11

Allir synir mínir - leikskrá

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Allir synir mínir - leikskrá á flettiformi

Citation preview

Page 1: Allir synir mínir - leikskrá
Page 2: Allir synir mínir - leikskrá

LeikstjórnStefán Baldursson

LeikmyndGretar Reynisson

BúningarÞórunn Sigríður Þorgrímsdóttir

TónlistGísli Galdur Þorgeirsson

LýsingLárus Björnsson

ÞýðingHrafnhildur HagalínSýningarstjóri: María Dís CiliaAðstoðarmaður leikstjóra: Nanna Kristín MagnúsdóttirLeikmunir, yfirumsjón: Ásta Sigríður JónsdóttirLeikgervi og hárkollugerð, yfirumsjón: Árdís BjarnþórsdóttirHárgreiðsla, yfirumsjón: Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir og Þóra G. BenediktsdóttirBúningar, yfirumsjón: Ásdís Guðný GuðmundsdóttirHljóðstjórn: Kristinn Gauti EinarssonStóra sviðið, yfirumsjón: Einar Hermann Einarsson og Þórey Selma SverrisdóttirLeikmyndarsmíði og málun:

Verkstæðið ehf.

Þjóðleikhúsið 2010-2011, 62. leikár, 17. viðfangsefni.

Frumsýning á Stóra sviðinu 4. mars 2011

Allir synir mínireftir Arthur Miller

Page 3: Allir synir mínir - leikskrá

Persónur og leikendurJoe KellerJóhann Sigurðarson

Kate Keller Guðrún Snæfríður Gísladóttir

Chris Keller Björn Thors

Ann DeeverArnbjörg Hlíf Valsdóttir

George Deever Atli Rafn Sigurðarson

Jim Bayliss, læknirBaldur Trausti Hreinsson

Sue Bayliss Edda Arnljótsdóttir

Frank Lubey Hannes Óli Ágústsson

Lydia Lubey Vigdís Hrefna Pálsdóttir

BertHringur Ingvarsson / Grettir Valsson

Page 4: Allir synir mínir - leikskrá

Miller fæddist inn í vel stæða gyðingafjölskyldu í New York en

fjölskyldan fór afar illa út úr kreppunni miklu, og aðstæður hennar

gerbreyttust þegar hann var á unglingsaldri. Heimskreppan,

aðdrag-andi hennar og afleiðingar, átti eftir að hafa mikil áhrif

á Miller og verk hans. Líkt og margir kynntist hann því af eigin

raun hvernig lífið gat breyst í einu vetfangi, og þessar sviptingar

vöktu hjá honum djúpstæðar efasemdir um þau gildi sem mótuðu

bandarískt samfélag.

Miller gegndi ýmsum störfum þar til hann hóf nám við Michigan-

háskóla, fyrst í blaðamennsku og svo í enskum bókmenntum.

Á háskólaárunum byrjaði hann að skrifa leikrit og hlaut fyrir þau

ýmsar viðurkenningar. Hann vakti þó fyrst verulega athygli sem

rithöfundur með skáldsögunni Focus, sem kom út árið 1945, og

lýsir meðal annars gyðingahatri í Bandaríkjunum. Fyrsta leikrit

Millers sem sló í gegn var Allir synir mínir, sem var frumsýnt árið

1947, en í kjölfarið fylgdi Sölumaður deyr (1949), eitt frægasta

leikverk tuttugustu aldarinnar. Í því verki varpar höfundurinn

fram spurningum um ameríska drauminn og áhrif kapítalismans á

einstaklinga og samfélag.

