23
Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

  • View
    234

  • Download
    7

Embed Size (px)

Citation preview

Page 1: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Einstaklingsmiðað námsmat

- Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Page 2: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Námsmatsumræðan: Bandaríkin: Prófin / óhefðbundið námsmat (gerjun og deilur)

England: Prófin / leiðsagnarmat (þróun)

Hér á landi: Óhefðbundið námsmat, símat, námsmöppur, stöðugt námsmat, einstaklingsmiðað námsmat

Ágreiningur um fyrirkomulag – hlutverk samræmdra prófa (hvernig lifum við með þeim?)

Bakgrunnur: Gróska í kennslu- og námsmatsfræðum

Page 3: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Námsmatshugtakið

Samofið allri kennslu. Kennari fylgist með nemanda í dagsins önn. Allt mat sem ekki er formgert með e-m hætti.

Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s.s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður.

Óformlegt námsmat – formlegt námsmat

Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám nemenda og miðlun þeirra til

annarra

Page 4: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Hver eru helstu námsmatsverkin?

Hversu stór hluti af starfi grunn-skólakennara er námsmat?

Hversu margir kennarar hafa ánægju af námsmati?

(Hversu margir hafa gerst kennararaf áhuga á námsmati?)

Page 5: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Byrjum hér á landi• Gróska í námsmati í kringum námskrána

1976/77• Á níunda og tíunda áratug síðustu aldar liggja

námsmatsmál mikið í láginni (námsmat = vandræðamál)

• Áhugi hefur farið (hratt!) vaxandi á undanförnum árum Námskráin 1999 Erlendir straumar Styrkir úr þróunarsjóðum Einstaklingsmiðunarstefnan

Page 6: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Margir skólar hér á landi eru og hafa verið að vinna skipulega að þróun námsmats:

• Vesturbæjarskóli

• Grunnskólinn í Borgarnesi

• Laugalækjarskóli

• Ingunnarskóli

• Ölduselsskóli

• Salaskóli

• Brekkuskóli

• Glerárskóli

• Hrafnagilsskóli

• Langholtsskóli

• Víkurskóli

• Vogaskóli

• ... og margir fleiri

Page 7: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Út á hvað ganga þessi verkefni?• „Naflaskoðun“ -

kortlagning• Heildaráætlanir –

samræming• Aukna fjölbreytni• Einstaklingsmiðað

námsmat• Frammistöðumat• Námsmöppur –

ferilmöppur - verkmöppur

• Leiðabækur• Nemendaviðtöl• Gátlistar, matslistar• Sjálfsmat,

jafningjamat• Þróun

matsviðmiðana (e. scoring rubrics, marklistar, sóknarkvarðar)

Page 8: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Í raun er lítið vitað um námsmat í grunnskólum hér á

landi!Þrjár rannsóknir:– Rannsókn Ernu Ingibjargar Pálsdóttur á

námsmatsaðferðum (lokið)

– Rannsókn Rúnars Sigþórssonar á áhrifum samræmdra prófa (ólokið)

– Rannsókn Ingvars Sigurgeirssonar, Jóhönnu Karlsdóttur og Meyvants Þórólfssonar á námsmatsaðferðum í grunnskólum (ólokið)

Page 9: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Rannsókn Ingibjargar Ernu Pálsdóttur

• Spurningalisti var sendur í 23 grunnskóla skólaárið 2003–2004 þar sem spurt var um fyrirkomulag námsmats (65% heimtur)

• Námsmat byggist annars vegar á skriflegum prófum (einkum á mið- og unglingastigi) og hins vegar á frammistöðu nemenda

Þessar aðferðir reyndust lítið notaðar (en áhugi á þeim mikill):

• Þátttaka nemenda • Umræður við nemendur• Sjálfsmat og jafningjamat • Námsmöppur (ferilmöppur, portfolio)

Erna Ingibjörg Pálsdóttir (2005). Námsmat í höndum kennara. Meistaraprófsritgerð lögð fram til fullnaðar M.Ed.-gráðu í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri með áherslu á stjórnun.

Page 10: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Ákvæði aðalnámskrár• Hver eru ákvæði aðalnámskrár um námsmat?

• Hversu hugnanleg eru þessi ákvæði?

• Að hvaða marki vinna skólar eftir ákvæðum námskrár – og að hvaða marki ekki?

• Að hvaða marki vinnur starfsfólk Hrafnagilsskóla með hliðsjón af þessum áherslum?

Page 11: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Ákvæði Aðalnámskrár 1999 Megintilgangur námsmats … að afla upplýsinga sem

hjálpa nemendum við námið, örva þá og hvetja til að leggja sig enn betur fram …

Námsmat fer ekki eingöngu fram í lok námstímans heldur er það einn af föstum þáttum skólastarfs, órjúfanlegt frá námi og kennslu …

Þar sem markmiðin eru margvísleg … er augljóst að matsaðferðir verða að vera fjölbreytilegar.

