23
1 Námsmat Námskeið við Hjallaskóla Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007 Meyvant Þórólfsson

Námsmat Námskeið við Hjallaskóla Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

  • Upload
    brie

  • View
    52

  • Download
    0

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Námsmat Námskeið við Hjallaskóla Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007. Meyvant Þórólfsson. NÁMSKEIÐIÐ: Markmið, inntak, vinnulag. Að skoða, ræða og skilja: Hugmyndir um fjölbreytilegt námsmat Lykilhugtök tengd námsmati Námsmat í margbreytilegum nemendahópi Prófa matsaðferðir og kynna - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

1

Námsmat

Námskeið við Hjallaskóla

Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

Meyvant Þórólfsson

Page 2: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

2

NÁMSKEIÐIÐ: Markmið, inntak, vinnulag

Að skoða, ræða og skilja:• Hugmyndir um fjölbreytilegt námsmat• Lykilhugtök tengd námsmati• Námsmat í margbreytilegum nemendahópi• Prófa matsaðferðir og kynna• Námsmatsleiðir sem mæta ólíkum aðstæðum og þörfum

nemenda • Lesefni og aðrar heimildir um námsmat • Samvirkni um þróun námsmats við skólann

Page 3: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

NÁMSMAT – Assessment for/of/as learning

• Námsmat: Mat á námsárangri og námsframvindu. Nær bæði til nemenda sjálfra, hegðunar þeirra, hugsunar og frammistöðu og einnig til verka þeirra, til dæmis skriflegra svara á prófum, hugverka eða handverka.

D. Rowntree, N. Gronlund, W. Harlen, Ó.Proppé

• Norman Gronlund: Mikilvægt er að greina að árangur sjálfs námsins annars vegar og hegðunarþætti hins vegar.

Page 4: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

4

NÁMSMAT: Til hvers?

Wynne Harlen 2000:

• Assessment for learning (Námsmat í þágu náms)

• Assessment of learning (Námsmat sem vottun/dómur um námsárangur)

• Harlen hefur skrifað mikið um námsmat í náttúruvísindum (science): “Gaining access to children’s ideas is not an easy task...”

• Ath. einnig Assessment as learning (Námsmat sem nám eða námstækifæri)

Page 5: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

5

NÁMSMAT:Að hverju þarf að hyggja?• Réttmæti (validity/relevance) áreiðanleiki

(reliability): Aðalsmerki vandaðs námsmats.

• Réttmæti: Er túlkun niðurstaðna viðeigandi og merkingarbær miðað við þær forsendur sem við gengum út frá? Hefur matstækið/aðferðin að geyma nægilega gott sýnihorn af því sem nemendur áttu að læra?

• Því meiri áreiðanleiki, þeim mun stöðugri og traustari eru þær upplýsingar sem niðurstöður námsmatsins gefa okkur.

Page 6: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

6

Viðmið við túlkun á námsárangri

• Hópmiðað mat/samanburðareinkunnir (norm-referenced interpretation/relative grading): Árangur túlkaður út frá niðurstöðum alls hópsins. Dæmi: Jón var þriðji hæsti í krossaprófi í eðlisfræði. Einkunn ræðst af árangri alls viðmiðunarhópsins

• Markviðmiðað mat/markbundnar einkunnir (criterion-referenced interpretation/absolute grading): Árangur túlkaður út frá því hvað hver getur af því efni sem lagt var fyrir. Dæmi: Jón sýnir þekkingu og skilning á mismunandi myndum orku o.s.frv. ...Einkunn ræðst af því

• Loks: Nemandinn sjálfur sem viðmið – framför frá einum tíma til annars

Page 7: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

7

MatsaðferðirFjölmargar aðferir og tæki um að velja. Fer m.a. eftir tilgangi:

• Próf: Könnunarpróf, greiningarpróf, yfirlitspróf, munnleg próf, verkleg próf, svindlpróf, heimapróf, hóppróf, samvinnupróf, sjálfspróf...

• Námsmöppur (portfolios): Þjóna margs konar tilgangi. Sjá einnig “process folio”.

• Viðmiðatöflur (Rubrics): Viðmið fyrirfram gefin með lýsingum og nemendur flokkaðir þar inn.