Leikritið Í Deiglunni, sem var frumsýnt árið 1953, var byggt á

galdraofsóknum í Salem í Massachusetts árið 1692, en vísaði

jafnframt til samtímaatburða og herferðar óamerísku nefndarinnar

á hendur meintum kommúnistum. Þegar Miller var kallaður fyrir

nefndina árið 1956 neitaði hann að gefa upp nöfn fólks sem bendla

mætti við starfsemi kommúnista í landinu. Hann var dæmdur fyrir

óvirðingu við störf nefndarinnar, en áfrýjaði dómnum og vann

málið. Miller var afar ósáttur við félaga sína sem ljóstruðu upp um

aðra frammi fyrir nefndinni, en svik og uppljóstranir eru þemu sem

koma víða fyrir í verkum hans.

Meðal annarra frægra leikrita Millers eru Horft af brúnni (1955),

Eftir syndafallið (1964) og Gjaldið (1968). Meðal frægustu verka frá

síðustu árum er Glerbrot (1994), þar sem helförin gegn gyðingum

er bakgrunnur atburða. Miller skrifaði kvikmyndahandritið The

Misfits (1961), fyrir þáverandi eiginkonu sína Marilyn Monroe, en

þau voru gift frá 1956 til 1961. Sjálfsævisaga Millers, Timebends,

kom út árið 1987.

Miller tók þátt í mannréttindabaráttu af ýmsu tagi bæði heima

fyrir og á alþjóðavettvangi, og beitti sér meðal annars í þágu

tjáningarfrelsis og studdi rithöfunda sem sættu pólitískum

ofsóknum.

Verk Arthurs Millers einkennast af miklu valdi höfundarins

á persónusköpun og áhrifamiklum lýsingum hans á nánum

samskiptum innan fjölskyldu. Meðal þeirra viðfangsefna sem eru

hvað mest áberandi eru spurningar um sekt og sakleysi, um rétt og

rangt, siðferðisþrek og ábyrgð einstaklingsins gagnvart sjálfum sér

og samfélaginu.

Arthur MillerArthur Miller (1915-2005) er eitt virtasta og vinsælasta leikskáld Bandaríkjanna á 20. öld. Hann er þekktur fyrir að ná að sameina í verkum sínum beitta samfélagsádeilu og áhrifamiklar lýsingar á samskiptum fólks og innra lífi.

Page 5: Allir synir mínir - leikskrá

Allir synir mínir, sem var frumflutt árið 1947, er leikritið sem gerði

Arthur Miller heimsfrægan, hið fyrsta í röð hinna rómuðu stórvirkja

leikskáldsins.

Arthur Miller var að nálgast þrítugt þegar hann byrjaði að skrifa

Allir synir mínir. Hann hafði þá samið nokkur útvarpsleikrit og

styttri verk, en fyrsta sviðsetta verk hans í atvinnuleikhúsi hafði

ekki öðlast vinsældir og var nýlega horfið af fjölunum eftir nokkrar

sýningar. Þó að hann hefði hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar

fyrir leikrit sín þótti honum velgengnin láta á sér standa. Hann

einsetti sér að slá í gegn með þessu nýja leikriti – ef það tækist ekki

ætlaði hann að leggja leikritaskrif á hilluna.

Fram að þessu hafði Miller gjarnan skrifað leikrit sín á nokkrum

mánuðum, en hann varði tveimur og hálfu ári í að skrifa Allir synir

mínir. Ætlunarverk hans var að semja leikrit þar sem hann gæti

„staðið við hvert augnablik”.

Hugmyndin að leikritinu kviknaði í samtali Millers við tengdamóður

sína, sem sagði honum frá atviki sem hafði átt sér stað í Ohio. Þá

hafði dóttir ljóstrað upp um föður sinn, en sá hafði selt hernum

gallaða vélarhluta.

Miller var undir sterkum áhrifum frá leikskáldinu Henrik Ibsen

þegar hann skrifaði Allir synir mínir, einkum varðandi það hvernig

fortíðin hefur áhrif á atburði verksins og hvernig gamlar syndir leita

menn uppi og koma þeim í koll.

Miller vildi með þessu leikriti ná til breiðs áhorfendahóps, skrifa um

venjulegt fólk þannig að það gæti snert allan almenning.