Mikilvægt er að meta bæði verklega og bóklega þætti og prófa ýmist skriflega, verklega eða munnlega eftir því sem við á.

Námsmat þarf … að fara fram jafnt og þétt á námstímanum.

Kennarar þurfa að hjálpa nemendum til raunhæfs sjálfsmats …

Page 12: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Tilgangur námsmats!? – flóknara mál en sýnist í fyrstu

Námshvatning – aðhald

Upplýsingar til nemenda, foreldra, annarra

Vísbendingar til kennara

Greina og meta nám eða kennslu

Gæðaeftirlit

Gera tilgang námsins ljósari

Val og flokkun á fólki

Page 13: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Önnur sjónarmið um tilgang námsmats

(hin dulda námskrá)

Búa nemendur undir lífsbaráttuna

Halda aga?

Umbuna eða refsa?

Styrkja vald kennarans?

Ógnun?

Eyða tíma!?

Page 14: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ?

... er flókið það er afdrifaríkt

fyrir þróun sjálfsmyndar fyrir starfsval og starfsframa

... reynir mjög á sanngirni og réttlætiskennd ... tengist ólíkum viðhorfum ... tengist fordómum okkar ... manneskjan er ótraust mælitæki!

Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ?

Page 15: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Þróunin vestan hafs• Deilur um hlutverk og þýðingu staðlaðra

prófa

• Gæðastaðla-hreyfingin (the standards movement)

• Hreyfing kennd við óhefðbundið námsmat (Alternative Assessment, Authentic Assessment, Performance Assessment)

• Assessment of / for / as Learning

Page 16: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Ótal heiti – sömu aðferðir?

Authentic Assessment: „Rauntengt“ námsmat Alternative Assessment: Óhefðbundið námsmat Performance-based Assessment eða Performance

Assessment: Frammistöðumat Portfolio Assessment: Námsmöppur, verkmöppur,

sýnismöppur Differentiated Assessment: Einstaklingsmiðað námsmat, aðlagað

námsmat Multidimensional eða MultipleAssessment: Margþætt námsmat Classroom Assessment Natural Assessment: Eðlilegt námsmat (?) Holistic Assessment: Heildstætt námsmat

Page 17: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Hvaða orð á að nota á íslensku?• Stöðugt, alhliða ...?

• Heildstætt ...?

• Fjölþætt ... margþætt ...?

• Símat?

• Einstaklingsmiðað ...?

Page 18: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

England• Vaxandi umræða um mikilvægi svokallaðs

leiðsagnarmats (Formative Assessment)

• Rannsóknir Black og Wiliam: Inside the Black Box (1998)

Page 19: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Nokkur mikilvæg námsmatshugtökGreinandi mat:

Til að greina námserfiðleika (Diagnostic Assessment) Stöðumat:

Hvar stendur nemandinn?

(Placement Assessment)Leiðsagnarmat: Til að bæta námið

(Formative Assessment)Heildarmat (yfirlitsmat): Til að meta námsárangur þegar

kennslu er lokið (Summative Evaluation)Símat:

Stöðugt námsmat á námstíma (Continuous Assessment /

Ongoing Assessment)

Page 20: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Leiðsagnarmat

• Kjarninn í leiðsagnarmati er að nemandinn fái (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf)

• Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna sýni fram á þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur

• Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati

• Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilja markmiðin)

(Black og Wiliam 1998): Inside the Black Box

Page 21: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Einstaklingsmiðað námsmat

• Gengið er út frá getu og hæfni hvers nemanda• Matið nær til allra flokka markmiða• Matið er stöðugt allan námstímann og fléttast með

eðlilegum hætti inn í námið• Áhersla á uppbyggjandi endurgjöf (leiðsögn)• Námsmatsverkefnin sjálf eiga að hafa

kennslufræðilegt gildi• Matið nær jafnt til aðferða og afurða• Byggt er á margvíslegum gögnum og sjónarhornum• Áhersla á virka þátttöku nemenda, sjálfsmat,

jafningjamat

Page 22: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Helstu námsmatsaðferðir Skipulegar athuganir

Mat á frammistöðu

Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“)

Greining og mat á verkefnum / úrlausnum

Dagbækur, leiðarbækur

Sjálfstæð verkefni

Sjálfsmat nemenda

Jafningjamat

Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir

Óhefðbundin próf

Námshátíðir, upp-skeruhátíðir (Celebration of Learning)

Page 23: Einstaklingsmiðað námsmat - Hugtakið – álitamálin – aðferðirnar -

Eru þetta mikilvægar spurningar?• Hvernig er námsmati í Hrafnagilsskóla háttað?

• Eru matsaðferðirnar að skila góðum árangri?• Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á?• Er vel staðið að námsmati? Hvað þarf helst að

bæta eða þróa? Hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat?

• Hvernig ber að skilja ákvæði aðalnámskrár? Á hvaða námsmatsaðferðir ber að leggja áherslu samkvæmt námskránni?

• Á hverju á að byggja þróun námsmats?