• Marklistar (rating scales) og tékklistar (checklists): Hakað við eða merkt við með öðrum hætti á lista

• Viðtöl• Skýrslublöð• Óformlegt mat af ýmsu tagi: Athuga hvað skilur milli

þess að formlegs mats

Page 8: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

8

Prófatriði: Valkostir

Valið stendur milli:

• Fjölvalsprófatriða (Selection-Type Items): krossaspurningar, rétt-rangt spurningar, pörunarspurningar og túlkunarverkefni.

Og

• Innfyllingaratriða (Supply-Type Items): Stutt eyðufyllingasvör, stuttar ritgerðaspurningar, lengri ritgerðaverkefni.

Page 9: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

9

TVÍHYGGJA – tveir straumar – tvær stefnur John Dewey: “Thinking in terms of Either-Ors”

• Alþekkt í heimspeki, bókmenntum og trúarbragðafræðum

• Einnig þekkt í umræðu um menntun og samfélag viðhorf

• Skoðanir og hugmyndir sem þverstæður: …auðvelda manni að ná athygli og útskýra mál sitt

Page 10: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

10

TVÍHYGGJUHUGSUN... leiðir oft til átaka og spennu

• Enda tengist hún ósjaldan pólitík og ólíkum lífsgildum fólks

• Aðstandendur nemenda hafa ólík sjónarmið, “ættir” hafa ólík lífsgildi

• Sagan um Gaylord "Greg" Myron Focker byggir einmitt á þeirri hugmynd t.a.m.

Jack Byrnes og fjölsk:

“traditionally conservative family”

Bernie Focker og

fjölsk:

“quirky liberal family”

Page 11: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

11

TVÍHYGGJAHUGSUN í umræðu um námsmat

• Hlutlægt (objective) EÐA huglægt (subjective)?

• Megindlegt (quantitative) EÐA eigindlegt (qualitative)?

• Formlegt og fyrirframskrifað EÐA óformlegt og ófyrirséð?

• Grundvallað í markmiðum og námsefni (markviðmiðað/criterion-referenced) EÐA röðun og samanburði (norm-referenced)?

• Námsmat sem greining og leiðsögn (diagnostic & formative assessment) EÐA vottun og dómur (summative assessment)?

• Innra EÐA ytra mat?

Page 12: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

12

TVÍHYGGJA í umræðu um “nkn”

• Tillit tekið til allra (inclusive education) EÐA matið miðað við þarfir afmarkaðs hóps fremur en annarra (exclusive education)?

• Að meta ferli og framvindu (process) EÐA afrakstur og afurð (product) ?

Tveir meginstraumar:• Nemendamiðað “nkn” (student-centered) EÐA

námskrár-kennaramiðað “nkn” (curriculum-centered eða teacher-centered) skipulag?

Page 13: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

13

TVEIR MEGINSTRAUMAR: A) Nemendamiðað skipulag

Eins konar “liberal” hugmynd :

• Tekið mið af nemendum og margbreytil. aðstæðum þeirra.

• Matið eigindlegt og huglægt fremur en megindlegt og hlutlægt

• Gert ráð fyrir einstaklingsmun nemenda og starfsmanna, ekki “allir eins”

• Gert ráð fyrir virkni, samvinnu og ábyrgð allra. Áleitin spurning: Hverjir meta?

• Mat huglægt, eigindlegt og afstætt

Page 14: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

14

TVEIR MEGINSTRAUMAR: B) Námskrármiðað “nks”

Eins konar skilvirknihugmynd: • Hagkvæmni, skilvirkni og skýr viðmið,

”Standards”• Stöðlun, allir fylgi sömu viðmiðum• Miðlun þekkingar frá kennara og kerfi• “Vísindalegt” ytra mat fremur en

óáreiðanlegt innra mat • Mælingar: megindlegt og hlutlægt

fremur en eigindlegt og huglægt• Áhersla á samanburð

Page 15: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

15

TVEIR MEGINSTRAUMAR: Samræmd „vitpróf” á 20. öld

• Skilvirknihugmyndin styðst fremur við hópbundna („relatífa“) túlkun niðurstaðna og einkunnagjöf...