Ætlun hans var að skrifa þannig að “fólk með heilbrigða dómgreind

myndi geta villst á leikritinu mínu og lífinu sjálfu”.

Hinn þekkti leikstjóri Elia Kazan setti verkið upp á Brodway í

janúar árið 1947. Sýningin hlaut frábærar viðtökur, þó að sumir

sökuðu Miller um að hafa skrifað “óamerískt” verk, sem væri árás

á kapítalismann og áróður í anda kommúnista. Verkið hlaut New

York Drama Critics’ Circle Award og var fljótlega sett á verkefnaskrá

leikhúsa víða um Evrópu.

Leikfélag Reykjavíkur sýndi Allir synir mínir árið 1958 í leikstjórn

Gísla Halldórssonar. Brynjólfur Jóhannesson og Helga Valtýsdóttir

voru í hlutverkum Kellerhjónanna. Þjóðleikhúsið sýndi leikritið árið

1993 í leikstjórn Þórs Tulinius og í hlutverkum Kellerhjónanna voru

Róbert Arnfinnsson og Kristbjörg Kjeld.

Allir synir mínir er reglulega sett upp víða um heim og má nefna

vinsælar sýningar á Broadway og West End á síðustu árum. Þær

spurningar sem Miller tekst á við í Allir synir mínir, meðal annars

um samfélagslega ábyrgð og nauðsyn þess að fólk horfist í augu við

afleiðingar gerða sinna, eiga við á öllum tímum.

Allir synir mínir

Page 6: Allir synir mínir - leikskrá

1915 Fæðist 17. október í Harlem í New York inn í vel stæða gyðingafjölskyldu. 1929 Kreppan kippir fótunum undan fjölskyldunni fjárhagslega, hún fl ytur til Brooklyn. 1933 Lýkur framhaldsskólanámi og fer að vinna á bílapartasölu.1934 Hefur nám í blaðamennsku við University of Michigan. 1936 Hlýtur Hopwood leikritunarverðlaunin. Hefur nám í enskum bókmenntum. 1937 Hlýtur Hopwood verðlaunin að nýju og Theatre Guild’s New Plays Award.1938 Lýkur B.A. prófi í enskum bókmenntum. Gengur til liðs við Federal Theater í New York, en leikhúsinu er lokað stuttu síðar. Semur á næstu árum nokkur stutt leikrit, meðal annars útvarpsleikrit.1940 Kvænist Mary Slattery. 1944 Dóttirin Jane fæðist. Sendir frá sér bókina Situation Normal, eftir að hafa ferðast á milli herbúða vegna rannsóknarvinnu fyrir kvikmyndahandritið að The Story of GI Joe. Frumsýning á The Man Who Had All The Luck á Broadway. Miller hlýtur Theater Guild National Award en sýningin fellur. 1945 Skáldsagan Focus kemur út og vekur athygli. 1947 Sonurinn Robert fæðist. All My Sons (Allir synir mínir) frumsýnt á Broadway, hlýtur New York Drama Critics’ Circle Award. 1949 Death of a Salesman (Sölumaður deyr) frumsýnt, hlýtur Pulitzer verðlaunin, New York Drama Critics’ Circle Award og ýmis önnur verðlaun.

