,5 cm

Í eigu Listasafns Íslands

Page 7: Georg Guðni

Án titils1990Olía á striga200 x 140 cm

Í eigu Listasafns Íslands

Án titilsOlía á striga65 x 55 cm

Í eigu Sigrúnar Jónasdóttur

Án titils1990Blýantur á pappír99 x 66 cm / 106,5 x 75 cm

Í eigu Sigrúnar Jónasdóttur

Án titils1994Olía á striga50 x 75 cm

Í eigu Sigrúnar Jónasdóttur

Page 8: Georg Guðni

Löðmundur1987Blýantur á pappír62,5 x 94,5 cm / 66,5 x 98,5 cm

Í eigu Sigrúnar Jónasdóttur

Herðubreið1985Olía á striga75,5 x 115,5 cm

Í eigu Sigrúnar Jónasdóttur

Helgafell á Snæfellsnesi1986Blýantur á pappír20 x 28 cm / 35,5 x 42,5 cm

Í eigu Listasafns Íslands

Kögunarhóll1985Olía á striga144 x 187,5 cm

Í eigu Listasafns Íslands

Page 9: Georg Guðni

Án titils1985Blýantur á pappír19,5 x 29,5 cm / 34,5 x 43,5 cm

Í eigu Listasafns Íslands

Skjaldbreiður1985Blýantur á pappír19,5 x 29,5 cm / 34,5 x 43,5 cm

Í eigu Listasafns Íslands

Án titils1985Blýantur á pappír20 x 30 cm / 40 x 55 cm

Í eigu Braga Guðlaugssonar

Page 10: Georg Guðni

MAÐURINN OG FJALLIÐ

Georg Guðni umbreytti heiminum í mynd með því að færa honum líkama sinn. Honum var ekki eiginlegt að draga markalínu á milli sín og heimsins, heldur var líkami hans eitt með verunni, í stöðugu samtali við náttúruna jafnt sem málverkið. Í raun má segja að hann hafi verið vísindamaður skynfæranna og að verk hans varpi skýru ljósi á þann næma skilning sem hann hafði á þeirri mikilvægu þekkingu sem streymir í gegnum líkamann á hverju augnabliki.

Upplifunum sínum umbreytti hann í myndir líkt og fyrir töfra. Málverk hans opna augu okkar fyrir veröldinni handan ásýndar hlutanna. Frammi fyrir verkum hans svífum við um óravíddir málverksins, í fullkominni samsvörun við myndefnið í verkum hans. Verk hans afklæða okkur úti á berangri, þar sem við stöndum líkt og umkomulausar sálir, hjálparvana og undrandi, í sömu andrá og skilningur okkar á lífinu vaknar.

Verk Georgs Guðna grundvallast á algerri opnun skilningar- vitanna, ásamt næmri vitund hans og skilningi fyrir umhverfinu hverju sinni. Þannig laukst fjallið upp fyrir honum sem raunverulegur íverustaður mikilvægra upplifanna, þar sem heildartilfinning skynjandi mannveru í náttúrunni líkt og holdgerðust í vitund hans. Með þessum hætti nálgaðist hann hina upprunalegu heild náttúrunnar, sem hann meðtók ætíð í hinu kosmíska samhengi sínu, þar sem sérhver hlutur, fyrirbæri og vera, er virkur þátttakandi í samtali og mótun alheimsins.

Sá magnþrungni kraftur sem birtist okkur í verkum hans er afrakstur stefnumóts við sjálfa veruna. Í þeim renna saman heildaráhrif þeirra upplifana, minninga, sögu og væntinga sem kynni hans af náttúrunni hafa veitt honum aðgang að. Nálgun hans nemur aldrei staðar við yfirborð hlutanna, heldur kafar hann í sífellu á vit þeirra djúpstæðu kennda sem búa innra með okkur og skilgreina okkur sem mannverur.

Page 11: Georg Guðni

Með verkum sínum færir hann okkur aftur þá veröld sem við töldum glataða. Í þeim birtist ekki eingöngu sú fagra ásýnd íslenskrar náttúru sem okkur er orðið tamt að sjá, heldur birtast okkur þar bæði óminnis ásar og sögulaus auðn, jafnt ókunnir dalir sem nafnlaus fjöll. Sem áhorfendur upplifum við okkur eiginlega alls staðar og hvergi, áttavillt í nýsköpuðu en jafnframt kunnuglegu landslagi. Hér birtist okkur náttúran með sama hætti og hún birtist í huga málarans, á svæði hugsunar þar sem ímyndun og veruleiki renna saman.

Georg Guðni þræddi uppgötvanir sínar vandlega inn í flókinn málaravef sinn. Innan hans erum við sem fangar ákveðins hugsunarkerfis, þar sem sjálf frumefnin í tilveru okkar kristallast. Dag eftir dag, lag fyrir lag, málverk eftir málverk, þar sem þolinmæði hinna síkviku pensilstroka teygir sig til ólíkra átta. Þannig lifnuðu myndir hans, af innsæi þeirrar elju, sem aðeins kviknar af raunverulegum kynnum þeirrar heildar-upplifunar sem felst í því að standa í miðju veraldarinnar.

Nú er Georg Guðni horfinn á vit sinna draumsýna. Honum tókst það ætlunarverk sitt að mála sjálfan sig í fjallið. Líkami hans er orðinn eitt með náttúrunni og himinninn yfir höfði hans hefur smokrað sér ofan í dalina. Sjóndeildarhringurinn tók hann allt of snemma, fyllti allar glufur, öll vit og sérhverja æð líkamans. Tíminn hljóp frá honum á leið sinni inn í nýjar víddir tilverunnar. Íslensk náttúra er ekki söm eftir þessi kynni. Ekki fremur en við sem höfum verið svo lánsöm að eignast hlutdeild í verkum hans. Brotthvarfið er sárara en orð fá lýst, en skilningur okkar á lífinu er nú orðinn allur annar.

Einar Garibaldi Eiríksson

Page 12: Georg Guðni