14
Varðveisla texta: hvað er það? Hádegiserindi Sagnfræðingafélags: Hvað er varðveisla? Þjóðminjasafni 26. febrúar 2008 Már Jónsson, Hugvísindadeild Háskóla Íslands

Varðveisla texta: hvað er það?

  • Upload
    tauret

  • View
    47

  • Download
    4

Embed Size (px)

DESCRIPTION

Varðveisla texta: hvað er það?. Hádegiserindi Sagnfræðingafélags: Hvað er varðveisla? Þjóðminjasafni 26. febrúar 2008 Már Jónsson, Hugvísindadeild Háskóla Íslands. Hrafn Sveinbjarnarson 15. janúar 2008:. - PowerPoint PPT Presentation

Citation preview

Page 1: Varðveisla texta: hvað er það?

Varðveisla texta:hvað er það?

Hádegiserindi Sagnfræðingafélags: Hvað er varðveisla?Þjóðminjasafni 26. febrúar 2008

Már Jónsson,Hugvísindadeild Háskóla Íslands

Page 2: Varðveisla texta: hvað er það?

Hrafn Sveinbjarnarson 15. janúar 2008:

Varðveisla er meginatriði í störfum skjalavarða... Skjalasafni embættis, stofnunar, einstaklings eða lögaðila skal haldið út af fyrir sig án viðauka og úrfellinga þannig að sú skipan sem það hafði hjá þeim sem myndaði skjalasafnið haldist óbreytt.

Page 3: Varðveisla texta: hvað er það?

Njála:Gunnarr spurði Njál at fé því, er hann hafði fengit honum til varðveizlu

Grágás:ef maðr finnr grip manns... þá skal hann þeim manni fœra til varðveizlu, er á landi býr, en sá skal varðveita ok halda upp á manna mótum

Heilagra manna sögur:þat klæði varðveitist fyrir útan spell ok fölvan allt til þessa dags

Page 4: Varðveisla texta: hvað er það?

Fréttablaðið 21. febrúar 2008. Hafnarfjarðarkálfur, bls. 12.Hafnarfjarðarbær veitir árlega húsverndar-styrki til endurgerðar eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum sem sérstakt varðveislugildi hafa af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum... Áhersla er lögð á að styrkja framkvæmdir sem færa ytra byrði húsa svo sem glugga og klæðningu til upprunalegs horfs.

Page 5: Varðveisla texta: hvað er það?

Væntanlegt?

Rangárþing ytra og Rangárþing eystra veita árlega fortíðarverndarstyrki til skráningar á fornum minjum á svæðinu, til söfnunar munnlegra heimilda og til útgáfu á skjölum sem lúta að sögu þess. Áhersla er lögð á að styrkja verkefni sem stuðla að raunsönnum skilningi á mannlífi og menningu í héraðinu á fyrri öldum.

Page 6: Varðveisla texta: hvað er það?

Ófeigsfjörður á Ströndum 3. september 2006

Page 7: Varðveisla texta: hvað er það?

Árnesi í Trékyllisvík 23. september 1654: 4. Meðkenndi Grímur óneyddur sig drepið hafa í Ófeigs-fjarðarseli eina á fyrir Höskuldi Einarssyni, með þeim hætti að einn staf eður charachterem hefði hann á fjöl rist og á ána kastað, og fyrir þessar orðsakir sem ofanskrifaðar eru settu valdsmennirnir þráttnefndan Grím í kóngsins lás eður járn með vorum ráðum. En þá hann var í járnin kominn kvaðst hann hafa logið á sig það ærdráp...

Page 8: Varðveisla texta: hvað er það?

Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifter, bls. 278

Page 9: Varðveisla texta: hvað er það?

Ólafur Davíðsson

Page 10: Varðveisla texta: hvað er það?

Lítil hugrás yfir svik og vélræði djöfulsins

sem stundum gengur réttur stundum hlykkjóttur

að spilla mannkynsins sáluhjálpMeð nafninu einasta eiga vitgrannir menn (að meistaranna sögn) að fæla djöfulinn í burtu, en með efninu hjúfra þeir hann að sér. So þetta prýðilega nafn Fjandafæla er að efninu... réttilega fjandahjúfran, so þeir allir laða, lokka, hjúfra, seiða djöfulinn að sér, sem þvílíkt þvol, þvætting, rugl, þvagl, lygi og guðlastan læra, iðka og öðrum út af sér kenna. (EGP, bls. 115.)

Page 11: Varðveisla texta: hvað er það?
Page 12: Varðveisla texta: hvað er það?

Eða ertu ef til vill að gabba mig?

Page 13: Varðveisla texta: hvað er það?

Baðstofan eftir Hugleik Dagsson, mynd 6 af 7 á http://www.leikhusid.is/?PageID=612

Page 14: Varðveisla texta: hvað er það?