1950 Frumsýning á An Enemy of the People (Þjóðníðingi/ Fjandmanni fólksins), leikgerð byggðri á verki Ibsens. 1953 Frumsýning á The Crucible (Í deiglunni), en verkið hlýtur Tony verðlaunin.1955 A View From the Bridge (Horft af brúnni) og A Memory of Two Mondays frumsýnd saman.1956 Kvænist Marilyn Monroe. Kallaður fyrir óamerísku nefndina. Lengri gerð af A View From the Bridge frum sýnd í London.1959 Hlýtur leikritunarverðlaun National Institute of Arts and Letters. 1961 Skilur við Marilyn Monroe. Kvikmyndin Misfi ts frumsýnd. 1962 Kvænist austurríska ljósmyndaranum Inge Morath. 1963 Dóttirin Rebecca fæðist. 1964 Frumsýning á After the Fall (Eftir syndafallið) og Incident at Vichy. 1965 Kosinn forseti alþjóðlega rithöfundaklúbbsins PEN.1967 Sonurinn Daniel fæðist. 1968 Frumsýning á The Price (Gjaldinu) á Broadway. 1969 Bókin In Russia kemur út, með ljósmyndum eftir Inge Morath. 1977 The Archbishop’s Ceiling frumsýnt í Washington. 1980 The American Clock frumsýnt í Suður-Karólínu og New York. 1983 Leikstýrir Death of a Salesman í Peking. 1985 Two-Way Mirror sýnt í London. 1987 Sjálfsævisaga Millers, Timebends: A Life, kemur út.1991 The Ride Down Mt. Morgan frumsýnt í London.1993 The Last Yankee frumsýnt í London og New York. 1994 Broken Glass (Glerbrot) frumsýnt í London og New York, hlýtur Olivier verðlaunin sem besta leikrit ársins. 1998 Mr. Peter’s Connections frumsýnt Off-Broadway. 2002 Inge Morath deyr. Resurrection Blues frumsýnt í Minneapolis. 2004 Finishing the Picture frumsýnt í Chicago.2005 Miller deyr á heimili sínu í Connecticut.

Arthur MillerArthur Miller

© N

ordi

ska

ApS.

Page 7: Allir synir mínir - leikskrá

„Í öllum leikritum mínum og bókum reyni ég að taka dramatískar

aðstæður úr lífinu, sem fela í sér raunverulegar spurningar um rétt

og rangt. Síðan dreg ég fram siðferðisvandann, jafnvel af heift og

við eins raunsæislegar aðstæður og ég get fundið, og reyni að benda

á raunverulega leið út úr honum, þó sú leið kunni að reynast grýtt.

Ég kem ekki auga á hvernig hægt er að skrifa nokkuð almennilegt

án þess að leggja spurninguna um rétt eða rangt til grundvallar.“

„Ég fyllist sífellt lotningu gagnvart því sem einn einstaklingur er,

vegna þess að í honum eru fólgnir endalausir möguleikar til að

gera gott og til að gera illt, vegna þess að hann er óútreiknanlegur,

og vegna þess að hann hefur hæfileika til að svíkja hvað sem er

og sýna óendalega grimmd, en jafnframt býr hann yfir óendanlegri

fórnfýsi og getur fórnað hverju sem er.”

„Ef við trúum því ekki að maðurinn geti valið og ef hann vill ekki

bera ábyrgð á vali sínu, getum við ekki treyst samvisku okkar til að

mótmæla einu eða neinu. Um þetta hef ég lengi verið að skrifa.”

“Þetta leikrit situr um varnarmúrinn sem fær menn til að ímynda sér

að heimurinn fyrir utan sé þeim óviðkomandi ... Hinn samfélagslegi

þáttur verksins snýst ekki um þá staðreynd að það fjalli um það

glæpsamlega athæfi að selja þjóð í stríði gallaða vöru – slíkt gæti

hæglega legið til grundvallar í spennusögu sem væri samfélagslegri

leikritun óviðkomandi. Þetta snýst um það álit, að glæpurinn sé

sprottinn af ákveðinni afstöðu einstaklings til samfélagsins og að

hann sé innrættur vissri lífsskoðun sem – ef hún yrði ríkjandi – gæti

komið okkur öllum í frumskóginn, sama hversu há og reisuleg húsin

okkar væru.”