Page 16: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

16

TVEIR MEGINSTRAUMAR: Samræmd „vitpróf” á 20. öld

• ...báðar námskrárbundna/markmiðabundna („absolúta“) túlkun niðurstaðna og einkunnagjöf. Liberal-stefnan hafnar í raun öllu slíku í sinni tærustu mynd.

• Nefndarálit 1972: ...hallast frekar að þessu af því „obbi seinfærra nemenda á naumast möguleika á öðru en lágum einkunnum“ í hópbundna kerfinu „...og því er líklegt, að kerfið meini þeim námshvatningu, sem önnur kerfi gætu hugsanlega miðlað.“

Page 17: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

17

HVAÐ TÍÐKAST...? Flokkun Blooms og fél... Vitsmunasvið - stigbundið kerfi

Nýmyndun – skapandi hugsun Mat – gagnrýnin hugsun

Greining

Beiting

Skilningur

Þekking - minni

Greining

Page 18: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

18

HVAÐ TÍÐKAST Í SKÓLUM?Flokkun markmiða – áhrif frá atferliskenningu

• Bloom og fél – þekkingarsvið:

Þekking/kunnátta

Skilningur

Beiting

Greining

Mat/Gagnrýnin hugsun

Nýmyndun/Skapandi hugsun

Um 80% prófatriða á samræmdu lokapr. í náttúrufræði 2006

Page 19: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

19

HVAÐ TÍÐKAST...? Hvað gerist í „svarta kassanum“? (Inside the black box)

Input Output

Áhrif frá pósitívisma, raunhyggju og atferlishyggju: Nám er röklegt, línulegt og mælanlegt

Áhrif frá rökhyggju og hugsmíðihyggju: Nám er flókið, ófyrirséð, afstætt og erfitt að meta

Page 20: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

20

Samræmd „vitpróf” á 20. öld

• Eitt af aðalhlutverkum skólans er að þaulkynnast hverjum nemanda og uppgötva með öllum hugsanlegum ráðum, til hvers hann er bezt fallinn og hjálpa honum til að velja sér lífsstarf samkvæmt viti hans, hneigð og hæfni. Sérstök bók ætti að fylgja honum frá upphafi. Þar væri skráð ekki aðeins öll skólasaga hans, heldur og upplýsingar að heiman og úr umhverfinu. Þótt vitpróf leysi ekki alla þessa þraut, eru þau einn sá meginþáttur, sem ekki má án vera.

Steingrímur Arason 1948

Page 21: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

21

Framtíð samræmdra „vitprófa“?

• Rúnar Sigþórsson HA: „Eru samræmd próf barn liðins tíma, ein af lausnum gærdagsins á viðfangsefni morgundagsins?“

• Krafan um einstaklingsmiðaða kennsluhætti og skóla fyrir alla hlýtur að teljast ógnun við samræmd „vitpróf“ í þeirri mynd sem við þekkjum þau í dag.

• EN...krafa hvers einstaklings um að fá sig metinn „með öllum hugsanlegum ráðum, til hvers hann er bezt fallinn … samkvæmt viti hans, hneigð og hæfni. – hlýtur að lifa áfram

Page 22: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

22

Lykilspurningar

• Hver er tilgangur námsmatsins?• Hvað á að meta? • Hvernig eigum við að meta?• Hverjir eiga að meta?• Hvenær á að meta?• Hvaða viðmið eru við hæfi?• Hvernig tökum við á álitamálum?• Hvernig eigum við að vinna úr niðurstöðum og túlka

þær? O.s.frv.

Derek Rowntree o.fl.

Page 23: Námsmat Námskeið við Hjallaskóla       Námskeiðsdagur 17. ágúst 2007

23

Við í hita leiksins:

Hvernig metum við nám og námsframvindu? • Hlutlægt/huglægt? Formlegt/óformlegt? Með

samanburði? Við hvað? Er tilgangurinn að styðja við nám hvers og eins og/eða dæma um árangur?

Námsmat: • Hver metur? Hvenær? Hvað? Hvernig? Hvað er gert

með niðurstöður?