Upload
elmo
View
55
Download
3
Embed Size (px)
DESCRIPTION
Fjölbreytt námsmat á unglingastigi. Ólöf Ása Benediktsdóttir Kennari við Hrafnagilsskóla. Markmið kennara í 7.-10. bekk. Að minnka vægi skriflegra prófa Að auka ábyrgð nemenda á námi sínu Að dreifa námsmati jafnara yfir annirnar Að minnka álag á annaskiptum - PowerPoint PPT Presentation
Citation preview
Fjölbreytt námsmat á unglingastigi
Ólöf Ása Benediktsdóttir Kennari við Hrafnagilsskóla
Markmið kennara í 7.-10. bekk Að minnka vægi skriflegra prófa Að auka ábyrgð nemenda á námi sínu Að dreifa námsmati jafnara yfir annirnar Að minnka álag á annaskiptum Að námsmat gefi raunsanna mynd af
námsgetu og námsstöðu nemenda Að námsmat verði órjúfanlegur og eðlilegur
þáttur skólastarfs
Tegundir námsmats á unglingastigi Skrifleg verkefni Skrifleg próf Gátlistar og marklistar Ritgerðir Heildstæð verkefni Tilraunir Námsmöppur (portfolios)
Tegundir námsmats
Samvinnupróf Svindlpróf Sjálfsmat Jafningjamat Skapandi vinna Sýningar og kynningar Hlustunarpróf Munnleg próf
Tegundir námsmats
Skyndipróf Heimapróf Frammistöðu- mat Uppskeruhátíðir Leiðarbækur/ dagbækur
Nýtt námsmat á unglingastigi í Hrafnagilsskóla Svindlpróf Samvinnupróf Svindlmiðar Námsmöppur
Aukin notkun og meira vægi á… Leiðarbókum/dagbókum Gátlistum og marklistum Heildstæðum verkefnum
Dæmi um heildstætt verkefni í ensku Heildstætt verkefni í 7. - 9. bekk. Gekk misvel eftir námshópum. Jákvætt:
Mjög fjölþætt. Tekur á færniþáttunum fjórum.
Það sem betur má fara: 7. bekkingar þurfa að læra vinnubrögðin fyrst.
Tree adoption Matskvarði
Þróunarverkefni 2006-2007Námsmöppur í 9. bekk Markmið:
Að auka fjölbreytni námsmats á persónulegum grundvelli
Að auka ábyrgð nemenda á náminu Að auka virkni nemenda Að tengja námið við áhugasvið nemenda Að styrkja getuminni nemendur Að kennarar fái heildstæðari mynd af nemendum
og námsstöðu þeirra
Námsmöppur í 9. bekk
1. kafli – Hvað vil ég? 2. kafli – Hver er ég? 3. kafli – Hvað kann ég? 4. kafli – Sýnishorn af vinnu og rökstuðningur 5. kafli – Uppáhaldið mitt
Námsmöppur í 9. bekk
Unnar á báðum önnum í íslensku. Hvað gekk vel?
Að vinna í kafla 5, Uppáhaldið mitt Að safna góðum verkefnum í kafla 4 Að ígrunda persónueinkenni og námshætti
Námsmöppur í 9. bekk
Hvað má betur fara? Nemendur með námsörðugleika fundu sig illa Nemendur sem eiga erfitt með skipulag og að
halda utan um námsgögn áttu erfitt uppdráttar Á að nota þetta námsmat áfram?
Ekki fyrir þennan árgang Hentar vel sem verkefni fyrir heilan vetur Vonandi nýtt síðar!
Gátlistar/marklistar
Notaðir í öllum greinum. Góðir til þess að mæla vinnubrögð,
samvinnu, vinnusemi og fleira. Mikið þróaðir í verk- og listgreinum s.s.
myndmennt, íþróttum og textílmennt. Á að nota þetta námsmat áfram? Já –
skráning er mjög mikilvæg í skólastarfi
Gátlistar/marklistar - íþróttir
Notað í sundi og íþróttum. Notaðir til að meta vinnubrögð og hegðun. Einfaldir og þægilegir í notkun. Verða notaðir áfram.
Samvinnupróf
Notað í íslensku í 9. og 10. bekk, paravinna. Flestir hópar nýttu sér samvinnuna og ræddu
spurningarnar sín á milli. Skráning kennara á virkni og samvinnu gekk vel.
Örfáir nemendur voru ekki nógu virkir. Þetta verður notað áfram, t.d. þegar prófa á
lesskilning á nútímabókmenntum.
Leiðarbækur/dagbækur
Notað í dönsku í 8. og 9. bekk og í ensku í 7.-10. bekk.
Gekk mjög vel í 9. bekk í dönsku. Nemendur eru ánægðir með dagbækurnar. Ekki gefin nægur tími í 8. bekk. Dagbækur verða notaðar áfram. Mikilvægt að nemendur útbúi bækurnar að
hluta til sjálfir.
Niðurstaða… Minnkað vægi skriflegra prófa/kannana. Fjölbreyttara námsmat. Námsmat dreifist jafnara yfir veturinn. Kennarar vilja aðgreina kunnáttu nemenda og
vinnubrögð Eftir er að þróa betur hvernig við skilum
námsmati til nemenda og foreldra.
Umræður og spurningar
Vangaveltur: Hversu stórt hlutfall af námsmati ætti að vera
skriflegt námsmat? Skiptir máli að hafa fjölbreytt námsmat? Af hverju? Getur námsmat verið kennsluaðferð? Hvernig nýtum við okkur námsmat?
Gátlista, námsmatsblöð og fleira má fljótlega finna á heimasíðu Hrafnagilsskóla, www.krummi.is