„Það er ekki framinn glæpur í leikritinu vegna þess að hann

hefur þegar verið framinn. Hvorki Chris Keller né faðir hans geta

bætt fyrir glæpinn vegna þess að tjónið verður aldrei bætt. Eini

háskinn í verkinu er samviska Joe Keller, ef hún vaknar til vitundar

um ódæðið; og samviska sonar hans frammi fyrir því sem hann

uppgötvar um föður sinn. Segja má að vandi minn hafi verið fólginn

í því að gera siðferði áþreifanlegt, en þó held ég að réttara væri að

segja að bygging leikritsins sé hugsuð til þess að leiða einn mann

beint að afleiðingum gerða sinna.”

“Vandi Joe Keller er ekki fólginn í því að hann geti ekki greint rétt

frá röngu, heldur að í hjarta sínu getur hann ekki viðurkennt, að

hann hafi persónulega nokkur raunveruleg tengsl við sinn heim

eða sitt samfélag. Hann er ekki þátttakandi í samfélaginu heldur

lögformlegur hluthafi þess, ef svo má segja, og það er ekki hægt að

lögsækja hluthafa fyrirtækis persónulega.”

Þýðing á tilvitnunum í Arthur Miller: Árni Ibsen.

Arthur Miller hefur orðið

Page 8: Allir synir mínir - leikskrá

Stefán Baldursson á að baki yfir áttatíu

leikstjórnarverkefni á Íslandi, í Danmörku,

Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum.

Hann var leikhússtjóri LR 1980-87,

þjóðleikhússtjóri 1991-2005 og hefur verið

óperustjóri Íslensku óperunnar frá 2007.

Meðal nýlegra leikstjórnarverkefna hans

eru Rigoletto í Íslensku óperunni, Killer Joe

hjá Skámána, Amadeus hjá LR og Dínamít í Þjóðleikhúsinu. Hann

var tilnefndur til Grímunnar fyrir leikstjórn á Veislunni og Killer Joe.

Gretar Reynisson hefur haldið fjölda

einkasýninga og samsýninga hér heima

og erlendis. Hann hefur gert um sextíu

leikmyndir, meðal annars fyrir Ljós heimsins,

Lé konung, Draumleik og Ófögru veröld hjá LR

og Þetta er allt að koma, Pétur Gaut, Ívanov,

Utan gátta og Gerplu í Þjóðleikhúsinu. Hann

hlaut Grímuna fyrir Þetta er allt að koma,

Draumleik, Ófögru veröld og Utan gátta og

var tilnefndur fyrir Halta Billa, Græna landið, Pétur Gaut, Ívanov og

Gerplu.

Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir hefur

gert búninga og leikmyndir fyrir um

fimmtíu leik- og óperusýningar, tekið þátt

í listsýningum og hannað sögulegar fasta-

og farandsýningar. Meðal nýlegra verkefna

hennar eru Sorgin klæðir Elektru, Vegurinn

brennur og Dínamít í Þjóðleikhúsinu og

Cavalleria Rusticana, Pagliacci og Rigoletto

í Íslensku óperunni. Hún hannaði landnámssýninguna í Reykjavík

871+-2. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir leikmynd og búninga

í Veislunni.

Gísli Galdur Þorgeirsson hefur starfað

á mörgum sviðum tónlistar, leikið með

ýmsum hljómsveitum og unnið sem

plötusnúður víða um heim. Hann hefur

unnið við gerð tónlistar og hljóðmynda

fyrir leikverk, gjörninga og videóverk. Hann

vann tónlist og hljóðmynd fyrir Gerplu

og Kandíland hér í Þjóðleikhúsinu og

Húmanimal í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Hann hlaut Grímuna fyrir

hljóðmynd ársins í Húmanimal og var tilnefndur fyrir tónlist og

hljóðmynd ársins í Gerplu.

Lárus Björnsson hóf störf hjá

Þjóðleikhúsinu haustið 2006 eftir tuttugu

ára starf hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó

og Borgarleikhúsi. Lárus hefur lýst á þriðja

hundrað leiksýninga fyrir ólíka aðila á

Íslandi og í Færeyjum. Lárus hefur verið

tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir

lýsingu í Íslandsklukkunni, Gerplu,

Í Óðamansgarði, Engisprettum, Woyzeck, Bakkynjum, Draumleik,

Híbýlum vindanna, Chicago, Stingray og Kryddlegnum hjörtum.

Hrafnhildur Hagalín er höfundur fjögurra

verka fyrir svið, Ég er meistarinn og leikgerðar

á Sölku Völku sem LR sýndi og Hægan, Elektra

og Norður sem sýnd voru í Þjóðleikhúsinu.

Hún hefur skrifað fyrir útvarp og sjónvarp,

þýtt leikrit og samið texta við danssýningarnar

Systur og Bræður. Hún er annar stofnenda

netleikhússins Herbergi 408. Hún hlaut

Menningarverðlaun DV og Leikskáldaverðlaun Norðurlanda fyrir Ég

er meistarinn og Grímuna fyrir útvarpsverkið Einfarar.

Jóhann Sigurðarson lauk prófi frá

Leiklistarskóla Íslands 1981 og hefur

leikið fjölda burðarhlutverka á sviði og í

kvikmyndum, meðal annars í Önnu Kareninu,

Abel Snorko býr einn, Vesalingunum,

My Fair Lady og Fiðlaranum á þakinu í

Þjóðleikhúsinu og Gosa, Milljarðamærin

snýr aftur, Fólkinu í blokkinni og Fólkinu

í kjallaranum hjá LR. Meðal nýlegra kvikmynda eru Rokland og

Sumarlandið. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir Svarta mjólk

og Gretti, og til Edduverðlaunanna fyrir Brúðgumann.

Guðrún Snæfríður Gísladóttir lauk prófi

frá Leiklistarskóla Íslands 1977. Hún

hefur farið með fjölda burðarhlutverka

hjá Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu og

LR, en meðal nýlegra verkefna hennar

hér eru Íslandsklukkan, Brennuvargarnir,

Þrettándakvöld, Engisprettur og Pétur

Gautur. Hún lék meðal annars í Fórninni eftir

Tarkovskí. Guðrún hlaut Grímuna fyrir Mýrarljós, var tilnefnd fyrir

Vegurinn brennur og Þrettándakvöld og hlaut Menningarverðlaun

DV fyrir Agnes barn guðs.

Björn Thors útskrifaðist úr Leiklistardeild

LHÍ vorið 2003 og hefur leikið í ýmsum

leikhúsum, meðal annars í Volksbühne í

Berlín, Burgtheater í Vín, Lyric Hammersmith,

Borgarleikhúsinu og í Þjóðleikhúsinu. Meðal

nýlegra verkefna hans eru Íslandsklukkan og

Gerpla í Þjóðleikhúsinu og Hamskiptin með

Vesturporti. Björn hlaut Grímuna fyrir Græna

landið, Vestrið eina og Íslandsklukkuna. Hann fékk Edduverðlaunin fyrir

leik sinn í sjónvarpsseríunni Fangavaktinni.

Arnbjörg Hlíf Valsdóttir útskrifaðist

úr Leiklistardeild LHÍ 2002. Hún lék

meðal annars í Ríkarði þriðja, Vegurinn

brennur, Sorgin klæðir Elektru, Svartri

mjólk, Dýrunum í Hálsaskógi, Frelsi, Ern

eftir aldri og Klaufum og kóngsdætrum

hér í Þjóðleikhúsinu, Ófelíu í Hamlet hjá

Leikfélagi Akureyrar og Sól og Mána, Ronju

Ræningjadóttur og Gretti í Borgarleikhúsinu. Hún lék í kvikmyndinni

Sumarlandið. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir Frelsi, Svarta

mjólk og Gretti.

Atli Rafn Sigurðarson útskrifaðist frá

Leiklistarskóla Íslands árið 1997. Hann hefur

leikið fjölda hlutverka hjá Þjóðleikhúsinu,

Vesturporti, leikhópum og í kvikmyndum.

Nýleg verkefni hér eru Lér konungur og

Gerpla. Hann leikstýrði Brák hjá Land-

námssetrinu og Frida... viva la vida í Þjóð-

leikhúsinu. Hann hlaut Edduverðlaunin fyrir

leik sinn í Mýrinni og var tilnefndur til Grímunnar fyrir Grjótharða,

Leg, Halldór í Hollywood og Eilífa óhamingju.

Baldur Trausti Hreinsson hefur leikið í

fjölmörgum sýningum hjá Þjóðleikhúsinu,

LR, leikhópum og í kvikmyndum. Meðal

nýjustu verkefna hans hér eru Lér konungur,

Sögustund, Oliver, Frida… viva la vida,

Kardemommubærinn, Sumarljós, Macbeth,

Vígaguðinn og Konan áður. Baldur lék meðal

annars í Bláa herberginu og Djöflunum

í Borgarleikhúsinu. Hann fór með aðalhlutverk í kvikmyndunum

Dansinum og Villiljósi.

Page 9: Allir synir mínir - leikskrá

Edda Arnljótsdóttir lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands 1990. Hún hefur leikið í Þjóðleikhúsinu í tuttugu ár, en meðal verkefna hér eru Pétur Gautur (1991 og 1996), Þrjár systur, Kirsuberjagarðurinn, Mávurinn, Herjólfur er hættur að elska, Sjálfstætt fólk, Fagnaður og Brennuvargarnir. Hún leikur nú í Íslandsklukkunni og Ballinu á Bessastöðum. Einnig lék hún í Yfirvofandi.

Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir Þetta er allt að koma, Mýrarljós og Pétur Gaut.

Hannes Óli Ágústsson útskrifaðist með B.F.A. gráðu frá leikarabraut leiklistardeildar LHÍ vorið 2009. Hann hefur meðal annars leikið með Áhugaleikhúsi atvinnu-manna, í Rándýr á artFart, Shake Me hjá Hreyfiþróunarsamsteypunni, Munaðarlaus í Norræna húsinu, 2 fátækir pólskumælandi Rúmenar hjá Fátæka leikhúsinu, Bubba kóngi hjá Vér morðingjar, í Bjarnfreðarson og

sjónvarpsþáttum. Fyrsta verkefni hans í Þjóðleikhúsinu eftir útskrift var Lér konungur.

Vigdís Hrefna Pálsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild LHÍ 2002 og lauk mastersprófi frá Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow. Meðal nýlegra verkefna hennar í Þjóðleikhúsinu eru Lér konungur, Hænuungarnir, Oliver, Sædýrasafnið, Sumar-ljós og Macbeth. Hún lék einnig meðal annars í Litlu hryllingsbúðinni hjá LA, í Grettissögu og Höllu og Kára í Hafnarfjarðarleikhúsinu og Riddurum hringborðsins hjá Kvenfélaginu Garpi.

Hringur Ingvarsson Grettir Valsson

Page 10: Allir synir mínir - leikskrá

Sýningin tekur tæpa þrjá tíma, eitt hlé. Verkið heitir á frummálinu: All My Sons. Sýningarréttur: Nordiska Aps. Ritstjórn leikskrár: Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Umsjón: Sigurlaug Þorsteinsdóttir. Útlit: Arnar Geir Ómarsson. Ljósmyndir: Eddi. Prentun: Oddi. Útgefandi: Þjóðleikhúsið. Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar. Miðasölusími: 551 1200. Netfang miðasölu: [email protected]. Netfang Þjóðleikhússins: [email protected]. www.leikhusid.isBAKHJARL ÞJÓÐLEIKHÚSSINS

Page 11: Allir synir mínir - leikskrá